Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

82 dómar fundust

Lykilorð: Hegningarlagabrot

Héraðsdómur Vesturlands birt 15. júní 2026 kl. 14:50

S-195/2026

Lögreglustjórinn á Vesturlandi (Guðfinnur Stefánsson aðstoðarsaksóknari) gegn X
Lykilorð: Hegningarlagabrot. Hótanir.
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Ákærði sakfelldur fyrir hótun. Dæmdur til að sæta fangelsi í 30 daga skilorðbundið til tveggja ára.

Héraðsdómur Norðurlands vestra birt 8. janúar 2026

S-62/2025

Lögreglustjórinn á Norðurlandi vestra (Sigurður Hólmar Kristjánsson lögreglustjóri) gegn X og Y (Pétur Kristinsson lögmaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Ákærða X banaði hundi af nærliggjandi bæ þegar hann hljóp í átt að æðarvarpi í eigu ákærðu. Við það verk notaði hún byssu í eigu ákærða Y, en gildistími skotvopnaleyfa þeirra beggja var þá útrunninn. Vegna þessa voru ákærðu X gefin að sök eignarspjöll og vopnalagabrot og þess krafist að skotvopnið yrði gert upptækt. Talið var sannað að ákærða hefði skotið hundinn í þeim eina tilgangi að verja æðarvarpið gegn yfirvofandi tjóni sem hundurinn hefði getað valdið og að ekki hefði verið kostur á að beita öðrum og vægari úrræðum í því skyni. Jafnframt var talið sannað að eigendur varpsins hefðu áður verið búnir að brýna fyrir eigendum hundsins að gæta hans sérstaklega á varptímanum og að ákærða X hefði reynt að reka hundinn frá varpinu áður en hún greip til þess örþrifaráðs að skjóta hann. Enn fremur var talið sannað að þeir hagsmunir sem ákærðu verndaði með verkinu hefðu verið miklum mun meiri en þeir hagsmunir sem hún fórnaði með því að aflífa hundinn. Því var talið að uppfyllt væru skilyrði neyðarréttar, samkvæmt 13. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, og ákærðu voru sýknuð af kröfum ákæruvaldsins.

Héraðsdómur Suðurlands birt 7. janúar 2026

S-119/2025

Ákæruvaldið (Sigurður Ólafsson aðstoðarsaksóknari) gegn Einari Erni Ásdísarsyni (Snorri Steinn Vidal lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var fundinn sekur um hegningar- og umferðarlagabrot og honum gert að sæta fangelsi í 60 daga, en fullnustu refsingarinnar var frestað skilorðsbundið til tveggja ára. Ákærða var jafnframt gert að greiða sekt og hann dæmdur til greiðslu þess sakarkostnaðar er af málinu leiddi. Ekki þóttu efni til að gera ákærða frekari sviptingu ökuréttar.

Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 8. október 2025

S-340/2024

Ákæruvaldið (Agnes Björk Blöndal aðstoðarsaksóknari) gegn Tómasi Helga Jónssyni (Sveinn Andri Sveinsson lögmaður) og Sindra Páli Róbertssyni (Gísli M. Auðbergsson lögmaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Ákærðu voru báðir sakfelldir fyrir rán og annar þeirra að auki fyrir að aka bifreið undir áhrifum sviptur ökurétti, vörslur fíkniefna og vopnalagabrot. Ákæru vegna peningaþvættis vísað frá dómi.

Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 7. október 2025

S-220/2025

Ákæruvaldið (Agnes Björk Blöndal aðstoðarsaksóknari) gegn X (Sigurður Freyr Sigurðsson lögmaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Ákærði sakfelldur fyrir hótanir í garð tveggja einstaklinga, líkamsárás sem varðar við 1. mgr. 217. gr. almennra hegningarlaga, aðra líkamsárás sem varðar við 1. mgr. 218. gr. sömu laga og vopnalagabrot. Dæmdur til greiðslu miskabóta.

Héraðsdómur Reykjaness birt 15. júlí 2025

S-656/2025

Héraðssaksóknari (Sigurður Ólafsson aðstoðarsaksóknari) gegn Hilmari Skúlasyni D Ó M U R Mál þetta, sem dómtekið var 26. júní 2025, höfðaði héraðssaksóknari með (Snorri Sturluson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Karlmaður sakfelldur fyrir brot gegn 4. mgr. 220. gr. almennra hegningarlaga, umferðarlögum og lögreglulögum með því að hafa í tvö skipti ekið ógætilega, undir áhrifum áfengis- og fíkniefna. Dæmd fangelsisrefsing og ökuréttindasvipting.

Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 13. júní 2025

S-314/2024

Ákæruvaldið (Eyþór Þorbergsson aðstoðarsaksóknari) gegn X (Ásgeir Örn Blöndal Jóhannsson lögmaður)
Málaflokkur: Önnur sakamál

Ákærða sakfelld fyrir að hafa haft fé af fyrrum eiginmanni sínum með misneytingu. Sakfellt fyrir hluta þess tíma sem miðað var við í ákæru.

Héraðsdómur Suðurlands birt 14. apríl 2025

S-87/2025

Lögreglustjórinn á Suðurlandi (Ólafur Hallgrímsson fulltrúi) gegn Ragnari Kristjáni Skúlasyni (enginn)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var fundinn sekur um ítrekaðan akstur undir áhrifum fíkniefna, akstur sviptur ökurétti sem og skjalabrot. Var honum gert að sæta fangelsi í 30 daga jafnframt sekt. Þá var ákærði sviptur ökurétti ævilangt og hann dæmdur til greiðslu sakarkostnaðar.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 12. mars 2025

S-5275/2024

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Gunnhildur Anna Alfonsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Svani Birki Tryggvasyni (Jón Bjarni Kristjánsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur fyrir brot á hegningarlögum og umferðarlögum. Dæmdur í 5 mánaða fangelsi og ævilöng svipting ökuréttar áréttuð. Um var að ræða rof á skilorði fyrri dóms og varð það dæmt upp.

Héraðsdómur Suðurlands birt 17. febrúar 2025

S-362/2024

Lögreglustjórinn á Suðurlandi (Ólafur Hallgrímsson fulltrúi) gegn Jóni Gunnþórssyni (Gísli M. Auðbergsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var fundinn sekur um ýmis hegningarlagabrot, fíkniefnalagabrot og umferðarlagabrot, þ.m.t. ítrekaðan akstur undir áhrifum fíkniefna og akstur sviptur ökurétti. Var honum dæmdur hegningarauki við eldri dóm og gert að sæta að fangelsi í níu mánuði, jafnframt sekt. Þá var áréttuð ævilöng svipting ökuréttar ákærða og honum gert að greiða brotaþolum skaðabætur.

Héraðsdómur Austurlands birt 9. janúar 2025

S-102/2024

Ákæruvaldið (Fríða Thoroddsen aðstoðarsaksóknari) gegn X (Hlynur Jónsson lögmaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Ákærði var dæmdur í fangelsi í níu mánuði fyrir ýmis brot gegn fyrrverandi sambýliskonu sinni. Með hliðsjón af takmörkuðum sakaferli ákærða og skýlausri játningu hans var refsingin skilorðsbundin til tveggja ára. Ákærða var einnig gert að greiða brotaþola miskabætur.

Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 4. nóvember 2024

S-249/2023

Ákæruvaldið (Eyþór Þorbergsson aðstoðarsaksóknari) gegn Einari Þór Gunnarssyni (Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður) og Hólmfríði Lilju Gylfadóttur (Jón Stefán Hjaltalín Einarsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

E var sakfelldur fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás, umferðarlagabrot og fíkniefnalagabrot, auk nytjastuldar ökutækis og þjófnað í félagi við H. H var sakfelld fyrir tvær líkamsárásir, nytjastuld ökutækis, mörg þjófnaðarbrot og umferðarlagabrot, auk þess að hafa í félagi við E gerst sek um þjófnað og nytjastuld. E var dæmdur í fangelsi í 10 mánuði en H dæmd í fangelsi í 14 mánuði auk greiðslu miskabóta.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 11. september 2024

S-4052/2024

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kristmundur Stefán Einarsson aðstoðarsaksóknari) gegn Árna Sigurði Karlssyni
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Ákærði var sakfelldur fyrir þjófnaðarbrot. Var honum dæmdur hegningarauki og gert að sæta fangelsi í 15 daga.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 11. september 2024

S-2721/2024

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kamilla Kjerúlf saksóknarfulltrúi) gegn Marius Raducan (Karólína Finnbjörnsdóttir lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var sakfelldur fyrir þjófnað og umferðarlagabrot og dæmdur í 5 mánaða fangelsi, skilorðsbundið í 2 ár og hann sviptur ökurétti ævilangt.

Héraðsdómur Reykjaness birt 12. júlí 2024

S-1660/2024

Málið nr. S-1660/2024 Ákæruvaldið (Karl Ingi Vilbergsson saksóknari) gegn Eduard Dektyarev (Ragnar Þórður Jónasson lögmaður) og Alexander Vasilyev (Halldóra Aðalsteinsdóttir lögmaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Skipstjóri og 2. stýrimaður á flutningaskipi voru sakfelldir fyrir að stofna lífi skipstjóra strandveiðibáts í hættu og láta fyrir farast að koma honum til hjálpar í kjölfar áreksturs milli skipanna úti fyrir Garðskaga aðfaranótt 16. maí 2024. Skipstjórinn var jafnframt sakfelldur fyrir að vera undir áhrifum áfengis og ávana- og fíkniefna er árekstur varð. Ákærðu játuðu greiðlega sök og var m.a. litið til þess þegar þeim var gerð refsing. Hlaut skipstjórinn 12 mánaða skilorðsbundinn fangelsisdóm og stýrimaðurinn 8 mánaða skilorðsbundinn dóm. Jafnframt var skipstjórinn sviptur skipstjórnarréttindum og rétti til að gegna stýrimannsstöðu í 3 mánuði.

Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 13. júní 2024

S-113/2024

Ákæruvaldið (Agnes Björk Blöndal aðstoðarsaksóknari) gegn Helga Rafni Helgasyni (Jón Stefán Hjaltalín Einarsson lögmaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Ákærði sakfelldur fyrir kynferðisbrot með því að hafa aflað sér og haft í sínum vörslum efni sem sýndi börn á kynferðislegan og klámfenginn hátt, auk brots gegn vopnalögum. Dæmdur í fimmtán mánaða fangelsi skilorðsbundið til þriggja ára og til upptöku á haldlögðum munum.

Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 10. maí 2024

S-612/2023

Ákæruvaldið (Eyþór Þorbergsson aðstoðarsaksóknari) gegn Erni Leó Hlynssyni (Bjarni Hauksson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Talið var sannað með framlagningu matsgerðar og öðrum gögnum að ákærði hafi ekið bifreið sinni á að minnsta kosti 142 km/klst í aðdraganda umferðarslyss. Var því hafnað að sök væri fyrnd, en talið rétt að skilorðstími yrði styttri vegna dráttar á rannsókn málsins. Var ákærði dæmdur til 30 daga skilorðsbundinnar fangelsisvistar, auk þess sem hann var sviptur ökuréttindum.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 19. apríl 2024

S-6616/2023

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kamilla Kjerúlf saksóknarfulltrúi) gegn Brynjari Þór Jakobssyni (Þórður Már Jónsson lögmaður)
Lykilorð: Hegningarlagabrot. Hótanir.
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Ákærði sakfelldur og dæmdur til skilorðsbundinnar refsingar fyrir að hafa brotið gegn 233. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 með því að hafa sent skilaboð er innihéldu hótanir.

Héraðsdómur Suðurlands birt 11. apríl 2024

S-104/2024

Héraðssaksóknari (Halldór Rósmundur Guðjónsson aðstoðarsaksóknari) gegn Thomas De Farrier (Magnús Jónsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var fundinn sekur um hegningar- umferðar- og lögreglulagabrot auk fíkniefnalagabrots. Var honum gert að sæta fangelsi í 90 daga jafnframt sekt. Þá var ákærði sviptur ökurétti ævilangt og gert að sæta upptöku fíkniefna.

Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 8. apríl 2024

S-627/2023

Ákæruvaldið (Eyþór Þorbergsson aðstoðarsaksóknari) gegn X (Gísli M. Auðbergsson lögmaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Ekki þótti sannað að ákærði hefði ráðist að fyrrverandi sambýliskonu sinni og slegið hana með parketlista. Var ákærði því sýknaður af þeirri háttsemi sem honum er gefin að sök.

Héraðsdómur Reykjaness birt 13. mars 2024

S-614/2024

Ákæruvaldið (Ásmundur Jónsson aðstoðarsaksóknari) gegn Shaun Alan McCartney (Eva Dóra Kolbrúnardóttir lögmaður)
Málaflokkur: Önnur sakamál

Ákærða var gerð fangelsisrefsing sem var að hluta skilorðsbundin fyrir að hafa staðið að innflutningi á 9.900 g af maríhúana

Héraðsdómur Austurlands birt 12. mars 2024

S-197/2023

Lögreglustjórinn á Austurlandi (Fríða Thoroddsen lögreglustjóri) gegn X
Málaflokkur: Önnur sakamál

Sakfellt fyrir brot á lögum um velferð dýra nr. 55/2013

Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 16. febrúar 2024

S-610/2023

Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra (Eyþór Þorbergsson aðstoðarsaksóknari) gegn Stefán Ragnarsson (Sigurður Freyr Sigurðsson lögmaður)
Málaflokkur: Kynferðisbrot

Ákærði sakfelldur fyrir vörslur barnaníðsefnis og dæmdur til eins árs fangelsisvistar, skilorðsbundinnar til þriggja ára, auk þess að sæta upptöku á efninu.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 31. janúar 2024

S-7066/2023

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Agnes Ýr Stefánsdóttir saksóknarfulltrúi) gegn Sigurjóni Þórissyni (Snorri Sturluson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var sakfelldur fyrir hegningarlaga- og umferðarlagabrot og honum gert að sæta fangelsi í 90 daga og hann sviptur ökurétti ævilangt.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 31. janúar 2024

S-7051/2023

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Pétur Fannar Gíslason saksóknarfulltrúi) gegn Daníel Arnari Guðjónssyni
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Ákærði var sakfelldur fyrir hegningarlaga- og fíkniefnalagabrot og gert að sæta fangelsi í 60 daga og gert að sæta upptöku á haldlögðum fíkniefnum.

Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 29. janúar 2024

S-617/2023

Ákæruvaldið (Eyþór Þorbergsson aðstoðarsaksóknari) gegn Ísól Björk Einarsdóttur
Málaflokkur: Önnur sakamál

Ákærða sakfelld fyrir eignaspjöll.

Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 25. janúar 2024

S-622/2023

Ákæruvaldið (Eyþór Þorbergsson aðstoðarsaksóknari) gegn Svala Bergmann Hjaltadóttir
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Ákærða sakfelld fyrir þjófnað.

Hleð fleiri dómum…