Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
4 dómar fundust
Lykilorð: Endurupptökudómur
Með dómi Landsréttar 23. mars 2018 í máli nr. 6/2018 var X sakfelldur fyrir umferðarlagabrot með því að hafa ekið bifreið sviptur ökurétti og undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Með dómi Hæstaréttar 24. maí 2018 í máli nr. 10/2018 var dómur Landsréttar staðfestur. Fyrir Hæstarétti krafðist X aðallega ómerkingar hins áfrýjaða dóms en til vara sýknu af kröfum ákæruvaldsins á þeim grundvelli að skipun eins dómara sem sat í dómi í málinu fyrir Landsrétti hefði ekki verið í samræmi við lög, svo sem áskilið væri í 59. gr. stjórnarskrárinnar og 2. málslið 1. mgr. 6. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Hefði þetta leitt til þess að fyrir Landsrétti hefði X ekki notið réttlátrar málsmeðferðar fyrir óháðum og óhlutdrægum dómstóli, eins og honum væri tryggður réttur til í 1. mgr. 70. gr. stjórnarskrárinnar, sbr. 1. málslið 1. mgr. 6. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Hæstiréttur taldi að ekki hefði verið næg ástæða til að draga á réttmætan hátt í efa að X hefði, þrátt fyrir annmarka á málsmeðferð dómsmálaráðherra, fengið notið í Landsrétti réttlátrar meðferðar máls síns fyrir óháðum og óhlutdrægum dómendum. Endurupptökudómur féllst á beiðni ákærða um endurupptöku málsins. Vísað var til þess að Mannréttindadómstóll Evrópu hefði 1. desember 2020 komist að þeirri niðurstöðu að íslenska ríkið hefði brotið gegn 1. mgr. 6. gr. mannréttindasáttmálans að því er varðaði rétt X til málsmeðferðar fyrir dómstóli sem skipaður væri að lögum. Ákærði og ákæruvaldið kröfðust þess aðallega að dómur Landsréttar yrði ómerktur og málinu vísað aftur til Landsréttar til réttrar og löglegrar meðferðar og dómsálagningar að nýju. Í ljósi framangreinds var dómur Landsréttar því ómerktur og málinu vísað til Landsréttar til löglegrar meðferðar og dómsálagningar að nýju.
Með dómi Hæstaréttar 28. apríl 2016 í máli nr. 74/2015 höfðu X, Y og Z verið sakfelld fyrir ýmsa háttsemi í starfsemi A ehf. Með úrskurðum Endurupptökudóms 30. desember 2021 var fallist á beiðni þeirra um endurupptöku málsins. Í dómi Hæstaréttar kom fram að ákæruvaldið tæki undir kröfu X, Y og Z um að vísa málinu frá Hæstarétti. Að gættri þeirri kröfugerð yrði í ljósi málsatvika og dóms Hæstaréttar í máli nr. 7/2022 að vísa málinu frá réttinum.
Ákæruvaldið (
Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari)
gegn
Jóni Ásgeiri Jóhannessyni og Tryggva Jónssyni (
Gestur Jónsson lögmaður)
Með dómi Hæstaréttar 7. febrúar 2013 í máli nr. 74/2012 voru J og T sakfelldir fyrir meiri háttar brot gegn skattalögum, sem þeir frömdu í eigin nafni og sem stjórnendur B hf. Endurupptökudómur féllst á beiðni J og T um endurupptöku málsins. Vísað var til þess að Mannréttindadómstóll Evrópu hefði 18. maí 2017 komist að þeirri niðurstöðu að með framangreindum dómi Hæstaréttar hefði verið brotið gegn rétti J og T samkvæmt 4. gr. 7. viðauka við mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Ákærðu og ákæruvaldið kröfðust þess að vísað yrði frá dómi sakargiftum samkvæmt I. og II. kafla ákæru, en ágreiningur aðila laut að ákvörðun refsingar vegna 1. og 2. tölul. III. kafla ákæru. Í dómi Hæstaréttar kom fram að í ljósi málsatvika og með hliðsjón af dómum Hæstaréttar væri málinu vísað frá héraðsdómi er varðaði sakargiftir samkvæmt I. og II. kafla ákæru. Þá kom fram að með hliðsjón af brotum J samkvæmt III. kafla ákæru og að teknu tilliti til dómaframkvæmdar væru brot hans talin meiri háttar og heimfærð til 1. mgr. 262. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og 2. mgr. 30. gr. laga nr. 45/1987. T var talinn hafa brotið gegn 2. mgr. 30. gr. laga nr. 45/1987. Að teknu tilliti til þess verulega dráttar sem orðið hafði á rannsókn málsins og meðferð þess fyrir dómi á fyrri stigum og með hliðsjón af þeim sektargreiðslum sem J og T höfðu þegar innt af hendi var þeim ekki gerð sérstök refsing í málinu.
Ákæruvaldið (
Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari)
gegn
X (
Ragnar Halldór Hall lögmaður)
Með dómi Hæstaréttar 31. október 2013 í máli nr. 135/2013 hafði X verið sakfelldur fyrir hlutdeild í umboðssvikum samkvæmt 249. gr., sbr. 1. mgr. 22. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Endurupptökudómur féllst á beiðni X um endurupptöku málsins. Í dómi Hæstaréttar var rakið að munnleg sönnunarfærsla gæti ekki farið fram fyrir réttinum eftir gildistöku laga nr. 47/2020. Endurupptökudómi hefði því að réttu lagi borið, miðað við þær ástæður sem dómurinn lagði til grundvallar endurupptöku málsins, að nýta þá heimild sem hann hefur eftir síðari málslið 1. mgr. 232. gr. laga nr. 88/2008 til að ákveða að vísa því til meðferðar og dómsuppsögu að nýju í Landsrétti. Jafnframt hefði Endurupptökudómi borið að gæta að þessu af sjálfsdáðum. Þá vísaði rétturinn til þess að í því ljósi að málið hefði verið endurupptekið af þeirri ástæðu að meðferð þess fyrir Hæstarétti hefði verið í ósamræmi við regluna um milliliðalausa sönnunarfærslu yrði ekki úr því bætt nema með því að leiða X og vitni fyrir dóm til skýrslugjafar. Réttinum væri ókleift að bæta úr þessu og hefði hann heldur ekki að lögum heimild til að hnekkja að þessu leyti niðurstöðu Endurupptökudóms eða vísa málinu til meðferðar hjá Landsrétti. Því væri óhjákvæmilegt að vísa málinu sjálfkrafa frá Hæstarétti, enda þjónaði meðferð þess fyrir réttinum fyrirsjáanlega engum tilgangi.