Héraðssaksóknari (Þröstur Þór Guðmundsson saksóknarfulltrúi) gegn
Óliver Nóa Haraldssyni (enginn)
Ákærði var sakfelldur fyrir brot gegn valdstjórninni.
Héraðssaksóknari (
Karl Ingi Vilbergsson settur héraðssaksóknari)
gegn
Elísabetu S. Guðmundsdóttur (
Unnsteinn Örn Elvarsson lögmaður)
Sakborningur, sem játaði brot sitt, sakfelldur fyrir brot gegn valdstjórninni og dæmdur til að sæta fangelsi í 30 daga, skilorðsbundið til tveggja ára.
Héraðssaksóknari (
Karl Ingi Vilbergsson settur varahéraðssaksóknari)
gegn
Vali Sigurðssyni (
Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður)
Sakborningur, sem játaði brot sitt, sakfelldur fyrir brot gegn valdstjórninni og dæmdur til að sæta fangelsi í einn mánuð, skilorðsbundið til tveggja ára.
Héraðssaksóknari (
Matthea Oddsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Arturas Leimontas (
Elísabet Pétursdóttir lögmaður)
.
Sakborningur, sem játaði brot sitt, var sakfelldur fyrir brot gegn valdstjórninni og dæmdur til að sæta fangelsi í 60 daga skilorðsbundið í tvö ár. Sakborningur var einnig dæmdur til að greiða brotaþola 400.000 krónur í miskabætur með vöxtum og málskostnaði.
Héraðssaksóknari (
Karl Ingi Vilbergsson settur varahéraðssaksóknari)
gegn
Przemyslaw Jacek Kosiorowski (
Sigurður Gústavsson Hafstað lögmaður)
Ákærði, sem játaði sök, var sakfelldur fyrir brot gegn valdstjórninni og dæmdur til 45 daga skilorðsbundinnar fangelsisrefsingar.
Héraðssaksóknari (
Karl Ingi Vilbergsson settur varahéraðssaksóknari)
gegn
Írisi Þórarinsdóttur (
Arnar Kormákur Friðriksson lögmaður)
Ákærða, sem játaði sök, var sakfelld fyrir brot gegn valdstjórninni og dæmd til tveggja mánaða skilorðsbundinnar fangelsisrefsingar.
Héraðssaksóknari (
Karl Ingi Vilbergsson saksóknari)
gegn
Ewelina Liberacka (
Ómar R. Valdimarsson lögmaður)
Ákærða, sem játaði sök, var sakfelld fyrir brot gegn valdstjórninni og dæmd til 30 daga skilorðsbundinnar fangelsisrefsingar.
Héraðssaksóknari (Karl Ingi Vilbergsson saksóknari) gegn
Tomas Sachniukas (Sjálfur)
Sakborningur, sem játaði sök, sakfelldur fyrir brot gegn valdstjórninni og dæmdur til tveggja mánaða skilorðsbundinnar fangelsisrefsingar.
Héraðssaksóknari (Karl Ingi Vilbergsson saksóknari) gegn
Petreu Helgu Kristjánsdóttur (Enginn)
Sakborningur, sem ekki mætti fyrir dóm, sakfelldur fyrir brot gegn valdstjórninni en ákvörðun refsingar frestað skilorðsbundið í tvö ár, ekki síst þar sem meðferð málsins hafði dregist.
Héraðssaksóknari (
Friðrik Smári Björgvinsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Suphaphon Tangwairam (
Aníta Rögnvaldsdóttir lögmaður)
Ákærða var sakfelld fyrir brot gegn 1. mgr. 106. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Hún játaði skýlaust sök. Var ákærðu gert að sæta fangelsi í 90 daga, skilorðsbundið til tveggja ára.
Héraðssaksóknari (Klara Dögg Thorarensen aðstoðarsaksóknari) gegn
Jóni Benedikt Georgssyni
Ákærði, sem sótti ekki þing við þingfestingu málsins, var sakfelldur fyrir brot gegn valdstjórninni. Um var að ræða hegningarauka við eldri dóm sem var jafnframt tekinn upp og ákærða gerð refsing í einu lagi sem þótti hæfilega ákveðin 60 daga fangelsi.
Ákærði sakfelldur fyrir brot gegn valdstjórninni. Um var að ræða hegningarauka við fyrri dóm sem var jafnframt tekinn upp eftir fyrirmælum 60. gr. almennra hegningarlaga. Ákærði, sem játaði sök, var dæmdur til að sæta fangelsi í tíu mánuði en fullnustu refsingar frestað skilorðsbundið.
Ákæruvaldið (Silja Rán Arnarsdóttir saksóknarfulltrúi) gegn
Sævari Þór Hallgrímssyni
Ákærði var sakfelldur fyrir brot gegn 1. mgr. 106. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, en hann hafði játað brot sitt skýlaust undir meðferð málsins. Var honum gert að sæta fangelsi í 30 daga, skilorðsbundið til tveggja ára.
Ákæruvaldið (Karl Ingi Vilbergsson saksóknari) gegn
Birgi Magnúsi Sveinssyni
Ákærði var sakfelldur fyrir brot gegn 1. mgr. 106. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, en útivist varð af hálfu ákærða í málinu og var því farið með það eftir a-lið 1. mgr. 161. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Var ákærða gert að sæta fangelsi í 30 daga, skilorðsbundið til tveggja ára.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Sonja Wiium saksóknarfulltrúi)
gegn
Sahar Babaei og Elissa May Phillips (
Katrín Oddsdóttir lögmaður)
Ákærðu sakfelldar fyrir húsbrot með því að koma sér fyrir í útsýnistunnum í möstrum tveggja hvalveiðiskipa án heimildar og fyrir að brjóta gegn fyrirmælum lögreglu um að láta af háttsemi sinni.
Ákærði var sakfelldur fyrir brot gegn valdstjórninni og dæmdur í 60 daga fangelsi skilorðsbundið í 2 ár.
X var sakfelldur í héraði fyrir brot gegn 193. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og dæmdur til tíu mánaða skilorðsbundinnar fangelsisrefsingar, auk þess sem X var gert að greiða A miskabætur. X krafðist ómerkingar dómsins og byggði meðal annars á því að sérfróður meðdómsmaður hefði verið vanhæfur til að taka sæti í dóminum á grundvelli g-liðar 1. mgr. 6. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Í úrskurði Landsréttar kom fram að með vísan til þess sem fram væri komið í málinu hefði ekki verið upplýst um nánari ástæður þess hvers vegna hinn sérfróði meðdómsmaður taldi tengsl sín við brotaþola A koma í veg fyrir að hann kæmi að meðferð einkamáls milli ákærða og A árið 2016. Í ljósi sakarefnis málsins og þeirrar óvissu sem væri uppi um inntak tengslanna yrði að leggja til grundvallar að sú staðreynd að meðdómsmaðurinn taldi á sínum tíma rétt að skorast undan aðkomu að ágreiningi um forsjá barns A og X, væri til þess fallin að draga hafi mátt óhlutdrægni hans með réttu í efa með vísan til vanhæfisreglu g-liðar 1. mgr. 6. gr. laga nr. 88/2008 og þeirra grunnraka sem liggja að baki reglunni. Af þeim sökum þótti óhjákvæmilegt að ómerkja hinn áfrýjaða dóm ásamt meðferð málsins frá upphafi aðalmeðferðar og vísa því til héraðsdóms til löglegrar meðferðar.
Héraðssaksóknari (
Þröstur Þór Guðmundsson saksóknarfulltrúi)
gegn
Þorgilsi Hauki Gíslasyni (
Sveinn Andri Sveinsson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir þjófnað, hótanir og brot gegn valdstjórninni og dæmdur í 6 mánaða fangelsi skilorðsbundið í tvö ár.
Héraðssaksóknari (Þröstur Þór Guðmundsson saksóknarfulltrúi) gegn
Birgi Snæ Snæbjörnssyni
Ákærði sakfelldur fyrir brot gegn valdstjórninni.
Héraðssaksóknari (
Þröstur Þór Guðmundsson saksóknarfulltrúi)
gegn
Arturs Jakovlevs (
Ólafur Valur Guðjónsson lögmaður)
Ákærði var sakfelldur fyrir brot gegn valdstjórninni.
Ákæruvaldið (
Hulda María Stefánsdóttir saksóknari)
gegn
Jóhanni Frey Hallgrímssyni (
Elimar Hauksson lögmaður, 4. prófmál)
J var sakfelldur fyrir brot gegn valdstjórninni með því að hafa á bifreiðastæði á Akureyri, eftir að hafa reynt að komast undan lögreglu á hlaupum, gripið í öryggisvesti lögreglumanns, sem var að hlaupa hann uppi, fleygt honum í jörðina, haft hann undir og þannig veist með ofbeldi að lögreglumanninum sem var við skyldustörf. Féllst Landsréttur á niðurstöðu hins áfrýjaða dóms að af myndbandsupptöku úr eftirlitsmyndavél yrði nægilega ráðið að J hefði í umrætt sinn snúið sér við, gripið í lögreglumanninn og dregið hann eða fleygt honum í jörðina. Var niðurstaða hins áfrýjaða dóms staðfest um sakfellingu J og honum gert að sæta fangelsi í þrjá mánuði en fullnustu refsingarinnar frestað skilorðsbundið í þrjú ár.
Ákærði, sem játaði brot sitt, dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir brot gegn valdstjórninni.
Ákærðu var gefið að sök brot gegn valdstjórninni, með því að hafa slegið lögreglumann með opnum lófa í andlit með þeim afleiðingum að hann kenndi til eymsla, en lögreglumaðurinn var við skyldustörf. Taldist sú háttsemi varða við 1. mgr. 106. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Ákærða játaði skýlaust sök og var farið með málið eftir 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Með hliðsjón af sakarefni málsins þótti refsing ákærðu hæfilega ákveðin fangelsi í tvo mánuði en fresta skyldi fullnustu refsingarinnar og hún falla niður að liðnum tveimur árum frá uppkvaðningu dóms, héldi ákærða almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Héraðssaksóknari (
Friðrik Smári Björgvinsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Eggerti Arnari Magnússyni (
Elísabet Pétursdóttir lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir að óhlýðnast fyrirmælum lögreglumanna og hrækja á lögreglumann
A var sakfelld fyrir eignaspjöll, brot gegn valdstjórninni, vopnalagabrot, brot gegn lögreglulögum og umferðarlagabrot samkvæmt nokkrum ákæruliðum. Við ákvörðun refsingar A var litið til þess að hún hefði gerst sek um fjölmörg afbrot á tæplega átta mánaða tímabili. Skýlaus játning A var virt henni til refsimildunar en á hinn bóginn þótti ekki unnt að horfa fram hjá því að brot hennar væru ítrekuð og bæru vott um einbeittan ásetning sem hefði áhrif til refsihækkunar, sbr. 6. tölulið 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Þá var refsing A ákveðin sem hegningarauki við fyrri dóm. Sá dómur, sem var skilorðsbundinn, var jafnframt tekinn upp og A dæmd refsing í einu lagi. Þá hafði dómurinn ítrekunaráhrif á brot A samkvæmt II. kafla ákæru. Enn fremur var litið til þess að brot A samkvæmt II. kafla ákæru voru framin þegar hún var í gæslu lögreglu. Samkvæmt öllu framangreindu þótti refsing A hæfilega ákveðin fangelsi í 14 mánuði, en fullnustu 11 mánaða af refsingunni var frestað skilorðsbundið í þrjú ár. Þá var henni gert að sæta upptöku á úðavopni og viðurkennd bótaskylda hennar.
Héraðssaksóknari (
Þröstur Þór Guðmundsson saksóknarfulltrúi)
gegn
Söru Kristínu Sraidi (
Leifur Runólfsson lögmaður)
Ákærða var sakfelld fyrir brot gegn valdstjórninni.
Héraðssaksóknari (
Þorvarður Arnar Ágústsson saksóknarfulltrúi)
gegn
Elínu Jakobsdóttur (
Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Ákærða var sakfelld fyrir brot gegn valdstjórninni.
Héraðssaksóknari (
Þorvarður Arnar Ágústsson saksóknarfulltrúi)
gegn
Moniku Ewu Kurzawa (
Eva Dóra Kolbrúnardóttir lögmaður)
Ákærða var sakfelld fyrir brot gegn valdstjórninni
Héraðssaksóknari (Þröstur Þór Guðmundsson saksóknarfulltrúi) gegn
Ovidijus Malisauskas
Ákærði sakfelldur fyrir brot gegn valdstjórninni og dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi.
Héraðssaksóknari (
Þröstur Þór Guðmundsson saksóknarfulltrúi)
gegn
Jóel Príor Guðrúnarsyni (
Sveinn Andri Sveinsson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir brot gegn valdstjórninni.
Ákærði sakfelldur fyrir brot gegn valdstjórninni.
Héraðssaksóknari (Þröstur Þór Guðmundsson saksóknarfulltrúi) gegn
Hauki Jónssyni
Ákærði var sakfelldur fyrir brot gegn valdstjórninni.
Héraðssaksóknari (
Þröstur Þór Guðmundsson saksóknarfulltrúi)
gegn
Ásdísi Lilju Jónsdóttur (
Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður)
Ákærða dæmd í 60 daga skilorðsbundið fangelsi vegna brots gegn valdstjórninni.
Ákærða, sem játaði brot sitt, dæmd til skilorðbundinnar fangelsisrefsingar fyrir þjófnað og brot í opinberu starfi.
Ákærði, sem játaði brot sitt, dæmdur í 60 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir brot gegn valdstjórninni.
Ákærði var sakfelldur fyrir brot gegn valdstjórninni og dæmdur í 45 daga fangelsi skilorðsbundið fangelsi og til greiðslu skaða- og miskabóta.
Ákæruvaldið (Þröstur Þór Guðmundsson saksóknarfulltrúi) gegn
Birgi Haukssyni
Ákærði sakfelldur fyrir brot gegn valdstjórninni.
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum (
Daníel Reynisson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Aroni Alex Jónssyni (
Þorgils Þorgilsson lögmaður)
Ákærði dæmdur í 60 daga fangelsi fyrir misnotkun skjals og brot gegn lögreglulögum.
Ákæruvaldið (Þröstur Þór Guðmundsson saksóknarfulltrúi) gegn
Páli Ívari Rafnssyni
Ákærði sakfelldur fyrir brot gegn valdstjórninni. Hann játaði brot sitt skýlaust.
Ákæruvaldið (
Friðrik Smári Björgvinsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Erni Arnarsyni (
Leó Daðason lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir brot gegn valdstjórninni. Hann játaði brot sitt skýlaust.
Ákærði sakfelldur fyrir rangar sakargiftir.
Héraðssaksóknari (Sonja Símonardóttir saksóknarfulltrúi) gegn
Jökli Jónasi Kristinssyni (Sjálfur)
Ákærði, sem játaði brot sitt, dæmdur í 60 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir brot gegn valdstjórninni.
Sakfellt fyrir líkamsárás, eignaspjöll og brot gegn lögreglulögum
Héraðssaksóknari (
Þorvarður Arnar Ágústsson saksóknarfulltrúi)
gegn
Sævari Arnfjörð Hreiðarssyni (
Sveinn Andri Sveinsson lögmaður)
Ákærði, sem játaði brot sín, dæmdur til skilorðsbundinnar fangelsisrefsingar og til greiðslu miskabóta fyrir tvö brot gegn valdstjórninni.
Ákæruvaldið (Þröstur Þór Guðmundsson saksóknarfulltrúi) gegn
Kristófer Erni Sigurðarsyni (Sjálfur ólöglærður)
Ákærði sakfelldur fyrir brot gegn valdstjórninni. Hann játaði brot sitt skýlaust.
X var ákærður fyrir rangar sakargiftir með því að hafa með röngum kærum leitast við að koma því til leiðar að A, barnsmóðir hans og fyrrverandi sambýliskona, yrði að ósekju sökuð um refsiverðan verknað, annars vegar með því að hafa sakað A um þjófnað á farsíma og fjársvik með því að hafa greitt fyrir vöru á tilgreindri heimasíðu með greiðslukorti X, hins vegar með því að hafa sakað A um skjalafals með því að hafa í blekkingarskyni ritað og framvísað sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu tveimur greinargerðum í máli sýslumanns er varðaði umgengni við sameiginlegt barn þeirra. Í dómi Landsréttar kom meðal annars fram að ekki yrði annað séð af fyrir- liggjandi gögnum í málinu en að kærur X til lögreglu á hendur A hefðu beinst að því að lögregla rannsakaði ætlaða refsiverða háttsemi hennar. Var ekki á það fallist að kærur X uppfylltu saknæmisskilyrði 1. mgr. 148. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, enda lægi ekkert fyrir um að framburður X hjá lögreglu varðandi sakarefni málsins hefði verið rangur þegar hann var gefinn. Var því talið ósannað að X hefði af ásetningi borið A röngum sökum þegar hann kærði hana til lögreglu. Var X því sýknaður af kröfum ákæruvaldsins.
Ákæruvaldið (Friðrik Smári Björgvinsson aðstoðarsaksóknari) gegn
Mantas Dackauskas
Ákærði sakfelldur fyrir brot gegn valdstjórninni.
Ákærði var sakfelldur fyrir sifskaparbrot í andstöðu við 193. gr. almennra hegningarlaga með því að svipta móður dóttur sinnar, sem er ólögráða fyrir æsku sakir, valdi og umsjá yfir henni í átta mánuði eftir að dæmt var að móðir stúlkunnar færi ein með forsjá hennar.
Ákæruvaldið (
Sonja Símonardóttir saksóknarfulltrúi)
gegn
Anítu Ósk Haraldsdóttur (
Steinbergur Finnbogason lögmaður)
Rúmlega tvítug kona var dæmd í 14 mánaða fangelsi, þar af þrjá mánuði óskilorðsbundið, fyrir brot gegn valdstjórninni, eignaspjöll á lögreglubifreiðum og bifreiðum einstakra lögreglumanna, auk brota á sérrefsilöggjöf. Með hluta brotanna rauf ákærða skilorð fjögurra mánaða fangelsisdóms sem henni var birtur 3. júní 2024 og var sá dómur tekinn upp og dæmdur með. Viðurkennd var bótaskylda ákærðu vegna skemmda á umræddum bifreiðum, en flestum kröfum um bótafjárhæð vísað frá dómi vegna vanreifunar.