Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
7 dómar fundust
Lykilorð: Valdstjórnarbrot
Héraðssaksóknari (Þröstur Þór Guðmundsson saksóknarfulltrúi) gegn
Hauki Jónssyni
Ákærði var sakfelldur fyrir brot gegn valdstjórninni.
Sakfellt og dæmd skilorðsbundin refsing vegna brots gegn valdstjórninni, nytjastuldar bifreiðar og umferðarlagabrota. Einnig dæmdar skaðabætur vegna tjóns á bifreið.
Ákæruvaldið (
Halldór Rósmundur Guðjónsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Sigurjóni Þór Kristinssyni (
Sveinn Andri Sveinsson lögmaður)
Brot gegn valdstjórninni.
Ákæruvaldið (
Arnfríður Gígja Arngrímsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
X (
Ingi Freyr Ágústsson lögmaður)
Brot gegn valdstjórninni, játning, játningarmál, lögreglumaður, lögreglumenn, refsiákvörðun, skilorðsbundnir dómar, skilorðsbundið fangelsi, valdstjórnarbrot, viðurlög.
Ákæruvaldið (
Arnfríður Gígja Arngrímsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Rannveigu H. Guðbrandsdóttur (
Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Sakfellt fyrir fíkniefna- og lyfjaakstur og vörslur fíkniefna og svipaðra lyfja en ákærða sýknuð af ákæru um brot gegn valdstjórninni.
Héraðssaksóknari (
Halldór Rósmundur Guðjónsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Iurie Lozovan (
Steinbergur Finnbogason lögmaður)
Ákærði var sakfelldur fyrir brot gegn valdstjórninni
X var ákærður fyrir kynferðisbrot með því að hafa greitt A í tvö tilgreind skipti fyrir vændi, fyrir tilraun til nauðgunar og sérstaklega hættulega líkamsárás gagnvart A. Þá var X ákærður fyrir brot í nánu samband með því að hafa veist með ofbeldi að B í tvö nánar tilgreind skipti og loks fyrir þrjú nánar tilgreind valdstjórnarbrot. Fyrir héraðsdómi játaði X kynferðisbrot með því að hafa greitt A fyrir vændi, sem og tvö brot gegn valdstjórninni. Með dómi héraðsdóms var X sakfelldur fyrir tilraun til nauðgunar og sérstaklega hættulega líkamsárás, brot í nánu sambandi og tvö nánar tilgreind valdstjórnarbrot en sýknaður af einu valdstjórnarbroti. Ákæruvaldið undi sýknudómi vegna valdstjórnarbrots en sakfelling fyrir tvö valdstjórnarbrot var ekki til endurskoðunar fyrir Landsrétti. Með dómi Landsréttar var þeim hluta ákæru er varðaði tilraun til nauðgunar vísað frá héraðsdómi, enda var í ákærutextanum í engu vikið að þeirri háttsemi X sem A upplýsti um og gáfu henni tilefni til að ætla að ákærði hygðist hafa við hana samfarir eða önnur kynferðismök án samþykkis hennar. Var þessi óskýrleiki ákæru til þess fallinn að vörnum X yrði ábótavant. Staðfest var niðurstaða hins áfrýjaða dóms um sérstaklega hættulega líkamsárás gagnvart A. Varðandi ákæru fyrir brot í nánu sambandi féllst Landsréttur ekki á að samband X og B gæti hafa talist náið í skilningi 1. mgr. 218. gr. b almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Var háttsemi X heimfærð til refsiákvæða 1. mgr. 218. gr. laganna, enda var háttsemin gagnvart B talin uppfylla áskildar kröfur ákvæðisins um alvarleika. Með hliðsjón af alvarleika þeirrar háttsemi sem X hafði verið sakfelldur fyrir þótti refsing hans hæfilega ákveðin í hinum áfrýjaða dómi, fangelsi í tvö ár. Þá var X gert að greiða bætur til handa brotaþolum.