Héraðsdómur Reykjavíkur
Dómur 29. ágúst 2024.
Mál nr. S-2964/2024:
Ákæruvaldið
(Dagmar Ösp Vésteinsdóttir settur saksóknari)
gegn
Pétri Jökli Jónassyni
(Snorri Sturluson lögmaður)
Lykilorð
Ákæra. Ávana- og fíkniefni. Fangelsi. Fíkniefnalagabrot. Lögreglurannsókn. Rannsókn. Refsiákvörðun. Samverknaður. Sönnunarbyrði. Sönnunargögn. Sönnunarmat. Tilraun.
Útdráttur
Tilraun til stórfellds innflutnings á fíkniefnum.
Dómur
I.
Ákæra, dómkröfur og fleira: Mál þetta, sem tekið var til dóms 16. ágúst 2024, er höfðað með ákæru, útgefinni af héraðssaksóknara 16. maí sama ár, á hendur Pétri Jökli Jónassyni, kt. [...], [...], Árborg, „með því að hafa ásamt A, kt. [...], B, kt. [...], C, kt. [...] og D, kt. [...], sem þegar hafa hlotið dóm fyrir sinn þátt í málinu, sbr. dóm Landsréttar í máli nr. [...]/2023, staðið að innflutningi á 99,25 kg (með 81% - 90% styrkleika) af kókaíni hingað til lands frá Brasilíu með viðkomu í Rotterdam í Hollandi. Efnin voru falin í sjö trjádrumbum sem komið var fyrir í gámi með númerinu [...], en efnin voru haldlögð af hollenskum yfirvöldum þann 30. júní 2022 og var gerviefnum komið fyrir í trjádrumbunum. Gámurinn kom hingað til lands aðfaranótt 25. júlí 2022 og var afgreiddur af tollsvæði þann 2. ágúst 2022 og fluttur þaðan að [...] í Reykjavík. Þann 4. ágúst 2022 voru trjádrumbarnir fjarlægðir úr gámnum og fluttir að [...] í Hafnarfirði, þar sem hin ætluðu fíkniefni voru fjarlægð úr trjádrumbunum. Þar var þeim pakkað og hluti þeirra fluttur áleiðis í bifreiðinni [...], til ótilgreinds aðila hér á landi, til að hægt yrði að koma efnunum í sölu og dreifingu, en lögregla lagði hald á hluta af ætluðum fíkniefnum í bifreiðinni þar sem henni hafði verið lagt í bifreiðastæði við [...] í Mosfellsbæ.
Brot ákærða telst varða við 173. gr. a., sbr. 1. mgr. 20. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.“ Ákæra var birt 28. maí 2024 og mál þetta var þingfest 4. júní sama ár. Með úrskurði Landsréttar 25. júní síðastliðinn, í málinu nr. [...]/2024, var felldur úr gildi úrskurður héraðsdóms frá 20. sama mánaðar sem laut að frávísun á ákæru frá dómi af sjálfsdáðum vegna ætlaðs óskýrleika á verknaðarlýsingu. Ákæruvaldið gerir sömu dómkröfur og greinir í ákæru og að gæsluvarðhald sem ákærði hefur sætt komi til frádráttar refsingu. Ákærði neitar sök og krefst aðallega sýknu en til vara vægustu refsingar. Þá krefst hann þess að allur sakarkostnaður verði felldur á ríkissjóð, þar með talin hæfileg málsvarnarlaun skipaðs verjanda.
II.
Málsatvik: Samkvæmt málsgögnum var lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu á árinu 2022 með til rannsóknar sakamál sem laut að tilraun til innflutnings á miklu magni af kókaíni földu í holrými í trjádrumbum í harðviðarsendingu með flutningaskipi í vörugámi. Gámurinn var upphaflega sendur frá Brasilíu með viðkomu í Rotterdam í Hollandi þar sem lögregla lagði hald á efnin 30. júní 2022. Reyndist um að ræða 100 kubba-einingar af kókaíni með háum styrkleika og samanlagt vógu efnin tæplega 100 kg, þ.e. um 1 kg í hverjum kubbi. Að því loknu var gámurinn sendur áfram sjóleiðis undir eftirliti lögreglu eftir að fíkniefnunum hafði verið skipt út fyrir gerviefni. Samkvæmt áætlun um flutning gámsins var upphaflega miðað við að hann kæmi hingað til lands 12. júlí 2022 en tafir urðu á því sem að sögn lögreglu skýrðust af hnökrum í starfsemi skipafélags. Gámurinn barst að lokum til Reykjavíkur 25. sama mánaðar og var hann afgreiddur út af tollhöfn átta dögum síðar. Viðbúnaður lögreglu var með meira móti þar sem fylgst var með gámnum og ætluðum gerendum, þar á meðal með símahlustunum, skyggingum og öðrum álíka rannsóknaraðferðum. Til viðbótar framangreindu lágu meðal annars fyrir eldri samskiptagögn og aðrar upplýsingar um hluta af hinum grunuðu sem leiddu til þess að rannsókn málsins hófst í öndverðu. Aðgerðir lögreglu leiddu að lokum til þess að fjórir menn, D, B, C og A, voru handteknir 4. ágúst 2022, hver í sínu lagi, á höfuðborgarsvæðinu, í tengslum við móttöku sendingarinnar hér á landi, eins og nánar greinir síðar.
Leiddi lögreglurannsókn meðal annars í ljós að skráður viðtakandi sendingarinnar var fyrirtæki á vegum A hér á landi. Einnig upplýstist að A og C höfðu endurtekið verið í samskiptum með því að hittast og ræða saman um atriði sem tengdust innflutningnum og gera ráðstafanir með ný símtæki og símanúmer. Að auki hafði A verið í samskiptum við fyrirtæki í Brasilíu sem var skráður sendandi gámsins. C hafði jafnframt veitt A tæknilega aðstoð varðandi símtæki sem hann notaði eingöngu í tengslum við innflutninginn. Einnig færði C honum reiðufé til að greiða kostnað sem féll til vegna móttöku gámsins. Rannsóknin upplýsti jafnframt um tengsl milli C og D vegna innflutningsins en hinn síðarnefndi afhenti hinum fyrrnefnda meðal annars peninga sem átti að nota til að greiða A. Þá kom í ljós að D var með farsíma á sér við handtöku sem var notaður í Signalsamskiptum vegna innflutningsins, þar á meðal við B á handtökudeginum með auðkennið bobsonbob, sem og við óþekktan einstakling á lengra tímabili með auðkennið Nonni, sbr. nánar síðar. Þessu til viðbótar leiddi rannsóknin í ljós að B tók á leigu húsnæði í Hafnarfirði, auk þess sem hann tók við drumbunum frá A og flutti þá síðan í húsnæðið þar sem hann fjarlægði efnin. Einnig var hann með hluta af efnunum í fórum sínum í bifreið þegar hann var handtekinn síðar sama kvöld í Mosfellsbæ. Þá var lagt hald á af- ganginn af efnunum sama kvöld í fyrrgreindu leiguhúsnæði í Hafnarfirði.
Í framburðarskýrslum B kom meðal annars fram að hann hefði verið í samskiptum við mann, sem hann sagði að héti Pétur, og að sá maður hefði fengið hann til að taka þátt í brotinu út frá því sem áður greinir. Hann hefði komist í kynni við Pétur í gegnum sameiginlegan vin, E. Greindi B nánar frá samskiptum sínum við Pétur, útliti hans, aðsetri hér á landi og hvar þeir hittust í aðdraganda brotsins. Hann hefði ekki vitað nákvæm deili á Pétri en komist að því síðar, með upplýsingaöflun á internetinu, að viðkomandi maður hefði nokkrum árum áður verið dæmdur fyrir fíkniefnainnflutning. Einnig bar B um að hafa endurtekið í þessu samhengi verið í samskiptum við Pétur á Signal, en viðkomandi maður hefði áður verið búinn að útvega honum farsíma til að nota í þeim samskiptum. Þá hefði Pétur notað notandaauðkennin Harry, patroncartoon og trucker í téðum Signalsamskiptum. Samskiptin hefðu verið um atriði sem lutu að ýmsum ráðstöfunum sem B var ætlað að gera við framningu brotsins. Hann hefði eingöngu verið í samskiptum við Pétur í framangreindu samhengi. Þá taldi hann að Pétur hefði verið staddur erlendis þegar samskipti áttu sér stað í tengslum við móttöku efnanna sem hann útskýrði nánar.
Til viðbótar framburði B um fyrrgreind atriði leiddi rannsóknin meðal annars í ljós samskiptagögn með tengingu við íslenskt og taílenskt símanúmer, auk hljóðupptöku af samtali, sem virtist samrýmast framburði B, þar á meðal um samskipti hans við Pétur á fyrrgreindum handtökudegi. Samskiptagögnin virtust sýna að B hefði verið í Signal-samskiptum við Pétur um nokkurn tíma og að hinn síðarnefndi hefði verið með notandaauðkennin Harry, patroncartoon og trucker. Símagögn leiddu einnig líkur að því að óskráð símanúmer, með tengingar við fyrrgreind notendaauðkenni, virtust á afmörkuðum tímabilum hafa verið í notkun í símtæki nálægt símtæki með símanúmeri ákærða út frá staðsetningum á fjarskiptasendum á höfuðborgarsvæðinu. Þá sýndu símagögn jafnframt að annað óskráð íslenskt símanúmer, sem rannsókn leiddi í ljós að var notað í tengslum við patroncartoon, fylgdi skráðum síma ákærða dagana 9.–11. júlí 2022 á ferðalagi hans frá Íslandi til Þýskalands og þaðan til Taílands. Þá kom fram við rannsóknina að taílenskt símanúmer, sem virtist tekið í notkun á þeim tíma og tengt við trucker, var eftir það einnig í samskiptum við D, þá vistað undir auðkenninu Nonni í síma D. Skjáskot af þeim samskiptum virtust til að mynda á handtökudeginum sýna samskipti Nonna og D um atriði varðandi móttöku fíkniefna og þátttöku B í brotinu síðar þann sama dag þegar hann tók við og fjarlægði efnin úr drumbunum. Um framangreind atriði vísast nánar til um- fjöllunar í III. og IV. kafla.
Með dómi Landsréttar 24. nóvember 2023, í máli nr. [...]/2023, voru fyrrgreindir fjórmenningar, D, B, C og A, endanlega fundnir sekir og látnir sæta refsiábyrgð fyrir sameiginlega tilraun til stórfellds fíkniefnalagabrots, með því að hafa, ásamt óþekktum manni, staðið saman að innflutningnum, eins og nánar er rakið í dóminum. Í talsverðum mæli hverfðist sakarmatið um verknaðarþætti út frá málsatvikum sem vörðuðu samskipti dómfelldu og móttöku og meðferð efnanna hér á landi, þar á meðal út frá þeim atriðum sem hér hafa áður verið rakin. Hinir dómfelldu gengust allir við afmörkuðum hluta háttseminnar, þ.e. að hafa átt þátt í tilraun til innflutnings ólöglegra fíkniefna með nánar tilgreindum samskiptum og/eða athöfnum. Könnuðust þeir að nokkru marki við atvik en héldu að öðru leyti uppi vörnum við dómsmeðferðina en þau atriði verða ekki rakin hér. Samkvæmt téðri dómsniðurstöðu, sbr. lögreglurannsókn, þótti sýnt fram á innbyrðis verkaskiptingu, beina og óbeina, hjá hinum dómfelldu við framningu brotsins, sbr. meðal annars það sem áður greinir um það sem þeir könnuðust við fyrir dómi að hafa gert og var aðild hvers og eins þeirra virt sem ein heild í samverknaði. Um þessi atriði vísast nánar til umfjöllunar í IV. kafla hér síðar. Þeir voru hins vegar sýknaðir af ákæru um að hafa sammælst um að fremja brotið sem lið í starfsemi skipulagðra brotasamtaka. Þá var öðrum og aðgreindum ákærukafla á hendur þeim um meint peningaþvætti vísað frá dómi vegna óskýrleika á verknaðarlýsingu.
Samkvæmt fyrrgreindri dómsniðurstöðu, sbr. lögreglurannsókn, var lagt til grundvallar að óþekktur vitorðsmaður, til viðbótar fjórmenningunum, hefði á sama tíma staðið með þeim að innflutningi fíkniefnanna. Um þau atriði vísast til þess sem áður greinir um samskipti óþekkts manns við B og D. Málsókn ákæruvaldsins í máli þessu miðast við að ákærði sé hinn umræddi óþekkti maður, þ.e. Pétur, og að hann hafi fyrir sitt leyti framið hið meinta brot, ásamt hinum dómfelldu, með þeim hætti sem því er lýst í ákæru. Er málshöfðunin á hendur ákærða reist á því sem fram kom við fyrrgreinda lögreglurannsókn og leiddi til hinnar fyrri málshöfðunar á hendur fjórmenningunum, sem og því sem kom fram við dómsmeðferð þess máls. Að auki er málshöfðunin á hendur ákærða reist á framhaldsrannsókn sem fór fram eftir uppkvaðningu dóms Landsréttar. Ákærði var erlendis þegar fyrrgreindar handtökur fjórmenninganna áttu sér stað og reyndist hann ófús að gefa sig fram og koma til landsins þegar eftir því var leitað af hálfu lögreglu. Hann kom þó að lokum á eigin vegum til landsins frá Taílandi 27. febrúar 2024 að beiðni lögreglu og fyrir milligöngu verjanda hans. Var það að undangenginni útgáfu handtökuskipunar og eftirlýsingu á vegum alþjóðalögreglunnar INTERPOL. Þá hefur ákærði að mestu leyti verið í gæsluvarðhaldi frá þeim tíma, fyrst vegna rannsóknarhagsmuna en síðan út af almannahagsmunum. Við framhaldsrannsóknina var ákærði yfirheyrður í þrígang á tímabili frá fyrrgreindum komudegi til og með 19. mars sama ár. Hann bar af sér allar sakir og í aðalatriðum var framburður hans á þá leið að hann kannaðist ekki við sakarefni málsins og áðurnefnda fjórmenninga eða að hann hefði verið í samskiptum við þá. Hann sagði ferðalög sín erlendis ekki tengjast sakarefninu og þá neitaði hann að nokkru marki að tjá sig um sakarefnið og svara spurningum lögreglu, þar á meðal um ætluð samskipti við meintan vitorðsmann búsettan í Brasilíu, F, sbr. nánar síðar.
Við framhaldsrannsóknina voru teknar skýrslur af G og H með réttarstöðu sakbornings en þeir neituðu báðir allri aðild að málinu. Hvorugur þeirra hafði sætt rannsókn á fyrri stigum þess en þó verið, að sögn lögreglu, undir rökstuddum grun um að tengjast því vegna upplýsinga sem lögregla hafði undir höndum. Hinn fyrrnefndi, G, kannaðist að nokkru marki við ákærða og dómfellda D og kannaðist hann jafnframt við F frá fyrri tíð. H á hinn bóginn vísaði öllu á bug sem borið var undir hann við skýrslutöku, þar á meðal tengslum við dómfelldu og aðra grunaða. Í málsgögnum greinir hins vegar að við eftirlit lögreglu hafi sést til ferða G og ákærða í byrjun maí 2022 þar sem þeir hittust í miðborginni og virtust ræða saman. Einnig kemur fram í greinargerð að lögregla hafi hlutast til um að afla rafrænna gagna í síma G, sem lagt var hald á í tengslum við rannsókn annars máls. Síminn sé læstur en unnið hafi verið að því að opna hann með aðstoð sérfræðinga erlendis og því aflæsingarferli sé ólokið. Að auki kemur fram í sömu greinargerð lögreglu að rannsóknin hafi enn fremur beinst að F, sem sakborningi. Hann hafi verið bú- settur um langan tíma í Brasilíu og þá sæti hann sem stendur, fyrir tilstilli þarlendra yfirvalda, vistun í fangelsi vegna stórfelldra fíkniefnalagabrota og/eða vegna lögreglurannsóknar í Brasilíu út af slíkum meintum brotum. Framburðarskýrsla hafi ekki enn verið tekin af F af hálfu íslenskrar lögreglu vegna sakarefnis þessa máls. Brasilísk lögregla hafi 27. júní 2023 kynnt réttarbeiðni íslenskrar lögreglu fyrir F en beiðnin hafi meðal annars verið vegna rannsóknar á sakarefni þessa máls. Hann hafi hins vegar kosið að tjá sig ekki um málið. Þá hafi lögregla hér á landi, á grundvelli téðrar réttarbeiðni, lagt hald á síma og tölvu sem tilheyrðu honum í Brasilíu og það verið gert með aðstoð frá þarlendum yfirvöldum, sbr. nánar síðar. Við framhaldsrannsókn voru teknar skýrslur af fyrrgreindum fjórmenningum, þ.e. hinum dómfelldu, með réttarstöðu vitnis. D kaus að tjá sig nánast ekkert við skýrslutökuna. Hið sama var að segja um C. A vildi lítið tjá sig og sagðist hvorki þekkja ákærða né F. B kaus við skýrslutökuna að tjá sig í minna mæli um umrædd atvik og samskipti en kannaðist að einhverju marki við það sama og áður greinir um samskipti sín við Pétur, þ.e. að tengiliður hans hefði alltaf verið sá hinn sami. Kvaðst B hins vegar ekki geta staðfest að sá maður væri í raun og veru ákærði. Þá hefði hann engin tengsl haft við G og H áður en hann var handtekinn. Þeim tveimur hefði hann fyrst kynnst í fangelsi hér á landi í kjölfar þess að hann hóf afplánun refsingar sem hann hlaut samkvæmt fyrrgreindum dómi Landsréttar. Til viðbótar var tekin skýrsla af vitninu E, æskuvini B, sem kvaðst jafnframt þekkja ákærða frá fyrri tíð. Vitnið kvaðst hins vegar ekki kannast við að hafa kynnt B fyrir ákærða í aðdraganda brotsins. Að auki var tekin skýrsla af öðru vitni sem bar um að hafa um nokkurt skeið leigt ákærða íbúð á nánar tilgreindum stað í miðborg Reykjavíkur, meðal annars í mars 2022.
Samkvæmt greinargerð lögreglu, sbr. málsgögn, var niðurstaða rannsóknar og framhaldsrannsóknar í aðalatriðum með þeim hætti að ákærði var talinn vera hinn áður óþekkti maður, Pétur, sem var í Signal-samskiptum við B og D í tengslum við móttöku efnanna. Hið sama var að segja um önnur samskipti við B í aðdragandanum, allt eins og áður greinir. Til stuðnings rannsóknarniðurstöðunni voru fyrrgreindar framburðarskýrslur B um samskipti við Pétur en þær voru taldar vera þýðingarmiklar og studdar rannsóknargögnum, einkum þær skýrslur sem komu fram á fyrri stigum rannsóknarinnar, sbr. og framburð B við áðurgreinda dómsmeðferð. Hið sama var að segja um efni framangreindra haldlagðra samskiptagagna, þar á meðal um samskipti við B og D, auk þeirra atriða sem áður greinir um það sem rannsókn leiddi í ljós um staðsetningar símanúmera á fjarskiptasendum, þar á meðal um ferð ákærða til Taílands. Hljóðupptaka af fyrrgreindu samtali sem B átti við íslenskan mann, Pétur eða trucker, í tengslum við það þegar B var að fjarlægja efnin úr drumbunum í [...], var að mati lögreglu talin samrýmast rödd ákærða, sbr. nánar síðar. Þá var þekkt aðsetur ákærða í leiguhúsnæði í miðborginni talið samrýmast framburði B um samskipti, staðsetningar og fundi sem hann sagðist hafa átt með Pétri. Lýsing B á útliti mannsins var að mati lögreglu jafnframt talin passa við ákærða, auk þess sem ákærði var með sögu í refsivörslukerfinu um eldra brot af sama toga. Rannsókn á ferðum ákærða leiddi jafnframt í ljós að hann var talinn hafa verið staddur í Brasilíu frá 8. til 21. maí 2022, þ.e. á tímabili sem náði meðal annars til þess dags, 18. sama mánaðar, þegar gámurinn með farminum var sendur að hafnarsvæði í því sama landi en áður en hann var lestaður í flutningaskip. Einnig var vitað um ferðalag ákærða til Taílands 9.–11. júlí 2022 og áframhaldandi dvöl í Taílandi eftir það, sbr. það sem áður og síðar greinir. Var dvölin í Taílandi talin styðja grun lögreglu um að hann væri notandi taílensks símanúmers sem var í samskiptum við B og D, sbr. það sem áður greinir um Signal-samskipti þeirra við trucker og Nonna. Þessu til viðbótar var niðurstaðan reist á því að haldlögð rafræn gögn fundust í samskiptaforritinu Signal í farsíma og spjaldtölvu F, sem aflað var frá Brasilíu eins og áður greinir. Þau gögn virtust sýna samskipti F við einstakling með sömu notendaauðkenni á Signal og áður greinir, þ.e. Harry og patroncartoon, auk samskipta við notanda með auðkennið Jonny Rotten. Voru þau samskipti á svipuðum tíma og áður greinir um samskipti Péturs við B. Þá voru notendaauðkennin Harry og patroncartoon skráð hjá F með sömu símanúmer og notendaauðkenni sem voru í farsímum B, sbr. það sem áður greinir um Pétur. Jafnframt voru gögn um samskipti á milli þeirra tveggja þar sem þeir virtust ræða saman um skiptingu á 100 kubbum. Var það talið samrýmast fjölda eininga af kókaíni sem lagt var hald á við stöðvun umræddrar fíkniefnasendingar í Hollandi, eins og áður greinir. Einnig voru meðal téðra gagna skjáskot með andlitsmynd af ákærða í FaceTime-myndsímtali frá 20. nóvember 2022 sem hann virtist hafa átt við F.
Við meðferð máls þessa hjá ákæruvaldinu, samhliða útgáfu ákæru á hendur ákærða, var ákveðið að lögregla skyldi hætta rannsókn málsins á hendur fyrrgreindum sakborningum G, H og F, sbr. 4. mgr. 52. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Að sögn ákæruvaldsins var sú ákvörðun tekin með þeim almenna fyrirvara að rannsóknin yrði tekin upp að nýju ef ný sakargögn kæmu fram á síðari stigum, sbr. 3. mgr. 57. gr. sömu laga.
Í aðdraganda útgáfu ákæru á hendur ákærða í máli þessu hlutaðist lögregla til um að afla sérfræðilegrar raddgreiningar. Laut sú greining að framangreindri hljóðupptöku, nánar tiltekið að samtali B og áðurnefnds íslensks manns, Péturs, í tengslum við fyrrgreind atvik 4. ágúst 2022 þegar sá fyrrnefndi fjarlægði efnin úr trjádrumbunum í húsnæði í [...]. Með þessu var leitast við að skýra frekar hvort sú rödd sem heyrðist í samtalinu, þ.e. frá téðum viðmælanda B, gæti verið rödd ákærða. Í álitsgerð dansks sérfræðings á sviði afbrotahljóðfræði, I, phd., cand. mag í málvísindum, dags. 17. júní 2024, sbr. fylgiskjöl, sem lögð var fram með íslenskri skjalaþýðingu við byrjun aðalmeðferðar, greinir meðal annars að hljóðupptakan á samtalinu, tilgreint sem rannsakað efni, hafi verið borin saman við hljóðritanir á rödd ákærða við téðar lögregluyfirheyrslur 27. febrúar og 19. mars sama ár, tilgreint sem samanburðarefni. Í álitsgerðinni greinir meðal annars frá aðferðafræði rannsóknarinnar og hvernig henni var beitt við greiningu á fyrrgreindum gögnum. Þá greinir jöfnum höndum frá sérfræðilegum atriðum sem talin voru getað hrakið eða stutt við ætlan lögreglu, að um væri að ræða rödd sama mælanda. Í samandreginni niðurstöðu greinir meðal annars að téður sérfræðingur hafi talið að um sama einstakling gæti verið að ræða, eins og nánar er rakið í álitsgerð, þ.e. að rödd Péturs á upptökunni gæti að nokkru marki samrýmist rödd ákærða. Að þessu leyti hafi sérfræðingurinn talið, á matskvarðanum frá -4 til +4, að niðurstaða samanburðarins félli undir kvarðann +1 þar sem um væri að ræða samsvörun á milli margra sérstakra einkenna á tali í samanburðarefni og hinu rannsakaða efni. Með þessu hafi niðurstöðurnar að vissu marki staðfest tilgátu um að mannsrödd sem heyrðist í fyrrgreindu hljóðefni væri frá sama mælanda, nánar tiltekið að þær styddu slíka tilgátu í meira mæli en tilgátu um hið andstæða.
Í álitinu voru nokkrir fyrirvarar tilgreindir samhliða framangreindri niðurstöðu með skírskotun til þess almenna meginatriðis að tal og rödd væru breytileg. Þá var áréttað að raddgreining ætti ekki að standa ein í tengslum við það að draga ályktanir um sönnun af niðurstöðu álitsins, en að slík greining gæti verið notuð í samhengi við aðrar líkur. Var vísað til þess að grunntónn og framburður einstakra hljóða hafi verið mældur og að unnt hafi verið að veita eftirtekt samfellu í orðanotkun. Umrætt hljóðefni hafi verið á íslensku og í því samhengi var bent á að téður sérfræðingur talaði ekki sjálf íslensku. Að því virtu hafi ekki verið unnt að greina málnotkun í hljóðefninu sem ella væri hluti af raddgreiningu og heildarmati við rannsókn af þessum toga. Að því virtu byggði matið aðeins á raddnotkun, raddgæðum og greindum óyrtum einkennum. Jafnframt var tekið fram að hljóðgæði á upptökum, þ.e. fyrst og fremst í hinu rannsakaða efni, hafi ekki verið hin ákjósanlegustu vegna skarkala í bakgrunni. Tal þess einstaklings sem var til rannsóknar hafi verið mjög veikt og hafi það einkum valdið erfiðleikum á hljóðeðlisfræðihluta greiningarinnar. Hljóðeðlisfræðileg breidd merkisins í rannsökuðu efni hafi þar að auki verið aðeins minni en sú sem átti við í eðlilegum aðstæðum eða upptökum sem voru framkvæmdar í hljóðversgæðum. Settur væri fyrirvari við hljóðeðlisfræðigreiningu þegar hljóðgæði væru slæm þar sem mismunandi upptökur, fjarlægð að hljóðnema og bakgrunnstruflanir gætu truflað hljóðeðlisfræðimælingu á mismunandi hátt. Hins vegar hafi við fyrrgreinda niðurstöðu raddgreiningar verið farið með hljóðskrárnar af mikilli varfærni og tekið tillit til gæða upptaka.
Að auki, út frá því sem áður greinir um fyrirvara, var í álitinu bent á að almennt mætti gera ráð fyrir breytileika á tali, bæði milli mismunandi mælenda en líka innan tals tiltekins einstaklings. Í aðalatriðum var það útskýrt nánar með vísan til þess að ef breytileiki tiltekinnar breytu væri mestur milli mælenda væri það vísbending um að ekki væri um að ræða sama einstakling á upptökunum tveimur. Ef breytileikinn væri annars vegar jafn mikill hjá hverjum mælendanna fyrir sig, og hins vegar á milli mælendanna sem slíkra, gæti það verið vísbending um sama mælanda. Það þýddi þó ekki að ómögulegt væri að talmálið gæti komið frá öðrum einstaklingi. Þessu til viðbótar greinir í niðurlagi álitsins um hið sama, að ávallt væri erfiðara að ná fram jákvæðri staðfestingu á því að um væri að ræða sama einstakling heldur en að hrekja það að tal kæmi frá sama einstaklingi. Um rannsókn og sakargögn málsins, sem og önnur atvik, vísast að öðru leyti til þess sem greinir í III. og IV. kafla, eftir því sem við á.
III.
Skýrslutökur fyrir dómi:
Ákærði greindi meðal annars frá því að hafa á árinu 2022 ýmist dvalist hér á landi eða verið á ferðalögum erlendis. Hér á landi hefði hann verið með dvalarstað í leiguhúsnæði að [...] og að maður að nafni [...] hefði verið leigusali hans. Frekar spurður, sbr. símagögn og vegabréf, kannaðist hann við að hafa verið 8.–21. maí 2022 í Brasilíu, 7.–26. júní á Spáni og 26.–28. sama mánaðar í Hollandi. Ferðin til Brasilíu hefði verið skemmtiferð, auk þess sem hann hefði verið að athuga með mögulegt nám í brasilískri bardagaíþrótt sem ekkert hefði hins vegar orðið úr. Hann hefði ekki hitt neinn Íslending í ferðinni og hún hefði ekki með nokkrum hætti tengst því að gámur með umræddum fíkniefnum var á svipuðum tíma færður inn á hafnarsvæði í Brasilíu. Á Spáni hefði ákærði verið að hitta vini sína en hann hefði áður verið búsettur þar í landi. Frekar spurður kvaðst ákærði ekki hafa verið með spænskt símanúmer í sínum fórum. Að auki hefði ákærði farið 9. júlí 2022 frá Íslandi til Taílands með millilendingu í Þýskalandi. Þá hefði hann frá þeim tíma dvalið í Taílandi uns hann kom til baka til Íslands í febrúar 2024. Til skýringar á ferðalögum sínum greindi ákærði frá því að hann hefði á árinu 2022 átt erfitt með að fóta sig á Íslandi og verið að gera upp við sig hvort hann ætti að vera hér á landi eða á Spáni. Þá hefði hann einnig verið með hugmyndir um að vera mögulega í Brasilíu en Taíland að lokum orðið endanlegur áfangastaður.
Ákærði kvaðst engin tengsl hafa haft við B, hvorki þekkt né séð hann. Hið sama ætti við um A og C. Ákærði kvaðst hins vegar kannast við D frá árinu 2015 sem nágranna í leiguhúsnæði en að þeir hefðu ekki verið í neinum samskiptum eftir þann tíma. Ákærði kvaðst vera vinur G og setið með honum í fangelsi en þeir hefðu ekki verið í miklum samskiptum síðastliðin ár. Einnig kvaðst ákærði þekkja F frá fyrri tíð en síðast verið í samskiptum við hann á þeim tíma sem kæmi fram í gögnum, sbr. fyrrgreint myndefni frá 20. nóvember 2022 um FaceTime-myndsímtal. Að auki kvaðst ákærði kannast við E frá fyrri tíð í tengslum við íþróttaiðkun og að þeir væru báðir með æskutengsl við vesturbæ Reykjavíkur. Þeir væru kunningjar sem heilsuðust og að þeir hefðu hist fyrir einhverjum árum síðan en ákærði kvaðst hins vegar ekki minnast þess að hafa komið heim til E. Ákærði kvaðst á árinu 2022 hafa átt og notað jakka af gerðinni Stone Island. Einnig kvaðst hann kannast við sig á myndefni úr öryggismyndavél meðal málsgagna þar sem hið sama kæmi fram. Frekar spurður kannaðist ákærði við að hafa áður verið dæmdur fyrir innflutning fíkniefna. Þá kvaðst ákærði kannast við að hafa hitt G í maí 2022, sbr. myndefni í málsgögnum. Ákærði kvaðst hins vegar ekki kannast við að hafa hitt B fyrir utan [...] í júní 2022. Þá kvaðst hann hvorki vita hvort D væri kallaður […] né þekkja til bróður hans.
Ákærði kvaðst kannast við að hafa verið notandi símanúmersins [...]. Hann hefði meðal annars notað Signal-samskiptaforrit í símanum og auðkennið verið hið sama og nafnið hans. Ákærði kvaðst hins vegar ekki kannast við eða hafa neinar skýringar á því sem kæmi fram í málsgögnum um Signal-auðkennin Harry, patroncartoon, trucker og Jonny Rotten. Þá kvaðst hann enga skýringu hafa á því hvers vegna símarannsókn lögreglu benti til þess að annað símanúmer, tengt við patroncartoon, hefði fylgt fyrrgreindu íslensku símanúmeri ákærða 9. júlí 2022 frá Íslandi til Þýskalands og þaðan næstu daga á eftir til Taílands. Kannaðist ákærði hins vegar við að hafa ferðast til Taílands á þeim tíma og verið einn á ferð. Ákærði kvaðst kannast við að hafa verið að æfa í líkamsræktarstöðvum [...] hér á landi. Einnig að það gæti verið rétt, sem fram kæmi í málsgögnum, að hann hefði verið við æfingar 7. júlí 2022, klukkan 15:10, í stöð fyrirtækisins í [...]. Þá kvaðst hann telja það vera tilviljun að hið sama hefði að nokkru leyti komið fram í Signalsamskiptum B við Harry sama dag klukkan 15:12. Ákærði kvaðst engar skýringar hafa á framburði B um Pétur og Signal-samskipti B við Harry, patroncartoon og trucker. Þá kvaðst hann ekki kannast við taílenskt símanúmer sem tengt var við trucker á sama tíma og hann dvaldi í Taílandi. Hið sama koma fram hjá ákærða um sama taílenska símanúmer sem vistað var undir auðkenninu Nonni í síma D. Frekar spurður kvaðst ákærði ekkert kannast við samskipti B við Harry á tímabili frá 3. til 8. júlí 2022 um ýmsar ráðstafanir, þar á meðal um leiguhúsnæði að [...] og að kaupa þyrfti skóflu og grafa holur. Þessu til viðbótar kvaðst ákærði ekki kannast við sjálfan sig á fyrrgreindri hljóðupptöku 4. ágúst 2022 á milli B og Péturs eða trucker í [...]. Þá kvaðst hann heldur ekki vita hverjir ræddu saman í upptökunni. Frekar spurður um síma og símanúmer kvaðst ákærði hafa týnt síma með hinu fyrrgreinda íslenska símanúmeri á meðan hann dvaldi í Taílandi. Þá hefði hann óttast yfirvöld í Taílandi eftir að ljóst varð um eftirlýsingu lögreglu á árinu 2024. Hann hefði því gripið til þess ráðs að losa sig við síma sem hann var með í fórum sínum með taílensku símanúmeri svo ekki væri unnt að staðsetja hann í Taílandi. Í framhaldi hefði hann fengið sér annan síma í Taílandi með taílensku símanúmeri og haft þann síma með sér til Íslands í febrúar 2024. Vitnið B kvaðst vísa til fyrri framburðar síns sem hann gaf hjá lögreglu og fyrir dómi. Vitnið kvaðst eingöngu hafa verið í samskiptum við Pétur og engan af hinum dómfelldu. Samskiptin við Pétur hefðu verið í eigin persónu og í síma með notkun Signalsamskiptaforritsins. Vitnið kvaðst ekki muna hvort það voru margir Signal-notendur sem hann var í samskiptum við eða að hann hefði ekki velt því sérstaklega fyrir sér hvort Pétur var á bak við notendaauðkennin Harry, patroncartoon og trucker. Frekar spurður kvaðst vitnið ekki muna vel eftir samskiptum við Pétur eða fyrrgreinda Signal-notendur. Vitnið kannaðist meðal annars við að hafa verið í samskiptum við Pétur í tengslum við að leigja húsnæði í [...] og í því samhengi kannaðist vitnið við samskipti við Pétur með notandaauðkennið Harry á Signal. Frekar spurður kvaðst vitnið ekki draga í efa fyrri framburð um samskipti við Pétur í tengslum við téð notendaheiti. Þá kvaðst vitnið ekki muna hversu oft þeir hittust. Vitnið kvaðst muna illa eftir hljóðupptöku við Pétur þegar vitnið var að fjarlægja efnin úr drumbunum og að það skýrðist af vímuefnaneyslu. Hvað varðar Signal-samskipti kvaðst vitnið ekki kannast við eða geta útskýrt nánar skilaboð frá Harry um að taka á leigu húsnæði af manni með nafnið [...]. Frekar spurður hvernig vitnið kynntist Pétri greindi vitnið frá því að hafa einhvern tímann fengið símtal og í framhaldi hefði vitnið ákveðið að hitta hann. Vitnið kvaðst ekki vita hvernig Pétur vissi af honum. Þá kannaðist vitnið ekki við það sem kom fram hjá honum á fyrri stigum um að E hefði haft með það að gera að hann komst í kynni við Pétur. Kvaðst vitnið muna þessi atriði mjög óljóst vegna vímuefnaneyslu. Frekar spurður kvaðst vitnið hafa dvalið í [...] í Mosfellsbæ á þessum tíma og þá kannaðist hann ekki við að hafa búið heima hjá E. Frekar spurður út frá lögregluskýrslu kvaðst vitnið ekki muna eftir lýsingu sem hann gaf á útliti Péturs, staðsetningu heimilis og fatnaði hans við skýrslutöku hjá lögreglu. Út frá hinu sama kvaðst vitnið ekki muna hvort hann hefði sótt Pétur fyrir framan [...] á þeim tíma þegar þeir voru í samskiptum. Einnig kvaðst vitnið ekki muna eftir að hafa fengið frá honum peninga. Þá kvaðst vitnið ekki muna eftir hafa leitað upplýsinga um Pétur á internetinu. Vitnið kannaðist við að hafa hitt Pétur í tengslum við það að hann tók á leigu húsnæði í [...]. Frekar spurður um Pétur kvaðst vitnið vera alveg viss um að ákærði væri ekki sá Pétur sem hann var í samskiptum við í tengslum við umrædd atvik. Þá kvaðst vitnið enga frekari vitneskju hafa um deili á Pétri. Aðspurður nánar kvaðst vitnið ekki óttast neinn í tengslum við meðferð þessa máls. Til skýringar á minnisleysi vísaði vitnið til þess langa tíma sem væri liðinn og/eða að það skýrðist að einhverju marki af vímuefnaneyslu á þeim tíma. Vitnið hefði þó munað atvik betur á þeim tíma og hann reynt að vera samvinnuþýður við lögreglu og leitast við að greina rétt frá til að upplýsa málið. Vitnið D var ófús að gefa skýrslu vegna málsins og vísaði til fyrri réttarstöðu sinnar sem sakbornings og að dómsmáli á hendur honum væri lokið. Frekar spurður greindi vitnið meðal annars frá því að hann þekkti ákærða frá fyrri tíð. Þau kynni hefðu verið óveruleg og tengst húsnæði á [...] þar sem vitnið bjó á yngri árum. Vitnið kvaðst aldrei hafa verið í samskiptum við ákærða í tengslum við atvik þessa máls. Að öðru leyti vísaði vitnið til fyrri skýrslna sem hann gaf hjá lögreglu og fyrir dómi og kvaðst hann ekki vilja tjá sig frekar um málið eða einstök atriði vegna þess.
Vitnið A gaf skýrslu í fjarfundarbúnaði og greindi meðal annars frá því að hann hefði aðeins verið í samskiptum við D og C vegna atvika málsins á sínum tíma. Vitnið tiltók sérstaklega að D hefði á þeim tíma haft samband við hann og sagt honum að staurarnir væru tilbúnir til afhendingar í Brasilíu. Vitnið hefði í framhaldi komið þeim skilaboðum áleiðis til fyrirtækis í Brasilíu sem hann var í viðskiptum við og að það hefði verið 20. desember 2021. Vitnið kvaðst ekki vita hvort D hefði verið kallaður […] af öðrum. Vitnið kvaðst ekki þekkja ákærða og að hann hefði aldrei hitt eða séð hann. Þá kvaðst hann enga vitneskju hafa um meinta aðild ákærða að málinu. Frekar spurður kvaðst vitnið kannast við fyrri framburð sinn hjá lögreglu og fyrir dómi vegna málsins og að hann stæði við þann framburð.
- Vitnið C vildi lítið eða ekkert tjá sig um málið. Vísaði hann til framburðar sem hann gaf hjá lögreglu og fyrir dómi á fyrri stigum málsins um eigin aðkomu og annarra að málinu. Vitnið tók fram að hann hefði á fyrri stigum málsins, þegar hann var með réttarstöðu sakbornings, neitað að svara spurningum um hver hefði fengið hann til að taka þátt í innflutningi fíkniefnanna. Hann hefði þó látið þess getið að það hefði verið enginn af sakborningum málsins á þeim tíma. Sú afstaða vitnisins væri óbreytt en í þessu samhengi kvaðst hann þó vilja taka það sérstaklega fram, til að fyrirbyggja allan misskilning, að það hefði ekki verið ákærði sem bað hann um að koma að innflutningnum. Kvaðst vitnið að öðru leyti ekki vilja tjá sig frekar um það eða önnur atriði vegna málsins og vísaði til fyrri skýrslna, eins og áður greinir.
- Vitnið E kvaðst vera æskuvinur B. Þá kvaðst vitnið vita deili á ákærða frá fyrri tíð í tengslum við íþróttaiðkun. Engin tengsl væru þó á milli hans og ákærða. Þá hefðu þeir tveir ekki hist og heldur ekki ásamt B. Frekar spurður út frá lögregluskýrslu um hið sama kvaðst vitnið ekki vera viss um hvort hann og ákærði hefðu í raun einhvern tímann hist eða heilsað hvor öðrum. Ef það hefði gerst, sem væri óvíst, hefði það verið fyrir um 20 árum síðan. Aðspurður kvaðst vitnið ekki kannast við að hafa kynnt B fyrir ákærða né heldur að hann hefði kynnt mann fyrir honum með nafnið Pétur. Þá hefði B í samskiptum sínum við vitnið aldrei nefnt ákærða. Þá kvaðst vitnið kannast við að hafa um tíma lánað B íbúðina sína. Það hefði verið að sumarlagi á árinu 2022 og vitnið hefði á sama tíma verið á ferðalagi á Spáni.
- Vitni, lögreglufulltrúi nr. J, staðfesti greinargerð um heildaryfirlit á rannsókn málsins, sbr. rannsóknargögn, og gerði nánar grein fyrir rannsókninni. Hvað varðar upphaf hennar greindi vitnið meðal annars frá því að lögregla hefði verið við rannsókn annars sakamáls. Í því máli hefðu legið fyrir rafræn gögn úr EncroChat-samskiptaforriti þar sem tveir menn, fyrrgreindur G og H, virtust ræða saman um innflutning fíkniefna til landsins í timbursendingu frá Brasilíu. Lögregla hefði í framhaldi fylgst með slíkri flutningsleið til landsins og það síðan leitt til þess að fíkniefni voru haldlögð í lok júní 2022 í Hollandi. Þá greindi vitnið frá því að lögreglu hefðu borist upplýsingar í maí sama ár um að G væri, auk F, að flytja mikið magn af kókaíni til landsins. Einnig að téður D tengdist þeim innflutningi. Í framhaldi hefði átt sér frekari rannsókn og atburðarás með handtökum og haldlagningu sakargagna 4. ágúst 2022, sbr. það sem áður er rakið í málavaxtalýsingu.
Vitnið greindi nánar frá því sem rannsókn leiddi í ljós varðandi B. Í því samhengi greindi vitnið meðal annars nánar frá hlutverki B, sbr. það sem áður er rakið í málavaxtalýsingu. Í fyrstu skýrslutöku af B hefði hann greint frá því að hafa aðeins verið í samskiptum við einn samverkamann, Pétur, en hann hefði ekki sagst vita frekari deili á honum. B hefði gefið lýsingu á manninum, útliti, búsetustað og lýst að nokkru marki klæðnaðinum. Þá hefði B við skýrslutökuna sagst hafa verið búinn að komast að því með upplýsingaöflun á internetinu að sá hinn sami hefði áður fengið dóm fyrir fíkniefnainnflutning. Lögregla hefði í framhaldi yfirfarið framangreindar upplýsingar og staðreynt hluta af þeim með frekari rannsóknarvinnu. Í því samhengi vísaði vitnið til myndefnis þar sem sást til B sækja mann fyrir utan [...] sem samrýmdist framburði hans um samskipti við téðan Pétur. Skráð heimilisfang ákærða hefði verið á svipuðum slóðum og framburður B um búsetu Péturs. Upplýsingaleit með forritinu Google á internetinu hefði aðeins gefið leitarniðurstöðu um eldra fíkniefnamál ákærða fyrir dómstólum ef skráð var í leitarorð bæði eiginnafn og millinafn hans. Útlit sem B gaf á manninum þótti samrýmast útliti ákærða. Þá hefði B gefið lýsingu á tegund á jakka sem Pétur klæddist þegar þeir hittust og það síðan samrýmst myndefni frá svipuðum tíma sem aflað var úr hraðbanka. Þessu til viðbótar hefði lögregla verið með upplýsingar um tengsl ákærða við G og F. Eftirlit hefði verið haft með G í tengslum við rannsókn annars sakamáls og að sést hefði til ferða hans þar sem hann hitti D 2. maí 2022. Þá hefði síðar sama dag sést til G þar sem hann hitti ákærða í miðborg Reykjavíkur og að þeir hefðu talað saman í stutta stund. Að auki hefði ákærði skráð sig inn á líkamsræktarstöð tiltekinn dag og það hefði samrýmst efni Signal-samskipta grunaðs samverkamanns á svipuðum tíma við B. Með þessu og fleiru hefði grunur lögreglu smátt og smátt beinst að ákærða við rannsókn málsins, sbr. og dómsúrskurði í rannsóknargögnum frá 9. og 11. ágúst 2022 sem lutu að rannsóknarheimildum gagnvart ákærða.
Til viðbótar framangreindu vísaði vitnið meðal annars til þess sem fram hefði komið hjá B um að hann hefði borið um að hafa aðeins verið í Signal-samskiptum við einn samverkamann, Pétur, og að sá hinn sami hefði notað mismunandi auðkenni. Það hefði einnig samrýmst gögnum málsins, sbr. það sem áður greinir um Harry, patroncartoon og trucker. Notkun á einkasíma ákærða hefði samrýmst umferð um fjarskiptasenda í ná- grenni við [...] sem samrýmdist framburði B um samskipti við Pétur. Samskiptin við Harry hefðu hverfst um ýmsar undirbúningsathafnir, svo sem að leigja húsnæði, útvega verkfæri, sækja peninga og fleira. Það hefði allt samrýmst framburði B. Í framhaldi hefði patroncartoon tekið við samskiptunum og þau samskipti öll hverfst um innflutning á gámnum. Þá hefði frekari rannsókn með öflun símagagna meðal annars leitt í ljós að einkasími ákærða og símanúmer með tengsl við patroncartoon virtust fylgjast að þegar ákærði ferðaðist frá Íslandi til Taílands með viðkomu í Þýskalandi, sbr. það sem áður greinir í málavaxtalýsingu. Lögregla hefði kannað með flug til Þýskalands téðan dag og ákærði verið meðal farþega og einn í bókun og hann jafnframt verið sá eini sem var með nafnið Pétur á meðal farþega. Að öðru leyti hefði ekki verið athugað með flug eða flugfarþega á téðri flugleið. Samskipti við trucker hefðu verið við B frá 26. júlí 2022 og til 4. ágúst sama ár, sbr. það sem áður greinir um handtökur. Þá hefði sá Signal-aðgangur verið með taílenskt símanúmer og ákærði á sama tíma verið staddur í Taílandi. Ekki hefði hins vegar reynst unnt að afla frekari gagna frá taílenskum yfirvöldum um notanda símanúmersins. Þá hefði það ekki komið inn á fjarskiptasenda hér á landi á þeim tíma þegar það var notað og ekki hefði verið unnt að kalla eftir gögnum um notkun þess. Þessu til viðbótar greindi vitnið frá því að taílenska símanúmerið hefði verið vistað í símaskrá í síma D undir auðkenninu Nonni og sá hinn sami hefði sama dag, 4. ágúst, og dagana á undan verið í Signal-samskiptum við D.
Frekar spurður um Harry greindi vitnið meðal annars frá því að lögregla hefði í apríl 2023 aflað, með aðstoð brasilískra yfirvalda, rafrænna gagna sem voru í fórum F. Í þeim gögnum hefðu komið fram Signal-samskipti milli F og Harry, þ.e. hið sama notandaauðkenni og var í samskiptum við B, eins og áður greinir, auk þess sem sama símanúmer hefði verið tengt við auðkennið hjá F og var í gögnum varðandi B. Í þeim samskiptum hefði meðal annars verið rætt um umræddan gám. Einnig hefði komið fram í samskiptunum 5. júlí 2022 að rætt var um skiptingu á 100 kubbum en það hefði samrýmst magni hinna haldlögðu fíkniefna. Jafnframt hefðu þeir rætt í sama samtali um skiptingu á efnunum, 27 kg hefðu átt að fara til […] og 7 kg til samstarfsfélaga en að önnur efni ættu þeir. Þá vísaði vitnið til þess að sama dag og fyrrgreind samskipti áttu sér stað hefðu önnur samskipti átt sér stað milli Harry og B þar sem rætt var um að hinn síðarnefndi átti að tryggja að holur til að geyma fíkniefni í væru tilbúnar. Þá hefði hið sama komið fram sama dag í samskiptum Harry við F. Frekar spurður greindi vitnið frá því að lögregla teldi að téður […] væri D og það væri meðal annars stutt því að í samtali við F hefði komið fram að nafngreindur yngri bróðir D væri í Kaupmannahöfn á sama tíma. Þá hefði lögregla fengið það staðfest síðar.
Vitnið greindi nánar frá öðrum þáttum varðandi rannsókn málsins. Í því samhengi út- skýrði vitnið nánar atriði varðandi myndsakbendingu sem ekki var unnt að framkvæma. Einnig gerði vitnið grein fyrir atriðum varðandi aðgerðir lögreglu til að ná sambandi við ákærða og fá hann til landsins. Greindi vitnið frá því að sími sem ákærði var með í fórum sínum við komuna til landsins í febrúar 2024 hefði reynst vera nánast tómur hvað varðar rafræn gögn og að ákærði hefði greint frá því að hann hefði týnt eldri síma. Þá hefði skoðun á vegabréfi hans leitt í ljós að hann var í Brasilíu á þeim tíma þegar umræddur gámur var færður inn á hafnarsvæði. Vitnið útskýrði einnig tæknileg atriði varðandi samspil símaskrár í síma og Signal-auðkenna, IMEI-númer, auk almennra atriða varðandi Signal-notkun. Um hið síðastnefnda kom meðal annars fram að unnt væri að skrá aðgang á Signal með einu símanúmeri en hætta síðan notkun þess númers og færa Signal-notkun yfir á annað símanúmer. Með þessu væri leitast við að halda Signal-samskiptum leyndum fyrir lögreglu og torvelda aðgerðir lögreglu eftir á varðandi öflun símaupplýsinga. Vitnið greindi einnig frá því að hafa yfirfarið sérstaklega og ritað upp samtal frá fyrrgreindri hljóðupptöku af Pétri eða trucker í [...] frá 4. ágúst 2022. Í því samhengi kvaðst vitnið vera alveg viss um að röddin sem heyrðist tala við B væri rödd ákærða. Ekki eru efni til frekari reifunar á framburði vitnisins.
- Vitni, lögreglufulltrúi nr. K, staðfesti lögregluskýrslur og greindi nánar frá einstökum atriðum varðandi rannsókn málsins. Í vætti vitnisins kom meðal annars fram að hann hefði yfirfarið haldlögð símagögn. Í gögnum úr tveimur símum B hefðu verið Signalsamskipti við Harry, patroncartoon og trucker. Efnislega hefðu samskiptin virst lúta að atriðum varðandi undirbúning á fíkniefnasendingu, ýmsum ráðstöfunum sem B átti að sjá um að gera, auk þess sem honum var ætlað að taka á móti fíkniefnum. Um hefði verið að ræða samskipti sem áttu sér stað á nokkru tímabili til og með handtökudegi, 4. ágúst 2022. Stígandi hefði verið í samskiptunum og þau verið mikil hinn síðastnefnda dag. Þá kvaðst vitnið telja að ekki væri unnt að útiloka að meiri samskipti hefðu átt sér stað á milli þeirra eða annarra sem hefðu farið framhjá lögreglu. Almennt hefðu Signalsamskiptin borið með sér að viðkomandi notendur reyndu að halda þeim leyndum eða hylja slóð sína gagnvart lögreglu með því að skipta um síma og símanúmer. Greindi vitnið nánar frá efni og samhengi samskiptanna og fleiri atriðum af svipuðum toga, þar á meðal um lítilsháttar skörun á notendaheitum á sama tíma og hvaða skýringar væru á því. Ljóst hefði verið af samskiptunum að um var að ræða íslenska einstaklinga þótt hluti samskiptanna hefði verið á ensku. Í aðalatriðum kom fram hjá vitninu að B hefði verið í Signal-samskiptum við Harry, patroncartoon og trucker og að samskiptin hefðu borið með sér að um væri að ræða sama aðila. Þá hefði B greint frá hinu sama við lögregluyfirheyrslur og upplýst að maðurinn héti Pétur. D hefði hins vegar verið í samskiptum við C og A. Þá hefðu D og Pétur verið í samskiptum sín á milli. Með þessu hefði verið ljóst að um var að ræða skýra verkaskiptingu. Pétur hefði haldið utan um og stýrt samskiptum við B varðandi móttöku efnanna á meðan D hefði séð um samskipti við hina tvo um atriði sem lutu að því að koma efnunum til landsins og síðan til B. Af þessu hefði verið ljóst að Pétur og D voru að stýra mikilvægum þáttum í atburðarásinni. Frávik hefði hins vegar verið í samskiptakeðjunni þegar D reyndi að lokum, að því er virtist í uppnámi, að hafa samband við B 4. ágúst 2022 í tengslum við móttöku efnanna. Þá hefði frekari rannsókn málsins rennt stoðum undir það að umræddur Pétur væri ákærði. Um þau atriði í vætti vitnisins vísast nánar til þess sem áður er rakið í málavaxtalýsingu, sbr. og vættis lögreglufulltrúa nr. J. Frekar spurður greindi vitnið frá því að skygging í aðdraganda brotsins hefði leitt í ljós að ákærði og G hittust skammt fyrir neðan [...] en rannsókn hefði ekki leitt í ljós að ákærði og D hefðu hist. Ekki eru efni til frekari reifunar á vætti vitnisins.
- Vitni, lögreglufulltrúi nr. L, staðfesti lögregluskýrslur og greindi nánar frá einstökum atriðum varðandi rannsókn málsins. Í vætti hans kom meðal annars fram að B hefði við lögregluyfirheyrslu greint frá því að hafa hitt Pétur og að hann hefði verið sagður vera með heimili nálægt [...]. Þá hefði jafnframt komið fram að B hefði sótt Pétur hjá [...]. Lögregla hefði í framhaldi út frá símagögnum aflað myndefnis úr eftirlitsmyndavél sem staðfesti framburð B um að hann hefði sótt mann hjá fyrrgreindu hóteli. Ekki hefði hins vegar verið unnt að sjá á myndefninu um hvaða mann var að ræða. Frekar spurður um hið sama kvaðst vitnið ekki geta staðfest að leitað hefði verið að öðru myndefni í miðborginni út frá símagögnum um staðsetningar hins grunaða. Vitnið greindi einnig frá því að lögregla hefði aflað gagna sem staðfestu að ákærði skráði sig inn á líkamsræktarstöð [...] í [...] en það hefði passað við samskipti Harry við B um hið sama á sama tíma. Vitnið gerði einnig grein fyrir aðferðum þeirra sem sættu rannsókn vegna málsins varðandi skráningu á notkun á Signal-samskiptum. Unnt hefði verið að tengja notendur saman með því að bera saman við IMEI-númer sem vitnið útskýrði nánar. Einnig greindi vitnið frá því að sú rannsókn hefði meðal annars leitt í ljós að patroncartoon notaði símanúmer sem fylgdi einkasíma ákærða á ferðalagi hans frá Íslandi til Taílands, eins og nánar kæmi fram í gögnum. Að auki greindi vitnið frá því að ákærði hefði komið til landsins í febrúar 2024 og þá verið með nýtt símtæki í fórum sínum með nýju taílensku símanúmeri og að engin rafræn gögn hefðu verið í því símtæki.
Vitni, sérfræðingur nr. M, staðfesti og gerði nánar grein fyrir skýrslu um greiningu lögreglu á símagögnum. Útskýrði vitnið nánar aðferðafræði, fyrirvara og framsetningu upplýsinga í skýrslu og gerði nánar grein fyrir þeim atriðum út frá efni skýrslunnar og myndrænni framsetningu. Þá útskýrði vitnið ýmis atriði varðandi fjarskiptasenda, stefnu, fjarlægðir og fleira af þeim toga. Í vætti vitnisins kom meðal annars fram að engar tengingar hefðu reynst vera á milli síma B og persónulegs síma ákærða. Þá greindi vitnið að öðru leyti frá því að töluverð tengsl með tilliti til notkunar og staðsetninga fjarskiptasenda hefðu verið á síma með númeri ákærða og símum með óskráðum símanúmerum með tengsl við Harry og patroncartoon. Gerði vitnið nánar grein fyrir þeirri rannsókn en í því samhengi kom meðal annars fram að notast hefði verið við nánar tilgreinda greiningaraðferð þar sem upplýsingar um staðsetningar og notkun voru keyrðar saman með tilliti til þess hvort símar tengdust sendum innan sama radíuss og innan sömu tímalengdar. Greiningin hefði leitt í ljós að persónulegur sími ákærða og hin óskráðu númer komu reglulega saman inn á senda á sama tíma á sama stað. Einnig hefðu áþekk tengsl verið við síma ákærða vegna ferðalaga hans erlendis sem vitnið útskýrði nánar.
Frekar spurður um símagögn varðandi símanúmer tengdu við Harry samanborið við síma með símanúmeri ákærða staðfesti vitnið að símanúmerin hefðu á tímabili frá 29. júní 2022 til 4. júlí sama ár komið samtals í 86 skipti inn á fjarskiptasenda innan 750 metra radíuss á sömu 15 mínútum. Aðallega hefði nálægðin hverfst um fjarskiptasenda í miðborg Reykjavíkur og meðal annars í nágrenni við [...]. Miðað við tíðnina kvaðst vitnið telja að líkur stæðu til þess að téðir notendur annaðhvort þekktust eða að þeir væru einn og hinn sami. Greindi vitnið einnig frá því að mismunandi fjarskiptasendar sem tengdust téðum símanúmerum, á tíma og stöðum í nágrenni við heimili ákærða sem um ræðir, gætu skýrst af því að símanúmerin voru í þjónustu hjá mismunandi símafyrirtækjum. Þá væru út frá hinu sama talsverðar líkur á því að símarnir hefðu verið í fórum sama manns á för hans um borgina en ekki að símarnir hefðu komið inn á sömu eða nálæga fjarskiptasenda vegna búsetu tveggja mismunandi einstaklinga í sama borgarhverfi. Einnig greindi vitnið frá og útskýrði sams konar tengsl og tíðni tengsla við fjarskiptasenda 8. júlí 2022 varðandi símanúmer ákærða og símanúmer sem tengdist patroncartoon.
Frekar spurður um símanúmer ákærða og téð símanúmer sem tengdist patroncartoon, og sem virtist hafa ferðast með ákærða 9.–11. júlí 2022 sem leið lá um Reykjanesbraut og síðan frá Íslandi til Þýskalands og þaðan til Taílands, greindi vitnið í aðalatriðum frá hinu sama. Miklar líkur stæðu til þess að sami notandi hefði verið með bæði númerin í fórum sínum á téðu ferðalagi. Þá samrýmdist það einnig því sem áður greinir um hið sama 8. júlí 2022 varðandi patroncartoon. Frekar spurður og til skýringar greindi vitnið frá því að mismunandi tímasetningar á tengingum téðra númera erlendis gætu skýrst af því að ekki hefði verið kveikt á símum eða að þeir hefðu verið á flugstillingu. Almennt tæki mismunandi langan tíma fyrir síma að tengjast farsímakerfum erlendis og alltaf gæti verið einhver munur í þeim efnum á milli símafyrirtækja. Frekar spurður taldi vitnið ekki unnt að útiloka að símarnir hefðu verið í mismunandi flugi en það væri hins vegar ólíklegra. Frekar spurður um sömu símanúmer varðandi ferðalag téðan dag um Reykjanesbraut sem leið lá að Keflavíkurflugvelli kvaðst vitnið telja að mismunandi tímasetningar á tengingu símanúmera við senda á hálftíma millibili gætu skýrst af því að símar tengdust sendum á mismunandi stað og tíma. Í aðalatriðum vísaði vitnið til þess að horfa þyrfti á gögnin í heild sinni, þ.e. allt ferðalagið, og að því virtu væru meiri líkur á því að símanúmerin hefðu verið að ferðast saman. Ekki eru efni til frekari reifunar á vætti vitnisins en um lykilatriði um rannsókn vitnisins vísast nánar í IV. kafla.
- Vitni, lögreglufulltrúi nr. N, staðfesti lögregluskýrslur og greindi frá rannsókn sem laut að haldlögðum gögnum úr raftækjum F sem aflað var frá brasilískum yfirvöldum. Í vætti vitnisins kom meðal annars fram að Signal-notandi með auðkennið Jonny Rotten hefði verið í samskiptum við F. Að auki hefðu Signal-notendur með auðkennin Harry og patroncartoon verið í samskiptum við F. Efnislega hefðu samskiptin virst fjalla um meint fíkniefnamisferli þar sem rætt var um slík atriði undir rós. Þá hefðu efni, framsetning og tímasetningar samskipta bent til þess að um væri að ræða sömu manneskju sem var í samskiptum við F, þ.e. að eitt Signal-auðkenni hefði tekið við af öðru. Jonny Rotten hefði verið tengt við spænskt símanúmer en lögreglu hefði ekki verið unnt að afla upplýsinga um staðsetningu þess númers þegar samskiptin áttu sér stað fram til 27. júní 2022. Þann sama dag hefði ákærði hins vegar átt bókað flug frá Amsterdam til Keflavíkurflugvallar en ekki væri vitað um ferðir hans að öðru leyti á þeim tíma. Daginn eftir hefðu tekið við samskipti við Harry og síðan 8. júlí sama ár við patroncartoon, hvort tveggja Signalauðkenni með tengsl við íslensk símanúmer. Þá hefðu gögn bent til þess að ákærði væri á sama tíma staddur á Íslandi. Samskipti við patroncartoon hefðu farið fram bæði á íslensku og ensku en í fyrsta skeytinu í þeim samskiptum hefði komið fram að viðmælandi F var á þeim tíma kominn með nýtt tól, þ.e. nýtt Signal-auðkenni. Í framhaldi hefði verið skipst á skeytum um meint fíkniefnatengd atriði. Þá hefðu síðustu samskipti patroncartoon og F verið 5. ágúst 2022 þar sem hinn fyrrnefndi vildi heyra í síðarnefnda út af einhverju mikilvægu.
- Vitni, aðalvarðstjóri nr. O, staðfesti lögregluskýrslu og greindi meðal annars frá því að ákærði hefði verið á farþegalista í flugi 9. júlí 2022 frá Keflavíkurflugvelli til Frankfurt í Þýskalandi. Enginn annar með nafnið Pétur hefði verið skráður í flugið. Tímasetning á símanotkun ákærða umræddan dag hefði einnig samrýmst fyrrgreindum brottfarartíma. Einnig hefði símanúmer hans verið skráð fyrir flugbókuninni. Að öðru leyti hefði ekki verið kannað með farþega í fluginu, þar á meðal um fjölda eða þjóðerni. Að auki staðfesti vitnið lögregluskýrslu um athugun með innritun á nafngreindum manni, bróður dómfellda D, í flug dagana 15. og 23. júlí 2022 til og frá Kaupmannahöfn og Keflavíkurflugvelli.
Vitnið I, sérfræðingur á sviði afbrotahljóðfræði, gaf skýrslu í fjarfundarbúnaði og staðfesti og gerði nánar grein fyrir fyrrgreindri álitsgerð um raddgreiningu. Vitnið útskýrði með almennum hætti tilhögun rannsóknarinnar. Í því samhengi kom meðal annars fram það sama og áður greinir í málavaxtalýsingu um samanburð á rannsökuðu efni og samanburðarefni. Um væri að ræða samanburð sem í aðalatriðum hverfðist um raddgæði, framburð á mismunandi hljóðum og ýmsum einkennum í framburði, hvernig mælandi talaði, auk einkenna út frá óyrtri tjáningu, svo sem hikhljóð eða hlátur. Fleiri atriði gætu einnig átt við, eins og til að mynda athugun á mállýsku. Hið síðastnefnda hefði hins vegar ekki verið undir í rannsókn vitnisins hvað varðar ákærða þar sem vitnið væri ekki íslenskumælandi. Frekar spurð um áhrif hins síðastnefnda varðandi rannsókn á raddgæðum greindi vitnið frá því að það kæmi ekki að sök þar sem um væri að ræða óyrt einstaklingsbundin atriði. Hlátur og hikhljóð væru almennt ótengd tungumálum. Nánar spurð út í niðurstöður rannsóknarinnar greindi vitnið meðal annars frá því að ekkert útilokandi hefði komið fram sem gæti stutt það að um mismunandi einstakling væri að ræða. Sameiginlegt hljóðeinkenni hefði verið lágt tal með djúpum tón og litlum hljóðstyrk. Einnig hefði hæsi verið í raddbeitingunni, eins og loft færi framhjá raddböndum. Að auki hefði viðkomandi einstaklingur að nokkru marki muldrað þegar hann talaði. Þá hefðu verið sams konar hljóðeinkenni varðandi hik og hlátur og það verið mjög svipað á öllum upptökunum. Enn frekar spurð um hið sama greindi vitnið frá því að hluti af rannsókninni hefði verið mæling á grunntóni í röddinni sem hún útskýrði nánar. Vitnið gerði að auki nánar grein fyrir tölugildum í niðurstöðu álitsgerðarinnar. Í því samhengi kom meðal annars fram að merkingu tölugildisins núll væri ætlað að vera hlutlaus niðurstaða, þ.e. að það hvorki styddi né hrekti það að sami einstaklingur ætti í hlut. Plústölu væri hins vegar ætlað að styðja það að um væri að ræða sama einstakling en mínustölu væri ætlað að hafa gagnstæða merkingu. Til að ná stighækkandi plústölu þyrftu fleiri þættir að passa saman, þ.e. raddgæði, óyrt smáhljóð, orðaval og mállýska. Frekar spurð greindi vitnið frá því að aðferðafræði rannsóknarinnar væri reist á fræðilegum grundvelli og að hún væri sérfræðingur á því sviði en að huglæg atriði væru eðli málsins samkvæmt einnig samtvinnuð hinu faglega mati.
IV.
Niðurstöður: Samkvæmt 1. mgr. 111. gr. laga nr. 88/2008 gildir sú grundvallarregla almennt að dómur skuli reistur á sönnunargögnum sem færð eru fram við meðferð máls fyrir dómi. Samkvæmt 108. gr. sömu laga hvílir sönnunarbyrði um sekt ákærða og atvik sem telja má honum í óhag á ákæruvaldinu og verður hann því aðeins sakfelldur að nægileg sönnun, sem ekki verði vefengd með skynsamlegum rökum, teljist fram komin um hvert það atriði er varðar sekt, sbr. 1. mgr. 109. gr. téðra laga. Þá metur dómurinn hvert sönnunargildi þær staðhæfingar hafa sem varða ekki beinlínis það atriði sem sanna skal en ályktanir má leiða af um það, sbr. 2. mgr. sömu lagagreinar.
Mál þetta lýtur að innflutningi á miklu magni fíkniefna til sölu og dreifingar. Við sönnunarmatið er nauðsynlegt að setja atvikaröðina í samhengi við það sem alkunnugt er í almennu tilliti um slíka brotastarfsemi, sbr. áratugalanga dómaframkvæmd í hliðstæðum málum hér á landi. Brotastarfsemi af þeim toga sem hér um ræðir er í eðli sínu hagnaðardrifin og tekur almennt mið af skipulagningu, fjármögnun, milliliðum, verkaskiptingu, áhættustýringu og leynd. Hefur allt framangreint meðal annars þann tilgang að koma því til leiðar að fíkniefni fari á milli staða frá sendanda til endanlegs móttakanda án vitneskju löggæsluyfirvalda. Jafnframt, út frá hinu sama, að sömu yfirvöldum sé gert erfitt um vik að upplýsa um brot eftir á, þar á meðal hverjir voru að verki og hvar, hvenær og hvernig brot átti sér stað. Að auki er alkunnugt að brotastarfsemi af fyrrgreindum toga á það til að litast af undirliggjandi ógn eða þrýstingi af margvíslegum toga frá samverkamönnum, þekktum sem óþekktum, og/eða öðrum þeim tengdum. Jafnframt, út frá hinu sama, að það geti meðal annars haft neikvæð eða hamlandi áhrif á einstaklinga sem standa frammi fyrir því að þurfa að gefa skýrslur undir meðferð slíkra mála í réttarvörslukerfinu. Ákærði neitar sök og ágreiningur og úrlausn málsins hverfist í aðalatriðum um hvort lögfull sönnun hafi tekist um hvort hann hafi með saknæmum og ólögmætum hætti, til viðbótar hinum fjórum dómfelldu, staðið að innflutningi fíkniefnanna, eins og brotinu er lýst í ákæru. Ákærði byggir í aðalatriðum á því að hann sé hafður fyrir rangri sök. Hann hafi hvergi komið nærri innflutningnum og aldrei verið í samskiptum við neinn hinna dómfelldu í því samhengi, hvorki beint né óbeint. Ákæruvaldið byggir á hinu gagnstæða og vísar í aðalatriðum til þess að framburður og skýringar ákærða hafi verið ótrúverðugar og þær séu ekki í nægjanlegu samræmi við gögn málsins.
Ljóst er af málsgögnum að fíkniefni af þeirri tegund, magni og styrkleika sem greinir í ákæru voru haldlögð 30. júní 2022 í Hollandi í vörusendingu frá Brasilíu sem greinir í ákæru. Einnig liggur fyrir að efnunum var ætlað að koma hingað til lands. Jafnframt er ljóst út frá hinu sama að téðum fíkniefnum var skipt út fyrir gerviefni og að þau voru send áfram, sem og að sendingin barst síðan hingað til lands 25. júlí sama ár. Að auki, út frá sömu gögnum, er ljóst að afgreiðsla á gámnum frá tollhöfn, athafnir og ráðstafanir varðandi innihald gáms, trjádrumba og gerviefni, átti sér stað dagana 2.–4. ágúst sama ár í [...], [...] og [...], auk haldlagningar, allt eins og greinir í ákæru. Þá er ekki uppi ágreiningur um fyrrgreind atriði við úrlausn málsins. Þessu til viðbótar liggur fyrir, að því er varðar téða fjórmenninga, sem þegar hafa verið sakfelldir fyrir aðild að brotinu, að öll fyrrgreind atriði ákærunnar töldust sönnuð með dómi Landsréttar í máli nr. [...]/2023. Þá hefur ekkert komið fram við meðferð þessa máls gagnvart ákærða sem breytt getur því sönnunarmati. Réttaráhrif dóms Landsréttar um sömu atriði, að breyttu breytanda, eiga einnig við gagnvart ákærða, eftir því sem við á, sbr. 1. og 4. mgr. 186. gr. laga nr. 88/2008. Að öllu þessu virtu verður lagt til grundvallar við úrlausn málsins að lögfull sönnun liggi fyrir um fyrrgreind atriði í verknaðarlýsingu ákærunnar.
Hvað varðar hina fjóra dómfelldu, sem vísað er til í ákæru, liggur fyrir að þeir voru með fyrrgreindum dómi Landsréttar, hver fyrir sig, endanlega sakfelldir fyrir aðild að innflutningi fíkniefnanna. Var miðað við að þeir hefðu allir, ásamt óþekktum aðila, í ágóðaskyni tekið að sér afmarkað hlutverk við innflutning á miklu magni fíkniefna þannig að virða bæri aðild þeirra að brotinu sem eina verkskipta heild. Þeir hefðu vitað að von væri á stórri fíkniefnasendingu erlendis frá og að henni hefði seinkað. Þá hefði dómfelldu verið ljóst að þeir væru hluti af stærri hópi og að allir í þeim hópi hefðu hlutverk við innflutninginn. Þeir hinir sömu hefðu staðið saman að verknaðinum, sem aðalmenn, og að því virtu voru þeir sakfelldir og látnir sæta refsiábyrgð samkvæmt 173. gr. a í almennum hegningarlögum. Í framangreindu samhengi þótti í aðalatriðum sýnt fram á að A hefði komið efnunum til landsins með því að láta fyrirtæki á hans vegum vera skráð sem innflytjandi téðrar sendingar frá Brasilíu. Þá var lagt til grundvallar að sendingin hefði borist inn á svæði skipafélags í Brasilíu 18. maí 2022 og er það stutt rannsóknargögnum. Einnig að A hefði síðar í flutningsferlinu móttekið sendinguna hér á landi og komið henni til B. Hvað varðar dómfellda D þótti í aðalatriðum sýnt fram á að hann hefði fengið A til samstarfs við téðan innflutning og í framhaldi verið í samskiptum við hann fyrir milligöngu dómfellda C, þar á meðal með því að gefa A fyrirmæli og afhenda honum fjármuni sem notaðir voru við útgjöld sem féllu til í tengslum við sendinguna. Þá hefði D verið með ákveðna stjórn á aðgerðum, til dæmis daginn sem efnin voru losuð úr drumbunum hér á landi. Einnig að C hefði í aðdragandanum leitað til D með ákvarðanir, auk þess sem fjármunir voru raktir til D. Hvað varðar dómfellda C þótti í aðalatriðum sýnt fram á að hann hefði haft fyrrgreinda milligöngu um samskipti A og D sem lutu að framningu brotsins. Að auki, hvað varðar dómfellda B, þótti í aðalatriðum sýnt fram á að hann hefði að beiðni annars manns, óþekkts á þeim tíma, tekið að sér að veita efnunum viðtöku frá A, og gert ráðstafanir í þeim efnum með húsnæði og verkfæri, auk þess sem hann hefði fjarlægt gerviefnin úr drumbunum, haft þau í fórum sínum og ætlað að afhenda þau síðar til móttakanda. Um allt framangreint, þar á meðal atriði varðandi Signal- og símasamskipti og hinn óþekkta samverkamann, vísast að öðru leyti til áður reifaðrar málavaxtalýsingar. Við meðferð þessa máls fyrir dómi á hendur ákærða hefur ekkert haldbært komið fram sem breytir því sem áður segir um verknaðarþætti fjórmenninganna í brotinu, auk sameiginlegra atriða varðandi framningu þess, sem og að annar maður til viðbótar hafi einnig komið að framningu þess, eins og því er lýst í ákæru. Þá er hinn síðar fram komni framburður A fyrir dómi í máli þessu á hendur ákærða, um að drumbarnir hefðu verið afhentir 20. desember 2021 inn á hafnarsvæði í Brasilíu, ekki í nægjanlegu samræmi við málsatvik eins og þau liggja fyrir í rannsóknargögnum. Er sá framburður A því að engu hafandi við úrlausn þessa máls. Téður dómur Landsréttar er endanlegur með þeim réttaráhrifum sem áður greinir og sætir dómurinn ekki endurskoðun í því máli sem hér er til meðferðar á hendur ákærða.
Að framangreindu virtu, og með hliðsjón af vörnum ákærða, hverfist sönnunarmat dómsins um það meginágreiningsatriði hvort það hafi verið ákærði sem tók þátt í verkinu með hinum fjórum dómfelldu, eins og því er lýst í ákæru, eða hvort það sé ósannað og þar með að annar maður, óþekktur, hafi komið að því verki. Með hliðsjón af gögnum málsins, og eins og sönnunarfærslu er háttað, er það mat dómsins að við sönnunarmatið sé ekki unnt að líta til atriða sem áður eru reifuð og snúa að G og H á rannsóknarstigi. Hvorugur þeirra var leiddur fyrir dóminn sem vitni til skýrslugjafar. Þá liggur fyrir að rannsókninni á hendur þeim út af meintri aðild þeirra að sakarefni málsins var hætt hjá lögreglu samhliða ákvörðun um málshöfðun á hendur ákærða. Hið sama á við um þau atriði sem ákæruvaldið hefur vísað til og áður hafa verið rakin og virðast snúa að meintri aðild F að sakarefni málsins. Hann kom ekki fyrir dóminn og rannsókn málsins var einnig hætt gagnvart honum. Þá hefur hann í raun ekki að neinu marki gefið skýrslu út af sakarefninu hjá íslenskri lögreglu. Á þetta einnig við um þau rafrænu gögn sem reyndust vera í þeim munum sem lögregla fékk afhenta frá Brasilíu á grundvelli fyrrgreindrar réttarbeiðni. Liggur því ekki neitt fyrir um hans hlið í málinu, eins og það horfir við honum, þar með talið um meint samskipti hans við ákærða fyrir og eftir 4. ágúst 2022 sem áður hafa verið rakin. Að þessu virtu er óvarlegt að byggja á þeim atriðum og gögnum við sönnunarmatið gagnvart ákærða, þar á meðal um meint tengsl hans á Signal við notandaauðkennið Jonny Rotten, sbr. síðar ætlað samspil þess auðkennis við Harry og patroncartoon, eins og áður er rakið. Hið sama á við um þau atriði sem fram hafa komið í tengslum við ferðalag ákærða til Spánar og verður ekki útilokað að þau atvik hafi önnur eða víðtækari tengsl sem kunna að vera ótengd sakarefni þessa máls, sbr. það sem greinir í téðri réttarbeiðni um önnur rannsóknaratriði varðandi F. Verður ákæruvaldið að bera hallann af þessu við úrlausn málsins gagnvart ákærða.
Þegar farið er heildstætt yfir framburð vitnisins B fyrir dómi, sbr. framburðarskýrslur hans hjá lögreglu og skýrslu hans í hinu fyrra dómsmáli, verður ekki dregin önnur ályktun en að hann kannist í aðalatriðum við fyrri framburð sinn. Hann telji hins vegar nú undir rekstri þessa máls fyrir dómi að ákærði sé ekki títtnefndur Pétur sem hann var í samskiptum við. Þá telji hann sig ekki vita um frekari deili á þeim manni. Þegar rýnt er nánar og heildstætt í framburðinn liggur í aðalatriðum fyrir að þegar í upphafi á rannsóknarstigi, sbr. síðari skýrslur, bar B um að hafa aðeins verið í samskiptum við einn samverkamann við framningu brotsins og að nafn viðkomandi væri Pétur. Að hann hefði verið í sambandi við viðkomandi bæði í eigin persónu og einnig í Signal-samskiptum. Að hann hefði sótt Pétur utan við [...] og samrýmist það myndefni sem lögregla aflaði um ferðir B þar sem sást til ferða hans á bifreið við téð hótel þar sem hann sótti mann. B lýsti Pétri sem stórgerðum, þreknum og ljóshærðum í útliti. Ljóst er að sú lýsing passar að nokkru marki við útlit ákærða, sbr. myndefni og ásýnd hans fyrir dómi. B lýsti einnig yfirhöfn með vörumerkinu Stone Island sem hann sagði Pétur hafa klæðst þegar þeir hittust. Myndefni úr hraðbanka frá svipuðum tíma, sbr. rannsóknargögn, samrýmist þeirri lýsingu. Þá hefur ákærði auk þess í skýrslu hjá lögreglu og fyrir dómi kannast við að hafa átt og notað slíka flík. Einnig bar B um að Pétur hefði búið í miðborginni nálægt veitingastaðnum [...]. Óumdeilt er í málinu að ákærði var með búsetu á sama tíma á [...] sem er í næsta nágrenni við veitingastaðinn. Jafnframt bar B um að Pétur hefði verið staddur erlendis handtökudaginn 4. ágúst 2022. Út frá gögnum og framburði ákærða sjálfs liggur fyrir að hann var staddur þann sama dag í Taílandi. Þessu til viðbótar bar B um það að hafa leitað upplýsinga um Pétur á netinu með forritinu Google og fengið upplýsingar um fréttefni fjölmiðils um að viðkomandi maður hefði verið dæmdur fyrir fíkniefnainnflutning og það hefði verið einhverjum árum áður. Ljóst er að þetta getur samrýmst upplýsingum á sakavottorði ákærða. Þá liggur fyrir samkvæmt vætti lögreglufulltrúa nr. J að þetta atriði í framburði B var í framhaldi athugað og reyndist Google aðeins skila téðri leitarniðurstöðu ef bæði eiginnafn og millinafn ákærða voru skráð sem leitarorð. Einnig liggur fyrir að ákærði var staddur í Brasilíu þegar umræddir drumbar með fíkniefnum voru færðir inn á svæði útskipunarhafnar í aðdraganda sjóflutningsins. Enn fremur, og ekki síst, verður ekki litið framhjá því við sönnunarmatið að eiginnafn ákærða er Pétur. Að því virtu hlýtur það að teljast fremur sennilegt, út frá því sem almennt tíðkast hjá fólki sem er að tala saman, að nafn sem passar með réttu við viðmælanda sé notað af gagnaðila í samskiptum ef á annað borð liggur fyrir vitneskja um það. Að öllu framangreindu virtu er ljóst að framburður B, sem kom fram þegar í upphafi, er að mörgu leyti studdur öðrum gögnum og rökréttum staðreyndum sem tengja Pétur við ákærða. Er því allt sem bendir til þess að framburður B um allt framangreint hafi verið mjög áreiðanlegur. Vætti E, sem virðist hafa þekkt til ákærða frá fyrri tíð, um að hann kannaðist ekki við að hafa kynnt ákærða fyrir B, haggar þessu ekki. Ekki er fullt samræmi í þeim vitnisburði miðað við framburð ákærða um hversu vel þeir könnuðust hvor við annan frá fyrri tíð. Þá bar vitnisburður æskuvinar B fyrir dómi, þ.e. E, fyrst og fremst það yfirbragð að hann leitaðist við að fjarlægja sig frá málinu. Þá var vætti B fyrir dómi um þátt E af sama toga. Var eins og B væri að reyna að hlífa honum með því að draga til baka fyrri framburð um upphafið varðandi Pétur og þeirra kynni með aðkomu E, sbr. málavaxtalýsingu í II. kafla.
Þessu til viðbótar, og sem styður málatilbúnað ákæruvaldsins enn frekar, er allt það sem áður hefur verið rakið um niðurstöðu símarannsóknar á símanúmeri ákærða og öðrum símum sem lögregla hefur talið að tengist honum. Framburður B fyrir dómi við meðferð þessa máls, sbr. fyrri framburði, verður ekki skilinn öðruvísi en að hann gangist enn við því að hafa verið í Signal-samskiptum í tengslum við framningu brotsins og samskiptin hafi öll verið við Pétur. Um þessi atriði vísast til þess sem áður greinir um Harry, patroncartoon og trucker. Jafnframt liggur fyrir að téð Signal-samskipti voru bæði skrifleg og munnleg með því að nota forritið í símtækjum.
Samkvæmt vætti sérfræðings nr. M komu við rannsóknina ekki fram neinar upplýsingar um tengsl á milli persónulegs síma ákærða annars vegar og síma sem B var að nota hins vegar. Samkvæmt málsgögnum og vætti sama sérfræðings, að því er varðar Harry, liggur fyrir að þau samskipti við B voru í heildina 230 talsins dagana 3.–8. júlí 2022. Efnislega er ljóst af samskiptunum að Harry stýrði B í því að finna góðan stað fyrir holur til að geyma fíkniefni. Jafnframt að B ætti að sjá um að grafa holurnar og að hann þyrfti að kaupa skóflur, töskur, límband, kúbein og hanska. Þann 7. sama mánaðar kom fram að þeir ætluðu að hittast og að Harry myndi koma nýjum síma á B. Í sömu skilaboðum Harry til B, send klukkan 15:12 téðan dag, upplýsti hinn fyrrnefndi að hann væri að fara á æfingu. Liggur fyrir samkvæmt málsgögnum, sbr. vætti lögreglufulltrúa nr. L og J, að ákærði skráði sig inn um aðgangshlið í [...] í [...] sama dag klukkan 15:10. Er um að ræða sláandi samþættingu staðreynda sem draga fram miklar líkur fyrir því að ákærði hafi verið notandinn Harry. Breytir engu í þessu samhengi þótt símagögn um símanúmer sem upphaflega var tengt við Harry hafi aðeins sýnt notkun fram til 4. júlí 2022. Harry gat á þeim tíma hafa verið búinn að skipta út síma til að dylja slóð, sem var í raun samnefnari á þeirri leynd sem var heilt á litið yfir Signal-samskiptunum, sbr. vætti lögreglufulltrúa nr. J og K. Einnig kom fram í samskiptum B og Harry að hinn fyrrnefndi átti að ræða við mann að nafni [...] í tengslum við leiguhúsnæði. Í því samhengi liggur fyrir samkvæmt framburði ákærða fyrir dómi, sbr. og rannsóknargögn, að leigusali ákærða á þessum tíma ber sama nafn. Allt framangreint styður það að ákærði hafi verið Harry.
Samkvæmt málsgögnum, að því er varðar patroncartoon, liggur fyrir að hann var meðal annars í samskiptum við B. Ljóst er út frá tímasetningum, efni og samhengi samskiptanna að allt bendir til þess að patroncartoon hafi tekið við af notandanum Harry. Samskiptin skarast ekki, Harry hætti samskiptum við B 8. júlí 2022, klukkan 11:30, og patroncartoon tók við sama dag klukkan 12:13. Bendir allt til þess að sá sem var að baki hinum fyrrnefnda hafi losað sig við síma og fengið sér nýjan síma með tengsl við hinn síðarnefnda, sbr. og vætti lögreglufulltrúa nr. L, J og K. Samrýmist það einnig efni skeytis frá Harry til B daginn áður, þ.e. 7. júlí 2022. Samkvæmt málsgögnum, sbr. greinargerð og vætti sérfræðings nr. M, liggur fyrir að patroncartoon var búinn til á símanúmerinu [...] og bendir allt til þess að það númer hafi síðan verið fjarlægt úr símtækinu, eða það tæki hafi haft möguleika á tveimur símkortum, eins og stundum er með síma. Annað símanúmer, [...], hafi í framhaldi verið tengt við símtækið sem patroncartoon síðan notaði. Fyrir liggur að lögreglan áttaði sig á tengslum númeranna með IMEI-númeri símtækisins en þar er um að ræða fast númer sem tengist notkun símanúmers sem ekki er unnt að breyta, sbr. vætti lögreglufulltrúa nr. L. Er hér um að ræða mikilvægt sönnunaratriði, til viðbótar öðru, sem sýnir greinilega og heilt á litið ætluð tengsl ákærða við patroncartoon. Er ljóst að seinna númerið, þ.e. [...], hefur í raun sláandi mikla nálægð við ákærða, eins og málsgögn liggja fyrir. Samkvæmt greinargerð og vætti sérfræðings nr. M er það þetta númer sem virtist fylgja símanúmeri ákærða 9.– 11. júlí 2022 frá Íslandi til Þýskalands og síðan til Taílands. Óumdeilt er í málinu að ákærði ferðaðist sömu daga og sömu leið til Taílands. Breytir engu í þessu samhengi þótt nákvæmar upplýsingar um farþegaflug ákærða og önnur flug liggi ekki fyrir eða hvernig samsetning flugfarþega var í flugi hans frá Íslandi til Þýskalands. Þá liggur fyrir samkvæmt framburði hans fyrir dómi að hann ferðaðist einn í umrætt skipti. Að auki bendir allt til þess út frá sömu gögnum að númerin hafi fylgt hvort öðru á svipuðum tíma á akstursleið um Reykjanesbraut sem var sama dag og ákærði fór til Keflavíkurflugvallar í umrætt flug, auk þess sem tímasetningarnar samrýmast mætingartíma í flugið, sbr. vætti aðalvarðstjóra nr. O. Einnig liggja fyrir haldbærar skýringar á því hvers vegna tímasetningar á tengingum við fjarskiptasenda eru ekki nákvæmlega þær sömu, sbr. það sem áður var reifað um vætti M um mismunandi notkunartíma símtækja og flugstillingu á síma í háloftunum á milli landa. Eru því engin efni til að ætla annað en að ákærði og patroncartoon hafi verið einn og hinn sami.
Þessu til viðbótar, í framangreindu samhengi, ber að líta til þess að samkvæmt málsgögnum var umrætt símanúmer, [...], aðeins notað á Íslandi 8. og 9. júlí 2022. Notandinn Harry virðist hafa verið búinn að losa sig við eldri símann og patroncartoon tekinn við, eins og áður greinir. Þá liggur fyrir að það var hinn síðarnefndi aðgangur sem var settur upp 8. sama mánaðar, þ.e. rétt áður en ákærði fór frá Íslandi. Kemur það heim og saman við það sem áður greinir um að hinir brotlegu hafi reynt að dylja slóðina. Þá hefur að mati dómsins ekki sérstaka þýðingu í þessu samhengi þótt símanúmer patroncartoon hafi samkvæmt gögnum ekki að öllu leyti virst fylgja síma ákærða hluta dags 8. júlí 2022. Þarf í því samhengi að líta til símagagna í heild þann sama dag hvað varðar síma ákærða og patroncartoon. Ljóst er út frá þeim gögnum að engin notkun var á símanúmeri ákærða á milli klukkan 10:54 og 11:54. Það númer kom því eðli málsins samkvæmt ekki inn á neina fjarskiptasenda á þeim tíma. Þótt símanúmer með patroncartoon hafi á því sama tímabili verið eitt að koma inn á fjarskiptasenda í Kópavogi og í vesturbæ Reykjavíkur liggur þó fyrir að bæði númerin, þ.e. patroncartoon og sími ákærða, komu síðar sama dag, á um 30 mínútna tímabili til klukkan 12:14, inn á senda nálægt [...], þ.e. stutt frá heimili ákærða á [...]. Heilt á litið má því leiða líkum að því að ákærði hafi verið á ferðinni og komið til baka og farið að nota persónulegan síma sinn eftir um klukkustundarhlé, samhliða því að nota áfram símanúmer með tengsl við patroncartoon.
Enn fremur liggur fyrir, í framangreindu samhengi, samkvæmt greinargerð og vætti sérfræðings M, að númerið á bak við notkun á patroncartoon og sími ákærða voru sérstaklega skoðuð með tilliti til þess hvort þau hefðu að öðru leyti verið nálægt hvort öðru á sama tímabili með tilliti til staðsetningar fjarskiptasenda. Liggur fyrir samkvæmt þeirri greiningu að númerin komu alls 17 sinnum inn á fjarskiptasenda innan sama 750 metra radíussins á sömu 15 mínútunum þann 8. júlí 2022. Enn fremur, út frá hinu sama, að umræddir sendar sem þjónustuðu númerin voru að miklu leyti í kringum téð heimilisfang ákærða við [...] á sama tíma og símarnir voru þar í sama nágrenni. Þá var sérfræðingur nr. M mjög skýr í framburði sínum fyrir dómi um að mjög óvanalegt væri að sjá jafn mikil og skýr tengsl á milli símanúmera á sömu slóðum á sama tímabili og að það benti fremur til þess að sami maður væri að nota bæði símanúmerin. Að auki er ljóst út frá vætti sérfræðingsins að í framangreindu samhengi þarf meðal annars að taka tillit til þess að símanúmer fara jafnan inn á mismunandi fjarskiptasenda á svipuðu svæði ef þau eru ekki í þjónustu hjá sama símafyrirtæki. Samkvæmt vætti M á það atriði einmitt við um símanúmer ákærða annars vegar og símanúmer patroncartoon hins vegar. Þá er ljóst að notkun númera skiptir einnig afgerandi máli í framangreindu samhengi, eins og áður er rakið, sbr. vætti og greinargerð sérfræðings nr. M. Allt framangreint styður að ákærði hafi verið patroncartoon.
Til viðbótar því sem áður greinir um Harry og patroncartoon verður að líta til þess sem áður hefur verið rakið um trucker. Það liggur fyrir að taílenskt símanúmer var að baki Signal-auðkenninu trucker. Jafnframt er ljóst út frá málsgögnum að engin samskipti voru á milli B og trucker fyrr en eftir dagsetningu þegar ákærði var sannanlega kominn til Taílands. Í almennu tilliti verður að telja að líkur séu fyrir því að hið taílenska símanúmer hafi verið í notkun í Taílandi á umræddum tíma þar sem það var taílenskt. Þá ber í þessu sambandi einnig að líta til þess að ákærði hefur sjálfur borið um það fyrir dómi að hafa tapað íslensku símkorti á meðan hann var í Taílandi. Hann hefði því orðið sér úti um taílenskt símanúmer og notað það á þeim tíma þegar hann var í Taílandi. Samkvæmt framburði B fyrir dómi, sbr. samskiptagögn, er ljóst að Pétur notaði auðkennið trucker í samskiptum við B 4. ágúst 2022. Skriflegu samskiptin á milli trucker og B voru að mestu á ensku en líka á íslensku. Þá liggur fyrir hljóðupptaka af samtali trucker og B fyrrgreindan dag í [...], eins og áður hefur verið rakið. Ljóst er af þeirri upptöku að samtalið fór fram á íslensku. Samkvæmt framangreindu liggur því fyrir að Íslendingur var að nota taílenska númerið á bak við trucker. Þá var sama taílenska símanúmer vistað í símaskrá dómfellda D sem Nonni og liggur auk þess fyrir að Nonni og dómfelldi D voru í samskiptum sama dag og dagana á undan. Við skýrslu af ákærða fyrir dómi kom fram að hann kannaðist við dómfellda D frá fyrri tíð. Hið sama kom fram í framburði hins síðarnefnda fyrir dómi við meðferð þessa máls. Er því ljóst að það er í raun saga um eldri tengsl á milli ákærða og dómfellda D þegar téð samskipti áttu sér stað. Allt framangreint styður það að ákærði hafi verið trucker. Þá liggur fyrir að samskiptakeðjan þennan umrædda dag rofnaði þegar dómfelldi D hringdi í B, eftir að hafa verið í samskiptum við Nonna. Fram að því höfðu ekki verið sjáanleg samskipti á milli dómfellda D og B samkvæmt gögnum málsins. Að þessu virtu er alveg ljóst að annars vegar trucker eða Nonni, þ.e. einn og hinn sami, og dómfelldi D hins vegar voru að vinna saman við framningu brotsins, og jafnframt með aðra samverkamenn undir sér, eins og í raun var í aðalatriðum lagt til grundvallar í máli hinna fjögurra dómfelldu, sbr. dóm Landsréttar í máli nr. [...]/2023.
Samkvæmt öllu framangreindu er ljóst að talsverður fjöldi sönnunaratriða birtist í málsgögnum sem styðja mjög við það að það hafi verið ákærði sem á umræddum tíma var að nota Signal-auðkennin Harry, patroncartoon og trucker, og þar með að ákærði hafi í raun verið samverkamaðurinn Pétur sem var í samskiptum við B við framningu brotsins. Hið sama á við um samskipti Nonna og dómfellda D, allt eins og áður hefur verið rakið. Til viðbótar öllu framangreindu liggur fyrir samkvæmt álitsgerð og vætti sérfræðings um raddgreiningu að það er að minnsta kosti ekkert fram komið út frá raddgreiningunni sem útilokar það að rödd viðmælanda B, þ.e. Péturs eða trucker, sem heyrðist á upptökunni 4. ágúst 2022 í [...] geti verið rödd ákærða. Einnig er út frá sömu gögnum og vætti sérfræðingsins ljóst að það eru að minnsta kosti ýmis óyrt sameiginleg einkenni sem líkjast rödd ákærða og styðja það að hann hafi verið umræddur mælandi. Að þessu virtu er raddgreiningin til þess fallin að styðja við önnur sönnunaratriði í málinu. Þá verður að telja að nægjanleg lagaheimild hafi verið fyrir því að hlutast til um raddgreiningu með þeim hætti sem gert var undir rannsókn málsins, sbr. 1. og 2. mgr. 53. gr., 1. mgr. 54. gr. og 86. gr. laga nr. 88/2008. Frekari reglur um framkvæmd rannsóknar af þeim toga liggja hins vegar ekki fyrir. Í því samhengi ber þó að líta til þess að ekkert í VIII. kafla laga nr. 88/2008 og í reglugerð nr. 651/2009 um réttarstöðu handtekinna manna, yfirheyrslur hjá lögreglu o.fl., sbr. 67. gr. fyrrgreindra laga, girðir fyrir að lögregla notist við upptöku af hljóðritaðri yfirheyrslu sem samanburðargagn við raddgreiningu. Eru því ekki efni til að líta framhjá niðurstöðu raddgreiningarinnar og vætti sérfræðingsins við úrlausn málsins. Að auki þykir rétt við sönnunarmatið að líta til þess sem kom fram í vætti lögreglufulltrúa nr. J um að hann taldi alveg víst út frá hlustun hans á upptökunni að röddin sem þar heyrðist tala við B, þ.e. Pétur eða trucker, stafaði frá ákærða. Eru ekki efni til að draga þá ályktun vitnisins í efa þegar tekið er mið af því að hann var sérstaklega búinn að vinna við uppritun á efni hljóðupptökunnar og var að öðru leyti búinn að vera í endurteknum samskiptum við ákærða undir rannsókn málsins.
Samkvæmt öllu framangreindu er það mat dómsins að framburður ákærða um að hann hafi ekki verið umræddur samverkamaður hafi í öllum aðalatriðum verið ótrúverðugur og ekki í nægjanlegu samræmi við gögn málsins. Hið sama á við að breyttu breytanda um þann hluta í vætti B fyrir dómi að ákærði hafi ekki verið maðurinn sem hann hitti og var í samskiptum við í tengslum við framningu brotsins. Verður að líta til þess atriðis í framburði vitnisins með hliðsjón af núverandi stöðu hans, sbr. það sem áður greinir um almenna umgjörð mála af þessum toga. Er alveg ljóst, þegar farið er yfir málið heildstætt, að B var frá upphafi undir aðra settur og laut utanaðkomandi boðvaldi við framningu brotsins. Eru því miklar líkur á því að núverandi staða hans sé viðkvæm og hann hafi um langt skeið verið útsettur fyrir utanaðkomandi þrýstingi eða að veruleg hætta hafi verið á slíku eða öðrum álíka eftirmálum. Mátti þannig í raun aldrei búast við því að hann myndi bera sakir á ákærða með beinum hætti við skýrslugjöf hjá lögreglu og fyrir dómi. Er því jafnframt ljóst að myndsakbending eða myndfletting á rannsóknarstigi hefði út frá hinu sama að öllum líkindum engu breytt í þessu samhengi. Að öllu þessu virtu er það mat dómsins að hafið sé yfir skynsamlegan vafa að ákærði hafi verið umræddur samverkamaður, eins og brotinu er lýst í ákæru. Augljóst er að ákærði fékk B til verksins, stýrði honum, útvegaði honum fjármuni og síma til notkunar við framningu brotsins. Með þessu er ljóst að ákærði hafði að minnsta kosti með það að gera að hlutast til um og stýra nauðsynlegum ráðstöfunum sem hverfðust um móttöku og meðferð efnanna hér á landi. Þá var hann í álíka samskiptum við dómfellda D á svipuðum tíma og þeir báðir með aðra undir sér við framningu brotsins. Er því jafnframt skýrt að ákærða var ljóst að hann var hluti af hópi og að allir í hópnum hefðu hlutverki að gegna við innflutninginn. Ákærði var því í lagalegri merkingu aðalmaður í brotinu og jafnframt samverkamaður hinna fjögurra dómfelldu, eins og greinir í ákæru. Þá liggur fyrir að verknaðarlýsing ákærunnar hefur verið metin nægjanlega skýr af æðra dómstigi í réttarfarslegu tilliti hvað varðar þátttöku ákærða í verkinu. Er því unnt að fella á hann sakir í málinu. Að öllu framangreindu virtu, gegn neitun ákærða, hefur lögfull sönnun tekist um sekt hans. Verður ákærði því sakfelldur samkvæmt ákæru og er háttsemin rétt færð til refsiákvæða í ákærunni.
Ákærði er fæddur í [...]. Samkvæmt sakavottorði á hann nokkurn sakaferil að baki frá árinu 2007 að telja. Það sem hér skiptir einkum máli er að ákærða var með dómi Hæstaréttar Íslands [...] 2010 gert að sæta fangelsi í tvö ár vegna stórfellds innflutnings fíkniefna. Ákærða var með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur [...] 2011 gert að sæta fimm mánaða fangelsi vegna ráns. Þá var honum með dómi sama héraðsdómstóls [...] 2019 meðal annars gert að greiða sekt vegna umferðarlagabrota og varslna á fíkniefnum og er það síðasta færslan inn á sakavottorðið. Að öðru leyti eru ekki efni til að rekja sakaferil ákærða. Ákærði hefur nú verið sakfelldur fyrir brot gegn 173. gr. a í almennum hegningarlögum, sbr. 1. mgr. 20. gr. sömu laga. Til refsiþyngingar horfir að um var að ræða mikið magn sterkra fíkniefna sem voru ætluð til sölu og dreifingar. Með brotinu var vegið að mikilvægum almannahagsmunum og hætta var á því að efnin færu í dreifingu til ótiltekins fjölda manna hér á landi með ófyrirsjáanlegum afleiðingum. Einnig horfir til refsiþyngingar að brotið var skipulagt til þaula og það var framið sem samverknaður með öðrum þar sem átti sér stað verkskipt aðild. Þá var þáttur ákærða mikill í brotinu, ásetningsstig hans var hátt og hann var fremur ósamvinnuþýður undir rannsókn málsins. Ákærði á sér engar sérstakar málsbætur að öðru leyti en því að hann gaf sig að lokum fram við lögreglu með því að koma á eigin vegum til landsins eftir að formlegar aðgerðir með aðkomu alþjóðalögreglu voru hafnar. Að öllu framangreindu virtu, og með vísan til 1., 3., 5., 6. og 7. tl. 1. mgr. og 2. mgr. 70. gr. í almennum hegningarlögum, verður ákærði dæmdur í fangelsi í átta ár. Með vísan til 76. gr. í sömu lögum ber að draga frá refsingu með fullri dagatölu gæsluvarðhald sem ákærði hefur sætt, eins og nánar greinir í dómsorði.
Vegna málsúrslita, og með vísan til 2. mgr. 235. gr., sbr. 233. gr., laga nr. 88/2008 verður allur sakarkostnaður felldur á ákærða. Undir þann kostnað falla málsvarnarlaun skipaðs verjanda hans, Snorra Sturlusonar lögmanns, vegna vinnu á rannsóknarstigi og fyrir dómi, sem þykja, út frá eðli og umfangi máls, hæfilega ákveðin 9.500.000 krónur, að meðtöldum virðisaukaskatti. Einnig ber ákærða að greiða sama verjanda útlagðan kostnað, 90.790 krónur, og aksturskostnað, 61.194 krónur, auk þess sem felldur verður á ákærða útlagður kostnaður samkvæmt yfirliti ákæruvaldsins, 605.725 krónur, allt eins og nánar greinir í dómsorði.
Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Dagmar Ösp Vésteinsdóttir, settur saksóknari.
Daði Kristjánsson héraðsdómari kveður upp dóm þennan.
D ó m s o r ð :
Ákærði, Pétur Jökull Jónasson, sæti fangelsi í átta ár. Til frádráttar refsingu með fullri dagatölu kemur gæsluvarðhald sem ákærði hefur sætt frá 27. febrúar 2024 til 2. apríl sama ár og frá 3. sama mánaðar til dómsuppkvaðningar.
Ákærði greiði samtals 10.257.709 krónur í sakarkostnað til ríkissjóðs og eru þar innifalin málsvarnarlaun skipaðs verjanda hans, Snorra Sturlusonar lögmanns, 9.500.000 krónur, og 151.984 krónur vegna útlagðs kostnaðar og aksturs sama verjanda.
Daði Kristjánsson