Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

131 dómar fundust

Lykilorð: Skjalabrot

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 20. febrúar 2026

S-766/2026

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kamilla Kjerúlf aðstoðarsaksóknari) gegn Rafal Ryszard Kottlewski (Leifur Runólfsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur fyrir ýmis hegningarlagabrot, brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni og umferðarlagabrot og dæmdur í 16 mánaða fangelsi og sviptur ökurétti ævilangt.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 24. september 2025

S-4398/2025

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Elín Hrafnsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Rafal Ryszard Kottlewski
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var sakfelldur fyrir ýmis þjófnaðar-, skjala-, umferðar-, vopna- og fíkniefnalagabrot. Var honum gert að sæta fangelsi í 4 mánuði, skilorðsbundið til tveggja ára ásamt því að vera sviptur ökuréttindum í 5 ár.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 9. júlí 2025

S-2694/2025

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kamilla Kjerúlf aðstoðarsaksóknari) gegn Alexander Kjartansson (Snorri Sturluson lögmaður)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Ákærði var sakfelldur fyrir skjalabrot, gripdeild og þjófnað. Var honum gert að sæta fangelsi í 30 daga skilorðsbundið til tveggja ára.

Héraðsdómur Suðurlands birt 14. apríl 2025

S-87/2025

Lögreglustjórinn á Suðurlandi (Ólafur Hallgrímsson fulltrúi) gegn Ragnari Kristjáni Skúlasyni (enginn)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var fundinn sekur um ítrekaðan akstur undir áhrifum fíkniefna, akstur sviptur ökurétti sem og skjalabrot. Var honum gert að sæta fangelsi í 30 daga jafnframt sekt. Þá var ákærði sviptur ökurétti ævilangt og hann dæmdur til greiðslu sakarkostnaðar.

Héraðsdómur Reykjaness birt 10. febrúar 2025

S-2870/2024

Ákæruvaldið (Ásmundur Jónsson aðstoðarsaksóknari) gegn Omer Dheyaa Alwan Al-Zaidi
Lykilorð: Fangelsi. Skjalabrot.
Málaflokkur: Skjalafals

Ákærði dæmdur í fangelsi fyrir misnotkun skjals.

Héraðsdómur Suðurlands birt 24. október 2024

S-208/2024

Lögreglustjórinn á Suðurlandi (Rósamunda Jóna Baldursdóttir fulltrúi) gegn Rafal Wiktor Zolich (Ingi Freyr Ágústsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var fundinns ekur um ítrekaðan akstur sviptur ökurétti og gert að sæta fangelsi í fimm mánuði. Við meðferð málsins féll ákæruvaldið frá hluta sakarefnis og var sakarkostnaður að hluta til felldur á ríkissjóð.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 11. september 2024

S-4009/2024

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kamilla Kjerúlf saksóknarfulltrúi) gegn Kristínu Sigríði Arnlaugsdóttur
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærða sakfelld fyrir skjalabrot, akstur svipt ökurétti,akstur undir áhrifum lyfja og akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Dæmd í 135 daga fangelsi og svipt ökurétti ævilangt.

Héraðsdómur Reykjaness birt 2. júlí 2024

S-896/2024

Ákæruvaldið (Karl Ingi Vilbergsson saksóknari) gegn Adam Benito Pedie (Áslaug Lára Lárusdóttir lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Ákærði sakfelldur fyrir stórfelld fíkniefnalagabrot vegna skipulagningar, fjármögnunar og innflutning fíkniefna til landsins í þrjú aðskilin skipti, í tvö skipti með sitt hvorum einstaklingnum sem aðeins fluttu efnin til landsins (burðardýr) en í eitt skipti með póstsendingu. Ákærði var einnig sakfelldur fyrir skjalabrot og vörslur ávana- og fíkniefna. Ákærði var dæmdur í þriggja ára fangelsi.

Héraðsdómur Reykjaness birt 28. júní 2024

S-1106/2024

Ákæruvaldið (Daníel Reynisson aðstoðarsaksóknari) gegn Ali Enes Ciftci (Guðbrandur Jóhannesson lögmaður)
Lykilorð: Skjalabrot.
Málaflokkur: Skjalafals

Ákærði dæmdur í fangelsi fyrir skjalafals.

Héraðsdómur Suðurlands birt 6. júní 2024

S-206/2024

Lögreglustjórinn á Suðurlandi (Ólafur Hallgrímsson fulltrúi) gegn X (sjálfur)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var fundinns ekur um ítrekaðan akstur undir áhrifum fíkniefna, sem og ítrekaðan akstur sviptur ökurétti, auk skjalabrots og fíkniefnalagabrots. Með brotum sínum rauf ákærði skilorð eldri dóms er var dæmt upp. Var ákærða gert að sæta fangelsi í sjö mánuði og hann jafnframt sviptur ökurétti ævilangt. Aftur á móti var ekki fallist á að ákærði hefði með háttsemi sinni gerst sekur um brot gegn barnaverndarlögum.

Héraðsdómur Suðurlands birt 7. maí 2024

S-130/2024

Lögreglustjórinn á Suðurlandi (Rósamunda Jóna Baldursdóttir fulltrúi) gegn Aðalsteini Inga Helgasyni (Jón Egilsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var fundinn sekur um ítrekaðan akstur undir áhrifum fíkniefna, rangar sakargiftir og vopnalagabrot auk annarra brota. Var honum gert að sæta fangelsi í 90 daga, en fullnustu 60 daga refsingarinnar var frestað skilorðsbundið til tveggja ára. Ákærða var jafnframt gerð sekt og hann sviptur ökurétti ævilangt. Þá voru gerð upptæk vopn og ákærði dæmdur til greiðslu alls sakarkostnaðar.

Héraðsdómur Suðurlands birt 5. mars 2024

S-683/2023

Lögreglustjórinn á Suðurlandi (Ólafur Hallgrímsson fulltrúi) gegn Fannari Dan Vignissyni (enginn)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var fundinn sekur um ítrekaðan ölvunarakstur auk skjalabrots og aksturs sviptur ökurétti. Var honum gert að sæta fangelsi í 30 daga auk þess sem honum var gerð sekt. Þá var ákærði sviptur ökurétti ævilangt.

Héraðsdómur Reykjaness birt 20. febrúar 2024

S-3467/2023

Ákæruvaldið (Daníel Reynisson aðstoðarsaksóknari) gegn Abdihakim Mohamed (Þorgils Þorgilsson lögmaður)
Lykilorð: Skjalabrot.
Málaflokkur: Skjalafals

Ákærði dæmdur í 30 daga fangelsi fyrir misnotkun skjals.

Héraðsdómur Reykjaness birt 20. febrúar 2024

S-3464/2023

Ákæruvaldið (Daníel Reynisson aðstoðarsaksóknari) gegn Mustafa Mohammedi (Ólafur Páll Vignisson lögmaður)
Lykilorð: Skjalabrot.
Málaflokkur: Skjalafals

Ákærði dæmdur í 30 daga fangelsi fyrir misnotkun skjals

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 5. júlí 2023

S-1626/2023

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Lína Ágústsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn X (Snorri Sturluson lögmaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Ákærði var sýknaður af refsikröfu ákæruvaldsins vegna umsáturseineltis, vopnalagabrots og skjalabrots, en gert að sæta öryggisgæslu á viðeigandi stofnun.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 12. júní 2023

S-1122/2023

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kamilla Kjerúlf saksóknarfulltrúi) gegn Petru Ingibjörgu Eiríksdóttur (Þorgils Þorgilsson lögmaður)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Ákærða, sem játaði sök, dæmd til skilorðsbundinnar fangelsisrefsingar fyrir þjófnað, skjalabrot, nytjastuld og akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 5. apríl 2023

S-1123/2023

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Gunnhildur Anna Alfonsdóttir saksóknarfulltrúi) gegn Eduards Naglis
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot og skjalabrot. Var ákærða gert að sæta fangelsi í 60 daga, auk þess sem hann var sviptur ökurétti.

Héraðsdómur Reykjaness birt 1. mars 2023

S-11/2023

Ákæruvaldið (Daníel Reynisson aðstoðarsaksóknari) gegn Piotr Zbigniew Nowak
Lykilorð: Fangelsi. Skilorð. Skjalabrot.
Málaflokkur: Skjalafals

Ákærði var sakfelldur fyrir misnotkun skjals og dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 30. nóvember 2022

S-5019/2022

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Einar Laxness aðstoðarsaksóknari) gegn Atla Antonssyni
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur fyrir skjala-, umferðar-, fíkniefna-, og vopnalagabrot og dæmdur 4 mánaða fangelsi, skilorðsbundið til tveggja ára. Tímabundin svipting ökuréttar.

Landsréttur birt 4. nóvember 2022

505/2021

Ákæruvaldið (Marín Ólafsdóttir saksóknari) gegn Atla Viðari Gunnarssyni (Inga Lillý Brynjólfsdóttir lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

A var ákærður fyrir ýmis brot í 13 ákæruliðum. Við meðferð málsins í héraði féll ákæruvaldið frá 5 ákæruliðum. Með hinum áfrýjaða dómi var A sakfelldur fyrir þá ákæruliði sem eftir stóðu, að undanskildum ákærulið 11 sem hann var sýknaður af. Fyrir Landsrétti krafðist A sýknu af ákæruliðum 4, 10 og 12 en hann hafði játað brot samkvæmt ákæruliðum 1, 8, 9 og 13. Við úrlausn um ákærulið 4, sem sneri að meintum þjófnaði A úr verslun og umferðarlagabroti, kom fram í dómi Landsréttar að gögn um rannsókn lögreglu væru rýr og ákæruvaldinu hefði ekki tekist að færa sönnur á að A hefði gerst sekur um þá háttsemi sem honum var gefin að sök. Var A því sýknaður af ákærulið 4. Samkvæmt ákærulið 10 var A gefinn að sök nytjastuldur með því að hafa heimildarlaust tekið tilgreinda bifreið og notað hana uns lögregla hafði afskipti af honum sofandi í bifreiðinni. Í dómi Landsréttar var rakið að ekki hefði verið sýnt fram á að A hefði gerst sekur um þá háttsemi sem í ákæruliðnum væri lýst. Var A því sýknaður af kröfum ákæruvaldsins að þessu leyti. Við aðalmeðferð málsins fyrir Landsrétti var horft á myndupptöku af atburðum sem heyra undir ákærulið 12 og kannaðist A við sig á upptökunni. Með hliðsjón af því, vættum vitna og gögnum málsins að öðru leyti, var hinn áfrýjaði dómur staðfestur um sakfellingu A samkvæmt ákærulið 12. Hinn áfrýjaði dómur var að öðru leyti staðfestur með vísan til forsendna um annað en ákvörðun refsingar, sviptingu ökuréttar og upptöku á tveimur farsímum og spjaldtölvu. Refsing A þótti hæfilega ákveðin fangelsi í fimm mánuði. Þá var hann sviptur ökurétti ævilangt og gert að greiða brotaþola skaðabætur.

Héraðsdómur Reykjaness birt 22. júní 2022

S-1073/2022

Málið nr. S-1073/2022 Ákæruvaldið (Kristmundur Stefán Einarsson aðstoðarsaksóknari) gegn X (Þorgils Þorgilsson lögmaður)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Ákærði var sakfelldur fyrir 54 þjófnaðarbrot, auk fleiri brota á tímabilinu 1. september 2021 til 10. maí 2022. Með sumum brotanna rauf ákærði skilorð 5 mánaða fangelsisdóms frá 24. nóvember 2021, vegna 45 þjófnaðarbrota, og var sá dómur því tekinn upp og dæmdur með í hinu nýja máli. Þótti refsing ákærða þannig hæfilega metin 10 mánaða óskilorðsbundið fangelsi.

Landsréttur birt 16. júní 2022

272/2021

Ákæruvaldið (Jón H. B. Snorrason saksóknari) gegn Björgvini Viktori Þórðarsyni (Ómar Örn Bjarnþórsson lögmaður)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

B var ákærður í þremur liðum. Samkvæmt ákærulið I og II var honum gefið að sök peningaþvætti, sbr. 1. mgr. 264. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, með því að hafa tekið við og haft í vörslum sínum annars vegar gröfuskóflu og hins vegar tvo vökvafleyga sem honum hafi hlotið að hafa verið ljóst að aflað hefði verið með refsiverðum hætti, en mununum hafi áður verið stolið á svæði nánar tiltekinna fyrirtækja. Samkvæmt ákærulið III var honum gefið að sök að hafa í blekkingarskyni haft skráningarnúmer tilgreindrar bifreiðar á bifreið sinni, sbr. 1. mgr. 157. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. B játaði sök samkvæmt ákærulið III en neitaði sök samkvæmt ákæruliðum I og II. Í dómi Landsréttar var rakið að í vörslum B hefðu fundist þrír munir sem teknir höfðu verið ófrjálsri hendi frá þremur félögum án þess að nokkuð lægi fyrir um hvernig vörslur B á þeim komust á nema framburður hans, sem ekki fengi stuðning í gögnum málsins og rétturinn mat ótrúverðugan. Yrði talið sannað að B hafi hlotið að vera ljóst að munanna hafi verið aflað með refsiverðum hætti er hann tók við þeim og hafði í vörslum sínum. Var því staðfest niðurstaða hins áfrýjaða dóms um sakfellingu B og refsing hans ákveðin fangelsi í þrjá mánuði en fullnustu refsingarinnar var frestað skilorðsbundið í tvö ár.

Héraðsdómur Suðurlands birt 17. maí 2022

S-157/2022

Lögreglustjórinn í Vestmannaeyjum (Grímur Hergeirsson lögreglustjóri) gegn Ívari Torfasyni (Helgi Bragason lögmaður)
Málaflokkur: Skjalafals

Ákærði var fundinn sekur um brot gegn lögum um áhafnir íslenskra farþega- og flutningaskipa, brot gegn siglingarlögum, brot gegn lögum um lögskráningu sjómanna sem og skjalabrot. Var honum gert að sæta fangelsi í 30 daga, en fullnustu refsingarinnar var frestað skilorðsbundið.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 2. mars 2022

S-4975/2021

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kristín Einarsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Abigail Cadisa Friðriksdóttur (Kristján Ágúst Flygenring lögmaður)
Lykilorð: Skjalabrot. Þjófnaður.
Málaflokkur: Skjalafals

Ákærða sakfelld fyrir þjófnað og skjalabrot. Dæmd til að sæta fangelsi í 5 mánuði, skilorðsbundið til tveggja ára.

Héraðsdómur Suðurlands birt 10. febrúar 2022

S-708/2020

Lögreglustjórinn á Suðurlandi (Ólafur Hallgrímsson fulltrúi) gegn Hörpu Másdóttur (Ingólfur Vignir Guðmundsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærða var fundin sek um fjölmörg umferðarlagabrot sem og skjalabrot. Var ákærðu gert að greiða sekt að fjárhæð 2.500.000 kr., auk þess sem hún var svipt ökurétti í fimm ár.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 3. febrúar 2022

S-4900/2021

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Einar Laxness aðstoðarsaksóknari) gegn Árna Snæ Kristgeirssyni
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Ákærði sakfelldur fyrir m.a. auðgunarbrot, nytjastuld og líkamsárás. Með brotum sínum rauf hann skilorð eldri dóms og var dæmdur í 5 mánaða fangelsi.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 15. desember 2021

S-5472/2021

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kristín Einarsdóttir saksóknarfulltrúi) gegn Jónasi Flosa Finnbjarnarsyni
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur fyrir umferðar- og hegningarlagabrot og gert að sæta fangelsi í 4 mánuði, skilorðbundið til 2 ára. Þá var ákærði sviptur ökurétti.

Landsréttur birt 15. október 2021

76/2021

Ákæruvaldið (Hulda María Stefánsdóttir saksóknari) gegn Kristjáni Sigurði Kristjánssyni (Sigmundur Hannesson lögmaður, Ívar Þór Jóhannsson lögmaður, 2. prófmál)
Málaflokkur: Skjalafals

K var sakfelldur fyrir brot gegn 1. mgr. 155. gr. og 1. mgr. 157. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 með því að hafa án heimildar og í blekkingarskyni límt falsaðan skoðunarmiða á skráningarmerki og sett þau á bifreið sem hafði önnur skráningarmerki. Í dómi Landsréttar kom fram að hvort sem bifreiðinni hefði verið ekið eða ekki hefði tilvist merkjanna og miðanna gefið þá röngu mynd að merkin væru á réttri bifreið og að heimilt hefði verið að aka henni. Yrði af þeim sökum að líta svo á að merkin og miðarnir hefðu verið til þess fallnir að blekkja í lögskiptum í skilningi framangreindra ákvæða almennra hegningarlaga. Með vísan til framburðar K fyrir Landrétti var talið að hann hefði haft ásetning til að nota merkin og miðana til blekkingar í lögskiptum. Við ákvörðun refsingar var litið til 3. mgr. 155. gr. og 2. og 3. töluliðar 1. mgr. 70. gr. hegningarlaga og að K hefði ekki áður sætt refsingu. Var refsing hans ákveðin 150.000 króna sekt.

Héraðsdómur Vestfjarða birt 23. september 2021

S-121/2021

Ákæruvaldið (Kristín Una Pétursdóttir saksóknarfulltrúi) gegn Ólafi Erni Bjarkasyni (Páll Kristjánsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var sakfelldur fyrir skjalabrot og umferðarlagabrot. Með brotunum rauf ákærði skilorðsdóm og var sá dómur tekinn upp og refsing dæmd í einu lagi. Refsing ákærða var ákveðin fangelsi í 60 daga en fullnustu refsingarinnar frestað skilorðsbundið í þrjú ár. Þá var ákærði sviptur ökurétti í sjö mánuði, þar af þrjá vegna uppsafnaðra punkta.

Landsréttur birt 17. september 2021

730/2020

Ákæruvaldið (Jón H. B. Snorrason saksóknari) gegn Sigríði Guðnadóttur (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

S var sakfelld fyrir fjögur þjófnaðarbrot og eina tilraun til þjófnaðar, nytjastuld í fjórum tilvikum, hylmingu og fjársvik í tvígang, skjalabrot, húsbrot, tollalagabrot, tvö brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni og umferðarlagabrot með því að hafa alls 18 sinnum ekið bifreið undir áhrifum ávana- og fíkniefna, þar af 11 sinnum að auki undir áhrifum slævandi lyfja. Auk þess var hún sakfelld fyrir önnur umferðarlagabrot og brot gegn 1. mgr. 168. gr. og 4. mgr. 220. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 en með þeirri háttsemi raskaði hún umferðaröryggi á alfaraleið og stofnaði lífi og heilsu fólks í hættu á ófyrirleitinn hátt. Með hliðsjón af framansögðu og þrátt fyrir að S hafi játað brot sín skýlaust og ekki áður sætt refsingu þóttu ekki vera efni til að skilorðsbinda refsingu hennar að hluta eða í heild. Var S gert að sæta fangelsi í átta mánuði.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 22. júní 2021

S-2946/2021

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Auðbjörg Lísa Gústafsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Elís Aroni Valgarðssyni (Snorri Sturluson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur fyrir skjalabrot, ítrekuð umferðarlagabrot, rangar sakargiftir og þjófnað í félagi og honum gert að sæta fangelsi í 6 mánuði. Áréttuð var ævilöng ökuréttarsvipting ákærða.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 15. apríl 2021

S-8525/2020

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Haukur Gunnarsson aðstoðarsaksóknari) gegn Ásgeiri Heiðari Stefánssyni (Þorgils Þorgilsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var dæmdur í 24 mánaða fangelsi fyrir ítrekuð umferðarlagabrot, ýmis hegningarlagabrot og fíkniefnalagabrot. Eftirstöðvar reynslulausnar voru dæmdar upp, ævilöng svipting ökuréttar var áréttuð auk þess að fíkniefni voru gerð upptæk. Ekki þóttu efni til að silorðsbinda refsinguna. Ákærði féllst á bótakröfu að hluta en hluta bótakröfu var vísað frá dómi.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 18. mars 2021

S-2911/2020

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Vilhjálmur Reyr Þórhallsson aðstoðarsaksóknari) gegn Björgvini Viktori Þórðarsyni (Ómar Örn Bjarnþórsson lögmaður)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Ákærði sakfelldur fyrir peningaþvætti samkvæmt 1. mgr. 264. gr. almennra hegningarlaga fyrir að taka við stolnum tækjum.

Héraðsdómur Reykjaness birt 2. mars 2021

S-1190/2020

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Elín Hrafnsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Henningi Þóri Haukssyni
Lykilorð: Skjalabrot.
Málaflokkur: Skjalafals

Ákærði sakfelldur fyrir skjala- og þjófnaðarbrot með því að hafa í blekkingarskyni sett skráninganúmer af annari bifreið á sína eigin.

Héraðsdómur Reykjaness birt 9. febrúar 2021

S-2894/2020

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Gyða Ragnheiður Stefánsdóttir saksóknarfulltrúi) gegn Grími Aspar Birgissyni
Lykilorð: Fangelsi. Skilorð. Skjalabrot.
Málaflokkur: Skjalafals

Ákærði sakfelldur fyrir skjalabrot.

Héraðsdómur Reykjaness birt 9. febrúar 2021

S-2893/2020

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Gyða Ragnheiður Stefánsdóttir saksóknarfulltrúi) gegn Sigfúsi Ægi Sigfússyni
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur fyrir skjala- og umferðarlagabrot

Héraðsdómur Austurlands birt 14. október 2020

S-99/2020

Lögreglustjórinn á Austurlandi (Helgi Jensson aðstoðarsaksóknari) gegn Jóni Gunnþórssyni
Lykilorð: Skjalabrot.
Málaflokkur: Skjalafals

Sakfellt fyrir skjalafals.

Héraðsdómur Austurlands birt 15. september 2020

S-152/2020

Lögreglustjórinn á Austurlandi (Helgi Jensson aðstoðarsaksóknari) gegn X
Lykilorð: Skjalabrot.
Málaflokkur: Skjalafals

Sakfellt fyrir skjalabrot.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 29. júní 2020

S-3286/2020

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Árni Bergur Sigurðsson saksóknarfulltrúi) gegn Pálma Val Sigurðssyni
Málaflokkur: Skjalafals

Ákærði sakfelldur fyrir skjala- og umferðarlagabrot.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 8. júní 2020

S-3140/2020

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Gyða Ragnheiður Stefánsdóttir saksóknarfulltrúi) gegn Nils Helgi Nilsson
Málaflokkur: Skjalafals

Ákærði sakfelldur fyrir skjalabrot, þjófnað og umferðarlagabrot.

Hleð fleiri dómum…