Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

1593 dómar fundust

Lykilorð: Upptaka

Landsréttur birt 11. júní 2026 kl. 16:26

783/2025

Ákæruvaldið (Óli Ingi Ólason saksóknari) gegn Robertu Maciel De Góes (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður) og Spyridon Chinopoulos (Unnsteinn Örn Elvarsson lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

R og S var gefið að sök stórfellt fíkniefnalagabrot með því að hafa í félagi staðið að innflutningi á samtals 2.503,73 grömmum af kókaíni með 77-85% styrkleika ætluðu til söludreifingar í ágóðaskyni. Fíkniefnin fluttu þau til landsins sem farþegar í flugi frá Alicante á Spáni til Keflavíkur. R var með 1.124,45 grömm og S með 1.379,26 grömm falin innanklæða við komu þeirra til landsins. Þau gengust við þeim hluta sakargifta sem varðaði innflutning fíkniefna, en neituðu að hafa staðið saman að innflutningnum. Þá taldi R að háttsemi hennar fæli einungis í sér hlutdeild í broti þeirra sem hefðu fengið sig til verksins. Landsréttur staðfesti niðurstöðu hins áfrýjaða dóms um að R og S hefðu í sameiningu flutt samtals 2.503,73 grömm af kókaíni til landsins og að á því bæru þau refsiábyrgð sem aðalmenn. Þá var niðurstaða hins áfrýjaða dóms um viðurlög staðfest, þar sem R og S var gert að sæta fangelsi í þrjú ár og upptöku á fíkniefnum.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 11. júní 2026 kl. 14:20

S-2489/2026

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Gunnhildur Anna Alfonsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Svavari Sigurðssyni (Ingi Freyr Ágústsson lögmaður)
Málaflokkur: Kynferðisbrot

Ákærði, sem játaði brot sitt, dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir kynferðisbrot og gert að sæta upptöku.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 28. maí 2026 kl. 15:34

S-5560/2025

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Sonja Wiium saksóknarfulltrúi) gegn Breka Þór Frímannssyni (Þorgils Þorgilsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sem játaði sök var dæmdur til að sæta fangelsi í 8 mánuði fyrir m.a. sérstaklega hættulega líkamsárás og rán. Var um að ræða hegningarauka við refsingu í fyrri dómi.

Landsréttur birt 21. maí 2026 kl. 16:37

138/2025

Ákæruvaldið (Einar Tryggvason saksóknari) gegn Snorra Guðmundssyni (Karl Georg Sigurbjörnsson lögmaður), Sverri Þór Gunnarssyni (Sigurður G. Guðjónsson lögmaður) og SSLL444 ehf.
Málaflokkur: Skattaréttur

S og SÞ voru sakfelldir fyrir tollalagabrot og brot gegn lögum um gjald af áfengi og tóbaki með því að hafa flutt til landsins tilgreint magn reyktóbaks og vindlinga og veitt íslenskum tollyfirvöldum rangar og villandi upplýsingar um varninginn. Við ákvörðun refsingar var litið til þess að nokkrar tafir höfðu orðið á meðferð þess og þótti því rétt að skilorðsbinda refsinguna. Því var staðfestur dómur héraðsdóms um tveggja ára fangelsisrefsingu, en fullnustu hennar frestað skilorðsbundið í þrjú ár. Auk þess var þeim báðum gert að greiða hvor um sig í ríkissjóð 740.742.386 krónur í sekt. Loks voru nánar tilgreindar eignir gerðar upptækar.

Héraðsdómur Reykjaness birt 19. maí 2026 kl. 11:40

S-860/2026

Ákæruvaldið (Haukur Gunnarsson saksóknarfulltrúi) gegn Enaimer Enrique Naranjo Julio (Birkir Már Árnason lögmaður), Roman Belousov (Guðmundur Njáll Guðmundsson lögmaður), X (Sveinn Andri Sveinsson lögmaður), Y (Snorri Sturluson lögmaður), Z (Jónas Örn Jónasson lögmaður), Þ (Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður), Æ (Þorgils Þorgilsson lögmaður) og Ö (Magnús Jónsson lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Tveir ákærðu sakfelldir fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot og peningaþvætti. Annar þeirra einnig sakfelldur fyrir vörslur fíkniefna. Einn ákærða sýknaður af hlutdeild í broti þeirra og ákærðu varðandi hlutdeild annarra fimm vísað frá dómi.

Landsréttur birt 7. maí 2026 kl. 16:24

859/2025

Ákæruvaldið (Dagmar Ösp Vésteinsdóttir saksóknari) gegn Svavari Óla Ólafssyni (Andrés Már Magnússon lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

S var sakfelldur í héraði fyrir fíkniefna- og vopnalagabrot. Eldri skilorðsdómur var tekinn upp og S gerð refsing í einu lagi. Var refsing S ákveðin fangelsi í níu mánuði, en fullnustu sex mánaða frestað skilorðsbundið í tvö ár. Jafnframt voru gerð upptæk nánar tilgreind fíkniefni, fíknilyf og vopn. S áfrýjaði héraðsdómi í því skyni að fá refsinguna mildaða og bundna skilorði að öllu leyti. Með dómi Landsréttar var hinn áfrýjaði dómur staðfestur.

Landsréttur birt 7. maí 2026 kl. 16:11

703/2025

Ákæruvaldið (Anna Barbara Andradóttir saksóknari) gegn Elíasi Shamsudin (Leifur Runólfsson lögmaður) og Jónasi Shamsudin (Magnús Jónsson lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

J var gefin að sök tilraun til fíkniefnalagabrots með því að hafa í lok árs 2020 staðið að innflutningi á 347,16 g af kókaíni í sölu- og dreifingaskyni. Þá var J einnig gefið að sök fíkniefnalagabrot með því að hafa 12. mars 2021 haft í vörslum sínum 30 stykki af rítalín UNO töflum. Var E gefið að sök fíkniefna- og vopnalagabrot með því að hafa sama dag haft í vörslum sínum 506,9 g af amfetamíni í sölu- og dreifingaskyni og skammbyssu af gerðinni Browning. Loks var E og J gefið að sök að hafa á sama tíma haft í vörslum sínum, í sölu- og dreifingaskyni, 487,8 g af amfetamíni. Játuðu E og J brot sín í héraði og var farið með málið samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Með dómi héraðsdóms voru E og J sakfelldir fyrir þau brot sem þeim voru gefin að sök í ákæru og gert að sæta fangelsi í 12 mánuði. Þá voru gerð upptæk fíkniefni, vopn og 5.000.000 króna í reiðufé. E og J áfrýjuðu málinu til Landsréttar og kröfðust þess að refsing þeirra yrði milduð. Þá krafðist J þess einnig í greinargerð sinni til Landsréttar að upptöku fjármunanna yrði hafnað þar sem þeir væru hluti af láni sem hann hefði fengið. Landsréttur staðfesti héraðsdóm um sakfellingu ákærðu og heimfærslu á brotum þeirra til refsiákvæða. Um kröfu J er laut að því að upptöku fjármunanna yrði hafnað kom fram að sú krafa hefði fyrst komið fram í greinargerð hans til réttarins og því ekki verið tekin upp í áfrýjunarstefnu. Teldist hún þar af leiðandi of seint fram komin, sbr. 2. mgr. 199. gr. laga nr. 88/2008. Um refsingu E og J sagði að ákvarða bæri hana sem hegningarauka við dóm sem þeir höfðu hlotið á árinu 2025, sbr. 78. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Voru brot E og J talin alvarleg og hafa beinst gegn mikilsverðum hagsmunum. Var þó einnig litið til þess að verulegur dráttur hefði orðið á rekstri málsins. Niðurstaða hins áfrýjaða dóms um 12 mánaða fangelsi E og J var með hliðsjón af framangreindu staðfest en frá dæmdri refsingu dróst gæsluvarðhaldsvist sem E og J höfðu sætt á árinu 2021.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 8. maí 2026 kl. 11:14

S-7359/2025

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Elín Hrafnsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Sæþóri Braga Sölvasyni (Jón Bjarni Kristjánsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var sakfelldur fyrir umferðar- og fíkniefnilagabrot. Var honum dæmdur hegningarauki og gert að sæta fangelsi í 9 mánuði ásamt því að áréttuð var ævilöng svipting ökuréttar ákærða.

Landsréttur birt 22. apríl 2026 kl. 16:18

742/2025

Ákæruvaldið (Hulda María Stefánsdóttir saksóknari) gegn Algimantas Saltenis (Guðmundur Njáll Guðmundsson lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

A var gefið að sök stórfellt fíkniefnalagabrot með því að hafa í félagi með tveimur öðrum mönnum staðið að innflutningi á samtals 3.002,01 g af kókaíni frá Spáni til Íslands, ætluðu til söludreifingar hér á landi í ágóðaskyni. A neitaði sök og kvaðst einungis hafa tekið að sér að akstur og ýmiss konar útréttingar að beiðni ónefnds manns í Litáen, sem hann ynni stundum fyrir og sinnti ýmiss konar verkefnum hér á landi. Í dómi héraðsdóms, sem Landsréttur staðfesti með vísan til forsendna hans, var talið hafið yfir skynsamlegan vafa að A hefði verið þátttakandi í innflutningnum og að honum hefði ekki getað hafa dulist að um innflutning á fíkniefnum væri að vera. Var litið svo á að um verkskipta aðild A og meðákærðu í héraði hefði verið að ræða. Var A sakfelldur samkvæmt ákæru. Við ákvörðun refsingar A var litið til sakaferils hans og að gögn málsins bæru með sér að hann hefði lotið boðvaldi annarra en ekki séð um skipulagningu brotsins. Með hliðsjón af þessu og með vísan til 1., 3., 5. og 6. töluliða 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 var refsing A ákveðin fangelsi í þrjú ár, auk þess sem umrædd fíkniefni og farsími hans voru gerð upptæk.

Landsréttur birt 1. maí 2026 kl. 12:55

191/2026

A (Einar Gautur Steingrímsson lögmaður) gegn ríkissaksóknara (Óskar Thorarensen lögmaður)

Málið varðaði kröfu A um að felld yrði úr gildi synjun ríkissaksóknara á afhendingu nánar tilgreindra muna sem höfðu verið gerðir upptækir með dómi Hæstaréttar í sakamáli á hendur syni A. Í úrskurði Landsréttar var litið til þess að munir sem væru gerðir upptækir væru eign ríkissjóðs nema annað væri sérstaklega tekið fram í lögum, og talið vanreifað af hálfu A hvernig ríkissaksóknari gæti farið með fyrirsvar fyrir ríkissjóð í tengslum við kröfu um afhendingu munanna eða afhent þá. Yrði ekki séð að A gæti fengið verðmætin afhent yrðu kröfur hans teknar til greina og væri með dómi því ekki leyst úr þeim réttindum sem málsókninni væri ætlað að tryggja. Var því talið að A hefði ekki lögvarða hagsmuni af úrlausn málsins, sbr. 1. mgr. 25. gr. laga nr. 91/1991, og hinn kærði úrskurður um frávísun málsins staðfestur.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 13. apríl 2026 kl. 17:11

S-4277/2025

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Pétur Fannar Gíslason aðstoðarsaksóknari) gegn Roger Ray Phea (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Ákærði sakfelldur fyrir tilraun til fíkniefnalagabrots og dæmdur í fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi og fíkniefni gerð upptæk.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 7. apríl 2026 kl. 14:24

S-125/2026

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Sigrún Inga Guðnadóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Franko Zyla (Baldvin Már Kristjánsson lögmaður) og Serxho Zyla (Gunnar Gíslason lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Ákærðu, sem játuðu brot sitt, dæmdir í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni og gert að sæta upptöku á efnum og munum.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 27. mars 2026 kl. 10:49

S-5373/2025

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Anna Guðbjörg Hólm Bjarnadóttir saksóknarfulltrúi) gegn Hallgrími Valgeiri Yoakum (Sveinn Andri Sveinsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot og fíkniefnalagabrot sem hann játaði en sýknaður af fíkniefnalagabroti því sem hann neitaði sök í. Dæmdur til að sæta fangelsi í 60 daga. Þá var hann dæmdur til að sæta sviptingar ökuréttar ævilangt auk þess sem fíknefni voru gerð upptæk.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 24. mars 2026 kl. 16:23

S-3226/2025

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Anna Guðbjörg Hólm Bjarnadóttir saksóknarfulltrúi) gegn Söndru Rún Raybould (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærða var sakfelld fyrir m.a. þjófnað, nytjastuld, akstur undir áhrifum vímuefna án ökuréttinda og fyrir vörslur fíkniefna. Var henni gert að sæta fangelsi í 9 mánuði og hún svipt ökurétti ævilangt.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 12. mars 2026

S-7406/2025

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Pétur Fannar Gíslason aðstoðarsaksóknari) gegn Bojan Bugarski
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Ákærði dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir tilraun til fíkniefnalagabrots.

Landsréttur birt 12. mars 2026

690/2025

Ákæruvaldið (Anna Barbara Andradóttir saksóknari) gegn Wojciech Pawelczyk (Kjartan Ragnars lögmaður, Birkir Már Árnason lögmaður, 1. prófmál)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

W var gefið að sök að hafa staðið að innflutningi á 5.200 ml af amfetamínbasa, ætluðum til söludreifingar í ágóðaskyni, sem barst með póstsendingu frá Póllandi en nafngreindur maður hér á landi var skráður viðtakandi hennar fyrir tilstuðlan W. Í hinum áfrýjaða dómi var W sakfelldur samkvæmt ákæru og gert að sæta fangelsi í fimm ár. Með vísan til forsendna hins áfrýjaða dóms taldi Landsréttur sannað að W hefði staðið að innflutningi efnisins með þeim hætti sem greindi í ákæru. Taldi Landsréttur ekkert fram komið sem fengi hróflað við sönnunarmati héraðsdóms og gætu athugasemdir W við rannsókn málsins, þar með talið um skort á könnun á aðkomu annarra, engu breytt um að það brot sem ákæra lyti að hefði verið fullframið þegar efnið barst með pósti til landsins. Var niðurstaða hins áfrýjaða dóms um sakfellingu W því staðfest og brotið talið réttilega heimfært til 173. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Þá staðfesti Landsréttur einnig niðurstöðu hins áfrýjaða dóms um refsingu W, fangelsi í fimm ár, upptöku og sakarkostnað, en við ákvörðun refsingar var í dómi Landsréttar litið til 1. og 3. töluliðar 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga auk þeirra sjónarmiða sem rakin voru í hinum áfrýjaða dómi.

Hæstiréttur birt 11. mars 2026

28/2025

Ákæruvaldið (Sigríður J. Friðjónsdóttir ríkissaksóknari) gegn Sindra Snæ Birgissyni (Sveinn Andri Sveinsson lögmaður) og Ísidóri Nathanssyni (Ásgeir Þór Árnason lögmaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

S og Í voru ákærðir fyrir stórfelld brot gegn vopnalögum. Þá var S einnig ákærður fyrir tilraun til hryðjuverka og Í fyrir hlutdeild í því broti. Með dómi Landsréttar var héraðsdómur staðfestur meðal annars um sakfellingu ákærðu fyrir stórfelld brot gegn vopnalögum. Jafnframt staðfesti Landsréttur niðurstöðu héraðdóms um sýknu ákærðu af sakargiftum um tilraun til hryðjuverks og hlutdeild í því broti. Hæstiréttur staðfesti niðurstöðu Landsréttar um að hafna kröfu um frávísun málsins frá héraðsdómi. Rétturinn taldi á hinn bóginn að ágallar höfðu verið á túlkun Landsréttar á sönnunarkröfum 1. mgr. 20. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 svo og á aðferð við sönnunarmat og samningu hins áfrýjaða dóms sem voru til þess fallnir að hafa veruleg áhrif á niðurstöðu málsins. Þar sem Hæstiréttur gæti ekki endurmetið niðurstöðu hins áfrýjaða dóms um sönnunargildi munnlegs framburðar var óhjákvæmilegt vegna framangreindra annmarka að ómerkja hinn áfrýjaða dóm í heild sinni og vísa málinu aftur til Landsréttar til löglegrar meðferðar og dómsálagningar á ný.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 11. mars 2026

S-7366/2025

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Elín Hrafnsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Davíð Þór Rúnarssyni (Orri Sigurðsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var sakfelldur fyrir umferðar- og fíkniefnalagabrot. Var honum dæmdur hegningarauki og gert að sæta fangelsi í 5 mánuði ásamt því að áréttuð var ævilöng svipting ökuréttinda ákærða.

Héraðsdómur Reykjaness birt 9. mars 2026

S-122/2026

Ákæruvaldið (Hilda Rut Harrysdóttir saksóknarfulltrúi) gegn Mai Wongphoothon (Snorri Sturluson lögmaður)
Lykilorð: Sekt. Tollalagabrot. Upptaka.
Málaflokkur: Skattaréttur

Ákærði var sem fyrirsvarsmaður einkahlutafélags sakfelldur fyrir tollalagabrot og gert að greiða sekt. Félaginu var gert að sæta upptöku handlagðra muna.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 20. febrúar 2026

S-766/2026

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kamilla Kjerúlf aðstoðarsaksóknari) gegn Rafal Ryszard Kottlewski (Leifur Runólfsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur fyrir ýmis hegningarlagabrot, brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni og umferðarlagabrot og dæmdur í 16 mánaða fangelsi og sviptur ökurétti ævilangt.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 18. febrúar 2026

S-5621/2025

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kamilla Kjerúlf aðstoðarsaksóknari) gegn Halit Kalemasi (Gunnar Gíslason lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Maður sem játaði brot sitt sakfelldur fyrir fíkniefnalagabrot. Dæmdur til 30 daga fangelsisvistar, skilorðsbundið, og til að sæta upptöku á efnum, síma og peningum.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 12. febrúar 2026

S-482/2026

Héraðssaksóknari (Haukur Gunnarsson saksóknarfulltrúi) gegn Robert Gomer Grochola (Stefán Ragnarsson lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Ákærði, sem játaði brot sitt, dæmdur í 20 mánaða fangelsi, þar af 17 mánuði skilorðsbundið í tvö ár, og til þess að sæta upptöku fíknefna og muna fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot.

Landsréttur birt 12. febrúar 2026

453/2025

Ákæruvaldið (Hulda María Stefánsdóttir saksóknari) gegn Sigurði Kristinssyni (Hilmar Magnússon lögmaður), Baldri Þór Sigurðarsyni (Ingi Freyr Ágústsson lögmaður), Sigfúsi Bergmann Svavarssyni (Guðmundur Njáll Guðmundsson lögmaður), Agurim Xixa (Almar Þór Möller lögmaður), Elsu Ruth Róbertsdóttur (Þorgils Þorgilsson lögmaður) og X (Gísli Kr. Björnsson lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

SK, BÞS, SBS og AX voru ákærðir fyrir skipulagða brotastarfsemi og stórfellt fíkniefnalagabrot, sbr. 173. gr. a og 175. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940, með því að hafa staðið saman að innflutningi á 5.733,60 g af metamfetamín kristöllum með 81% styrkleika í metamfetamínbasa sem samsvaraði 100% af amfetamínklóríði, ætluðu til söludreifingar hér á landi. Voru efnin falin í bifreið sem flutt var inn til landsins. Við komu til landsins voru efnin fjarlægð og gerviefni sett í þeirra stað áður en ákærðu var afhent bifreiðin. X var gefin að sök hlutdeild í tilraun til stórfellds fíkniefnalagabrots með því að hafa 24. október 2024 sótt bifreiðina ásamt SBS og BÞS, vitandi að fíkniefni væru í bifreiðinni, og þannig veitt þeim liðsinni með stuðningi og hvatningu. Þá var ERR sökuð um hlutdeild í tilraun til stórfellds fíkniefnalagabrots með því að hafa 25. október 2024 aðstoðað SK og AX við að fjarlægja fíkniefnin úr bifreiðinni. Voru ætluð brot X og ERR talin varða við 173. gr. a almennra hegningarlaga, sbr. 20. og 22. gr. sömu laga. Með dómi héraðsdóms voru SK, BÞS, SBS og AX sakfelldir fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot en sýknaðir af þeim hluta ákæru er laut að skipulagðri brotastarfsemi. Þá var ERR sakfelld samkvæmt ákæru en X var sýknaður af kröfum ákæruvaldsins. Fyrir Landsrétti voru SK, BÞS, SBS og AX allir sakfelldir fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot. Sömuleiðis var staðfest niðurstaða héraðsdóms um sakfellingu ERR samkvæmt ákæru. Landsréttur féllst á það með héraðsdómi að ekki yrði talið að X hefði á nokkurn hátt átt þátt í því að brotið var framið, enda hafi það að stærstum hluta verið yfirstaðið þegar tilgreind samtöl áttu sér stað. Ekki væri hægt að ljá neitt í háttsemi eða orðum X slíkt vægi að það hafi styrkt áform BÞS og SBS. X hafi auk þess á þessum tíma verið umkomulaus, búið með samþykki BÞS og SBS í bifreið þeirra og ekki átt í önnur hús að venda. Yrði ekki gerð sú krafa að X við þær aðstæður yfirgæfi bifreiðina þótt hugsanlega hafi grunur vaknað með honum að í hinni innfluttu bifreið væru fíkniefni. Var niðurstaða héraðsdóms um sýknu X staðfest. Þá tók Landsréttur til skoðunar hvort háttsemi SK, BÞS, SBS og AX teldist vera skipulögð brotastarfsemi. Rétturinn taldi að ákæruvaldið hefði hvorki leitt sönnur, svo hafið væri yfir skynsamlegan vafa, að tilvist skipulagðra brotasamtaka í tilfelli ákærðu né að þeir hafi haft ásetning til að fremja brot sem lið í starfsemi skipulagðra brotasamtaka í skilningi 175. gr. a almennra hegningarlaga. Voru SK, BÞS, SBS og AX því sýknaðir af ákæru fyrir brot gegn því ákvæði. Við ákvörðun refsingar var litið til þess að um var að ræða samverknað SK, BÞS, SBS og AX með verkskiptri aðild þar sem þáttur hvers og eins var mismikill. Þá var litið til þess að ásetningur þeirra og ERR hafi verið einbeittur. Enn fremur var litið til þess að um var að ræða mikið magn hættulegra fíkniefna og veruleg hætta á að þau færu í sölu og dreifingu til ótiltekins fjölda manna hér á landi. Við refsingu þeirra var því litið til 1., 3., 5., 6. og 8. töluliðar 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga og einnig 2. mgr. 70. gr. sömu laga varðandi SK, BÞS, SBS og AX. Einnig var litið til sakaferils SK og BÞS við ákvörðun refsingar þeirra. Var SK gert að sæta fangelsi í átta ár, BÞS í fjögur ár, SBS í þrjú og hálft ár, AX í fimm og hálft ár og ERR skilorðsbundið í 10 mánuði. Loks voru fíkniefnin og tilgreindir munir gerð upptæk..

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 11. febrúar 2026

S-4413/2025

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Böðvar Einarsson saksóknarfulltrúi) gegn Óskari Mána Atlasyni (Áslaug Lára Lárusdóttir lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var sakfelldur fyrir þjófnaðar, umferðar-, fíkniefnalaga-, og vopnalagabrot. Rauf ákærði skilorð og var honum dæmdur hegningarauki. Var honum gert að sæta fangelsi í 2 ár ásamt því að vera sviptur ökuréttindum ævilangt ásamt upptöku fíkniefna og vopna.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 9. febrúar 2026

S-5830/2025

Héraðssaksóknari (Sigurður Ólafsson aðstoðarsaksóknari) gegn X (Snorri Sturluson lögmaður), Y (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður) og Gabríel Douane Boama (Almar Þór Möller lögmaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Ákærði X var sakfelldur fyrir tvö rán framin annars vegar í félagi við meðákærða Gabríel og hins vegar í félagi við meðákærða Y, tvær sérstaklega hættulegar líkamsárásir, aðra framda í félagi við meðákærða Gabríel, auk sérrefsilagabrota. Ákærði Gabríel var sakfelldur fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás og hlutdeild í ráni, framið í félagi við meðákærða X. Ákærði Y var sakfelldur fyrir rán framið í félagi með X. Var ákærði X dæmdur í tveggja og hálfs árs óskilorðsbundið fangelsi, Gabríel var dæmdur í 12 mánaða óskilorðsbundið fangelsi og Y var dæmdur í 6 mánaða skilorðsbundið fangelsi. Ákærði X var jafnframt sviptur ökurétti í 18 mánuði og gert að sæta upptöku fíkniefna og vopna.

Héraðsdómur Reykjaness birt 26. janúar 2026

S-2970/2025

Ákæruvaldið (Karl Ingi Vilbergsson saksóknari) gegn Eivydas Laskauskas (Ómar Örn Bjarnþórsson lögmaður), Kamile Radzeviciute (Ingi Freyr Ágústsson lögmaður) og Egidijus Dambrauskas (Arnar Kormákur Friðriksson lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Sakfellt fyrir innflutning á umtalsverðu magni fíkniefna til landsins. Samverknaður.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 22. janúar 2026

S-5633/2025

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kamilla Kjerúlf aðstoðarsaksóknari) gegn Santino Gkermeni (Gunnar Gíslason lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Ákærði sakfelldur fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni og dæmdur í 60 daga skilorðsbundið fangelsi.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 7. janúar 2026

S-5625/2025

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Eva Lind Ingadóttir saksóknarfulltrúi) gegn Hiep Tien Nguyen
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Ákærði var sakfelldur fyrir fíkniefnilagabrot. Var honum gert að sæta fangelsi í 0 daga, skilorðsbundið til tveggja ára ásamt upptöku muna.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 22. desember 2025

S-3353/2025

Héraðssaksóknari, Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Matthea Oddsdóttir aðstoðarsaksóknari, Júlí Karlsson aðstoðarsaksóknari) gegn Pétri Ómari Péturssyni (Snorri Sturluson lögmaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Ákærði, sem játaði sök, sakfelldur fyrir hótanir og brot gegn blygðunarsemi, líkamsárás, umferðarlagabrot og fíkniefnalagabrot, og dæmdur í fimm mánaða skilorðsbundið fangelsi og sviptur ökurétti ævilangt, auk þess sem haldlögð fíkniefni voru gerð upptæk.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 19. desember 2025

S-3936/2025

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Pétur Fannar Gíslason aðstoðarsaksóknari) gegn Ntenis Vanngeli
Lykilorð: Skilorð. Upptaka. Útivist.
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Ákærði sakfelldur fyrir fíkniefnalagabrot og dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi og til að sæta upptöku haldlagðra fíkniefna og muna.

Héraðsdómur Suðurlands birt 18. desember 2025

S-605/2025

Lögreglustjórinn í Vestmannaeyjum (Tinna Sif Guðmundsdóttir fulltrúi) gegn Guðjóni Agustin Cortés (enginn)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Ákærði var fundinn sekur um fíkniefnalagabrot og peningaþvætt og honum gert að sæta fangelsi í 60 daga, en fullnustu refsingarinnar var frestað skilorðsbundið til tveggja ára. Þá voru gerð upptæk fíkniefna og fjármunir.

Héraðsdómur Reykjaness birt 18. desember 2025

S-53/2025

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Júlí Karlsson aðstoðarsaksóknari) gegn Smára Óskari Hólmarssyni (Snorri Sturluson lögmaður)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Ákærða var gerð refsing fyrir þjófnað og vopnalagabrot. Jafnframt var honum gert að sæta upptöku að hluta á vopnum.

Hleð fleiri dómum…