Héraðsdómur Reykjaness
Dómur 13. maí 2026.
Mál nr. S-860/2026:
Ákæruvaldið
(Haukur Gunnarsson saksóknarfulltrúi)
gegn
Enaimer Enrique Naranjo Julio,
Roman Belousov,
(Guðmundur Njáll Guðmundsson lögmaður)
X,
(Sveinn Andri Sveinsson lögmaður)
Y,
Z,
Þ,
(Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður)
Æ og
Ö
Lykilorð
Fangelsi. Fíkniefnalagabrot. Frávísun að hluta. Hlutdeild. Peningaþvætti. Sýkna að hluta. Upptaka.
Útdráttur
Tveir ákærðu sakfelldir fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot og peningaþvætti. Annar þeirra einnig sakfelldur fyrir vörslur fíkniefna. Einn ákærða sýknaður af hlutdeild í broti þeirra og ákærðu varðandi hlutdeild annarra fimm vísað frá dómi.
Mál þetta, sem dómtekið var 27. apríl 2026, að lokinni aðalmeðferð, er höfðað með ákæru héraðssaksóknara, dags. 19. mars 2026, á hendur ákærðu Enaimer Enrique Naranjo Julio, f. 2. júlí 1975, ríkisborgara Spánar, Roman Belousov, kt. 000000-0000, Ö, kt. 000000- 0000, Æ, kt. 000000-0000, Y, kt. 000000-0000, X, kt. 000000-0000, Z, kt. 000000-0000, og Þ, kt. 000000-0000.
Málið er höfðað á hendur ákærðu fyrir eftirgreind brot:
1. á hendur ákærðu Enaimer og Roman fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot, með því að hafa, í félagi, staðið að innflutningi á samtals 2.581,49 grömmum af kókaíni, með styrkleika 86-88%, ætluðu til söludreifingar í ágóðaskyni hér á landi en ákærðu veittu fíkniefnunum viðtöku úr hendi tilgreinds aðila, sem hafði flutt fíkniefnin til Íslands, fimmtudaginn 20. nóvember 2025, með flugi […] frá Amsterdam í Hollandi til Keflavíkurflugvallar, falin í ferðatösku en fíkniefnin voru geymd á hótelherbergi nr. 102 á […] í […] í Reykjavík þar til ákærðu móttóku þau að kvöldi föstudagsins 21. nóvember 2025 og fluttu þau í […] í […] [á að vera […]] í Reykjavík þar sem lögregla fann fíkniefnin og lagði hald á þau laugardaginn 22. nóvember.
Telst brot þetta varða við 173. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
2. á hendur ákærða Roman fyrir peningaþvætti, með því að hafa um nokkurt skeið og allt til laugardagsins 22. nóvember 2025, geymt, tekið við og aflað sér ávinnings af sölu og dreifingu ótiltekins magns ávana- og fíkniefna og eftir atvikum öðrum auðgunarbrotum, samtals að fjárhæð 1.450.000 krónur en lögregla fann og lagði hald á umrædda fjármuni við húsleit í […].
Telst brot þetta varða við 1. mgr., sbr. 2. mgr., 264. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
3. á hendur ákærða Roman fyrir fíkniefnalagabrot, með því að hafa, laugardaginn 22. nóvember 2025, á lögreglustöðinni við Hverfisgötu 113-115 í Reykjavík, haft í vörslum sínum 5,80 g af kókaíni sem lögregla fann við öryggisleit á ákærða.
Telst brot þetta varða við 2. gr., sbr. 5. og 6. gr., laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974.
4. á hendur ákærða Enaimer fyrir peningaþvætti, með því að hafa um nokkurt skeið og allt til föstudagsins 21. nóvember 2025, geymt, tekið við og aflað sér ávinnings af sölu og dreifingu ótiltekins magns ávana- og fíkniefna, samtals að fjárhæð 811.000 krónur og EUR 20 en lögregla fann og lagði hald á umrædda fjármuni við öryggisleit á ákærða þegar hann var handtekinn í […] í Reykjavík laugardaginn 22. nóvember 2025.
Telst brot þetta varða við 1. mgr., sbr. 2. mgr., 264. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
5. á hendur ákærðu Ö, Æ, X, Z, Y og Þ fyrir hlutdeild í stórfelldu fíkniefnalagabroti meðákærðu Enaimer og Roman en ákærði Ö hafði það hlutverk að útvega íbúð í Reykjavík fyrir meðákærðu Enaimer og Roman en ákærði Ö fól ákærða Æ að leigja íbúð í Reykjavík en ákærði Æ bað ákærða Z að leigja íbúð 303 í […] í Reykjavík í gegnum vefsíðuna www.booking.com og greiða fyrir leiguna á íbúðinni en ákærði Æ millifærði leigufjárhæðina á reikning ákærða Z. Ákærði Ö fól svo ákærða Y að afhenda íbúðina föstudaginn 21. nóvember 2025 og koma vigt í íbúðina og loks fól ákærði Ö ákærða X að sækja þrjú kíló af kókaíni og 1.250.000 krónur í reiðufé í íbúðina að kvöldi föstudagsins [á að vera laugardagsins] 22. nóvember 2025. Ákærði Þ fór inn í íbúðina kl. 20:41 að kvöldi föstudagsins [á að vera laugardagsins] 22. nóvember 2025 að undirlagi óþekkts aðila og dvaldist þar í 27 mínútur áður en hann hvarf á brott.
Telst brot þetta varða við 173. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 1. mgr. 22. gr. sömu laga.
Þess er krafist að ákærðu verði dæmdir til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.
Þess er krafist að gerð verði upptæk með dómi samtals 2.587,29 grömm af kókaíni, sem hald var lagt á, með vísan til 6. mgr. 5. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974. Þá er þess krafist að gerðar verðar upptækar 1.415.000 krónur (munaskr.nr. 201681), sem fundust við leit í íbúð 303 í [...] í Reykjavík og 811.000 krónur og 20 evrur (munaskr.nr. 201679), sem fundust á ákærða Roman við handtöku, með vísan til 1. mgr. 69. gr. og 1. mgr. 69. gr. b almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Þá er krafist upptöku á einni grammavog af gerðinni Zassenhaus, einni grammavog af gerðinni ProScale, einni grammavog af gerðinni Haribo og einni OBH Nordica plöstunarvél en munirnir voru notaðir við framningu brotsins, sbr. 7. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 um ávana- og fíkniefni. Loks er þess krafist að gerðir verði upptækir OPPO-farsími (munur nr. 686227), iPhone 7 farsími (munur nr. 686652), Samsung-farsími (munur nr. 686742), Redmi-farsími (munur nr. 686743), Redmi-farsími (munur nr. 686744), iPhone-farsími (munur nr. 686764), Nokia-farsími (munur nr. 686765), NOVA SIM kort (munur nr. 686766), Samsung-fartölva (munur nr. 686767) og iPhone-farsími (munur nr. 687306) en farsímarnir og fartölvan voru notuð við framningu brotsins, sbr. 1. tölulið 1. mgr. 69. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
II
Málavextir.
II.1. Frumskýrsla lögreglu.
Tollgæslan tilkynnti lögreglu um komu ákærða Enaimer hingað til lands frá Frankfurt 21. nóvember 2025 en tilgangur ferðar hans til Íslands var talinn grunsamlegur. Lögregla fylgdist því með ferðum hans frá því að hann kom út úr flugstöðinni á Keflavíkurflugvelli um kl. 17:00. Hann fór þaðan með bifreiðinni […] sem var merkt sem leigubifreið. Bifreiðinni var ekið að […] í Reykjavík þar sem ákærði Enaimer yfirgaf bifreiðina. Bifreiðinni var skömmu síðar ekið þaðan og að fjölbýlishúsinu að [...] þar sem ákærði Enaimer fór úr bifreiðinni og inn á stigagang hússins. Lögregla reyndi að staðsetja ákærða Enaimer í íbúð í húsinu og það tókst daginn eftir.
Bifreiðin […] kom aftur að [...] seinna um kvöldið og þá var ákærði Roman farþegi í henni og fór hann inn á stigagang hússins. Skömmu seinna komu ákærðu Enaimer og Roman út úr húsinu og fóru í bifreiðina […] og var ákærði Enaimer með bláan bakpoka. Ákærði Enaimer hitti síðan mann fyrir utan […] en fór síðan ásamt ákærða Roman aftur að [...] og fór ákærði Enaimer þar inn með bláa bakpokann en ákærði Roman fór á brott í bifreiðinni […].
Daginn eftir, þ.e. 22. nóvember 2025, hélt lögregla áfram að fylgjast með ferðum ákærða Enaimer. Sást til hans þar sem hann var að ræða við karlmann á stigagangi hússins við [...] og þá náði lögregla að staðsetja hann í íbúð 303. Leigutaki íbúðarinnar var ákærði Z og var hann með íbúðina á leigu frá 21. til 24. nóvember 2025. Fékk lögregla heimild til húsleitar í íbúðinni með dómsúrskurði. Ákærði Roman kom að [...] með bifreiðinni […] og fór inn á stigagang hússins. Hann kom skömmu seinna út og gekk um hverfið talandi í farsíma og taldi lögregla að hann hafi hitt óþekkta einstaklinga á göngunni. Á þeim tíma var talið að ákærði Enaimer hafi verið í íbúðinni.
Ákærðu Enaimer og Roman komu síðan gangandi að [...] en lögreglan hafði ekki séð þá fara þaðan. Skömmu seinna fóru þeir aftur á brott og þá var ákveðið að athuga aðstæður í íbúð 303. Þar voru á stofuborði tveir stórir zip-lock pokar með ætluðum fíkniefnum og þar voru einnig dúkahnífur, einnota hanskar, eldhúshnífur og tvær vogir. Ummerki bentu til þess að þar væru fíkniefni umpökkuð í smærri einingar. Í fataskáp voru tveir fíkniefnakubbar með tölustafnum einn og var talið að þar væri um að ræða eitt kg. Þar sem ekki var hægt að skipta efnunum út fyrir önnur efni var ekki annað talið fært en að handtaka ákærðu Enaimer og Roman. Þeir höfðu gengið að [...] en þegar þeir komu aftur til baka að [...] og voru að stíga inn í íbúð 303 voru þeir handteknir.
Við öryggisleit á ákærða Roman fundust í buxnavasa í reiðufé 811.000 íslenskar krónur og 20 evrur. Þá fundust einnig á honum 5,80 grömm (2,93 + 2,87) af kókaíni í tveimur smelluláspokum.
II.2. Húsleit í íbúð 303 að [...].
Húsleitin fór fram 22. nóvember 2025 en um er að ræða tveggja herbergja íbúð. Í fataskáp í svefnherbergi fundust tvær pakkningar, sem í daglegu tali eru kallaðar ,,brick“, og einnig ein minni pakkning. Um var að ræða samtals 2.054,38 grömm (1.002,36 + 1.002,61 + 49,41). Á stofuborði voru fíkniefni og ummerki bentu til að búið væri að opna umbúðir um fíkniefni og var töluvert af þeim í ruslapoka á gólfinu. Á stofuborðinu voru einnig tvær vogir og var hægt að vigta allt að fimm kíló á annarri þeirra en minni þyngd á hinni. Fjöldi smelluláspoka, af ýmsum stærðum og gerðum, var í bakpoka og í fjölnotapoka á gólfinu og í honum var einnig lofttæmingarvél. Í vasa framan á bakpokanum voru peningaseðlar, þ.e. 1.415.000 íslenskar krónur. Allt framangreint var haldlagt og einnig kókflaska og þrír sígarettustubbar til frekari rannsóknar með tilliti til lífsýna. Vettvangur var ljósmyndaður af tæknideild lögreglu.
Húsleit fór aftur fram í íbúðinni 24. nóvember 2025 en ákærði Enaimer átti að skila íbúðinni þennan dag. Þá var búið að skemma ýmislegt í íbúðinni. Bakhlið á fataskáp í svefnherbergi var brotin, hluti af eldhúsinnréttingu hafði verið losaður og skúffa fyrir ofan bakarofn var laus. Þá var mikil óreiða á öllu í íbúðinni. Við leitina var lagt hald á tannbursta, hníf, sem var líklega notaður við að brjóta bakhliðina á fataskápnum, fatnað, hleðslutæki, dúkahníf, álpappír og hanska. Vettvangur var ljósmyndaður.
II.3. Haldlögð fíkniefni og rannsókn á þeim.
Í fataskáp í svefnherbergi í íbúðinni í [...] voru tvær pakkningar með kókaíni og í annarri þeirra reyndist efnið vera 1.002,36 grömm en í hinni 1.002,61 gramm og í þriðju pakkningunni reyndist kókaínið vera 49,41 gramm. Samtals var því um að ræða 2.054,38 grömm af kókaíni. Sýni voru send úr öllum pakkningunum til Rannsóknastofu Háskóla Íslands í lyfja- og eiturefnafræði. Efnapróf bentu til þess að kókaínið væri að mestu á formi kókaínklóríðs. Styrkur kókaíns í fyrsta sýninu reyndist vera 88%, sem samsvarar 99% af kókaínklóríði. Styrkur kókaíns í hinum tveimur sýnunum reyndist vera 87%, sem samsvarar 97% af kókaínklóríði. Farið var fram á það við rannsóknastofuna að hún léti í ljós álit á því hversu mikið magn af kókaíni í neyslustyrkleika mætti vinna úr 2.054,38 grömmum úr umræddum efnasýnum. Í matsgerð rannsóknastofunnar var miðað við 87% kókaín. Þar segir að neyslustyrkleiki kókaíns hér á landi hafi ekki verið rannsakaður sérstaklega og vitað sé að neyslustyrkleiki fíkniefna geti verið breytilegur frá einu landi til annars, frá ári til árs og jafnvel milli borga í sama landi. Í útreikningunum var gengið út frá tölum um neyslustyrkleika kókaíns í Danmörku en hann hafi að meðaltali verið 76% á landsvísu á árinu 2023. Tekið er fram að mikill breytileiki hefur verið á neyslustyrkleika kókaíns þar í landi frá aldamótum. Hann hafi verið hæstur árið 2003 eða 76% en lægstur árið 2007 eða 16%. Niðurstaða í matsgerðinni er sú að úr 2.054,38 grömmum af dufti, sem inniheldur 87% kókaín, sé samkvæmt ofangreindum forsendum hægt að búa til 2.054,38 x 87/76 = 2.351 gramm af efni sem væri 76% að styrk. Gengið er út frá því að efnið sé þynnt með óvirku dufti, eins og t.d. laktósa, og ekkert fari til spillis.
Á borðstofuborði voru tvennar svartar plastumbúðir með samtals 527,11 grömmum af kókaíni (502,57 + 24,54). Samkvæmt matsgerð rannsóknastofunnar var efnið í hvorutveggja umbúðunum af sama styrkleika, þ.e. styrkur kókaíns í sýnunum var 86% sem samsvarar 96% af kókaínklóríði. Miðað við sömu forsendur og lýst er hér að framan er það niðurstaða rannsóknastofunnar að úr þessu magni af efninu megi framleiða 596 grömm af efni sem væri 76% að styrk.
Við handtöku á ákærða Roman reyndist hann vera með á sér tvo smelluláspoka með hvítu efni sem reyndist vera kókaín, samtals 5,80 grömm (2,93 + 2,87). Samkvæmt matsgerð rannsóknastofunnar var kókaínið að mestu á formi kókaínklóríðs og styrkur kókaíns í öðru sýninu var 89% sem samsvarar 100% af kókaínklóríði en í hinu sýninu var styrkur kókaíns 88% sem samsvarar 99% af kókaínklóríði.
II.4. Rannsókn hjá Nationellt Forensiskt Centrum (NFC).
Í janúar 2026 voru send til NFC lífsýni vegna rannsóknar málsins. Um var að ræða þrjú sýni af hanska og tvö af tannbursta. Samanburðarsýni frá ákærðu Enaimer og Roman voru einnig send. Var þess óskað að ef lífsýni kæmu fram yrðu þau borin saman við samanburðarsýnin.
Í báðum sýnunum af tannburstanum og í einu sýni af hanskanum komu fram DNA-snið sem voru samkennd við DNA-snið ákærða Enaimer.
II.5. Annað.
Leigutaki að íbúð 303 að [...] í Reykjavík þegar málið kom upp var ákærði Z.
Síðdegis 21. nóvember 2025 þegar lögregla var að fylgjast með ferðum ákærðu Enaimer og Roman kom ákærði Y í […] og reyndi ítrekað að komast inn í íbúð 303 en virtist vera með rangt öryggisnúmer að íbúðinni. Hann hélt á hvítum poka og yfirgaf húsið í skamma stund en kom síðan aftur og var þá enn þá með pokann. Hann sló öryggisnúmer að íbúðinni nokkrum sinnum inn án árangurs en að lokum tókst það. Ákærði Y var inni í húsinu í 45 mínútur en fór þá út. Þá kom ákærði Enaimer ásamt manni að nafni Andris inn í anddyri hússins en skömmu seinna kom ákærði Y og hittust þeir í anddyrinu. Þeir ræddu saman og fram kom hjá þeim að þeir væru að fara í íbúð 303.
Við húsleit á heimili Y var meðal annars lagt hald á meinta kannabisplöntu, ætluð fíkniefni, strigaskó og úlpu. Skórnir og úlpan voru eins og þeir skór og úlpa sem Y var í þegar hann kom að [...].
Eftir að ákærðu Enaimer og Roman voru handteknir sást ákærði X koma á stigaganginn í [...] og skömmu seinna var reynt að komast inn í íbúð 303 en ítrekað slegið inn rangt öryggisnúmer en að lokum var rétt númer slegið inn. Ákærði X var í 11 mínútur inni í húsinu en skömmu eftir að hann var farinn kom ákærði Þ í húsið og talaði við erlendan aðila í síma í anddyri þess. Þá var reynt að komast inn í íbúð 303 en rangt öryggisnúmer slegið inn í fyrstu en síðan tókst það. Tæplega 30 mínútum seinna yfirgaf ákærði Þ húsið.
Á yfirliti bankareiknings ákærða Z voru tvær innborganir á um 30 mínútum frá ákærða Æ 21. nóvember 2025 að fjárhæð 50.000 krónur og 20.000 krónur. Nokkrum mínútum eftir seinni greiðsluna voru greiddar út af reikningi ákærða Z 66.320 krónur á www.booking.com. Ákærði Æ hafði skömmu áður lagt inn á reikning sinn í hraðbanka reiðufé að fjárhæð 60.000 krónur og 10.000 krónur.
Við rannsókn á farsíma ákærða Enaimer fannst myndband þar sem sést töluvert magn af íslensku reiðufé sem hafði verið raðað á borð. Miðað við ljósmyndir sem teknar voru við húsleit á heimili Roman voru myndirnar af reiðufénu teknar þar.
Í farsíma ákærða Z mátti sjá að það voru mikil samskipti á milli hans og ákærða Æ á Facebook Messenger 21. nóvember 2025 eða 62 tengingar. Þar voru einnig samskipti ákærða Z vegna leigu á íbúð 303. Í síma ákærða Æ fundust skilaboð 21. nóvember 2025 frá ákærða Ö þar sem hann er að biðja ákærða Æ um að leigja fyrir sig íbúð til mánudags. Ákærði Æ sendi einnig nafnið Naranjo Julio en seinni hluti nafns ákærða Enaimer er Naranjo Julio. Æ segist græja þetta með íbúðina og á sama tíma er hann í samskiptum við ákærða Z um leigu á íbúðinni og fær m.a. send skjáskot um staðfestingu leigunnar og tæknilegar upplýsingar um dvölina.
Í tölvu ákærða Ö voru myndir af fíkniefnum sem talið er að séu efnin sem voru í íbúð 303 í [...]. Myndin er frá því um kvöldið 21. nóvember 2025 og umbúðirnar um fíkniefnin sem þar sjást eru eins og umbúðirnar um efnin sem lögregla lagði hald á daginn eftir í íbúð 303.
Við rannsókn á síma ákærða X mátti sjá að hann var í samskiptum við aðila með nafnið KEIKO á samskiptaforritinu Signal um kl. 20:00 22. nóvember 2025. KEIKO sendi ákærða X meðal annars tvær myndir með öryggisnúmerinu til að komast inn í íbúð 303 og tók ákærði X skjáskot af myndunum samkvæmt fyrirmælum KEIKO. Fram kom í málinu að ákærði Ö notaði nafnið KEIKO á Signal.
III
Framburðir ákærðu hjá lögreglu.
Ákærði, Enaimer Enrique Naranjo Julio, gaf fyrst skýrslu hjá lögreglu 25. nóvember 2025. Hann lýsti yfir sakleysi og kvaðst hafa komið hingað til lands vegna þess að ákærði Roman hafi boðið ákærða Enaimer hingað og hér væri auðvelt að fá vinnu. Ákærði Enaimer sagði að hann og ákærði Roman væru vinir og búnir að þekkjast lengi, eða í fimm eða sex ár. Þeir hafi kynnst í Barcelona og hist bæði hér á landi, þegar ákærði Enaimer og kona hans hafi komið hingað, og á Spáni þegar ákærði Roman hafi komið þangað. Í þetta skipti hafi ákærði Enaimer ætlað að vera hér í nokkra daga. Hann hafi ekki átt bókað flug til baka en hann hafi sjálfur bókað flugið hingað til lands. Vinur hans hafi hins vegar greitt fargjaldið með peningum frá ákærða og honum hafi þótt þetta góð lausn. Hann hafi ekki getað gist hjá ákærða Roman hér á landi og það hafi tekið tíma að finna gistingu fyrir ákærða Enaimer en hann hafi fengið gistingu í bílskúr hjá vini ákærða Roman sem ákærði Enaimer þekki ekki og hann vissi ekki hvar hann byggi. Ákærði Enaimer kvaðst hafa beðið allan laugardaginn eftir ákærða Roman og því ekki gert mikið en þeir hafi farið út að borða.
Ákærði Enaimer kvaðst hafa verið að koma í fyrsta sinn í [...] þegar hann og ákærði Roman hafi verið handteknir en hann hafi beðið ákærða Enaimer að koma með sér þangað og hann hafi ekki átt neitt í íbúðinni. Þar á undan hafi þeir verið að rúnta um bæinn en ákærði Enaimer kvaðst ekki hafa vitað hvers vegna þeir hafi farið í [...] og hann vissi ekki hver ætti íbúðina. Ákærði Enaimer hafi lesið öryggisnúmerið að íbúðinni í farsíma ákærða Roman til þess að komast inn. Ákærði Enaimer kvaðst ekkert vita um fíkniefnin sem fundust í íbúðinni og hann hafi ekki átt neitt þar inni. Ákærði Enaimer heimilaði lögreglu að skoða farsíma sinn og kvaðst vera í miklu sambandi við ákærða Roman á WhatsApp og hann væri þar vistaður undir sínu nafni. Ákærði Enaimer gaf aftur skýrslu hjá lögreglu 8. desember 2025. Hann kvaðst í fyrstu ekki vilja breyta fyrri framburði sínum. Á laugardeginum hafi hann og ákærði Roman ásamt þriðja manni verið að keyra um bæinn og síðan farið í [...]. Hann kvaðst síðan hafa farið nokkrum sinnum þangað áður en hann og ákærði Roman voru handteknir en engin eiturlyf hafi verið inni í myndinni. Hann kvaðst áður hafa sagt að hann hafi bara farið einu sinni í íbúðina vegna þess að hann væri hræddur. ,,Þeir“ hafi dælt miklu af lyfjum í ákærða Enaimer og hann hafi verið ruglaður en þegar hann hafi farið í [...] hafi hann alltaf farið með ákærða Roman. Þegar þeir hafi farið þangað hafi ákærði Enaimer ekki alltaf farið inn með ákærða Roman heldur beðið tvisvar sinnum úti í bifreið meðan ákærði Roman hafi farið inn. Þegar ákærða Enaimer var kynnt að hann hefði ekki alltaf farið inn með ákærða Roman kvaðst hann hafa skýrt á annan veg frá vegna þess að hann væri hræddur. Þegar ákærði Enaimer hafi farið einn inn í [...] hafi það verið samkvæmt skipun frá ,,þeim“ og ,,þeir“ hafi viljað losna við hann. Ákærði kvaðst hafa farið á [...] vegna þess að meðlimur fjölskyldunnar hafi verið á ferðalagi hér og beðið ákærða að útvega sér úlpu eða jakka. Reyndar hafi þetta verið afi manns sem hafi unnið með ákærða á rakarastofu og ákærði hafi hitt hann í anddyri hótelsins. Þegar honum var kynnt að hann hefði farið inn á herbergi á hótelinu sagði hann það rétt og hann hafi verið að ljúga. Ákærði Enaimer kvaðst þá eftir myndu skýra rétt frá og sagði að þessi maður héti A eða Alfredo.
Ákærði Enaimer kvaðst hafa verið að fara með pening í lokuðu umslagi til A eða Alfredo en maðurinn sem hafi verið á keyrslu með ákærðu Enaimer og Roman og ákærði Roman hafi látið ákærða Enaimer hafa umslagið. Hann kvaðst ekki vita hversu mikið af peningum hafi verið í umslaginu og honum hafi verið sagt að fara með peningana til mannsins og það hafi legið ljóst fyrir að ákærði hafi ekki átt að spyrja neins. Hann kvaðst vera mjög hræddur við ákærða Roman og þennan mann vegna þess að ákærði Enaimer skuldaði þeim pening. Einhver hafi komið til hans og verið með hótanir og hann kvaðst nota fíkniefni. Hann kvaðst ekkert vita um fíkniefnin sem hefðu fundist í [...] og ekki hvernig þau hefðu komist þangað. Ákærði Roman hafi átt bakpokann sem ákærði Enaimer hafi verið með og hann hafi verið með föt í honum. Hann kvaðst hafa farið á [...] til að sækja fíkniefni og hann hafi gert það vegna þess að hann hafi verið hræddur. Hann hafi farið með pening til mannsins á [...] og tekið við fíkniefnum frá honum í staðinn í þremur eða fjórum glærum plastpokum. Það hljóti að vera fíkniefnin sem hafi fundist í [...]. Hlutverki ákærða hafi átt að vera lokið þegar hann hafi verið kominn með fíkniefnin í [...]. Borið var undir ákærða að það hefði fundist íslenskt símanúmer í farsímanum hans þrátt fyrir að hann segðist aðeins þekkja ákærða Roman hér á landi. Hann kvaðst hafa hitt viðkomandi einhvern tímann en það hafi ekki verið nýlega. Þetta sé vélvirki sem hann hafi hitt á samkomu og hann hafi gefið ákærða símanúmerið sitt og það séu myndbandsupptökur með honum í símanum. Ákærði kvaðst hafa hringt í aðila með notandanafnið Neo þegar hann hafi komið til landsins 21. nóvember 2021 en þetta væri einn af þeim sem ákærði skuldaði pening fyrir fíkniefni. Þá kvaðst ákærði skulda vini ákærða Roman en hann og Neo væru vinir. Ákærði kvaðst halda að Neo hafi sent ákærða mynd af miklu magni af íslensku reiðufé á borði. Ákærði Enaimer sagði það ekki rétt hjá ákærða Roman að maður sem líktist ákærða Enaimer ætti fíkniefnin sem hefðu fundist í [...]. Ákærða Roman tækist ekki að koma þessu á ákærða Enaimer. Hann kannaðist við að nota einnig nafnið Christian en það væri gælunafn.
Ákærði gaf skýrslu fyrir dómi samkvæmt beiðni lögreglu 12. desember 2025, sbr. síðar, en síðustu skýrslu hjá lögreglu gaf hann 17. febrúar 2026. Þá kvaðst hann hafa gist eina nótt í íbúðinni í [...] og þá hafi einhver maður opnað fyrir ákærða. Maðurinn hafi síðan farið og þá hafi ákærði Roman komið. Ákærði Enaimer kvaðst síðan hafa séð manninn, sem hafi opnað íbúðina fyrir ákærða, í gæsluvarðhaldinu og þá hafi ákærði óskað eftir því að vera ekki á sama gangi og maðurinn í fangelsinu þar sem ákærði óttaðist að maðurinn myndi þekkja ákærða.
Ákærði kvaðst hafa þurft að snerta fíkniefnin sem hafi fundist í [...] þegar hann hafi sótt þau. Þá hafi hann séð þau á borðinu í íbúðinni og þurft að ganga frá þeim en þá hafi verið búið að skipta þeim í einingar. Ákærði kvaðst hafa notað gúmmíhanska því hann hafi ekki viljað að eiturlyfin kæmu við hann. Hann kvaðst hafa látið manninn, sem hafi afhent ákærða fíkniefnin, hafa 5.000 evrur og þá hringt í Sergey, sagst vera búinn að fá nóg og beðið Sergey um að kaupa farmiða fyrir sig. Daginn eftir hafi ákærði látið sama mann hafa 8.000 evrur sem ákærði hafi fengið frá ákærða Roman.
Ákærði, Roman Belousov, gaf skýrslu hjá lögreglu 25. nóvember 2025. Hann kvaðst ekki viðurkenna neitt varðandi innflutning á fíkniefnum. Hann hafi verið í [...] á laugardeginum í þeim tilgangi að kaupa kókaín þegar hann hafi verið handtekinn en hann hafi ekki vitað hver hafi átt efnið. Hann hafi verið í samskiptum á Telegram eða Signal við aðila sem hafi kynnt sig sem Kristján eða Christian og hann hafi sagt ákærða Roman að hann hafi verið að koma með flugi og þeir gætu hist á stað sem Christian hafi gefið upp. Ákærði Roman kvaðst einnig hafa komið í [...] á föstudeginum til þess að tala við ,,þau“ um verðið en ,,þau“ hafi ekki verið sammála ákærða Roman um það. Þá hafi hann hitt Christian sem sé ,,dökkur, latínumaður“ og hann hafi verið handtekinn með ákærða Roman. Hann kvaðst hafa ætlað að kaupa 150 grömm og hvert gramm á 8.500 krónur. Síðan hafi hann ætlað að blanda það með kreatíni, 40%, selja það á götunni og afla sér fjár með því. Hann hafi ætlað að selja þetta í gegnum hóp á netinu til vina og kunningja. Daginn sem ákærði Roman hafi verið handtekinn hafi hann selt vini 15 grömm og öðrum 10 grömm og þegar hann hafi verið handtekinn hafi hann verið með tvo pakka á sér sem hafi verið samtals sex grömm sem félagi ákærða hafi ætlað að kaupa. Í íbúðinni hafi verið samtals u.þ.b. 1.400.000 krónur í peningum sem ákærði hafi ætlað að kaupa 150 grömm af kókaíni fyrir. Hann hafi farið með peninginn í íbúðina á leigubifreið daginn sem hann hafi verið handtekinn.
Ákærði Roman sagði að þegar hann hafi komið í íbúðina hafi hann hitt Christian, eiganda hennar, en þeir hefðu þekkst í einhvern tíma, eða í tvo til þrjá mánuði og Christian hafi í umrætt sinn ekki verið á Íslandi í fyrsta skipti. Hann hafi sagt ákærða Roman að hann þyrfti að fara á [...] og ákærði Roman hafi fylgt honum þangað gangandi en hann hafi ekki vitað um tilganginn með því að fara þangað. Þegar þeir hafi komið til baka í [...] hafi þeir verið handteknir en þá hafi ákærði Roman ætlað að taka 150 grömm af kókaíni en fara síðan heim til sín. Tveimur eða þremur mánuðum áður hafi ákærði Roman og Christian hist hér á landi og þá hafi þeir bara verið að keyra um og drekka bjór. Christian hafi verið með aðgangskóða að íbúðinni í [...], gist þar og borðað og því hafi þetta líklega verið hans íbúð. Ákærði Roman kvaðst ekki hafa verið með aðgangskóða að íbúðinni og hann hafi ætlað að kaupa fíkniefnin af Christian. Ákærði Roman kvaðst ekki geta staðfest að Christian hafi átt fíkniefnin og hann hafi ekki vitað um hvað mikið magn hafi verið að ræða en það hafi verið mikið. Ákærði Roman kvaðst ekkert hafa átt við efnið.
Ákærði Roman kvaðst hafa verið að selja Oxycontin og hann hafi átt peninginn sem fannst í íbúðinni í [...] og um hafi verið að ræða sparnaðinn hans eða sem hann kallar bensínpening. Hann líti ekki einu sinni á þetta sem pening en hann hafi sett peninginn í umslag og skilið það eftir á borði í íbúðinni. Ef Christian hefði reynt að taka þennan pening af ákærða Roman hefði hann skorið hausinn af Christian og ákærði Roman væri ekki að grínast með það. Ákærði Roman ítrekaði að hann hafi ekki komið nálægt skipulagningu á innflutningi fíkniefna og heimilaði lögreglu að skoða farsíma sinn og bankagögn og sagði að þar myndi sjást að hann keypti fíkniefni á hverjum degi. Hann sé fíkill en ekki glæpamaður. Ákærði Roman gaf aftur skýrslu hjá lögreglu 8. desember 2025. Hann kvaðst engu vilja breyta varðandi fyrri framburð sinn en sagði að í umslaginu hefðu verið 1.275.000 krónur og svo 150.000 krónur sér. ,,Beggi“ hafi komið í [...] og keypt 18 grömm af kókaíni fyrir 180.000 krónur en ákærði keypt Oxycontin fyrir 30.000 krónur af því og tekið það efni inn en hann hafi notað um 25 töflur af því á dag. Daginn áður en hann hafi verið handtekinn hafi hann verið heima hjá sér ásamt Christian og þeir tekið inn mjög hreint kókaín sem hafi komið frá Christian. Hann hafi kynnt sig sem Christian og verið handtekinn um leið og ákærði Roman. RS sem sé stjórnandinn hafi sent ákærða Roman SMS-skilaboð með upplýsingum um heimilisfangið í [...]. Christian sé fyrsti milliliður en svo hafi ákærði Roman beðið um númerið hjá stjórnandanum til þess að tala beint við hann og það sé RS. Daginn áður en ákærði Roman hafi verið handtekinn hafi hann hitt Christian í íbúðinni í [...] og þá hafi verið þar stór poki af kókaíni og hafi ákærði Roman prófað efnið. Hann hafi hitt Christian á Íslandi í fyrra og hann hafi alltaf verið að ræða um kókaín og hafi ákærði Roman reynt að kaupa af honum kókaín en Christian hafi viljað bíða en ekki ákærði Roman. Þeir hafi hist að hámarki í þrjú skipti.
Ákærði Roman sagði að í bakpokanum sem hann hafi sést með hafi verið vigt og peningar. Í öll skiptin sem hann hafi komið í íbúðina hafi Christian verið þar og ákærði Roman hafi aldrei verið einn þar. Ákærði Roman hafi farið með Christian á [...] sem hafi ætlað að hitta gamlan mann í slæmu ástandi sem hafi vantað lyf. Christian hafi gefið manninum pening en ákærði Roman hafi ekki hitt manninn. Það hafi enginn verið að keyra ákærða Roman og Christian og ákærði Roman hafi alltaf tekið leigubifreið. Í farsíma ákærða Roman fundust myndir og myndbönd með miklu magni af íslenskum peningum á borði. Hann sagði að þetta hafi verið sex til sjö milljónir og hann hafi stolið þessum fjármunum en hann elski að taka myndir og myndbönd og senda það á vini sína svo þeir sjái hvað hann eigi mikið af peningum. Hann kvaðst ekki kannast við skilaboð í símanum sem hann á að hafa sent um að ef annar aðili myndi færa ákærða tvö kíló myndi hann selja þau í dag. Ef hann hafi sent svona skilaboð hafi það bara verið saga til þess að hann gæti keypt Oxycontin en hann sé ekki manneskja til þess að selja svona mikið. Ákærði kvaðst ekki vita hvers vegna Christian hafi tekið bakpoka ákærða Roman í leyfisleysi og farið með hann inn á [...]. Þegar Christian hafi komið til baka frá hótelinu hafi aðeins verið einnota hanskar í bakpokanum en ekki fíkniefni. Ákærði Roman kvaðst ekki hafa komið nálægt innflutningi á fíkniefnum og hann hafi aldrei hitt gamla manninn. Ákærði Roman gaf loks skýrslu hjá lögreglu 18. desember 2025 og þar var hann spurður út í atriði sem komu út úr rannsókn á farsíma hans. Þar kom m.a. fram að þeir Christian hafi notað Google Translate og það hafi þeir gert vegna þess að Christian tali bara spænsku. Þeir hafi m.a. rætt um manninn sem Christian hafi hitt á [...] og ætlað að láta manninn hafi einhver lyf. Ákærði Roman og Christian hafi einnig rætt um að hann þyrfti að líta almennilega út þegar hann færi í flugvélina en ekki vera eins og ferðamaður. Ef maður væri að gera eitthvað ólöglegt væri betra að líta út eins og ferðamaður. Þegar þeir hafi rætt um mistök hafi það verið vegna fatavals Christian. Ákærði Roman kvaðst hafa vitað að lögreglan væri að fylgjast með honum áður en hann var handtekinn.
Ákærði, Ö, gaf skýrslu hjá lögreglu 4. febrúar 2026. Hann vildi ekki tjá sig um hugsanlega aðild sína að því máli sem ákært er vegna en hann var á þeim tíma sem málið kom upp í fangelsinu á Kvíabryggju. Hann kvaðst ekki kannast við ákærða Enaimer. Í fartölvu hans, sem var haldlögð, fundust samskipti ákærða Ö við ákærða Æ. Ákærði Ö kvaðst hafa kynnst ákærða Æ í fangelsi á árinu 2023 en þeir hafi þó verið kunningjar fyrir þann tíma. Undir ákærða Ö voru borin samskipti hans við ákærða Æ um leigu á íbúð í [...] en samkvæmt þeim sendi ákærði Ö ákærða Æ skilaboð varðandi leiguna. Hann vildi hvorki tjá sig um þetta né um hlutverk ákærða Enaimer en nafn hans kom fram í skilaboðunum. Ákærði Ö kvaðst ekki vita hvað hann ætti að segja um þau skilaboð að einhver kæmist ekki inn en þetta liti illa út með hans þátt. Þá vildi hann ekki tjá sig um mynd, sem var í fartölvu hans, þar sem sést kubbur af kókaíni og virðist myndin hafa verið send til hans 21. nóvember 2025 þegar aðilar voru í íbúðinni í [...]. Ákærði Ö kvaðst hvorki þekkja ákærðu Roman né Z sem var skráður fyrir íbúðinni. Ákærði Ö sagði að ákærði Y væri vinur hans til 12 ára og ákærði Ö hefði þekkt ákærða Þ í mörg ár. Ákærði Ö kvaðst kannast við nafnið Sergey Gaysin og þeir væru vinir á Facebook en hann mundi ekki hvort þeir væru þar í samskiptum og þeir hefðu ekki sést í mörg ár.
Ákærði Ö var spurður út í snjallsíma sem fannst í klefa hans á Litla-Hrauni um morguninn áður en skýrslan var tekin. Hann kvaðst kannast við símann en hann væri ekki eini eigandinn að honum. Hann hafi verið að geyma símann og það hefðu fleiri en hann afnot af símanum þannig að hann bæri ekki ábyrgð á öllu sem væri í símanum. Ákærði hafi fengið símann um mánuði áður en hann hafi fundist og haft afnot af símanum annað slagið. Ákærði kvaðst ekki vilja tjá sig frekar um símann svo hann kæmist ekki í vandræði. Ákærði gaf lögreglu upp lykilorð að símanum en það virkaði ekki. Hann vildi ekki gefa upp annað lykilorð.
Ákærði Ö gaf aftur skýrslu hjá lögreglu 5. mars 2026. Hann kvaðst hafa sogast inn í eitthvert stórt mál og hann vildi skýra sína aðkomu að málinu. Hann hafi verið fenginn til að útvega Airbnb-íbúð en hann hafi ekki vitað að þar myndi eitthvað saknæmt fara fram. Það væri stórhættulegt fyrir ákærða að segja hver hafi átt þarna hlut að máli og hann vildi ekki segja það þar sem fjölskylda hans væri þá í hættu. Ákærði Ö kvaðst hafa fengið vin sinn til margra ára, ákærða Y, til að afhenda íbúðina og það hafi hann gert skömmu eftir að hann hafi fengið öryggisnúmerið að íbúðinni frá ákærða Æ. Ákærði Ö kvaðst hafi farið í algjöra flækju með leiguna á íbúðinni.
Síðan hafi verið hringt í ákærða Ö og hann hafi átt að fá einhvern til að sækja dót í íbúðina, þ.e. tösku og föt, og þá hafi honum dottið í hug að það hafi eitthvað saknæmt átt sér stað í íbúðinni. Honum hafi fundist þetta skrýtið en honum hafi verið skipað til verka og öskrað á hann. Ákærði vildi ekki segja hver hafi hringt í hann. Hann hafi átt að finna einhvern strax til að fara í íbúðina og orðið aðeins smeykur en fengið vin sinn, ákærða X, til að fara í íbúðina og þar hafi allt verið á rúi og stúi. Meðan ákærði X hafi verið í íbúðinni hafi hann hringt í ákærða Ö og kveikt á myndavél en það hafi verið mikil óreiða í íbúðinni. Það sem hafi átt að vera í íbúðinni hafi ekki verið þar. Ákærði X sé æskuvinur stóra bróður ákærða Ö en ákærði Æ hafi ekki getað farið í íbúðina þar sem hann hafi verið að vinna. Það geti verið að ákærði Ö hafi heyrt í ákærða Æ um að fara í íbúðina.
Ákærði kvaðst vera alveg saklaus en hann hafi beðið ákærða Æ um að útvega íbúðina. Ákærði Ö kvaðst hafa haldið að félagi hans væri að koma til landsins en ákærði hafi ekki vitað til hvers hann þyrfti íbúð. Ákærði kvaðst ekki vita af hverju félagi hans hafi ekki sjálfur útvegað sér íbúð en ákærði hafi fengið sent nafnið á þeim sem ætti að skrá íbúðina á en hann mundi ekki nafnið.
Ákærða Ö (KEIKO) voru sýnd skilaboð milli hans og ákærða X þar sem segir ,,3 kg kók 1250 k i pening og vigt og vacuum vél“. Þetta hafi verið það sem hafi átt að sækja í íbúðina en þessi skilaboð hafi komið seinna en þegar rætt hafi verið um föt og tösku. Ákærði Ö hafi líklega fengið þessi skilaboð á Signal, það hafi þurft að sækja þetta strax og honum hafi verið skipað að gera þetta. Sá sem hafi skipað fyrir hafi vitað að ákærði Ö væri á Kvíabryggju en hann hafi átt að finna einhvern til þess að fara í íbúðina. Ákærði Ö væri góður vinur og þess vegna hafi hann gert það sem hann hafi verið beðinn um og þá hafi hann verið ,,alveg smeykur við þetta fólk“. Hann hafi aðeins verið í samskiptum við einn aðila vegna þessa og þetta hafi verið í fyrsta skipti sem ákærði hafi gert eitthvað fyrir hann. Ákærði kvaðst ekki vita hvernig aðilinn hafi fengið símanúmer sitt eða notandanafn en þeir hafi verið í sambandi á Signal. Það hafi verið sami aðilinn sem hafi beðið ákærða að útvega íbúðina og síðan að fara í hana og sækja dótið.
Í einum skilaboðum segir ákærði Ö: ,,Þarf einhvern solid bróðir til að geyma kg“. Hann kvaðst minna að þarna hafi verið um að ræða kíló af kannabis en þetta hafi ekki verið fyrir hann. Þá segir í öðrum skilaboðum: ,,Hann kemur með 300 til þin i leiðinni“ og ,,Og hann sækir 80k“. Ákærði kvaðst hafa verið að reyna að fá pening til að færa móður sinni heimili og hann hafi verið að redda hlutum fyrir vini sína. Ákærði X hafi átt umrætt kannabis og 80.000 krónur hafi verið vegna greiðslu fyrir íbúðina og ákærði X hafi ætlað að láta ákærða Æ hafa pening fyrir íbúðinni en ákærði Ö hafi svo ætlað að greiða ákærða
X.
Ákærði, Æ, gaf skýrslu hjá lögreglu 4. desember 2025. Hann kvaðst ekkert kannast við málið og hann hafi ekkert haft með að gera leigu á íbúð í [...]. Hann kvaðst ekki hafa haft samband við ákærða Z og beðið hann að leigja íbúð og ákærði Æ kvaðst oft lána ákærða Z pening. Ákærði Z hafi fyrst beðið um 50.000 – 60.000 krónur og svo líklega 15.000 krónur. Ákærði Æ kvaðst ekki vita hvers vegna ákærði Z hafi nefnt sig. Ákærði Æ kvaðst ekkert vita um innflutning fíkniefna.
Ákærði Æ gaf aftur skýrslu hjá lögreglu 16. febrúar 2026. Hann kvaðst engu vilja breyta eða bæta við fyrri framburð sinn og lýsti því að hann tengdist ekki innflutningi fíkniefna. Hann kvaðst hafa kynnst ákærða Ö á Litla-Hrauni og verið síðast í samskiptum við hann á síðasta ári. Ákærði Æ neitaði því í fyrstu að ákærði Ö hafi beðið sig að leigja fyrir sig íbúð. Þegar honum var bent á samskipti þeirra þar sem ákærði Ö hafi verið að biðja ákærða Æ um að leigja íbúð sagði hann að það væri rétt. Ákærði Æ hefði hins vegar ekki getað gert það þar sem hann væri gjaldþrota. Hann hafi þá beðið ákærða Z um að leigja íbúðina og ekki hugsað út í það hvers vegna hann hafi beðið Z um það. Ákærði Æ sagði að ákærði Ö hafi greitt leiguna fyrir íbúðina. Hann hafi lagt pening inn á ákærða Æ sem hafi svo lagt peninginn inn á ákærða Z. Ákærði Æ kvaðst ekki hafa velt því fyrir sér hvort þetta hafi verið sérstök beiðni frá ákærða Ö, þ.e. að leigja íbúðina.
Ákærði, Y, gaf skýrslu hjá lögreglu 27. nóvember 2025. Hann kvaðst vera saklaus og ekki vilja tjá sig. Hann sagðist oft hafa farið í […] og hann hafi farið þangað síðdegis 21. nóvember 2025 með poka fyrir vin sinn og til þess að henda einhverju drasli. Hann hafi m.a. hent plastpokum og pakkningum. Hann mundi ekki hver hafi beðið hann um þetta. Hann kvaðst ekki þekkja mennina sem hann hafi hitt á gangi hússins þegar hann hafi komið þangað aftur kl. 18:31 sama dag. Ákærði kvaðst ekki vita hver hafi verið tilgangurinn með þessari ferð hans nema það hafi verið að ,,opna herbergið fyrir þeim eða eitthvað“. Hann kvaðst ekki þekkja manninn sem hafi beðið ákærða að koma með pokann og hann kvaðst ekki vita nafnið á manninum sem hafi gefið ákærða upp öryggisnúmerið á íbúðinni.
Ákærði, X, gaf skýrslu hjá lögreglu 26. nóvember 2025. Hann kvaðst hafa verið sendur af aðila sem kalli sig KEIKO í íbúð að [...] og hafi KEIKO sent ákærða aðgangsupplýsingar til þess að komast inn í íbúðina. Ákærði vildi ekki gefa upp frekari deili á KEIKO. Ákærði hafi verið sendur til að sækja tösku sem hann hafi átt að setja föt í og fara með heim til sín. Hann hafi ekki fengið frekari upplýsingar um það hvað myndi gerast í framhaldinu.
Ákærði, Z, gaf skýrslu hjá lögreglu 2. desember 2025. Hann kannaðist við að hafa leigt íbúð að [...] samkvæmt beiðni en hann vissi ekki fyrir hvern. Hann hafi gert þetta fyrir stráka, ákærða Æ og Jón, sem hafi sagt að þetta væri fyrir félaga sem væri að koma til landsins. Hann hafi ekki spurt neitt meira út í það. Ákærði kvaðst ekki vita hver Jón væri en ákærði Æ þekki Jón og þeir séu félagar. Ákærði Z kvaðst hafa fengið skilaboð frá Æ á Messenger sem hafi spurt hvort ákærði Z gæti gert félaga sínum greiða. Ákærði Z hafi leigt íbúð á Airbnb, fengið kóða sendan og látið ákærða Æ hafa hann á Messenger. Ákærði Z kvaðst ekki hafa hugsað út í það af hverju ákærði Æ hafi ekki leigt íbúðina sjálfur en ákærði Z hafi greitt leiguna með Visa en ákærði Æ hafi greitt Z með millifærslu sama dag og ákærði Z hafi leigt íbúðina. Ákærði Z kvaðst aldrei hafa farið í íbúðina. Ákærði, Þ, gaf skýrslu hjá lögreglu 3. desember 2025. Hann kvaðst ekki minnast þess að hafa farið í [...] að kvöldi 22. nóvember 2025. Hann kvaðst halda að hann væri ekki á mynd, sem lögregla telur að sé hann, þó væri sá sem sjáist á myndinni líkur ákærða. Hann kvaðst hugsanlega eiga tvær eða þrjár peysur eins og maðurinn á myndinni klæddist. Ákærði kvaðst ekki minnast þess að einhver hafi hringt í hann og beðið hann að sækja tösku í íbúðina.
Ákærði Þ gaf aftur skýrslu hjá lögreglu 26. febrúar 2026. Hann kvaðst halda að hann vildi engu breyta eða bæta við fyrri framburð sinn. Hann mundi ekki eftir því að hafa farið í íbúð að [...]. Honum var kynnt að lögregla væri með upptökur úr anddyrinu á [...] að kvöldi 22. nóvember 2025 þar sem hann sæist vera að ræða í síma. Hann kvaðst ekki muna eftir þessu né við hvern hann hafi verið að tala ef þetta væri hann á upptökunni. Ákærða var kynnt að lögreglan teldi að hann hafi verið að ræða við Sergey Gaysin. Ákærði kvaðst vita hver Sergey væri, þ.e. maður með því nafni, og ákærði hafi talað við hann fyrir nokkrum árum. Ákærði kvaðst ekki muna hvað hann hafi verið að gera í um hálfa klukkustund í íbúðinni.
IV
Kröfur og sjónarmið ákæruvalds og ákærðu.
Ákæruvaldið krefst þess að ákærðu verði dæmdir til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar og þá verði þeim gert að sæta upptöku í samræmi við ákæru fyrir utan það að við aðalmeðferð málsins var fallið frá upptöku á einum farsíma sem tiltekinn er í upptökukröfu í ákærunni og var haldlagður hjá ákærða Y.
Ákærðu, Enaimer Enrique Naranjo Julio og Roman Belousov, gera báðir aðallega þá kröfu að þeir verði sýknaðir af 1. ákærulið en komi til sakfellingar er krafist vægustu refsingar sem lög frekast heimila. Þá er og krafist vægustu refsingar vegna þeirra ákæruliða þar sem þeir hafa játað sök. Þá er upptökukröfum sem beinist gegn þeim mótmælt og þess krafist að allur sakarkostnaður verði lagður á ríkissjóð, þ.m.t málsvarnarlaun verjenda ákærðu. Ákærðu byggja sýknukröfu sína af 1. ákærulið aðallega á því að háttseminni sem þar sé lýst teljist ósönnuð. Ákærðu, Ö, Æ, Y, X, Z og Þ gera allir aðallega þá kröfu að málinu verði vísað frá dómi, til vara er krafist sýknu og til þrautavara, komi til sakfellingar, er krafist vægustu refsingar sem lög frekast heimila. Þá er upptökukröfum sem beinist gegn þeim mótmælt og þess krafist að allur sakarkostnaður verði lagður á ríkissjóð, þ.m.t. málsvarnarlaun verjenda ákærðu. Kröfu um frávísun málsins byggja ákærðu á því að ákæran uppfylli ekki skilyrði c-liðar 1. mgr. 152. gr. laga nr. 88/2008 um skýrleika. Í ákærunni komi ekki fram hver sú refsiverða háttsemi er sem þeim er gefin að sök og verði því ekki hjá því komist að vísa málinu frá dómi.
Ákæruvaldið krefst þess að frávísunarkröfu ákærðu verði hafnað þar sem ákæra í málinu uppfylli öll skilyrði laga og enginn vafi leiki á því hver sú háttsemi er sem ákært er vegna samkvæmt 5. ákærulið. Þess er því krafist að málið verði tekið til efnismeðferðar.
V
Framburðir ákærðu og vitna fyrir dómi.
Ákærði, Enaimer Enrique Naranjo Julio, gaf skýrslu fyrir dómi, samkvæmt beiðni lögreglu, 12. desember 2025. Hann lýsti því að framburðurinn sem hann gaf síðast hjá lögreglu sé réttur. Hann hafi komið hingað til lands til að flytja eiturlyf á milli staða, þ.e. á milli hótela eða mótela. Eiturlyfin hafi verið í glærum pappír í fjórum einingum í ferðatösku á [...]. Hann kvaðst ekki vita hver hafi komið með fíkniefnin þangað og ekki þekkt manninn sem hafi gefið ákærða skipanir en þeir hafi hist. Það hafi verið eldri maður, feitlaginn, sköllóttur og líklega frá Suður-Ameríku miðað við hvernig hann hafi talað. Ákærði kvaðst hafa opnað ferðatöskuna á hóteli mannsins en ákærði hafi hitt ákærða Roman þar fyrir utan. Ákærði Roman hafi skipað ákærða Enaimer að sækja fíkniefnin. Aðrir sem tengist málinu tilheyri hring á Spáni en það hafi verið byrjað að kúga ákærða þar í landi vegna þess að hann hafi staðið í skuld vegna eiturefna. Um sé að ræða aðila frá Rússlandi en sumir þeirra búi á Spáni og ákærði hafi hitt þá fyrst fyrir um tveimur árum. Ákærði kvaðst hafa komið einu sinni áður til Íslands til þess að flytja pakka en það hafi ekki gengið eftir. Maðurinn, sem ákærði hafi hitt á hótelinu, hafi sagst heita A eða Alfredo en hann hafi verið veikur og þetta hafi verið í fyrsta skiptið sem ákærði hafi hitt hann. Ákærði hafi fyrst látið manninn hafa 5.000 evrur en daginn eftir 8.000 evrur sem hafi komið frá ákærða Roman. Maður að nafni Neo hafi greitt fargjaldið fyrir ákærða Enaimer hingað til lands en Neo sé tengdur ,,hringnum“. Ákærði kvaðst hafa hitt Neo tvisvar sinnum í Barcelona og hann hafi látið ákærða hafa pening til að kaupa flugmiðann. Ákærði Enaimer sagði að ákærði Roman væri höfuðpaurinn og ákærði Enaimer hafi bara átt að sækja fíkniefnin og hann hafi ekki vitað hver hafi átt að fá þau. Hann hafi ekki séð þegar efnin hafi verið meðhöndluð í íbúðinni þar sem hann hafi verið sendur inn í herbergi þegar einhver hafi komið í íbúðina.
Við aðalmeðferð málsins neitaði ákærði Enaimer sök samkvæmt 1. tölulið ákæru en játaði sök samkvæmt 4. tölulið ákærunnar. Varðandi 1. töluliðinn kvaðst ákærði hafa komið hingað til lands til að sækja pening og fara með hann til Spánar en maður að nafni Sergey hafi skipulagt ferðina. Þegar ákærði hafi komið hingað hafi hann farið í íbúðina í [...] en eldri maður hafi opnað hana með korti og þeir farið saman inn í íbúðina. Ákærði Roman hafi svo sagt ákærða Enaimer að hann ætti fyrst og fremst að sækja pening á [...], þ.e. 5.000 evrur. Síðan hafi Sergey hringt og sagt að ákærði ætti einnig að sækja pakkningar á hótelið. Hafi ákærði ákveðið að gera það þar sem hann hafi ekki átt pening fyrir farmiðanum til baka. Hann hafi farið með pakkningarnar í [...] og afhent ákærða Roman þær en ákærði Enaimer hafi ekki snert efnið. Peningana sem hann hafi verið með þegar hann var handtekinn, þ.e. 8.000 evrur hafi hann átt að afhenda eiganda kókaínsins og þá hafi hann átt að láta ákærða Roman hafa 9.000 evrur. Þá hafi ákærði Enaimer átt að fara með 9.200 evrur til Spánar. Ákærði kvaðst ekki vera vinur A sem hann hafi hitt í fyrsta skipti á [...] og ákærði hafi farið í umrædda ferð til Íslands til þess að lækka skuldir hjá sér. Ákærði kvaðst hafa átt að ganga frá í íbúðinni í [...] og notað við það hanska og þess vegna hafi DNA-snið hans fundist á hönskunum.
Ákærði, Roman Belousov, neitaði sök samkvæmt 1. ákærulið en játaði sök samkvæmt 2. og 3. tölulið ákærunnar. Þegar málið hafi komið upp hafi hann verið búinn að þekkja ákærða Enaimer í nokkra mánuði. Ákærði Roman kvaðst hafa verið í íbúðinni í [...] í þeim tilgangi að kaupa fíkniefni en honum hafi verið sagt að þar væri maður sem hafi verið að flytja inn fíkniefni og ákærði gæti keypt efni af manninum. Ákærði hafi m.a. farið í íbúðina til þess að spyrja um verð. Hann hafi farið með ákærða Enaimer á [...] en ákærði Roman hafi beðið úti á meðan ákærði Enaimer hafi farið inn á hótelið. Ákærði Roman hafi farið þangað með ákærða Enaimer þar sem hann hafi ekki vitað hvar hótelið væri staðsett. Ákærði Roman hafi vitað að á [...] væri maður sem hafi verið að koma með fíkniefni til landsins og hann hafi verið sendur af hópi manna í þann leiðangur. Ákærði Roman hafi ætlað að kaupa fíkniefni af ákærða Enaimer og ákærði Roman hafi vitað að ákærði Enaimer ætti að borga 8.000 evrur en ákærði Roman kvaðst ekki hafa vitað hvaðan þeir fjármunir hafi komið. Ákærði Enaimer hafi búið í íbúðinni í [...] og skoðað þar í poka sem fíkniefnin hafi verið í. Ákærði Roman hafi ætlað að kaupa 150 grömm fyrir um 1.400.000 krónur en þá fjármuni hafi hann átt vegna fíkniefnasölu og hann hafi áður keypt fíkniefni af ákærða Enaimer. Ákærði Roman kvaðst ekki þekkja A sem hafi verið á [...] og ákærði tengdist ekki skipulögðum glæpahópi. Í umræddri ferð Enaimer til Íslands hafi hann ekki gist hjá ákærða Roman en ákærði Enaimer hafi gert það í þrjár eða fjórar nætur fyrir þremur til fjórum mánuðum þegar hann hafi verið á Íslandi. Ákærði Roman sagði það ekki rétt hjá ákærða Enaimer að ákærði Roman hafi verið að stjórna sölu á fíkniefnum. Ákærði Enaimer hafi komið áður til Íslands og þá hafi ákærði Roman keypt af honum fíkniefni en hann tengdist ekki innflutningi þeirra efna sem ákært er vegna. Hann kvaðst hafa vitað frá ákærða Enaimer að hann hafi átt að fara með 8.000 evrur til mannsins sem hafi komið með fíkniefnin hingað til lands. Ákærði Roman sagði að maður að nafni Thomas hafi átt að fá efnið sem ákærði hafi verið með á sér við handtöku.
Ákærði, Ö, kvaðst hafa fengið símtal frá gömlum félaga, sem hann gæti ekki upplýst um hver væri, og sá hafi beðið ákærða að útvega íbúð fyrir vin félagans. Ákærði, sem væri aumingjagóður, kvaðst hafa fundist eðlilegt að gera það og hann hafi ekki vitað að eitthvað saknæmt ætti að gerast. Hann kvaðst ekki vita hvort félaginn sem hafi hringt í ákærða hafi vitað að hann hafi þá verið í afplánun. Ákærði kvaðst hvorki hafa verið með greiðslukort né rafræn skilríki og þess vegna hafi hann hringt í ákærða Æ og beðið hann að leigja íbúð. Ákærði kvaðst hafa þekkt ákærða Æ í nokkur ár en þeir hafi kynnst á Litla-Hrauni. Ákærði Ö kvaðst hafa greitt fyrir leigu á íbúðinni með láni frá ákærða X. Ákærði Ö kvaðst síðan hafa haft samband við ákærða Y, látið hann hafa öryggisnúmer að íbúðinni og beðið hann að fara og opna hana fyrir einhverjum manni. Ákærðu Ö og Y hafi verið í sambandi á Signal og þar hafi ákærði Ö notað nafnið KEIKO. Á laugardeginum 22. nóvember 2025 hafi síðan verið hringt aftur í ákærða Ö og honum verið skipað að sækja tösku með fötum í íbúðina í [...] og ákærði hafi hringt í vin sinn til að gera þetta en hann hafi verið úti að borða. Það hafi síðan breyst í að það hafi átt að sækja fíkniefni, pening og pökkunarvél í íbúðina. Maðurinn, sem hafi beðið um þetta, hafi verið æstur og með hótanir. Ákærða hafi verið hótað öllu illu og í raun verið þvingaður til að gera eitthvað sem hann hafi ekki viljað gera og honum hafi verið sagt að þetta væri á hans ábyrgð, þ.e. ef það sem átti að sækja væri ekki í íbúðinni. Ákærði Ö hafi beðið ákærða X að fara í íbúðina og um fimm mínútum áður en hann hafi farið hafi það breyst sem hafi átt að sækja þangað. Ákærði Ö kvaðst hafa pressað á ákærða X um að fara í íbúðina en hann hafi ekki vitað um hótanirnar í garð ákærða Ö. Þegar ákærði X hafi komið í íbúðina hafi hún verið í rúst og því hafi hann komið sér strax í burtu. Hvorki ákærði Ö né ákærði X hafi vitað hvað hafi verið í gangi í íbúðinni. Ákærði Ö kvaðst ekki þekkja ákærða Z en hann þekki ákærða Þ en þeir hafi verið saman í skóla í æsku.
Ákærði, Æ, kvaðst þekkja ákærða Ö en þeir hafi m.a. verið saman á Sogni og ákærði Æ verið að aðstoða ákærða Ö meðan hann hafi verið í afplánun. Ákærði Ö hafi m.a. beðið ákærða Æ um að útvega móður ákærða Ö íbúð. Ákærði Ö hafi beðið ákærða Æ um að taka á leigu Airbnb-íbúð en hann hafi ekki getað það þar sem hann hafi verið gjaldþrota. Þess vegna hafi ákærði Æ haft samband við ákærða Z og beðið hann um að leigja íbúðina. Ákærði Æ kvaðst bara hafa verið að aðstoða ákærða Ö en hann hafi ekki getað leigt íbúðina. Fjármunir fyrir leiguna, þ.e. 70.000 eða 80.000, hafi komið frá manni sem ákærði Æ þekki en fyrir utan ákærða Ö þekki hann aðeins ákærða Z en ekki aðra ákærðu. Ákærði Æ kvaðst ekki hafa getað greitt leiguna og hann hafi haldið að íbúðin væri fyrir móður ákærða Ö og ekki haft hugmynd um hvað þar ætti að gerast og því hafi ákærði Z ekki heldur vitað það. Ákærði Æ kvaðst ekki hafa komið nálægt innflutningi fíkniefna og ekki fengið neitt greitt fyrir aðkomu sína að málinu.
Ákærði, X, kvaðst hafa verið á veitingastað þegar ákærði Ö hafi hringt í hann og spurt hvort hann gæti sótt tösku fyrir útlendan vin ákærða Ö í íbúð í nágrenni heimilis ákærða X. Hann kvaðst hafa farið í íbúðina til að sækja tösku og föt en þegar hann hafi komið þangað hafi ákærða grunað að þar hafi eitthvað óeðlilegt átt sér stað vegna umbúða og hanska sem þar hafi verið. Ákærði X hafi því strax yfirgefið íbúðina. Hann kannaðist ekki við að hafa fengið skilaboð frá ákærða Ö um að sækja fíkniefni eða pening í íbúðina. Ákærði kvaðst hafa látið ákærða Æ, sem ákærði X þekki ekki, hafa pening samkvæmt beiðni ákærða Ö.
Ákærði, Y, kvaðst hafa farið í íbúðina samkvæmt beiðni ákærða Ö til þess að hleypa mönnum inn í íbúðina og með því verið að gera honum greiða. Ákærði Y kvaðst hafa verið með bifreið ákærða Ö að láni og tekið poka úr henni og farið með hann inn í íbúðina. Ákærði Y hafi ekki vitað hvað hafi verið í pokanum en það hafi alveg getað verið vigt í honum. Ákærði hafi beðið eftir mönnum, sem hann hafi ekki þekkt, inni í íbúðinni og hann hafi lítið rætt við þá. Ákærði kvaðst hafa vitað að ákærði Ö hafi verið í fangelsi á þessum tíma og ekkert vitað hvað ætti að gerast í íbúðinni.
Ákærði, Z, sagði að ákærði Æ hafi beðið sig að leigja íbúð en ákærði Z hafi ekki vitað hvers vegna né hvað hafi átt að gerast í íbúðinni. Ákærði Æ hafi lagt pening inn á ákærða Z til að greiða leiguna. Ákærðu Z og Æ væru vinir til um 10 ára, þeir spili mikið tölvuleiki saman og símtöl milli þeirra séu mikið vegna þess. Ákærði Z kvaðst hafa sent öryggisnúmer að íbúðinni til ákærða Æ. Ákærði Z kvaðst ekki þekkja aðra ákærðu.
Ákærði, Þ, kvaðst ekki hafa farið í íbúðina í [...] og hann hafi ekki komið nálægt fíkniefnum á þeim tíma sem ákært er vegna. Hann sagði að í ljósmyndaskýrslu lögreglu sæist maður sem líktist sér en hann gat ekki staðfest að það væri hann. Hann kvaðst búa í […] og því ekki ólíklegt að hann hafi verið staðsettur þar með staðsetningartækni. Hann kvaðst ekkert vita um það mál sem ákært er vegna.
Vitnið, A, kvaðst hafa komið til Íslands 21. nóvember 2025 og verið á hóteli. Vitnið hafi ekki farið út af hótelinu en ákærði Enaimer hafi komið til hans og sótt pakka og látið vitnið hafa 8.000 evrur en í kjölfarið hafi vitnið verið handtekið. Vitnið kvaðst hafa hitt ákærða Enaimer í fyrsta skipti á hótelinu en þeir þekkist betur núna þar sem þeir hafi setið saman í fangelsi.
Vitnið, lögreglumaður nr. B, sagði lögreglu hafa verið með til rannsóknar skipulagðan glæpahóp, m.a. á Spáni og í Litháen, og þá hafi nafn ákærða Enaimer komið upp. Hann hafi verið hér á landi í byrjun nóvember 2025 og þá hafi verið fylgst með ferðum hans en hann hafi þá m.a. farið heim til ákærða Roman. Grunur hafi beinst að því að þeir væru í fíkniefnasölu. Þegar ákærði Enaimer hafi komið aftur til landsins 21. nóvember 2025 hafi lögregla fylgst með ferðum hans. Hann hafi þá farið á [...] en stoppað þar í skamma stund en hann og ákærði Roman hafi síðan farið í [...] og þeir hafi einnig verið þar daginn eftir. Þegar þeir hafi yfirgefið húsið síðdegis 22. nóvember 2025 hafi lögreglan farið inn í íbúðina sem þeir hafi verið í og þar hafi verið pakkningar með ætluðum fíkniefnum. Þar sem ekki hafi verið hægt að skipta efnunum út hafi ákærðu Enaimer og Roman verið handteknir. Talið sé að maður að nafni Sergey Gaysin sé skipuleggjandi í glæpahópnum en ákærði Enaimer sé í samskiptum við burðardýr, sæki efni og komi þeim áfram. Hann hafi átt að sjá til þess að allt gengi upp hér á landi. Ekki hafi verið vitað með tengsl ákærða Enaimer og vitnisins A en þeir hafi hist á [...]. Vitnið sagði að Íslendingarnir, sem séu ákærðir í málinu, hafi ekki verið með mikið hlutverk í málinu en ákærði Ö hafi þó verið í beinum samskiptum við menn í glæpahópnum.
Vitnið, lögreglumaður nr. C, kvaðst hafa unnið að rannsókn á innflutningi fíkniefna og ákærðu Enaimer og Roman hafi verið í hópi manna sem hafi verið til rannsóknar. Ákærðu Enaimer og Roman hafi einnig verið til rannsóknar í október 2025 og þeir hafi verið taldir stórir aðilar í hópnum sem hafi verið til rannsóknar. Maður að nafni Sergey hafi farið fyrir hópnum sem hafi verið til rannsóknar. Þegar ákærði Enaimer hafi komið til Íslands 21. nóvember 2025 hafi hann farið í [...], þangað hafi síðan ákærði Roman komið og þeir farið saman á [...]. Einhverjir ákærðu hafi komið í íbúðina áður en Enaimer hafi komið þangað og þá hafi verið farið þar inn áður en seinni húsleitin hafi farið þar fram. Ákærðu X og Þ hafi m.a. komið í íbúðina. Vitnið staðfesti skýrslur sem það gerði vegna málsins.
Vitnið, lögreglumaður nr. D, kvaðst hafa unnið að rannsókn á skipulagðri glæpastarfsemi, þ.m.t. á innflutningi fíkniefna. Vitnið hafi m.a. tekið þátt í seinni húsleitinni í [...] og farið yfir suma síma ákærðu. Vitnið staðfesti skýrslur sem það gerði vegna málsins.
Vitnið, lögreglumaður nr. E, kvaðst hafa verið hluti af rannsóknarhóp vegna rannsóknar á skipulagðri brotastarfsemi. Vitnið hafi verið við eftirlit 22. nóvember 2025 í [...] og við að staðsetja ákærða Enaimer í húsinu og síðan tekið þátt í húsleit í íbúðinni þar sem ákærði Enaimer hafi verið. Ákærðu Enaimer og Roman hafi verið í hópnum sem hafi verið til rannsóknar og verið taldir mikilvægir þar. Vitnið kvaðst hafa séð ákærða Enaimer og vitnið A hittast á [...]. Vitnið staðfesti skýrslur sem það gerði vegna málsins.
Vitnið, lögreglumaður nr. F, kvaðst hafa verið í eftirliti með vitninu A og tekið þátt í handtökum vegna málsins. Vitnið kvaðst hafa séð A og ákærða Enaimer hittast og við handtöku hafi A verið með 8.000 evrur. Vitnið staðfesti skýrslur sem það gerði vegna málsins.
Vitnið, lögreglumaður nr. G kvaðst hafa farið í seinni húsleitina að [...] og þá hafi verið búið að skemma fataskáp og fleira. Vitnið staðfesti skýrslur sem það gerði vegna málsins.
Vitnið, lögreglumaður nr. H, kvaðst hafa komið að málinu á síðari stigum og m.a. tekið framburðarskýrslur. Rannsókn málsins hafi leitt í ljós að ákærðu Enaimer og Roman hafi staðið að innflutningi fíkniefna, tekið við efnum hér á landi og farið með þau í [...].
Vitnið, lögreglumaður nr. I, kvaðst hafa komið að handtökum í [...], þar sem fundist hafi fíkniefni, og flutt ákærða Roman á lögreglustöð. Vitnið staðfesti skýrslu sína.
Vitnið, lögreglumaður nr. J, kvaðst hafa farið í húsleit á Kvíabryggju þar sem ákærði Ö hafi verið. Hjá honum hafi verið lagt hald á fartölvu, tvo síma og símakort. Ákærði Ö hafi viðurkennt að hafa notað nafnið KEIKO á samskiptamiðlinum Signal. Vitnið staðfesti skýrslu sína.
Vitnið, lögreglumaður nr. K, kvaðst hafa farið í húsleit að [...] en þar hafi verið fíkniefni á borði og einnig innpökkuð. Þá hafi peningar verið þar í bakpoka. Vitnið staðfesti skýrslur sínar sem það gerði vegna málsins.
VI
Niðurstaða, almennt.
Samkvæmt 108. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála hvílir á ákæruvaldinu sönnunarbyrði um sekt ákærða og atvik sem telja má honum í óhag. Við sakarmat þarf jafnframt að gæta þeirrar meginreglu sem kemur fram í 1. mgr. 109. gr. laganna en samkvæmt henni metur dómari hverju sinni hvort nægjanleg sönnun, sem ekki verði vefengd með skynsamlegum rökum, sé komin fram um hvert það atriði sem varðar sekt og ákvörðun viðurlaga við broti, þ. á m. hvaða sönnunargildi skýrslur ákærða, mats- og skoðunargerðir, skjöl og önnur sýnileg sönnunargögn hafa. Þá segir í 2. mgr. lagagreinarinnar að dómari meti hvert sönnunargildi þær staðhæfingar hafa sem varða ekki beinlínis það atriði sem sanna skal en ályktanir má leiða af um það. Þá gildir sú grundvallarregla að dómur skal reistur á sönnunargögnum sem færð eru fram við meðferð máls fyrir dómi, sbr. 1. mgr. 111. gr. nefndra laga.
Niðurstaða vegna 1. ákæruliðar.
Ákærðu, Enaimer og Roman, er gefið að sök stórfellt fíkniefnalagabrot með því að hafa staðið að innflutningi á samtals 2.581,49 grömmum af kókaíni, með styrkleika 86-88%, sem hafi verið ætlað til söludreifingar í ágóðaskyni hér á landi en ákærðu hafi tekið við fíkniefnunum úr hendi tilgreinds aðila, sem hafi flutt fíkniefnin hingað til lands, í ferðatösku 20. nóvember 2025 með flugi frá Amsterdam. Fíkniefnin hafi verið geymd á herbergi á [...] þar til ákærðu hafi tekið við þeim að kvöldi 21. nóvember 2025 og flutt þau í íbúð 303 í [...] í Reykjavík þar sem lögregla hafi lagt hald á efnin daginn eftir.
Í fyrstu skýrslutöku hjá lögreglu, þremur dögum eftir handtöku, lýsti ákærði Enaimer yfir sakleysi sínu og kvaðst hafa komið hingað til lands vegna þess að ákærði Roman hafi boðið ákærða Enaimer hingað þar sem hér væri auðvelt að fá vinnu. Hann kvaðst hafa gist í bílskúr hjá vini ákærða Roman en ákærði Enaimer gat ekki sagt hvar bílskúrinn væri. Hann kvaðst hafa verið að koma í fyrsta sinn í […] þegar hann og ákærði Roman hafi verið handteknir en hann hafi beðið ákærða Enaimer að koma með sér þangað en hann hafi ekki átt neitt þar. Hann kvaðst ekki vita hvers vegna þeir hafi farið í íbúðina og ekkert vita um fíkniefnin sem hafi fundist þar.
Ákærði Enaimer gaf aftur skýrslu hjá lögreglu 8. desember 2025 og kvaðst í fyrstu engu vilja breyta frá fyrri framburði sínum. Hann kvaðst reyndar hafa farið nokkrum sinnum í íbúðina áður en hann og ákærði Roman hafi verið handteknir og ákærði Enaimer hafi alltaf farið með ákærða Roman þangað en ekki hafi verið um nein eiturlyf að ræða. Ákærði Enaimer breytti svo framburði sínum og kvaðst ekki alltaf hafa farið með ákærða Roman í íbúðina. Ákærði Enaimer kvaðst hafa farið á [...] vegna þess að fjölskyldumeðlimur hafi verið á ferðalagi hér og sá hafi beðið ákærða að útvega sér úlpu eða jakka. Ákærði kvaðst hafa hitt viðkomandi í anddyri hótelsins en leiðrétti það síðan og viðurkenndi að hafa farið inn á herbergi með manninum sem hann hafi hitt þar, þ.e. A eða Alfredo. Ákærði hafi verið að fara með pening í lokuðu umslagi til A en ákærði Roman, sem ákærði Enaimer hafi verið mjög hræddur við, hafi látið ákærða Enaimer hafa umslagið. Ákærði kvaðst einnig vera hræddur við A vegna þess að ákærði skuldaði honum og ákærða Roman pening. Ákærði Enaimer ítrekaði að hann vissi ekkert um fíkniefnin sem hafi fundist í [...] né hvernig þau hafi komist þangað. Síðar viðurkenndi hann að hafa farið á [...] til að sækja fíkniefni og hann hafi gert það vegna þess að hann hafi verið hræddur. Hann hafi farið með pening til mannsins á [...] og tekið við fíkniefnum frá honum í staðinn í þremur eða fjórum glærum plastpokum. Það hljóti að vera fíkniefnin sem hafi fundist í [...]. Hlutverki ákærða hafi átt að vera lokið þegar fíkniefnin hafi verið komin í […] en hann hafi ekki átt þau og fullyrðing ákærða Roman þar um sé ekki rétt.
Ákærði Enaimer gaf loks skýrslu hjá lögreglu 17. febrúar 2026. Þá viðurkenndi hann að hafa gist eina nótt í [...] og ákærði Roman hafi komið þangað. Ákærði Enaimer kvaðst hafa þurft að snerta fíkniefnin í [...] þar sem hann hafi þurft að ganga frá þeim eftir að þeim hafði verið skipt í einingar og við það hafi hann notað gúmmíhanska. Hann hafi látið manninn, sem hafi afhent ákærða fíkniefnin, hafa 5.000 evrur í íslenskum krónum á föstudeginum og daginn eftir 8.000 evrur sem ákærði Enaimer hafi fengið frá ákærða Roman.
Ákærði, Enaimer Enrique Naranjo Julio, gaf skýrslu fyrir dómi 12. desember 2025 meðan málið var enn til rannsóknar hjá lögreglu. Hann lýsti því yfir að framburðurinn sem hann gaf síðast hjá lögreglu væri réttur. Hann hafi komið hingað til lands til að flytja eiturlyf á milli staða, þ.e. á milli hótela eða mótela. Eiturlyfin hafi verið í glærum pappír í fjórum einingum í ferðatösku á [...] en hann kvaðst ekki vita hver hafi komið með fíkniefnin þangað og ekki þekkt manninn sem hafi gefið ákærða skipanir en þeir hafi hist. Ákærði Roman hafi skipað ákærða Enaimer að sækja fíkniefnin en aðrir sem tengist málinu séu frá Rússlandi en búsettir á Spáni og tilheyri hring þar. Það hafi verið byrjað að kúga ákærða þar í landi vegna þess að hann hafi staðið í skuld vegna eiturefna. Ákærði kvaðst hafa komið einu sinni áður til Íslands og átt að flytja pakka en það hafi ekki gengið eftir. Maðurinn, sem ákærði hafi hitt á hótelinu, þ.e. A eða Alfredo, hafi verið veikur og þetta hafi verið í fyrsta skiptið sem þeir hafi hist. Ákærði hafi fyrst látið manninn hafa 5.000 evrur og daginn eftir 8.000 evrur sem hafi komið frá ákærða Roman. Ákærði Enaimer sagði að ákærði Roman væri höfuðpaurinn og ákærði Enaimer hafi aðeins átt að sækja fíkniefnin en hann hafi ekki vitað hver hafi átt að fá þau. Hann hafi ekki séð þegar efnin hafi verið meðhöndluð í íbúðinni í [...] þar sem hann hafi verið sendur inn í herbergi þegar einhver hafi komið í íbúðina.
Við aðalmeðferð málsins kvaðst ákærði Enaimer hafa komið hingað til lands til að sækja pening og fara með hann til Spánar en maður að nafni Sergey hafi skipulagt ferðina. Þegar ákærði hafi komið hingað hafi hann farið í íbúðina í [...]. Ákærði Roman hafi svo sagt ákærða Enaimer að hann ætti fyrst og fremst að sækja pening á [...], þ.e. 5.000 evrur. Síðan hafi Sergey hringt og sagt að ákærði ætti einnig að sækja pakkningar á hótelið. Hann hafi gert það og farið með pakkningarnar í [...] og afhent ákærða Roman þær en ákærði Enaimer hafi ekki snert efnið. Peningana, sem hann hafi verið með við handtöku, þ.e. 8.000 evrur hafi hann átt að afhenda eiganda kókaínsins og þá hafi hann átt að láta ákærða Roman hafa 9.000 evrur. Þá hafi ákærði Enaimer átt að fara með 9.200 evrur til Spánar. Ákærði kvaðst hafa átt að ganga frá í íbúðinni í [...] og hafi notað við það hanska og þess vegna hafi DNA-snið hans fundist á hönskunum.
Eins og ráða má af framburði ákærða Enaimer tók hann miklum breytingum frá fyrstu skýrslutöku hjá lögreglu og þar til við aðalmeðferð málsins. Má segja að framburður hans hafi tekið breytingum hjá lögreglu þegar honum hafi verið bent á að atriði í framburði hans stæðust ekki. Í fyrstu kannaðist hann ekkert við að hafa komið nálægt fíkniefnum og hann hafi komið hingað til lands í boði ákærða Roman í leit að vinnu. Síðar viðurkenndi ákærði að hafa flutt fíkniefnin, sem ákært er vegna, í íbúðina í [...] og að hafa látið manninn sem hafi afhent ákærða efnin á [...] hafa fjármuni sem hafi komið frá ákærða Roman en hann sé aðalmaður í málinu. Má segja að framburður ákærða Enaimer hafi gengið í þá átt að gera eins lítið úr sínum hlut og mögulegt væri. Að því leyti sem framburðurinn er ekki í samræmi við rannsóknargögn málsins þykir hann ótrúverðugur og verður því ekki alfarið lagður til grundvallar við úrlausn málsins. Ákærði Enaimer hefur þó viðurkennt að hafa flutt fíkniefnin á milli staða og afhent þeim sem lét hann hafa efnin fjármuni sem hafi komið frá ákærða Roman. Þá hafi ákærði Enaimer afhent ákærða Roman fíkniefnin í [...].
Ákærði, Roman Belousov, gaf skýrslu hjá lögreglu 25. nóvember 2025, þ.e. þremur dögum eftir handtöku. Hann viðurkenndi ekki neitt varðandi innflutning á fíkniefnum og kvaðst hafa verið í [...], þegar hann hafi verið handtekinn, í þeim tilgangi að kaupa kókaín. Hann hafi einnig komið þangað daginn áður til að ræða um verð á fíkniefnum en maðurinn sem hafi verið að selja þau, ákærði Enaimer, hafi komið til landsins þann dag. Ákærði Enaimer hafi verið með öryggisnúmer að íbúðinni í [...], gist þar og borðað og því hafi þetta líklega verið hans íbúð. Ákærði Roman kvaðst hafa ætlað að kaupa 150 grömm og hvert gramm á 8.500 krónur. Hann hafi síðan ætlað að blanda efnið og selja það á götunni og afla sér fjár með því. Í íbúðinni í [...] hafi verið samtals um 1.400.000 krónur í peningum sem ákærði hafi ætlað að kaupa 150 grömm af kókaíni fyrir. Ákærði Roman hafi átt þann pening og um hafi verið að ræða sparnaðinn hans en hann hafi verið að selja Oxycontin. Ákærði Roman kvaðst hafa farið með ákærða Enaimer á [...] en ákærði Roman hafi ekki vitað um tilgang ferðarinnar þangað en ákærði Enaimer hafi ætlað að hitta þar gamlan mann og láta hann hafa lyf. Þegar ákærðu Roman og Enaimer hafi komið til baka frá [...] hafi þeir verið handteknir. Þá hafi ákærði Roman ætlað að taka 150 grömm af kókaíni en fara síðan heim til sín. Ákærði Roman gat ekki staðfest að ákærði Enaimer hafi átt fíkniefnin í íbúðinni og ákærði Roman hafi ekki heldur vitað um hversu mikið magn hafi verið að ræða en það hafi verið mikið. Ákærði Roman kvaðst ekkert hafa átt við efnið og hann hafi ekki komið nálægt skipulagningu á innflutningi fíkniefna en hann sé fíkill. Við skýrslutöku hjá lögreglu 8. desember 2025 kvaðst ákærði Roman í engu vilja breyta fyrri framburði sínum. Daginn áður en hann og ákærði Christian, eins og ákærði Roman nefndi ákærða Enaimer, hafi verið handteknir hafi þeir verið heima hjá ákærða Roman og tekið þar inn kókaín sem hafi komið frá Christian. Ákærði Roman sagði að ,,stjórnandinn“ RS hafi sent ákærða SMS-skilaboð með upplýsingum um íbúðina í [...] en ákærði Enaimer hafi verið fyrsti ,,milliliður“. Ákærði Roman kvaðst hafa hitt Christian hér á landi í fyrra en þeir hafi líklega hist þrisvar sinnum í heildina. Ákærði Roman kvaðst aldrei hafa verið einn í íbúðinni í [...]. Ákærði Roman sagði að á myndum og myndböndum, sem hafi fundist í farsíma hans, með miklu af íslenskum peningum væru sex til sjö milljónir sem hann hafi stolið. Ákærði ítrekaði að hann hafi ekki komið nálægt innflutningi á fíkniefnum og hann hafi aldrei hitt gamla manninn sem hafi verið á [...].
Samkvæmt rannsóknargögnum málsins og framburði lögreglumanna við aðalmeðferð málsins vann lögreglan að rannsókn á umfangsmikilli skipulagðri brotastarfsemi, þ.m.t. á innflutningi fíkniefna og á peningaþvætti, á árinu 2025. Málið teygði sig til fleiri landa, svo sem Spánar og Litháen. Rannsókn málsins hefur leitt í ljós að maður að nafni Sergey Gaysin sé að öllum líkindum skipuleggjandi í glæpahópnum og er það í samræmi við framburð ákærðu Enaimer og Roman. Við rannsókn málsins komu nöfn ákærðu Enaimer og Roman upp og fullyrt er að þeir séu mikilvægir þátttakendur í brotastarfseminni. Fram kom m.a. í vitnisburði lögreglumanna, sem unnu að rannsókn málsins, að ákærði Enaimer sé í samskiptum við burðardýr, sæki fíkniefni og komi þeim áfram. Hann hafi m.a. átt að sjá til þess að allt gengi upp hér á landi. Rannsóknargögn málsins og háttsemi ákærðu Enaimer og Roman, varðandi fíkniefnin sem ákært er vegna, benda til þess að hlutverk þeirra hafi verið mikið varðandi innflutning og meðhöndlun efnanna hér á landi.
Með dómi Héraðsdóms Reykjaness 31. mars 2026 (mál nr. S-307/2026) var A dæmdur í 30 mánaða fangelsi fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot með því að flytja hingað til lands 2.581,49 grömm af kókaíni og fara með þau á [...] en þaðan hafi þau farið í [...]. Hér er því um að ræða þau fíkniefni sem voru haldlögð í íbúðinni í [...] og ákært er vegna í því máli sem hér er til umfjöllunar.
Þegar ákærði Enaimer kom til landsins 21. nóvember 2025 fór hann nánast rakleitt í [...] og skömmu seinna kom ákærði Roman þangað á sömu bifreið og ákærði Enaimer hafði komið með frá Keflavíkurflugvelli. Þeir fóru síðan saman á bifreiðinni að [...] þar sem ákærði Enaimer fór inn en þaðan fóru þeir aftur í [...] þar sem ákærði Enaimer fór út úr bifreiðinni en ákærði Roman fór á brott í bifreiðinni. Daginn eftir kom Roman aftur í sömu bifreið að [...] og fór þar inn. Síðdegis þann dag komu ákærðu Enaimer og Roman út úr húsinu og þá fór lögregla inn í íbúð 303 og í kjölfarið voru ákærðu Enaimer og Roman handteknir. Áður höfðu þeir farið að [...] og ákærði Enaimer farið þar inn í ákveðið herbergi en ákærði Roman beið á meðan en fór þó inn í anddyri hótelsins. Um leið og ákærðu Enaimer og Roman voru handteknir var A einnig handtekinn. Þannig er ljóst að um leið og ákærði Enaimer kom til landsins voru hann og ákærði Roman komnir í samband og hittust. Þeir fóru m.a. tvívegis saman að [...] þangað sem fíkniefnin voru sótt og flutt í [...]. Í bæði skiptin kveðst ákærði Enaimer hafa látið A hafa evrur sem hafi komið frá ákærða Roman. Eins og fram er komið fór ákærði Enaimer fljótlega eftir komu til landsins á [...] þar sem A, sem flutti fíkniefnin hingað til lands, dvaldi. Er það í samræmi við það sem fram kom í málinu um það að ákærði Enaimer hefði haft hlutverk í glæpahópnum, sem var til rannsóknar, varðandi burðardýr.
Ákærði Roman hefur viðurkennt að hafa átt 1.415.000 krónur sem hald var lagt á í íbúðinni í [...]. Hefur hann sagt að þetta væri sparnaður frá honum sem þykir afar ótrúverðugt og bendir allt til þess að þessir fjármunir séu tilkomnir vegna fíkniefnaviðskipta. Lýsti ákærði Roman því að hann hafi ætlað að kaupa kókaín fyrir þessa fjármuni.
Við DNA-rannsókn á hönskum og tannbursta, sem var haldlagt í [...], fannst DNA-snið ákærða Enaimer. Eins og fram er komið kvaðst ákærði Enaimer í fyrstu hafa gist í bílskúr hjá vini ákærða Roman og ákærði Enaimer kvaðst ekkert vita um þau fíkniefni sem voru haldlögð í íbúðinni. Í íbúðinni voru m.a. umbúðir utan af fíkniefnum í ruslapoka á gólfinu, tvær vogir og fjöldi smelluláspoka og lofttæmingarvél í fjölnotapoka. Af þessu má ráða að í íbúðinni hafi fíkniefnin verið meðhöndluð, þ.m.t. að hluta til verið pakkað í neytendaumbúðir til sölu. Þar geta ekki aðrir hafa átt hlut að máli en ákærðu Enaimer og Roman. Hlutverk þeirra í málinu hefur því m.a. verið að koma fíkniefnunum á markað, alla vega að hluta til. Það liggur fyrir að ákærði Enaimer kom hingað til lands í október 2025 og dvaldi þá hjá ákærða Roman. Þá voru þeir í samskiptum daginn áður en ákærði Enaimer kom til landsins 21. nóvember 2025 og miðað við tilkynningar frá WhatsApp hefur ákærði Enaimer verið með símanúmer ákærða Roman á WhatsApp allt frá 11. mars 2024. Þykir afar ótrúverðugt með hliðsjón af þessum tengslum og samskiptum ákærðu Enaimer og Roman að ákærði Roman hafi ekki kallað Enaimer sínu rétta nafni í skýrslutökum vegna máls þessa heldur nefnt hann Christian. Tengsl þeirra eru því mun meiri en framburðir þeirra benda til. Í rannsóknargögnum málsins er að finna skilaboð á milli ákærða Enaimer og manns að nafni Sergey Gaysin sem er talinn höfuðpaurinn í hinni skipulögðu brotastarfsemi sem mál þetta er sprottið af. Þar eru m.a. nefnd maður og vinkona í Barcelona, vinurinn sé í Barcelona og að eitthvað sé tilbúið þar. Þá er sagt að ,,þau selji þessi 5 á hærra verði því ég er ekki á staðnum bróðir“, ,,Þau láta okkur hafa það á 70“ og „Og greiðslan verður að fara fram þar“. Þá segir ákærði Enaimer á einum stað: ,,Segðu Román að svara mér“. Þessi samskipti þykja benda til þess að ákærði Enaimer og Sergey Gaysin hafi verið að ræða fíkniefnaviðskipti.
Ákærði Enaimer lýsti því ýmist að hann hafi komið hingað til lands til að flytja eiturefni á milli staða eða til þess að flytja peninga til Spánar. Með hliðsjón af aðkomu hans að málinu, m.a. af flutningi fíkniefnanna frá [...] og í [...] og meðhöndlun efnanna þar, þykir afar líklegt að aðkoma hans að málinu sé önnur og meiri en að flytja fíkniefni á milli staða eða flytja peninga til Spánar.
Eins og fram er komið heldur ákærði Roman því fram að hann hafi aðeins haft í huga að kaupa kókaín en aðild hans að málinu sé ekki önnur og meiri. Þannig hafi hann ekki átt aðild að innflutningi fíkniefna til landsins. Þegar virt eru samskipti ákærða Roman við ákærða Enaimer og með vísan til alls ofanritaðs og rannsóknargagna málsins þykir framburður ákærða Roman um aðild hans að málinu ótrúverðugur og verður hann því ekki lagður til grundvallar þegar komist verður að niðurstöðu í málinu enda er hann í aðalatriðum í ósamræmi við rannsóknargögn málsins. Þá skal tekið fram að sá hluti framburðar ákærða Enaimer þar sem fram kemur að þeir fjármunir sem hann hafi látið A í té hafi komið frá ákærða Roman getur staðist.
Þegar allt ofanritað er virt og með vísan til rannsóknargagna málsins þykir hafið yfir skynsamlegan vafa og þar með sannað að ákærðu Enaimer og Roman hafi staðið að innflutningi á því kókaíni sem tilgreint er í 1. ákærulið og tekið við efninu hér á landi og flutt þau í íbúð í [...]. Hins vegar hefur ekkert komið fram sem bendir til þess að þeir hafi einir skipulagt innflutninginn eða fjármagnað kaupin á fíkniefnunum. Háttsemi ákærðu varðar við 173. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og hafa þeir unnið sér til refsingar í samræmi við það.
Niðurstaða vegna 2. og 3. ákæruliðar.
Ákærði, Roman, hefur skýlaust játað þá háttsemi sem honum er gefin að sök samkvæmt 2. og 3. ákærulið. Er játning hans í samræmi við rannsóknargögn málsins og verður því ekki dregið í efa að játning ákærða sé sannleikanum samkvæm. Telst því hafið yfir skynsamlegan vafa og þar með sannað að ákærði hafi gerst sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök í 2. og 3. ákærulið og þar er réttilega heimfærð til refsiákvæða. Hefur ákærði unnið sér til refsingar í samræmi við það.
Niðurstaða vegna 4. ákæruliðar.
Ákærði, Enaimer, hefur skýlaust játað þá háttsemi sem honum er gefin að sök samkvæmt 4. ákærulið. Er játning hans í samræmi við rannsóknargögn málsins og verður því ekki dregið í efa að játning ákærða sé sannleikanum samkvæm. Telst því hafið yfir skynsamlegan vafa og þar með sannað að ákærði hafi gerst sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök í 4. ákærulið og þar er réttilega heimfærð til refsiákvæða. Hefur ákærði unnið sér til refsingar í samræmi við það.
Niðurstaða vegna 5. ákæruliðar.
Ákærðu Ö, Æ, X, Z, Y og Þ er gefin að sök hlutdeild í stórfelldu fíkniefnalagabroti ákærðu Enaimer og Roman. Samkvæmt 1. ákærulið er ákærðu Enaimer og Roman gefið að sök að hafa í félagi staðið að innflutningi á kókaíni sem hafi verið ætlað til söludreifingar í ágóðaskyni hér á landi. Þeir hafi tekið við fíkniefnunum á hóteli hér á landi og flutt þau í íbúð að [...] þar sem lögregla hafi lagt hald á efnin.
Hlutdeild ákærða Ö er sögð hafa verið að útvega íbúð í Reykjavík fyrir ákærðu Enaimer og Roman og ákærði Ö hafi falið ákærða Æ að leigja íbúð. Þá hafi ákærði Ö falið ákærða Y að afhenda íbúðina og koma vigt í hana og loks hafi ákærði Ö falið ákærða X að sækja þrjú kíló af kókaíni og 1.250.000 krónur í reiðufé í íbúðina að kvöldi 22. nóvember 2025.
Í 5. ákæruliðnum kemur ekki fram að ákærði Ö hafi átt að útvega íbúð í saknæmum tilgangi og þannig er því ekki lýst með afdráttarlausum hætti hvað í háttsemi ákærða Ö er refsivert. Það eitt út af fyrir sig að útvega íbúð eða það að fela ákærða Æ að leigja íbúð getur ekki verið refsivert. Sama gildir um það að fela ákærða Y að afhenda íbúðina og koma vigt í hana án þess að lýsa nánar því sem á að vera refsivert við háttsemina. Það að fela ákærða X að sækja þrjú kíló af kókaíni og 1.250.000 krónur í reiðufé í íbúðina getur hins vegar verið refsiverð háttsemi. Hins vegar er broti ákærðu Enaimer og Roman samkvæmt 1. ákærulið lýst þannig að það hafi verið fullframið þegar lögregla hafði haldlagt fíkniefnin, sem ákært er vegna, að kvöldi föstudagsins 21. nóvember 2025. Ákærði Ö fól ákærða X að fara í íbúðina um sólarhring síðar og eins og á stendur getur því þessi háttsemi ákærða Ö ekki talist hlutdeild í broti ákærðu Enaimer og Roman, sem þá var fullframið, þannig að háttsemin varði við 1. mgr. 22. gr. almennra hegningarlaga eins og haldið er fram í ákæru. Hins vegar gæti verið um eftirfarandi hlutdeild að ræða sem varði þá við 4. mgr. 22. gr. hegningarlaganna. Samkvæmt 1. mgr. 180. gr. laga nr. 88/2008 má hvorki dæma ákærða fyrir aðra hegðun en þá sem í ákæru greinir né heldur dæma aðrar kröfur á hendur honum. Þó má sakfella ákærða þótt aukaatriði brots, svo sem staður og stund þess, séu ekki skýrt eða rétt greind, enda telji dómari að vörn ákærða hafi ekki verið áfátt þess vegna. Dómari getur gefið aðilum færi á að tjá sig um atriði að þessu leyti, ef þurfa þykir. Með sömu skilyrðum er dómara og rétt að dæma eftir öðrum refsiákvæðum en fram koma í ákæru, þó aldrei aðrar kröfur en þar greinir. Þrátt fyrir niðurlag 1. mgr. 180. gr. laganna þykir ekki mögulegt með vísan til alls framanritaðs og eins og á stendur að sakfella ákærða Ö á grundvelli ákæru málsins. Verður hann því sýknaður af refsikröfu ákæruvaldsins.
Háttsemi ákærða Æ er þannig lýst að hann hafi beðið ákærða Z að leigja íbúð 303 í [...] í Reykjavík og greiða fyrir leiguna á íbúðinni en ákærði Æ hafi millifært leigufjárhæðina inn á reikning ákærða Z. Meintri refsiverðri háttsemi ákærða Æ er ekki lýst frekar í ákærunni. Það að leigja íbúð og greiða leiguna getur ekki, eitt út af fyrir sig, verið refsivert og þannig er því ekki lýst í ákærunni hvað hafi verið refsivert við þessa háttsemi ákærða Æ.
Háttsemi ákærða Y er þannig lýst að ákærði Ö hafi falið honum að afhenda íbúðina og koma vigt í hana. Hins vegar kemur ekki fram hvort ákærði Y hafi gert þetta og þá í hvaða tilgangi þannig að það er engri refsiverðri háttsemi af hálfu hans lýst í ákærunni.
Háttsemi ákærða X er þannig lýst að ákærði Ö hafi falið honum að sækja í íbúðina þrjú kíló af kókaíni og 1.250.000 krónur í reiðufé. Hins vegar kemur ekki fram hvort ákærði X hafi gert þetta þannig að það er engri refsiverðri háttsemi af hálfu hans lýst í ákærunni.
Háttsemi ákærða Z er þannig lýst að ákærði Æ hafi beðið ákærða Z að leigja íbúð 303 í [...] í Reykjavík í gegnum vefsíðuna www.booking.com og greiða fyrir leiguna. Hins vegar kemur ekki fram hvort ákærði Z hafi gert þetta og þá í hvaða tilgangi þannig að það er engri refsiverðri háttsemi af hálfu hans lýst í ákærunni.
Háttsemi ákærða Þ er þannig lýst að hann hafi farið inn í íbúðina að kvöldi 22. nóvember 2025 að undirlagi óþekkts aðila og dvalið þar í 27 mínútur áður en hann hafi horfið á braut. Því er ekki lýst í hvaða tilgangi ákærði Þ hafi farið í íbúðina og hvort það hafi verið gert í refsiverðum tilgangi. Það að fara inn í íbúðina getur ekki, eitt út af fyrir sig, verið refsivert og þannig er því ekki lýst hvað hafi verið refsivert við þá háttsemi ákærða Þ sem lýst er í ákærunni.
Samkvæmt c-lið 1. mgr. 152. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála skal í ákæru greina svo glöggt sem verða má hver sú háttsemi er sem ákært er út af, hvar og hvenær brotið er talið framið, heiti þess að lögum og aðra skilgreiningu og loks heimfærslu þess til laga og stjórnvaldsfyrirmæla, ef því er að skipta. Samkvæmt þessu þarf ákæra að vera þannig úr garði gerð að hvorki ákærði né dómari þurfi að vera í vafa um hvaða refsiverðu háttsemi ákærða er gefin að sök, hvað þá ef engri refsiverðri háttsemi er lýst í ákæru. Verður að vera hægt að ráða af ákærunni einni saman hvaða háttsemi ákærði er sakaður um og hvernig sú háttsemi verði talin refsiverð. Skiptir engu máli hvaða ályktanir megi draga af rannsóknargögnum málsins eða hvað ákærða kann að vera ljóst vegna rannsóknar málsins. Mega ekki vera slík tvímæli um hverjar sakargiftir eru að ákærða verði torvelt að taka afstöðu til þeirra og halda uppi vörnum. Ákæra í máli á þannig að leggja fullnægjandi grundvöll að málinu svo hægt sé að fella dóm á það samkvæmt því sem tilgreint er í ákærunni, enda verður ákærði ekki dæmdur fyrir aðra hegðun en þá sem lýst er í ákæru, sbr. 1. mgr. 180. gr. laga nr. 88/2008. Fimmti ákæruliður uppfyllir þannig ekki framangreind skilyrði um skýrleika hvað varðar ákærðu Æ, Y, X, Z og Þ. Verður því ekki hjá því komist að vísa ákæruliðnum frá dómi hvað þá varðar.
VII
Refsingar og sakarkostnaður.
Ákærði Enaimer hefur ekki áður sætt refsingu svo vitað sé. Samkvæmt sakavottorði ákærða Roman var hann dæmdur í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi í september 2016 fyrir þjófnað og fleiri brot. Þá gekkst hann með sátt undir sektargreiðslu og sviptingu ökuréttar í maí 2017. Í mars 2019 var hann dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir fíkniefnalagabrot. Í janúar og apríl 2025 gekkst ákærði undir sektargreiðslur og sviptingu ökuréttar fyrir umferðarlagabrot og í apríl 2025 gekkst hann einnig undir sektargreiðslu fyrir fíkniefnalagabrot. Ákærðu Enaimer og Roman hafa verið sakfelldir fyrir aðild að innflutningi á miklu magni af sterkum fíkniefnum ætluðu til söludreifingar í ágóðaskyni hér á landi. Brot þeirra voru alvarleg og beindust gegn mikilsverðum hagsmunum. Þá hafa þeir einnig verið sakfelldir fyrir peningaþvætti og ákærði Roman hefur verið sakfelldur fyrir vörslur á tæplega sex grömmum af kókaíni. Hafa þeir játað brot sín hvað varðar peningaþvætti og vörslur. Verður tekið tillit til alls þessa við ákvörðun refsingar sem verður ákveðin með hliðsjón að 77. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Þykir refsing ákærðu Enaimer og Roman hvors um sig hæfilega ákveðin fangelsi í 30 mánuði. Gæsluvarðhald beggja ákærðu frá 23. nóvember 2025 komi til frádráttar refsingu þeirra að fullri dagatölu.
Fallist er á upptökukröfu hvað varðar ákærðu Enaimer og Roman. Þannig skulu upptæk til ríkissjóðs 2.587,29 grömm af kókaíni, 2.226.000 íslenskar krónur (1.415.000 + 811.000), 20 evrur, ein Zassenhaus-grammavog, ein ProScale-grammavog, ein Haribogrammavog, ein OBH Nordica plöstunarvél og Oppo-farsími, sbr. 6. og 7. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 um ávana- og fíkniefni og 1. mgr. 69. gr., 1. tölulið 1. mgr. 69. gr. a og 1. mgr. 69. gr. b almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Ákærði, Enaimer Enrique Naranjo Julio, greiði málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, Birkis Más Árnasonar lögmanns, sem þykja hæfilega ákveðin, með hliðsjón af umfangi málsins og tímaskýrslu, 4.947.600 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti.
Ákærði, Roman Belousov, greiði málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, Guðmundar Njáls Guðmundssonar lögmanns, sem þykja hæfilega ákveðin, með hliðsjón af umfangi málsins og tímaskýrslu, 4.947.600 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti.
Málsvarnarlaun Magnúsar Jónssonar lögmanns, skipaðs verjanda ákærða Ö, sem þykja hæfilega ákveðin, með hliðsjón af umfangi málsins og tímaskýrslu, 2.120.000 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti, greiðist úr ríkissjóði. Málsvarnarlaun Þorgils Þorgilssonar lögmanns, skipaðs verjanda ákærða Æ, sem þykja hæfilega ákveðin, með hliðsjón af umfangi málsins og tímaskýrslu, 1.590.300 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti, greiðist úr ríkissjóði.
Málsvarnarlaun Snorra Sturlusonar lögmanns, skipaðs verjanda ákærða Y, sem þykja hæfilega ákveðin, með hliðsjón af umfangi málsins og tímaskýrslu, 1.767.000 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti, greiðist úr ríkissjóði.
Málsvarnarlaun Sveins Andra Sveinssonar lögmanns, skipaðs verjanda ákærða X, sem þykja hæfilega ákveðin, með hliðsjón af umfangi málsins og tímaskýrslu, 1.767.000 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti, greiðist úr ríkissjóði.
Málsvarnarlaun Jónasar Arnar Jónassonar lögmanns, skipaðs verjanda ákærða Z, sem þykja hæfilega ákveðin, með hliðsjón af umfangi málsins og tímaskýrslu, 1.590.000 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti, greiðist úr ríkissjóði.
Málsvarnarlaun Guðmundar St. Ragnarssonar lögmanns, skipaðs verjanda ákærða Þ, sem þykja hæfilega ákveðin, með hliðsjón af umfangi málsins og tímaskýrslu, 1.413.600 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti, greiðist úr ríkissjóði.
Ákærðu Enaimer Enrique Naranjo Julio og Roman Belousov greiði óskipt annan sakarkostnað, 1.611.705 krónur.
Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Haukur Gunnarsson saksóknarfulltrúi.
Ingi Tryggvason héraðsdómari kveður upp dóm þennan.
D ó m s o r ð:
Ákærði, Enaimer Enrique Naranjo Julio, sæti fangelsi í 30 mánuði. Gæsluvarðhald ákærða frá 23. nóvember 2025 komi til frádráttar refsingunni að fullri dagatölu.
Ákærði, Roman Belousov, sæti fangelsi í 30 mánuði. Gæsluvarðhald ákærða frá 23. nóvember 2025 komi til frádráttar refsingunni að fullri dagatölu.
Ákærði, Ö, er sýkn af kröfum ákæruvaldsins.
Fimmta ákærulið hvað varðar ákærðu X, Z, Y, Æ og Þ er vísað frá dómi.
Upptæk eru til ríkissjóðs 2.587,29 grömm af kókaíni, 2.226.000 íslenskar krónur, 20 evrur, ein Zassenhaus-grammavog, ein ProScale-grammavog, ein Haribogrammavog, ein OBH Nordica plöstunarvél og Oppo-farsími, Ákærði, Enaimer Enrique Naranjo Julio, greiði málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, Birkis Más Árnasonar lögmanns, 4.947.600 krónur.
Ákærði, Roman Belousov, greiði málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, Guðmundar Njáls Guðmundssonar lögmanns, 4.947.600 krónur.
Málsvarnarlaun Magnúsar Jónssonar lögmanns, skipaðs verjanda ákærða Ö, 2.120.000 krónur, greiðist úr ríkissjóði.
Málsvarnarlaun Þorgils Þorgilssonar lögmanns, skipaðs verjanda ákærða Æ, 1.590.300 krónur, greiðist úr ríkissjóði.
Málsvarnarlaun Snorra Sturlusonar lögmanns, skipaðs verjanda ákærða Y, 1.767.000 krónur, greiðist úr ríkissjóði.
Málsvarnarlaun Sveins Andra Sveinssonar lögmanns, skipaðs verjanda ákærða X, 1.767.000 krónur, greiðist úr ríkissjóði.
Málsvarnarlaun Jónasar Arnar Jónassonar lögmanns, skipaðs verjanda ákærða Z, 1.590.300 krónur, greiðist úr ríkissjóði.
Málsvarnarlaun Guðmundar St. Ragnarssonar lögmanns, skipaðs verjanda ákærða Þ, 1.413.600 krónur, greiðist úr ríkissjóði.
Ákærðu Enaimer Enrique Naranjo Julio og Roman Belousov greiði óskipt annan sakarkostnað, 1.611.705 krónur.
Ingi Tryggvason