Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjaness

Mál nr. S-1019/2026:

Ákæruvaldið

(Ásmundur Jónsson aðstoðarsaksóknari)

gegn

Ronesto Claudio Pinas

(Halldóra Aðalsteinsdóttir lögmaður)

Ákærði dæmdur í 4 mánaða fangelsi fyrir innflutning á ávana- og fíkniefnum.

Dómur

Mál þetta var þingfest og dómtekið 13. apríl 2026. Málið er höfðað með ákæru Lögreglustjórans á Suðurnesjum 9. apríl 2026 á hendur ákærða, Ronesto Caludio Pinas, ríkisborgara Súrínam, fæddum […] 1992, fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni, með því að hafa mánudaginn 9. mars 2026, staðið að innflutningi á samtals 232,59 g af kókaíni með styrkleika 56-66% og 202,90 g af hassi, ætluðu til söludreifingar hér á landi í ágóðaskyni en fíkniefnin flutti ákærði til Íslands sem farþegi með flugi […], frá París, Frakklandi, til Keflavíkurflugvallar, falin innvortis. Er háttsemin talin varða við 2. gr., sbr. 5. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974 og þess krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar. Þá er krafist upptöku á ofangreindum 232,59 g af kókaíni og 202,90 g af hassi með vísan til 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974, sbr. 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001.

Við þingfestingu máls játaði ákærði sök samkvæmt ákæru og gekkst greiðlega við því að hafa greint sinn og með tilgreindum hætti staðið að innflutningi til Íslands á hassi og kókaíni með tilgreindan styrkleika. Var því farið með málið að hætti 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og málið dómtekið án frekari sönnunarfærslu eftir að sækjandi og verjandi höfðu tjáð sig um lagaatriði máls og ákvörðun viðurlaga. Af hálfu ákærða er krafist vægustu refsingar sem lög leyfa og að til frádráttar dæmdri refsingu komi að fullri dagatölu gæsluvarðhald frá 10. mars 2026. Verjandi krefst þóknunar samkvæmt tímaskýrslu.

Með játningu ákærða fyrir dómi, sem samrýmist framburði hans hjá lögreglu og öðrum rannsóknargögnum, er sannað að hann hafi gerst sekur um þá háttsemi sem hann er borinn í ákæru og þar þykir rétt heimfærð til refsiákvæða.

Ákærði hefur ekki áður orðið uppvís að refsiverðri háttsemi. Af fyrirliggjandi gögnum verður ekki ráðið að ákærði hafi verið eigandi nefndra fíkniefna eða tekið þátt í skipulagningu á kaupum og innflutningi þeirra til Íslands með öðrum hætti en þeim að samþykkja að flytja efnin til landsins gegn greiðslu. Verður litið til þessara atriða við ákvörðun refsingar, sem og til greiðrar játningar ákærða hjá lögreglu og fyrir dómi. Á hinn bóginn verður ekki horft fram hjá því að ákærði flutti til landsins talsvert magn af kókaíni og hassi, ætluðu til söludreifingar hér á landi í ágóðaskyni. Með hliðsjón af framansögðu, aldri ákærða og dómaframkvæmd Landsréttar í málum nr. 874/2023 nr. 23/2024 nr. 226/2024 og nr. 228/2024 þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í fjóra mánuði. Til frádráttar þeirri refsingu komi að fullri dagatölu gæsluvarðhald ákærða frá 10. mars 2026, sbr. 76. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Samkvæmt greindri niðurstöðu er fallist á upptökukröfu ákæruvaldsins eins og hún er sett fram í ákæru. Þá ber að dæma ákærða til greiðslu alls sakarkostnaðar, en til hans telst 316.482 króna útlagður kostnaður ákæruvaldsins, þóknun Halldóru Aðalsteinsdóttur verjanda ákærða á rannsóknarstigi máls og hér fyrir dómi. Með hliðsjón af eðli og umfangi máls og að teknu tilliti til tímaskýrslu verjanda og viðmiðunarreglna Dómstólasýslunnar nr. 1/2026 þykir þóknun verjanda hæfilega ákveðin 706.800 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti og aksturskostnaður hennar 68.544 krónur.

Dómurinn er kveðinn upp af Sóleyju Ólöfu Rún Guðmarsdóttur aðstoðarmanni dómara.

Dómsorð:

Ákærði, Ronesto Claudio Pinas, sæti fangelsi í fjóra mánuði. Til frádráttar þeirri refsingu komi að fullri dagatölu gæsluvarðhald ákærða frá 10. mars 2026.

Ákærði sæti upptöku á 232,59 grömmum af kókaíni og 202,90 grömmum af hassi.

Ákærði greiði 1.091,826 krónur í sakarkostnað, þar með talda 706.800 króna þóknun Halldóru Aðalsteinsdóttur verjanda síns, sem og 68.544 króna aksturskostnað hennar.

Sóley Ólöf Rún Guðmarsdóttir

Heimildaskrá