Héraðsdómur Reykjavíkur
Dómur 12. mars 2025.
Mál nr. S-5275/2024:
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu
(Gunnhildur Anna Alfonsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Svani Birki Tryggvasyni
(Jón Bjarni Kristjánsson lögmaður)
Lykilorð
Akstur sviptur ökurétti. Akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Einkaréttarkrafa. Fangelsi. Gripdeild. Hegningarlagabrot. Játningarmál. Skilorðsrof. Svipting ökuréttar. Þjófnaður. Umferðarlagabrot.
Útdráttur
Ákærði sakfelldur fyrir brot á hegningarlögum og umferðarlögum. Dæmdur í 5 mánaða fangelsi og ævilöng svipting ökuréttar áréttuð. Um var að ræða rof á skilorði fyrri dóms og varð það dæmt upp.
Dómur
Mál þetta, sem dómtekið var í 26. febrúar sl., var höfðað með ákæru, útgefinni af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu 24. september 2024, á hendur Svani Birki Tryggvasyni, kt., fyrir:
Gripdeild, með því að hafa, þriðjudaginn [...] 2023, í verslun Byko, Skemmuvegi 4 í Kópavogi, sett GCL leysigeisla að heildarverðmæti 64.995 kr. í úlpuvasa sinn, gengið með hann fram hjá afgreiðslukössum og út úr versluninni án þess að greiða fyrir.
Gripdeild með því að hafa, þriðjudaginn [...] 2023, í verslun Byko, Skemmuvegi 4 í Kópavogi, tekið tvö Bacho topplyklasett að heildarverðmæti 51.890 kr. og gengið með þau fram hjá afgreiðslukössum og út úr versluninni án þess að greiða fyrir.
Gripdeild, með því að hafa, miðvikudaginn [...] 2023, í verslun Jóns og Óskars, Hlíðarsmára 1 í Kópavogi, tekið 14kt demantshálsmen og 14kt hálsfesti úr hvítagulli að heildarverðmæti 450.000 kr. og gengið með það út úr versluninni án þess að greiða fyrir.
Gripdeild, með því að hafa, miðvikudaginn [...] 2023, í verslun Elko, Skógarlind 2 í Kópavogi, tekið Dyson 2in1 V15 skaftryksugu að heildarverðmæti 179.995 kr. og gengið með hana út úr versluninni án þess að greiða fyrir.
Þjófnað með því að hafa, föstudaginn [...] 2023, brotist inn í bifreiðina [...] í eigu A kt. [...], þar sem hún stóð við [...] í Hafnarfirði, og stolið þaðan sjö verkfærakössum, greiðslukortum og kveikjuláslyklum að óþekktu verðmæti.
Telst háttsemin í ákærulið nr. 1-4 varða við 245. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, háttsemin í ákærulið nr. 5 varða við 244. gr. sömu laga.
Umferðarlagabrot með því að hafa, mánudaginn 20. maí 2024, ekið bifreiðinni [...] sviptur ökurétti og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna ávana- og fíkniefna (í blóði mældist amfetamín 210 ng/ml, tetrahýdrókannabínól 2,5 ng/ml, alprazólam 27 ng/ml, klónazepam 11 ng/ml og oxýkódon 60 ng/ml) um Njarðargötu við Þorragötu í Reykjavík, þar sem lögregla stöðvaði aksturinn.
Telst háttsemi þessi varða við 1., sbr. 2. mgr. 50. gr. og 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar, til greiðslu alls sakarkostnaðar og til að sæta sviptingu ökuréttar skv. 99. gr. og 101. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.
Einkaréttarkrafa:
Vegna ákæruliðar nr. 4 krefst [...], f.h. Elko ehf., kt. 561000-3280, að ákærði verði dæmdur til að greiða kröfuhafa skaðabætur samtals að fjárhæð 179.995 kr., auk vaxta skv. 1. mgr. 8. gr. l. nr. 38/2001, frá þeim degi er hin bótaskyldu atvik áttu sér stað, eða hinn 2. ágúst 2023, og til 21.september 2023 og skv. 9. gr., sbr. 1. mgr. 6. gr. sömu laga, frá þeim degi til greiðsludags.
Þá er krafist málskostnaðar að mati dómsins eða skv. síðar framlögðum málskostnaðarreikningi komi til málflutnings í málinu skv. 176. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008.
Þá gaf lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu út aðra ákæru á hendur ákærða 20. desember 2024, fyrir þjófnað, með því að hafa, sunnudaginn 22. september 2024, í verslun Hagkaups, Hagasmára 1 í Kópavogi, stolið Carolina Herrera ilmvatni að verðmæti 15.799 kr.
Telst brot þetta varða við 1. mgr. 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar Málin voru sameinuð í þinghaldi 22. janúar 2025 undir málsnúmeri þessu.
Farið var með mál þetta samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu þegar sækjanda og verjanda ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.
Ákærði hefur skýlaust játað brot sín. Sannað er með játningu ákærða og öðrum gögnum málsins að ákærði er sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök og eru brot hans rétt heimfærð til refsiákvæða í ákæru. Verjandi ákærða krefst vægustu refsingar sem lög leyfa og hæfilegrar málsvarnarþóknunar sér til handa.
Ákærði er fæddur í [...]. Samkvæmt framlögðu sakavottorði, dagsettu 17. desember 2024, nær sakaferill ákærða aftur til ársins 2009. Ákærða hefur meðal annars ítrekað verið gerð refsing fyrir þjófnað eða gripdeild. Hann var síðast dæmdur fyrir þjófnað með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur 1. apríl 2022 og gert að sæta 30 daga fangelsi, skilorðsbundið til tveggja ára. Þau auðgunarbrot sem ákærði er sakfelldur fyrir nú eru framin innan ítrekunartíma 3. mgr. 71. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Verður það virt ákærða til refsiþyngingar, sbr. 255. gr. almennra hegningarlaga nr. 191/1940. Á hinn bóginn verður það virt ákærða til refsimildunar að undir meðferð málsins játaði hann brot sín skýlaust, sbr. 8. tölul. 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga.
Með brotum þeim er ákærði er sakfelldur fyrir nú samkvæmt ákæruliðum 1-5 í ákæru útgefinni 24. september sl. hefur hann rofið dómsins frá 1. apríl 2022. Ber nú að dæma skilorðsdóminn upp og er ákærða gerð refsing í einu lagi, sbr. 60. gr. laga nr. 19/1940. Önnur brot samkvæmt ákærum vorum framin eftir uppkvaðningu sama dóms og að öðru leyti kemur sakaferill ákærða ekki til skoðunar við ákvörðun refsingar.
Með hliðsjón af öllu framangreindu, sakarefni þessa máls og 77. gr. almennra hegningarlaga þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin 5 mánaða fangelsi.
Með vísan til sakaferils ákærða þykir ekki efni til að skilorðsbinda refsinguna.
Með vísan til lagaákvæða í ákæru er ævilöng svipting ökuréttar ákærða áréttuð frá birtingu dóms þessa að telja.
Í málinu liggur fyrir bótakrafa af hálfu Elko ehf. og hefur ákærði samþykkt þær óbreyttar. Þykir bótakrafan nægilega rökstudd og verður tekin til greina með vöxtum og dráttarvöxtum eins og greinir í dómsorði. Bótakrafan var kynnt fyrir ákærða við birtingu fyrirkalls 5. nóvember 2024 og reiknast dráttarvextir frá því mánuður var liðinn frá því tímamarki Þar sem bótakrefjandi sótti ekki þing heldur ákæruvaldið fyrir hans hönd verður honum ekki dæmdur málskostnaður úr hendi ákærða eins og krafist er.
Ákærði greiði málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, Jóns Bjarna Kristjánssonar lögmanns, sem þykja hæfilega ákveðin með hliðsjón af tímaskýrslu lögmanns og umfangi máls, 418.500 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti. Þá greiði ákærði 310.987 krónur í annan sakarkostnað.
Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Böðvar Einarsson saksóknarfulltrúi.
Harpa Sólveig Björnsdóttir aðstoðarmaður dómara kveður upp dóm þennan.
Dómsorð:
Ákærði, Svanur Birkir Tryggvason, sæti fangelsi í 5 mánuði.
Áréttuð er ævilöng svipting ökuréttar ákærða.
Ákærði greiði Elko ehf. skaðabætur að fjárhæð 179.995 krónur, auk vaxta skv. 1. mgr. 8. gr. l. nr. 38/2001, frá 2. ágúst 2023 til 5. desember 2024 og skv. 9. gr., sbr. 1. mgr. 6. gr. sömu laga, frá þeim degi til greiðsludags.
Ákærði greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Jóns Bjarna Kristjánssonar lögmanns, 418.500 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti, og 310.987 krónur í annan sakarkostnað.
Harpa Sólveig Björnsdóttir