SK, BÞS, SBS og AX voru ákærðir fyrir skipulagða brotastarfsemi og stórfellt fíkniefnalagabrot, sbr. 173. gr. a og 175. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940, með því að hafa staðið saman að innflutningi á 5.733,60 g af metamfetamín kristöllum með 81% styrkleika í metamfetamínbasa sem samsvaraði 100% af amfetamínklóríði, ætluðu til söludreifingar hér á landi. Voru efnin falin í bifreið sem flutt var inn til landsins. Við komu til landsins voru efnin fjarlægð og gerviefni sett í þeirra stað áður en ákærðu var afhent bifreiðin. X var gefin að sök hlutdeild í tilraun til stórfellds fíkniefnalagabrots með því að hafa 24. október 2024 sótt bifreiðina ásamt SBS og BÞS, vitandi að fíkniefni væru í bifreiðinni, og þannig veitt þeim liðsinni með stuðningi og hvatningu. Þá var ERR sökuð um hlutdeild í tilraun til stórfellds fíkniefnalagabrots með því að hafa 25. október 2024 aðstoðað SK og AX við að fjarlægja fíkniefnin úr bifreiðinni. Voru ætluð brot X og ERR talin varða við 173. gr. a almennra hegningarlaga, sbr. 20. og 22. gr. sömu laga. Með dómi héraðsdóms voru SK, BÞS, SBS og AX sakfelldir fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot en sýknaðir af þeim hluta ákæru er laut að skipulagðri brotastarfsemi. Þá var ERR sakfelld samkvæmt ákæru en X var sýknaður af kröfum ákæruvaldsins. Fyrir Landsrétti voru SK, BÞS, SBS og AX allir sakfelldir fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot. Sömuleiðis var staðfest niðurstaða héraðsdóms um sakfellingu ERR samkvæmt ákæru. Landsréttur féllst á það með héraðsdómi að ekki yrði talið að X hefði á nokkurn hátt átt þátt í því að brotið var framið, enda hafi það að stærstum hluta verið yfirstaðið þegar tilgreind samtöl áttu sér stað. Ekki væri hægt að ljá neitt í háttsemi eða orðum X slíkt vægi að það hafi styrkt áform BÞS og SBS. X hafi auk þess á þessum tíma verið umkomulaus, búið með samþykki BÞS og SBS í bifreið þeirra og ekki átt í önnur hús að venda. Yrði ekki gerð sú krafa að X við þær aðstæður yfirgæfi bifreiðina þótt hugsanlega hafi grunur vaknað með honum að í hinni innfluttu bifreið væru fíkniefni. Var niðurstaða héraðsdóms um sýknu X staðfest. Þá tók Landsréttur til skoðunar hvort háttsemi SK, BÞS, SBS og AX teldist vera skipulögð brotastarfsemi. Rétturinn taldi að ákæruvaldið hefði hvorki leitt sönnur, svo hafið væri yfir skynsamlegan vafa, að tilvist skipulagðra brotasamtaka í tilfelli ákærðu né að þeir hafi haft ásetning til að fremja brot sem lið í starfsemi skipulagðra brotasamtaka í skilningi 175. gr. a almennra hegningarlaga. Voru SK, BÞS, SBS og AX því sýknaðir af ákæru fyrir brot gegn því ákvæði. Við ákvörðun refsingar var litið til þess að um var að ræða samverknað SK, BÞS, SBS og AX með verkskiptri aðild þar sem þáttur hvers og eins var mismikill. Þá var litið til þess að ásetningur þeirra og ERR hafi verið einbeittur. Enn fremur var litið til þess að um var að ræða mikið magn hættulegra fíkniefna og veruleg hætta á að þau færu í sölu og dreifingu til ótiltekins fjölda manna hér á landi. Við refsingu þeirra var því litið til 1., 3., 5., 6. og 8. töluliðar 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga og einnig 2. mgr. 70. gr. sömu laga varðandi SK, BÞS, SBS og AX. Einnig var litið til sakaferils SK og BÞS við ákvörðun refsingar þeirra. Var SK gert að sæta fangelsi í átta ár, BÞS í fjögur ár, SBS í þrjú og hálft ár, AX í fimm og hálft ár og ERR skilorðsbundið í 10 mánuði. Loks voru fíkniefnin og tilgreindir munir gerð upptæk..
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Karen Lárusdóttir saksóknarfulltrúi)
gegn
Helga Kristóferssyni (
Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Ákærði var sakfelldur fyrir þjófnað. Voru brot hans rof á reynslulausn og gert að sæta fangelsi í 9 mánuði.
Ákærði sakfelldur fyrir tilraun til manndráps og dæmdur í fimm og hálfs árs fangelsi. Þá var ákærða gert að greiða miskabætur og bótaskylda ákærða vegna líkamstjóns viðurkennd.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Sonja Wiium saksóknarfulltrúi)
gegn
X (
Þorgils Þorgilsson lögmaður)
Staðfestur var úrskurður héraðsdóms um að X skyldi gert að afplána eftirstöðvar fangelsisrefsingar á grundvelli 2. mgr. 82. gr. laga nr. 15/2016 um fullnustu refsingar.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Elín Hrafnsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn
Agnari Kristni Hermannssyni
Ákærði var sakfelldur fyrir umferðar- og fíkniefnalagabrot. Var reynslulausn dæmd upp og honum gert að sæta fangelsi í 39 mánuði ásamt því að áréttuð var ævilöng svipting ökuréttar ákærða.
K var í héraði sakfelldur fyrir umferðarlagabrot með því að hafa tvívegis ekið bifreið sviptur ökurétti. Með brotunum rauf K skilyrði reynslulausnar og var honum gerð refsing í einu lagi, sbr. 1. mgr. 82. gr. laga um fullnustu refsinga nr. 15/2016, sbr. 60. og 77. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, og var K gert að sæta 32 mánaða fangelsi. Fyrir Landsrétt lagði K fram ný gögn um breytta hagi hans til hins betra. Í ljósi sakarefnis málsins og dómvenju taldi Landsréttur ekki efni til annars en að staðfesta hinn áfrýjaða dóm. Var þá meðal annars litið til þess að samkvæmt dómvenju væri ekki gerður greinarmunur á akstri undir áhrifum áfengis eða vímuefna og akstri án ökuréttinda.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Haukur Gunnarsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
X (
Jón Bjarni Kristjánsson lögmaður)
Staðfestur var úrskurður héraðsdóms um að X skyldi gert að afplána eftirstöðvar fangelsisrefsingar á grundvelli 2. mgr. 82. gr. laga nr. 15/2016 um fullnustu refsingar.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Gunnhildur Anna Alfonsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
X (
Ingi Freyr Ágústsson lögmaður)
Staðfestur var úrskurður héraðsdóms um að X skyldi gert að afplána eftirstöðvar fangelsisrefsingar á grundvelli 2. mgr. 82. gr. laga nr. 15/2016 um fullnustu refsinga.
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum (
Kristín Una Pétursdóttir saksóknarfulltrúi)
gegn
X (
Snorri Sturluson lögmaður)
Felldur var úr gildi úrskurður héraðsdóms þar sem varnaraðila var gert að sæta afplánun á 190 daga eftirstöðvum refsingar samkvæmt dómum Landsréttar, sem honum var veitt reynslulausn á í tvö ár með ákvörðun Fangelsismálastofnunar.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Árni Bergur Sigurðsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
X (
Svavar Daðason lögmaður)
Staðfestur var úrskurður héraðsdóms um að X skyldi gert að afplána eftirstöðvar fangelsisrefsingar á grundvelli 2. mgr. 82. laga nr. 15/2016 um fullnustu refsingar.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Kamilla Kjerúlf saksóknarfulltrúi)
gegn
Ólafi Hauki Atlasyni (
Sunna Axelsdóttir lögmaður)
Ákærði var sakfelldur fyrir umferðarlagarot. Voru eftirstöðvar reynslulausnar dæmdar upp og ákærða gert að sæta fangelsi í 3 ár og 10 mánuði ásamt því að áréttuð var ævilöng svipting ökuréttinda ákærða.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Kamilla Kjerúlf saksóknarfulltrúi)
gegn
Arnari Val Valssyni (
Þórður Már Jónsson lögmaður)
Maður sakfelldur fyrir vörslu fíkniefna og fyrir akstur sviptur ökurétti og undir áhrifum ávana- og fíkniefna.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Gunnhildur Anna Alfonsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
X (
Leó Daðason lögmaður)
Staðfestur var úrskurður héraðsdóms um að X skyldi gert að afplána eftirstöðvar fangelsisrefsingar á grundvelli 2. mgr. 82. gr. laga nr. 15/2016 um fullnustu refsinga.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Kamilla Kjerúlf saksóknarfulltrúi)
gegn
Ásgeiri Hrafni Ólafssyni (
Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður)
Ákærði var sakfelldur fyrir þjófnað, fíkniefna- og vopnalagabrot og umferðarlagabrot. Brot ákærða voru rof á skilyrði reynslulausnar fyrri dóms og voru eftirstöðvar refsingar dæmdar upp. Var ákærða gert að sæta fangelsi í 2 ár og 8 mánuði, áréttuð var ævilöng svipting ökuréttinda ákærða ásamt því að honum var gert að sæta upptöku á fíkniefnum og vopni.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Elín Hrafnsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
X (
Þorgils Þorgilsson lögmaður)
Staðfestur var úrskurður héraðsdóms um að X skyldi gert að afplána eftirstöðvar fangelsisrefsingar á grundvelli 2. mgr. 82. gr. laga nr. 15/2016, um fullnustu refsingar.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Kamilla Kjerúlf saksóknarfulltrúi)
gegn
Agnari Hólm Jóhannessyni (
Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Ákærði var sakfelldur fyrir umferðar-, vopna- og fíkniefnalagabrot og rauf með því reynslulausn. Eftirstöðvar dæmdar upp og ákærði dæmdur í 20 mánaða fangelsi, auk þess sem ævilöng svipting ökuréttar var áréttuð.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Kamilla Kjerúlf saksóknarfulltrúi)
gegn
Símoni Smára Sigurðssyni (
Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Ákærði var fundinn sekur um akstur sviptur ökurétti. Með brotum sínum rauf hann reynslulausn og var hún dæmd upp. Var ákærða gert að sæta fangelsi í 3 ár.
Málið nr. S-42/2024 Ákæruvaldið (
Kamilla Kjerúlf saksóknarfulltrúi)
gegn
Kristni Magnússyni (
Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður)
Ákærði var sakfelldur fyrir að hafa tvívegis ekið bifreið sviptur ökurétti. Með dóminum var ákærði þannig í áttunda skipti sakfelldur fyrir sviptingarakstur og hefði að öllu jöfnu borið níu mánaða fangelsisrefsing. Með brotunum rauf ákærði hins vegar skilorðsbundna reynsulausn á 700 daga eftirstöðvum refsinga samkvæmt eldri dómum og var hann því dæmdur í 32 mánaða fangelsi.
Málið nr. S-1045/2024 Ákæruvaldið (
Ásmundur Jónsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Stefáni Ólafi Eyjólfssyni (
Snorri Sturluson lögmaður)
Karlmaður á sextugsaldri var sakfelldur fyrir vörslur á 99,41 grammi af amfetamíni ætluðu til söludreifingar í ágóðaskyni. Þótt brotið væri í sjálfu sér ekki stórfellt á maðurinn að baki langan sakaferil og rauf með brotinu reynslulausn á 286 daga eftirstöðvum óafplánaðra refsinga. Var sú refsing því tekin upp, dæmd með nýja brotinu og þótti refsing ákærða þannig hæfilega ákveðin 12 mánaða fangelsi.
Staðfestur var úrskurður héraðsdóms um að X skyldi gert að afplána eftirstöðvar fangelsisrefsingar á grundvelli 2. mgr. 82. gr. laga nr. 15/2016 um fullnustu refsinga.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Hildur Sunna Pálmadóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
X (
Leifur Runólfsson lögmaður)
Staðfestur var úrskurður héraðsdóms um að X skyldi gert að afplána eftirstöðvar fangelsisrefsingar á grundvelli 2. mgr. 82. gr. laga nr. 15/2016 um fullnustu refsinga.
I var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot og nytjastuld með því að hafa tvívegis tekið bifreið í heimildarleysi, sviptur ökurétti og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna. Við ákvörðun refsingar var vísað til þess að með dómi þessum væri I nú sakfelldur í sjötta sinn fyrir akstur undir áhrifum fíkniefna og í fjórða skipti sviptur ökurétti. Var jafnframt litið til þess að hann væri nú jafnframt sakfelldur fyrir nytjastuld. Með brotunum rauf I skilyrði reynslulausnar og var honum gerð refsing í einu lagi, sbr. 1. mgr. 82. gr. laga nr. 15/2016 um fullnustu refsinga, sbr. 60. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Horft var til þess að I hefði játað brot sín greiðlega og hefði jafnframt lagt fram gögn á báðum dómstigum sem bæru vott um viðleitni hans til að bæta ráð sitt og ná tökum á fíkn sinni. Að þessu virtu og að teknu tilliti til dómaframkvæmdar var refsing I ákveðin fangelsi í 12 mánuði. Loks var áréttuð ævilöng ökuréttarsvipting hans.
R var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot með því að hafa ekið bifreið sviptur ökurétti og undir áhrifum ávana- og fíkniefna og slævandi lyfja. Með brotunum rauf R skilyrði reynslulausnar og var honum gerð refsing í einu lagi, sbr. 1. mgr. 82. gr. laga nr. 15/2016 um fullnustu refsinga. Að virtum sakaferli R og með vísan til dómvenju var refsing hans ákveðin fangelsi í fjögur ár og tvo mánuði. Þá var áréttuð ævilöng ökuréttarsvipting hans.
Með dómi héraðsdóms var G sakfelldur fyrir umferðarlagabrot með því að hafa ekið bifreið sviptur ökurétti og undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Með brotunum rauf G skilyrði reynslulausnar og var hún tekin upp með vísan til 1. mgr. 82. gr. laga um fullnustu refsinga nr. 15/2016, sbr. 60. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og honum gerð refsing í einu lagi fyrir brotin, sbr. 77. gr. sömu laga. Með vísan til sakaferils G var refsing hans ákveðin fangelsi í 17 mánuði auk þess sem hann var sviptur ökurétti ævilangt. Með dómi Landsréttar 23. mars 2018 var héraðsdómur staðfestur. Dómur Landsréttar var staðfestur með dómi Hæstaréttar 24. maí sama ár. Með úrskurði Endurupptökudóms 31. mars 2022 var hæstaréttarmálið endurupptekið að beiðni G. Með nýjum dómi Hæstaréttar í málinu 7. desember 2022 var dómur Landsréttar 23. mars 2018 ómerktur og málinu vísað til Landsréttar til löglegrar meðferðar og dómsálagningar á ný. Við hina endurteknu málsmeðferð var niðurstaða héraðsdóms staðfest um sakfellingu G. Við ákvörðun refsingar G vísaði Landsréttur til þess dráttar sem orðið hefði á meðferð málsins sem G yrði ekki um kennt. Þá var litið til þess að G hefði eftir uppkvaðningu hins áfrýjaða dóms margsinnis verið dæmdur fyrir ölvunarakstur og sviptur ökurétti þar sem við ákvörðun refsingar hefði verið tekið tillit til ítrekunaráhrifa hins áfrýjaða dóms. Loks var litið til breytinga sem orðið höfðu á högum G. Var refsing G ákveðin fangelsi í 12 mánuði, en fullnustu hennar frestað skilorðsbundið í eitt ár. Þá var G sviptur ökurétti ævilangt.
X var ákærður fyrir manndráp með því að hafa stungið Y tvívegis í vinstri síðu. Ákærði bar fyrir sig neyðarvörn og krafðist sýknu. Þrátt fyrir neitun ákærða var talið sannað að hann hafi stungið Y af ásetningi og veitt honum með því banvænan áverka. Féllst dómurinn á að Y hafi í upphafi ráðist á ákærða með hníf og stungið hann í kinn og framanvert læri. Við þær aðstæður hafi ákærða verið nauðsynlegt að verjast. Skýringar ákærða á áverkum Y stæðust hins vegar ekki og augljóst væri að hann hefði ekki skýrt rétt frá framvindu átakanna. Í frásögn hans af atvikum vantaði tiltekna mikilvæga hluta. Gögn bæru með sér að hann hefði náð yfirhöndinni í átökunum og beitt hníf gagnvart vopnlausum manni. Þótti ákærði ekki hafa sýnt fram á að skilyrði neyðarvarnar hefðu verið til staðar á verknaðarstundu. Þá var ekki fallist á að ákærði gæti borið fyrir sig að hann hefði farið út fyrir takmörk leyfilegrar neyðarvarnar, sbr. 2. mgr. 12. gr. og 1. tl. 1. mgr. 74. gr. almennra hegningarlaga. Hinsvegar þótti sýnt að ákærði sætti ólögmætri og hættulegri árás af hálfu brotaþola áður en hann framdi brot sitt og mætti því líta til þess að hann hafi framið verkið í mikilli reiði eða geðæsingu af þeim sökum. Þá var ákærði einnig sakfelldur fyrir að hafa ekið sviptur ökuréttindum. Loks hafi ákærði með broti sínu rofið skilorð reynslulausnar úr fangelsi. Var refsing ákærða ákveðin fangelsi í 8 ár. Þá var honum gert að greiða börnum hins látna miska- og skaðabætur.
Ákæruvaldið (
Marín Ólafsdóttir saksóknari)
gegn
Sigurði Huldari Rúnarssyni (
Björgvin Jónsson lögmaður)
S var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot með því að hafa ekið bifreið sviptur ökurétti og undir áhrifum ávana- og fíkniefna og slævandi lyfja. Með brotunum rauf S skilyrði reynslulausnar og var honum gerð refsing í einu lagi, sbr. 1. mgr. 82. gr. laga nr. 15/2016 um fullnustu refsinga, sbr. 60. og 77. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Að virtum sakaferli S og með vísan til dómvenju var refsing hans ákveðin fangelsi í 15 mánuði. Þá var áréttuð ævilöng ökuréttarsvipting hans.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kamilla Kjerúlf saksóknarfulltrúi) gegn
Arnis Simanovs
Ákærði var sakfelldur fyrir brot gegn umferðarlögum. Braut hann gegn reynslulausn og voru eftirstöðvar dæmdar upp.
Stefnandi var dæmd í átta ára óskilorðsbundið fangelsi í ársbyrjun 2016. Með ákvörðun Útlendingastofnunar var stefnanda vísað úr landi og gert að sæta endurkomubanni. Stefnandi kærði þá ákvörðun til kærunefndar áfrýjunarmála sem felldi ákvörðun Útlendingastofnunar úr gildi. Útlendingastofnun tók ákvörðun að nýju um brottvísun og endurkomubann. Stefnanda var veitt heimild til að afplána hluta refsingarinnar undir rafrænu eftirliti að liðnum helmingi refsitímans, sem fól í sér undantekningu frá þeirri meginreglu að reynslulausn sé ekki veitt fyrr en tveir þriðju hlutar refsitímans séu liðnir. Kærunefnd felldi síðari ákvörðun Útlendingastofnunar einnig úr gildi. Í framhaldi af því afturkallaði Fangelsismálastofnun heimild til afplánunar undir rafrænu eftirliti þar sem hún hafi byggst á ákvörðun Útlendingastofnunar um að stefnanda yrði vísað úr landi. Stefnandi mótmælti þeirri afturköllun og krafðist þessa að viðurkenndur yrði rétturinn hennar til skaðabóta vegna þessa. Skaðabótakröfunni var hafnað m.a. með vísan til þess að ákvörðun um að veita stefnanda heimild til þess að afplána hluta refsingarinnar undir rafrænu eftirliti að liðnum helmingi af refsitíma byggðist á þeirri lagalegu forsendu sem fram kemur í 2. málslið 3. mgr. 80. gr. laga nr. 15/2016, að fyrir lægi ákvörðun Útlendingastofnunar um brottvísun stefnanda úr landi að lokinn afplánun.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Kamilla Kjerúlf saksóknarfulltrúi)
gegn
X (
Páll Kristjánsson lögmaður)
Staðfestur var úrskurður héraðsdóms um að X skyldi gert að afplána eftirstöðvar fangelsisrefsingar á grundvelli 2. mgr. 82. gr. laga nr. 15/2016, um fullnustu refsingar.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Elín Hrafnsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
X (
Leifur Runólfsson lögmaður)
Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem X var gert að sæta afplánun eftirstöðvar fangelsisrefsingar á grundvelli 2. mgr. 82. gr. laga nr. 15/2016 um fullnustu refsinga.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Kristín Einarsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Andra Þór Haraldssyni (
Karólína Finnbjörnsdóttir lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir þjófnaði og dæmdur í 10 mánaða fangelsi. Með brotum sínum rauf hann skilorð reynslulausnar og voru eftirstöðvar refsingar dæmdar upp og refsing ákveðin í einu lagi.
Ákæruvaldið (
Kamilla Kjerúlf saksóknarfulltrúi)
gegn
Gylfa Þór Héðinssyni (
Jón Egilsson lögmaður)
Ákærði var sakfelldur fyrir að hafa tvívegis ekið bifreið sviptur ökurétti. Með hliðsjón af löngum sakaferli þótti ákærði með þeim brotum hafa unnið til 9 mánaða fangelsisrefsingar.Með fyrra brotinu rauf ákærði jafnframt skilorð reynslulausnar á 442 daga óafplánuðum refsingum samkvæmt eldri dómum. Voru þær refsingar því teknar upp og dæmdar með hinum nýju brotum og ákærða gerð 23 mánaða fangelsisrefsing.
Staðfestur var úrskurður héraðsdóms um að X skyldi gert að afplána eftirstöðvar fangelsisrefsingar á grundvelli 2. mgr. 82. gr. laga nr. 15/2016, um fullnustu refsingar.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Agnes Ýr Stefánsdóttir saksóknarfulltrúi) gegn
Jóni Hirti Jónssyni
Ákærði var sakfelldur fyrir akstur sviptur ökurétti. Með brotunum hafði ákærði rofið skilorð reynslulausnar og var hann dæmdur til þess að sæta fangelsi í eitt ár.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kamilla Kjerúlf saksóknarfulltrúi) gegn
Elís Aroni Valgarðssyni
Ákærði sakfelldur fyrir akstur sviptur ökurétti, sem og akstur undir áhrifum vímuefna og slævandi lyfja. Ákærða gert að sæta fangelsi í 1 ár og 7 mánuði. Ævilöng svipting ökuréttar ákærða áréttuð.
Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra (Eyþór Þorbergsson aðstoðarsaksóknari) gegn
Ara Rúnarssyni (Enginn)
Ákærði sakfelldur fyrir þjófnað á heyrnartólum úr verslun. Með brotinu rauf ákærði skilorð reynslulausnar á 160 daga eftirstöðvum fangelsisrefsingar. Var ákærði dæmdur til óskilorðsbundins fangelsins í 6 mánuði og 15 daga.
Ákæruvaldið (Kamilla Kjerúlf saksóknarfulltrúi) gegn
Garðari Garðarssyni
Ákærði var sakfelldur fyrir akstur sviptur ökurétti og undir áhrifum áfengis. Með fyrra brotinu rauf ákærði skilyrði reynslulausnar sem honum var veitt í Danmörku og var refsing því ákveðin í einu lagi fyrir þau brot sem hann var nú sakfelldur fyrir og með hliðsjón af óafplánuðu fangelsisrefsingunni Ákærði var dæmdur til 9 mánaða fangelsisvistar, hann sviptur ökurétti ævilangt og gert að greiða 26.000 krónur í sakarkostnað.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Júlí Karlsson saksóknarfulltrúi)
gegn
Guðmundi Víði Gíslasyni (
Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir þjófnað og umferðarlagabrot, þá var einnig um að ræða rof á skilyrðum reynslulausnar og refsing samkvæmt henni dæmd upp. Dæmdur í 12 mánaða fangelsi og sviptur ökurétti tímabundið.
Málið nr. S-2396/2022 Ákæruvaldið (
Kamilla Kjerúlf saksóknarfulltrúi)
gegn
Ragnari Guðmundi Ragnarssyni (
Þuríður B. Sigurjónsdóttir lögmaður)
Ákærði var dæmdur í tveggja ára og níu mánaða fangelsi fyrir endurtekinn akstur bifreiða sviptur ökurétti og undir áhrifum ávana- og fíkniefna, auk eins vopnalagabrots. Með brotunum rauf ákærði reynslulausn á óafplánuðum 355 daga eftirstöðvum fangelsisrefsinga samkvæmt eldri dómum og var sú refsing tekin upp og dæmd með hinu nýja máli. Ákærði var jafnframt sviptur ökurétti ævilangt.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Elín Hrafnsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn
Helga Kristóferssyni
Ákærði sakfelldur fyrir ítrekuð þjófnaðarbrot, en með brotunum rauf hann skilorð reynslulausnar, og var gert að sæta fangelsi í 6 mánuði.
Með dómi Landsréttar 23. mars 2018 í máli nr. 6/2018 var X sakfelldur fyrir umferðarlagabrot með því að hafa ekið bifreið sviptur ökurétti og undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Með dómi Hæstaréttar 24. maí 2018 í máli nr. 10/2018 var dómur Landsréttar staðfestur. Fyrir Hæstarétti krafðist X aðallega ómerkingar hins áfrýjaða dóms en til vara sýknu af kröfum ákæruvaldsins á þeim grundvelli að skipun eins dómara sem sat í dómi í málinu fyrir Landsrétti hefði ekki verið í samræmi við lög, svo sem áskilið væri í 59. gr. stjórnarskrárinnar og 2. málslið 1. mgr. 6. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Hefði þetta leitt til þess að fyrir Landsrétti hefði X ekki notið réttlátrar málsmeðferðar fyrir óháðum og óhlutdrægum dómstóli, eins og honum væri tryggður réttur til í 1. mgr. 70. gr. stjórnarskrárinnar, sbr. 1. málslið 1. mgr. 6. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Hæstiréttur taldi að ekki hefði verið næg ástæða til að draga á réttmætan hátt í efa að X hefði, þrátt fyrir annmarka á málsmeðferð dómsmálaráðherra, fengið notið í Landsrétti réttlátrar meðferðar máls síns fyrir óháðum og óhlutdrægum dómendum. Endurupptökudómur féllst á beiðni ákærða um endurupptöku málsins. Vísað var til þess að Mannréttindadómstóll Evrópu hefði 1. desember 2020 komist að þeirri niðurstöðu að íslenska ríkið hefði brotið gegn 1. mgr. 6. gr. mannréttindasáttmálans að því er varðaði rétt X til málsmeðferðar fyrir dómstóli sem skipaður væri að lögum. Ákærði og ákæruvaldið kröfðust þess aðallega að dómur Landsréttar yrði ómerktur og málinu vísað aftur til Landsréttar til réttrar og löglegrar meðferðar og dómsálagningar að nýju. Í ljósi framangreinds var dómur Landsréttar því ómerktur og málinu vísað til Landsréttar til löglegrar meðferðar og dómsálagningar að nýju.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Lína Ágústsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
X (
Þorgils Þorgilsson lögmaður)
Felldur var úr gildi úrskurður héraðsdóms um að X skyldi gert að afplána eftirstöðvar fangelsisrefsingar á grundvelli 2. mgr. 82. gr. laga nr. 15/2016, um fullnustu refsingar.
Íslenska ríkið var sýknað af kröfum stefnanda um ógildingu úrskurðar dómsmálaráðuneytisins um að synja stefnanda um reynslulausn að loknum helmingi refsitímans.
Málið nr. S-630/2022 Ákæruvaldið (
Árni Bergur Sigurðsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
X (
Steinbergur Finnbogason lögmaður)
Ákærði var sakfelldur fyrir akstur bifreiðar sviptur ökurétti. Sakarneitun ákærða fyrir dómi var ekki studd framburði vitna en tveir lögreglumenn báru fyrir dómi að þeir hafi séð ákærða aka umræddri bifreið, veitt henni eftirför, stöðvað akstur bifreiðarinnar fyrir utan heimili ákærða, hann þá setið í ökumannssæti og drepið á aflvél bifreiðarinnar að boði lögreglumannanna. Með brotinu rauf ákærði skilyrði reynslulausnar og voru því eftirstöðvar eldri refsinga teknar upp og dæmdar með í málinu. Sökum þessa var ákærði dæmdur í fangelsi þrjú ár og fimm mánuði.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Árni Bergur Sigurðsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Grzegorz Rokuszewski (
Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir umferðar- og fíkniefnalagabrot, en með brotunum rauf hann skilorð reynslulausnar, og var gert að sæta fangelsi í 11 mánuði. Ævilöng svipting ökuréttar áréttuð.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Júlí Karlsson aðstoðarsaksóknari) gegn
Agnari Kristni Hermannssyni
Ákærði sakfelldur fyrir umferðar- og fíkniefnalagabrot, en með brotunum rauf hann skilyrði reynslulausnar, og var gert að sæta fangelsi í 2 ár og 7 mánuði.
Héraðssaksóknari (
Arnþrúður Þórarinsdóttir saksóknari)
gegn
X (
Þorgils Þorgilsson lögmaður)
Staðfestur var úrskurður héraðsdóms um að X skyldi gert að afplána eftirstöðvar fangelsisrefsingar á grundvelli 2. mgr. 82. gr. laga nr. 15/2016 um fullnustu refsinga.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Gyða Ragnheiður Stefánsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
X (
Sigrún Ásta Brynjarsdóttir lögmaður)
Staðfestur var úrskurður héraðsdóms um að X skyldi gert að afplána eftirstöðvar fangelsisrefsingar á grundvelli 2. mgr. 82. gr. laga nr. 15/2016 um fullnustu refsinga.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Elín Hrafnsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Hlyni Frey Gíslasyni (
Snorri Sturluson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir umferðar- og fíkniefnalagabrot.
Ákæruvaldið (
Gyða Ragnheiður Stefánsdóttir saksóknarfulltrúi)
gegn
Oliver Kristjánssyni (
Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Sakfellt fyrir vörslur fíkniefna og eignaspjöll. Rof á skilyrðum reynslulausnar vegna eldri dóma og eftirstöðvar refsingar dæmdar upp.