Lögreglustjórinn á Vesturlandi (Guðfinnur Stefánsson aðstoðarsaksóknari) gegn
X
Ákærði sakfelldur fyrir hótun. Dæmdur til að sæta fangelsi í 30 daga skilorðbundið til tveggja ára.
Ákærði sakfelldur fyrir líkamsárás, hótanir og brot gegn barnaverndarlögum. Ákærði dæmdur í 60 daga skilorðsbundið fangelsi og til greiðslu miskabóta.
Með dómi héraðsdóms var X sakfelldur samkvæmt ákærulið 1 fyrir brot gegn 1. mgr. 217. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 með því að hafa beitt fyrrverandi sambýliskonu sína og barnsmóður, A, ofbeldi á heimili hennar 24. maí 2016 með því að hrinda henni með þeim afleiðingum að hún hrasaði og lenti með vinstri öxl á dyrakarmi og hlaut við það nánar tilgreinda áverka. X var hins vegar sýknaður af sakargiftum samkvæmt ákærulið 2 þar sem honum var gefin að sök líkamsárs með því að hafa veist að A, á heimili hennar 1. júní 2016, með nánar tilgreindum hætti og jafnframt á sama tíma hótað henni lífláti. Fyrir Landsrétti krafðist ákæruvaldið þess að hinn áfrýjaði dómur yrði staðfestur um sakfellingu X samkvæmt ákærulið 1 og jafnframt að hann yrði sakfelldur fyrir greinda hótun í garð A samkvæmt ákærulið 2, sbr. 233. gr. almennra hegningarlaga. Með hliðsjón af trúverðugum framburði A, sem fékk stoð í framburði vitnisins B, auk fyrirliggjandi læknisvottorðs var hinn áfrýjaði dómur staðfestur um sakfellingu X samkvæmt ákærulið 1. Þá taldi Landsréttur jafnframt, að virtum atvikum málsins, að hótun ákærða hefði verið til þess fallin að vekja ótta hjá A um líf sitt, heilbrigði eða velferð. Var X því einnig sakfelldur fyrir brot gegn 233. gr. almennra hegningarlaga, sbr. ákærulið 2. Við ákvörðun refsingar var litið til þess að mikill dráttur hafði orðið á meðferð málsins sem X yrði ekki um kennt. Að því athuguðu þótti rétt að fresta ákvörðun refsingar hans skilorðsbundið í tvö ár. Þá var staðfest niðurstaða hins áfrýjaða dóms um miskabætur A til handa.
Ákærði sakfelldur fyrir fjársvik, hótanir og brot gegn barnaverndarlögum.
Lögreglustjórinn á Suðurlandi (
Ólafur Hallgrímsson fulltrúi)
gegn
X (
Elimar Hauksson lögmaður)
Ákærði var sakfelldur m.a. fyrir hótanir og umferðar- og siglingarlagabrot og dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi, til greiðslu sektar og sviptingar ökuréttar í 3 ár og skipstjórnarréttindum í þrjá mánuði.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Auðbjörg Lísa Gústafsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Kolbrúnu Karen Sigurðardóttur (
Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Ákærða dæmd í 30 daga skilorðsbundið fangelsi og til greiðslu sektar vegna hegningar- og umferðarlagabrota.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Pétur Fannar Gíslason aðstoðarsaksóknari)
gegn
Einari Sörla Einarssyni (
Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson)
Ákærði sakfelldur fyrir húsbrot og umferðarlagabrot en sýknað af ákæru um hótun. Ákærði dæmdur til að sæta skilorðsbundinni fangelsisvist í þrjá mánuði.
Héraðssaksóknari, Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Matthea Oddsdóttir aðstoðarsaksóknari, Júlí Karlsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Pétri Ómari Péturssyni (
Snorri Sturluson lögmaður)
Ákærði, sem játaði sök, sakfelldur fyrir hótanir og brot gegn blygðunarsemi, líkamsárás, umferðarlagabrot og fíkniefnalagabrot, og dæmdur í fimm mánaða skilorðsbundið fangelsi og sviptur ökurétti ævilangt, auk þess sem haldlögð fíkniefni voru gerð upptæk.
Ákærðu voru sakfelldir fyrir frelsissviptingu og sérstaklega hættulega líkamsárás. Þá var einn ákærðu sakfelldur fyrir hótanir. Fullnustu refsingar frestað skilorðsbundið í tvö ár. Ákærðu var gert að greiða brotaþola miskabætur.
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum (
Daníel Reynisson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Jacek Krzysztof Karczmarczyk (
Halldóra Aðalsteinsdóttir lögmaður)
Sakfellt fyrir minniháttar líkamsárás og hótanir.
Ákærðu voru báðir sakfelldir fyrir rán og annar þeirra að auki fyrir að aka bifreið undir áhrifum sviptur ökurétti, vörslur fíkniefna og vopnalagabrot. Ákæru vegna peningaþvættis vísað frá dómi.
Ákærði sakfelldur fyrir hótanir í garð tveggja einstaklinga, líkamsárás sem varðar við 1. mgr. 217. gr. almennra hegningarlaga, aðra líkamsárás sem varðar við 1. mgr. 218. gr. sömu laga og vopnalagabrot. Dæmdur til greiðslu miskabóta.
Lögreglustjórinn á Norðurlandi vestra (
Sigurður Hólmar Kristjánsson lögreglustjóri)
gegn
X (
Gunnar Gíslason lögmaður)
Ákærði var sakfelldur fyrir hótanir og vopnalagabrot. Hann var dæmdur til að sæta fangelsi í 60 daga, skilorðsbundið í tvö ár.
Héraðssaksóknari (
Þröstur Þór Guðmundsson saksóknarfulltrúi)
gegn
Þorgilsi Hauki Gíslasyni (
Sveinn Andri Sveinsson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir þjófnað, hótanir og brot gegn valdstjórninni og dæmdur í 6 mánaða fangelsi skilorðsbundið í tvö ár.
X var sakfelldur fyrir nokkurn fjölda hegningarlagabrota, auka umferðarlaga- og fíkniefnalagabrota. Við ákvörðun refsingar var m.a. tekið mið af greiðri játningu ákærða fyrir dómi, því að brotin voru flest framin fyrir um eða yfir fjórum árum og að ákærði er nú að reyna að snúa lífi sínu til betri vegar. Þótti refsing hæfilega ákveðin fangelsi í 14 mánuði, skilorðsbundið í tvö ár.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Gunnhildur Anna Alfonsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Sigurjón Baltasar Vilhjálmsson (
Snorri Sturluson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir líkamsárás, hótun og brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni. Var honum gert að sæta fangelsi í 1 mánuð skilorðsbundið til tveggja ára og dæmdur til greiðslu bóta.
Ákæruvaldið (
Halldór Rósmundur Guðjónsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
X (
Jón Magnússon lögmaður)
Ákærði var fundinn sekur um hótanir en sýknaður af ákæru er varðaði tilraun til manndráps, en til vara stórfellda líkamsárás, þar sem ekki þótti hafið yfir skynsamlegan vafa að ákærði hafi gerst sekur um þá háttsemi sem honum var gefin að sök í þeim lið ákæru. Var ákærða gert að sæta fangelsi í 60 daga, skilorðsbundið til eins árs, en með brotum sínum rauf ákærði skilorð eldri dóms og var refsingin dæmd upp.
Ákærði sakfelldur fyrir hótun og ákvörðun refsingar frestað skilorðsbundið
Ákæruvaldið (
Eyþór Þorbergsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
X (
Friðrik Smárason lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir endurtekin og alvarleg brot í nánu sambandi skv. 218. gr. b hegningarlaga.
Ákærði sakfelldur fyrir líkamsárás og ógnun gagnvart sendimanni erlends ríkis auk annarra líkamsárásar og var hann dæmdur í 60 daga skilorðsbundið fangelsi og til greiðslu miskabóta.
Ákæruvaldið (
Eyþór Þorbergsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
X (
Friðrik Smárason lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir líkamsárás á fyrrum sambýliskonu og að hafa í tvígang ekið án þess að hafa endurnýjað ökuréttindi sín.
[…]. Í endanlegri mynd er ákæran svohljóðandi „fyrir eftirtalin brot I (
Vilhjálmur Reyr Þórhallsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
ákærða X fyrir eftirfarandi brot gegn almennum hegningarlögum,
lögum um ávana-,
fíkniefni 1. Fyrir tilraun til stórfellds fíkniefnalagabrots,
með því að hafa föstudaginn 4. júní 2021 (
Ingi Freyr Ágústsson lögmaður),
sótt (
Snorri Sturluson lögmaður) og
þann (
Gísli Kr. Björnsson lögmaður)
Í málinu voru ákærðu X og Y sakfelldir fyrir frelsissviptingu og kynferðisbrot gagnvart A. Ákærði Y var einnig sakfelldur fyrir líkamsárás, hótanir, brot gegn blygðunarsemi, kynferðislega áreitni og ólögmæta nauðung gagnvart A á meðan á frelsissviptingunni stóð. X var auk þess sakfelldur fyrir tilraun til stórfellds fíkniefnalagabrots, fíkniefnalagabrot og peningaþvætti. Loks var Z sakfelldur fyrir líkamsárás, hótanir, og kynferðislega áreitni á meðan á framangreindri frelsissviptingu stóð.
Ákæruvaldið (Eyþór Þorbergsson aðstoðarsaksóknari) gegn
Val Mörk Einarssyni
Ákærði sakfelldur fyrir hótanir.
Ákærði sakfelldur fyrir brot gegn valdstjórninni.
Ákæruvaldið (Eyþór Þorbergsson aðstoðarsaksóknari) gegn
Andrési Rein Baldurssyni
Ákærði sakfelldur fyrir líkamsárás og hótanir.
Ákærði, sem játaði brot sín, var sakfelldur fyrir ýmis brot gegn almennum hegningarlögum, m.a. líkamsárásir, rán, þjófnað og gripdeildir, auk vopnalaga- og umferðarlagabrots. Var ákærði dæmdur í fangelsi í tvö ár og þrjá mánuði og gert að sæta sviptingu ökuréttar og upptöku haldlagðra fíkniefna og muna, auk þess sem hann var dæmdur til greiðslu skaða- og miskabóta.
BÞ var sakfelld fyrir brot gegn 232. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940 fyrir að hafa á um fimm mánaða tímabili endurtekið hótað, fylgst með, sett sig í samband við og setið um A og B, fyrir utan heimili þeirra, gegn þeirra vilja, auk þess að hafa hrellt þær og niðurlægt þær með nánar tilgreindum hætti. Þá var BÞ einnig sakfelld fyrir eignaspjöll með því að hafa valdið skemmdum á bifreið í eigu A og fyrir að óhlýðnast lögreglu með því að hafa neitað að hlýða fyrirmælum lögreglumanna um að koma óvopnuð út af heimili sínu. Varðandi umsáturseinelti BÞ kom fram í dómi Landsréttar að ásetningur hennar til verksins hefði verið einbeittur og þá hefði BÞ virt að vettugi öll fyrirmæli lögreglu og óskir brotaþola um að hún léti af háttseminni. Háttsemi BÞ hafi verið til þess fallin að valda brotaþolum hræðslu og kvíða og nutu brotaþolar ekki friðhelgi á heimili sínu sem þær áttu kröfu á. Var refsing ákærðu ákveðin fangelsi í sex mánuði en fullnustu hennar frestað skilorðsbundið í tvö ár. Með dómi héraðsdóms hafði BÞ verið dæmd til að greiða A og B miskabætur. Einkaréttarkröfur A og B bárust ákæranda hins vegar ekki fyrr en eftir útgáfu ákæru. Af því tilefni var gefin út framhaldsákæra en í dómi Landsréttar kom fram að hvorki hefðu skilyrði fyrir útgáfu framhaldsákæru verið uppfyllt né hefði BÞ veitt samþykki til að kröfur A og B kæmust að í málinu. Var einkaréttarkröfum A og B því vísað frá héraðsdómi.
Ákærði sakfelldur fyrir líkamsárás og hótanir.
Ákæruvaldið (
Íris Þóra Júlíusdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
X (
Elimar Hauksson lögmaður)
Hótanir.
Ákærði sakfelldur fyrir hótanir.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Kristmundur Stefán Einarsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Marinó Birni Kristinssyni og Sunnu Mist Óskarsdóttur (
Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður)
Ákærðu sakfelld fyrir hótun og vopnalagabrot, minniháttar líkamsárás og þjófnaðarbrot. Við ákvörðun refsingar var horft til þess að þau hefðu játað brot sín fyrir dómi.
MK var sakfelldur fyrir tilraun til manndráps gagnvart brotaþola C og stórfellda líkamsárás gagnvart brotaþola D með hnífstunguárás á sömu brotaþola í verslun í Reykjavík 7. mars 2024. Þess utan var MK sakfelldur fyrir fjögur valdstjórnarbrot og dæmdur í 8 ára fangelsi. Var refsing ákveðin sem hegningarauki við 14 mánaða fangelsisdóm sem kveðinn var upp 14. mars 2024. Jafnframt var MK dæmdur til greiðslu miskabóta.
X var sakfelldur fyrir kynferðisbrot gegn A með því að hafa tvívegis beitt hana ólögmætri nauðung og nýtt sér yfirburði sína og aðstöðumun gagnvart A til að hafa við hana samræði, en A er með þroskahömlun og gat ekki skilið þýðingu verknaðarins. Var háttsemin heimfærð til 2. mgr. 194. gr. almennra hegningarlaga. X var á hinn bóginn sýknaður af einum ákærulið, kynferðisbroti gagnvart A, vegna sönnunar- skorts. Þá hafði ákærði verið sýknaður af einu slíku broti gegn A í héraði og undi ákæruvaldið þeirri niðurstöðu. Niðurstaða héraðsdóms um sakfellingu X fyrir misneytingu gagnvart A, sbr. 253. gr. sömu laga, var staðfest en X hafði fengið A til að taka reiðufé út úr hraðbanka og afhenda sér. Niðurstaða héraðsdóms um sakfellingu ákærða vegna tveggja kynferðisbrota gagnvart B var einnig staðfest. Annars vegar var um að ræða blygðunarsemisbrot, sbr. 209. gr. sömu laga, með því að ákærði hafði beitt B blekkingum í gegnum samskiptamiðil um hver hann væri og hvers eðlis samband þeirra væri í þeim tilgangi að eiga í kynferðislegum samskiptum við hana og fá hana til að senda sér kynferðislegar myndir af sér sjálfri. Hins vegar var um að ræða nauðgun með því að beita B ólögmætri nauðung, blekkingum og nýta sér andlega fötlun hennar til þess að fá hana til nánar tilgreindra athafna. Var háttsemin heimfærð til 2. mgr. 194. gr. almennra hegningarlaga. Auk þess var staðfest niðurstaða héraðsdóms um sakfellingu ákærða vegna brots gegn 233. gr. sömu laga með því að hóta B að birta opinberlega kynferðislegar myndir sem hún hafði sent honum í trúnaði. Loks var X með dómi Landsréttar sýknaður af þremur kynferðisbrotum gagnvart brotaþolanum C en þar af hafði ákæruvaldið fallið frá refsikröfu vegna eins við aðalmeðferð málsins í Landsrétti. Staðfest var sú niðurstaða héraðsdóms að ákvæði 15. og 16. gr. laga nr. 19/1940 þættu ekki standa því í vegi að X yrði gerð refsing. Við ákvörðun refsingar var til þess vísað að X hafði verið sakfelldur fyrir alvarleg kynferðisbrot gagnvart brotaþolum, sem byggju við fatlanir og væga þroskahömlun. Á hinn bóginn var litið til þess að verulegur dráttur hefði orðið á meðferð málsins. Að teknu tilliti til 1., 2., 6. og 7. tölulið 1. mgr. 70., 77. og 78. gr. sömu laga var refsing X ákveðin fangelsi í fjögur ár. Þá var X gert að greiða A og B miskabætur.
Lögreglustjórinn á Vesturlandi (Emil Sigurðsson aðstoðarsaksóknari) gegn
X
Maður sakfelldur fyrir hótanir.
Ákæruvaldið (Kristmundur Stefán Einarsson aðstoðarsaksóknari) gegn
Ingimari Erni Gylfasyni (sjálfur ólöglærður)
Líkamsárás og hótun.
Tveir menn voru fundnir sekir um líkamsárásir og annar þar að auki um hótanir og brot gegn valdstjórninni. Var hvorum um sig gert að sæta fangelsi í sex mánuði, en fullnustu refsingar beggja frestað skilorðsbundið til tveggja ára. Þá var ákærðu gert að greiða brotaþolum sem þess höfðu krafist miskabætur. Þá var við ákvörðun refsingar annars ákærða til þess litið að brotaþoli hafði átt upptökin að átökum þeirra í millum. Ekki var þó fallist á vörn ákærðu er varðaði neyðarvörn.
Héraðssaksóknari (
Klara Dögg Steingrímsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
X (
Elías Kristjánsson lögmaður)
Ákærða var dæmdur hegningarauki fyrir kynferðislega áreitni og hótanir. Einnig var hann dæmdur til að greiða brotaþola miskabætur.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Kamilla Kjerúlf saksóknarfulltrúi)
gegn
Brynjari Þór Jakobssyni (
Þórður Már Jónsson lögmaður)
Ákærði sakfelldur og dæmdur til skilorðsbundinnar refsingar fyrir að hafa brotið gegn 233. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 með því að hafa sent skilaboð er innihéldu hótanir.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Agnes Ýr Stefánsdóttir saksóknarfulltrúi)
gegn
Óskari Svani Barkarsyni (
Jón Egilsson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir hótanir og brot gegn nálgunarbanni.
Ákæruvaldið (
Eyþór Þorbergsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
X (
Elimar Hauksson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir líkamsárás en sýknaður af ákæru um hótanir.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Kristín Einarsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Ingibjörgu Dóru Scheving Bjarnadóttur (
Ólöf Heiða Guðmundsdóttir lögmaður)
Ákærða, sem játaði brot sín, dæmd til skilorðsbundinnar refsingar fyrir líkamsárás, hótanir og barnaverndarlagabrot.
Lögreglustjórinn á Suðurlandi (
Rósamunda Jóna Baldursdóttir fulltrúi)
gegn
X (
Reynir Þór Garðarsson lögmaður)
Ákærði var fundinn sekur um hótanir og vopnalagabrot, með því að hafa dregið upp hníf og otað honum að brotaþola. Var ákærða gert að sæta fangesli í 30 daga, en fullnustu refsingarinnar var frestað skilorðsbundið til tveggjar ára. Þá var ákærða gert að sæta upptöku á hnífnum og hann dæmdur til greiðslu alls sakarkostnaðar.
Tveir ungir menn, X og Y, sakfelldir fyrir fjölda brota, X meðal annars fyrir fjórar líkamsárásir og Y tvær. X dæmdur í sex mánaða fangelsi, en fullnustu refsingarinnar frestað skilorðsbundið í tvö ár.Ákvörðun refsingar Y frestað skilorðsbundið í tvö ár.Frestun í báðum tilfellum bundin sérstökum skilyrðum um eftirlit og umsjón.
Ákærði sakfelldur fyrir hótanir og brot á barnaverndarlögum og dæmdur til greiðslu miskabóta.
Ákærði var sakfelldur fyrir ýmis brot gegn almennum hegningarlögum, umferðarlögum og fíkniefnalögum.
Ákæruvaldið (
Eyþór Þorbergsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Thomas Francis Ryan (
Sigmundur Guðmundsson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir hótanir um líkamsmeiðingar. Ekki fallist á sjónarmið ákærða um að bakgrunnur hans, litríkt tungutak eða það viðhorf hans að fólk ætti ekki að skipta sér af heimiliserjum annarra, ætti að leiða til mildunar refsingar. Ákærði dæmdur til 30 daga skilorðsbundinnar fangelsisvistar.
Ákæruvaldið (
Eyþór Þorbergsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Kristófer Erni Sigurðarsyni (
Sunna Axelsdóttir lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir hótanir.
Ákærði var sakfelldur fyrir brot í nánu sambandi en sýknaður af broti um hótanir. Ákærði var dæmdur í 6 mánaða skilorðsbundið fangelsi og til að greiða miskabætur 600.000 kr.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Íris Þóra Júlíusdóttir saksóknarfulltrúi)
gegn
Daniel Vareika (
Stefán Ragnarsson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir líkamsárás, hótanir, blygðunarsemisbrot, auðgunarbrot, nytjastuld og brot á lögum um ávana- og fíkniefni. Hann játaði brot sín skýlaust.
Ákæruvaldið (
Kristmundur Stefán Einarsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
X (
Björgvin Jónsson lögmaður)
Sakfellt fyrir brot í nánu sambandi og hótanir.