BR höfðaði mál og krafðist þess að A yrði svipt forsjá tveggja dætra sinna á grundvelli a- og d-liðar 1. mgr. 29. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002. Héraðsdómur féllst á með BR að skilyrðum beggja greindra stafliða væri fullnægt. Þá taldi dómurinn að vægari úrræði kæmu ekki til álita eins og málið væri vaxið og að meðalhófs hefði verið gætt í samræmi við 7. mgr. 4. gr. barnaverndarlaga og 12. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Við meðferð málsins fyrir Landsrétti voru ný gögn lögð fram. Í þeim kom fram að A ætti enn mjög langt í land í meðferðarvinnu sinni. Þá væri sú afstaða dætra hennar sem í gögnunum birtist að meginstefnu til hin sama og komið hefði fram í fyrri viðtölum talsmanns stúlknanna við þær og samtölum þeirra við dómendur í héraði. Með vísan til hinna nýju gagna en að öðru leyti til forsendna hins áfrýjaða dóms var hann staðfestur.
A höfðaði mál og krafðist þess að B yrði svipt forsjá sona sinna, E og F, á grundvelli a-, c- og d-liða 1. mgr. 29. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002. Með héraðsdómi var fallist á kröfur A og B svipt forsjá beggja drengjanna. Landsréttur féllst á að fyrir hendi væru skilyrði til að svipta B forsjá eldri drengsins, E, en hún sýknuð af kröfu vegna yngri drengsins, F. Fyrir Hæstarétti var einungis ágreiningur um hvort B skyldi svipt forsjá F. Hæstiréttur lagði til grundvallar að málið væri nægilega upplýst og að afdráttarlaus álitsgerð sálfræðings, sem aflað var utan réttar, væri fullnægjandi grundvöllur undir mat á forsjárhæfni B. Þá vísaði rétturinn meðal annars til þess að B hefði notið ráðgjafar og aðstoðar vegna vanda hennar í tengslum við málefni eldri drengsins. Í ljósi vanda hennar yrði ekki talið líklegt að frekari stuðningsúrræði vegna yngri drengsins hefðu getað gagnast B umfram þau sem áður hefðu verið reynd gagnvart fjölskyldunni. Loks var litið til þess að aðgerðir A hefðu miðað að því að viðhalda tengslum B við syni sína og með því styrkja hana í að öðlast frekari færni við uppeldi og umönnun F til samræmis við málsmeðferðaráætlun. Að þessu gættu og að öðru leyti með vísan til afdráttarlausrar niðurstöðu álitsgerðarinnar, sem samrýmdist öðrum gögnum málsins, var fallist á með A að fram væri komið að B væri augljóslega vanhæf til að fara með forsjá F og að skilyrðum d-liðar 1. mgr. 29. gr. barnaverndarlaga væri að öðru leyti mætt. Var því fallist á kröfu A um að svipta B forsjá hans.
A höfðaði mál á hendur S til heimtu 10.000.000 króna miskabóta. Málið átti rætur að rekja til ákvörðunar barnaverndarþjónustu S um að taka forsjá dætra A í sínar hendur. Ákvörðunin var reist á grundvelli 2. mgr. 32. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002 og því að Þjóðskrá hefði breytt skráningu forsjár þannig að stúlkurnar væru forsjárlausar af öðrum ástæðum en greindi í 1. mgr. ákvæðisins. Með dómi Landsréttar var ekki fallist á að S hefði með einhverju móti hlutast til um eða borið ábyrgð á ákvörðun Þjóðskrár. Þá var rakið að barnaverndarþjónustu S hefði ekki verið rétt að líta svo á að stúlkurnar væru „forsjárlausar“ í skilningi 2. mgr. 32. gr. barnaverndarlaga vegna breyttrar skráningar Þjóðskrár þannig að uppfyllt væru skilyrði til að taka við forsjánni án frekari málsmeðferðar. Í þeim efnum hefði ekki síst þýðingu vitneskja um að forsjáraðilar væru til staðar og íþyngjandi eðli ráðstöfunarinnar. Við þessar aðstæður hefði borið að kanna til hlítar hvort stúlkurnar gætu í reynd talist forsjárlausar og hefðu ekki staðið rök til að horfa fram hjá meginreglum um málsmeðferð í barnaverndarmálum. Hefði ákvörðun barnaverndarþjónustu S því brostið lagastoð og teldist hún ólögmæt. Var fallist á að ákvörðunin væri til þess fallin að valda A miska og að hann ætti rétt til 800.000 króna miskabóta.
Ákærði sakfelldur fyrir líkamsárás, hótanir og brot gegn barnaverndarlögum. Ákærði dæmdur í 60 daga skilorðsbundið fangelsi og til greiðslu miskabóta.
Ágreiningur málsaðila laut að úrskurði héraðsdóms þar sem fallist var á kröfu A um að dómkvaddur yrði matsmaður til að leggja mat á forsjárhæfni hennar og atriði því tengd. Í úrskurði Landsréttar kom fram að umtalsvert magn gagna af ýmsum toga lægi fyrir í málinu, þar á meðal nýleg og ítarleg matsgerð um forsjárhæfni A. Umræddrar matsgerðar hefði verið aflað með samþykki og þátttöku A, og ekkert haldbært hefði komið fram sem gæfi til kynna að breytingar hefðu orðið á högum A sem röskuðu grundvelli matsins. Einnig var litið til þess að við efnislega úrlausn málsins myndi sitja í dómi sérfróður meðdómandi, auk þess sem A ætti þess kost að koma fyrir dóm til skýrslugjafar, óska eftir skýrslutökum og leggja fram frekari gögn til stuðnings málatilbúnaði sínum. Að lokum væri til þess að líta að málið sætti flýtimeðferð samkvæmt 53. gr. b barnaverndarlaga nr. 80/2002, og að B, sonur A, hefði ríka hagsmuni af því að niðurstaða fengist í málinu sem fyrst. Var hinn kærði úrskurður því felldur úr gildi og beiðni A um dómkvaðningu matsmanns hafnað.
Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem hafnað var kröfu A og B um öflun matsgerðar.
Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem hafnað var kröfu A og B um að dómkvaddir yrðu yfirmatsmenn til að meta forsjárhæfni þeirra. Í úrskurði Landsréttar kom fram að ýmis gögn lægju fyrir í málinu um aðstæður A og B og samskipti þeirra við barnaverndaryfirvöld. Ekkert gæfi til kynna að breytingar hefðu orðið á högum þeirra sem röskuðu grundvelli þeirrar matsgerðar sem nýverið hefði verið aflað um forsjárhæfni þeirra. Þá væri til þess að líta að málið sætti flýtimeðferð samkvæmt 53. gr. b barnaverndarlaga nr. 80/2002 og að samkvæmt 1. mgr. 54. gr. laganna skyldi kveðja sérfróðan meðdómsmann eða meðdómsmenn til setu í dómi. Við aðalmeðferð málsins ættu A og B kost á því að koma fyrir dóminn til skýrslugjafar auk þess sem þau gætu lagt fram frekari gögn málatilbúnaði sínum til stuðnings. Var hinn kærði úrskurður því staðfestur og beiðni A og B um dómkvaðningu yfirmatsmanna hafnað.
Ákærði sakfelldur fyrir ólögmæta nauðung, líkamsárás og brot gegn barnaverndarlögum. Ákærði dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi og til greiðslu miskabóta.
Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem ráðstöfun um vistun barns A utan heimilis var framlengd um 12 mánuði.
Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem ráðstöfun um vistun barns A utan heimilis var framlengd um 12 mánuði.
Ákærði sakfelldur fyrir fjársvik, hótanir og brot gegn barnaverndarlögum.
Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem hafnað var kröfu A um að felldur yrði úr gildi úrskurður umdæmisráðs Barnaverndar Reykjavíkur um vistun sonar hans B utan heimilis í fjóra mánuði og jafnframt fallist á þá kröfu að B yrði vistaður utan heimilis í tvo mánuði til viðbótar.
Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem fallist var á kröfu B um að A skyldi áfram vistuð utan heimilis til 16. júní 2026.
Ákærði sakfelldur fyrir líkamsárás og brot á barnaverndarlögum. Dæmdur í 30 daga fangelsi skilorðsbundið til tveggja ára.
BR höfðaði mál þetta og krafðist þess að A yrði sviptur forsjá dóttur sinnar B á grundvelli d-liðar 1. mgr. 29. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002. Í hinum áfrýjaða dómi var fallist á að skilyrði d-liðar 1. mgr. 29. gr. laganna væri uppfyllt. Dómurinn taldi hins vegar að krafa um forsjársviptingu á þessu stigi máls væri í andstöðu við meðalhófsreglu 2. mgr. 29. gr. og 7. mgr. 4. gr. sömu laga. Var kröfu BR um forsjársviptingu því hafnað. Í dómi Landsréttar kom fram að þegar litið væri til þess hvort BR hafi verið eða væri unnt að grípa til annarra og vægari úrræða en að krefjast forsjársviptingar bæri að hafa í huga að tímabundin vistun barns utan heimilis væri meðal slíkra úrræða en B hefði verið vistuð utan heimilis allt frá fæðingu. Með vísan til atvika málsins og fyrirliggjandi matsgerðar um forsjárhæfni A, taldi Landsréttur það hafið yfir vafa að hagsmunir barnsins fælust í því að komast sem fyrst í varanlegt fóstur aðila með fulla forsjárhæfni. Þeir hagsmunir færu í bága við hagsmuni A sem fælust í því að fá lengri tíma til að öðlast foreldrahæfni, greiða úr óvissu varðandi búsetu og eftir atvikum að koma sér fyrir á Íslandi, stæði vilji hans til þess og fengi hann dvalarleyfi hér á landi. Það væru grundvallarréttindi barna að búa við stöðugleika í uppvexti og þroskvænleg skilyrði og takmarkaðist forsjárréttur foreldra af þeim mannréttindum barna að njóta forsvaranlegra uppeldisskilyrða. Þegar hagsmunir barns og foreldris stangist á vega hagsmunir barnsins, og hvað því er fyrir bestu, þyngra og yrðu hagsmunir foreldris þá að víkja við þessar kringumstæður. Var krafa BR um að A yrði sviptur forsjá B því tekin til greina.
BR krafðist þess að A og B yrðu svipt forsjá þriggja barna sinna, C, D og E á grundvelli a- og d-liðar 1. mgr. 29. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002 hvað öll börnin varðaði og að auki b-liðar sama ákvæðis er varðaði yngsta barnið. Með dómi Landsréttar var ekki fallist á með A og B að næg úrræði hefðu ekki verið reynd eða að málið gæti ekki talist rannsakað svo fullnægjandi væri. Þá hafi fyrirliggjandi álitsgerðir borið það afdráttarlaust með sér að A og B væru ekki hæf til að tryggja börnum sínum viðeigandi uppeldisaðstæður. Jafnframt að gögn málsins bentu óyggjandi til þess að börnunum liði betur eftir að þau voru vistuð utan heimilis. Í ljósi þessa væri ekki hægt að láta vilja barnanna til að vera hjá foreldrum sínum ráða í þessum efnum. Það væri því börnunum fyrir bestu að búa ekki hjá þeim. Var hinn áfrýjaði dómur því staðfestur um að fullnægt væri framangreindum skilyrðum fyrir forsjársviptingu vegna barnanna þriggja.
A, C og D höfðuðu mál gegn H til heimtu bóta vegna tjóns sem þau töldu sig hafa orðið fyrir vegna íhlutana í fjölskyldulíf þeirra með aðgerðum H á tímabilinu 26. október 2015 til 12. maí 2023. Aðgerðirnar komu til vegna barnaverndarmáls sem hófst haustið 2015 þegar C lýsti ætluðum kynferðisbrotum B, föður síns, gagnvart sér. Börnin voru í kjölfarið vistuð utan heimilis, upphaflega með samþykki móður þeirra en síðar án samþykkis foreldra með úrskurðum H sem staðfestir voru af dómstólum. Í kjölfar vistunar barnanna utan heimilis greindi D jafnframt frá kynferðisbrotum B gagnvart sér. B var ákærður fyrir ætluð kynferðisbrot í mars 2017 en sýknaður af öllum sakargiftum með dómi héraðsdóms í nóvember sama ár. H höfðaði árið 2017 forsjársviptingarmál á hendur A og B sem lauk með því að þau voru svipt forsjá með dómi Hæstaréttar í mars 2020. A og B fengu forsjá C og D að nýju með dómsátt sem gerð var vorið 2023 í máli sem þau höfðuðu til endurheimtu forsjárinnar. Fyrir Landsrétti var einungis til úrlausnar krafa stefndu gegn H um greiðslu miskabóta vegna framgöngu H í málum þeirra. Í dómi Landsréttar var rakið að H hefði tekið fjölda ákvarðana sem fólu í sér íhlutun í fjölskyldulíf stefndu, svo sem um vistun barnanna utan heimilis, með því að gera kröfu um forsjársviptingu og kveða upp úrskurði um umgengni milli A, B, C og D. Á hinn bóginn benti ekkert til annars en að umræddar ákvarðanir hafi í öllum tilvikum verið efnislega réttmætar á þeim tíma sem þær voru teknar og sönnun um hið gagnstæða hefði ekki tekist. Ákvarðanirnar hafi ítrekað verið staðfestar af dómstólum og æðra settum stjórnvöldum, auk þess sem þær voru í öllum aðalatriðum í samræmi við vilja barnanna. Ekki yrði annað ráðið af gögnum málsins en að starfsmenn H hefðu tekið ákvarðanir og beitt ráðstöfunum sem þeir töldu á hverjum tíma að væru börnunum fyrir bestu og ekki gengið lengra við skerðingu á rétti aðilanna til fjölskyldulífs en leiddi af ákvæðum barnaverndarlaga, stjórnarskrár og mannréttindasáttmála Evrópu. Stefndu hefði þannig ekki tekist sönnun um að aðgerðir H hafi, hvorki virtar sjálfstætt né heildstætt, falið í sér ólögmæta meingerð gagnvart þeim þannig að uppfyllt væru skilyrði b-liðar 1. mgr. 26. gr. skaðabótalaga. Var því H sýknaður af kröfum A, C og D.
Málið varðaði miskabótakröfu A, vegna aðgerða Barnaverndar R, í kjölfar þess að A, faðir stúlkunnar C, lét sækja hana í frímínútur á miðjum skóladegi, og fór með hana til foreldra sinna en á þeim tíma var stúlkan í umsjá móður sinnar B. Lögreglu og barnaverndaryfirvöldum var tilkynnt um brotthvarf stúlkunnar og fóru þau að heimili foreldra A. Í dómi Landsréttar kom fram að í ljósi þess sem á undan hefði gengið, einkum því hvernig dóttir A var fyrirvaralaust tekin úr skóla á miðjum skóladegi, yrði að játa starfsmönnum Barnaverndar R svigrúm til að bregðast við og grípa til ráðstafana. Því hafi verið réttmætt af hálfu Barnaverndar R að fara á heimili foreldra A og kanna aðstæður stúlkunnar. Þegar þangað var komið hafi starfsmönnum stefnda borið að gæta fyllstu aðgæslu við aðgerðir sínar, og að efni hafi verið til að staldra við og endurmeta aðstæður þegar á vettvangi kom upp vafi um hvort A kynni að njóta umgengnisréttar við dóttur sína. Á hinn bóginn leit Landsréttur til þess að A hafði sjálfur ekki virt niðurstöðu dómstóla um forsjárrétt móður stúlkunnar og fyrirkomulag umgengni, auk þess sem hann hafði stuðlað að afskiptum barnaverndar með því að taka dóttur sína fyrirvaralaust úr skóla á miðjum skóladegi. Var því ekki talið að aðgerðir starfsmanna R hefðu falið í sér ólögmæta meingerð í skilningi b-liðar 1. mgr. 26. gr. skaðabótalaga, og R því sýknuð af kröfu A.
A höfðaði mál gegn H, D og E til heimtu bóta vegna fjártjóns sem hann kvaðst hafa orðið fyrir á tímabilinu 26. október 2015 til 5. maí 2023 við meðferð barnaverndar- máls, er leiddi til sviptingar forsjár barna hans. Þá krafðist hann jafnframt miskabóta sameiginlega úr hendi þeirra. Aðgerðirnar komu til vegna barnaverndarmáls sem hófst haustið 2015 þegar F lýsti ætluðum kynferðisbrotum A, föður síns, gagnvart sér. Börnin voru í kjölfarið vistuð utan heimilis hjá D og E, upphaflega með samþykki móður þeirra en síðar án samþykkis foreldra með úrskurðum H sem staðfestir voru af dómstólum. Í kjölfar vistunar barnanna utan heimilis greindi G jafnframt frá kynferðisbrotum A gagnvart sér. A var ákærður fyrir ætluð kynferðisbrot í mars 2017 en var sýknaður af öllum sakargiftum með dómi héraðsdóms í nóvember sama ár. H höfðaði árið 2017 forsjársviptingamál á hendur A og B sem lauk með því að þau voru svipt forsjá með dómi Hæstaréttar í mars 2020. A og B fengu forsjá F og G að nýju með dómsátt sem gerð var vorið 2023 í máli sem þau höfðuðu til endurheimtu forsjárinnar. Fyrir Landsrétti krafðist A þess annars vegar að viðurkennd yrði sameiginleg bótaskylda H, D og E vegna fjártjóns sem A kvaðst hafa orðið fyrir á tímabilinu 26. október 2015 til 5. maí 2023 og hins vegar kröfu um miskabætur óskipt úr hendi H, D og E að fjárhæð 90.000.000 króna. Í dómi Landsréttar var rakið að H hafi tekið fjölda ákvarðana sem fólu í sér íhlutun í fjölskyldulíf A, svo sem um vistun barnanna utan heimilis, með því að gera kröfu um forsjársviptingu og með því að synja A um umgengni við börn sín. Á hinn bóginn benti ekkert til annars en að umræddar ákvarðanir hafi í öllum tilvikum verið efnislega réttmætar á þeim tíma sem þær voru teknar og sönnun um hið gagnstæða hefði ekki tekist. Ákvarðanirnar hafi ítrekað verið staðfestar af dómstólum og æðra settum stjórnvöldum, auk þess sem þær voru í öllum aðalatriðum í samræmi við vilja barnanna. Ekki yrði annað ráðið af gögnum málsins en að starfsmenn H hafi tekið ákvarðanir og beitt ráðstöfunum sem þeir töldu á hverjum tíma að væru börnunum fyrir bestu og ekki gengið lengra við skerðingu á rétti aðilanna til fjölskyldulífs en leiddi af ákvæðum barnaverndarlaga, stjórnarskrár og mannréttindasáttmála Evrópu. Hvað varðaði kröfu A um viðurkenningu á bótaskyldu vegna fjártjóns var til þess að líta að þótt annmarkar hafi verið á fyrstu stigum meðferðar málsins af hálfu H hafði A ekki sýnt fram á að H hafi stuðlað að þeim annmörkum með saknæmum hætti. Auk þess hafði A á engan hátt sýnt fram á að þeir annmarkar hafi orsakað ætlað fjárhagstjón hans, enda höfðu þeir í engum tilvikum áhrif á efnislegar niðurstöður stjórnvalda eða dómstóla í málefnum hans. Þá hafði A ekki sýnt fram á að aðgerðir H hafi, hvorki virtar sjálfstætt að heildstætt, falið í sér ólögmæta meingerð gagnvart honum þannig að uppfyllt væru skilyrði b-liðar 1. mgr. 26. gr. skaðabótalaga. Var H, D og E því sýknuð af kröfum A.
BR höfðaði mál þetta og krafðist þess að A yrði svipt forsjá sonar síns á grundvelli a- og d-liðar 1. mgr. 29. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002. Í dómi Landsréttar var rakið að fyrir lægi matsgerð um forsjárhæfni A. Í matsgerðinni væri komist að þeirri niðurstöðu að A byggi ekki yfir nauðsynlegri og nægjanlegri hæfni til að veita drengnum fullnægjandi uppeldisskilyrði í framtíðinni. Þá leiddi mikið innsæisleysi A og skortur á vilja til eigin bata til þess að velferð og þroski drengsins væri ekki tryggður við þau uppeldisskilyrði sem A gæti veitt honum. Þessu til viðbótar lægi fyrir að A hefði ekki auðnast að takast á við eigin vanda og hefði að undanförnu ekki sinnt umgengni við drenginn. Þætti ljóst að A hefði ekki til að bera nægilega hæfni til að sinna forsjárskyldum sínum og uppfyllt væru skilyrði a- og d-liðar 1. mgr. 29. gr. barnaverndarlaga til forsjársviptingar, en vægari úrræði hefðu verið reynd án viðunandi árangurs. Var hinn áfrýjaði dómur því staðfestur um annað en gjafsóknarkostnað og A svipt forsjá sonar síns.
Ákærði var sakfelldur fyrir brot gegn blygðunarsemi og barnaverndarlögum.
Ákæruvaldið (Kamilla Kjerúlf aðstoðarsaksóknari) gegn
X
Ákærði dæmdur fyrir líkamsárás og brot gegn barnaverndarlögum.
Málið varðaði kröfu stefnda BR um að A og B yrðu svipt forsjá dóttur sinnar, C. Í dómi Landsréttar var vísað til þess að rótleysi og óstöðugleiki hefði einkennt líf C, en fyrstu afskipti barnaverndaryfirvalda af málefnum hennar höfðu byrjað þegar hún var enn í móðurkviði og höfðu barnaverndaryfirvöld víða um land haft málefni hennar til meðferðar allt frá þeim tíma. Að því er varðaði áfrýjanda A leit Landsréttur meðal annars til niðurstöðu dómkvadds matsmanns um að A væri ekki hæf til að fara með forsjána, og staðfesti niðurstöðu hins áfrýjaða dóms um forsjársviptingu hennar. Hvað B varðaði leit Landsréttur einnig til afdráttarlausrar niðurstöðu hins dómkvadda matsmanns um að B væri óhæfur til að gegna forsjárhlutverki, og til þess að hann hefði á síðustu árum verið heimilislaus og setið í fangelsi, en síðustu misseri hefði hann dvalið á áfangaheimilum og dveldi nú í gistiskýli í miðbæ Reykjavíkur- borgar. Var niðurstaða um forsjársviptingu hans því einnig staðfest.
Sýknað var af ákæru um líkamsárás og brot gegn barnaverndarlögum.
Ákærðu sakfelld fyrir brot á ávana- og fíkniefnalögum, peningaþvætti og barnaverndarlagabrot.
Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem hafnað var kröfu A um að felldur yrði úr gildi úrskurður umdæmisráðs C um að börn A yrðu vistað utan heimilis í fjóra mánuði.
Ákæruvaldið (Eyþór Þorbergsson aðstoðarsaksóknari) gegn
X
Ákærða sakfelld fyrir brot gegn barnaverndarlögum.
Staðfestir voru úrskurðir héraðsdóms þar sem fallist var á kröfu Barnaverndar Reykjavíkur um vistun barna A og B utan heimilis. Þá var staðfest sú niðurstaða hinna kærðu úrskurða um áframhaldandi vistun barnanna utan heimilis.
Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem fallist var á kröfu BR um að sonur A, B, yrði vistaður áfram utan heimilis A á heimili á vegum BR. Í úrskurði Landsréttar kom meðal annars fram að þegar litið væri sérstaklega til eindregins vilja drengsins og meðalhófsreglu í barnaverndarstarfi yrði ekki séð að brýnir hagsmunir hans krefðust slíkrar íhlutunar sem BR krafðist í málinu og að ekki mætti ná sama markmiði með síður íþyngjandi ráðstöfunum. Var hinn kærði úrskurður því felldur úr gildi um annað en málskostnað og gjafsóknarkostnað.
BR krafðist þess að A yrði sviptur forsjá sonar síns, B, á grundvelli a- og d-liðar 1. mgr. 29. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002. Í hinum áfrýjaða dómi var fallist á að skilyrðum beggja stafliða væri fullnægt. Þá kæmu vægari úrræði ekki til álita eins og málið væri vaxið og að meðalhófs hefði verið gætt í samræmi við 7. mgr. 4. gr. og 2. mgr. 29. gr. laganna. Með vísan til röksemda hins áfrýjaða dóms og þeirra gagna sem lögð voru fyrir Landsrétt var í dómi Landsréttar fallist á niðurstöðu hins áfrýjaða dóms um að skilyrðum d-liðar 1. mgr. 29. gr. væri fullnægt. Þá kom fram að frá því að B fór úr umsjá A hafi félagsþroski hans aukist til mikilla muna og líðan B, hegðun og nám tekið stórstígum framförum. Að framangreindu gættu en að öðru leyti með vísan til forsendna hins áfrýjaða dóms þótti einnig nægjanlega fram komið að skilyrðum a-liðar 1. mgr. 29. gr. væri fullnægt. Var svipting forsjár A yfir B því staðfest.
BR krafðist þess að A yrði svipt forsjá dætra sinna C, D, E og F, sbr. a- og d-lið 1. mgr. 29. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002. Fyrir Landsrétt voru lagðar fram greinargerðir sálfræðings, B, um stöðu C og D. Í dómi Landsréttar kom fram að skýrlega yrði ráðið af greinargerðum B að C og D byggju við alvarlegan tilfinningalegan og félagslegan vanda sem rekja mætti til margháttaðrar vanrækslu, óstöðugleika og alvarlegra atvika í uppvexti þeirra. Einnig þætti ljóst af gögnum málsins að A glímdi við vanda vegna margvíslegra og alvarlegra áfalla og væri skammt á veg komin í bataferli sínu. Vegna þessa væri A álitin vanhæf til að annast dætur sínar, vernda þær og takast á við flóknar þarfir þeirra og krefjandi áskoranir við uppeldi þeirra. Jafnframt taldi dómurinn að af sömu ástæðum yrði einnig að telja að andlegri heilsu og þroska dætra A væri hætta búin í umsjón hennar. Að teknu tilliti til framangreinds en að öðru leyti með vísan til forsendna hins áfrýjaða dóms var hinn áfrýjaði dómur staðfestur um sviptingu forsjár A yfir C, D, E og F.
BR krafðist þess að A yrði svipt forsjá sonar síns, B, á grundvelli a- og d-liða 1. mgr. 29. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002. Í dómi Landsréttar var staðfest niðurstaða hins áfrýjaða dóms að skilyrðum d-liðar 1. mgr. 29. gr. barnaverndarlaga væri fullnægt. Féllst Landsréttur á að vegna geðrænna truflana og greindarskorts væri A vanhæf til að fara með forsjá B, enda mætti telja fullvíst að andlegri heilsu B og þroska væri hætta búin vegna þeirrar stöðu sem A væri í. Skipti þar miklu að B glímdi við frávik í taugaþroska sem kalli á sérstaka umönnun og meðhöndlun en gögn málsins bæru skýrt með sér að A bæri takmarkað skynbragð á sérþarfir B. Þá taldi dómurinn skilyrðum a-liðar 1. mgr. 29. gr. barnaverndarlaga jafnframt fullnægt. Var meðal annars vísað til þess að frá því að B fór úr umsjá A hafi mál- og félagsþroski B aukist til muna, meira en unnt væri að skýra einungis með hækkandi aldri. Gæfi það vísbendingu um að uppeldi og samskipti á heimilinu, meðan B var í umsjá A, hafi haldið aftur af eðlilegum þroska B. Að framangreindu gættu en að öðru leyti með vísan til hins áfrýjaða dóms var hinn áfrýjaði dómur staðfestur um sviptingu forsjár A yfir B.
Móðir var sakfelld fyrir barnaverndarlagabrot gagnvart barni sínu en ákvörðun refsingar frestað skilorðsbundið í tvö ár.
Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem hafnað var kröfu A og B um að felldur yrði úr gildi úrskurður héraðsdóms þar sem staðfestur var úrskurður umdæmisráðs D um að barn A og B yrði vistað utan heimilis í fjóra mánuði.
Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem fallist var á kröfu BR um að börn A, varnaraðili B og C, yrðu vistuð utan heimilis til 10. desember 2025. Í greinargerð B var því haldið fram að tilefni kynni að vera til að ómerkja úrskurð héraðsdóms án kröfu á þeim grundvelli að ekki hefði verið leyst úr kröfu varnaraðila í héraði um að úrskurður umdæmisráðs um vistun barnanna utan heimilis í fjóra mánuði yrði felldur úr gildi. Landsréttur rakti að samkvæmt 2. mgr. 27. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002 væri foreldrum eða barni sem náð hefði 15 ára aldri heimilt að bera úrskurð umdæmisráðs barnaverndar undir héraðsdómara en krafa þess efnis skyldi berast dómara innan fjögurra vikna frá uppkvaðningu úrskurðar. Fyrir lægi að krafa varnaraðila hefði ekki borist innan þeirra tímamarka. Voru því ekki talin efni til að ómerkja úrskurð héraðsdóms á fyrrgreindum grundvelli. Þá rakti Landsréttur að BR hefði lagt fram ný gögn en á meðal þeirra væru gögn sem sýndu að við umgengni A við börnin í september hefði þvagsýni hennar mælst jákvætt fyrir tetrahýdrókannabínólí. Samkvæmt því en að öðru leyti með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar var fallist á með BR að fullnægt væri skilyrðum 1. mgr. 28. gr. barnaverndarlaga, sbr. b-lið 1. mgr. 27. gr. sömu laga, til að vista börn A utan heimilis þann tíma sem krafist væri en ekki þóttu efni til að marka vistuninni skemmri tíma. Var hinn kærði úrskurður því staðfestur.
Barnaverndarþjónusta B höfðaði mál þetta og krafðist þess að A yrði svipt forsjá sona sinna, E og F á grundvelli a-, c- og d-liða 1. mgr. 29. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002. Með dómi Landsréttar var staðfest niðurstaða hins áfrýjaða dóms um að uppfyllt væru skilyrði a- og c-liða 1. mgr. 29. gr. barnaverndarlaga svo fallast mætti á kröfu barnaverndarþjónustu B hvað eldri drenginn E varðaði. Aftur á móti var ekki fallist á að skilyrði barnaverndarlaga til forsjársviptingar væru uppfyllt hvað yngri drenginn F varðaði og var A því sýknuð af kröfu barnaverndarþjónustu B að því leyti.
Með hinum kærða úrskurði var felldur úr gildi úrskurður umdæmisráðs barnaverndar í Kraganum, þess efnis að B og C skyldu vistaðar utan heimilis í allt að fjóra mánuði. Byggðist úrskurður héraðsdóms meðal annars á því að engin gögn lægju fyrir um að sálfræðingur á Landspítala teldi A ekki geta sinnt B og C, en fyrir Landsrétti voru lögð fram gögn þess efnis. Þá voru einnig lögð fram gögn, sem ekki höfðu legið fyrir við meðferð málsins fyrir héraðsdómi, sem sýndu fram á tengsl A við menn sem höfðu sent D, föður B og C, og móður hans, hótanir í gegnum skilaboð með síma og fóru að heimili fjölskyldunnar eitt sinn. Enn fremur var lagt fyrir Landsrétt bréf frá leikskólastjóra B og C þar sem fram kom að starfsmenn leikskólans hefðu merkt miklar breytingar til hins betra hjá annarri stúlknanna eftir að varnaraðili fór af heimilinu. Var úrskurður héraðsdóms felldur úr gildi.
Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem hafnað var kröfu A um að felldur yrði úr gildi úrskurður umdæmisráðs Barnaverndar Reykjavíkur um að barn A yrði vistað utan heimilis í þrjá mánuði.
Ákæruvaldið (Eyþór Þorbergsson aðstoðarsaksóknari) gegn
Torfa Aðalsteinssyni
Ákærði sakfeelldur fyrir líkamsárás og brot á barnaverndarlögum.
Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem hafnað var kröfu A um öflun matsgerðar og yfirmatsgerðar.
Ákærði sakfelldur fyrir brot í nánu sambandi og brot á kynferðislegri friðhelgi brotaþola með því að útbúa, án samþykkis hennar, kynferðislegt myndefni.
Stefnandi krafðist skaðabóta vegna aðkomu lögreglu að leit barnaverndaryfirvalda að barni sem vistað hafði verið hjá stefnanda. Ekki var fallist á að stefnandi hefði verið þolandi húsleitar á grundvelli sakamálalaga nr. 88/2008, sem bakað gæti stefnda bótaskyldu á grundvelli 246. gr. laganna, og var stefndi sýknaður af fjárkröfunni.
Ákæruvaldið (
Eyþór Þorbergsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
X (
Friðrik Smárason lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir endurtekin og alvarleg brot í nánu sambandi skv. 218. gr. b hegningarlaga.
BH krafðist þess að A yrði svipt forsjá sonar síns, C, á grundvelli a- og d-liðar 1. mgr. 29. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002. Í dómi héraðsdóms var rakin sú niðurstaða matsmanns að færi drengurinn aftur í umsjá A myndi það hafa alvarleg og neikvæð langtímaáhrif á þroska hans, tilfinningar og félagslega stöðu. Úrræði til að styðja við A væru fullreynd og mælti matsmaður ekki með því að C færi aftur í hennar umsjá. Héraðsdómur ályktaði að niðurstaða matsmanns samrýmdist því sem fram kæmi í gögnum málsins. Taldi dómurinn að C bæri merki um alvarlega vanrækslu og þyrfti góðan stuðning, reglu og stöðugleika til langs tíma. Var það niðurstaða héraðsdóms að þarfir og hagsmunir C krefðust þess að A væri svipt forsjá hans. Fyrir Landsrétti var aflað matsgerðar dómkvadds matsmanns á forsjárhæfni A. Rétturinn taldi ekki efni til að hnekkja niðurstöðu héraðsdóms um að C hefði búið við alvarlega vanrækslu af hálfu A og að vægari úrræði en forsjársvipting myndu ekki geta skilað viðhlítandi árangri. Var hinn áfrýjaði dómur því staðfestur.
Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem hafnað var kröfum A og B um að felldur yrði úr gildi úrskurður umdæmisráðs Barnaverndar Reykjavíkur um að börn A og B yrðu vistuð utan heimilis í fjóra mánuði.
Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem fallist var á kröfu BR um vistun barns A utan heimilis hennar til 28. apríl 2025.
Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem úrskurður umdæmisráðs BR um heimild til vistunar barns A á heimili á vegum BR í allt að fjóra mánuði var staðfestur.
Ákærðu sakfelldir fyrir líkamsárás og gripdeild í sameiningu, og annar þeirra að auki fyrir tvær aðrar líkamsárásir, þjófnað, barnaverndarlagabrot og umferðarlagabrot.
Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem A var vistaður utan heimilis á vegum H í sex mánuði. Landsréttur rakti að fyrir lægi að unnið hefði verið með mál A í nokkurn tíma án þess að þau úrræði sem gripið hefði verið til hefðu skilað nægum árangri. Að því gættu og með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar var fallist á að brýnir hagsmunir A kröfðust þess að hann yrði vistaður utan heimilis og að vægari úrræði hefðu verið reynd án árangurs. Þá taldi Landsréttur að ekki yrði séð að annmarkar hefðu verið á málsmeðferð H sem leitt gæti til þess að kröfu hans yrði synjað. Í úrskurði Landsréttar var jafnframt rakið að eftir uppkvaðningu úrskurðar hérðasdóms hefði A verið færður í neyðarvistun eftir að hann ógnaði starfsfólki þess meðferðarúrræðis sem hann var vistaður á og gekk berserksgang þar. Að virtum þeim skamma tíma sem liðinn hefði verið frá því atviki féllst Landsréttur á það með H að hagsmunum A væri best borið með áframhaldandi vistun á vegum H í allt að 12 mánuði.
Ákærða sýknuð af ákæru um sérstaklega hættulega líkamsárás, brot í nánu sambandi og brot gegn barnaverndarlögum.