Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

400 dómar fundust

Lykilorð: Eignaspjöll

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 11. maí 2026 kl. 10:16

S-6970/2025

Héraðssaksóknari (Arnfríður Gígja Arngrímsdóttir settur saksóknari) gegn Brynjari Leó Hjartarsyni (Ómar Örn Bjarnþórsson lögmaður) (Sigurður Freyr Sigurðsson réttargæslumaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Ákærði sakfelldur fyrir m.a. nauðgun og sifskaparbrot og dæmdur í þriggja ára fangelsi og til greiðslu miskabóta.

Landsréttur birt 26. mars 2026 kl. 16:46

326/2025

Ákæruvaldið (Marín Ólafsdóttir saksóknari) gegn X (Ómar Örn Bjarnþórsson lögmaður, Hildur Þórarinsdóttir lögmaður, 4. prófmál) (Agnar Þór Guðmundsson lögmaður einkaréttarkröfuhafa)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

X var gefin að sök sérstaklega hættuleg líkamsárás, húsbrot og eignaspjöll með því að hafa valdið spjöllum á bifreið í eigu A, þar sem hún stóð á bifreiðastæði fyrir utan hús sem A bjó í, og að því búnu farið heimildarlaust inn í íbúð A í húsinu og ráðist að honum og stungið hann tvisvar með hnífi og þeir lent í átökum í kjölfar þess, allt með þeim afleiðingum að A hlaut nánar tilgreinda áverka. Með dómi héraðsdóms var X fundinn sekur um þá háttsemi sem honum var gefin að sök í ákæru og að hafa valdið þeim áverkum sem þar greindi. X var með vísan til niðurstöðu matsgerðar dómkvadds matsmanns ekki talinn ósakhæfur og ekki var heldur talið að refsing gæti ekki borið árangur, sbr. 15. og 16. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Í dómi Landsréttar var rakið að eftir uppkvaðningu hins áfrýjaða dóms hefði farið fram rannsókn á brotnum hnífi sem lögregla haldlagði á vettvangi og að niðurstöður rannsóknarinnar leiddu að því líkur að X hefði handfjatlað hnífinn á einhverjum tímapunkti. Var hinn áfrýjaði dómur staðfestur um sakfellingu X. Við ákvörðun refsingar X var litið til þess að árás hans var tilefnislaus og alvarleg og hættulegu vopni var beitt á brjóstkassa A en einnig til þess að X iðraðist mikið, hafði fengið viðeigandi úrræði og meðferð og komið lífi sínu á rétta braut. Með hliðsjón af þessu og með vísan til 1., 3., 6. og 8. töluliða 1. mgr. 70. gr. og 77. gr. almennra hegningarlaga var refsing X ákveðin fangelsi í átta mánuði, skilorðsbundið í tvö ár. Loks var X gert að greiða A 800.000 krónur í miskabætur með nánar tilgreindum vöxtum og málskostnað.

Héraðsdómur Austurlands birt 29. mars 2026 kl. 12:21

S-161/2025

Ákæruvaldið (Fríða Thoroddsen aðstoðarsaksóknari) gegn X (Kristín Eva Geirsdóttir lögmaður) (Eva Dís Pálmadóttir réttargæslumaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Ákærða voru með tveimur ákærum gefin að sök brot í nánu sambandi gegn fyrrum sambýliskonu sinni, þar af í annað skiptið ásamt eignaspjöllum. Var hann í fyrra tilvikinu sakfelldur fyrir brot í nánu sambandi, en í hinu síðara sýknaður af sakargiftum um þess háttar brot, en sakfelldur fyrir eignaspjöll. Var hann dæmdur í átta mánaða fangelsi, skilorðsbundið til tveggja ára, til að greiða brotaþola miskabætur ásamt vöxtum, og tiltekið hlutfall sakarkostnaðar málsins.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 25. mars 2026 kl. 11:47

S-4822/2025

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Eva Lind Ingadóttir saksóknarfulltrúi) gegn Danival Guðjóni Stefánssyni (Snorri Sturluson lögmaður)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Maður sakfelldur fyrir ýmiss brot gegn almennum hegningarlögum og umferðarlögum og dæmdur til 18 mánaða fangelsisvistar. Ævilöng svipting ökuréttar var áréttuð. Einum ákærulið og einkaréttarkröfum var vísað frá dómi.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 16. mars 2026

S-3932/2025

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Pétur Fannar Gíslason aðstoðarsaksóknari) gegn X (Grímur Sigurðarson lögmaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Ákærði dæmdur í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir eignaspjöll og tvær líkamsárásir og til að greiða brotaþola miskabætur.

Landsréttur birt 12. mars 2026

80/2025

Ákæruvaldið (Óli Ingi Ólason saksóknari) gegn Sigurjóni G. Halldórssyni (Ingólfur Vignir Guðmundsson lögmaður) (Guðbjörg Benjamínsdóttir lögmaður einkaréttarkröfuhafa)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

S var ákærður fyrir brot gegn hegningarlögum og lögreglulögum í þremur ákæruliðum. Í fyrsta ákærulið var S gefin að sök líkamsárás, sbr. 1. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, með því að hafa ráðist að A sem sat í ökumannssæti bifreiðar sinnar, en S hafi staðið fyrir utan bifreiðina, teygt sig inn um opinn glugga, togað og rykkt til hægri hönd A sem og kveikjuláslykli bifreiðarinnar sem A hélt í en við þetta hafi langatöng hægri handar A fests í lyklakippu sem lykillinn var á og fingur hans aflagast og brotnað. Samkvæmt öðrum lið ákærunnar voru S gefin að sök eignaspjöll, sbr. 1. mgr. 257. gr. sömu laga, með því að hafa með háttsemi sinni í fyrsta ákærulið valdið því að kveikjuláslykillinn brotnaði og skemmdist. Loks voru S gefin að sök brot gegn lögreglulögum nr. 90/1996 með því að hafa neitað að ræða við lögreglumenn við afskipti lögreglu í kjölfar atvika í fyrsta og öðrum lið ákærunnar með þeim afleiðingum að lögreglumenn þurftu að taka S lögreglutökum og handtaka hann en S hafi streist á móti við þá handtöku. Var háttsemi S talin varða við 19. gr., sbr. 44. gr. laganna. Með hinum áfrýjaða dómi var S sakfelldur samkvæmt ákæru og gert að sæta fangelsi í 18 mánuði en fullnustu refsingarinnar var frestað skilorðsbundið í þrjú ár. Þá var S dæmdur til að greiða A nánar greindar skaða- og miskabætur. Í dómi Landsréttar voru raktir framburðir S, A og vitna sem voru á vettvangi þegar atvik máls áttu sér stað. Var framburður A og vitnisins B metinn í heild sinni trúverðugur um þau atvik sem greindi í fyrsta ákærulið ákæru en framburður S að sama skapi ótrúverðugur. Taldi Landsréttur að fullnægjandi sönnun væri fram komin um sök S samkvæmt þeim lið ákærunnar og var hann staðfestur um sakfellingu S fyrir þá háttsemi sem þar var lýst. Með vísan til forsendna hins áfrýjaða dóms var hann enn fremur staðfestur um sakfellingu S í öðrum og þriðja ákærulið sem og niðurstaða dómsins um ákvörðun refsingar S. Loks var staðfest niðurstaða hins áfrýjaða dóms um bætur til handa A fyrir varanlegan miska en miskabætur til handa A fyrir miska samkvæmt 26. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993 voru lækkaðar.

Landsréttur birt 19. febrúar 2026

364/2025

Ákæruvaldið (Guðrún Sveinsdóttir saksóknari) gegn Jóni Gunnþórssyni (Gísli M. Auðbergsson lögmaður) (Halldór Kr. Þorsteinsson lögmaður einkaréttarkröfuhafa)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

J var með tveimur héraðsdómum dæmdur til fangelsisrefsingar fyrir fjölda afbrota, þar á meðal á annan tug þjófnaðarbrota og fyrir að hafa margsinnis ekið sviptur ökurétti og undir áhrifum fíkniefna eða lyfja. Fyrir Landsrétti var ákvörðun refsingar vegna beggja dóma til endurskoðunar, auk þess sem J krafðist frávísunar tiltekinna ákæruliða eða sýknu. Landsréttur staðfesti niðurstöðu héraðsdóms um sakfellingu J fyrir brot gegn nálgunarbanni og eignaspjöll með því að hafa brotið rúðu í tilteknu húsi. Kröfu J um frávísun tiltekins ákæruliðar, sem var reist á vanhæfi embættis lögreglustjórans á Suðurlandi, var hafnað. Aftur á móti var fallist á frávísunarkröfu vegna sakargifta um húsbrot þar sem refsikrafa frá leigutaka og umráðamanni húsnæðisins lá ekki fyrir. Var J gert að sæta fangelsi í þrjú ár og niðurstaða héraðsdóms um einkaréttarkröfur staðfest.

Héraðsdómur Norðurlands vestra birt 8. janúar 2026

S-62/2025

Lögreglustjórinn á Norðurlandi vestra (Sigurður Hólmar Kristjánsson lögreglustjóri) gegn X og Y (Pétur Kristinsson lögmaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Ákærða X banaði hundi af nærliggjandi bæ þegar hann hljóp í átt að æðarvarpi í eigu ákærðu. Við það verk notaði hún byssu í eigu ákærða Y, en gildistími skotvopnaleyfa þeirra beggja var þá útrunninn. Vegna þessa voru ákærðu X gefin að sök eignarspjöll og vopnalagabrot og þess krafist að skotvopnið yrði gert upptækt. Talið var sannað að ákærða hefði skotið hundinn í þeim eina tilgangi að verja æðarvarpið gegn yfirvofandi tjóni sem hundurinn hefði getað valdið og að ekki hefði verið kostur á að beita öðrum og vægari úrræðum í því skyni. Jafnframt var talið sannað að eigendur varpsins hefðu áður verið búnir að brýna fyrir eigendum hundsins að gæta hans sérstaklega á varptímanum og að ákærða X hefði reynt að reka hundinn frá varpinu áður en hún greip til þess örþrifaráðs að skjóta hann. Enn fremur var talið sannað að þeir hagsmunir sem ákærðu verndaði með verkinu hefðu verið miklum mun meiri en þeir hagsmunir sem hún fórnaði með því að aflífa hundinn. Því var talið að uppfyllt væru skilyrði neyðarréttar, samkvæmt 13. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, og ákærðu voru sýknuð af kröfum ákæruvaldsins.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 19. desember 2025

S-5375/2025

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kristín Einarsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn X (Helgi Jóhannesson lögmaður) og Y (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Ákærðu, sem játuðu sök, báðar sakfelldar fyrir líkamsárás og eignaspjöll og ákærða X einnig sakfelld fyrir tvær aðrar líkamsárásir. Var ákærða X dæmd í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi, en ákvörðun refsingar ákærðu Y frestað skilorðsbundið í tvö ár. Ákærðu jafnframt gert að greiða brotaþola bætur í samræmi við samkomulag þar um.

Landsréttur birt 4. desember 2025

28/2025

Ákæruvaldið (Anna Barbara Andradóttir saksóknari) gegn Jóni Valgeiri Stefánssyni (Leó Daðason lögmaður) (Unnur Lilja Hermannsdóttir lögmaður einkaréttarkröfuhafa)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

J var sakfelldur fyrir brot gegn 1. og 2. mgr. 257. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 með því að hafa farið heimildarlaust inn um glugga á sumarhúsi og þar inni kveikt eld með þeim afleiðingum að sumarhúsið brann til grunna. Varðandi þá háttsemi J að brjóta útiljós við annað sumarhús í nágrenni við hitt taldist brotið fyrnt, sbr. 1. tölulið 1. mgr. 81. gr. og 5. mgr. 82. gr. almennra hegningarlaga og var hann því sýknaður af þeim sakargiftum. Við ákvörðun refsingar var meðal annars litið til þess að um var að ræða hegningarauka, sbr. 78. gr. almennra hegningarlaga. Var refsing J ákveðin fangelsi í sex mánuði. Þá var niðurstaða hins áfrýjaða dóms um bótaábyrgð J gagnvart einkaréttarkröfuhafa staðfest og honum gert að greiða TM tryggingum hf. 14.298.040 krónur.

Héraðsdómur Reykjaness birt 2. desember 2025

S-2243/2025

Ákæruvaldið (Pétur Fannar Gíslason aðstoðarsaksóknari) gegn A (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður), B (Leó Daðason lögmaður), C (Ingi Freyr Ágústsson lögmaður), D (Stefán Ragnarsson lögmaður), E (Sveinn Guðmundsson lögmaður), F (Páll Kristjánsson lögmaður) og G (Unnsteinn Örn Elvarsson lögmaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Allir ákærðu sakfelldir fyrir fjárkúgun, rán og brot á barnaverndarlögum eða fyrir hlutdeild í þeim brotum. Einnig sakfellt fyrir minniháttar líkamsárás, eignaspjöll, þjófnað o.fl.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 14. nóvember 2025

S-1420/2025

Héraðssaksóknari (Friðrik Smári Björgvinsson aðstoðarsaksóknari) gegn X (Eva Dóra Kolbrúnardóttir lögmaður), Y (Helgi Þorsteinsson Silva lögmaður) og Z (Leó Daðason lögmaður)
Málaflokkur: Önnur sakamál

Máli vísað frá dómi á þeim grunni að héraðssaksóknari hafi ekki farið með ákæruvald vegna brots gegn 257. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 23. gr. laga nr. 88/2008 og ríkissaksóknari fól héraðssaksóknara ekki að fara með málið, sbr. 5. mgr. 21. gr. laga nr. 88/2008.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 18. september 2025

S-3972/2025

Héraðssaksóknari (Arnfríður Gígja Arngrímsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Birni Inga Helgasyni (Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður)

Ákærði sakfelldur fyrir eignaspjöll og dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi. Með broti sínu rauf ákærði skilorð vegna eldri dóms.

Landsréttur birt 12. júní 2025

709/2023

Ákæruvaldið (Óli Ingi Ólason saksóknari) gegn Baldri Kolbeinssyni (Guðmundur Njáll Guðmundsson lögmaður)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

B var sakfelldur í héraði í samræmi við játningu fyrir tvö fíkniefnalagabrot og nokkur brot gegn almennum hegningarlögum nr. 19/1940. B var einnig gefið að sök húsbrot með því að hafa í þrjú skipti farið í heimildarleysi inn í tilgreind fjölbýlishús en hann bar því við að hann hefði leitað í þessi húsnæði vegna kulda, auk þess sem hann hafi verið slasaður og í slæmu ástandi. Í dómi héraðsdóms var komist að þeirri niðurstöðu að ekki yrði séð að B hafi verið í yfirvofandi hættu sem hafi verið bægt frá með þessari háttsemi. Önnur úrræði hafi staðið B til boða og aðstæður hans hafi ekki réttlætt að hann færi inn í húsnæði annarra einstaklinga til að leita sér skjóls. Var því ekki fallist á það að þessi háttsemi B hafi verið honum refsilaus með vísan til 13. gr. almennra hegningarlaga og var hann sakfelldur fyrir hana. Var B gert að sæta fangelsi í tólf mánuði. Með dómi Landsréttar var niðurstaða héraðsdóms staðfest. Við ákvörðun refsingar B var meðal annars litið til dráttar á meðferð málsins fyrir Landsrétti sem ekki var talið að honum yrði kennt um. Kom því ekki til álita að þyngja refsingu B. Þá var, með hliðsjón af sakaferli B og fjölda þeirra brota sem hann var sakfelldur fyrir, ekki talið unnt að binda refsingu hans skilorði. Var hinn áfrýjaði dómur staðfestur.

Héraðsdómur Reykjaness birt 28. maí 2025

S-160/2025

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum (Daníel Reynisson aðstoðarsaksóknari) gegn Tarek Rajab (Gísli M. Auðbergsson lögmaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Karlmaður sakfelldur fyrir líkamsárásir og eignaspjöll. Dæmdur í tveggja ára fangelsi og til greiðslu miskabóta.

Landsréttur birt 28. maí 2025

278/2024

Ákæruvaldið (Hrafnhildur M. Gunnarsdóttir saksóknari) gegn X (Arnar Vilhjálmur Arnarsson lögmaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

X var með tveimur ákærum gefin að sök eignaspjöll í fjögur skipti, þrjú þjófnaðarbrot og ein líkamsárás á eins árs tímabili, frá mars 2021 til mars 2022. Með dómi héraðsdóms var X sakfelldur fyrir eignaspjöll í tvö skipti, þrjú þjófnaðarbrot og líkamsárás en einum lið ákæru 28. mars 2023 fyrir eignaspjöll var vísað frá dómi. Þá var X sýknaður af einum lið ákæru 12. september 2023 fyrir eignaspjöll. X var með vísan til niðurstöðu matsgerðar dómkvadds matsmanns ekki talinn ósakhæfur í skilningi 15. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Var refsing X ákveðin fangelsi í þrjá mánuði auk þess sem honum var gert að greiða A tilgreindar bætur fyrir líkamsárás. Með dómi Landsréttar var staðfest sakfelling X samkvæmt þeim ákæruliðum sem hann var fundinn sekur um í héraði. Undir rekstri málsins fyrir Landsrétti voru að beiðni X dómkvaddir tveir yfirmatsmenn til að meta sakhæfi hans. Með vísan til matsgerðar og yfirmatsgerðar var X ekki talinn ósakhæfur en í samræmi við niðurstöðu yfirmatsgerðar var talið nægilega sýnt fram á að refsing myndi ekki bera árangur. Var X því ekki gerð refsing í málinu með vísan til 16. gr. almennra hegningarlaga. Með vísan til samhljóða álits dómkvadds matsmanns og yfirmatsmanna um að X nyti nú besta búsetufyrirkomulags og meðferðar sem honum stæðu til boða þótti ekki tilefni til að kveða á um sérstakar ráðstafanir til að varna því að háski yrði að honum, sbr. 62. og 63. gr. almennra hegningarlaga. Loks var staðfest niðurstaða héraðsdóms um bætur til handa A.

Héraðsdómur Suðurlands birt 5. maí 2025

S-110/2025

Lögreglustjórinn á Suðurlandi (Ólafur Hallgrímsson fulltrúi) gegn X (Þorgeir Þorgeirsson lögmaður)
Lykilorð: Eignaspjöll. Fangelsi. Skilorð.
Málaflokkur: Önnur sakamál

Ákærði var fundinn sekur um eignaspjöll, með því að hafa í tvígang sparkað og/eða slegið í hliðarspegla bifreiðar. Var honum gert að sæta fangelsi í 30 daga, en fullnustu refsingarinnar frestað skilorðsbundið til tveggja ára.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 30. apríl 2025

S-6830/2024

Ákæruvaldið (Dagmar Ösp Vésteinsdóttir saksóknari) gegn X (Guðmundur St. Ragnarsson verjandi ákærða) (Þórir Örn Árnason lögmaður einkaréttarkröfuhafa) (Leó Daðason lögmaður einkaréttarkröfuhafa) (Eva Bryndís Helgadóttir lögmaður einkaréttarkröfuhafa) (Sveinn Guðmundsson lögmaður einkaréttarkröfuhafa) (Lilja Margrét Olsen lögmaður einkaréttarkröfuhafa)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Ákærði sakfelldur fyrir manndráp, tvær tilraunir til manndráps og eignaspjöll.

Landsréttur birt 10. apríl 2025

717/2024

Ákæruvaldið (Einar Tryggvason saksóknari) gegn Anítu Ósk Haraldsdóttur (Steinbergur Finnbogason lögmaður)

A var sakfelld fyrir eignaspjöll, brot gegn valdstjórninni, vopnalagabrot, brot gegn lögreglulögum og umferðarlagabrot samkvæmt nokkrum ákæruliðum. Við ákvörðun refsingar A var litið til þess að hún hefði gerst sek um fjölmörg afbrot á tæplega átta mánaða tímabili. Skýlaus játning A var virt henni til refsimildunar en á hinn bóginn þótti ekki unnt að horfa fram hjá því að brot hennar væru ítrekuð og bæru vott um einbeittan ásetning sem hefði áhrif til refsihækkunar, sbr. 6. tölulið 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Þá var refsing A ákveðin sem hegningarauki við fyrri dóm. Sá dómur, sem var skilorðsbundinn, var jafnframt tekinn upp og A dæmd refsing í einu lagi. Þá hafði dómurinn ítrekunaráhrif á brot A samkvæmt II. kafla ákæru. Enn fremur var litið til þess að brot A samkvæmt II. kafla ákæru voru framin þegar hún var í gæslu lögreglu. Samkvæmt öllu framangreindu þótti refsing A hæfilega ákveðin fangelsi í 14 mánuði, en fullnustu 11 mánaða af refsingunni var frestað skilorðsbundið í þrjú ár. Þá var henni gert að sæta upptöku á úðavopni og viðurkennd bótaskylda hennar.

Héraðsdómur Suðurlands birt 19. mars 2025

S-610/2024

Lögreglustjórinn á Suðurlandi (Margrét Harpa Garðarsdóttir fulltrúi) gegn Degi Þór Sigfinnssyni (Sverrir Sigurjónsson lögmaður)

Ákærði var fundinn sekur um eignaspjöll og honum gert að sæta fangelsi í 30 daga, en fullnustu refsingarinnar var frestað skilorðsbundið til tveggja ára. Einkaréttarkröfu brotaþola var vísað frá dómi vegna vanreifunar.

Héraðsdómur Reykjaness birt 19. mars 2025

S-1696/2024

Ákæruvaldið (Arnfríður Gígja Arngrímsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Árbjarti Snæ Kristjánssyni (Ómar Örn Bjarnþórsson lögmaður) (Klara Óðinsdóttir lögmaður brotaþola)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Ákærði sakfelldur fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás, húsbrot og eignaspjöll og dæmdur í átta mánaða skilorðsbundið fangelsi og til greiðslu miskabóta.

Héraðsdómur Vesturlands birt 10. mars 2025

S-206/2024

Lögreglustjórinn á Vesturlandi (Emil Sigurðsson aðstoðarsaksóknari) gegn [X...] (Kristrún Elsa Harðardóttir lögmaður) (Valgerður Dís Valdimarsdóttir lögmaður brotaþola)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Sakfellt fyrir húsbrot og eignaspjöll. Sýknað af kröfu um miskabætur en öðrum bótakröfum vísað frá dómi vegna vanreifunar. 45 daga skilorðsbundið fangelsi,

Héraðsdómur Reykjaness birt 16. janúar 2025

S-1844/2024

Ákæruvaldið (Ásmundur Jónsson aðstoðarsaksóknari) gegn Bjarna Má Jónssyni (Snorri Sturluson lögmaður) og Ragnari Ólafssyni (Jón Bjarni Kristjánsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærðu sakfelldir fyrir þjófnað en annar þeirra einnig fyrir fíkniefnalagabrot, ítrekaðan akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna og án ökuréttar, nytjastuld og eignaspjöll. Játningarmál.

Landsréttur birt 16. janúar 2025

652/2023

Ákæruvaldið (Óli Ingi Ólason saksóknari) gegn Björk Þóru Grétarsdóttur (Bjarni Hauksson lögmaður) (Unnar Steinn Bjarndal lögmaður einkaréttarkröfuhafa)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

BÞ var sakfelld fyrir brot gegn 232. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940 fyrir að hafa á um fimm mánaða tímabili endurtekið hótað, fylgst með, sett sig í samband við og setið um A og B, fyrir utan heimili þeirra, gegn þeirra vilja, auk þess að hafa hrellt þær og niðurlægt þær með nánar tilgreindum hætti. Þá var BÞ einnig sakfelld fyrir eignaspjöll með því að hafa valdið skemmdum á bifreið í eigu A og fyrir að óhlýðnast lögreglu með því að hafa neitað að hlýða fyrirmælum lögreglumanna um að koma óvopnuð út af heimili sínu. Varðandi umsáturseinelti BÞ kom fram í dómi Landsréttar að ásetningur hennar til verksins hefði verið einbeittur og þá hefði BÞ virt að vettugi öll fyrirmæli lögreglu og óskir brotaþola um að hún léti af háttseminni. Háttsemi BÞ hafi verið til þess fallin að valda brotaþolum hræðslu og kvíða og nutu brotaþolar ekki friðhelgi á heimili sínu sem þær áttu kröfu á. Var refsing ákærðu ákveðin fangelsi í sex mánuði en fullnustu hennar frestað skilorðsbundið í tvö ár. Með dómi héraðsdóms hafði BÞ verið dæmd til að greiða A og B miskabætur. Einkaréttarkröfur A og B bárust ákæranda hins vegar ekki fyrr en eftir útgáfu ákæru. Af því tilefni var gefin út framhaldsákæra en í dómi Landsréttar kom fram að hvorki hefðu skilyrði fyrir útgáfu framhaldsákæru verið uppfyllt né hefði BÞ veitt samþykki til að kröfur A og B kæmust að í málinu. Var einkaréttarkröfum A og B því vísað frá héraðsdómi.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 10. desember 2024

S-6349/2024

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Íris Þóra Júlíusdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Daniel Norbert Szymanski (Guðbjarni Eggertsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var sakfelldur fyrir stórfelld eignaspjöll, ölvunarakstur og fyrir að óhlýðnast fyrirmælum lögreglu og sinna ekki skyldum sínum á slysstað.

Héraðsdómur Reykjaness birt 3. desember 2024

S-3156/2023

Ákæruvaldið (Sonja Símonardóttir saksóknarfulltrúi) gegn Jóni Valgeiri Stefánssyni (Leó Daðason lögmaður)
Lykilorð: Brenna. Eignaspjöll. Húsbrot.
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Sakfellt fyrir húsbrot og stórfelld eignaspjöll.

Héraðsdómur Suðurlands birt 13. nóvember 2024

S-478/2024

Lögreglustjórinn á Suðurlandi (Ólafur Hallgrímsson fulltrúi) gegn Róberti Má Gylfasyni (Jón Egilsson lögmaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Ákærði var fundinn sekur um líkamsárás og eignaspjöll og honum gert að sæta fangelsi í 45 daga, en fullnustu refsingarinnar var frestað skilorðsbundið til tveggja ára.

Landsréttur birt 10. október 2024

130/2024

Ákæruvaldið (Guðrún Sveinsdóttir saksóknari) gegn X (Guðbjarni Eggertsson lögmaður) (Helga Vala Helgadóttir Bachmann réttargæslumaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

X var ákærður fyrir stórfellt brot í nánu sambandi, nauðgun og hættubrot með því að hafa endurtekið og á alvarlegan hátt ógnað heilsu og velferð þáverandi sambýliskonu sinnar, í sex nánar tilgreind skipti. Í dómi héraðsdóms sem staðfestur var í Landsrétti með vísan til forsendna var X sýknaður af hluta sakargifta en sakfelldur að hluta og sú háttsemi heimfærð til 1. mgr. 218. gr. b almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og 4. mgr. 220. gr. sömu laga. Þá var X sakfelldur fyrir eignaspjöll með því að hafa skemmt hluti í eigu sambýliskonunnar þáverandi. Við ákvörðun refsingar var litið til 1., 3. og 6. töluliðar 1. mgr. 70. gr., 60. gr. og 78. gr. almennra hegningarlaga. Með vísan til 77. gr. laganna var refsing X ákveðin fangelsi í tíu mánuði en fullnustu sjö mánaða frestað skilorðsbundið í tvö ár, vegna dráttar sem orðið hafði á rekstri málsins.

Héraðsdómur Reykjaness birt 17. september 2024

S-1802/2024

Ákæruvaldið (Ásmundur Jónsson aðstoðarsaksóknari) gegn Juozas Suraucius
Lykilorð: Eignaspjöll.
Málaflokkur: Önnur sakamál

Ákærði dæmdur fyrir eignaspjöll.

Héraðsdómur Reykjaness birt 3. september 2024

S-1935/2024

Ákæruvaldið (Gunnhildur Anna Alfonsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Aleksas Kartanas (Leó Daðason lögmaður)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Karlmaður var dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi fyrir hegningarlaga- og sérrefsilagabrot. Var fullnustu 45 daga af þeirri refsingu frestað skilorðsbundið þannig að sá hluti refsingar falli niður að liðnum tveimur árum frá dómsuppsögu haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga. Til drádráttar dæmdri refsingu kom gæsluvarðhald ákærða frá 17. júní til og með 3. september 2024.

Héraðsdómur Reykjaness birt 20. ágúst 2024

S-1771/2024

Ákæruvaldið (Sonja Símonardóttir saksóknarfulltrúi) gegn Anítu Ósk Haraldsdóttur (Steinbergur Finnbogason lögmaður)

Rúmlega tvítug kona var dæmd í 14 mánaða fangelsi, þar af þrjá mánuði óskilorðsbundið, fyrir brot gegn valdstjórninni, eignaspjöll á lögreglubifreiðum og bifreiðum einstakra lögreglumanna, auk brota á sérrefsilöggjöf. Með hluta brotanna rauf ákærða skilorð fjögurra mánaða fangelsisdóms sem henni var birtur 3. júní 2024 og var sá dómur tekinn upp og dæmdur með. Viðurkennd var bótaskylda ákærðu vegna skemmda á umræddum bifreiðum, en flestum kröfum um bótafjárhæð vísað frá dómi vegna vanreifunar.

Héraðsdómur Reykjaness birt 3. júní 2024

S-1201/2024

Ákæruvaldið (Kári Ólafsson aðstoðarsaksóknari) gegn Jón Ólafur Þorsteinsson (Ingi Freyr Ágústsson lögmaður)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Ákærði sakfelldur fyrir ítrekaðar líkamsárásir og eignaspjöll, þjófnað og fjársvik og dæmdur í átta mánaða fangelsi auk greiðslu skaða- og miskabóta. Skilorðsdómur upptekinn.

Landsréttur birt 31. maí 2024

625/2023

Ákæruvaldið (Jón H. B. Snorrason saksóknari) gegn Guðmundi Birni Guðnasyni (Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson lögmaður) (Sveinn Guðmundsson lögmaður einkaréttarkröfuhafa)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

G var ákærður fyrir hegningarlagabrot í tveimur ákæruliðum. Með þeim fyrri voru G gefin að sök eignaspjöll, sbr. 1. mgr. 257. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, með því að hafa kýlt í bílstjórahurð tilgreindrar bifreiðar. Samkvæmt síðari lið ákærunnar var G gefið að sök að hafa veist með ofbeldi að A, bílstjóra bifreiðarinnar, hrint henni og slegið til hennar með þeim afleiðingum að A hlaut marblett á vinstri upphandlegg, eymsli á vinstri úlnlið og stífleika í baki, sbr. 1. mgr. 217. gr. sömu laga. Játaði G háttsemi þá sem honum var gefin að sök samkvæmt fyrri ákærulið og var hann í héraði sakfelldur fyrir þá háttsemi sem þar greindi. Þá var G sakfelldur fyrir að hafa hrint A með þeim afleiðingum að A hlaut stífleika í baki en sýknaður af öðrum sakargiftum samkvæmt sama ákærulið. Var G gert að sæta skilorðsbundnu fangelsi í einn mánuð og greiða A 400.000 krónur í miskabætur ásamt tilgreindum vöxtum. G áfrýjaði niðurstöðu héraðsdóms um sakfellingu samkvæmt framangreindum ákærulið og krafðist sýknu. Í dómi Landsréttar kom fram að sannað þætti að G hefði umrætt sinn veist að A með þeim hætti sem lýst væri í ákæru að teknu tilliti til sakargifta sem hann var sýknaður af samkvæmt verknaðarlýsingu í ákæru. Þá var staðfest niðurstaða héraðsóms um heimfærslu háttseminnar til refsiákvæða. Loks var staðfest ákvæði hins áfrýjaða dóms um ákvörðun refsingar, sakarkostnað og fjárhæð miskabóta.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 18. apríl 2024

S-523/2024

Héraðssaksóknari (Dagmar Ösp Vésteinsdóttir settur saksóknari) gegn Shokri Keryo (Leó Daðason lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Skotárás. Ákærði sakfelldur fyrir hættubrot, eignaspjöll, umferðarlagabrot og brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni og dæmdur í fangelsi í 3 ár og 6 mánuði, sviptur ökurétti og dæmdur til greiðslu skaðabóta.

Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 22. mars 2024

S-670/2023

Ákæruvaldið (Eyþór Þorbergsson aðstoðarsaksóknari) gegn Helga Óskarssyni (Guðmundur Siemsen lögmaður bótakrefjanda)
Lykilorð: Eignaspjöll. Fangelsi.
Málaflokkur: Önnur sakamál

Ákærði dæmdur í sex mánaða fangelsi fyrir eignaspjöll á fjölda bifreiða.

Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 7. mars 2024

S-449/2023

Ákæruvaldið (Vilhjálmur Reyr Þórhallsson aðstoðarsaksóknari) gegn X (Áslaug Lára Lárusdóttir lögmaður) og Y (Þorgils Þorgilsson lögmaður) (Ólafur Rúnar Ólafsson lögmaður einkaréttarkröfuhafa)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Tvö ungmenni voru sakfelld fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás, rán og eignaspjöll fyrir að ráðast á þriðja ungmennið þar sem það sat í bifreið og berja það í höfuðið með hamri sem og að slá það ítrekað. Það ungmennið sem vopnað var hamrinum var sakfellt um að hafa í framhaldi af árásinni brotið rúður í bifreið sem brotaþoli sat í, auk þess að valda öðrum skemmdum á bifreiðinni.

Héraðsdómur Suðurlands birt 28. febrúar 2024

S-73/2024

Lögreglustjórinn í Vestmannaeyjum (Arndís Bára Ingimarsdóttir fulltrúi) gegn Fabian Przybylski (enginn)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var fundinn sekur um akstur undir áhrifum fíkniefna, fíkniefnalagabrot, tollalagabrot, peniningaþvætti og eignarspjöll og honum gert að sæta fangelsi í 60 daga, en fullnustu refsingarinnar var frestað skilorðsbundið. Jafnframt var ákærða gert að greiða sekt og hann sviptur ökurétti tímabundið. Loks var ákærði dæmdur til að greiða brotaþola skaðabætur vegna eignaspjalla.

Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 29. janúar 2024

S-617/2023

Ákæruvaldið (Eyþór Þorbergsson aðstoðarsaksóknari) gegn Ísól Björk Einarsdóttur
Málaflokkur: Önnur sakamál

Ákærða sakfelld fyrir eignaspjöll.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 8. janúar 2024

S-6684/2023

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Benedikt Smári Skúlason saksóknarfulltrúi) gegn Hilmari Erni Albertssyni (Leifur Runólfsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni, umferðarlög, vopnalög, og almenn hegningarlög og dæmdur í 8 mánaða fangelsi og ævilöng svipting ökuréttar áréttuð.

Hleð fleiri dómum…