Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

27 dómar fundust

Lykilorð: Barnaverndarmál

Héraðsdómur Norðurlands vestra birt 23. maí 2026 kl. 9:27

S-73/2025

Lögreglustjórinn á Norðurlandi vestra (Sólveig Ingadóttir aðstoðarsaksóknari) gegn X (Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson lögmaður) (Páll Ágúst Ólafsson lögmaður brotaþola)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var sakfelldur fyrir ölvunarakstur en ekki var talið sannað að hann hefði gerst sekur um brot í nánu sambandi eða brot gegn barnaverndarlögum.

Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 27. nóvember 2025

S-528/2024

Ákæruvaldið (Eyþór Þorbergsson aðstoðarsaksóknari) gegn X
Málaflokkur: Barnaréttur

Ákærða sakfelld fyrir brot gegn barnaverndarlögum.

Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 27. júní 2025

S-510/2024

Ákæruvaldið (Agnes Björk Blöndal aðstoðarsaksóknari) gegn X (Ásgeir Örn Blöndal Jóhannsson lögmaður) (Júlí Ósk Antonsdóttir réttargæslumaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Ákærði sakfelldur fyrir brot í nánu sambandi og brot á kynferðislegri friðhelgi brotaþola með því að útbúa, án samþykkis hennar, kynferðislegt myndefni.

Héraðsdómur Reykjaness birt 5. febrúar 2025

S-2096/2024

Ákæruvaldið (Agnes Ýr Stefánsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn X (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærða var sakfelld fyrir fjögur umferðarlagabrot. Þá var hún sakfelld fyrir brot gegn barnaverndarlögum með því að hafa í eitt skipti verið með barn sitt í bifreið sem hún ók undir áhrifum ávana- og fíkniefna og slævandi lyfja. Var ákærða dæmd í 30 daga skilorðsbundið fangelsi, 650.000 króna fésekt og hún svipt ökurétti í 30 mánuði.

Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 11. desember 2023

E-30/2023

A (Andrés Már Magnússon lögmaður) gegn Akureyrarbæ (Halldóra Kristín Hauksdóttir lögmaður)
Málaflokkur: Barnaréttur

Stefnandi krafðist bóta úr hendi Akureyrarbæjar vegna tiltekina aðgerða Barnaverndar Eyjafjarðar gagnvart henni. Fallist var á að skilyrði neyðarvistunar barns stefnanda utan heimilis án undanfarandi málsmeðferðar samkvæmt barnaverndarlögum hafi ekki verið uppfyllt. Röskun barnaverndaryfirvalda á stjórnarskrárvarinni friðhelgi fjölskyldulífs stefnanda, sbr. 1. mgr. 71. gr. stjórnarskrárinnar, hafi gengið lengra en nauðsyn bar til og farið gegn meðalhófsreglu stjórnsýsluréttar, sbr. 7. mgr. 4. gr. barnaverndarlaga. Ennfremur féllst dómurinn á að stefndi hefði ekki sýnt fram á að vægari úrræði hafi verið fullreynd áður en barnaverndarnefnd tók ákvörðun um áframhaldandi vistun barnsins utan heimilis stefnanda. Að sama skapi gekk sú aðgerð Barnaverndar að sækja barnið á heimili stefnanda með fulltingi lögreglu á síðari stigum lengra en nauðsyn bar til í ljósi atvika málsins og samræmdist ekki skyldu Barnaverndar til að gæta fyllstu virðingar og nærgætni, sbr. 1. mgr. 50. gr. barnaverndarlaga. Fólu framangreindar aðgerðir barnaverndaryfirvalda í sér ólögmæta meingerð gagnvart stefnanda og voru til þess fallnar að valda henni andlegri áþján og álitshnekki. Voru stefnanda dæmdar miskabætur samkvæmt 1. mgr. 26. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993.

Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 27. júlí 2023

S-265/2023

Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra (Eyþór Þorbergsson aðstoðarsaksóknari) gegn X (Enginn)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Ákærði sakfelldur fyrir brot á barnaverndarlögum og stórfelldar ærumeiðingar gegn maka, auk þess að hafa fíkniefni í vörslum sínum.Var ákærði dæmdur til 30 daga skilorðsbundins fangelsis, auk þess að sæta upptöku fíkniefna.

Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 14. júní 2022

S-368/2021

Ákæruvaldið (Eyþór Þorbergsson aðstoðarsaksóknari) gegn X (Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður) (Júlí Ósk Antonsdóttir réttargæslumaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Ákærði játaði ofbeldisbrot gegn fyrrum sambýliskonu sinni. Kröfu ákæruvalds um að brotið yrði heimfært til 1. mgr. 218. gr. b almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og 1. mgr. 99. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002, var hafnað en brotið talið varða við 1. mgr. 217. gr. og 233. gr. b almennra hegningarlaga og 3. mgr. 99. gr. barnaverndarlaga.

Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 14. mars 2022

S-369/2021

Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra (Eyþór Þorbergsson aðstoðarsaksóknari) gegn X (Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson lögmaður) (Friðrik Smárason lögmaður bótakrefjanda)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Ákærði sakfelldur fyrir líkamsárás samkvæmt 1. mgr. 217. gr. almennra hegningarlaga og dæmdur til 2 mánaða skilorðsbundinnar fangelsisvistar og greiðslu 250 þúsund króna miskabóta til brotaþola.

Héraðsdómur Reykjaness birt 7. janúar 2022

S-1845/2021

Málið nr. S-1845/2021 Ákæruvaldið (Daníel Reynisson aðstoðarsaksóknari) gegn X (Jóhannes Albert Kristbjörnsson lögmaður) og Y (Gunnhildur Pétursdóttir lögmaður) (Ásta Björk Eiríksdóttir réttargæslumaður brotaþola)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Foreldrar fjögurra stúlkna voru sakfelld fyrir illa meðferð á dætrum sínum. Vörðuðu brot föður við almenn hegningarlög og var hann dæmdur til 18 mánaða fangelsisvistar og til greiðslu miskabóta. Brot móður vörðuðu við barnaverndarlög og var hún dæmd í 6 mánaða skilorðsbundið fangelsi og til greiðslu miskabóta.

Héraðsdómur Vesturlands birt 3. febrúar 2021

S-138/2019

Ákæruvaldið (Dröfn Kjærnested aðstoðarsaksóknari) gegn X (Þorgils Þorgilsson lögmaður) og Y (Þorbjörg Inga Jónsdóttir lögmaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Ákærðu Y var gefin að sök sérstaklega hættuleg líkamsárás og ólögmæt nauðung og ákærða X gefið að sök brot í nánu sambandi gegn fyrrum sambýliskonu sinni. Þeim var jafnframt gefið að sök að hafa með háttsemi sinni brotið gegn börnum brotaþola. Voru bæði ákærðu fundin sek um líkamsárás skv. 1. mgr. 217. gr. almennra hegningarlaga og því ekki fallist á það með ákæruvaldinu að árás þeirra yrði felld undir 1., sbr. 2. mgr., 218. gr. b í almennum hegningarlögum, í tilviki ákærða X, eða undir 2. mgr. 218. gr. í sömu lögum. Þá var brot ákærðu Y einnig talið varða við 225. gr. almennra hegningarlaga og brot þeirra beggja að auki við 1. og 3. mgr. 99. gr. barnaverndarlaga.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 13. september 2019

S-2810/2019

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu Haukur Gunnarsson aðstoðarsaksóknari (Haukur Gunnarsson aðstoðarsaksóknari) gegn X
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Ákærði sakfelldur fyrir brot í nánu sambandi og barnaverndarlagabrot. Hann játaði brot sín skýlaust.