Lögreglustjórinn á Vesturlandi (
Guðfinnur Stefánsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Friðriki Marvin Björnssyni (
Sveinn Andri Sveinsson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir að aka undir áhrifum ávana- og fíkniefna í þriðja sinn innan ítrekunartíma í skilningi 71. gr. almennra hegningarlaga, sem og fyrir akstur án gildra ökuréttinda og hraðakstur. Með brotum sínum rauf ákærði skilorð og var skilorðsdómur því dæmdur upp og ákærða ákvörðuð refsing í einu lagi. Ákærða gert að sæta fangelsi í 6 mánuði og sviptur ökurétti ævilangt.
Ákærðu S, L og M var gefið að sök manndráp, frelsissvipting og rán með því að hafa í félagi svipt A lífi og beitt hann í aðdraganda þess margþættu og hrottafengnu líkamlegu ofbeldi, sbr. ákærulið I, og tilraun til fjárkúgunar, sbr. ákærulið II. Þá var ákærða X gefið að sök peningaþvætti með því að hafa samþykkt, að beiðni L og M, að taka við millifærslu inn á bankareikning sinn af bankareikningi A, sbr. ákærulið III. Loks var ákærðu R gefin að sök hlutdeild í frelsissviptingu og ráni í ákærulið I, sbr. ákærulið IV. Með hinum áfrýjaða dómi voru S, L og M sakfelldir samkvæmt ákærulið I og var S einnig sakfelldur fyrir háttsemi samkvæmt ákærulið II en L og M sýknaðir. Þá var X sakfelldur fyrir háttsemi samkvæmt ákærulið III en ákvörðun refsingar frestað skilorðsbundið. Loks var R sýknuð af sakargiftum samkvæmt ákærulið IV. Var ákærðu S og L gert að sæta fangelsi í 17 ár og M fangelsi í 14 ár. Loks var S, L og M gert að greiða eiginkonu og syni A bætur. Í dómi Landsréttar var talið hafið yfir skynsamlegan vafa að S, L og M hefðu gerst sekir um þá háttsemi sem lýst væri í ákærulið I og staðfesti Landsréttur sakfellingu ákærðu fyrir manndráp, sbr. 211. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, frelsissviptingu og rán. Þá staðfesti Landsréttur niðurstöðu hins áfrýjaða dóms varðandi ákærulið II. Að mati Landsréttar þótti ákæruvaldinu ekki hafa tekist að sanna, svo hafið væri yfir skynsamlegan vafa, að X hefði haft vitneskju um að upplýsingarnar sem hann veitti yrðu nýttar til að koma undan ávinningi af refsiverðu broti og að hann hefði verið bær til að veita samþykki sitt til þess á verknaðarstundu. Sýknaði Landsréttur því X samkvæmt ákærulið III. Loks taldi Landsréttur að þáttur R í aðdraganda frelsissviptingar A uppfyllti skilyrði til að teljast hlutdeild í frelsissviptingu A en ákæruvaldinu hefði aftur móti ekki tekist sönnun um það að ásetningur R hefði staðið til þess að A yrði beittur líkamlegu ofbeldi til að ná af honum fé. Var R því sakfelld fyrir hlutdeild í frelsissviptingu en sýknuð af hlutdeild í ráni samkvæmt ákærulið IV. Var refsing S og L ákveðin fangelsi í 16 ár, refsing M fangelsi í 12 ár auk þess sem þeim var gert að greiða eiginkonu og syni A bætur. Loks var R gert að sæta fangelsi í 6 mánuði sem bundið var skilorði.
Ákæruvaldið (
Dagmar Ösp Vésteinsdóttir saksóknari)
gegn
Svavari Óla Ólafssyni (
Andrés Már Magnússon lögmaður)
S var sakfelldur í héraði fyrir fíkniefna- og vopnalagabrot. Eldri skilorðsdómur var tekinn upp og S gerð refsing í einu lagi. Var refsing S ákveðin fangelsi í níu mánuði, en fullnustu sex mánaða frestað skilorðsbundið í tvö ár. Jafnframt voru gerð upptæk nánar tilgreind fíkniefni, fíknilyf og vopn. S áfrýjaði héraðsdómi í því skyni að fá refsinguna mildaða og bundna skilorði að öllu leyti. Með dómi Landsréttar var hinn áfrýjaði dómur staðfestur.
Ákærði sakfelldur fyrir líkamsárás sem talin var varða við 2. mgr. 218. gr. laga nr. 19/1940 og dæmdur í tíu mánaða skilorðsbundið fangelsi.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Karen Lárusdóttir saksóknarfulltrúi) gegn
Daníel Þór Jónssyni
Ákærði var sakfelldur fyrir fíkniefnalagabrot. Var honum gert að sæta fangelsi í 3 mánuði, skilorðsbundið til tveggja ára.
Ákæruvaldið (
Jakob Steinn Stefánsson saksóknarfulltrúi)
gegn
Daða Snæ Jóhannssyni (
Elísabet Pétursdóttir lögmaður)
Ákærði dæmdur í 8 mánaða fangelsi fyrir akstur undir áhrifum ávana-og fíkniefna. Jafnframt var ákærði sviptur ökurétti ævilangt.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Elín Hrafnsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Ingi Sigurður Svansson (
Páll Kristjánsson lögmaður)
Ákærði var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot. Var honum gert að sæta fangelsi í 9 mánuði, þar af 8 mánuðir skilorðsbundnir til tveggja ára ásamt ævilangri sviptingu ökuréttinda.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Auðbjörg Lísa Gústafsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Eimantas Dumcius (
Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson lögmaður)
Maður, sem játaði sök fyrir dómi, sakfelldur fyrir sjö þjófnaðarbrot og brot gegn vopnalögum. Eldri dómur tekinn upp þar sem um skilorðsrof var að ræða að hluta til. Dæmdur til að sæta fangelsi í sex mánuði en fullnustu þriggja mánaða af þessum sex frestað skilorðsbundið í tvö ár. Ísexi gerð upptæk.
Lögreglustjórinn á Suðurlandi (
Rósamunda Jóna Baldursdóttir saksóknarfulltrúi)
gegn
Aroni Þormari Thomassyni (
Andri Björgvin Arnþórsson lögmaður)
Ákærði var fundinn sekur um ítrekaðan akstur undir áhrifum fíkniefna sem og akstur sviptur ökurétti og honum gert að sæta fangelsi. Með brotum sínum rauf ákærði skilorð eldri dóms og var refsingin dæmd upp. Þá var ítrekuð ævilöng svipting ökuréttar ákærða.
Ákæruvaldið (Eyþór Þorbergsson aðstoðarsaksóknari) gegn
Mikael Má Unnarssyni
Ákærði sakfelldur fyrir að aka sviptur ökurétti. Skilorðsrof.
S voru gefin að sök þjófnaðar-, gripdeildar- og umferðarlagabrot. S játaði háttsemina í héraði og var honum meðal annars gert að sæta fangelsi í fimm mánuði en fyrir Landsrétti var einungis til endurskoðunar ákvæði um fangelsisrefsingu S. Rakið var í dómi Landsréttar að S hafi í ákæru meðal annars verið ákærður fyrir þjófnað í verslun í apríl 2023. Háttsemin hafi verið heimfærð til gripdeildar í hinum áfrýjaða dómi en hvorki S né ákæruvaldið gert athugasemdir við heimfærsluna. Í samræmi við þetta hafi S verið sakfelldur í héraði fyrir fjögur gripdeildarbrot og tvö þjófnaðarbrot auk umferðarlagabrotsins. Við ákvörðun refsingar var í dómi Landsréttar litið til þess sem rakið var í héraðsdómi, S til refsiþyngingar, að þau auðgunarbrot sem hann var sakfelldur fyrir voru framin innan ítrekunartíma þjófnaðarbrots sem S hlaut dóm fyrir 1. apríl 2022. Einnig var horft til þess að S hafi játað brot sín skýlaust, honum til refsimildunar. Enn fremur var fallist á að ekki væru efni til að skilorðsbinda refsingu S en með þeim brotum sem hann var ákærður fyrir hafi S rofið skilorð. Með framangreindum athugasemdum en að öðru leyti með vísan til forsendna hins áfrýjaða dóms var hann staðfestur.
M var sakfelldur fyrir brot gegn 199. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 með því að hafa áreitt A kynferðislega í bifreið sem hann ók með því að hafa káfað innanklæða á brjóstum og kynfærum hennar og reynt að kyssa hana tungukossum. Við ákvörðun refsingar var litið til þess að með framangreindu broti rauf M skilorð og var sá hluti dómsins því dæmdur upp og M gerð refsing í einu lagi, sbr. 60. og 77. gr. almennra hegningarlaga. Var refsing M ákveðin fangelsi í 12 mánuði. Þá var honum gert að greiða A 700.000 krónur í miskabætur.
Ákæruvaldið (
Eyþór Þorbergsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Alexander Svani Guðmundssyni (
Páll Kristjánsson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir vörslur fíkniefna í söluskyni, vopnalagabrot og peningaþvætti. Hegningarauki. Skilorðsdómur dæmdur upp.
Ákærði sakfelldur fyrir hótanir í garð tveggja einstaklinga, líkamsárás sem varðar við 1. mgr. 217. gr. almennra hegningarlaga, aðra líkamsárás sem varðar við 1. mgr. 218. gr. sömu laga og vopnalagabrot. Dæmdur til greiðslu miskabóta.
K var í héraði sakfelldur fyrir umferðarlagabrot með því að hafa tvívegis ekið bifreið sviptur ökurétti. Með brotunum rauf K skilyrði reynslulausnar og var honum gerð refsing í einu lagi, sbr. 1. mgr. 82. gr. laga um fullnustu refsinga nr. 15/2016, sbr. 60. og 77. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, og var K gert að sæta 32 mánaða fangelsi. Fyrir Landsrétt lagði K fram ný gögn um breytta hagi hans til hins betra. Í ljósi sakarefnis málsins og dómvenju taldi Landsréttur ekki efni til annars en að staðfesta hinn áfrýjaða dóm. Var þá meðal annars litið til þess að samkvæmt dómvenju væri ekki gerður greinarmunur á akstri undir áhrifum áfengis eða vímuefna og akstri án ökuréttinda.
Héraðssaksóknari (
Arnfríður Gígja Arngrímsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Birni Inga Helgasyni (
Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir eignaspjöll og dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi. Með broti sínu rauf ákærði skilorð vegna eldri dóms.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Agnes Ýr Stefánsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Guðmundi Helga Birgissyni (
Jóhann Baldursson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir umferðarlagabrot. Dæmdur í 6 mánaða fangelsi og sviptur ökurétti ævilangt, um var að ræða skilorðsrof og var refsing samkvæmt fyrri dómi dæmd upp.
Ákæruvaldið (
Ásmundur Jónsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Sigurði Geir Geirssyni (
Snorri Sturluson lögmaður)
Ákærði dæmdur í fangelsi fyrir umferðarlagabrot og vörslur fíkniefna.
Héraðssaksóknari (
Þröstur Þór Guðmundsson saksóknarfulltrúi)
gegn
Arturs Jakovlevs (
Ólafur Valur Guðjónsson lögmaður)
Ákærði var sakfelldur fyrir brot gegn valdstjórninni.
Ákæruvaldið (
Halldór Rósmundur Guðjónsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
X (
Jón Magnússon lögmaður)
Ákærði var fundinn sekur um hótanir en sýknaður af ákæru er varðaði tilraun til manndráps, en til vara stórfellda líkamsárás, þar sem ekki þótti hafið yfir skynsamlegan vafa að ákærði hafi gerst sekur um þá háttsemi sem honum var gefin að sök í þeim lið ákæru. Var ákærða gert að sæta fangelsi í 60 daga, skilorðsbundið til eins árs, en með brotum sínum rauf ákærði skilorð eldri dóms og var refsingin dæmd upp.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Kamilla Kjerúlf aðstoðarsaksóknari)
gegn
Símoni Ingvari Jósefssyni (
Ólafur Freyr Frímannsson lögmaður)
Ákærði var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot og gert að sæta fangelsi í 4 mánuði. Þar af var refsingu frestað vegna þriggja mánaða til tveggja ára. Auk þess var ákærði sviptur ökurétti ævilangt.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Sonja Wiium saksóknarfulltrúi)
gegn
Aleksas Kartanas (
Leó Daðason lögmaður)
Ákærði, sem játaði sök, var dæmdur til að sæta fangelsi í tólf mánuði, fyrir ýmis brot gegn almennum hegningarlögum, umferðarlögum og lögum um ávana- og fíkniefni, auk greiðslu bóta.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Böðvar Einarsson saksóknarfulltrúi)
gegn
Kjartani Má Einarssyni (
Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður)
Ákærði var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot. Með broti sínu rauf hann skilorð og var ákærða gerð refsing í einu lagi. Einnig var áréttuð ævilöng svipting ökuréttar ákærða.
Héraðssaksóknari (
Friðrik Smári Björgvinsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Eggerti Arnari Magnússyni (
Elísabet Pétursdóttir lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir að óhlýðnast fyrirmælum lögreglumanna og hrækja á lögreglumann
A var sakfelld fyrir eignaspjöll, brot gegn valdstjórninni, vopnalagabrot, brot gegn lögreglulögum og umferðarlagabrot samkvæmt nokkrum ákæruliðum. Við ákvörðun refsingar A var litið til þess að hún hefði gerst sek um fjölmörg afbrot á tæplega átta mánaða tímabili. Skýlaus játning A var virt henni til refsimildunar en á hinn bóginn þótti ekki unnt að horfa fram hjá því að brot hennar væru ítrekuð og bæru vott um einbeittan ásetning sem hefði áhrif til refsihækkunar, sbr. 6. tölulið 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Þá var refsing A ákveðin sem hegningarauki við fyrri dóm. Sá dómur, sem var skilorðsbundinn, var jafnframt tekinn upp og A dæmd refsing í einu lagi. Þá hafði dómurinn ítrekunaráhrif á brot A samkvæmt II. kafla ákæru. Enn fremur var litið til þess að brot A samkvæmt II. kafla ákæru voru framin þegar hún var í gæslu lögreglu. Samkvæmt öllu framangreindu þótti refsing A hæfilega ákveðin fangelsi í 14 mánuði, en fullnustu 11 mánaða af refsingunni var frestað skilorðsbundið í þrjú ár. Þá var henni gert að sæta upptöku á úðavopni og viðurkennd bótaskylda hennar.
AK var sakfelldur fyrir fíkniefnalagabrot með því að hafa haft í vörslum sínum í þrjú tilgreind skipti nánar tilgreint magn af kókaíni, þar af í eitt sinn ætluðu til söludreifingar í ágóðaskyni. Þá var AK sakfelldur fyrir rangar sakargiftir með því að hafa í kjölfar afskipta lögreglu í eitt skiptið skýrt lögreglu rangt frá nafni sínu, hann kvaðst vera A og leitaðist þannig við að A yrði sakaður um fíkniefnalagabrot. Var AK gert að sæta þriggja mánaða fangelsi, sem bundið var skilorði til tveggja ára, upptöku á nánar tilgreindum fíkniefnum, fjórum farsímum og tilgreindum fjármunum.
DA var sakfelldur fyrir kynferðisbrot gegn börnum með því að hafa áreitt A annars vegar og B hins vegar á nánar tilgreindan hátt. Taldist háttsemi hans varða við 2. mgr. 202. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Jafnframt var DA sakfelldur fyrir kynferðisbrot með því að hafa berað kynfæri sín í tvígang á nánar tilgreindan hátt og þannig sýnt af sér ósiðlegt og lostugt athæfi sem hafi verið til þess fallið að særa blygðunarsemi þeirra sem urðu vitni að því og verða til opinbers hneykslis en brotaþolar P og AA urðu vitni að atferli hans. Taldist háttsemi hans varða við 209. gr. almennra hegningarlaga. Með vísan til 1., 2., 6. og 7. töluliða 1. mgr. 70. gr., 60., 77. og 78. gr. almennra hegningarlaga var refsing DA ákveðin fangelsi í tólf mánuði. Þá var honum gert að greiða A 700.000 krónur í miskabætur og P og AA 400.000 krónur hvorri.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Pétur Fannar Gíslason aðstoðarsaksóknari) gegn
Gunnari Róberti Guðjónssyni
Ákærði sakfelldur fyrir fíkniefnalagabrot og dæmdur í 2 ára fangelsi. Með broti sínu var ákærði að rjúfa skilorð fyrri dóms og var það dæmt upp.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Gunnhildur Anna Alfonsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Svani Birki Tryggvasyni (
Jón Bjarni Kristjánsson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir brot á hegningarlögum og umferðarlögum. Dæmdur í 5 mánaða fangelsi og ævilöng svipting ökuréttar áréttuð. Um var að ræða rof á skilorði fyrri dóms og varð það dæmt upp.
Ákærði var fundinn sekur um ítrekaðan akstur undir áhrifum fíkniefna sem og akstur sviptur ökurétti. Með broti sínu hafði ákærði rofið skilorðs eldri dóms og var refsingin dæmd upp. Var ákærða gert að sæta fangelsi í fjóra mánuði, sem skilorðsbundið var að hluta. Þá var ákærði sviptur ökurétti ævilangt og dæmdur til greiðslu sakarkostnaðar.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Anna Guðbjörg Hólm Bjarnadóttir saksóknarfulltrúi) gegn
Svavari Benediktssyni
Ákærði var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot. Var fyrri skilorðsdómur dæmdur upp og ákærði dæmdur í 6 mánaða fangelsi og sviptur ökurétti ævilangt.
Ákærðu sakfelldir fyrir þjófnað en annar þeirra einnig fyrir fíkniefnalagabrot, ítrekaðan akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna og án ökuréttar, nytjastuld og eignaspjöll. Játningarmál.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Íris Þóra Júlíusdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Gefn Geirdal Steinólfsdóttur (
Bjarni Hauksson lögmaður)
Ákærða sakfelld fyrir þjófnað og fíkniefna- og lyfjalagabrot og dæmd í 5 mánaða fangelsi, en fullnustu refsingar frestað skilorðsbundið í tvö ár. Hegningarauki að hluta við fyrri dóm og skilorðsrof að hluta.
Lögreglustjórinn á Suðurlandi (Ólafur Hallgrímsson saksóknarfulltrú) gegn
Alexander Kjartanssyni (enginn)
Ákærði var fundinn sekur um ítrekaðan akstur undir áhrifum fíkniefna, lyfjaakstur og akstur sviptur ökurétti. Var honum gert að sæta fangelsi í 30 daga og honum jafnramt gerð sekt, auk þess sem hann var sviptur ökurétti ævilangt. Með broti sínu hafði ákærði rofið skilorð eldri dóms, en rétt þótti með eins og sérstaklega háttaði til í máli þessu að láta fyrri skilorðsdóm halda sér og gera ákærða refsingu sér í lagi án skilorðs.
Ákærði sakfelldur fyrir akstur undir áhrifum áfengis.
X var ákærður fyrir stórfellt brot í nánu sambandi, nauðgun og hættubrot með því að hafa endurtekið og á alvarlegan hátt ógnað heilsu og velferð þáverandi sambýliskonu sinnar, í sex nánar tilgreind skipti. Í dómi héraðsdóms sem staðfestur var í Landsrétti með vísan til forsendna var X sýknaður af hluta sakargifta en sakfelldur að hluta og sú háttsemi heimfærð til 1. mgr. 218. gr. b almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og 4. mgr. 220. gr. sömu laga. Þá var X sakfelldur fyrir eignaspjöll með því að hafa skemmt hluti í eigu sambýliskonunnar þáverandi. Við ákvörðun refsingar var litið til 1., 3. og 6. töluliðar 1. mgr. 70. gr., 60. gr. og 78. gr. almennra hegningarlaga. Með vísan til 77. gr. laganna var refsing X ákveðin fangelsi í tíu mánuði en fullnustu sjö mánaða frestað skilorðsbundið í tvö ár, vegna dráttar sem orðið hafði á rekstri málsins.
Ákæruvaldið (
Gunnhildur Anna Alfonsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Kjartani Má Einarssyni (
Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður)
Karlmaður var dæmdur í níu mánaða fangelsi, þar af tvo mánuði óskilorðsbundna, fyrir fíkniefnlagabrot í janúar 2022 og umferðarlagabrot í júlí 2023. Með fyrra brotinu rauf ákærði sex mánaða skilorð eldra dóms og var sá dómur því tekinn upp og dæmdur með hinum nýju brotum. Refsing var einnig virt með hliðsjón af reglum um hegningarauka.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Pétur Fannar Gíslason saksóknarfulltrúi) gegn
Andra Lúkasi Lárussyni
Ákærði var sakfelldur fyrir fjársvik og gripdeild. Hegningarauki. Skilorðsrof. Dæmdur í 3 mánaða fangelsi.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kristmundur Stefán Einarsson aðstoðarsaksóknari) gegn
Andrej Bazalij
Ákærði sakfelldur fyrir þjófnað og dæmdur í 5 mánaða fangelsi. Um var að ræða skilorðsrof á dómi frá 17 maí 2024 og var skilorð þess dóms dæmt upp.
Ákæruvaldið (
Sonja Símonardóttir saksóknarfulltrúi)
gegn
Anítu Ósk Haraldsdóttur (
Steinbergur Finnbogason lögmaður)
Rúmlega tvítug kona var dæmd í 14 mánaða fangelsi, þar af þrjá mánuði óskilorðsbundið, fyrir brot gegn valdstjórninni, eignaspjöll á lögreglubifreiðum og bifreiðum einstakra lögreglumanna, auk brota á sérrefsilöggjöf. Með hluta brotanna rauf ákærða skilorð fjögurra mánaða fangelsisdóms sem henni var birtur 3. júní 2024 og var sá dómur tekinn upp og dæmdur með. Viðurkennd var bótaskylda ákærðu vegna skemmda á umræddum bifreiðum, en flestum kröfum um bótafjárhæð vísað frá dómi vegna vanreifunar.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Lína Ágústsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Kristian Hajdéraj (
Helgi Þorsteinsson Silva lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir brot á lögum um ávana- og fíkniefni. Hann játaði brot sitt skýlaust.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Kamilla Kjerúlf saksóknarfulltrúi)
gegn
Pétri Birgi Birgissyni (
Magnús Jónsson lögmaður)
Ákærði var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot. Var honum gert að sæta fangelsi í 1 ár og 1 mánuð og áréttuð var ævilöng svipting ökuréttinda.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Agnes Ýr Stefánsdóttir saksóknarfulltrúi) gegn
Florin Feraru
Ákærði var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot og dæmdur til að sæta fangelsi í 135 daga.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Auðbjörg Lísa Gústafsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn
Ragnari Eyþórssyni
Ákærði var sakfelldur fyrir umferðar- og fíkniefnalagabrot. Var honum gert að sæta fangelsi í 4 mánuði, en þar af voru 3 mánuðir skilorðsbundnir til 2 ára.
Ákæruvaldið (Elín Hrafnsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn
Tomas Montrimas
Ákærða var gerð fangelsisrefsing fyrir þjófnaðarbrot og eignarspjöll. Honum var jafnframt gert að greiða einkaréttarkröfur.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kamilla Kjerúlf saksóknarfulltrúi) gegn
Sölku Láru Guðbjartsdóttur
Ákærða var sakfelld fyrir umferðarlagabrot. Var það brot á fyrri skilorðsdómi og henni gert að sæta fangelsi í 60 daga, þar af 30 daga skilorðsbundna til tveggja ára, ásamt því að vera svipt ökuréttindum ævilangt.
F var sakfelldur fyrir tilraun til manndráps með því að hafa farið grímuklæddur og vopnaður hlaðinni og afsagaðri haglabyssu inn á tilgreindan veitingastað og beint henni í átt að þremur viðskiptavinum og barþjóni, sem voru við barborð staðarins, og án viðvörunar og fyrirvaralaust hleypt af einu skoti þannig að höglin höfnuðu í innréttingu staðarins og áfengisflöskum, rétt ofan og til hliðar við fólkið, með þeim afleiðingum að flöskurnar splundruðust og glerbrotum rigndi yfir þau. Þá voru F og A sakfelldir fyrir að hafa í félagi svipt E frelsi sínu, í um fimm klukkustundir, á heimili E, og beitt hann ofbeldi og hótunum í því skyni að ná frá honum verðmætum, en þeir bundu E á höndum og fótum við rúm hans, þar sem F hótaði honum lífláti og annars konar ofbeldi og neyddi hann þannig til að gefa upp lykilorð að farsíma og heimabanka, meðan A safnaði saman tilgreindu lausafé í eigu E sem þeir báru í sameiningu út í bifreið og hurfu á braut og skildu E eftir bundinn, allt með þeim afleiðingum að E varð fyrir líkamstjóni. F var jafnframt sakfelldur fyrir nauðgun og annars konar kynferðisbrot með því að hafa í framangreint sinn þar sem E lá bundinn í rúminu haft við hann önnur kynferðismök með nánar tilgreindum hætti og á sama tíma tekið athæfið upp á farsíma og hótað dreifingu þess ef hann leitaði til lögreglu. Loks var A sakfelldur fyrir margvísleg umferðarlagabrot, brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni og tilgreint þjófnaðarbrot. Við ákvörðun refsingar F og A var höfð hliðsjón af 1., 2. og 3. tölulið 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og samverknaðar þeirra við hluta brotanna, sbr. 2. mgr. sömu lagagreinar. Var þeim jafnframt gerður hegningarauki, sbr. 1. mgr. 78. gr. sömu laga. Loks voru eldri skilorðsdómar teknir upp og þeim gerð refsing í einu lagi sbr. 60. gr. og 1. mgr. 77. gr. sömu laga. Jafnframt var vísað til þess að kynferðisbrot F gegn E hefði verið framið á sérstaklega sársaukafullan og meiðandi hátt, sbr. c-lið 195. gr. sömu laga. Refsing F var ákveðin fangelsi í 10 ár og A fangelsi í þrjú ár. Var þeim jafnframt gert að greiða brotaþolum skaða- og miskabætur.
Lögreglustjórinn á Suðurlandi (Ólafur Hallgrímsson fulltrúi) gegn
X (sjálfur)
Ákærði var fundinns ekur um ítrekaðan akstur undir áhrifum fíkniefna, sem og ítrekaðan akstur sviptur ökurétti, auk skjalabrots og fíkniefnalagabrots. Með brotum sínum rauf ákærði skilorð eldri dóms er var dæmt upp. Var ákærða gert að sæta fangelsi í sjö mánuði og hann jafnframt sviptur ökurétti ævilangt. Aftur á móti var ekki fallist á að ákærði hefði með háttsemi sinni gerst sekur um brot gegn barnaverndarlögum.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Gunnhildur Anna Alfonsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Gauti Inga Ingimarssyni (
Gísli M. Auðbergsson lögmaður)
Ákærði dæmdur til refsingar, 4 mánaða óskilorðsbundið fangelsi og ævilöng svipting ökuréttar, fyrir umferðar- og fíkniefnalagabrot í fjórum liðum. Sýknað fyrir brot gegn hegningarlögum í tveimur liðum.
Sakfellt og dæmd skilorðsbundin refsing og fallist á upptökukröfur vegna fíkniefnalagabrota og vopnalagabrots.