Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

80 dómar fundust

Lykilorð: Játning

Hæstiréttur birt 11. febrúar 2026

53/2025

Ákæruvaldið (Hrafnhildur M. Gunnarsdóttir saksóknari) gegn X (Unnsteinn Örn Elvarsson lögmaður) (Guðmundur Ágústsson réttargæslumaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

X var ákærð fyrir manndráp, tilraun til manndráps og stórfellt brot í nánu sambandi með því að hafa svipt yngri son sinn lífi með nánar tilgreindum hætti og gert tilraun til hins sama gagnvart eldri syni sínum. Með dómi Landsréttar var X sakfelld samkvæmt ákæru og dæmd í 18 ára fangelsi. X krafðist ómerkingar á hinum áfrýjaða dómi á þeim grundvelli að henni hefði verið synjað um viðbótarmat við meðferð málsins þar fyrir dómi. Hæstiréttur taldi að spurningar í beiðni um viðbótarmat hefðu falið í sér efnislega beiðni um nýtt mat á sömu atriðum um geðheilsu hennar sem þegar hefði verið fjallað um og því engin efni til þess að slíkt mat færi fram að nýju. Ekki var heldur talið að þeir geðlæknar sem stóðu að undir- og yfirmatsgerð hefðu reist mat sitt á röngum grundvelli. Þá var ekki fallist á með X að slíkur annmarki hefði verið á meðferð málsins fyrir Landsrétti að komið hefði niður á vörnum hennar. Var því synjað um ómerkingu dóms Landsréttar. Með vísan til forsenda hins áfrýjaða dóms var staðfest að ákærða hefði verið sakhæf í skilningi 15. gr. almennra hegningarlaga og að 16. gr. sömu laga stæði því ekki í vegi að henni yrði gerð refsing. Við ákvörðun refsingar var litið til aðdraganda brotsins og alvarleika þess og því staðfest niðurstaða Landsréttar um refsingu ákærðu. Loks voru staðfest ákvæði hins áfrýjaða dóms um greiðslu miskabóta, svo og um sakarkostnað, gjafsóknarkostnað og málskostnað.

Héraðsdómur Suðurlands birt 25. september 2025

S-392/2025

Lögreglustjórinn á Suðurlandi (Margrét Harpa Garðarsdóttir fulltrúi) gegn Arnari Snæ Erlingssyni (sjálfur)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Ákærði var fundinn sekur um líkamsárásir, með því að hafa slegið brotaþola ítrekuðum hnefahöggum í andlið og tekið hann kverkataki og í framhaldinu veist aftur að brotaþola með sama hætti. Var ákærða gert að sæta fangelsi í 60 daga, en fullnustu refsingarinnar var frestað skilorðsbundið. Þá var ákærða gert að greiða brotaþola miskabætur, auk skaðabóta vegna muntjóns.

Landsréttur birt 12. júní 2025

932/2024

Ákæruvaldið (Hrafnhildur M. Gunnarsdóttir saksóknari) gegn X (Unnsteinn Örn Elvarsson lögmaður) (Inga Lillý Brynjólfsdóttir réttargæslumaður einkaréttarkröfuhafa)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

X var sakfelld fyrir manndráp, tilraun til manndráps og stórfellt brot í nánu sambandi með því að hafa svipt yngri son sinn lífi með nánar tilgreindum hætti og gert tilraun til hins sama gagnvart eldri syni sínum, en bæði brotin voru framin á heimili ákærðu. Ákærða X játaði brot sín skýlaust en krafðist sýknu á grundvelli sakhæfisskorts, sbr. 15. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, en til vara að henni yrði ekki gerð refsing og byggði á því að refsing myndi ekki bera árangur, sbr. 16. gr. sömu laga. Í dómi Landsréttar kom fram að ákvæði 15. gr. almennra hegningarlaga geymdi undantekningu frá því þeirri meginreglu að mönnum skyldi refsað fyrir afbrot sín og það leiddi ekki til sakhæfisskorts þótt sá, sem framið hefði refsiverðan verknað, væri haldinn ranghugmyndum af völdum geðsjúkdóms nema hann hefði alls ekki verið fær um að stjórna gerðum sínum er hann vann verkið. Að þessu gættu en að öðru leyti með vísan til forsendna hins áfrýjaða dóms, sem byggði niðurstöðu sína meðal annars á matsgerðum þriggja geðlækna, sem allir töldu að X hefði verið fær um að stjórna gerðum sínum á verknaðarstundu, var X talin sakhæf. Þá var niðurstaða héraðsdóms um að refsing myndi bera árangur einnig staðfest með vísan til forsendna hans, en hún byggði meðal annars á áðurgreindum matsgerðum, sem matsmenn staðfestu í viðbótarskýrslum fyrir Landsrétti. Jafnframt var refsing, sem X var gerð í hinum áfrýjaða dómi, 18 ára fangelsi, staðfest. Loks var X dæmd til að greiða B 5.000.000 króna í miskabætur og C 3.000.000 króna.

Héraðsdómur Vesturlands birt 3. júní 2025

S-279/2024

Lögreglustjórinn á Vesturlandi (Emil Sigurðsson aðstoðarsaksóknari) gegn X (Sveinn Andri Sveinsson lögmaður)

Ákærði játaði brot gegn friðhelgi einkalífs, umsáturseinelti og brot gegn nálgunarbanni. Hegningarauki. Skilorðsbundið fangelsi og miskabætur til handa brotaþola.

Héraðsdómur Vesturlands birt 17. desember 2024

S-253/2024

Héraðssaksóknari (Karl Ingi Vilbergsson saksóknari) gegn Björgvini Ó. Melsteð Ásgeirssyni (Ómar R. Valdimarsson lögmaður) (Elín Árnadóttir lögmaður bótakrefjanda) (Heiður Heimisdóttir lögmaður bótakrefjanda)

Ákærði játaði að hafa valdið af ásetningi bruna á veitingastað. Ákærði dæmdur í tveggja ára fangelsi en refsing bundin almennu skilorði í tvö ár.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 18. nóvember 2024

S-6467/2024

Ákæruvaldið (Júlí Karlsson aðstoðarsaksóknari) gegn Marius Raducan (Karólína Finnbjörnsdóttir lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Endurtekinn þjófnaður og umferðarlagabrot.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 12. nóvember 2024

S-5723/2024

Ákæruvaldið (Pétur Fannar Gíslason saksóknarfulltrúi) gegn Einari Braga Þorkelssyni (Grímur Már Þórólfsson lögmaður) (Ólöf Heiða Guðmundsdóttir réttargæslumaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Skjalafals, fjársvik, brot í nánu sambandi og vörslur fíkniefna.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 4. nóvember 2024

S-4451/2024

Ákæruvaldið (Júlí Karlsson aðstoðarsaksóknari) gegn Sturlu Eide Jenssyni (Oddur Ástráðsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Banaslys í umferðinni.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 4. nóvember 2024

S-4075/2024

Ákæruvaldið (Agnes Ýr Stefánsdóttir saksóknarfulltrúi) gegn Arnari Frey Karlssyni (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Fíkniefna-, vopna- og umferðarlagabrot og þjófnaður.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 30. október 2024

S-5119/2024

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kamilla Kjerúlf saksóknarfulltrúi) gegn Rafal Bujakowski (Snorri Sturluson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var sakfelldur fyrir akstur undir áhrifum áfengis og akstur sviptur ökuréttindum. Var honum gert að sæta fangelsi í 9 mánuði og áréttuð var ævilöng svipting ökuréttinda.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 30. október 2024

S-5107/2024

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kamilla Kjerúlf saksóknarfulltrúi) gegn Jóhönnu Sigríði Pálsdóttur (Einar Oddur Sigurðsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærða var sakfelld fyrir akstur undir áhrifum áfengis og akstur svipt ökuréttindum. Var henni gert að sæta fangelsi í 4 mánuði og áréttuð var ævilöng svipting ökuréttinda.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 23. október 2024

S-4548/2024

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kamilla Kjerúlf saksóknarfulltrúi) gegn Sveini Nikódemus Gíslasyni (Agnar Þór Guðmundsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var sakfelldur fyrir akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna og akstur sviptur ökuréttindum. Var honum gert að sæta fangelsi í 30 daga og sæta sviptingu ökuréttinda ævilangt.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 23. október 2024

S-3439/2024

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kamilla Kjerúlf saksóknarfulltrúi) gegn Alf Clausen (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur fyrir umferðar- og lögreglulagabrot. Var honum gert að sæta fangelsi í 4 mánuði og áréttuð var ævilöng svipting ökuréttinda.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 16. október 2024

S-5098/2024

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kamilla Kjerúlf saksóknarfulltrúi) gegn Rolandas Bakas
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var sakfelldur fyrir akstur undir áhrifum áfengis og akstur sviptur ökuréttindum. Var honum gert að sæta fangelsi í 6 mánuði og áréttuð var ævilöng svipting ökuréttinda.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 21. maí 2024

S-1649/2024

Ákæruvaldið (Sigríður Árnadóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Gunnari Magnússyni (Þorbjörg Inga Jónsdóttir lögmaður)
Málaflokkur: Skattaréttur

Dæmd skilorðsbundin fangelsisrefsing og óskilorðsbundin fésekt vegna meiriháttar skattalagabrota.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 29. apríl 2024

S-1282/2024

Ákæruvaldið (Kamilla Kjerúlf saksóknarfulltrúi) gegn Ívari Ketilssyni (Almar Þór Möller lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Sakfellt og dæmd skilorðsbundin refsing og fallist á upptökukröfur vegna fíkniefnalagabrots. Allur sakarkostnaður var einnig felldur á ákærða.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 29. apríl 2024

S-6685/2023

Ákæruvaldið (Júlí Karlsson aðstoðarsaksóknari) gegn Davíð Viktori Kristinssyni (Áslaug Lára Lárusdóttir lögmaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Sakfellt og dæmd skilorðsbundin refsing og fallist á upptökukröfur vegna fíkniefnalagabrota og vopnalagabrots.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 15. mars 2024

S-873/2024

Ákæruvaldið (Þorbjörg Sveinsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Jaguar Do (Erlendur Þór Gunnarsson lögmaður) (Guðmundur Njáll Guðmundsson réttargæslumaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Sakfellt og dæmd refsing og ákvarðaðar miskabætur fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás en ekki var talið sýnt fram á að ákærði hefði haft ásetning til manndráps.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 13. febrúar 2024

S-6751/2023

Ákæruvaldið (Agnes Ýr Stefánsdóttir saksóknarfulltrúi) gegn Geir Þorsteinssyni (Jóhann Pétursson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Endurtekin auðgunarbrot og umferðarlagabrot, nytjastuldur, skjalamisnotkun og vörslur fíkniefna.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 13. febrúar 2024

S-4936/2023

Ákæruvaldið (Agnes Ýr Stefánsdóttir saksóknarfulltrúi) gegn Grími Kolbeinssyni (Þórir Örn Árnason lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Vörslur fíkniefna í sölu- og dreifingaskyni og akstur sviptur ökurétti undir áhrifum lyfja og fíkniefna.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 18. desember 2023

S-6324/2023

Ákæruvaldið (Vilhjálmur Reyr Þórhallsson aðstoðarsaksóknari) gegn Benedikt Má Ingibjargarsyni (Þorgils Þorgilsson lögmaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Ákærði var sakfelldur fyrir sérstaklega hættuleg líkamsárás með því að hafa veitt brotaþola hnéspark í höfuð. Refsing var ákveðin sem hegningarauki við refsingu samkvæmt eldri dómi ákærða sem var kveðinn upp eftir að líkamsárásin átti sér stað.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 18. desember 2023

S-6059/2023

Ákæruvaldið (Agnes Ýr Stefánsdóttir saksóknarfulltrúi) gegn Florian Lunca (Einar Oddur Sigurðsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur fyrir mörg hegningarlaga- og sérrefsilagabrot, þar með talið líkamsárás og þjófnaði.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 18. desember 2023

S-6050/2023

Ákæruvaldið (Júlí Karlsson aðstoðarsaksóknari) gegn Alexander Brynjari Róbertssyni (Þorgils Þorgilsson lögmaður) og og Hávarði Mána Hjörleifssyni (Eva Dóra Kolbrúnardóttir lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærðu sakfelldir fyrir nokkur brot, ýmist framin saman eða í sitthvoru lagi, þar með talið rán.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 1. desember 2023

S-4323/2023

Ákæruvaldið (Klara Dögg Steingrímsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Grétari Sigfinni Sigurðarsyni (Reimar Snæfells Pétursson lögmaður)
Málaflokkur: Skattaréttur

Stórfellt skattalagabrot einstaklings með því að skila efnislega röngum skattframtölum.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 16. nóvember 2023

S-4644/2023

Ákæruvaldið (Vilhjálmur Reyr Þórhallsson aðstoðarsaksóknari) gegn Elmari Oliver Finnssyni (Steinbergur Finnbogason lögmaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Líkamsárásir.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 27. júní 2023

S-2322/2023

Ákæruvaldið (Arnfríður Gígja Arngrímsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn X (Ingi Freyr Ágústsson lögmaður)

Brot gegn valdstjórninni, játning, játningarmál, lögreglumaður, lögreglumenn, refsiákvörðun, skilorðsbundnir dómar, skilorðsbundið fangelsi, valdstjórnarbrot, viðurlög.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 12. júní 2023

S-993/2023

Ákæruvaldið (Kamilla Kjerúlf saksóknarfulltrúi) gegn Pétri Birgi Birgissyni (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Sakfellt fyrir sviptingar- og vímuakstur, fíkniefnaalagabrot, þjófnað og nytjastuld.

Hleð fleiri dómum…