Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
4 dómar fundust
Lykilorð: Gjafsókn.
Fallist var á kröfu Menntasjóðs námsmanna um að lántaka yrði gert að greiða kröfu vegna námslána.
Stefnandi varð fyrir líkamstjóni í árekstri í október 2017. Í málinu var niðurstaða undirmats um umfang tjóns lögð til grundvallar þar sem tognun á hálshrygg var talin meðal varanlegra afleiðinga slyssins. Var gagnstæð niðurstaða yfirmats ekki talin rökstudd á fullnægjandi máta og ekki talin hafa stuðning í öðrum fyrirliggjandi gögnum málsins. Var það niðurstaða dómsins að matsgerðir þar sem niðurstöður eru mismunandi skuli metnar að verðleikum hverju sinni fyrir dómstólum enda skeri dómstólar úr um sönnunargildi gagna sem aflað er, þ.m.t. sönnunargildi matsgerða. Þá var fallist á að leggja til grundvallar 2. mgr. 7. gr. skaðabótalaga og meta árslaun sérstaklega þar sem óvenjulegar aðstæður væru fyrir hendi og sýnt fram á að annar mælikvarði væri réttari á líklegar framtíðartekjur stefnanda en lágmarkstekjuviðmið.
Einstaklingur sem lenti í umferðarslysi krafði tryggingafélag um frekari bætur úr tryggingu ökumanns bifreiðar sem olli tjóni. Tryggingafélagið hafði þegar greitt bætur að vissu marki og taldi tjón stefnanda fullbætt. Stefnandi taldi það uppgjör hafa miðast við of lág árslaun. Ekki var talið að stefnanda hefði tekist sönnun þess að viðmiðunarlaun við bótauppgjör hefðu verið of lág. Var tryggingafélagið því sýknað af kröfum hans.
Sjúkratryggingar Íslands voru sýknaðar af miskabótakröfu einstaklings vegna mistaka læknis, en aðilar höfðu áður gert með sér sátt um greiðslu bóta vegna annars tjóns stefnanda af völdum mistakanna. Var það mat dómsins, sem skipaður var sérfróðum meðdómsmanni, að háttsemi læknisins umrætt sinn hefði falið í sér almennt en ekki stórkostlegt gáleysi. Þegar af þeirri ástæðu teldist skilyrðum fyrir beitingu a-liðar 1. mgr. 26. gr. laga nr. 50/1993 ekki vera fullnægt. Gat því ekki komið til þess að stefnda yrði gert að greiða stefnanda miskabætur til viðbótar við þær bætur sem greiddar voru samkvæmt fyrrgreindri sátt.