Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

15 dómar fundust

Lykilorð: Löggerningur

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 13. desember 2023

E-2068/2022

A (Ólafur Valur Guðjónsson lögmaður) gegn B (Jóhann Tómas Sigurðsson lögmaður)

Stefnda var sýknuð af kröfum stefnanda, þar sem í ljósi gagna, vitnisburðar og framburðar stefndu, þá þótti þrátt fyrir vísbendingar ekki vera nægilega í ljós leitt að millifærslur stefnanda til stefndu hefðu í reynd falið í sér endurkræft lán stefnanda til stefndu vegna fasteignaviðskipta eða annars, fremur en að um væri að ræða greiðslur þeirra í millum í tengslum við uppgjör óhefðbundinna lánsviðskipta sem þau hafi haft aðkomu að. Var það mat dómsins að við svo búið hafi það staðið stefnanda nær að axla sönnunarbyrði fyrir kröfu sinni á hendur stefndu og að sú sönnun hafi þannig ekki náð fram að ganga.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 17. maí 2022

E-5103/2021

Rekstrarfélag Hafnartorgs (Sigurbjörn Ársæll Þorbergsson lögmaður) gegn Brimborg ehf (Tómas Jónsson lögmaður)

Eigandi ökutækja, sem meðal annars hafði útleigu ökutækja að atvinnu, sýknaður af kröfu rekstraraðila bílastæðahúss um greiðslu ógreiddra stöðugjalda sem leigutakar bifreiðanna höfðu stofnað til

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 29. apríl 2022

S-2857/2020

Ákæruvaldið (Finnur Þór Vilhjálmsson saksóknari) gegn Rosio Bertu Calvi Lozano (Sigurður G. Guðjónsson lögmaður)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Sakfellt fyrir umboðssvik en sýknað af ákæru varðandi meintan fjárdrátt/umboðssvik, misneytingu og gripdeild. Sakartæming gagnvart peningaþvætti. Skilorðsbundin refsing, fjármunir gerðir upptækir og fallist á skaðabótakröfur. Sakarkostnaður að hluta felldur á ríkissjóð.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 25. október 2018

E-404/2018

Ólafur Elfar Sigurðsson og Snædís Valsdóttir (Arnar Þór Stefánsson lögmaður) gegn IREF ehf. (Hjalti Steinþórsson lögmaður) og Árna Péturssyni og Guðveigu Einarsdóttur (Birna Ketilsdóttir lögmaður)

Ágreiningur í fjöleignarhúsi um hvort rými væri séreign eða sameign.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 12. október 2018

E-1/2018

Tómas Ísleifsson (Sjálfur ólöglærður) gegn Sigrúnu Ragnheiði Ragnarsdóttur (Birgir Már Björnsson lögmaður)

Fallist að hluta á kröfu stefnanda um skyldu stefndu til greiðslu skuldar vegna peningaláns, útlagðs kostnaðar út af endurbótum á fasteign o.fl., auk dráttarvaxta. Málskostnaður felldur niður.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 12. október 2018

E-3085/2017

Heimiliskaup ehf (Sigurður G. Guðjónsson lögmaður) gegn Sjóklæðagerðinni hf (Atli Björn Þorbjörnsson lögmaður)

Fallist að hluta á kröfu stefnanda um skyldu stefnda til greiðslu efndabóta, auk dráttarvaxta o.fl. vegna ólögmætrar riftunar húsaleigusamnings. Málskostnaður felldur niður.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 16. maí 2018

E-2466/2017

Guðfinna Aðalheiður Karlsdóttir (Eyvindur Sveinn Sólnes lögmaður) gegn Arnþrúði Karlsdóttur (Pétur Gunnlaugsson lögmaður)

Skuldamál. Megin ágreiningur í máli laut að því hvort um var að ræða gjafir til styrktar rekstri útvarpsstöðvar eða peningalán.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 22. október 2012

E-15/2012

Laxnesbúið ehf (Björgvin Þorsteinsson hrl) gegn Héðinshöfða ehf, Jóni Baldvinssyni og Ríkarði M. Ríkarðssyni (Þorbjörg Inga Jónsdóttir hrl)

Ógiltir voru tilteknir löggerningar stefnanda til eins stefnda og löggerningar eins stefnda, til annarra stefndu, sem gerðir voru á grundvelli þeirra löggerninga. Einnig var staðfest lögbannsgerð Sýslumannsins í Reykjavík

Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 2. október 2007

E-400/2006

Dalvíkurbyggð (Þröstur Ríkharðsson hdl) gegn Ara Axel Jónssyni og Hólmfríði G. Þorleifsdóttur (Stefán Geir Þórisson hrl)

Árið 1944 var landspilda seld á erfðafestu til ræktunar og beitar með tilteknum samningsskilmálum. Fallist var á, með hliðsjón af mati dómkvaddra matsmanna að spildan skyldi falla á ný til landeiganda, enda hefði skilmálum ekki verið fylgt.

Hæstiréttur birt 15. janúar 2004

264/2003

Sparisjóður Ólafsfjarðar (Árni Pálsson hrl) gegn Jóni Ingvari Þorvaldssyni (Jón Steinar Gunnlaugsson hrl, Reimar Snæfells Pétursson hdl)

Deila málsaðila átti rætur að rekja til þess að Þ, bróðir J, hafði sem sparisjóðsstjóri hjá S bundið sparisjóðinn við ábyrgðarskuldbindingar án heimildar. Greiddi J fjórar greiðslur vegna slíkra ábyrgða, samtals 53.992.341 krónu, gegn loforði um að S legði ekki fram kæru á hendur bróður J vegna þeirra. Bankaeftirlit Seðlabanka Íslands vísaði málinu til opinberrar rannsóknar og var Þ ákærður og dæmdur fyrir brot í starfi sínu sem sparisjóðsstjóri. Náði sakarefnið meðal annars til veitinga þriggja af þeim fjórum ábyrgðum sem J greiddi. Krafði J sparisjóðinn um endurgreiðslu umræddra fjármuna og vísaði til 36. gr. samningalaga nr. 7/1936 og sjónarmiða um brostnar forsendur. Var talið að greiðslurnar hefðu verið lán J til Þ til að greiða þessar skuldbindingar og að ekki hefði stofnast löggerningur milli J og S, sem unnt væri að ógilda á grundvelli þessa lagaákvæðis. Ekki var fallist á að sjónarmið um forsendubrest gætu átt við í málinu og var S sýknaður af kröfu J.