Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem máli Samkeppniseftirlitsins gegn Samskip Holding B.V., Samskipum hf., Samskipum innanlands ehf. og Jónum Transport hf. var vísað frá dómi vegna annmarka. Frávísunin var einkum byggð á því að stefna sóknaraðila fæli í sér óhóflegan skriflegan málflutning í andstöðu við meginreglu einkamálaréttarfars um munnlega málsmeðferð. Þá vísaði héraðsdómur einnig til þess að framlagningu gagna af hálfu sóknaraðila hefði verið ábótavant, ásamt því að fundið er að því að sóknaraðili noti á köflum aðeins skammstafanir nafna í stefnu sinni. Í úrskurði Landsréttar kom fram að dómstólar yrðu að meta hvert atvik fyrir sig við mat á því hvort of langt væri gengið í átt að skriflegum málflutningi. Landsréttur taldi að samhengi málsatvika og málsástæðna sóknaraðila, sem og tilvísun til réttarreglna, væru nægilega ljós til þess að varnaraðilar gætu tekið til efnisvarna. Ekki væri heldur talið að notkun skammstafana á nöfnum í stefnu leiddi til þess að lýsing sakarefnisins yrði óskýr. Var það niðurstaða Landsréttar að málatilbúnaður sóknaraðila væri hvorki í heild né um einstök atriði haldinn slíkum annmörkum að tilefni hefði verið til að vísa málinu frá héraðsdómi. Var hinn kærði úrskurður því felldur úr gildi og lagt fyrir héraðsdóm að taka málið til efnismeðferðar.
Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem máli F á hendur Í og A var vísað frá dómi. Málið höfðaði F til ógildingar á ákvörðun sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu um útgáfu meistarabréfs í pípulögnum til handa A. Í hinum kærða úrskurði, sem staðfestur var í Landsrétti með vísan til forsendna, var komist að þeirri niðurstöðu að F hefði borið að beina dómkröfum sínum að sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu sem tekið hefði umrædda ákvörðun en ákvörðunin hefði ekki sætt endurskoðun á æðra stjórnsýslustigi. Krefðist Í frávísunar málsins á þessum grunni og yrði að fallast á hana af framangreindum sökum en stjórnvaldsákvörðuninni yrði ekki hnekkt fyrir dómi nema viðeigandi stjórnvald hefði aðild að úrlausn dómsmálsins. Þá var ekki fallist á með F að það hefði lögvarða hagsmuni af því að fá úrlausn dómkröfunnar. Var kröfum F því vísað frá dómi.
Brynhildur Briem, Hannes Þór Sigurðsson, Jón Benjamín Jónsson, Örn Ingi Ingvarsson, Ólafur Arnar Jónsson og Ölhóll ehf (
Sif Konráðsdóttir lögmaður)
gegn
íslenska ríkinu og Umhverfis- og orkustofnun og Húsnæðis- og mannvirkja- og skipulagsstofnun (
Þorvaldur Hauksson lögmaður),
Landsvirkjun (
Guðjón Ármannsson lögmaður) og
Jóni Árna Vignissyni og Náttúruverndarsamtökum Íslands og Veiðifélagi Þjórsár (enginn)
Deilt var um gildi tveggja stjórnvaldsákvarðana tengdum áformum stefnda Landsvirkjunar um að reisa vatnsaflsvirkjunina (raforkuverið) Hvammsvirkjun í neðri hluta Þjórsár en þær fyrirhuguðu framkvæmdir hafa áður verið til umfjöllunar í dómi Hæstaréttar 9. júlí 2025 í máli nr. 11/2025. Annars vegar var með síðari dómkröfu stefnenda deilt um gildi úrskurðar úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála 15. febrúar 2018 þar sem staðfest var ákvörðun Skipulagsstofnunar 16. desember 2015, samkvæmt 12. gr. þágildandi laga nr. 106/2000, um endurskoðun matsskýrslu Landsvirkjunar frá árinu 2003 en ákvörðunin fól í sér að ekki þyrfti að endurskoða matsþættina vatnalíf og vatnafar. Frávísunarkröfu íslenska ríkisins o.fl. sem laut aðeins að þeirri dómkröfu var hafnað í dóminum en málið, sem rekið var sem flýtimeðferðarmál, var flutt í einu lagi um formhlið og efnishlið þess. Í efnisþætti málsins voru stefndu sýknaðir af kröfu um ógildingu úrskurðarins, m.a. með vísan til þess að með forsendum nefnds dóms Hæstaréttar hefði verið leyst efnislega og með bindandi hætti úr málsástæðum stefnenda er lutu að umhverfismatsferlinu, sbr. meginreglu 1. og 2. mgr. 116. gr. laga nr. 91/1991. Þá var talið að 5. mgr. 101. gr. sömu laga girti fyrir að nýjar málsástæður, sem tilefni hefði verið til að hafa uppi um það efni í fyrra dómsmáli, kæmust að í máli þessu. Sú regla var þó ekki talin girða fyrir að leyst yrði úr öðrum málsástæðum stefnenda sem ekki var talið einsýnt að tilefni hefði verið til að hafa uppi í hinu fyrra máli. Hins vegar var með fyrri dómkröfu stefnenda deilt um gildi ákvörðunar Umhverfis- og orkustofnunar 12. desember 2025 um útgáfu virkjunarleyfis fyrir Hvammsvirkjun, þar sem jafnframt var veitt heimild til að breytingar á vatnshlotunum Þjórsá 1 og Þverá samkvæmt 18. gr. laga nr. 36/2011 um stjórn vatnamála. Stefndu voru einnig sýknaðir af þeirri dómkröfu. Málskostnaður var þó felldur niður með vísan til 3. mgr. 130. gr. laga nr. 91/1991.
H svf. höfðaði mál þetta og krafðist meðal annars ógildingar á ákvörðun R um að honum bæri að fjarlægja merkingar á tilgreindum bifreiðastæðum en að öðrum kosti greiða kostnað vegna þessa, sem og ógildingar á úrskurði samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins þar sem hafnað var kröfu um að framangreind ákvörðun yrði felld úr gildi. Þá krafðist H svf. ógildingar á ákvörðun R um að H svf. væri skylt að deila stæðunum með „öðrum starfandi leigubílstjórum í Reykjavík“. Héraðsdómur féllst ekki á málsástæður H svf., sem byggðu meðal annars á kaupsamningi frá 1969, hefð og reglum stjórnsýsluréttar. Í dómi Landsréttar kom fram að H svf. bæri sönnunarbyrði fyrir því að hann hefði fyrir hefð áunnið sér rétt til afnota af stæðunum, sem kæmi í veg fyrir að R gæti gert honum að fjarlægja merkingar og heimilað öðrum að nota þau ásamt H svf.. Væri málatilbúnaður H svf. að þessu leyti mjög almenns eðlis og ófullnægjandi um stóran hluta þeirra stæða sem ákvarðanirnar hefðu tekið til. Þá yrði H svf. ekki talinn hafa getað vænst þess að afnot hans að stæðunum, sem R hefði átt og verið háð samþykki, leyfum og skilyrðum hans, tryggðu H svf. eignarréttindi er kæmu í veg fyrir að R gæti gert þær breytingar á fyrirkomulagi stæðanna sem um væri deilt. Þá var rakið að við mat á því hvort ákvarðanir R hefðu samrýmst reglum stjórnsýsluréttar væri til þess að líta að þær hefðu ekki falið í sér að H svf. hefði verið sviptur afnotum stæðanna. H svf. hefði enn afnot af þeim, með öðrum, og hefði að sama skapi fengið afnot af stæðum sem aðrar bifreiðastöðvar hefðu áður haft samsvarandi leyfi fyrir. Að þessu gættu en að öðru leyti með vísan til forsendna héraðsdóms var hinn áfrýjaði dómur staðfestur um sýknu R af kröfum H svf.
S og Ó kröfðust þess að felld yrði úr gildi ákvörðum umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra þar sem L var heimilað eignarnám til ótímabundinna afnota á landi þeirra vegna lagningar 220 kV háspennulínu, svonefndrar Suðurnesjalínu 2, og að í því skyni yrði nánar tiltekinni kvöð þinglýst á jörðina. Hæstiréttur rakti að í framhaldi af dómum réttarins í málum frá 2016, þar sem felldar voru úr gildi samskonar ákvarðanir ráðherra um eignarnám, hefði L unnið nýja skýrslu um mat á umhverfisáhrifum og borið saman sex valkosti vegna lagningar línunnar, meðal annars þann að leggja jarðstreng. Hæstiréttur féllst ekki á að við meðferð umsóknar L um heimild til eignarnáms eða með ákvörðun sinni þar um hefði ráðherra litið fram hjá áliti Skipulagsstofnunar um mat á umhverfisáhrifum framkvæmdarinnar eða tekið ónógt tillit til niðurstöðu stofnunarinnar. Þá hafnaði rétturinn sjónarmiðum um að nánar tilgreind viðmið sem fram kæmu í þingsályktun um stefnu stjórnvalda um lagningu raflína væru í andstöðu við lög eða þýðingarlaus fyrir úrlausn málsins. Bent var á þann annmarka við undirbúning málsins að ekki hefði með tölulegum samanburði verið leitast við að leggja mat á og bera saman rekstrarkostnað á líftíma loftlínu annars vegar og jarðstrengs hins vegar. Rétturinn taldi þetta þó ekki verulegan annmarka, einkum þar sem í matsskýrslu umhverfisáhrifa mátti finna umfjöllun um þau atriði sem máli skiptu við mat á rekstrarkostnaði og áhættuþáttum á líftíma loftlínu og jarðstrengs. Var því talið að L hefði með fullnægjandi hætti lagt hlutlægan grunn að vali sínu á fyrirhugaðri útfærslu Suðurnesjalínu 2 og þar með umsókn sinni um heimild til eignarnáms. Var því þar af leiðandi hafnað að skort hefði á rannsókn málsins við töku ákvörðunar um eignarnám. Loks var ekki fallist á að unnt hefði verið með öðrum vægari úrræðum, svo sem með lagningu jarðstrengs, að ná með viðunandi hætti því markmiði sem að var stefnt með fyrirhugaðri framkvæmd. Hefði því verið fullnægt skilyrðum 23. gr. raforkulaga og 72. gr. stjórnarskrárinnar um að eignarnám í landi S og Ó væri nauðsynlegt. Að þessu gættu en að öðru leyti með vísan til forsendna hins áfrýjaða dóms var hann staðfestur.
E og G kröfðust þess að felld yrði úr gildi ákvörðum umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra þar sem L var heimilað eignarnám til ótímabundinna afnota á landi þeirra vegna lagningar 220 kV háspennulínu, svonefndrar Suðurnesjalínu 2, og að í því skyni yrði nánar tiltekinni kvöð þinglýst á jörðina. Hæstiréttur rakti að í framhaldi af dómum réttarins í málum frá 2016, þar sem felldar voru úr gildi samskonar ákvarðanir ráðherra um eignarnám, hefði L unnið nýja skýrslu um mat á umhverfisáhrifum og borið saman sex valkosti vegna lagningar línunnar, meðal annars þann að leggja jarðstreng. Hæstiréttur féllst ekki á að við meðferð umsóknar L um heimild til eignarnáms eða með ákvörðun sinni þar um hefði ráðherra litið fram hjá áliti Skipulagsstofnunar um mat á umhverfisáhrifum framkvæmdarinnar eða tekið ónógt tillit til niðurstöðu stofnunarinnar. Þá hafnaði rétturinn sjónarmiðum um að nánar tilgreind viðmið sem fram kæmu í þingsályktun um stefnu stjórnvalda um lagningu raflína væru í andstöðu við lög eða þýðingarlaus fyrir úrlausn málsins. Bent var á þann annmarka við undirbúning málsins að ekki hefði með tölulegum samanburði verið leitast við að leggja mat á og bera saman rekstrarkostnað á líftíma loftlínu annars vegar og jarðstrengs hins vegar. Rétturinn taldi þetta þó ekki verulegan annmarka, einkum þar sem í matsskýrslu umhverfisáhrifa mátti finna umfjöllun um þau atriði sem máli skiptu við mat á rekstrarkostnaði og áhættuþáttum á líftíma loftlínu og jarðstrengs. Var því talið að L hefði með fullnægjandi hætti lagt hlutlægan grunn að vali sínu á fyrirhugaðri útfærslu Suðurnesjalínu 2 og þar með umsókn sinni um heimild til eignarnáms. Var því þar af leiðandi hafnað að skort hefði á rannsókn málsins við töku ákvörðunar um eignarnám. Loks var ekki fallist á að unnt hefði verið með öðrum vægari úrræðum, svo sem með lagningu jarðstrengs, að ná með viðunandi hætti því markmiði sem að var stefnt með fyrirhugaðri framkvæmd. Hefði því verið fullnægt skilyrðum 23. gr. raforkulaga og 72. gr. stjórnarskrárinnar um að eignarnám í landi E og G væri nauðsynlegt. Að þessu gættu en að öðru leyti með vísan til forsendna hins áfrýjaða dóms var hann staðfestur.
R o.fl. kröfðust þess að felld yrði úr gildi ákvörðum umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra þar sem L var heimilað eignarnám til ótímabundinna afnota á landi þeirra vegna lagningar 220 kV háspennulínu, svonefndrar Suðurnesjalínu 2, og að í því skyni yrði nánar tiltekinni kvöð þinglýst á jörðina. Hæstiréttur rakti að í framhaldi af dómum réttarins í málum frá 2016, þar sem felldar voru úr gildi samskonar ákvarðanir ráðherra um eignarnám, hefði L unnið nýja skýrslu um mat á umhverfisáhrifum og borið saman sex valkosti vegna lagningar línunnar, meðal annars þann að leggja jarðstreng. Hæstiréttur féllst ekki á að við meðferð umsóknar L um heimild til eignarnáms eða með ákvörðun sinni þar um hefði ráðherra litið fram hjá áliti Skipulagsstofnunar um mat á umhverfisáhrifum framkvæmdarinnar eða tekið ónógt tillit til niðurstöðu stofnunarinnar. Þá hafnaði rétturinn sjónarmiðum um að nánar tilgreind viðmið sem fram kæmu í þingsályktun um stefnu stjórnvalda um lagningu raflína væru í andstöðu við lög eða þýðingarlaus fyrir úrlausn málsins. Bent var á þann annmarka við undirbúning málsins að ekki hefði með tölulegum samanburði verið leitast við að leggja mat á og bera saman rekstrarkostnað á líftíma loftlínu annars vegar og jarðstrengs hins vegar. Rétturinn taldi þetta þó ekki verulegan annmarka, einkum þar sem í matsskýrslu umhverfisáhrifa mátti finna umfjöllun um þau atriði sem máli skiptu við mat á rekstrarkostnaði og áhættuþáttum á líftíma loftlínu og jarðstrengs. Var því talið að L hefði með fullnægjandi hætti lagt hlutlægan grunn að vali sínu á fyrirhugaðri útfærslu Suðurnesjalínu 2 og þar með umsókn sinni um heimild til eignarnáms. Var því þar af leiðandi hafnað að skort hefði á rannsókn málsins við töku ákvörðunar um eignarnám. Loks var ekki fallist á að unnt hefði verið með öðrum vægari úrræðum, svo sem með lagningu jarðstrengs, að ná með viðunandi hætti því markmiði sem að var stefnt með fyrirhugaðri framkvæmd. Hefði því verið fullnægt skilyrðum 23. gr. raforkulaga og 72. gr. stjórnarskrárinnar um að eignarnám í landi R o.fl. væri nauðsynlegt. Að þessu gættu en að öðru leyti með vísan til forsendna hins áfrýjaða dóms var hann staðfestur.
Eydís Lára Franzdóttir, Guðni Kjartan Franzson, dánarbú Sigríðar Sólrúnar Jónsdóttur, Ólafur Þór Jónsson, Reykjaprent ehf., Jón Gestur Ólafsson, Freygerður Anna Ólafsdóttir og Edda Rún Ólafsdóttir (
Sigurður Örn Hilmarsson lögmaður)
gegn
Sveitarfélaginu Vogum (
Ívar Pálsson lögmaður) og
Landsneti hf (
Þórður Bogason lögmaður)
E o.fl. kröfðust þess að fellt yrði úr gildi framkvæmdaleyfi sem sveitarfélagið V gaf út til L vegna lagningar 220 kV háspennulínu, svonefndrar Suðurnesjalínu 2. Hæstiréttur rakti að útgáfa hins umdeilda framkvæmdaleyfis hefði grundvallast á ítarlegri gagnaöflun sem meðal annars hefði farið fram í tilefni og framhaldi af dómum Hæstaréttar á árunum 2016 og 2017 vegna fyrri áætlana um Suðurnesjalínu 2. Andstætt því sem hefði átt við í þeim málum bæru gögn málsins, einkum ný skýrsla L um mat á umhverfisáhrifum, með sér að fyrirtækið hefði við undirbúning framkvæmda látið fara fram sérstaka athugun á þeim möguleika að leggja jarðstreng, hvar slíkur strengur gæti legið og hver yrðu umhverfisáhrif hans. Hæstiréttur tók undir efnislega niðurstöðu úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála um að annmarkar á áliti Skipulagsstofnunar um mat á umhverfisáhrifum vegna skýrslunnar hefðu gefið V tilefni til umfjöllunar um hvort og að hvaða leyti munur á neikvæðum umhverfisáhrifum loftlínu samanborið við jarðstreng væri verulegur eða óverulegur. Ekki var fallist á að V hefði tekið ónógt tillit til athugasemda Skipulagsstofnunar um neikvæð umhverfisáhrif þeirrar framkvæmdar sem L sótti um leyfi fyrir. Þvert á móti bæri rökstuðningur V með sér, svo og öll meðferð málsins, að tekin hefði verið afstaða til álits stofnunarinnar og það lagt til grundvallar í samræmi við ákvæði 2. mgr. 13. gr. þágildandi laga um mat á umhverfisáhrifum og 2. mgr. 14. gr. skipulagslaga. Ekki var tekið undir málsástæður E o.fl. um að samkomulag L og V um lagningu hluta Suðurnesjalínu 1 í jörð eða tilvísun til þess í rökstuðningi V fyrir framkvæmdaleyfi L hefði falið í sér ómálefnalegan grundvöll fyrir útgáfu framkvæmdaleyfisins. Loks var því hafnað að unnt hefði verið með öðrum vægari úrræðum, svo sem með jarðstreng, að ná með viðunandi hætti því markmiði sem að væri stefnt með fyrirhugaðri framkvæmd. Samkvæmt þessu og að öðru leyti með vísan til forsendna hins áfrýjaða dóms var hann staðfestur.
Baldvin og Þorvaldur ehf og Efnalaug Suðurlands ehf (
Ólafur Björnsson lögmaður)
gegn
Samtökum sunnlenskra sveitarfélaga, VR, Bárunni stéttarfélagi og Félagi iðn- og tæknigreina (
Leifur Valentín Gunnarsson lögmaður)
Ágreiningur var um á hvers hendi byggingaréttur á tilgreindri lóð væri, nánar tiltekið hvort rétturinn væri á hendi stefnenda eingöngu eða í óskiptri sameign aðila málsins. Fallist var á kröfur stefnenda um að viðurkennt yrði að stefnendur ættu einir byggingarrétt á lóðinni í jöfnum hlutföllum sín á milli. Voru stefnendur sýknaðir af kröfum stefndu í gagnsök. Sakarefni málsins, jafnt í aðal- og gagnsök, varðaði einkum það hvort breyting hafi orðið á hverjum byggingarrétturinn tilheyrði í ljósi eignaskiptayfirlýsingarinnar frá júní 1999. Var það niðurstaða dómsins að ekki hafi verið ætlun þeirra sem rituðu undir eignaskiptayfirlýsinguna að byggingarétturinn, sem stofnað hafði verið stefnendum til handa, hafi færst eftir eignarhlutföllum til stefnenda og stefndu sameiginlega og að stefnendur hafi þannig gefið þau réttindi eftir. Ekki var heldur séð að slík tilfærsla réttinda hafi verið tilgangur eignaskiptayfirlýsingarinnar í ljósi 16. gr. laga nr. 26/1994 um fjöleignarhús.
Ekki var fallist á ógildi úrskurðar kærunefndar jafnréttismála í máli fatlaðs umsækjanda um starf. Ekki var talið að sýnt væri fram á að matsforsendur væru ómálefnalegar eða að jafnræðis hafi ekki verið gætt. Þar sem stefnandi hafði ekki verið einn þeirra umsækjenda sem valinn var til starfsviðtals úr hópi heildarumsækjenda var ekki talið að stefnandi hefði hlotið starfið eða verið valinn til viðtals þó svo að annar þeirra sem starf hlaut hafi skilað umsókn of seint og því hafi ekki mátt taka þá umsókn til efnislegrar meðferðar. Með því hafi aðeins öðrum þeim sem boðið var í starfsviðtal verið mismunað en ekki stefnanda. Þó svo að rökstuðningi kærunefndar um þetta atriði væri áfátt þá væri um formágalla að ræða sem ekki væri verulegur og nægði ekki til ógildingar úrskurðar kærunefndar.
Íþyngjandi stjórnvaldsákvörðun embættis landlæknis var felld úr gildi þar sem hana skorti lagastoð.
Deilt var um gildi tveggja nánar tilgreindra úrskurða kærunefndar útlendingamála. Með þeim fyrri synjaði Útlendingastofnun A, B, C og D meðal annars um alþjóðlega vernd en í þeim síðari var kröfu um endurupptöku málsins hafnað. Í dómi héraðsdóms sem staðfestur var með vísan til forsendna í Landsrétti var ekki fallist á að fyrri úrskurðinn væri haldinn neinum slíkum annmörkum að efni til eða formi að ógildingu hans varðaði. Þá var ekki fallist á að síðari úrskurðurinn hefði verið haldinn annmarka. Var Í því sýkn af öllum kröfum A, B, C og D.
Í málinu var deilt um gildi bindandi álits Skattsins um tollflokkun nánar tilgreindrar vöru. Í hinum kærða dómi var komist að þeirri niðurstöðu að fyrir lægi niðurstaða íslenskra dómstóla sem lyti að tollflokkun vörunnar og málinu því vísað frá héraðsdómi á grundvelli 2. mgr. 116. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála. Hæstiréttur staðfesti niðurstöðu hins kærða dóms og vísaði meðal annars til þess að það haggaði ekki neikvæðum réttaráhrifum endanlegs dóms í því máli sem væri til úrlausnar þótt borin væri undir dómstóla ný ákvörðun Skattsins um sama ágreiningsefni í búningi bindandi álits. Í þeim efnum var litið til þess að ákvörðun Skattsins var alfarið grundvölluð á þeirri niðurstöðu um tollflokkun sem komist var að í fyrra dómsmáli aðila.
<p>E, sem gegndi starfi framkvæmdastjóra Fjölmiðlanefndar, höfðaði mál gegn Í og krafðist viðurkenningar á rétti sínum til rökstuðnings fyrir ákvörðun fjármála- og efnahagsráðherra um laun hennar og til aðgangs að skriflegum gögnum er ákvörðunina vörðuðu. Ákvörðun ráðherra var tekin á grundvelli 39. gr. a laga nr. 70/1996 um réttindi og skyldur starfmanna ríkisins sem kvað á um að ráðherra tæki ákvörðun um laun forstöðumanna ríkisstofnana í samræmi við grunnmat starfanna. Laut ágreiningur aðila að því hvort ákvörðunin teldist stjórnvaldsákvörðun í skilningi stjórnsýslulaga nr. 37/1993 eða almenn stjórnvaldsfyrirmæli. Hæstiréttur vísaði til þess að þótt viðmið að baki grunnmati hefðu að geyma nokkur einkenni almennra stjórnvaldsfyrirmæla væri orðalag 39. gr. a laga nr. 70/1996 ekki einhlítt. Í greininni kæmi fram að ákvörðun samkvæmt henni yrði ekki skotið til annars stjórnvalds. Um það væri gefin sú skýring í lögskýringargögnum að reglan væri með þessum hætti sökum þess að um væri að ræða endanlega ákvörðun á stjórnsýslustigi. Var fallist á með áfrýjanda að slíkt ákvæði væri óþarft og í andstöðu við annað í greininni væri ákvörðun um laun forstöðumanns samkvæmt henni almenn stjórnvaldsfyrirmæli en ekki stjórnvaldsákvörðun. Þá kom fram í dómi Hæstaréttar að réttur embættismanns sem gegndi starfi forstöðumanns til launa fyrir störf sín væri reistur á 1. mgr. 9. gr. laga nr. 70/1996 og ákvörðun um laun hans beindist því að lögbundnum réttindum þess einstaklings sem gegndi starfinu hverju sinni. Ætti hann því hagsmuni af því að eiga aðild samkvæmt ákvæðum stjórnsýslulaga að ákvörðun um þau réttindi og skyldur er lytu að launakjörum hans. Slíkri aðild þyrfti að fylgja réttur viðkomandi til aðgangs að gögnum um ákvörðunina og til að koma að athugasemdum áður en rökstudd ákvörðun um hagsmuni hans yrði tekin. Var því fallist á að ákvörðun fjármála- og efnahagsráðherra væri stjórnvaldsákvörðun og viðurkenndur réttur áfrýjanda til rökstuðnings um þá ákvörðun og aðgang að skriflegum gögnum er hana vörðuðu.</p>
Félag pípulagningameistara höfðaði mál gegn íslenska ríkinu og A og krafðist ógildingar á ákvörðun sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu um útgáfu meistarabréfs í pípulögnum til handa A. Stefndu kröfðust frávísunar málsins. Í úrskurði héraðsdóms var annars vegar talið að stefnanda hefði borið að beina kröfum sínum að sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu, sem tók hina umdeildu stjórnvaldsákvörðun. Hins vegar hefði Félag pípulagningameistara ekki þá lögvörðu hagsmuni sem áskildir væru til að krefjast ógildingar atvinnuréttinda annars manns fyrir dómi. Var málin því vísað frá dómi.
Stefndi var sýknaður af kröfu stefnanda um að felldir yrðu úr gildi úrskurðir yfirskattanefndar og skattrannsóknarstjóra um að útgefnir sölureikningar á hendur stefnanda sem um var deilt í málinu uppfylltu ekki skilyrði frádráttar rekstrargjalda samkvæmt 31. gr. laga nr. 90/2003 um tekjuskatt og væru ekki tækir sem grundvöllur innskattsfrádráttar samkvæmt 3. mgr. 15. gr. laga nr. 50/1988 um virðisaukaskatt.
Úrskurður kærunefndar útboðsmála í máli nr. 47/2023, sem var kveðinn upp 1. nóvember 2024 var ógiltur þar sem ekki var talið að stefnandi hefði brotið gegn lögum nr. 120/2016 um opinber innkaup með kaupum á læknifræðilegum myndgreiningum á grundvelli ótímabundinna samninga sem gerðir voru áður en lögin tóku gildi.
Kært var ákvæði í dómi héraðsdóms, en með því var kröfum S um að ógiltar yrðu nánar tilgreindar ákvarðanir R vísað frá dómi, enda væru ákvarðanirnar orðnar hluti af úrskurðum úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála þar sem þær sættu endurskoðun. Með úrskurðunum nefndarinnar var kröfu S um ógildingu ákvarðananna hafnað. Í úrskurði Landsréttar kom fram að efnislega hefði falist í úrskurðunum staðfesting á ákvörðunum R með því að kröfum S um ógildingu hefði verið hafnað. Lægi því fyrir endanleg úrlausn æðra stjórnvalds um umrædd álitamál. Að því gættu en að öðru leyti með vísan til forsendna héraðsdóms var niðurstaða hans um frávísun á kröfum S staðfest.
Kærður var úrskurður Landsréttar þar sem máli E gegn O og R var vísað frá Landsrétti þar sem málinu hefði ekki verið áfrýjað að nýju innan fjögurra vikna frá frávísunardómi Landsréttar í máli nr. 169/2024, sbr. 4. mgr. 153. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála. Hæstiréttur leit á hinn bóginn til þess að sú frávísun hefði verið kærð til Hæstaréttar og að fjögurra vikna frestur ákvæðisins hefði ekki byrjað líða fyrr en þegar endanleg niðurstaða lá fyrir um frávísun málsins frá Landsrétti með dómi Hæstaréttar. Eins og málið lá fyrir voru samkvæmt þessu ekki efni til að vísa því frá Landsrétti. Var hinn kærði úrskurður felldur úr gildi og lagt fyrir Landsrétt að taka málið til efnislegrar meðferðar.
Í málinu var deilt um gildi bindandi álits Skattsins frá 8. maí 2023 um tollflokkun vörunnar Festino IQF Mozzarella Pizza Mix. Reisti D ógildingarkröfu sína á því að hið bindandi álit væri efnislega rangt og að fyrir hendi væru annmarkar á meðferð málsins á stjórnsýslustigi, er lytu meðal annars að meintu vanhæfi tollgæslustjóra, sem væru þess eðlis að ógilda bæri álitið. Í byggði meðal annars á því að vísa bæri málinu frá héraðsdómi á grundvelli 2. mgr. 116. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála en krafa D hefði í skilningi lagaákvæðisins verið dæmd að efni til í landsréttarmálinu nr. 462/2021. Í dómi Landsréttar var rakið að fyrir lægi niðurstaða íslenskra dómstóla sem lyti að tollflokkun þeirrar vöru sem um ræddi í málinu. Taldi Landsréttur að það eitt að í málinu reyndi á aðra stjórnvaldsákvörðun en leyst hefði verið úr í fyrra máli aðila gæti ekki leitt til þess að D bæri réttur til að fá leyst úr efnisþætti ógildingarkröfu sinnar. Að öðru leyti teldist ekkert fram komið sem réttlætt gæti að D leitaði að nýju dómsúrlausnar um að hið bindandi álit Skattsins væri rangt að efni til. Af því leiddi að ekki kæmu heldur til skoðunar málsástæður um málsmeðferð Skattsins við veitingu hins bindandi álits, enda fæli álitið ekki annað í sér en tilvísun til þess fordæmis er skapaði hin bindandi neikvæðu áhrif. Hvað varðaði vanhæfi tollgæslustjóra vegna tölvupóstsamskipta við hagsmunaaðila kvað Landsréttur til þess að líta að í hinu fyrra dómsmáli hefði D byggt á nátengdum málsástæðum um brot á réttmætisreglu og þrýsting hagsmunaaðila. Hefði þeim málsástæðum verið hafnað með framangreindum dómi Landsréttar og þær ekki taldar gefa tilefni til endurupptöku í úrskurði Endurupptökudóms. Þá væri til þess að líta að jafnvel þótt lagt yrði til grundvallar að dómstólum bæri að taka afstöðu til téðs tölvupósts nú væri rétt að staðfesta niðurstöðu hins áfrýjaða dóms um það efni en vísa málinu frá við svo búið. Vísaði Landsréttur því málinu frá héraðsdómi.
A og dóttir hennar, B, höfðuðu mál gegn Í til ógildingar á úrskurði kærunefndar útlendingamála þar sem staðfestar voru ákvarðanir Útlendingastofnunar þess efnis að taka ekki til efnismeðferðar umsóknir A og B um alþjóðlega vernd hér á landi og vísa þeim á brott frá landinu með endurkomubanni. Með hinum áfrýjaða dómi voru kröfur A og B teknar til greina. Í dómi Landsréttar kom meðal annars fram að samkvæmt þágildandi 2. mgr. 36. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga hafi verið skylt að taka umsókn um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar við þær aðstæður sem ákvæðið lýsti þótt umsækjandi nyti alþjóðlegrar verndar annars staðar. Þá hafi ákvæðið lagt þá skyldu á kærunefnd útlendingamála og Útlendingastofnun að leggja mat á aðstæður hvers umsækjanda með tilliti til þess hvort þær væru sérstakar og hvort ástæða væri til að ætla að aðbúnaður í því ríki, þar sem honum hafi verið veitt alþjóðleg vernd, teldist fullnægjandi til að mæta sérstökum þörfum hans að því leyti. Af úrskurði kærunefndar útlendingamála yrði helst ráðið að litið hafi verið svo á að tilgreind lýsing A á aðstæðum hennar hefði í raun ekki haft þýðingu í ljósi þess að hún gæti reitt sig á þá vernd sem hún hefði aðgang að í því ríki þar sem henni hafði verið veitt alþjóðleg vernd. Það fengi enn fremur stoð í því sem fram hefði komið af hálfu Í fyrir Landsrétti að ekki hefði verið lagt mat á trúverðugleika frásagnar A. Taldi rétturinn að framangreind forsenda í úrskurði kærunefndarinnar væri ótæk. Samkvæmt 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 hafi Útlendingastofnun og kærunefnd útlendingamála borið að sjá til þess að málið væri nægilega upplýst áður en ákvörðun var tekin. Í því hafi meðal annars falist skylda til að afla og kynna sér gögn sem gætu haft þýðingu við mat á trúðverðugleika frásagnar A af aðstæðum hennar. Í því sambandi hafi almennar upplýsingar getað skipt máli. Þá hafi legið fyrir kærunefnd gögn á erlendri tungu sem lögð hafi verið fram af hálfu A en liggi ekki fyrir dómstólum í íslenskri þýðingu. Væri því óljóst hvort stjórnvöld hefðu kynnt sér efni þessara gagna til að geta metið að hvaða leyti þau gætu stutt málatilbúnað A. Vegna framangreindra annmarka á rannsókn málsins var hinn áfrýjaði dómur staðfestur.
Áfrýjað var dómi Landsréttar þar sem ógilt var ákvörðun Á um að synja umsókn D um að taka í sölu áfenga drykkjartegund sem innihélt koffein og áfrýjanda gert að greiða D málskostnað. Á greiddi dæmdan málskostnað að morgni næsta dags eftir uppkvaðningu dómsins án fyrirvara. Hæstiréttur vísaði til þess að samkvæmt 5. mgr. 151. gr., sbr. 190. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála, geti aðilar máls afsalað sér rétti til að áfrýja dómi hvort heldur berum orðum eða þegjandi. Í dómaframkvæmd hafi verið litið svo á að þegar aðili hefur greitt gagnaðila sínum fjárhæð í samræmi við dómsniðurstöðu án fyrirvara sé áfrýjun dómsins því ekki samrýmanleg og leiði það til frávísunar frá æðri dómi. Sama gildi þegar aðili greiðir málskostnað án fyrirvara að gengnum dómi þar sem eina athafnaskylda hans samkvæmt dómsorði er greiðsla slíks kostnaðar. Var áfrýjun málsins ekki samrýmanleg þeirri greiðslu og málinu vísað frá Hæstarétti.
S hf. höfðaði mál gegn SÍ og Í og krafðist ógildingar á stjórnvaldsákvörðun fjármálaeftirlitsnefndar SÍ um álagningu stjórnvaldssektar á S hf. vegna brota gegn þágildandi 1. mgr. 122. gr. laga nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti og 17. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins nr. 596/2014 um markaðssvik. Krafðist S hf. jafnframt endurgreiðslu greiddrar stjórnvaldssektar eða lækkunar hennar. Deildu aðilar um það hvort innherjaupplýsingar hefðu myndast við þá ákvörðun stjórnar S hf. 31. ágúst 2021 að hefja seinni áfanga í söluferli á dótturfélaginu M ehf., sem fólst í því að bjóða fjórum aðilum, sem skilað höfðu inn óskuldbindandi tilboðum í M ehf., að kynna sér félagið nánar með það að markmiði að gera skuldbindandi, fullfjármagnað og skilyrðislaust tilboð í allt hlutafé félagsins innan sjö vikna. Í dómi Landsréttar kom fram að með hliðsjón af ríkum vilja S hf. til að selja M ehf. og á grunni heildstæðs mats á þeim upplýsingum og staðreyndum sem fyrir lágu þegar stjórn S hf. tók ákvörðun sína væri fallist á með SÍ að á þeim tíma hafi verið raunhæfar horfur á að af sölu á M ehf. yrði. Upplýsingarnar hafi því verið nægjanlega tilgreindar í skilningi 120. gr. þágildandi laga nr. 108/2007, auk þess sem önnur hugtaksskilyrði greinarinnar væru uppfyllt. Hafi S hf. því borið að líta svo á að um innherjaupplýsingar væri að ræða, sem birta bæri eins fljótt og auðið væri. Engu máli skipti þótt síðar hafi verið sett ný reglugerð á vettvangi Evrópusambandsins sem fæli í sér breytingar á því hvenær birta bæri innherjaupplýsingar sem myndast í þrepaskiptu ferli. Loks hafi engir þeir annmarkar verið á málsmeðferð SÍ sem gætu leitt til ógildingar á stjórnvaldsákvörðun hans. Var hinn áfrýjaði dómur því staðfestur um sýknu SÍ og Í af kröfum S hf.
Í málinu var deilt um lögmæti synjunar R á umsókn G ehf. um staðfestingu á tilteknu þróunarverkefni, sbr. lög nr. 152/2009 um stuðning við nýsköpunarfyrirtæki, en á grundvelli þeirra laga á nýsköpunarfyrirtæki, sem er eigandi að rannsóknar- eða þróunarverkefnum sem hlotið hafa staðfestingu R, rétt á sérstökum frádrætti frá álögðum tekjuskatti. Í dómi Landsréttar var rakið að eignarhald nýsköpunarfyrirtækis á þróunarverkefni og afurðum þess og fjárhagsleg áhætta fyrirtækisins af verkefninu væru ófrávíkjanleg skilyrði fyrir þeirri aðkomu hins opinbera sem fælist í lögum nr. 152/2009. Þá leiddi jafnframt af lögum og lögskýringargögnum að ákvörðun R um hvort verkefni hlyti staðfestingu þyrfti að taka mið af því að stuðningur félli innan þess ramma sem ríkisstyrkjareglur samningsins um Evrópska efnahagssvæðið kvæðu á um. Féllst Landsréttur á þá ályktun héraðsdóms að telja yrði ljóst að R hefði byggt synjun sína á því að eignarhald eða eignarréttur G ehf. að afurð verkefnisins væri óskýr og óljóst væri hvar áhættan af fjármögnun verkefnisins lægi og hver hvatningaráhrif þess væru. Þá vísaði Landsréttur til þess að réttilega væri lagt til grundvallar í hinum áfrýjaða dómi að G ehf. sem umsækjandi yrði að bera ábyrgð á þeim gögnum sem hann legði fram í tengslum við umsókn sína auk þess sem fyrir lægi að R hefði veitt G ehf. ítrekuð tækifæri til að skýra forsendur umsóknarinnar, þar á meðal með tilliti til þeirra atriða sem synjun R var reist á. Samkvæmt þessu og að öðru leyti með vísan til forsendna hins áfrýjaða dóms var hann staðfestur um sýknu R af kröfum G ehf.
OR höfðaði mál gegn E og R og krafðist þess að ógiltur yrði úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála þar sem felld var úr gildi ákvörðun skipulagsfulltrúa R um að hafna kröfu E um að stöðva framkvæmdir við Árbæjarlón á grundvelli 53. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Með dómi héraðsdóms var úrskurðurinn ógiltur. E áfrýjaði málinu upphaflega til Landsréttar gagnvart OR og krafðist þess að dómi héraðsdóms yrði hrundið og að úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála yrði staðfestur. Með dómi Landsréttar 6. mars 2025 í máli nr. 169/2024 var málinu vísað frá Landsrétti án kröfu þar sem E hafði borið að gæta þess við áfrýjun málsins að R ætti áfram aðild að málinu fyrir Landsrétti. E skaut þeirri niðurstöðu til Hæstaréttar sem staðfesti niðurstöðu Landsréttar um frávísun með dómi 9. apríl 2025 í máli nr. 17/2025. Óskaði E í kjölfarið eftir útgáfu áfrýjunarstefnu á nýjan leik 2. maí 2025 á grundvelli 4. mgr. 153. gr., sbr. 1. mgr. 180. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála. Í niðurstöðu Landsréttar kom fram að nýr áfrýjunarfrestur samkvæmt skýru orðalagi 4. mgr. 153. gr. miðaðist við þegar máli væri vísað frá Landsrétti. Um áfrýjunarskilyrði væri að ræða og yrði því ekki fundin stoð í orðalagi ákvæðisins eða lögskýringargögnum að túlka bæri ákvæðið á þann hátt að annað gilti ef niðurstaða Landsréttar um frávísun máls væri kærð til Hæstaréttar. Janframt var ekki talið að 2. mgr. 168. gr. laga nr. 91/1991 framlengdi þann frest. Loks var ekki talið að lögbundinn réttur E til að kæra niðurstöðu til Landsréttar væri takmarkaður þar sem honum stóð til boða að áfrýja málinu til Landsréttar innan frests að nýju jafnhliða kæru til Hæstaréttar. Þar sem málinu var ekki áfrýjað að nýju innan fjögurra vikna frá dómi Landsréttar í máli nr. 169/2024 var því vísað frá Landsrétti.
Því var hafnað að annmarkar hefðu verið á úrskurði kærunefndar útlendingamála.
Á árinu 2019 ákvað kirkjuþing að leggja niður Saurbæjarprestakall og í kjölfarið var embætti sóknarprests í Saurbæjarprestakalli, sem K hafði gegnt frá árinu 1996, sömuleiðis lagt niður. Í málinu krafðist K viðurkenningar á skaðabótaskyldu Þ vegna þess tjóns sem hann kvaðst hafa orðið fyrir vegna þessa. Til vara krafðist hann viðurkenningar á skaðabótaskyldu vegna þess tjóns sem hann kvaðst hafa orðið fyrir vegna þeirrar ákvörðunar biskups Íslands að hafna ákvörðun hans um að fara á lögmælt eftirlaun í framhaldi af því að honum var boðið embætti prests í Garða- og Hvalfjarðarstrandarprestakalli. Að því frágengnu krafðist K viðurkenningar á skaðabótaskyldu vegna þess tjóns sem hann kvaðst hafa orðið fyrir sökum þeirrar ákvörðunar biskups Íslands að hafna ákvörðun hans um að taka tilboðinu um prestsembætti í Garða- og Hvalfjarðarstrandarprestakalli. Landsréttur taldi að málsmeðferðin sem leiddi til ákvörðunar kirkjuþings um niðurlagningu Saurbæjar- prestakalls hefði verið lögmæt og byggst á lögmætum og málefnalegum grundvelli, og að hið sama gilti um ákvörðunina sem á eftir fylgdi um niðurlagningu sóknar- prestsembættisins. Þá taldi Landsréttur að þar sem K hafði ekki verið fluttur milli embætta samkvæmt 1. mgr. 36. gr. laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, heldur hefði embætti hans verið lagt niður, hefði aldrei getað komið til álita að hann ætti tilkall til eftirlaunaréttinda samkvæmt 4. mgr. 20. gr. stjórnarskrárinnar. Að lokum taldi Landsréttur að viðbrögð Þ við því þegar K kvaðst í byrjun september 2019 vilja taka boði um embætti prests, sem Þ hafði gefið K frest til 10. apríl 2019 til að svara, hefðu ekki verið í ósamræmi við meginreglu stjórnsýsluréttar um réttmætar væntingar eða reglu um meðalhóf. Voru skilyrði skaðabótaábyrgðar því ekki talin uppfyllt og Þ sýknað af öllum kröfum K.
Hafnað var kröfu stefnanda um að ógilda ákvörðun stefnda um synjun þess að aflétta frystingu fjármuna félagsins í vörslum A banka. Niðurstaða dómsins byggir á því að 2. mgr. 12. gr. laga nr. 68/2023, um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða og frystingu fjármuna, feli í sér skyldu ráðherra til að aflétta þvingunarráðstöfun gagnvart aðila sem beri sama eða svipað nafn og sá aðili sem sé á þvingunarlista. Hins vegar verði hvorki af lagaákvæðinu sjálfu né öðrum ákvæðum laganna dregin ályktun um að skylda ráðherra sé víðtækari en þessu nemi. Þá var talið að stefndi hefði sýnt fram á með fullnægjandi hætti að ástæða þess að stefnandi sætti þvingunaraðgerðum væri ekki sú að um nafnarugling væri að ræða heldur hafi verið leiddar líkur að því að félagið væri tengt þeim aðila sem er skráð á þvingunarlista.
Hafnað var kröfu stefnanda um að ógilda ákvörðun stefnda um að synja honum um að taka sæti í stjórn einkahlutafélags, sem sætir þvingunaraðgerðum á grundvelli laga nr. 68/2023, um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða og frystingu fjármuna. Einkahlutafélagið hafði fengið undanþágu frá þvingunaraðgerðum með tilteknum skilyrðum sem höfðu m.a. það markmið að tryggja að félag, sem er skráð á alþjóðlegan þvingunarlista, gæti ekki haft áhrif á ákvarðanir einkahlutafélagsins. Fallist var á það með stefnda að stefnandi hefði ekki sýnt fram á að seta hans í stjórn einkahlutafélagsins samræmdist þessu markmiði. Var í því efni vísað til þess að stefnandi hefði ekki sýnt fram á að raunveruleg eigna- og stjórnunartengsl þess félags sem er á þvingunarlistanum og aðila sem tengjast því, hefðu verið rofin með kaupum hans á hlut í einkahlutafélaginu.
Í málinu var krafist ógildingar á úrskurði ríkisskattstjóra þar sem stefnanda var synjað um skráningu á virðisaukaskattsskrá. Það var niðurstaða dómsins að hafna kröfunni þar sem ekki voru taldir annmarkar á úrskurðinum sem varðað gætu ógildingu hans. Túlkun ríkisskattstjóra og beiting hans á viðeigandi réttarheimildum var talin hafa verið í fullu samræmi við staðfesta skattframkvæmd og fordæmi dómstóla í sambærilegum málum.
Íslenska ríkið sýknað af kröfu lyfsala um viðurkenningu á skaðabótaskyldu vegna ákvörðunar Lyfjastofnunar frá 24. febrúar 2023 um smásöluálagningu ávísunarskyldra lyfja árið 2023. Kröfum á hendur Lyfjastofnun vísað frá dómi.
Íslenska ríkið sýknað af kröfu lyfsala um viðurkenningu á skaðabótaskyldu vegna ákvörðunar Lyfjastofnunar frá 24. febrúar 2023 um smásöluálagningu ávísunarskyldra lyfja árið 2023. Kröfum á hendur Lyfjastofnun vísað frá dómi.
Stefnanda var með ákvörðun fjölmiðlanefndar gerð sekt fyrir óheimila miðlun dulinna viðskiptaboða á vefsíðu og krafðist þess í málinu að sú ákvörðun yrði felld úr gildi og sektin endurgreidd. Dómurinn féllst ekki á þær kröfur og sýknaði stefndu af kröfum stefnanda.
Stefnandi rekur happdrættisvélar samkvæmt samningi við stefnda. Deilt var um hvort stefndi hefði brotið á stefnanda með því að semja við hann um hlutfallslega lægra endurgjald fyrir reksturinn en suma aðra rekstraraðila slíkra véla og stefnandi ætti því rétt til skaðabóta úr hendi stefnda. Hafnað var sjónarmiðum stefnanda um að stefndi hefði í þessum efnum brotið jafnræðisreglu stjórnsýsluréttar eða þá reglu að ákvarðanir stjórnvalda skuli byggðar á málefnalegum sjónarmiðum. Öðrum sjónarmiðum stefnanda um að stefndi hefði brotið á rétti stefnanda, honum til tjóns, var sömuleiðis hafnað. Stefndi var því sýknaður af kröfum stefnanda.
Í ehf. höfðaði mál til ógildingar á ákvörðun P frá 23. nóvember 2021 um að vinnsla persónuupplýsinga Í ehf. og L í aðdraganda rannsóknar sem samþykkt var af vísindasiðanefnd 7. apríl 2020 hefði ekki samrýmst lögum nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga og persónuverndarreglugerðinni. Hæstiréttur taldi að þrátt fyrir víðtækt eftirlitshlutverk og valdheimildir P, gæti frumkvæðiseftirlit stofnunarinnar ekki náð til þess að P endurmæti í reynd hvað teldist vísindarannsókn á heilbrigðissviði, hvort slík rannsókn teldist hafin eða eftir atvikum hvort gagna hefði verið aflað í þágu slíkrar rannsóknar. Það mat færi vísindasiðanefnd með samkvæmt lögum nr. 44/2014. Þá var það einnig niðurstaða Hæstaréttar að P hefði brotið gegn rannsóknarskyldu sinni við meðferð málsins og byggt niðurstöðu sína á misræmi gagna, með þeim afleiðingum að Í ehf. og L báru halla af. Var fallist á kröfu Í ehf. um að ógilda ákvörðun P 23. nóvember 2021.
Ágreiningur málsaðila laut að lögmæti innheimtu H á farþegagjaldi samkvæmt 2. tölul. 2. mgr. 17. gr. hafnalaga nr. 61/2003 af G ehf. frá 2016 til 2023 og hvort grundvöllur gjaldtökunnar hefði verið í samræmi við ákvæði laganna og reglur um innheimtu þjónustugjalda. Landsréttur vísaði til þess að fjárhæð gjaldsins hefði í fyrstu byggst á samkomulagi stefnda við þriðja aðila sem kvað á um að gjaldið skyldi ákvarðast í tilteknu hlutfalli við tekjur viðkomandi vegna hvalaskoðunar. Taldi Landsréttur að slík tilhögun hefði ekki átt sér stoð í lögum og hefði stangast á við meginreglur laga um töku þjónustugjalda, þar sem krafist væri samhengis milli gjaldtöku og veittrar þjónustu. H bar því við að síðar hefði fjárhæð gjaldtöku af G ehf. tekið mið af því að umfang tengt hvalaskoðun næmi tilgreindu hlutfalli af heildarrekstrarkostnaði hafnarinnar. Landsréttur vísaði til þess að í hafnalögum væri í engu vikið að því að heimilt væri að haga gjaldtöku með þeim hætti. Þvert á móti væri þar miðað við að hvert gjald stæði undir tilteknum kostnaðarliðum sem lýst væri í 17. gr. laganna. Hefði H ekki rennt nægum stoðum undir málatilbúnað sinn um að gjaldtakan hefði á þessum tíma samrýmst ákvæðinu. Að þeirri niðurstöðu fenginni taldi Landsréttur að taka bæri til greina endurgreiðslukröfu áfrýjanda. Taldi Landsréttur að krafa áfrýjanda hefði ekki verið fyrnd, enda hefði áfrýjandi haft hluta hennar uppi sem skuldajafnaðarkröfu í fyrra dómsmáli milli aðila, og höfðað mál þetta innan sex mánaða frá því að því máli lyktaði, og hinn hluti kröfunnar hefði einnig verið ófyrndur þegar mál þetta var höfðað. Var aðalkrafa áfrýjanda því tekin til greina og aðalstefnda gert að greiða honum málskostnað í héraði og fyrir Landsrétti.
S og Ó höfðuðu mál á hendur L hf. og Í og kröfðust þess að ógilt yrði ákvörðun umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra 21. júní 2024 um annars vegar heimild L hf. til að framkvæma eignarnám til ótímabundinna afnota vegna lagningar háspennulínu á landi þeirra og hins vegar um að þinglýst yrði nánar tiltekinni kvöð á jörðina. Í dómi Landsréttar var komist að þeirri niðurstöðu að L hf. bæri að leggja háspennulínuna í lofti nema annar kostur teldist hagkvæmari eða æskilegri í skilningi þingsályktunar nr. 11/144, sbr. 5. mgr. 9. gr. a raforkulaga nr. 65/2003. Tók Landsréttur fram að framkvæmdaraðili, í þessu tilviki L hf., hefði forræði á því hvaða framkvæmdakostir uppfylltu markmið framkvæmdarinnar, enda væri það mat reist á hlutlægum og málefnalegum grunni. Var niðurstaða Landsréttar sú að ekkert haldbært hefði komið fram í málinu sem gæfi til kynna að svo hefði ekki háttað til í umræddu tilviki. Þá hefði L hf. með fullnægjandi hætti gert athugun á mismunandi framkvæmdakostum. Var því slegið föstu að L hf. hefði verið heimilt að velja þann framkvæmdakost sem lá til grundvallar beiðni hans um eignarnám. Var sá framkvæmdakostur jafnframt talinn samræmast best þeim sjónarmiðum sem sett væru fram í raforkulögum og þeirri stefnu sem Alþingi hefði markað á grundvelli laganna. Þá taldi Landsréttur að gætt hefði verið að rannsóknarreglu stjórnsýsluréttar og meðalhófs þegar L hf. var heimilað eignarnám vegna lagningar háspennulínunnar og að uppfyllt væri skilyrði 1. mgr. 72. gr. stjórnarskrárinnar um að almannaþörf krefðist þess að eignarnámið yrði heimilið. Samkvæmt framangreindu en að öðru leyti með vísan til forsendna hins áfrýjaða dóms var hann staðfestur um sýknu L hf. og Í.
E og G höfðuðu mál á hendur L hf. og Í og kröfðust þess að ógilt yrði ákvörðun umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra 21. júní 2024 um annars vegar heimild L hf. til að framkvæma eignarnám til ótímabundinna afnota vegna lagningar háspennulínu á landi þeirra og hins vegar um að þinglýst yrði nánar tiltekinni kvöð á jörðina. Í dómi Landsréttar var komist að þeirri niðurstöðu að L hf. bæri að leggja háspennulínuna í lofti nema annar kostur teldist hagkvæmari eða æskilegri í skilningi þingsályktunar nr. 11/144, sbr. 5. mgr. 9. gr. a raforkulaga nr. 65/2003. Tók Landsréttur fram að framkvæmdaraðili, í þessu tilviki L hf., hefði forræði á því hvaða framkvæmdakostir uppfylltu markmið framkvæmdarinnar, enda væri það mat reist á hlutlægum og málefnalegum grunni. Var niðurstaða Landsréttar sú að ekkert haldbært hefði komið fram í málinu sem gæfi til kynna að svo hefði ekki háttað til í umræddu tilviki. Þá hefði L hf. með fullnægjandi hætti gert athugun á mismunandi framkvæmdakostum. Var því slegið föstu að L hf. hefði verið heimilt að velja þann framkvæmdakost sem lá til grundvallar beiðni hans um eignarnám. Var sá framkvæmdakostur jafnframt talinn samræmast best þeim sjónarmiðum sem sett væru fram í raforkulögum og þeirri stefnu sem Alþingi hefði markað á grundvelli laganna. Þá taldi Landsréttur að gætt hefði verið að rannsóknarreglu stjórnsýsluréttar og meðalhófs þegar L hf. var heimilað eignarnám vegna lagningar háspennulínunnar og að uppfyllt væri skilyrði 1. mgr. 72. gr. stjórnarskrárinnar um að almannaþörf krefðist þess að eignarnámið yrði heimilið. Samkvæmt framangreindu en að öðru leyti með vísan til forsendna hins áfrýjaða dóms var hann staðfestur um sýknu L hf. og Í.
R ehf., S, J, F og E höfðuðu mál á hendur L hf. og Í og kröfðust þess að ógilt yrði ákvörðun umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra 21. júní 2024 um annars vegar heimild L hf. til að framkvæma eignarnám til ótímabundinna afnota vegna lagningar háspennulínu á landi þeirra og hins vegar um að þinglýst yrði nánar tiltekinni kvöð á jörðina. Í dómi Landsréttar var komist að þeirri niðurstöðu að L hf. bæri að leggja háspennulínuna í lofti nema annar kostur teldist hagkvæmari eða æskilegri í skilningi þingsályktunar nr. 11/144, sbr. 5. mgr. 9. gr. a raforkulaga nr. 65/2003. Tók Landsréttur fram að framkvæmdaraðili, í þessu tilviki L hf., hefði forræði á því hvaða framkvæmdakostir uppfylltu markmið framkvæmdarinnar, enda væri það mat reist á hlutlægum og málefnalegum grunni. Var niðurstaða Landsréttar sú að ekkert haldbært hefði komið fram í málinu sem gæfi til kynna að svo hefði ekki háttað til í umræddu tilviki. Þá hefði L hf. með fullnægjandi hætti gert athugun á mismunandi framkvæmdakostum. Var því slegið föstu að L hf. hefði verið heimilt að velja þann framkvæmdakost sem lá til grundvallar beiðni hans um eignarnám. Var sá framkvæmdakostur jafnframt talinn samræmast best þeim sjónarmiðum sem sett væru fram í raforkulögum og þeirri stefnu sem Alþingi hefði markað á grundvelli laganna. Þá taldi Landsréttur að gætt hefði verið að rannsóknarreglu stjórnsýsluréttar og meðalhófs þegar L hf. var heimilað eignarnám vegna lagningar háspennulínunnar og að uppfyllt væri skilyrði 1. mgr. 72. gr. stjórnarskrárinnar um að almannaþörf krefðist þess að eignarnámið yrði heimilið. Samkvæmt framangreindu en að öðru leyti með vísan til forsendna hins áfrýjaða dóms var hann staðfestur um sýknu L hf. og Í.
A krafðist þess að ógilt yrði ákvörðun ríkislögmanns um að hafna bótaskyldu Í, á grundvelli kjarasamningsákvæðis um bótaábyrgð, vegna líkamstjóns sem A varð fyrir í starfi sínu en til vara að bótaskylda Í yrði viðurkennd. Í dómi Landsréttar var rakið að embætti ríkislögmanns hefði tilkynnt ákvörðunina í umboði fjármála- og efnahagsráðuneytisins, samkvæmt ákvæðum laga um ríkislögmann og umræddum kjarasamningi. Hefði bótakröfunni verið synjað á grundvelli reglna vinnuréttar en ekki stjórnsýsluréttar og eftir fyrirmælum ráðuneytisins. Gæti bréf ríkislögmanns því ekki talist stjórnvaldsákvörðun í skilningi stjórnsýslulaga. Um varakröfu A kom fram að þegar deilt sé um túlkun kjarasamningsákvæða sem aðilar vinnumarkaðarins hafa samið um liggi beinast við að skýra ákvæðin samkvæmt orðanna hljóðan. Þá væri í málinu ekkert fram komið um að C hafi, þegar hann olli A líkamstjóni, borið enga eða takmarkaða bóta- eða refsiábyrgð. Hefði A ekki fært sönnur að því að skilyrði bótaskyldu samkvæmt ákvæðinu væru uppfyllt. Þá yrði að líta til þess að C hefði með dómi Héraðsdóms verið gert að sæta fullri refsi- og bótaábyrgð vegna árásarinnar á A. Loks var ekki fallist á að skilyrði bótaskyldu væri uppfyllt þar sem C hefði síðar verið dæmdur til fangelsisrefsingar. Var hinn áfrýjaði dómur staðfestur um sýknu Í af kröfum A.
Stefnda sýknuð af kröfu stefnanda um að felldur yrði úr gildi úrskurður úrskurðarnefndar lögmanna.
Hafnað var kröfu stefnanda um ógildi úrskurða skattyfirvalda þar sem ekki var sýnt fram á að úrskurðirnir væru haldnir form- eða efnisannmörkum sem leitt gætu til ógildingar þeirra. Þá var ekki talið að skattyfirvöld hefðu farið á sveig við rannsóknarreglu stjórnsýslu- og skattaréttar við ákvarðanir sínar eða við mat á verðmæti innbús stefnanda.
Íslenska ríkið (
Fanney Rós Þorsteinsdóttir lögmaður) og
Landsvirkjun (
Guðjón Ármannsson lögmaður)
gegn
Brynhildi Briem, Hannesi Þór Sigurðssyni, Jóni Benjamín Jónssyni, Kristjönu Ragnarsdóttur, Erni Inga Ingvarssyni, Ólafi Arnari Jónssyni, Úlfhéðni Sigurmundssyni, Þóru Þórarinsdóttur og Ölhóli ehf (
Sif Konráðsdóttir lögmaður)
B o.fl. höfðuðu mál á hendur Í og L til ógildingar á þremur ákvörðunum stjórnvalda sem lutu að Hvammsvirkjun sem L hugðist reisa í neðri hluta Þjórsár. Ákvarðanirnar sem málið laut að voru leyfi Fiskistofu 14. júlí 2022 vegna framkvæmdanna, ákvörðun Umhverfisstofnunar 9. apríl 2024 um heimild til breytingar á vatnshlotinu Þjórsá 1 vegna virkjunarinnar og virkjunarleyfi Orkustofnunar 12. september sama ár. Með héraðsdómi voru ákvarðanir Umhverfisstofnunar og Orkustofnunar ógildar en hafnað var kröfu B o.fl. um ógildingu leyfis Fiskistofnunar. Í dómi Hæstaréttar kom fram að Umhverfisstofnun hefði veitt L heimild á grundvelli þágildandi a-liðar 1. mgr. 18. gr. laga nr. 36/2011 um stjórn vatnamála til að breyta Vatnshlotinu Þjórsá 1 vegna byggingar virkjunarinnar. Samkvæmt greininni gat Umhverfisstofnun heimilað breytingu á vatnshloti sem hefði í för með sér að ekki væri hægt að ná fram umhverfismarkmiðum samkvæmt 11. gr. laganna þegar um væri að ræða breytingar, svo sem vegna mengunar eða í tengslum við loftslagsbreytingar, á vatnsgæðum, vistfræðilegum, vatnsformfræðilegum eða efna- og eðlisefnafræðilegum eiginleikum yfirborðsvatnshlots eða á hæð grunnvatnshlots. Hæstiréttur komst að þeirri niðurstöðu að þágildandi a-liður 1. mgr. 18. gr. laga nr. 36/2011 yrði, í ljósi lögskýringargagna og meðferðar frumvarps til laganna á Alþingi, skýrður þannig að girt hefði verið fyrir að vatnshloti yrði breytt vegna áhrifa af framkvæmdum við að reisa vatnsaflsvirkjun. Gæti hvorki innri né ytri samræmisskýring leitt til annarrar niðurstöðu en yrði ráðin beint af orðalagi lagaákvæðisins. Var því staðfest niðurstaða héraðsdóms um að ógilda ákvörðun Umhverfisstofnunar 9. apríl 2024. Þá var niðurstaða héraðsdóms um ógildingu virkjunarleyfis Orkustofnunar 12. september 2024 staðfest enda það lögum samkvæmt reist á því að heimild fengist til breytingar á vatnshlotinu. Með ógildingu á leyfi til breytingar á vatnshlotinu hefði grundvöllur virkjunarleyfisins þannig brostið. Loks var staðfest niðurstaða héraðsdóms um að hafna ógildingu leyfis Fiskistofu 14. júlí 2022. Ekki voru taldir slíkir annmarkar á leyfinu að leitt gæti til ógildingar þess. Var hinn áfrýjaði dómur því staðfestur.
Stefnandi, fasteignasala, krafðist þess aðallega að felld yrðu úr gildi ákvörðun ríkisskattstjóra þess efnis að sekta stefnanda fyrir brot gegn lögum nr. 140/2018 um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Ríkisskattstjóri var sýkn af aðalkröfu en fallist var á varakröfu stefnanda og sektin lækkuð verulega.
Felldur var úr gildi úrskurður héraðsdóms þar sem máli sóknaraðila gegn X var vísað frá dómi.
N höfðaði mál og krafðist þess að ógilt yrði ákvörðun bæjarstjórnar H um úthlutun lóðarinnar Á en til vara að viðurkennd yrði skaðabótaskylda H vegna tjóns N af völdum sömu ákvörðunar. Atvik voru með þeim hætti að H auglýsti eftir tilboðum í lóðina og átti N hæsta boð í hana en B það næst hæsta. Með hliðsjón af byggingarsögu aðilanna var boði B tekið. N byggði á því að H hefði með því brotið gegn rétti hans til lóðarinnar sem hæstbjóðanda með ólögmætum hætti. H byggði aftur á móti á því að úthlutunin hefði verið í samræmi við gildandi reglur og að H hefði samkvæmt þeim verið heimilt að hafna tilboði N og taka tilboði B. Í dómi Landsréttar var komist að þeirri niðurstöðu að heimilt hefði verið að líta til byggingarsögu bjóðenda, þar á meðal til þess hvort eðlileg framvinda hefði verið á fyrri byggingarframkvæmdum. Þá var ekki fallist á með N að brotið hefði verið gegn 13. gr. stjórnsýslulaga við meðferð málsins enda hefði afstaða N um tafir á framkvæmdum legið fyrir í gögnum málsins. Í þessum efnum var jafnframt ekki talið að á H hefði hvílt skylda til að afhenda N afrit af samantektum og samanburði hans á bjóðendum. Landsréttur féllst auk þess ekki á með N að brotið hefði verið gegn 10., 11., 12. og 18. gr. stjórnsýslulaga, en taldi hins vegar að annmarki hefði verið á rökstuðningi H. Hann gat þó ekki einn og sér leitt til þess að fallist yrði á kröfur N í málinu. Var öllum málsástæðum N þannig hafnað og niðurstaða hins áfrýjaða dóms um sýknu H og B af kröfum N því staðfest.
Stefndi, Persónuvernd, var sýknaður af aðal- og varakröfu stefnanda, Embætti landlæknis, um ógildingu ákvörðunar, er laut að því að stefnandi tryggði ekki nægilega öryggi persónuupplýsinga og var gerð stjórnvaldssekt. Var þó fallist á þrautavarakröfu stefnanda um lækkun sektarinnar.
Stefndi var sýknaður af kröfu stefnanda um ógildingu úrskurðar úrskurðarnefndar lögmanna, þar sem stefnandi var látinn sæta áminningu. Var ekki fallist á með stefnanda að nefndinni hefði verið rétt að vísa málinu frá í heild sinni. Þó fallist hafi verið á með stefnanda að rétt hefði verið að veita honum andmælarétt varðandi atriði sem nefndin byggði á og varðaði meðferð málsins fyrir nefndinni, var ekki fallist á með stefnanda að það varðaði ógildindu úrskurðarins. Loks var það mat dómsins að stefnandi hefði ekki sýnt fram á að nefndin hafi komist að efnislega rangri niðurstöðu.
I höfðaði mál á hendur M og C til ógildingar á nánar tilteknum ákvæðum úrskurðar úrskurðarnefndar um upplýsingamál þar sem nefndin hafði komist að þeirri niðurstöðu að I bæri að afhenda M nánar tiltekin gögn sem meðal annars vörðuðu C. Með hinum kærða úrskurði var máli I vísað frá dómi á þeim grundvelli að aðild C til varnar væri vanreifuð. I bar því meðal annars við að nauðsynlegt væri að C ætti aðild að dómsmálinu enda gæti niðurstaða þess haft áhrif á hagsmuni félagsins. Ekki skipti máli hvort I freistaði þess að fá í lið með sér til sóknar aðila sem hefði lögvarða hagsmuni af niðurstöðu málsins eða stefndi honum til varnar. Með hliðsjón af sjónarmiðum I og að teknu tilliti til efnis hins umdeilda úrskurðar, sem öðrum þræði laut að því hvort umrædd gögn um C skyldu undanskilin upplýsingarétti almennings samkvæmt 9. gr. upplýsingalaga nr. 140/2012, féllst Landsréttur á að C ætti lögvarinna hagsmuna að gæta af úrlausn dómstóla um gildi úrskurðarins. Þótt C hefði ekki átt formlega aðild að stjórnsýslumálinu fyrir úrskurðarnefndinni þóttu þeir hagsmunir vera þess eðlis að félagið hefði sjálft getað, með vísan til 60. og 70. gr. stjórnarskrárinnar, leitað úrlausnar dómstóla um gildi úrskurðarins að því leyti. Þá taldi Landsréttur að aðild C að málinu hefði verið nægjanlega útskýrð í stefnu og að hún færi þannig ekki í bága við 1. mgr. 80. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála. Hinn kærði úrskurður var því felldur úr gildi og lagt fyrir héraðsdóm að taka málið til efnismeðferðar.
Í málinu var deilt um gildi ákvörðunar SE 26. júlí 2024 um að hafna beiðni I um inngrip í háttsemi svonefndra framleiðendafélaga samkvæmt 5. gr. búvörulaga nr. 99/1993. Var sú ákvörðun á því reist að það væri ekki lengur á valdsviði stofnunarinnar að grípa til íhlutunar gagnvart slíkum félögum þar sem þau féllu undir undanþáguheimildir 71. gr. A búvörulaga eftir breytingar sem Alþingi hefði gert með lögum nr. 30/2024. I reisti málatilbúnað sinn á því að SE hefði byggt ákvörðun sína á röngum lagagrundvelli þar sem meðferð frumvarps til breytingalaganna hefði ekki fullnægt áskilnaði 44. gr. stjórnarskrárinnar um þrjár umræður og auk þess verið í andstöðu við 65. gr. hennar. Í niðurstöðu Hæstaréttar kom fram að horfa yrði til þess að matskennt væri hvenær breytingartillaga við frumvarp fæli í sér slíka gerbreytingu að Alþingi væri rétt að fara með hana sem nýtt og sjálfstætt frumvarp samkvæmt 44. gr. stjórnarskrárinnar. Þótt svigrúm Alþingis væri ekki óheft að þessu leyti yrði að ætla þinginu víðtækt svigrúm til mats um þau atriði sem hér skiptu máli. Vísað var til aðdraganda að setningu breytingalaganna og þess að tekist hefði verið á um eftir hvaða leiðum bæri að ná markmiðum þess frumvarps sem upphaflega hafði verið lagt fram af matvælaráðherra. Væri það ekki á valdsviði dómstóla að endurskoða það pólitíska mat kjörinna fulltrúa á Alþingi sem búið hefði að baki þeirri breytingartillögu við frumvarpið sem komið hefði fram og þingið samþykkt við aðra og þriðju umræðu. Að öllu virtu var því ekki á það fallist að við setningu laga nr. 30/2024 hefði verið farið út fyrir það svigrúm sem þingið nyti til breytinga á frumvarpi þannig að brotið hefði verið gegn 44. gr. stjórnarskrárinnar. Þá var ekki talið að I hefði sýnt fram á að honum hefði verið mismunað með ólögmætum hætti með setningu laganna þannig að brotið hefði verið gegn 65. gr. stjórnarskrárinnar. Var SE því sýknað af kröfu I.