V var ákærður fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot, sbr. 173. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940, með því að hafa staðið að innflutningi á 3.000 ml af kókaíni á vökvaformi með styrkleika 53-56%, ætluðu til söludreifingar hér á landi í ágóðaskyni, en fíkniefnin flutti V til landsins sem farþegi með flugi falin í farangri V. V játaði sök samkvæmt ákæru fyrir dómi og var farið með málið sem játningarmál samkvæmt heimild í 1. mgr. 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Var V gert að sæta fangelsi í 3 ár og 6 mánuði auk upptöku á haldlögðum fíkniefnum og farsíma. Fyrir Landsrétti var eingöngu til endurskoðunar ákvæði héraðsdóms um refsingu V. Var í dómi Landsréttar vísað til þess að V hefði gengist við þeirri háttsemi sem honum var gefin að sök samkvæmt ákæru og jafngilti magnið um 1.860 g af hreinu kókaíni. Með hliðsjón af þessu og með vísan til þeirra refsiákvörðunarsjónarmiða sem rakin voru í hinum áfrýjaða dómi var refsing V ákveðin fangelsi í 3 ár. Þá staðfesti Landsréttur niðurstöðu hins áfrýjaða dóms um upptöku.
E var í héraði sakfelldur fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot með því að hafa staðið að innflutningi á 2.217 töflum af oxycontin 80 mg ætluðum til söludreifingar hér á landi í ágóðaskyni. Fíkniefnin flutti hann til landsins sem farþegi í flugi frá Varsjá í Póllandi til Keflavíkur. E játaði sök við þingfestingu málsins í héraði og var farið með málið sem játningarmál. Var E gert að sæta fangelsi í 3 ár að frádregnu gæsluvarðhaldi sem hann hafði sætt, auk þess sem fíkniefnin voru gerð upptæk. Fyrir Landsrétti var eingöngu ágreiningur um ákvörðun refsingar. Við ákvörðun refsingar leit Landsréttur til þess að E hefði flutt til landsins mikil magna af sterkum fíkniefnum sem ætluð voru til söludreifingar hér á landi. Á hinn bóginn horfði það til mildunar refsingar E að hann játaði brot sitt greiðlega bæði á rannsóknarstigi málsins og fyrir dómi. Þá var tekið tillit til þess að ekki lá annað fyrir en að hlutverk E hefði einvörðungu verið í því fólgið að koma efnunum hingað til lands og fá þau öðrum í hendur. Með hliðsjón af þessu var refsing E ákveðin fangelsi í tvö ár og sex mánuði.
R og S var gefið að sök stórfellt fíkniefnalagabrot með því að hafa í félagi staðið að innflutningi á samtals 2.503,73 grömmum af kókaíni með 77-85% styrkleika ætluðu til söludreifingar í ágóðaskyni. Fíkniefnin fluttu þau til landsins sem farþegar í flugi frá Alicante á Spáni til Keflavíkur. R var með 1.124,45 grömm og S með 1.379,26 grömm falin innanklæða við komu þeirra til landsins. Þau gengust við þeim hluta sakargifta sem varðaði innflutning fíkniefna, en neituðu að hafa staðið saman að innflutningnum. Þá taldi R að háttsemi hennar fæli einungis í sér hlutdeild í broti þeirra sem hefðu fengið sig til verksins. Landsréttur staðfesti niðurstöðu hins áfrýjaða dóms um að R og S hefðu í sameiningu flutt samtals 2.503,73 grömm af kókaíni til landsins og að á því bæru þau refsiábyrgð sem aðalmenn. Þá var niðurstaða hins áfrýjaða dóms um viðurlög staðfest, þar sem R og S var gert að sæta fangelsi í þrjú ár og upptöku á fíkniefnum.
Ákæruvaldið (
Elín Hrafnsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
X (
Snorri Sturluson lögmaður)
Ákærði dæmdur í 60 daga fangelsi, skilorðsbundið í tvö ár, til greiðslu á 100.000 króna sekt til ríkissjóðs og gert að sæta upptöku á þar til greindum munum.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Júlí Karlsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
X (
Ingi Freyr Ágústsson lögmaður)
Ákærði var sakfelldur fyrir fíkniefnalagabrot, líkamsmeiðingar af gáleysi og umferðarlagabrot. Var honum gert að sæta 60 daga fangelsi skilorðsbundið til tveggja ára.
Ákærði dæmdur í 10 mánaða fangelsi fyrir innflutning á amfetamínbasa.
Tveir ákærðu sakfelldir fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot og peningaþvætti. Annar þeirra einnig sakfelldur fyrir vörslur fíkniefna. Einn ákærða sýknaður af hlutdeild í broti þeirra og ákærðu varðandi hlutdeild annarra fimm vísað frá dómi.
Fjórir menn sakfelldir fyrir skipulagða brotastarfsemi og stórfellt fíkniefnalagabrot með því að hafa í ótilgreindan tíma selt óþekkt magn af fíkniefnum af tilteknum tegundum og fyrir að hafa haft þær tegundir fíkniefna í vörslum sínum við handtöku. Voru allir dæmdir til fangelsisvistar en fullnustu refsingar tveggja þeirra frestað skilorðsbundið að hluta. Frávísunarkröfum ákærðu, sem byggðu á því að ákæru málsins væri ábótavant, var hafnað.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Júlí Karlsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Gabríel Douane Boama (
Snorri Sturluson lögmaður)
Ákæruvaldið (
Dagmar Ösp Vésteinsdóttir saksóknari)
gegn
Svavari Óla Ólafssyni (
Andrés Már Magnússon lögmaður)
S var sakfelldur í héraði fyrir fíkniefna- og vopnalagabrot. Eldri skilorðsdómur var tekinn upp og S gerð refsing í einu lagi. Var refsing S ákveðin fangelsi í níu mánuði, en fullnustu sex mánaða frestað skilorðsbundið í tvö ár. Jafnframt voru gerð upptæk nánar tilgreind fíkniefni, fíknilyf og vopn. S áfrýjaði héraðsdómi í því skyni að fá refsinguna mildaða og bundna skilorði að öllu leyti. Með dómi Landsréttar var hinn áfrýjaði dómur staðfestur.
J var gefin að sök tilraun til fíkniefnalagabrots með því að hafa í lok árs 2020 staðið að innflutningi á 347,16 g af kókaíni í sölu- og dreifingaskyni. Þá var J einnig gefið að sök fíkniefnalagabrot með því að hafa 12. mars 2021 haft í vörslum sínum 30 stykki af rítalín UNO töflum. Var E gefið að sök fíkniefna- og vopnalagabrot með því að hafa sama dag haft í vörslum sínum 506,9 g af amfetamíni í sölu- og dreifingaskyni og skammbyssu af gerðinni Browning. Loks var E og J gefið að sök að hafa á sama tíma haft í vörslum sínum, í sölu- og dreifingaskyni, 487,8 g af amfetamíni. Játuðu E og J brot sín í héraði og var farið með málið samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Með dómi héraðsdóms voru E og J sakfelldir fyrir þau brot sem þeim voru gefin að sök í ákæru og gert að sæta fangelsi í 12 mánuði. Þá voru gerð upptæk fíkniefni, vopn og 5.000.000 króna í reiðufé. E og J áfrýjuðu málinu til Landsréttar og kröfðust þess að refsing þeirra yrði milduð. Þá krafðist J þess einnig í greinargerð sinni til Landsréttar að upptöku fjármunanna yrði hafnað þar sem þeir væru hluti af láni sem hann hefði fengið. Landsréttur staðfesti héraðsdóm um sakfellingu ákærðu og heimfærslu á brotum þeirra til refsiákvæða. Um kröfu J er laut að því að upptöku fjármunanna yrði hafnað kom fram að sú krafa hefði fyrst komið fram í greinargerð hans til réttarins og því ekki verið tekin upp í áfrýjunarstefnu. Teldist hún þar af leiðandi of seint fram komin, sbr. 2. mgr. 199. gr. laga nr. 88/2008. Um refsingu E og J sagði að ákvarða bæri hana sem hegningarauka við dóm sem þeir höfðu hlotið á árinu 2025, sbr. 78. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Voru brot E og J talin alvarleg og hafa beinst gegn mikilsverðum hagsmunum. Var þó einnig litið til þess að verulegur dráttur hefði orðið á rekstri málsins. Niðurstaða hins áfrýjaða dóms um 12 mánaða fangelsi E og J var með hliðsjón af framangreindu staðfest en frá dæmdri refsingu dróst gæsluvarðhaldsvist sem E og J höfðu sætt á árinu 2021.
Ákærðu voru sakfelldir fyrir tilraun til stórfellds fíkniefnalagabrots, með því að hafa í félagi staðið að innflutningi á samtals 1.003,59 g af kókaíni. Annar ákærðu var jafnframt sakfelldur fyrir vörslur kókaíns og amfetamíns á heimili sínu, en sýknaður af ákæru fyrir vörslur stinningarlyfja eins og ákæru var háttað. Var ákærðu gert að sæta fangelsi í 18 og 20 mánuði.
Sakfellt fyrir fíkniefnalagabrot
A var gefið að sök stórfellt fíkniefnalagabrot með því að hafa í félagi með tveimur öðrum mönnum staðið að innflutningi á samtals 3.002,01 g af kókaíni frá Spáni til Íslands, ætluðu til söludreifingar hér á landi í ágóðaskyni. A neitaði sök og kvaðst einungis hafa tekið að sér að akstur og ýmiss konar útréttingar að beiðni ónefnds manns í Litáen, sem hann ynni stundum fyrir og sinnti ýmiss konar verkefnum hér á landi. Í dómi héraðsdóms, sem Landsréttur staðfesti með vísan til forsendna hans, var talið hafið yfir skynsamlegan vafa að A hefði verið þátttakandi í innflutningnum og að honum hefði ekki getað hafa dulist að um innflutning á fíkniefnum væri að vera. Var litið svo á að um verkskipta aðild A og meðákærðu í héraði hefði verið að ræða. Var A sakfelldur samkvæmt ákæru. Við ákvörðun refsingar A var litið til sakaferils hans og að gögn málsins bæru með sér að hann hefði lotið boðvaldi annarra en ekki séð um skipulagningu brotsins. Með hliðsjón af þessu og með vísan til 1., 3., 5. og 6. töluliða 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 var refsing A ákveðin fangelsi í þrjú ár, auk þess sem umrædd fíkniefni og farsími hans voru gerð upptæk.
Ákærðu voru sakfelld fyrir brot gegn ákvæðum laga um ávana- og fíkniefni, auk þess sem annar ákærðu var sakfelldur fyrir vopnalagabrot og brot gegn umferðarlögum.
Ákæruvaldið (
Eyþór Þorbergsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Dominik Adrian Kalfas og Patrycja Klaudia Kosiec (
Karol Walejko lögmaður)
Ákærðu sakfelld fyrir fíkniefnalagabrot.
Ákæruvaldið (
Fríða Thoroddsen aðstoðarsaksóknari)
gegn
Mána Snæ Larsen og Smára Frey Snæbjörnssyni (
Gísli Tryggvason lögmaður)
Ákærðu, sem játaðu brot sín, voru dæmdir annars vegar í 60 daga fangelsi og hins vegar í 45 daga fangelsi fyrir vörslur ávana- og fíkniefna og kannabisplantna, þar af í félagi fyrir ræktun plantnanna um nokkurt skeið. Refsing beggja var bundin almennu skilorði til tveggja ára, auk þess sem kveðið var á um upptöku plantna, fíkniefna og muna.
Ákærði dæmdur í 4 mánaða fangelsi fyrir innflutning á ávana- og fíkniefnum.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Jakob Steinn Stefánsson saksóknarfulltrúi)
gegn
Pétri Steini Gíslasyni (
Grímur Már Þórólfsson lögmaður)
Ákærði var sakfelldur fyrir umferðarlaga-, fíkniefnilaga og þjófnaðarbrot. Var honum gert að sæta fangelsi í 3 mánuði ásamt því að vera sviptur ökuréttindum ævilangt.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Pétur Fannar Gíslason aðstoðarsaksóknari)
gegn
Roger Ray Phea (
Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir tilraun til fíkniefnalagabrots og dæmdur í fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi og fíkniefni gerð upptæk.
Ákærðu, sem játuðu brot sitt, dæmdir í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni og gert að sæta upptöku á efnum og munum.
Málsatvik, lögreglurannsókn máls og framlögð gögn 1. 3 Samkvæmt framlagðri frumskýrsl
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Lína Ágústsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn
Ergys Hamiti
Ákærði sakfelldur fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni, peningaþvætti og brot gegn lögum um útlendinga og dæmdur í 6 mánaða skilorðsbundið fangelsi.
Ákæruvaldið (
Pétur Fannar Gíslason aðstoðarsaksóknari)
gegn
Viktorija Urbonaite og Irmantas Verbickas (
Karl Georg Sigurbjörnsson lögmaður)
Ákærðu dæmd fyrir fíkniefnalagabrot og upptaka dæmd.
Þrír menn sakfelldir fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot með innflutningi á 9000 ml af kókaíni. Var hver þeirra dæmdur til að sæta fangelsi í fimm ár. Gæsluvarðhaldsvist hvers og eins frá 15. nóvember 2025 dregst frá þeirri refsingu.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Pétur Fannar Gíslason aðstoðarsaksóknari)
gegn
Atla Hrafni Guðbergssyni (
Erlendur Þór Gunnarsson lögmaður)
Ákærði dæmdur í tveggja mánaða skilorsðbundið fangelsi fyrir fíkniefnalagabrot og peningaþvætti.
Lögreglustjórinn á Vesturlandi (
Guðfinnur Stefánsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Óskari Þór Þórðarsyni (
Gísli Kr. Björnsson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir að aka í sjötta sinn undir áhrifum ávana- og fíkniefna og fimmta sinn sviptur ökurétti, innan ítrekunartíma í skilningi 3. mgr. 71. gr. almennra hegningarlaga. Þá var ákærða í fjórða sinn gerð refsing fyrir vörslur fíkniefna. Gert að sæta fangelsi í 10 mánuði og ævilöng svipting ökuréttar ákærða áréttuð.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Pétur Fannar Gíslason aðstoðarsaksóknari) gegn
Bojan Bugarski
Ákærði dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir tilraun til fíkniefnalagabrots.
K var gefið að sök stórfellt fíkniefnalagabrot með því að hafa gert tilraun til að taka á móti og hafa í vörslum sínum 2.897,61 grömm af kókaíni, ætluðu til söludreifingar hér á landi í ágóðaskyni, sem meðákærði X flutti til landsins en áður en X afhenti efnin hafði lögregla lagt hald á þau. Í dómi Landsréttar var litið til þess að framburður K hefði verið ótrúverðugur. Í heild sinni væri ólíkindablær á frásögn hans, auk þess sem framburður hans væri óljós, misvísandi og reikull. Þá styddu ný gögn um rannsókn á síma sem K var með þegar hann var handtekinn ekki við framburð hans. Þvert á móti renndu þau frekari stoðum undir framburð X og málatilbúnað ákæruvaldsins um að K hafi haft það hlutverk við innflutning haldlagðra fíkniefna sem honum var gefið að sök í ákæru. Að þessu gættu en að öðru leyti með vísan til forsendna hins áfrýjaða dóms var staðfest niðurstaða hans um að færðar hafi verið fullnægjandi sönnur á þær sakir sem K var borinn sökum um í málinu og væri háttsemi hans réttilega heimfærð til refsiákvæða og staðfest ákvörðun héraðsdóms um refsingu.
W var gefið að sök að hafa staðið að innflutningi á 5.200 ml af amfetamínbasa, ætluðum til söludreifingar í ágóðaskyni, sem barst með póstsendingu frá Póllandi en nafngreindur maður hér á landi var skráður viðtakandi hennar fyrir tilstuðlan W. Í hinum áfrýjaða dómi var W sakfelldur samkvæmt ákæru og gert að sæta fangelsi í fimm ár. Með vísan til forsendna hins áfrýjaða dóms taldi Landsréttur sannað að W hefði staðið að innflutningi efnisins með þeim hætti sem greindi í ákæru. Taldi Landsréttur ekkert fram komið sem fengi hróflað við sönnunarmati héraðsdóms og gætu athugasemdir W við rannsókn málsins, þar með talið um skort á könnun á aðkomu annarra, engu breytt um að það brot sem ákæra lyti að hefði verið fullframið þegar efnið barst með pósti til landsins. Var niðurstaða hins áfrýjaða dóms um sakfellingu W því staðfest og brotið talið réttilega heimfært til 173. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Þá staðfesti Landsréttur einnig niðurstöðu hins áfrýjaða dóms um refsingu W, fangelsi í fimm ár, upptöku og sakarkostnað, en við ákvörðun refsingar var í dómi Landsréttar litið til 1. og 3. töluliðar 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga auk þeirra sjónarmiða sem rakin voru í hinum áfrýjaða dómi.
X, Y og Z voru sakfelldir fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot samkvæmt 173. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940 með því að hafa haft í vörslum sínum í sölu- og dreifingarskyni 2943,38 grömm af MDMA-kristöllum. Z var til viðbótar sakfelldur fyrir brot gegn sama ákvæði með því að hafa haft í vörslum sínum í sölu- og dreifingarskyni 1.781 töflu af MDMA, fyrir fíkniefnalagabrot með því að hafa haft í vörslum sínum ýmis önnur fíkniefni í sölu- og dreifingarskyni sem og fyrir umferðarlagabrot. Þá var Y einnig sakfelldur fyrir fíkniefnalagabrot með því að hafa haft í vörslum sínum nánar tilgreind fíkniefni og vopnalagabrot. Í málinu var annars vegar deilt um sýknukröfu Y vegna fyrrgreinds brots gegn 173. gr. a almennra hegningarlaga og hins vegar ákvörðun refsingar. Með nánar tilgreindum athugasemdum staðfesti Hæstiréttur niðurstöðu hins áfrýjaða dóms um sakfellingu Y. Við ákvörðun refsingar leit Hæstiréttur meðal annars til þess að úr MDMA-kristöllunum hefði mátt framleiða ríflega 23.000 MDMA-töflur og því um að ræða verulegt magn efnis sem og til nýlegra dóma réttarins í sambærilegum málum. Með hliðsjón af því var refsing allra ákærðu þyngd frá því sem ákveðið hefði verið í hinum áfrýjaða dómi og refsing ákærðu X og Y ákveðin fangelsi í þrjú ár en Z fangelsi í þrjú og hálft ár.
Ákærði dæmdur í 6 mánaða fangelsi fyrir innflutning á 386,36 af kókaíni.
Ákærði dæmdur i fangelsi fyrir innflutning á fíkniefnum.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Kamilla Kjerúlf aðstoðarsaksóknari)
gegn
Birgi Óla Birgissyni (
Unnsteinn Örn Elvarsson lögmaður)
Ákærði, sem játaði brot sitt, dæmdur í 60 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir fíkniefnalagabrot.
Ákæruvaldið (
Ásmundur Jónsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Régine Bazile (
Elías Kristjánsson lögmaður)
Ákærða dæmd í 2 mánaða fangelsi fyrir innflutning á fíkniefnum
Lögreglustjórinn á Suðurlandi (
Ólafur Hallgrímsson fulltrúi)
gegn
Jóhanni Helga Í. Kristjánssyni (
Sigurður Sigurjónsson lögmaður)
Ákærði dæmdur til refsingar vegna fíkniefnabrots og til að sæta upptöku efna, áhalda og tækja.
Ákæruvaldið (
Valborg Steingrímsdóttir saksóknarfulltrúi)
gegn
Okey Emmanuel Ojidelu (
Ólafur Valur Guðjónsson lögmaður)
Ákærði sakfelldur og dæmdur í 20 mánaða fangelsi, að frádreginni gæsluvarðhaldsvist, fyrir tilraun til stórfellds fíkniefnabrots og peningaþvætti. Upptaka fjármuna.
Ákærði sakfelldur fyrir líkamsárás fyrir að hafa slegið brotaþola í höfuðið.
Ákærði dæmdur í fangelsi fyrir innflutning á fíkniefnum.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Kamilla Kjerúlf aðstoðarsaksóknari)
gegn
Halit Kalemasi (
Gunnar Gíslason lögmaður)
Maður sem játaði brot sitt sakfelldur fyrir fíkniefnalagabrot. Dæmdur til 30 daga fangelsisvistar, skilorðsbundið, og til að sæta upptöku á efnum, síma og peningum.
Ákæruvaldið (Ásmundur Jónsson aðstoðarsaksóknari) gegn
Vilhjálmi Stefánssyni (enginn)
Ákærði dæmdur í 4 mánaða fangelsi, skilorðsbundið í 2 ár fyrir brot á lögum um ávana- og fíkniefni.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Pétur Fannar Gíslason aðstoðarsaksóknari)
gegn
X (
Leó Daðason lögmaður)
Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem L var veitt heimild til að rannsaka rafrænt efnisinnihald tveggja farsíma X sem lögregla hafði lagt hald á.
Héraðssaksóknari (
Valborg Steingrímsdóttir saksóknarfulltrúi)
gegn
Baldvini Þór Gunnþórssyni (
Gunnhildur Pétursdóttir lögmaður)
Ákærði, sem játaði brot sitt, dæmdur í 10 mánaða fangelsi fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Karen Lárusdóttir saksóknarfulltrúi) gegn
Daníel Þór Jónssyni
Ákærði var sakfelldur fyrir fíkniefnalagabrot. Var honum gert að sæta fangelsi í 3 mánuði, skilorðsbundið til tveggja ára.
Ákæruvaldið (
Ásmundur Jónsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Valentin Lupusoru (
Kári Valtýsson lögmaður)
Ákærði dæmdur í fangelsi fyrir innflutning á fíkniefnum.
Héraðssaksóknari (
Haukur Gunnarsson saksóknarfulltrúi)
gegn
Robert Gomer Grochola (
Stefán Ragnarsson lögmaður)
Ákærði, sem játaði brot sitt, dæmdur í 20 mánaða fangelsi, þar af 17 mánuði skilorðsbundið í tvö ár, og til þess að sæta upptöku fíknefna og muna fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot.
Ákærði dæmdur í 7 mánaða fangelsi fyrir innflutning á samtals 469,45 g af kókaíni með styrkleika 68-71%.
Ákæruvaldið (
Ásmundur Jónsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Marius Daniel Bancila (
Elías Kristjánsson lögmaður)
Ákærði dæmdur í 9 mánaða fangelsi fyrir stórfellt fíkniefnlagabrot fyrir innflutning á samtals 684,32 g af kókaíni, með styrkleika 86%.
SK, BÞS, SBS og AX voru ákærðir fyrir skipulagða brotastarfsemi og stórfellt fíkniefnalagabrot, sbr. 173. gr. a og 175. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940, með því að hafa staðið saman að innflutningi á 5.733,60 g af metamfetamín kristöllum með 81% styrkleika í metamfetamínbasa sem samsvaraði 100% af amfetamínklóríði, ætluðu til söludreifingar hér á landi. Voru efnin falin í bifreið sem flutt var inn til landsins. Við komu til landsins voru efnin fjarlægð og gerviefni sett í þeirra stað áður en ákærðu var afhent bifreiðin. X var gefin að sök hlutdeild í tilraun til stórfellds fíkniefnalagabrots með því að hafa 24. október 2024 sótt bifreiðina ásamt SBS og BÞS, vitandi að fíkniefni væru í bifreiðinni, og þannig veitt þeim liðsinni með stuðningi og hvatningu. Þá var ERR sökuð um hlutdeild í tilraun til stórfellds fíkniefnalagabrots með því að hafa 25. október 2024 aðstoðað SK og AX við að fjarlægja fíkniefnin úr bifreiðinni. Voru ætluð brot X og ERR talin varða við 173. gr. a almennra hegningarlaga, sbr. 20. og 22. gr. sömu laga. Með dómi héraðsdóms voru SK, BÞS, SBS og AX sakfelldir fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot en sýknaðir af þeim hluta ákæru er laut að skipulagðri brotastarfsemi. Þá var ERR sakfelld samkvæmt ákæru en X var sýknaður af kröfum ákæruvaldsins. Fyrir Landsrétti voru SK, BÞS, SBS og AX allir sakfelldir fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot. Sömuleiðis var staðfest niðurstaða héraðsdóms um sakfellingu ERR samkvæmt ákæru. Landsréttur féllst á það með héraðsdómi að ekki yrði talið að X hefði á nokkurn hátt átt þátt í því að brotið var framið, enda hafi það að stærstum hluta verið yfirstaðið þegar tilgreind samtöl áttu sér stað. Ekki væri hægt að ljá neitt í háttsemi eða orðum X slíkt vægi að það hafi styrkt áform BÞS og SBS. X hafi auk þess á þessum tíma verið umkomulaus, búið með samþykki BÞS og SBS í bifreið þeirra og ekki átt í önnur hús að venda. Yrði ekki gerð sú krafa að X við þær aðstæður yfirgæfi bifreiðina þótt hugsanlega hafi grunur vaknað með honum að í hinni innfluttu bifreið væru fíkniefni. Var niðurstaða héraðsdóms um sýknu X staðfest. Þá tók Landsréttur til skoðunar hvort háttsemi SK, BÞS, SBS og AX teldist vera skipulögð brotastarfsemi. Rétturinn taldi að ákæruvaldið hefði hvorki leitt sönnur, svo hafið væri yfir skynsamlegan vafa, að tilvist skipulagðra brotasamtaka í tilfelli ákærðu né að þeir hafi haft ásetning til að fremja brot sem lið í starfsemi skipulagðra brotasamtaka í skilningi 175. gr. a almennra hegningarlaga. Voru SK, BÞS, SBS og AX því sýknaðir af ákæru fyrir brot gegn því ákvæði. Við ákvörðun refsingar var litið til þess að um var að ræða samverknað SK, BÞS, SBS og AX með verkskiptri aðild þar sem þáttur hvers og eins var mismikill. Þá var litið til þess að ásetningur þeirra og ERR hafi verið einbeittur. Enn fremur var litið til þess að um var að ræða mikið magn hættulegra fíkniefna og veruleg hætta á að þau færu í sölu og dreifingu til ótiltekins fjölda manna hér á landi. Við refsingu þeirra var því litið til 1., 3., 5., 6. og 8. töluliðar 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga og einnig 2. mgr. 70. gr. sömu laga varðandi SK, BÞS, SBS og AX. Einnig var litið til sakaferils SK og BÞS við ákvörðun refsingar þeirra. Var SK gert að sæta fangelsi í átta ár, BÞS í fjögur ár, SBS í þrjú og hálft ár, AX í fimm og hálft ár og ERR skilorðsbundið í 10 mánuði. Loks voru fíkniefnin og tilgreindir munir gerð upptæk..
Ákæruvaldið (
Ásmundur Jónsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Halldóri Heiðari Hallssyni (
Unnsteinn Örn Elvarsson lögmaður)
Sakfellt fyrir fíkniefnalagabrot. Ákærði sviptur málflutningsréttindum.