Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
1 dómar fundust
Lykilorð: Vatnamál
Íslenska ríkið (
Fanney Rós Þorsteinsdóttir lögmaður) og
Landsvirkjun (
Guðjón Ármannsson lögmaður)
gegn
Brynhildi Briem, Hannesi Þór Sigurðssyni, Jóni Benjamín Jónssyni, Kristjönu Ragnarsdóttur, Erni Inga Ingvarssyni, Ólafi Arnari Jónssyni, Úlfhéðni Sigurmundssyni, Þóru Þórarinsdóttur og Ölhóli ehf (
Sif Konráðsdóttir lögmaður)
B o.fl. höfðuðu mál á hendur Í og L til ógildingar á þremur ákvörðunum stjórnvalda sem lutu að Hvammsvirkjun sem L hugðist reisa í neðri hluta Þjórsár. Ákvarðanirnar sem málið laut að voru leyfi Fiskistofu 14. júlí 2022 vegna framkvæmdanna, ákvörðun Umhverfisstofnunar 9. apríl 2024 um heimild til breytingar á vatnshlotinu Þjórsá 1 vegna virkjunarinnar og virkjunarleyfi Orkustofnunar 12. september sama ár. Með héraðsdómi voru ákvarðanir Umhverfisstofnunar og Orkustofnunar ógildar en hafnað var kröfu B o.fl. um ógildingu leyfis Fiskistofnunar. Í dómi Hæstaréttar kom fram að Umhverfisstofnun hefði veitt L heimild á grundvelli þágildandi a-liðar 1. mgr. 18. gr. laga nr. 36/2011 um stjórn vatnamála til að breyta Vatnshlotinu Þjórsá 1 vegna byggingar virkjunarinnar. Samkvæmt greininni gat Umhverfisstofnun heimilað breytingu á vatnshloti sem hefði í för með sér að ekki væri hægt að ná fram umhverfismarkmiðum samkvæmt 11. gr. laganna þegar um væri að ræða breytingar, svo sem vegna mengunar eða í tengslum við loftslagsbreytingar, á vatnsgæðum, vistfræðilegum, vatnsformfræðilegum eða efna- og eðlisefnafræðilegum eiginleikum yfirborðsvatnshlots eða á hæð grunnvatnshlots. Hæstiréttur komst að þeirri niðurstöðu að þágildandi a-liður 1. mgr. 18. gr. laga nr. 36/2011 yrði, í ljósi lögskýringargagna og meðferðar frumvarps til laganna á Alþingi, skýrður þannig að girt hefði verið fyrir að vatnshloti yrði breytt vegna áhrifa af framkvæmdum við að reisa vatnsaflsvirkjun. Gæti hvorki innri né ytri samræmisskýring leitt til annarrar niðurstöðu en yrði ráðin beint af orðalagi lagaákvæðisins. Var því staðfest niðurstaða héraðsdóms um að ógilda ákvörðun Umhverfisstofnunar 9. apríl 2024. Þá var niðurstaða héraðsdóms um ógildingu virkjunarleyfis Orkustofnunar 12. september 2024 staðfest enda það lögum samkvæmt reist á því að heimild fengist til breytingar á vatnshlotinu. Með ógildingu á leyfi til breytingar á vatnshlotinu hefði grundvöllur virkjunarleyfisins þannig brostið. Loks var staðfest niðurstaða héraðsdóms um að hafna ógildingu leyfis Fiskistofu 14. júlí 2022. Ekki voru taldir slíkir annmarkar á leyfinu að leitt gæti til ógildingar þess. Var hinn áfrýjaði dómur því staðfestur.