Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

42.615 dómar fundust

Landsréttur birt 18. júní 2026 kl. 16:42

374/2025

Ákæruvaldið (Arnþrúður Þórarinsdóttir saksóknari) gegn Bartosz Milbrandt (Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson lögmaður) (Inga Lillý Brynjólfsdóttir réttargæslumaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

B var ákærður fyrir nauðgun og stórfellt brot í nánu sambandi með því að hafa með ofbeldi og ólögmætri nauðung og án samþykkis haft samræði og önnur kynferðismök við A á sérstaklega sársaukafullan og meiðandi hátt. Var háttsemi B í ákæru talin varða við 1. mgr. 194. gr. og 1., sbr. 2. mgr., 218. gr. b almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Með hinum áfrýjaða dómi var B sakfelldur og dæmdur í þriggja ára fangelsi og gert að greiða A 2.500.000 krónur í miskabætur. Landsréttur mat framburð A trúverðugri en framburð B og að hann fengi nægilegan stuðning í öðrum gögnum til að hann yrði lagður til grundvallar sakfellingu. Taldi rétturinn því hafið yfir skynsamlegan vafa að B hefði gerst sekur um þá háttsemi sem greindi í ákæru. Var niðurstaða hins áfrýjaða dóms um sakfellingu B og greiðslu miskabóta til A því staðfest.

Landsréttur birt 18. júní 2026 kl. 16:33

198/2026

Barnaverndarþjónusta A (Einar Hugi Bjarnason lögmaður) gegn B (Kristján Gunnar Valdimarsson lögmaður)
Málaflokkur: Barnaréttur

Barnaverndarþjónusta A höfðaði mál á hendur B og krafðist þess að hún yrði svipt forsjá barns síns á grundvelli a- og d-liðar 1. mgr. 29. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002. Í hinum áfrýjaða dómi var fallist á að skilyrði a- og d-liðar 1. mgr. 29. gr. laganna væru uppfyllt. Taldi dómurinn á hinn bóginn að ekki hefði verið fullreynt að bæta forsjárhæfni B með stuðningsúrræðum sem tæk eru í barnaverndarstarfi. Þannig væri skilyrði 2. mgr. 29. gr. laganna um meðalhóf ekki fullnægt og var kröfu barnaverndarþjónustu A um forsjársviptingu því hafnað. Í dómi Landsréttar var staðfest sú niðurstaða héraðsdóms að uppfyllt væru efnisleg skilyrði a- og d-liðar 1. mgr. 29. gr. fyrir því að B yrði svipt forsjá barns síns. Um meðalhófsreglu 2. mgr. sama ákvæðis kom fram að B hefði fyrir tilstuðlan barnaverndarþjónustu A notið mikils og þétts stuðnings um margra mánaða skeið. Þrátt fyrir þétta tilsjón og ráðgjöf hefði B ekki tekið þeim framförum sem vonast var til og að var stefnt. Ekkert lægi fyrir um að staða B væri önnur í dag en þegar ákvörðun var tekin um að óska eftir að hún skyldi svipt forsjá. Fyrir lægi að forsjárhæfni B hefði verið metin verulega skert og hefði umfangsmikill stuðningur ekki skilað öruggri og traustri tengslamyndun milli B og barnsins. Færni B til tengslamyndunar og að lesa í aðstæður og tilfinningar barnsins hefði ekki aukist og af gögnum málsins var talið mega ráða að B gengist ekki við eða hefði innsæi í eigin veikleika og að mikið skorti á tengsl hennar og barnsins. Með vísan til þess sem rakið var í dómi Landsréttar um stuðning og leiðbeiningar sem B hafði notið og í ljósi nær óbreyttrar stöðu hennar þrátt fyrir vinnu, var talið fullreynt að efla foreldrahæfni hennar þannig að hún gæti tekið við umsjón barnsins. Þá var talið að hagsmunir barnsins mældu eindregið gegn því að tengsl þess við fósturforeldra yrðu rofin á viðkvæmu aldursskeiði til að snúa aftur til B þegar það væri með öllu ólíklegt að frekari stuðningur myndi bæta forsjárhæfni hennar svo nokkru næmi. Við mat á því, þegar vega þurfi saman hagsmuni barns og foreldra, yrði að mati Landsréttar að játa stjórnvöldum ákveðið svigrúm og hafa hagsmuni barns ávallt í fyrirrúmi. Samkvæmt framangreindu var ekki talið að önnur og vægari úrræði 2 en forsjársvipting stæði til boða í máli B og var krafa barnaverndarþjónustu A um að B yrði svipt forsjá því tekin til greina.

Landsréttur birt 18. júní 2026 kl. 16:33

115/2026

Ákæruvaldið (Hulda María Stefánsdóttir saksóknari) gegn Valentin Jemeljanov (Einar Oddur Sigurðsson lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

V var ákærður fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot, sbr. 173. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940, með því að hafa staðið að innflutningi á 3.000 ml af kókaíni á vökvaformi með styrkleika 53-56%, ætluðu til söludreifingar hér á landi í ágóðaskyni, en fíkniefnin flutti V til landsins sem farþegi með flugi falin í farangri V. V játaði sök samkvæmt ákæru fyrir dómi og var farið með málið sem játningarmál samkvæmt heimild í 1. mgr. 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Var V gert að sæta fangelsi í 3 ár og 6 mánuði auk upptöku á haldlögðum fíkniefnum og farsíma. Fyrir Landsrétti var eingöngu til endurskoðunar ákvæði héraðsdóms um refsingu V. Var í dómi Landsréttar vísað til þess að V hefði gengist við þeirri háttsemi sem honum var gefin að sök samkvæmt ákæru og jafngilti magnið um 1.860 g af hreinu kókaíni. Með hliðsjón af þessu og með vísan til þeirra refsiákvörðunarsjónarmiða sem rakin voru í hinum áfrýjaða dómi var refsing V ákveðin fangelsi í 3 ár. Þá staðfesti Landsréttur niðurstöðu hins áfrýjaða dóms um upptöku.

Landsréttur birt 18. júní 2026 kl. 16:22

77/2026

Ákæruvaldið (Anna Barbara Andradóttir saksóknari) gegn Elmari Erni Eiríkssyni (Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

E var í héraði sakfelldur fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot með því að hafa staðið að innflutningi á 2.217 töflum af oxycontin 80 mg ætluðum til söludreifingar hér á landi í ágóðaskyni. Fíkniefnin flutti hann til landsins sem farþegi í flugi frá Varsjá í Póllandi til Keflavíkur. E játaði sök við þingfestingu málsins í héraði og var farið með málið sem játningarmál. Var E gert að sæta fangelsi í 3 ár að frádregnu gæsluvarðhaldi sem hann hafði sætt, auk þess sem fíkniefnin voru gerð upptæk. Fyrir Landsrétti var eingöngu ágreiningur um ákvörðun refsingar. Við ákvörðun refsingar leit Landsréttur til þess að E hefði flutt til landsins mikil magna af sterkum fíkniefnum sem ætluð voru til söludreifingar hér á landi. Á hinn bóginn horfði það til mildunar refsingar E að hann játaði brot sitt greiðlega bæði á rannsóknarstigi málsins og fyrir dómi. Þá var tekið tillit til þess að ekki lá annað fyrir en að hlutverk E hefði einvörðungu verið í því fólgið að koma efnunum hingað til lands og fá þau öðrum í hendur. Með hliðsjón af þessu var refsing E ákveðin fangelsi í tvö ár og sex mánuði.

Landsréttur birt 18. júní 2026 kl. 16:22

832/2025

Ákæruvaldið (Dröfn Kærnested saksóknari) gegn Leomel Andres Romero Berrios (Helgi Þorsteinsson Silva lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

L var ákærður fyrir umferðarlagabrot og skjalafals með því að hafa á tilgreindum stað og stund ekið bifreið án þess að hafa öðlast ökurétt og án þess að ljós hennar væru tendruð og framvísað í blekkingarskyni gagnvart lögreglu ökuskírteini frá Perú á nafni L sem reyndist grunnfalsað. Með dómi héraðsdóms var L sakfelldur samkvæmt ákæru. Fyrir Landsrétti undi L niðurstöðu héraðsdóms um sakfellingu fyrir að hafa ekið bifreið án þess að ljós hennar væru tendruð en neitaði að öðru leyti sök. Í dómi Landsréttar var vísað til þess að umrætt ökuskírteini hefði samkvæmt skýrslu lögreglu ýmis einkenni fölsunar, þessi tegund ökuskírteina frá Perú væri ekki til og engar upplýsingar að finna um þessa tegund ökuskírteina á upplýsingasíðum lögreglu. L hefði gefið skýringar á því í framburði sínum í héraði hvers vegna ökuskírteinið væri gefið út af staðbundnum yfirvöldum, auk þess sem honum hefði ekki lánast að afla staðfestingar yfirvalda á uppruna ökuskírteinisins. Þá leit rétturinn til þess að L hefði áður framvísað umræddu ökuskírteini við lögreglu án þess að grunur hefði vaknað um að það væri falsað. Að öllu framangreindu virtu taldi Landsréttur ekki hafið yfir vafa að L hefði framvísað fölsuðu ökuskírteini. Var L því sýknaður af þessum hluta ákæru. Varðandi þann lið ákæru er sneri að akstri án ökuréttar tók Landsréttur fram að L hefði verið með gilt ökuskírteini frá Venesúela er lögregla stöðvaði hann umrætt sinn en hann hefði verið kominn langt yfir þau tímamörk sem greinir í 1. mgr. 58. gr. umferðarlaga nr. 77/2019 og 2. mgr. 29. gr. reglugerðar nr. 830/2011 um ökuskírteini. Var hann því sakfelldur fyrir akstur án ökuréttinda. L var gert að greiða 100.000 krónur í sekt en sæta ella fangelsi í átta daga.

Landsréttur birt 18. júní 2026 kl. 16:22

611/2025

Ákæruvaldið (Dröfn Kærnested saksóknari) gegn X (Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður, Friðrik Smárason lögmaður, 2. prófmál)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

X var ákærður fyrir ofbeldisbrot í nánu sambandi og fyrir barnaverndarlagabrot með þeim hætti sem nánar var rakið í átta liðum ákæru. Með hinum áfrýjaða dómi var X sýknaður af sakargiftum samkvæmt öðrum til fimmta lið ákæru, sjötta lið að hluta og sjöunda lið en sakfelldur samkvæmt fyrsta lið ákæru, sjötta lið að hluta og áttunda lið. Ákæruvaldið ákvað að una niðurstöðu héraðsdóms og fyrir Landsrétti komu því aðeins til endurskoðunar þeir ákæruliðir sem X var sakfelldur fyrir í héraði og hann krafðist sýknu af fyrir Landsrétti. Í þeim ákæruliðum var X gefið að sök að hafa ráðist að A og tekið hana hálstaki með báðum höndum og lyft henni upp og kastað henni eða ýtt á þvottagrind þannig að hún datt í gólfið, að hafa ítrekað á sambúðartíma þeirra tekið utan um andlit A með annarri hendi og kreist saman á henni kinnarnar og að lokum ítrekað hótað A lífláti, í sumum tilvikanna í viðurvist barna brotaþola og síns eigin barns. Í dómi Landsréttar kom fram að framburður A hefði verið stöðugur en að hann fengi aftur á móti ekki þá stoð í öðrum gögnum málsins að hann nægði til þess, gegn neitun ákærða, að talið yrði að ákæruvaldinu hefði tekist að færa sönnur á sekt ákærða. Var X því sýknaður af kröfum ákæruvaldsins.

Landsréttur birt 18. júní 2026 kl. 16:22

599/2025

Ákæruvaldið (Marín Ólafsdóttir saksóknari) gegn Ingibjörgu Björnsdóttur (Oddgeir Einarsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Staðfestur var dómur héraðsdóms þar sem I var sakfelld fyrir að hafa í sex tilvikum ekið undir áhrifum ávana- og fíkniefna og í einu þeirra einnig undir áhrifum slævandi lyfja. Var I gert að sæta fangelsi í 90 daga auk þess sem hún var svipt ökurétti ævilangt.

Landsréttur birt 18. júní 2026 kl. 16:22

398/2025

Íslenska ríkið (Soffía Jónsdóttir lögmaður) gegn A (Reimar Snæfells Pétursson lögmaður)

A var áminntur vegna hegðunar gagnvart undirmanni sínum og samhliða því færður til í starfi. A krafðist ógildingar ákvörðunar um breytingu á störfum og verksviði og miskabóta vegna þeirrar ákvörðunar. Í málinu var um það deilt hvort að ákvörðunin um breytingar á störfum og verksviði A hafi verið ólögmæt og valdið A miska þannig að bótaskyldu varðaði, sbr. b-lið 1. mgr. 26. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993. Í hinum áfrýjaða dómi, sem Landsréttur staðfesti, var talið að ákvörðunin hafi ekki verið reist á málefnalegum sjónarmiðum, sem er skilyrði lögmætis ákvörðunar skv. 19. gr. laga nr. 70/1996 um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins. Af gögnum málsins og málatilbúnaði aðila mætti m.a. ráða að mögulegt hefði verið að láta A sinna sams konar störfum og hann hafði áður með höndum, án þess að gegna stöðu yfirmanns gagnvart viðkomandi undirmanni. Í dómi Landsréttar var því talið að ákvörðun lögreglustjóra hafi verið meira íþyngjandi en nauðsyn bar til og þannig brotið í bága við meðalhófsreglu. Var því fallist á ógildingarkröfu stefnda og kröfu hans um miskabætur af þeim sökum. Þá staðfesti Landsréttur jafnframt niðurstöðu héraðsdóms um að A ætti rétt á miskabótum vegna afhendingar á skýrslu sálfræðistofu sem innihélt viðkvæmar persónuupplýsingar um A.

Landsréttur birt 18. júní 2026 kl. 16:22

375/2025

Geir ehf (Gunnar Ingi Jóhannsson lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Sonja H. Berndsen lögmaður)

G ehf. krafðist skaðabóta vegna tjóns sem hann hefði orðið fyrir vegna ólögmætrar málsmeðferðar stjórnvalds við afgreiðslu umsóknar hans um byggðakvóta. Umsókn G ehf. um byggðarkvóta á skip félagins fyrir fiskveiði árið 2019/2020 var hafnað af F þar sem umsókn hans var ekki talin uppfylla það grunnskilyrði að skipið væri skráð í því byggðarlagi sem byggðakvótinn, sem sótt var um úthlutun úr, tilheyrði. G ehf. bar því við að um að augljós mistök hefði verið að ræða og hann hefði ranglega hakað við byggðarlagið B í stað Þ í sama sveitarfélagi í rafrænni umsóknargátt F sem nýlega hafði verið tekin í gagnið og ekki komin með fulla virkni. G ehf. kærði ákvörðun F til ráðuneytisins og krafðist þess að ákvörðun F yrði úr gildi og skipi G ehf. úthlutað úr byggðarkvóta Þ þar sem skipið væri skráð. Ráðuneytið staðfesti ákvörðun F með úrskurði 25. nóvember 2020. Landsréttur féllst á með G ehf. að málsmeðferð og úrlausn málsins af hálfu F og ráðuneytisins hefði verið ólögmæt og haldin slíkum annmörkum að skilyrðinu um saknæmi væri fullnægt. Í stað þess að skoða umsókn G ehf. nánar eftir í ljós kom að hún uppfyllti ekki áðurgreint grunnskilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta var hún lögð til hliðar og ekki skoðuð frekar þrátt fyrir að vísbendingar lægju fyrir um að mistök hefðu átt sér stað við útfyllingu hennar. Í ljósi mikilsverða hagsmuna G ehf. og byggðarlagsins á Þ og með hliðsjón af því að rafræn umsóknargátt hafði nýlega verið tekin í notkun og að ekki hafði reynt á virkni hennar að öllu leyti var talið að sérstaklega mikilvægt hefði verið að umsóknirnar væru skoðaðar af kostgæfni. Þá hefði málsmeðferð ráðuneytisins farið í bága við 8. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006 og 31. gr. stjórnsýslulaga. Með hliðsjón af framangreindu hefði Í bakað sér skaðabótaskyldu gagnvart G ehf. á grundvelli vinnuveitenda- ábyrgðar. Var Í gert að greiða G ehf. skaðabætur. 2

Héraðsdómur Norðurlands vestra birt 18. júní 2026 kl. 14:51

S-69/2026

Lögreglustjórinn á Norðurlandi vestra (Sólveig Ingadóttir aðstoðarsaksóknari) gegn X (enginn)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Ákærða var sakfelld fyrir brot í nánu sambandi og líkamsárás.

Héraðsdómur Norðurlands vestra birt 18. júní 2026 kl. 14:41

S-59/2026

Lögreglustjórinn á Norðurlandi vestra (Sólveig Ingadóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Friðriki Marvin Björnssyni (Sveinn Andri Sveinsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var sakfelldur fyrir að aka í tvígang bifreið án gildra ökuréttinda, í annað skiptið undir áhrifum ávana- og fíkniefna.

Hæstiréttur birt 18. júní 2026 kl. 12:03

6/2026

Ákæruvaldið (Hulda María Stefánsdóttir saksóknari) gegn X (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður) (Inga Lillý Brynjólfsdóttir lögmaður einkaréttarkröfuhafa)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

X var gefið að sök manndráp og stórfellt brot í nánu sambandi með því að hafa svipt sambýliskonu sína, A, lífi með margþættu ofbeldi sem valdið hefðu áverkum sem upp voru taldir í sex töluliðum og með þeim afleiðingum að A lést af völdum nánar tilgreinds áverka. Þá var X í II. kafla ákæru gefið að sök brot í nánu sambandi með því að hafa fyrr sama ár beitt A ofbeldi með þeim afleiðingum að hún hlaut nánar tilgreinda áverka. Landsréttur lagði til grundvallar að X hefði ekki getað dulist að bani gæti hlotist af atlögu hans og sakfelldi X fyrir manndráp og stórfellt brot í nánu sambandi. Hæstiréttur staðfesti niðurstöðu Landsréttar að X hefði banað A með þeim hætti sem lýst væri í ákæru. Hæstiréttur taldi hins vegar varhugavert að virtri meginreglu 108. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála að fram væri komin full sönnun um að X hefði á verknaðarstundu haft ásetning til að bana A. Því miðaði rétturinn við að um hefði verið að ræða stórfellt gáleysi ákærða til afleiðinga verknaðarins sem lyktaði með andláti A og var brot hans heimfært til 2. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga. Þá var X með vísan til forsendna Landsréttar einnig sakfelldur fyrir stórfellt brot í nánu sambandi. Með vísan til forsendna hins áfrýjaða dóms var jafnframt staðfest sú niðurstaða að X hefði gerst sekur um þá háttsemi sem tilgreind var í II. kafla ákæru sem og heimfærsla háttseminnar til refsiákvæða. Hæstiréttur staðfesti að niðurstöður hins áfrýjaða dóms um að 15. og 16. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 ættu ekki við í málinu. Við ákvörðun refsingar X var litið til 1., 2., 3., 6. og 7. töluliðar 1. mgr. 70. gr. og 77. gr. almennra hegningarlaga. Var refsing X ákveðin 14 ára fangelsi. Þá var X gert að greiða einkaréttarkröfuhafanum B skaða- og miskabætur og einkaréttarkröfuhafanum C miskabætur.

Héraðsdómur Norðurlands vestra birt 18. júní 2026 kl. 10:39

S-55/2026

Héraðssaksóknari (Þröstur Þór Guðmundsson saksóknarfulltrúi) gegn Óliver Nóa Haraldssyni (enginn)

Ákærði var sakfelldur fyrir brot gegn valdstjórninni.

Landsréttur birt 16. júní 2026 kl. 9:22

478/2026

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Sonja Wiium saksóknarfulltrúi) gegn X (Leifur Runólfsson lögmaður)

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem hafnað var kröfu L um að X yrði gert að sæta gæsluvarðhald. Í úrskurði Landsréttar kom fram að uppfyllt væru skilyrði c-liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og að atvikum virtum stæði 3. mgr. sömu greinar því ekki í vegi að fallist yrði á kröfu L. Var hinn kærði úrskurður því felldur úr gildi og krafa L tekin til greina.

Landsréttur birt 15. júní 2026 kl. 16:15

400/2026

A (Leifur Runólfsson lögmaður) gegn barnaverndarþjónustu B (Árni Ármann Árnason lögmaður)
Málaflokkur: Barnaréttur

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem hafnað var kröfu A um að héraðsdómarinn C viki sæti í málinu. Við fyrirtöku málsins í héraði krafðist A þess að dómarinn viki sæti í málinu á grundvelli vanhæfis samkvæmt g-liðar 5. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála. Í hinum kærða úrskurði sem Landsréttur staðfesti var það ekki talið leiða til vanhæfis dómara í forsjársviptingarmáli að hann hafi áður úrskurðað um vistun barnanna utan heimils á grundvelli 28. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002. Í því máli voru ekki gerðar sömu kröfur og í þessu máli og því um tvö aðskilin mál að ræða. Fyrri úrskurður var reistur á þeim gögnum sem lágu fyrir á þeim tíma sem málið var til úrlausnar fyrir dómi. Því voru ekki talin vera fyrir hendi atvik eða aðstæður sem væru til þess fallin að draga óhlutdrægni héraðsdómarans með réttu í efa, sbr. g-lið 5. gr. laga nr. 91/1991.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 15. júní 2026 kl. 15:26

S-7369/2025

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Elín Hrafnsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Jónasi Þór Skúlasyni (Snorri Sturluson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur fyrir umferðarlagabrot. Var honum gert að greiða sekt í ríkissjóð og sæta sviptingu ökuréttar.

Héraðsdómur Vesturlands birt 15. júní 2026 kl. 14:50

S-195/2026

Lögreglustjórinn á Vesturlandi (Guðfinnur Stefánsson aðstoðarsaksóknari) gegn X
Lykilorð: Hegningarlagabrot. Hótanir.
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Ákærði sakfelldur fyrir hótun. Dæmdur til að sæta fangelsi í 30 daga skilorðbundið til tveggja ára.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 15. júní 2026 kl. 13:19

E-2082/2025

Kristborg Bóel Steindórsdóttir (Sævar Þór Jónsson lögmaður) gegn Magnúsi Sigurði Haraldssyni (Sara Bryndís Þórsdóttir lögmaður)

Stefndi, seljandi fasteignar í fjöleignarhúsi, var sýknaður af kröfu stefnanda, kaupanda sömu fasteignar, um skaðabætur vegna galla á fasteigninni. Talið var að stefndi hefði nægilega sinnt upplýsingaskyldu sinni samkvæmt fasteignakaupalögum en að stefnandi hefði ekki nægilega sinnt aðgæsluskyldu sinni samkvæmt sömu lögum. Að öðru leyti var krafa stefnanda ekki talin fullnægja gallaþröskuldi 2. málsliðar 18. gr. sömu laga til þess að um galla gæti talist að ræða.

Landsréttur birt 15. júní 2026 kl. 10:21

296/2026

Samkeppniseftirlitið (Gizur Bergsteinsson lögmaður) gegn Samskip Holding B.V, Samskipum hf, Samskipum innanlands ehf og Jónum Transport hf (Hörður Felix Harðarson lögmaður)

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem máli Samkeppniseftirlitsins gegn Samskip Holding B.V., Samskipum hf., Samskipum innanlands ehf. og Jónum Transport hf. var vísað frá dómi vegna annmarka. Frávísunin var einkum byggð á því að stefna sóknaraðila fæli í sér óhóflegan skriflegan málflutning í andstöðu við meginreglu einkamálaréttarfars um munnlega málsmeðferð. Þá vísaði héraðsdómur einnig til þess að framlagningu gagna af hálfu sóknaraðila hefði verið ábótavant, ásamt því að fundið er að því að sóknaraðili noti á köflum aðeins skammstafanir nafna í stefnu sinni. Í úrskurði Landsréttar kom fram að dómstólar yrðu að meta hvert atvik fyrir sig við mat á því hvort of langt væri gengið í átt að skriflegum málflutningi. Landsréttur taldi að samhengi málsatvika og málsástæðna sóknaraðila, sem og tilvísun til réttarreglna, væru nægilega ljós til þess að varnaraðilar gætu tekið til efnisvarna. Ekki væri heldur talið að notkun skammstafana á nöfnum í stefnu leiddi til þess að lýsing sakarefnisins yrði óskýr. Var það niðurstaða Landsréttar að málatilbúnaður sóknaraðila væri hvorki í heild né um einstök atriði haldinn slíkum annmörkum að tilefni hefði verið til að vísa málinu frá héraðsdómi. Var hinn kærði úrskurður því felldur úr gildi og lagt fyrir héraðsdóm að taka málið til efnismeðferðar.

Landsréttur birt 12. júní 2026 kl. 22:06

40/2024

Ákæruvaldið (Margrét Unnur Rögnvaldsdóttir saksóknari) gegn X (Guðbjarni Eggertsson lögmaður) (Sigurður Freyr Sigurðsson réttargæslumaður)
Málaflokkur: Kynferðisbrot

X var sakfelldur fyrir nauðgun og kynferðisbrot gegn barni með því að hafa, án samþykkis og með því að beita ólögmætri nauðung, haft samræði við B, sem þá var 13 ára. Þá var X sakfelldur fyrir kynferðislega áreitni með því að hafa í nokkur skipti á um sex mánaða tímabili áreitt A kynferðislega með því að þukla að minnsta kosti þrisvar sinnum á brjóstum A innanklæða og reyna í tvígang að færa hönd að kynfærum hennar, rasskellt hana einu sinni og sagt að hún væri með flottan rass. Við ákvörðun refsingar var litið til þess að X hefði gerst sekur um kynferðisbrot gegn tveimur stúlkum á barnsaldri. Brot hans væru alvarleg og beindust að mikilsverðum hagsmunum. X væri ungur að árum en ætti sér ekki málsbætur að öðru leyti. Var refsing hans ákveðin fangelsi í þrjú ár og sex mánuði. Þá var X gert að greiða A 1.200.000 króna miskabætur og B 2.000.000 króna. Þar sem upplýst var að þær hefðu þegar fengið þær fjárhæðir að fullu greiddar úr ríkissjóði voru ekki efni til að verða við kröfu þeirra um hærri miskabætur og var X því sýknaður af kröfum um greiðslu hærri miskabóta.

Landsréttur birt 12. júní 2026 kl. 22:06

848/2023

Hilmar Hreinsson (Gísli Guðni Hall lögmaður) gegn Avians ehf (Stefán Geir Þórisson lögmaður)

H, sem starfað hafði sem flugumferðarstjóri hjá I ehf., nú A ehf., krafðist þess að viðurkennt yrði að A ehf. hefði verið óheimilt að binda enda á störf H hjá A ehf. á grundvelli tilgreinds ákvæðis í kjarasamningi Félags íslenskra flugumferðarstjóra við Samtök atvinnulífsins. Ágreiningslaust var að starfslok H komu til af því einu að hann varð 63 ára og jafnframt að starfslok H hefðu verið reist á nánar tilgreindu kjarasamningsákvæði. Í dómi Landsréttar var rakið að eftir að lögum og stjórnvaldsfyrirmælunum var breytt á árunum 2017 og 2018 voru starfsréttindi flugumferðarstjóra ekki lengur háð neinum aldurstakmörkunum. Taldi Landsréttur kjarasamningsákvæðið því ekki veita stoð fyrir því að binda enda á störf H hjá A ehf. þegar hann náði 63 ára aldri. Einnig taldi rétturinn að beiting A ehf. á ákvæðinu gagnvart H hefði brotið í bága við 7. og 8. gr. laga nr. 86/2018 um jafna meðferð á vinnumarkaði, enda skilyrðum til frávika samkvæmt 12. gr. laganna ekki fullnægt. Var viðurkenningarkrafa H því tekin til greina.

Landsréttur birt 12. júní 2026 kl. 15:27

351/2026

Félag pípulagningameistara (Hilmar Gunnarsson lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Soffía Jónsdóttir lögmaður) og A (Ómar R. Valdimarsson lögmaður)

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem máli F á hendur Í og A var vísað frá dómi. Málið höfðaði F til ógildingar á ákvörðun sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu um útgáfu meistarabréfs í pípulögnum til handa A. Í hinum kærða úrskurði, sem staðfestur var í Landsrétti með vísan til forsendna, var komist að þeirri niðurstöðu að F hefði borið að beina dómkröfum sínum að sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu sem tekið hefði umrædda ákvörðun en ákvörðunin hefði ekki sætt endurskoðun á æðra stjórnsýslustigi. Krefðist Í frávísunar málsins á þessum grunni og yrði að fallast á hana af framangreindum sökum en stjórnvaldsákvörðuninni yrði ekki hnekkt fyrir dómi nema viðeigandi stjórnvald hefði aðild að úrlausn dómsmálsins. Þá var ekki fallist á með F að það hefði lögvarða hagsmuni af því að fá úrlausn dómkröfunnar. Var kröfum F því vísað frá dómi.

Landsréttur birt 11. júní 2026 kl. 16:35

91/2026

A (Hilmar Garðars Þorsteinsson lögmaður) gegn Barnavernd Reykjavíkur (Dagmar Arnardóttir lögmaður)
Málaflokkur: Barnaréttur

BR höfðaði mál og krafðist þess að A yrði svipt forsjá tveggja dætra sinna á grundvelli a- og d-liðar 1. mgr. 29. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002. Héraðsdómur féllst á með BR að skilyrðum beggja greindra stafliða væri fullnægt. Þá taldi dómurinn að vægari úrræði kæmu ekki til álita eins og málið væri vaxið og að meðalhófs hefði verið gætt í samræmi við 7. mgr. 4. gr. barnaverndarlaga og 12. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Við meðferð málsins fyrir Landsrétti voru ný gögn lögð fram. Í þeim kom fram að A ætti enn mjög langt í land í meðferðarvinnu sinni. Þá væri sú afstaða dætra hennar sem í gögnunum birtist að meginstefnu til hin sama og komið hefði fram í fyrri viðtölum talsmanns stúlknanna við þær og samtölum þeirra við dómendur í héraði. Með vísan til hinna nýju gagna en að öðru leyti til forsendna hins áfrýjaða dóms var hann staðfestur.

Landsréttur birt 11. júní 2026 kl. 16:26

39/2026

A (Helga Vala Helgadóttir Bachmann lögmaður) gegn B (Eva Dís Pálmadóttir lögmaður)
Málaflokkur: Barnaréttur

Að kröfu A var málið fellt niður fyrir Landsrétti með vísan til c-liðar 1. mgr. 105. gr., sbr. 166. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála. Með úrskurði Landsréttar var ákveðið að A skyldi greiða B málskostnað fyrir Landsrétti, sbr. 2. mgr. 130. gr. sömu laga.

Landsréttur birt 11. júní 2026 kl. 16:26

783/2025

Ákæruvaldið (Óli Ingi Ólason saksóknari) gegn Robertu Maciel De Góes (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður) og Spyridon Chinopoulos (Unnsteinn Örn Elvarsson lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

R og S var gefið að sök stórfellt fíkniefnalagabrot með því að hafa í félagi staðið að innflutningi á samtals 2.503,73 grömmum af kókaíni með 77-85% styrkleika ætluðu til söludreifingar í ágóðaskyni. Fíkniefnin fluttu þau til landsins sem farþegar í flugi frá Alicante á Spáni til Keflavíkur. R var með 1.124,45 grömm og S með 1.379,26 grömm falin innanklæða við komu þeirra til landsins. Þau gengust við þeim hluta sakargifta sem varðaði innflutning fíkniefna, en neituðu að hafa staðið saman að innflutningnum. Þá taldi R að háttsemi hennar fæli einungis í sér hlutdeild í broti þeirra sem hefðu fengið sig til verksins. Landsréttur staðfesti niðurstöðu hins áfrýjaða dóms um að R og S hefðu í sameiningu flutt samtals 2.503,73 grömm af kókaíni til landsins og að á því bæru þau refsiábyrgð sem aðalmenn. Þá var niðurstaða hins áfrýjaða dóms um viðurlög staðfest, þar sem R og S var gert að sæta fangelsi í þrjú ár og upptöku á fíkniefnum.

Landsréttur birt 11. júní 2026 kl. 16:26

768/2025

Ákæruvaldið (Dagmar Ösp Vésteinsdóttir saksóknari) gegn X (Bjarni Hólmar Einarsson lögmaður) (Gunnar Egill Egilsson lögmaður einkaréttarkröfuhafa)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

X var ákærður fyrir þjófnað, með því að hafa tekið samtals 4.785.252 krónur í reiðufé úr hraðbönkum með greiðslukorti A, og fyrir fjársvik, með því að hafa svikið út vörur og þjónustu með framvísun á greiðslukorti A, fyrir samtals 1.699.256 krónur. Með dómi héraðsdóms var ákærði sakfelldur fyrir alla þá háttsemi sem hann var ákærður fyrir. Fyrir Landsrétti var ákærði sýknaður að hluta en sakfelldur að öðru leyti með vísan til forsendna hins áfrýjaða dóms, eða sem nam þjófnaði að fjárhæð 4.515.993 króna og fjársvikum að fjárhæð 1.567.625 króna. Var X dæmdur hegningarauki og gert að sæta fangelsi í sex mánuði en fullnustu refsingarinnar frestað skilorðsbundið í tvö ár. Við ákvörðun refsingar var meðal annars litið til dráttar á meðferð málsins. Þá var X gert að greiða A samtals 6.083.618 krónur í skaðabætur með vöxtum og dráttarvöxtum.

Landsréttur birt 11. júní 2026 kl. 16:26

763/2025

Ákæruvaldið (Dröfn Kærnested saksóknari) gegn X (Einar Hugi Bjarnason lögmaður)
Málaflokkur: Kynferðisbrot

X var ákærður fyrir brot gegn 2. mgr. 194. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 með því að hafa haft samræði við A þar sem hún lá sofandi í rúmi og notfært sér að hún gat ekki spornað við verknaðinum sökum svefndrunga. Með hinum áfrýjaða dómi var X sakfelldur samkvæmt ákæru. Í dómi Landsréttar kom fram að X hefði staðfastlega neitað sök í málinu og skýrt svo frá að hann hefði haft samræði við A umrætt skipti en að það hafi verið með samþykki hennar en að hún hafi verið vakandi. Taldi Landsréttur að framburður X hefði í öllum meginatriðum verið stöðugur og að nánar tilgreindir hnökrar á honum væru ekki þess eðlis að draga úr trúverðugleika hans. Þá var ekki talið að Snapchat skilaboð sem X sendi A gætu falið í sér viðurkenningu X á að hafa brotið gegn A með þeim hætti sem í ákæru greindi. Því taldi Landsréttur að framburður A fengi ekki þá stoð í öðrum gögnum málsins að hann nægði, gegn eindreginni neitun ákærða, til að fella á hann sök. Að þessu virtu var ekki talið að ákæruvaldinu hefði tekist að sanna svo hafið væri yfir skynsamlegan vafa, sbr. 108. og 1. mgr. 109. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála að X hefði gerst sekur um þá háttsemi sem honum var gefin að sök í ákæru. Var X því sýknaður af kröfu ákæruvaldsins og einkaréttarkröfu A vísað frá dómi.

Landsréttur birt 11. júní 2026 kl. 16:26

665/2025

Ákæruvaldið (Margrét Unnur Rögnvaldsdóttir saksóknari) gegn X (Oddgeir Einarsson lögmaður) (Sigurður Sigurjónsson réttargæslumaður)
Málaflokkur: Kynferðisbrot

X var í ákæru gefið að sök kynferðisbrot gegn dóttur sinni með nánar tilgreindri háttsemi. Var brotið talið varða við 2. mgr. 202. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Með hinum áfrýjaða dómi var X sýknaður af öðrum sakargiftum en þeim að hafa sett munn sinn yfir munn A og reynt að setja tunguna upp í hana og var fyrir Landsrétti eingöngu til endurskoðunar sú háttsemi sem sakfellt var fyrir í héraði. Í dómi Landsréttar kom fram að X yrði ekki sakfelldur fyrir brot samkvæmt ákæru nema fyrir lægi sönnun um ásetning hans til þess að viðhafa háttsemi gagnvart A sem væri kynferðislegs eðlis. Vísað var til þess að X hefði eindregið hafnað því að hafa viðhaft kynferðislega háttsemi gagnvart A og hefði framburður hans verið staðfastur hjá lögreglu og fyrir dómi. Ekkert væri fram komið sem væri til þess fallið að draga úr trúverðugleika framburðar hans að þessu leyti. Á hinn bóginn drægju ákveðnir þættir og aðstæður úr sönnunargildi og áreiðanleika framburðar A um atvik umrætt kvöld og gæti endursögn móður A, sálfræðings og annarra á frásögn hennar ekki breytt því. Að öllu virtu þótti lýsing A ekki fá þá stoð í gögnum málsins að nægði til þess, gegn eindreginni neitun X, að sannað væri svo hafið væri yfir skynsamlegan vafa að hann hefði af ásetningi viðhaft þá kynferðislegu háttsemi sem lýst væri í ákæru. Var X því sýknaður af kröfum ákæruvaldsins.

Landsréttur birt 11. júní 2026 kl. 16:26

403/2025

Íslenska ríkið (Jóhanna Katrín Magnúsdóttir lögmaður) gegn Hótel Keflavík ehf (Stefán Geir Þórisson lögmaður)

H ehf. fékk fjárstuðning frá Í á grundvelli laga nr. 50/2020 um stuðning úr ríkissjóði vegna greiðslu hluta launakostnaðar á uppsagnarfresti. Með ákvörðun Skattsins 15. nóvember 2021 var fjárstuðningurinn endurákvarðaður vegna launakostnaðar á uppsagnarfresti tveggja uppkominna dætra eiganda H ehf., þar sem sá kostnaður var ekki talinn styrkhæfur. H ehf. endurgreiddi þann hluta fjárstuðningsins í samræmi við ákvörðun Skattsins og höfðaði í kjölfarið mál á hendur Í til ógildingar á ákvörðuninni og endurgreiðslu stuðningsins. Deildu aðilar einkum um það hvaða skilning bæri að leggja í orðið launakostnað í 1. mgr. 4. gr. laga nr. 50/2020 en hugtakið var skilgreint í 4. tölulið 3. gr. laganna. Héraðsdómur komst að þeirri niðurstöðu að hinn umþrætti launakostnaður hafi verið styrkhæfur og tók kröfur H ehf. til greina. Í dómi Landsréttar var meðal annars tekið fram að hvorki í lögunum né lögskýringargögnum væri kveðið á um að slíkur kostnaður vegna tiltekinna launamanna væri undanskilinn. Yrði fallist á þann skýringarkost sem Í teldi réttan yrði að gagnálykta frá skilgreiningu 4. töluliðar 3. gr. laganna en sá lögskýringarkostur fengist ekki staðist gagnvart uppkomnum dætrum eiganda H ehf. Þá var af hálfu Í ekki á því byggt að skort hafi á að öðrum skilyrðum laga nr. 50/2020 væri fullnægt. Var hinn áfrýjaði dómur því staðfestur.

Landsréttur birt 11. júní 2026 kl. 16:26

391/2025

A (Ívar Þór Jóhannsson lögmaður) gegn Sjóvá-Almennum tryggingum hf (Guðjón Ármannsson lögmaður)
Málaflokkur: Vátryggingaréttur

A höfðaði mál og krafðist þess að viðurkennd yrði bótaskylda úr frjálsri ábyrgðartryggingu Háskólans í Reykjavík hjá S hf. vegna líkamstjóns sem hún varð fyrir þegar hún féll fyrir utan aðalinngang skólans í janúar 2023. A byggði viðurkenningarkröfu sína á sakarreglunni, reglum skaðabótaréttar um vinnuveitandaábyrgð og á nánar tilgreindum skráðum reglum. Byggði hún á því að vátryggingartakinn, Háskólinn í Reykjavík, bæri ábyrgð á líkamstjóni hennar, sem hefði verið afleiðing óforsvaranlegra aðstæðna við fasteign skólans og vanrækslu starfsmanna hans á að bregðast við hættulegri gangbraut við aðalinngang skólans. Í hinum áfrýjaða dómi, sem staðfestur var í Landsrétti með vísan til forsendna, var ekki talið að slysið yrði rakið til saknæmrar háttsemi eða athafnaleysis sem vátryggingartaki bæri skaðabótaábyrgð á heldur að slys A væri fyrst og fremst að rekja til óhappatilviljunar og/eða eigin aðgæsluleysis hennar. Var s hf. því sýknað af kröfum A.

Landsréttur birt 11. júní 2026 kl. 16:26

380/2025

A ehf (Elva Ósk Wiium lögmaður) gegn B (Björgvin Þórðarson lögmaður, Ásgeir Helgi Jóhannsson lögmaður, 4. prófmál)

A ehf. og B deildu um rétt B til kjarasamningsbundinna launahækkana, greiðslu launa, launa í veikindaforföllum og launa í uppsagnarfresti á nánar tilgreindu tímabili, auk greiðslu orlofs- og desemberuppbótar. Einnig hvort H hefði sýnt af sér tómlæti sem hefði þýðingu fyrir rétt hans til greiðslna. Með hinum áfrýjaða dómi var fallist á kröfur B að öðru leyti en því að A ehf. var sýknað af kröfu um launahækkanir á grundvelli kjarasamnings. Í dómi Landsréttar var lagt til grundvallar að H hefði átt rétt til þeirra launabreytinga sem um ræddi samkvæmt þeim kjarasamningi sem gilti um kjör H og bókunar við hann um almenna launahækkun. Þá taldi Landsréttur að einu gilti þó laun B hefðu verið hærri en lágmarkslaun og hann notið vissra launahækkana á starfstíma sínum en litið var til þess að fyrir dómi áréttaði A ehf. að það hefði ekki ætlað sér að mæta kjarasamningsbundnum launahækkunum með breytingu á launum B eða nýta heimild í bókuninni til að flýta hækkun launa. Var krafa B um greiðslu í samræmi við kjarasamningsbundnar launahækkanir því tekin til greina. Að öðru leyti staðfesti Landsréttur niðurstöðu hins áfrýjaða dóms, þar á meðal um ætlað tómlæti B, með vísan til forsendna.

Landsréttur birt 11. júní 2026 kl. 16:26

315/2025

Ákæruvaldið (Einar Tryggvason saksóknari) gegn Sinh Xuan Luu (Björgvin Jónsson lögmaður)
Málaflokkur: Skattaréttur

S var sakfelldur í héraði fyrir meiriháttar brot gegn skattalögum og 1. mgr. 262. gr. almennra hegningarlaga með því að hafa í fyrsta lagi staðið skil á efnislega röngum skattframtölum gjaldárin 2016 til og með 2019 vegna tekjuáranna 2015 til og með 2018 með því að vanframtelja annars vegar rekstrartekjur sínar og hins vegar leigutekjur sínar. Í öðru lagi fyrir að hafa staðið skil á efnislega röngum virðisaukaskattskýrslum fyrir sjálfstæðan rekstur sinn uppgjörstímabilin janúar/ febrúar rekstrarárið 2015 til og með nóvember/desember rekstrarárið 2018 og í þriðja lagi látið undir höfuð leggjast að færa lögboðið bókhald vegna sjálfstæðrar starfsemi sinnar í samræmi við kröfur laga nr. 145/1994 um bókhald. Landsréttur féllst á það með S að tekjur hans á árinu 2015 hefðu verið tvítaldar í ákæru sem næmi tiltekinni fjárhæð og að frádráttarbær kostnaður í rekstri hans hafi verið hærri en gert væri ráð fyrir í málinu. Niðurstaða Landsréttar var sú að undanskot S frá greiðslu opinberra gjalda og virðisaukaskatts næmu samtals 14.507.731 krónu og taldi rétturinn að brot hans samkvæmt 1. og 2. tölulið ákæru væru stórfelld í skilningi 1. mgr. 262. gr. almenna hegningarlaga. Sakargiftum um bókhaldsbrot samkvæmt 3. tölulið ákæru var vísað frá dómi þar sem háttsemislýsing ákæruliðarins uppfyllti ekki skilyrði c-liðar 1. mgr. 152. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Refsing S var ákveðin sem hegningarauki við eldri dóm. Við ákvörðun refsingar var litið til 1., 2., 5. og 6. töluliðar 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga og einnig til þess að dráttur hafði orðið á meðferð málsins. Var refsing S ákveðin fangelsi í 10 mánuði en fullnustu hennar frestað skilorðsbundið í tvö ár. Einnig var S gert að greiða sekt í ríkissjóð að fjárhæð 29 milljónir króna en sæta ella fangelsi í 330 daga.

Landsréttur birt 11. júní 2026 kl. 16:17

219/2025

A (Sigurður G. Guðjónsson lögmaður) gegn B (Sigurður Örn Hilmarsson lögmaður)

Mæðginin A og B festu kaup á fasteign árið 2011 og var eignarhlutur A í fasteigninni samkvæmt kaupsamningi 60% og B 40% en óumdeilt var að fjárframlag B hefði numið 86,9% af kaupverði hennar. B, sem býr við þroskaskerðingu, krafðist þess að viðurkennt yrði að eignarhlutur hans í fasteigninni yrði í samræmi við fjárframlag hans við kaupin og var krafan studd þeim rökum að sökum þroskaskerðingar hefði hann ekki haft skilning á skiptingu eignarhlutfalla samkvæmt kaupsamningi og hann því aldrei samþykkt hana. Með hinum áfrýjaða dómi var fallist á viðurkenningarkröfuna, auk fjárkröfu B sem ekki tengdist fasteignakaupunum með beinum hætti, og var fyrir Landsrétti eingöngu til skoðunar viðurkenningarkrafan. Í dómi Landsréttar kom fram að viðurkenningarkrafa B einskorðaðist við innbyrðis lögskipti þeirra og fælist í málatilbúnaði B að skipting á eignarhlutdeild aðila í fasteigninni yrði breytt til samræmis við hlut hvors þeirra í kaupverði eignarinnar. Taldi Landsréttur ekkert fram komið sem stæði því í vegi að kröfugerð B hlyti efnislega úrlausn dómstóla. Við mat á því hvort grundvöllur væri fyrir því að skráningu eignarhlutfalla yrði breytt vísaði Landsréttur meðal annars til þess að fasteignakaupin hefðu að mestu verið fjármögnuð af B og greiddi hann rekstrarkostnað af eigninni. Þá hefði B ekki burði til að gera sér grein fyrir því hvað fólst í ákvæði kaupsamningsins um eignarhlutföll og yrði að ganga út frá því að A hefði verið það ljóst. Hefði sú skýring sem A teldi liggja að baki skráningu eignarhlutfalla samkvæmt kaupsamning í reynd ráðið för hefði henni borið að sjá til þess að staðið yrði að málum með þeim hætti að hagsmunum B yrði gætt í hvívetna og lögum samkvæmt. Féllst Landsréttur því á viðurkenningarkröfu B, með vísan til 36. gr. laga nr. 7/1936, og staðfesti niðurstöðu hins áfrýjaða dóms að viðurkennt yrði að eignarhlutdeild B í fasteigninni væri 86,9% og A 13,1%.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 11. júní 2026 kl. 15:12

E-106/2026

Brynhildur Briem, Hannes Þór Sigurðsson, Jón Benjamín Jónsson, Örn Ingi Ingvarsson, Ólafur Arnar Jónsson og Ölhóll ehf (Sif Konráðsdóttir lögmaður) gegn íslenska ríkinu og Umhverfis- og orkustofnun og Húsnæðis- og mannvirkja- og skipulagsstofnun (Þorvaldur Hauksson lögmaður), Landsvirkjun (Guðjón Ármannsson lögmaður) og Jóni Árna Vignissyni og Náttúruverndarsamtökum Íslands og Veiðifélagi Þjórsár (enginn)

Deilt var um gildi tveggja stjórnvaldsákvarðana tengdum áformum stefnda Landsvirkjunar um að reisa vatnsaflsvirkjunina (raforkuverið) Hvammsvirkjun í neðri hluta Þjórsár en þær fyrirhuguðu framkvæmdir hafa áður verið til umfjöllunar í dómi Hæstaréttar 9. júlí 2025 í máli nr. 11/2025. Annars vegar var með síðari dómkröfu stefnenda deilt um gildi úrskurðar úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála 15. febrúar 2018 þar sem staðfest var ákvörðun Skipulagsstofnunar 16. desember 2015, samkvæmt 12. gr. þágildandi laga nr. 106/2000, um endurskoðun matsskýrslu Landsvirkjunar frá árinu 2003 en ákvörðunin fól í sér að ekki þyrfti að endurskoða matsþættina vatnalíf og vatnafar. Frávísunarkröfu íslenska ríkisins o.fl. sem laut aðeins að þeirri dómkröfu var hafnað í dóminum en málið, sem rekið var sem flýtimeðferðarmál, var flutt í einu lagi um formhlið og efnishlið þess. Í efnisþætti málsins voru stefndu sýknaðir af kröfu um ógildingu úrskurðarins, m.a. með vísan til þess að með forsendum nefnds dóms Hæstaréttar hefði verið leyst efnislega og með bindandi hætti úr málsástæðum stefnenda er lutu að umhverfismatsferlinu, sbr. meginreglu 1. og 2. mgr. 116. gr. laga nr. 91/1991. Þá var talið að 5. mgr. 101. gr. sömu laga girti fyrir að nýjar málsástæður, sem tilefni hefði verið til að hafa uppi um það efni í fyrra dómsmáli, kæmust að í máli þessu. Sú regla var þó ekki talin girða fyrir að leyst yrði úr öðrum málsástæðum stefnenda sem ekki var talið einsýnt að tilefni hefði verið til að hafa uppi í hinu fyrra máli. Hins vegar var með fyrri dómkröfu stefnenda deilt um gildi ákvörðunar Umhverfis- og orkustofnunar 12. desember 2025 um útgáfu virkjunarleyfis fyrir Hvammsvirkjun, þar sem jafnframt var veitt heimild til að breytingar á vatnshlotunum Þjórsá 1 og Þverá samkvæmt 18. gr. laga nr. 36/2011 um stjórn vatnamála. Stefndu voru einnig sýknaðir af þeirri dómkröfu. Málskostnaður var þó felldur niður með vísan til 3. mgr. 130. gr. laga nr. 91/1991.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 11. júní 2026 kl. 14:20

S-2489/2026

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Gunnhildur Anna Alfonsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Svavari Sigurðssyni (Ingi Freyr Ágústsson lögmaður)
Málaflokkur: Kynferðisbrot

Ákærði, sem játaði brot sitt, dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir kynferðisbrot og gert að sæta upptöku.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 11. júní 2026 kl. 14:10

S-6678/2025

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Anna Guðbjörg Hólm Bjarnadóttir saksóknarfulltrúi) gegn Helgu Þorkelsdóttur (Þorgils Þorgilsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærða var sakfelld fyrir umferðarlagabrot og fjársvik. Var henni dæmdur hegningarauki og gert að sæta fangelsi í 4 mánuði, skilorðsbundið til tveggja ára, ásamt því sem áréttuð var ævilöng svipting ökuréttar ákærðu.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 11. júní 2026 kl. 13:53

S-1842/2026

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Júlí Karlsson aðstoðarsaksóknari) gegn X (Ingi Freyr Ágústsson lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Ákærði var sakfelldur fyrir fíkniefnalagabrot, líkamsmeiðingar af gáleysi og umferðarlagabrot. Var honum gert að sæta 60 daga fangelsi skilorðsbundið til tveggja ára.

Hæstiréttur birt 10. júní 2026 kl. 15:05

59/2025

Barnaverndarþjónusta A (Einar Hugi Bjarnason lögmaður) gegn B (Guðbjörg Benjamínsdóttir lögmaður)
Málaflokkur: Barnaréttur

A höfðaði mál og krafðist þess að B yrði svipt forsjá sona sinna, E og F, á grundvelli a-, c- og d-liða 1. mgr. 29. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002. Með héraðsdómi var fallist á kröfur A og B svipt forsjá beggja drengjanna. Landsréttur féllst á að fyrir hendi væru skilyrði til að svipta B forsjá eldri drengsins, E, en hún sýknuð af kröfu vegna yngri drengsins, F. Fyrir Hæstarétti var einungis ágreiningur um hvort B skyldi svipt forsjá F. Hæstiréttur lagði til grundvallar að málið væri nægilega upplýst og að afdráttarlaus álitsgerð sálfræðings, sem aflað var utan réttar, væri fullnægjandi grundvöllur undir mat á forsjárhæfni B. Þá vísaði rétturinn meðal annars til þess að B hefði notið ráðgjafar og aðstoðar vegna vanda hennar í tengslum við málefni eldri drengsins. Í ljósi vanda hennar yrði ekki talið líklegt að frekari stuðningsúrræði vegna yngri drengsins hefðu getað gagnast B umfram þau sem áður hefðu verið reynd gagnvart fjölskyldunni. Loks var litið til þess að aðgerðir A hefðu miðað að því að viðhalda tengslum B við syni sína og með því styrkja hana í að öðlast frekari færni við uppeldi og umönnun F til samræmis við málsmeðferðaráætlun. Að þessu gættu og að öðru leyti með vísan til afdráttarlausrar niðurstöðu álitsgerðarinnar, sem samrýmdist öðrum gögnum málsins, var fallist á með A að fram væri komið að B væri augljóslega vanhæf til að fara með forsjá F og að skilyrðum d-liðar 1. mgr. 29. gr. barnaverndarlaga væri að öðru leyti mætt. Var því fallist á kröfu A um að svipta B forsjá hans.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 10. júní 2026 kl. 12:07

S-1498/2026

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Lína Ágústsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Murman Kiladze
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot og brot á lögum um útlendinga. Var honum gert að sæta 30 daga fangelsi skilorðsbundið til tveggja ára.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 10. júní 2026 kl. 12:07

S-748/2026

Héraðssaksóknari (Harpa Sólveig Björnsdóttir saksóknarfulltrúi) gegn Alfreð Þór Jóhannessyni (Sveinn Andri Sveinsson lögmaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Ákærði sakfelldur fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás samkvæmt. 2. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga og dæmdur í 6 mánaða skilorðsbundið fangelsi og til greiðslu miskabóta.

Landsréttur birt 10. júní 2026 kl. 12:06

426/2026

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Hildur Sunna Pálmadóttir aðstoðarsaksóknari) gegn X (Grímur Sigurðarson lögmaður)
Málaflokkur: Útlendingamál

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem kröfu X um að aflétt yrði haldlagningu L á nánar tilgreindum munum var hafnað.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 9. júní 2026 kl. 14:57

S-7505/2025

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kamilla Kjerúlf aðstoðarsaksóknari) gegn X (Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson lögmaður)

Ákærða sýknuð fyrir stórfelldar ærumeiðingar og umsáturseinelti, en sakfelld fyrir brot gegn nálgunarbanni og dæmd í 30 daga skilorðsbundið fangelsi og gert að greiða brotaþola miskabætur.

Hæstiréttur birt 9. júní 2026 kl. 14:15

23/2026

A (sjálfur) gegn íslenska ríkinu (enginn)

Með hinum kærða úrskurði var máli A á hendur Í vísað frá dómi á þeim grundvelli að A hefði ekki greitt lögákveðið gjald til héraðsdóms vegna kæru sinnar til réttarins, sbr. 3. mgr. 145. gr. laga nr. 91/1991 og 1. tölulið 2. mgr. 1. gr. laga nr. 88/1991. Fyrir lá hins vegar að A greiddi umrætt gjald til héraðsdóms innan kærufrests samkvæmt 1. mgr. 144. gr. laga nr. 91/1991. Taldi Hæstiréttur því ekki efni til að vísa málinu frá Landsrétti. Hinn kærði úrskurður var því felldur úr gildi og lagt fyrir Landsrétt að taka málið til efnislegrar meðferðar.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 9. júní 2026 kl. 11:23

E-548/2026

Alcoa Fjarðaál sf (Sigurður Kári Kristjánsson lögmaður) gegn Samskipum hf. og Samskip Holding B.V. (Hörður Felix Harðarson lögmaður) og Eimskipafélagi Íslands hf. og Eimskip Ísland ehf. (Halldór Brynjar Halldórsson lögmaður)
Lykilorð: Skaðabótakrafa.

Kröfu stefnanda um viðurkenningu skaðabótaskyldu á þeim grunni að stefndu hafi valdið skaðabótaskyldu tjóni vísað frá dómi vegna ágalla á málatilbúnaði.

Héraðsdómur Vesturlands birt 9. júní 2026 kl. 9:52

S-10/2026

Lögreglustjórinn á Vesturlandi (Guðfinnur Stefánsson aðstoðarsaksóknari) gegn Friðriki Marvin Björnssyni (Sveinn Andri Sveinsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur fyrir að aka undir áhrifum ávana- og fíkniefna í þriðja sinn innan ítrekunartíma í skilningi 71. gr. almennra hegningarlaga, sem og fyrir akstur án gildra ökuréttinda og hraðakstur. Með brotum sínum rauf ákærði skilorð og var skilorðsdómur því dæmdur upp og ákærða ákvörðuð refsing í einu lagi. Ákærða gert að sæta fangelsi í 6 mánuði og sviptur ökurétti ævilangt.

Hleð fleiri dómum…