Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
8 dómar fundust
Lykilorð: Miskabætur.
Talið sannað að ökumaður fólksbifreiðir hefði misst athygli við akstur, með þeim afleiðingum að bifreiðin fór yfir rangan vegarhelming og olli alvarlegum árekstri. Ökumaður talinn hafa gerst með þessu sekur um stórkostlega gáleysi og dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi. Jafnframt dæmdur til greiðslu miskabóta.
Ákærði játaði brot gegn friðhelgi einkalífs, umsáturseinelti og brot gegn nálgunarbanni. Hegningarauki. Skilorðsbundið fangelsi og miskabætur til handa brotaþola.
Líkamsárás
Fallist var á það með einstaklingi að hún ætti rétt til miskabóta úr hendi íslenska ríkisins vegna dvalar í sóttvarnahúsi.
Stefnandi, sem var leikstjóri og einn þriggja handritshöfunda kvikmyndar, krafðist bóta úr hendi stefnda vegna myndefnis úr kvikmyndinni sem notað var á sýningu Sjóminjasafnsins í Reykjavík. Fallist var á hluta af kröfu stefnanda.
Sjúkratryggingar Íslands voru sýknaðar af miskabótakröfu einstaklings vegna mistaka læknis, en aðilar höfðu áður gert með sér sátt um greiðslu bóta vegna annars tjóns stefnanda af völdum mistakanna. Var það mat dómsins, sem skipaður var sérfróðum meðdómsmanni, að háttsemi læknisins umrætt sinn hefði falið í sér almennt en ekki stórkostlegt gáleysi. Þegar af þeirri ástæðu teldist skilyrðum fyrir beitingu a-liðar 1. mgr. 26. gr. laga nr. 50/1993 ekki vera fullnægt. Gat því ekki komið til þess að stefnda yrði gert að greiða stefnanda miskabætur til viðbótar við þær bætur sem greiddar voru samkvæmt fyrrgreindri sátt.
Fyrrum starfsmanni járnblendiverksmiðju voru dæmdar skaðabætur úr tryggingu vinnuveitanda vegna atvinnusjúkdóms sem rakinn var til starfs mannsins. Manninum voru einnig dæmdar miskabætur.
Stefnda var gert að greiða stefnanda miskabætur og skaðabætur vegna útlagðs sálfræðikostnaðar stefnanda. Hluta af kröfum stefnanda var vísað frá dómi vegna vanreifunar.