Felldur var úr gildi úrskurður héraðsdóms þar sem máli sóknaraðila gegn X var vísað frá dómi.
Íslenska ríkið sýknað af kröfum stefnanda sem krafðist bóta vegna aðgerða lögreglu.
Stefnandi krafðist skaðabóta úr ríkissjóði fyrir miskatjón af því að hann var handtekinn og tekið úr honum blóðsýni vegna gruns um lyfjaakstur, en rannsókn málsins var síðar felld niður. Sýknað var af bótakröfunni vegna þess að talið var að stefnandi hefði með hegðun sinni sjálfur stuðlað að þeim aðgerðum lögreglu sem hann reisti kröfur sína á.
Ákæruvaldið (
Íris Þóra Júlíusdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
X (
Elimar Hauksson lögmaður)
Hótanir.
Líkamsárás
Ákæruvaldið (
Dagmar Ösp Vésteinsdóttir settur saksóknari)
gegn
Pétri Jökli Jónassyni (
Snorri Sturluson lögmaður)
Tilraun til stórfellds innflutnings á fíkniefnum.
Sakfellt og dæmd refsing og ákvarðaðar miskabætur fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás en ekki var talið sýnt fram á að ákærði hefði haft ásetning til manndráps.
Stefnanda voru dæmdar miskabætur vegna handtöku við rannsókn lögreglu á máli hans, sem síðar var fellt niður.
Ákærði var sakfelldur fyrir sérstaklega hættulegar líkamsárásir en ekki þótt sýnt fram á ásetning til manndráps. Þá var talið að háttsemin ætti ekki undir sérákvæði um ofbeldi í nánu sambandi þar sem samband ákærða og brotaþola hefði ekki náð því að vera náið í lagalegri merkingu refsiákvæðisins.
Ákæruvaldið (
Eyþór Þorbergsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Þorvaldi Snæ Péturssyni (
Gísli M. Auðbergsson lögmaður)
Ákærða voru gefin að sök þrjú þjófnaðarbrot. Játaði ákærði eitt brotanna, en neitaði hinum. Var sök ákærða talin sönnuð í öðru tilvikinu, en ósönnuð í hinu. Með vísan til umfangs brotanna og sakaferils ákærða var hann dæmdur til 4 mánaða óskilorðsbundinnar fangelsisvistar. Með vísan til dómsniðurstöðu var sakarkostnaði skipt.
Sýknudómur í nauðgunarmáli.
Ákærði sakfelldur fyrir brot í nánu sambandi og dæmdur í 9 mánaða skilorðsbundið fangelsi og til greiðslu miskabóta. Var háttsemin heimfærð til 1. mgr. 218. gr. b almennra hegningarlaga en ekki talin skilyrði til að sakfella fyrir 2. mgr. sama ákvæðis. Eiginkona ákærða sem var einn brotaþola, neitaði að gefa skýrslu fyrir dómi á grundvelli 117. gr. laga nr. 88/2008. Skýrsla hennar hjá lögreglu sem tekin var upp í hljóði og mynd að gættri 117. gr. laga nr. 88/2008 og studd framburði stjúpdóttur brotaþola í Barnahúsi sem og öðrum gögnum, var lögð til grundvallar sönnun.
Fíkniefnabrot og peningaþvætti.
Ákærði sýknaður af broti í nánu sambandi. Stjúpsonur ákærða dró skýrslu sína hjá lögreglu til baka daginn eftir og neitaði að tjá sig fyrir dómi á grundvelli 117. gr. laga nr. 88/2008. Sambýliskona ákærða neitaði að gefa skýrslu fyrir dómi á grundvelli 117. gr. laga nr. 88/2008 og dró um leið til baka skýrslu sínar hjá lögreglu. Öðrum sönnunargögnum var ekki til að dreifa og því ekki talið unnt að leggja til grundvallar að um afturhvarf frá fyrri skýrslugjöf væri að ræða.
Ákærða sýknuð af ákæru um vörslur á lyfjum í sölu- og dreifingarskyni.
Fíkniefnainnflutningur
Ákærði var sakfelldur fyrir skjalafals og brot gegn lögum um atvinnuréttindi útlendinga með því að hafa í blekkingarskyni framvísað fölsuðu kennivottorði hjá Þjóðskrá Íslands sem leiddi til nánar tilgreindrar skráningar og gerði honum kleift að starfa hér á landi um nokkurra ára skeið án þess að sækja um atvinnuleyfi.
Sýkna af ákæru um hótanir.
Ákæruvaldið (
Arnfríður Gígja Arngrímsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Rannveigu H. Guðbrandsdóttur (
Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Sakfellt fyrir fíkniefna- og lyfjaakstur og vörslur fíkniefna og svipaðra lyfja en ákærða sýknuð af ákæru um brot gegn valdstjórninni.
Líkamsárás sem leiddi til tannáverka.
Innflutningur fíkniefna.
Ákæruvaldið (
Fanney Björk Frostadóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
X (
Bjarni Hauksson lögmaður)
Sakfellt og sýknað af ákæru um sendingu kynferðislegs myndefnis. Einnig sýknað af ákæru vegna meints brots í nánu sambandi, meintrar nauðgunar og meintra brota gegn nálgunarbanni. Miskabætur dæmdur en einkaréttarkröfum að öðru leyti vísað frá dómi.
Ákæruvaldið (
Katrín Hilmarsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
X (
Bjarni Hauksson lögmaður)
Sýkna af ákæru um meinta nauðgun.
Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra (
Eyþór Þorbergsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
X (
Berglind Svavarsdóttir lögmaður)
Staðfestur var úrskurður héraðsdóms um að hafna kröfum varnaraðila um að A lögreglustjóri og B staðgengill lögreglustjóra, ásamt öðrum starfsmönnum embættisins skyldu víkja sæti við rannsókn máls.
Sakfellt fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás.
Ákæruvaldið (
Katrín Hilmarsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
X (
Jón Egilsson lögmaður)
Sakfellt fyrir tilraun til nauðgunar.
Sakfellt fyrir tollalagabrot og hlutdeild í tollalagabroti. Sýknað af einum ákærulið vegna sakarfyrningar.
Ákæruvaldið (
Fanney Björk Frostadóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
A (
Gísli Kr. Björnsson lögmaður)
Sakfellt og sýknað að hluta fyrir kynferðisbrot. Kynferðisleg áreitni.
Fallist var á kröfu stefnanda um bætur vegna rannsóknaraðgerða lögreglu í máli þar sem hann hafði haft réttarstöðu sakbornings við lögreglurannsókn, en málið var síðar fellt niður. Af hálfu íslenska ríkisins hafði verið fallist á bótaskyldu vegna þessara aðgerða, en dómurinn ákvað hærri bætur en boðnar höfðu verið. Stefnandi gerði jafnframt kröfu um bætur fyrir fjártjón og miska vegna atvinnumissis, en stefndi féllst ekki á bótaskyldu vegna þess. Dómurinn féllst á sjónarmið stefnda og sýknaði íslenska ríkið af kröfum stefnanda um frekari bætur.
Manndráp og líkamsmeiðing af gáleysi í tengslum við umferðarslys.
Ákæruvaldið (
Katrín Hilmarsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
X (
Bjarni Hauksson lögmaður)
Sakfellt fyrir kynferðislega áreitni gagnvart níu ára gömlu barni og vegna umferðarlagabrota. Í málinu var jafnframt sýknað af ákæru um kynferðislega áreitni gagnvart tveimur öðrum börnum á unglingsaldri og broti gegn barnaverndarlögum.
Ákæruvaldið (
Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari)
gegn
Tómasi Helga Tómassyni (
Gizur Bergsteinsson lögmaður)
Lögreglumaðurinn T var sakfelldur fyrir brot gegn 132. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og 1. mgr. 217. gr., sbr. 138. gr. sömu laga, með því að hafa, er brotaþoli lá handjárnaður á maganum inni í lögreglubifreið, að þarflausu þrýst hné sínu á háls og höfuð hans, slegið hann tvisvar sinnum í andlitið, þó ekki með krepptum hnefa, og þvingað handjárnaða handleggi hans ítrekað í sársaukastöðu fyrir aftan bak. Hins vegar var talið ósannað að T hefði farið offari og eigi gætt lögmætra aðferða er hann færði brotaþola inn í lögreglubifreiðina og ósannað að háttsemi hans hefði valdið brotaþola tognun og ofreynslu á hálshrygg. Var refsing T ákveðin fangelsi í 45 daga en fullnustu hennar frestað skilorðsbundið í tvö ár.
Ákæruvaldið (
Anna Barbara Andradóttir settur saksóknari)
gegn
Heiðari Loga Sigtryggssyni (
Steinn S. Finnbogason lögmaður)
Sakfellt fyrir hótanir.
Miskabætur dæmdar vegna lögreglurannsóknar og afritunar á gögnum úr síma án samþykkis og án dómsúrskurðar
Ákæruvaldið (
Fanney Björk Frostadóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Danival Guðjóni Stefánssyni (
Guðni Jósep Einarsson lögmaður)
Sakfellt fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás.
Ákæruvaldið (
Kristmundur Stefán Einarsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
I Ákæra, dómkröfur, o.fl (
Birkir Már Árnason lögmaður)
Sakfellt fyrir líkamsárás
Ákæruvaldið (
Halldór Rósmundur Guðjónsson saksóknarfulltrúi)
gegn
X (
Þorgils Þorgilsson lögmaður)
Sýknað af ákæru um kynferðislega áreitni.
Sakfellt fyrir kynferðislega áreitni.
Ákæruvaldið (
Lína Ágústsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
X (
Jón Egilsson lögmaður)
Sýknað af ákæru um líkamsárás vegna sakarfyrningar.
X var ákærð fyrir fjársvik með því að hafa með blekkingum fengið þjónustufulltrúa í viðskiptabanka til að millifæra símleiðis 150.000 krónur af reikningi í eigu annars aðila inn á hennar eigin bankareikning án heimildar. Í dómi Landsréttar var litið til þess að lögregla hefði ekki rannsakað hvort X hafi skort heimild til úttekta af bankareikningnum, eins og henni hefði verið rétt að gera samkvæmt 1. mgr. 54. gr. laga nr. 88/2008, og hefði ákæruvaldinu því ekki lánast sönnun um að X hefði skort slíka heimild þegar millifærslan átti sér stað. Með hliðsjón af framangreindu var niðurstaða héraðsdóms um sýknu X staðfest.
Íslenska ríkinu var gert að greiða stefnendum miskabætur vegna húsleitar sem fram fór við rannsókn lögreglu á afbroti annars heimilismanns. Einum stefnenda voru að auki dæmdar miskabætur vegna handtöku og líkamsrannsóknar.
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum (
Alda Hrönn Jóhannsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
X (
Oddgeir Einarsson lögmaður)
Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem L var heimiluð rannsókn á rafrænu efnisinnihaldi nánar tilgreinds farsíma. Krafa X um frávísun málsins byggðist á ætluðu vanhæfi lögreglustjóra og aðstoðarsaksóknarans sem fór með málið. Í úrskurði Landsréttar kom fram að ekki yrði séð að samskipti varnaraðila við lögreglustjóra né önnur atvik eða aðstæður væru til þess fallin að draga óhlutdrægni lögreglustjóra með réttu í efa, sbr. g-lið 1. mgr. 6. gr., sbr. 3. mgr., 26. gr. laga nr. 88/2008. Þá voru meintar yfirlýsingar X um að hann hafi ætlað að drepa ótilgreindan saksóknara ekki taldar leiða til þess að draga mætti óhlutdrægni aðstoðarsaksóknarans sem fór með málið með réttu í efa. Kröfu X um frávísun málsins var því hafnað og hinn kærði úrskurður staðfestur.
Ákæruvaldið (
Ásmunda Björg Baldursdóttir saksóknari)
gegn
X (
Oddgeir Einarsson lögmaður)
X var gefið að sök að hafa dregið sér fjármuni af bankareikningi dánarbús föður síns. Málinu var vísað frá héraðsdómi með vísan til þess að skýrsla hefði ekki verið tekin af X undir rannsókn málsins auk þess sem ákæran hefði ekki uppfyllt skilyrði c-liðar 1. mgr. 152. gr. laga nr. 88/2008 um skýrleika. Í dómi Landsréttar var litið til þess að samkvæmt 145. gr. sömu laga skuli ákærandi höfða mál á hendur sakborningi telji hann það sem fram hafi komið við rannsókn máls nægilegt eða líklegt til sakfellis. Sóknaraðili hefði metið þau gögn sem fram væru komin sem fullnægjandi grundvöll til að gefa út ákæru í málinu og sönnunarbyrði um sekt ákærða hvíldi á ákæruvaldinu. Enda þótt ekki hefði verið tekin skýrsla af X væru ekki þeir annmarkar á rannsókn málsins að varðað gæti frávísun þess. Var því lagt fyrir héraðsdóm að taka málið til efnismeðferðar.
Héraðssaksóknari (
Kolbrún Benediktsdóttir varahéraðssaksóknari)
gegn
X (
Oddgeir Einarsson lögmaður)
Ákærði sýknaður af ákæru um kynferðisbrot gegn unglingsstúlku og einkaréttarkröfu vísað frá dómi.
Ákærðu talin hafa farið út fyrir takmörk leyfilegrar neyðarvarnar vegna mikillar hræðslu við brotaþola og þau sýknuð af ákæru um líkamsárás. Eitt hinna ákærðu var hins vegar sakfellt fyrir umferðarlagabrot.
Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem ákæru gegn X var vísað frá dómi með vísan til 4. mgr. 26. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála þar sem lögreglustjórann á Suðurlandi hefði skort hæfi til þess að gefa út ákæru á hendur honum. Byggðist krafa X einkum á ætluðu vanhæfi tveggja fulltrúa sem störfuðu á ákærusviði embættisins. Einnig byggði X á því að hann hefði orðið fyrir stöðugri ásókn lögreglu. Í úrskurði Landsréttar kom fram að í málinu væri ekki að finna nein gögn sem bæru með sér að fulltrúinn A, sem vanhæf var til að annast rannsókn þeirra brota sem getið væri í ákæru, hefði haft afskipti af rannsókn þeirra. Þá var ekki fallist á að fulltrúinn B hefði verið vanhæfur til þess að annast rannsókn brotanna, sbr. 6. tölulið 1. mgr. 3. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Um hæfi lögreglustjóra vísaði Landsréttur til þess að samkvæmt meginreglu 5. töluliðar 3. gr. stjórnsýslulaga hefði vanhæfi fulltrúans A eitt og sér ekki áhrif á hæfi lögreglustjóra. Þá yrði ekki séð að fyrir hendi væru önnur atvik eða aðstæður sem fallnar væru til að draga óhlutdrægni lögreglustjórans með réttu í efa, sbr. g-lið 1. mgr. 6. gr. laga nr. 88/2008, þannig að X hefði ekki verið tryggð réttlát málsmeðferð samkvæmt 1. mgr. 70. gr. stjórnarskrárinnar og 1. mgr. 6. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Var hinn kærði úrskurður því felldur úr gildi og lagt fyrir héraðsdóm að taka málið til efnismeðferðar.
Maður sýknaður af ákæru um nauðgun. Einkaréttarkröfu vísað frá dómi.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Kristín Jónsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
A (
Jón Bjarni Kristjánsson lögmaður)
Ákærða sýknuð af ákæru um að hafa framið fjársvik í verslun í tengslum við reikningsviðskipti.
A krafði Í um bætur vegna rannsóknaraðgerða lögreglu. Bótaskylda Í var óumdeild og laut ágreiningur A og Í einungis að fjárhæð miskabóta til handa A. Við ákvörðun miskabóta var litið til þess að þær aðgerðir sem A sætti hefðu falið í sér röskun á mikilvægum hagsmunum hans, friðhelgi einkalífs og frelsi. Aðgerðirnar hefðu verið umfangsmiklar þar sem A sætti leit og handtöku á heimili sínu og leit í fyrirtæki og í tveimur öðrum fasteignum í eigu hans og maka hans. Þá hefðu síma- og tölvugögn A verið skoðuð og upplýsingar um notkun á síma hans frá og með 1. maí 2016 til og með 1. nóvember sama ár. Loks hefði A sætt gæsluvarðahaldi frá morgni 3. nóvember 2016 til síðdegis 7. sama mánaðar, og einangrun meðan á því stóð. Voru miskabætur til A ákveðnar 1.000.000 króna.
A krafði Í um bætur vegna rannsóknaraðgerða lögreglu. Bótaskylda Í var óumdeild og laut ágreiningur A og Í einungis að fjárhæð miskabóta til handa A. Við ákvörðun miskabóta var litið til þess að þær aðgerðir sem A sætti hefðu falið í sér röskun á mikilvægum hagsmunum hennar, friðhelgi einkalífs og frelsi. Aðgerðirnar hefðu verið umfangsmiklar þar sem A sætti leit og handtöku á heimili sínu og leit í fyrirtæki og í tveimur öðrum fasteignum í eigu hennar og maka hennar. Þá hefðu síma- og tölvugögn A verið skoðuð og upplýsingar um notkun á síma hennar frá og með 1. maí 2016 til og með 4. nóvember sama ár. Loks hefði A sætt gæsluvarðahaldi frá morgni 3. nóvember 2016 til síðdegis 7. sama mánaðar, og einangrun meðan á því stóð. Voru miskabætur til A ákveðnar 1.000.000 króna.