X var ákærður fyrir þjófnað, með því að hafa tekið samtals 4.785.252 krónur í reiðufé úr hraðbönkum með greiðslukorti A, og fyrir fjársvik, með því að hafa svikið út vörur og þjónustu með framvísun á greiðslukorti A, fyrir samtals 1.699.256 krónur. Með dómi héraðsdóms var ákærði sakfelldur fyrir alla þá háttsemi sem hann var ákærður fyrir. Fyrir Landsrétti var ákærði sýknaður að hluta en sakfelldur að öðru leyti með vísan til forsendna hins áfrýjaða dóms, eða sem nam þjófnaði að fjárhæð 4.515.993 króna og fjársvikum að fjárhæð 1.567.625 króna. Var X dæmdur hegningarauki og gert að sæta fangelsi í sex mánuði en fullnustu refsingarinnar frestað skilorðsbundið í tvö ár. Við ákvörðun refsingar var meðal annars litið til dráttar á meðferð málsins. Þá var X gert að greiða A samtals 6.083.618 krónur í skaðabætur með vöxtum og dráttarvöxtum.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Jakob Steinn Stefánsson saksóknarfulltrúi)
gegn
Gunnari Frey Kristinssyni (
Ingi Freyr Ágústsson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir rán og dæmdur í 8 mánaða skilorðsbundið fangelsi.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Kamilla Kjerúlf aðstoðarsaksóknari)
gegn
Baldri Kolbeinssyni (
Snorri Sturluson lögmaður)
Sakborningur, sem játaði brot sitt, var sakfelldur fyrir húsbrot og dæmdur til að sæta fangelsi í tvo mánuði.
Lögreglustjórinn á Vestfjörðum (
Kristján Óskar Ásvaldsson saksóknarfulltrúi)
gegn
Oliviu Ragnheiði Zieba (
Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson lögmaður)
Ákærða sakfelld fyrir umboðssvik og dæmd til þriggja mánaða fangelsisvistar en fullnustu refsingar frestað skilorðsbundið. Ákærðu gert að greiða brotaþola skaðabætur og málskostnað.
Ákærði var sakfelldur fyrir fjársvik, með því að hafa án heimildar tekið út vörur í verslunum í gegnum viðskiptareikning annars manns.
Lögreglustjórinn á höfuðborgars (
Sonja Wiium saksóknarfulltrúi)
gegn
Mindaugas Pekorius (
Ágúst Karl Karlsson lögmaður)
Ákærði var sakfelldur fyrir ítrekuð þjófnaðarbrot og gert að sæta fangelsi í 30 daga, skilorðsbundið til tveggja ára.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Vilhjálmur Þór Svansson saksóknarfulltrúi)
gegn
Kleant Hysi (
Jóna Vestfjörð Hannesdóttir lögmaður)
Ákærði, sem játaði sök, sakfelldur fyrir peningaþvætti og dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi og gert að sæta upptöku fjármuna.
Lögreglustjórinn á Austurlandi (
Fríða Thoroddsen aðstoðarsaksóknari)
gegn
David Christian Scobie (
Gísli M. Auðbergsson lögmaður)
Ákærði var sakfelldur fyrir peningaþvætti og dæmdur til þriggja mánaða skilorðsbundinnar fangelsisrefsingar.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Auðbjörg Lísa Gústafsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Óðni Þór Ingólfssyni (
Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Ákærði sem játaði sök var sakfelldur fyrir ýmis hegningarlagabrot og dæmdur til að sæta fangelsi í 6 mánuði.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Eva Lind Ingadóttir saksóknarfulltrúi)
gegn
Hjördísi Fríðu Hjörvarsdóttur (
Snorri Sturluson lögmaður)
Ákærða sem játaði sök var sakfelld fyrir hylmingu og fjársvik. Var henni ekki gerð refsing í málinu en um var að ræða hegningarauka við refsingu í fyrri dómum.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Lína Ágústsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Toader Cantaragiu (
Unnsteinn Örn Elvarsson lögmaður)
Ákærði var sakfelldur fyrir þjófnað, fjársvik, fíkniefna- og útlendingalagabrot en sýknaður af ákæru fyrir brot á áfengislögum og lögreglusamþykkt.
Ákærði sakfelldur fyrir kynferðislega áreitni gegn barni, húsbrot og vændiskaup. Ákærði dæmdur til að greiða miska- og skaðabætur.
Lögreglustjórinn á Vesturlandi (Guðfinnur Stefánsson aðstoðarsaksóknari) gegn
Oleg Vrabie
Ákærði sakfelldur fyrir þjófnað í þriðja sinn. Dæmdur í 30 daga fangelsi skilorðsbundið til tveggja ára.
Lögreglustjórinn á Vesturlandi (Guðfinnur Stefánsson aðstoðarsaksóknari) gegn
Oleg Vrabie
Ákærði sakfelldur fyrir þjófnað í þriðja sinn. Dæmdur í 30 daga fangelsi skilorðsbundið til tveggja ára.
Ákæruvaldið (
Ásmundur Jónsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Alexander Guðjónssyni (
Snorri Sturluson lögmaður)
pX var ákærður fyrir tilraun til manndráps, húsbrot og vopnalagabrot með því að hafa farið inn á heimili brotaþola og inn í svefnherbergi þar sem hann lá sofandi í rúmi sínu, og veist að honum og stungið hann endurtekið með hnífi í höfuð og líkama og haldið atlögunni áfram með hnífi og/eða kýlt með krepptum hnefum í búk hans eftir að brotaþoli náði að standa upp, með þeim afleiðingum að brotaþoli hlaut um 1 cm sár á utanverðri hægri kinn, sem saumað var með þremur sporum, bólgu á hægri kinn og fjögur sár á hægri öxl, sem saumuð voru alls með fimm sporum. Fyrir lá að ákærði fór grímuklæddur frá heimili sínu með hníf og eftirlíkingu af skammbyssu og hafði klæðst sokkum yfir skó sína. Jafnframt var talið sannað með framburði vitna að hann hafi haldið heim til brotaþola í þeim tilgangi að skaða hann vegna þeirrar sannfæringar ákærða að brotaþoli hefði misnotað barn hans. Með vísan til aðdragandans og þess að ákærði hafi endurtekið beitt hættulegu vopni í myrkvuðu herbergi gegn viðkvæmum líkamshlutum brotaþola var talið sannað að á verknaðarstundu hafi honum ekki getað dulist að háttsemi hans gæti valdið bana, en hann hafi látið sér afleiðingar háttseminnar í léttu rúmi liggja. Var hann því talinn hafa gerst sekur um tilraun til manndráps, sbr. 211. gr., sbr. 1. mgr. 20. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, húsbrot og vopnalagabrot. Með vísan til niðurstöðu geðrannsóknar var ákærði talinn sakhæfur og engar refsilækkunar ástæður fyrir hendi. Við ákvörðun refsingar var litið til þess að um alvarlegt brot var að ræða sem beindist að lífi og heilsu brotaþola og að hættulegu vopni hefði verið beitt, auk þess sem ákærði hafi ekki sýnt iðrun. Var refsing ákærða ákveðin fangelsi í fimm ár. Þá var honum gert að greiða brotaþola miskabætur að fjárhæð 2.500.000 krónur.br/p
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Vilhjálmur Þór Svansson saksóknarfulltrúi) gegn
Aðalsteini Javí Lárusi Skúlasyni (Enginn)
Maður, sem ekki kom fyrir dóm, sakfelldur fyrir fjársvik og dæmdur til eins mánaðar skilorðsbundinnar fangelsisvistar, en um hegningarauka var að ræða.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Sonja Wiium saksóknarfulltrúi)
gegn
Joost Haandrikman (
Þorgils Þorgilsson lögmaður)
Sakfellt fyrir 16 þjófnaðarbrot og ákærði dæmdur til að sæta fangelsi í þrjá mánuði, skilorðsbundið í tvö ár. Einkaréttarkröfum var vísað frá dómi.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Vilhjálmur Þór Svansson saksóknarfulltrúi) gegn
Mykola Hupalo
Ákærði dæmdur í fimm mánaða skilorsðbundið fangelsi fyrir peningaþvætti.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Eva Lind Ingadóttir saksóknarfulltrúi)
gegn
Danival Guðjóni Stefánssyni (
Snorri Sturluson lögmaður)
Maður sakfelldur fyrir ýmiss brot gegn almennum hegningarlögum og umferðarlögum og dæmdur til 18 mánaða fangelsisvistar. Ævilöng svipting ökuréttar var áréttuð. Einum ákærulið og einkaréttarkröfum var vísað frá dómi.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Jakob Steinn Stefánsson saksóknarfulltrúi)
gegn
Ásu Elínardóttur (
Sveinn Andri Sveinsson)
Ákærða var sakfelld fyrir umferðarlagabrot, nytjastuld og þjófnað. Var henni gert að sæta fangelsi í 45 daga skilorðsbundið til tveggja ára.
Einstaklingur átti í viðskiptum við banka. Eftir að einstaklingurinn var úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna rökstudds gruns um margvísleg brot, þar á meðal peningaþvætti, sagði bankinn upp viðskiptasambandinu í mars 2024. Árið 2025 fór einstaklingurinn fram á að opnað yrði aftur fyrir bankaviðskipti, en hann þyrfti á bankareikningi að halda til að geta fengið greidd laun. Bankinn hafnaði þeirri beiðni, meðal annars með vísan til óbreytts áhættumats á grundvelli laga og reglna um peningaþvætti. Höfðaði einstaklingurinn þá mál þetta gegn bankanum og krafðist þess að honum yrði gert skylt að opna aftur fyrir bankaviðskiptin. Í ljósi umfangs og alvarleika þeirra brota sem einstaklingurinn lá undir rökstuddum grun um að hafa framið taldi dómurinn að fallast mætti á þann málatilbúnað bankans að synjun hans á beiðni einstaklingsins um stofnun nýs bankareiknings teldist eiga sér næga stoð í lögum nr. 140/2018, sbr. einnig ákvæði 3. mgr. 14. gr. laga nr. 5/2023.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Karen Lárusdóttir saksóknarfulltrúi) gegn
Thi Oanh Pham
Ákærða var sakfelld fyrir þjófnaðarbrot. Var henni gert að sæta fangelsi í 30 daga skilorðsbundið til tveggja ára.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Vilhjálmur Þór Svansson saksóknarfulltrúi)
gegn
Benone Stan (
Felicia Mariana Pralea lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir peningaþvætti og dæmdur í fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi.
Ákæruvaldið (Tinna Sif Guðmundsdóttir fulltrúi) gegn
Graciano Vicente Mendonca Abreu og Paulo André S. Santana Afonso (sjálfir)
Tveir menn sakfelldir fyrir þjófnað og peningaþvætti.
Ákærði var sakfelldur fyrir húsbrot en ekki fallist á að hann hefði gerst sekur um kynferðislega áreitni.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Lína Ágústsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Loventa-Sonia Chiroaica (
Rebekka Ósk Gunnarsdóttir lögmaður)
Sakborningur, sem játaði brot sín, sakfelldur fyrir þjófnað og dæmdur til að sæta skilorðsbundnu fangelsi í 30 daga.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Lína Ágústsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Florin-Cristian Burcea (
Felicia Mariana Pralea lögmaður)
Maður, sem játaði brot sín, sakfelldur fyrir þjófnaði og dæmdur til að sæta skilorðsbundnu fangelsi í 45 daga. Skaðabótakröfu vísað frá dómi.
J var með tveimur héraðsdómum dæmdur til fangelsisrefsingar fyrir fjölda afbrota, þar á meðal á annan tug þjófnaðarbrota og fyrir að hafa margsinnis ekið sviptur ökurétti og undir áhrifum fíkniefna eða lyfja. Fyrir Landsrétti var ákvörðun refsingar vegna beggja dóma til endurskoðunar, auk þess sem J krafðist frávísunar tiltekinna ákæruliða eða sýknu. Landsréttur staðfesti niðurstöðu héraðsdóms um sakfellingu J fyrir brot gegn nálgunarbanni og eignaspjöll með því að hafa brotið rúðu í tilteknu húsi. Kröfu J um frávísun tiltekins ákæruliðar, sem var reist á vanhæfi embættis lögreglustjórans á Suðurlandi, var hafnað. Aftur á móti var fallist á frávísunarkröfu vegna sakargifta um húsbrot þar sem refsikrafa frá leigutaka og umráðamanni húsnæðisins lá ekki fyrir. Var J gert að sæta fangelsi í þrjú ár og niðurstaða héraðsdóms um einkaréttarkröfur staðfest.
Ákærðu sakfelldir fyrir fjárdrátt í rekstri hlutafélags og dæmdir í fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Kamilla Kjerúlf aðstoðarsaksóknari)
gegn
Bryndísi Mjöll Sævarsdóttur (
Guðbjarni Eggertsson lögmaður)
Ákærða, sem játaði brot sitt, dæmd í 30 daga skilorðsbundið fangelsi og til þess að greiða bætur vegna fjárdráttar.
Ákæruvaldið (
Halldór Tumi Ólason saksóknarfulltrúi)
gegn
X (
Friðrik Smárason lögmaður)
Ákærða sakfelld fyrir akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Sýknuð af því að hafa neitað að gangast undir öndunarpróf og gefa blóðsýni og ákæru um þjófnað og peningaþvætti
Ákæruvaldið (
Auðbjörg Lísa Gústafsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Roksana Teresa Golabiewska (
Þorgils Þorgilsson lögmaður)
Ákærða dæmd fyrir þjófnað.
Ákæruvaldið (
Auðbjörg Lísa Gústafsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Bogumil Staszkiewicz (
Þorgils Þorgilsson lögmaður)
Ákærði dæmdur fyrir þjófnað.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kamilla Kjerúlf aðstoðarsaksóknari) gegn
Danila Alexandre De Sousa
Ákærða var sakfelld fyrir fjársvik og þjófnað og gert að sæta fangelsi í 30 daga, skilorðsbundið til tveggja ára.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kamilla Kjerúlf aðstoðarsaksóknari) gegn
Tönju Eydísi Oliver
Ákærða var sakfelld fyrir þjófnað og gert að sæta fangelsi í 30 daga, skilorðsbundið til tveggja ára.
Ákæruvaldið (
Fríða Thoroddsen aðstoðarsaksóknari)
gegn
Ionut-Daniel Vlad og Nicolae Stoica (
Jón Jónsson lögmaður)
Ákærðu voru dæmdir til skilorðsbundinna fangelsisrefsinga fyrir þjófnaði sem þeir viðhöfðu í félagi, auk þess sem þeir voru dæmdir til að greiða skaðabætur og vexti vegna háttseminnar.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Eva Lind Ingadóttir saksóknarfulltrúi)
gegn
Gefn Geirdal Steinólfsdóttur (
Stefán Karl Kristjánsson lögmaður) og
Þorkeli Diego Jónssyni (
Snorri Sturluson lögmaður)
Ákærðu voru sakfelld fyrir þjófnað í samverknaði, auk þess sem annar ákærðu var sakfelldur fyrir þjófnað, brot á lögum um ávana- og fíkniefni o.fl.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Eva Lind Ingadóttir saksóknarfulltrúi)
gegn
Sæþóri Braga Sölvasyni (
Páll Kristjánsson lögmaður)
Ákærði var sakfelldur fyrir fjársvik og þjófnað.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Sonja Wiium saksóknarfulltrúi)
gegn
Tudor Chiroaica (
Felicia Mariana Pralea lögmaður)
Ákærði, sem játaði sök, sakfelldur fyrir þjófnað og dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi.
Ákæruvaldið (
Eyþór Þorbergsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Ólafi Hauki Atlasyni (
Skarphéðinn Pétursson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir þjófnað.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Júlí Karlsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Smára Óskari Hólmarssyni (
Snorri Sturluson lögmaður)
Ákærða var gerð refsing fyrir þjófnað og vopnalagabrot. Jafnframt var honum gert að sæta upptöku að hluta á vopnum.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Karen Lárusdóttir saksóknarfulltrúi)
gegn
Helga Kristóferssyni (
Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Ákærði var sakfelldur fyrir þjófnað. Voru brot hans rof á reynslulausn og gert að sæta fangelsi í 9 mánuði.
H var sakfelld fyrir ýmis þjófnaðarbrot, nytjastuld í tvígang og önnur brot er varða sýnileg sönnunargögn, tvö umferðarlagabrot, tvær líkamsárásir og tilraun til þjófnaðar. Við ákvörðun refsingar H var litið til þess að umferðarlagabrotin töldust hegningarauki við nánar tilgreindan dóm. Með vísan til þess og að teknu tilliti til 77. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 en að öðru leyti með vísan til sjónarmiða héraðsdóms að baki refsiákvörðun var refsing H ákveðin fangelsi í 15 mánuði. Þá var hún svipt ökurétti í 18 mánuði en um tímalengd ökuréttarsviptingarinnar var tekið mið af meginreglu 78. gr. almennra hegningarlaga. Þá var staðfest niðurstaða héraðsdóms um einkaréttarkröfur P og V og H því gert að greiða P 250.000 krónur og V 350.000 krónur.
S voru gefin að sök þjófnaðar-, gripdeildar- og umferðarlagabrot. S játaði háttsemina í héraði og var honum meðal annars gert að sæta fangelsi í fimm mánuði en fyrir Landsrétti var einungis til endurskoðunar ákvæði um fangelsisrefsingu S. Rakið var í dómi Landsréttar að S hafi í ákæru meðal annars verið ákærður fyrir þjófnað í verslun í apríl 2023. Háttsemin hafi verið heimfærð til gripdeildar í hinum áfrýjaða dómi en hvorki S né ákæruvaldið gert athugasemdir við heimfærsluna. Í samræmi við þetta hafi S verið sakfelldur í héraði fyrir fjögur gripdeildarbrot og tvö þjófnaðarbrot auk umferðarlagabrotsins. Við ákvörðun refsingar var í dómi Landsréttar litið til þess sem rakið var í héraðsdómi, S til refsiþyngingar, að þau auðgunarbrot sem hann var sakfelldur fyrir voru framin innan ítrekunartíma þjófnaðarbrots sem S hlaut dóm fyrir 1. apríl 2022. Einnig var horft til þess að S hafi játað brot sín skýlaust, honum til refsimildunar. Enn fremur var fallist á að ekki væru efni til að skilorðsbinda refsingu S en með þeim brotum sem hann var ákærður fyrir hafi S rofið skilorð. Með framangreindum athugasemdum en að öðru leyti með vísan til forsendna hins áfrýjaða dóms var hann staðfestur.
P var sakfelldur fyrir peningaþvætti með því að hafa á tímabilinu 2. til 4. desember 2023 tekið við samtals 1.990.000 krónum í reiðufé frá óþekktum aðila eða aðilum, en talið var að honum hefði ekki getað dulist eða hann í öllu falli látið sér það í léttu rúmi liggja að um hefði verið að ræða ávinning af sölu- og dreifingu fíkniefna og eftir atvikum öðrum refsiverðum brotum. Fjármunina var P með í vörslum sínum þegar hann var handtekinn í Flugstöð Leifs Eiríkssonar 4. desember 2023. Var refsing P ákveðin fangelsi í þrjá mánuði en í ljósi eðlis og alvarleika brotsins þóttu ekki efni til þess að binda hana skilorði. Þá var staðfest niðurstaða héraðsdóms um upptöku fjármunanna.
Ákæruvaldið (
Arnþrúður Þórarinsdóttir saksóknari)
gegn
Gunnlaugi Agnari Gunnlaugssyni (
Ívar Þór Jóhannsson lögmaður)
G var gefið að sök að hafa útbúið og skilað til vátryggingafélags rangri tilkynningu um tjón vegna bifreiðar í hans eigu í því skyni að svíkja út vátryggingabætur. Í dómi Landsréttar var rakið að framburður G væri í heild metinn ótrúverðugur og væri horft til efnis tjóntilkynningar og gagna málsins væri fallist á það með ákæruvaldinu að hafið væri yfir skynsamlegan vafa að G hefði haft ásetning til þess að blekkja vátryggingarfélagið til greiðslu bóta úr vátryggingu bifreiðarinnar. Fyrir lá að engar bætur voru greiddar úr vátryggingunni en því til samræmis var ákærði sakfelldur fyrir tilraun til fjársvika samkvæmt 248. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 20. gr. sömu laga. Var staðfest niðurstaða hins áfrýjaða dóms um refsingu G, fangelsi í 30 daga en refsingin var bundin skilorði í tvö ár.
M var gefið að sök peningaþvætti samkvæmt 1. mgr. 264. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 með því að hafa á tímabilinu 16. til 19. maí 2024 tekið við samtals 4.920 evrum í reiðufé frá óþekktum aðila eða aðilum sem M gat ekki dulist að væri ávinningur af refsiverðum brotum. Í dómi Landsréttar kom fram að M hefði ekki gefið trúverðugar skýringar á komu sinni hingað til lands og tilurð þeirra fjármuna sem hann hafði í fórum sér þegar lögregla hafði afskipti af honum í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Ekki var talið að gögn sem M hafði lagt fram gætu breytt því mati. Jafnframt var litið til þess að M hitti, sama dag og hann kom til landsins, mann sem hefur verið sakfelldur fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot en frásögn M um ástæðu fundarins og hvað þeim fór á milli var talin með nokkrum ólíkindum. Enn fremur var að teknu tilliti til tekna M talið afar ósennilegt að einstaklingur í hans stöðu hefði komið með framangreinda fjárhæð til landsins í þeim óljósa tilgangi sem M hafði greint frá. Taldi dómurinn sýnt fram á með óyggjandi hætti að útilokað væri að fjármunir sem M hafði í fórum sínum þegar hann var handtekinn væru til komnir með lögmætum hætti. Hafi þannig verið um að ræða ávinning af refsiverðum brotum sem M gat ekki dulist um. Var niðurstaða héraðsdóms um sakfellingu M og upptöku fyrrnefndra fjármuna staðfest og refsing hans ákveðin fangelsi í tvo mánuði.
M var sakfelldur fyrir peningaþvætti með því að hafa, ásamt meðákærðu í héraði X, á tímabilinu 28. apríl til 1. maí 2023 tekið við samtals 28.180 evrum í reiðufé frá óþekktum aðila eða aðilum, en þeim hefði ekki getað dulist að um væri að ræða ávinning af refsiverðum brotum. Voru þau með reiðufé falið í farangri, 18.160 evrur hjá M og 10.020 evrur hjá X, þegar þau voru handtekin í Flugstöð Leifs Eiríkssonar 1. maí 2023. Við ákvörðun refsingar var litið til þess að M hefði verið sakfelldur fyrir að taka við ávinningi af refsiverðum brotum sem ætlunin hefði verið að flytja úr landi. Hann hefði ekki áður sætt refsingu svo vitað væri en horfa yrði til 6. og 7. töluliðar 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Var refsing M ákveðin fangelsi í sex mánuði. Þá var staðfest niðurstaða héraðsdóms um upptöku fjármunanna.
J var sakfelldur fyrir brot gegn 1. og 2. mgr. 257. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 með því að hafa farið heimildarlaust inn um glugga á sumarhúsi og þar inni kveikt eld með þeim afleiðingum að sumarhúsið brann til grunna. Varðandi þá háttsemi J að brjóta útiljós við annað sumarhús í nágrenni við hitt taldist brotið fyrnt, sbr. 1. tölulið 1. mgr. 81. gr. og 5. mgr. 82. gr. almennra hegningarlaga og var hann því sýknaður af þeim sakargiftum. Við ákvörðun refsingar var meðal annars litið til þess að um var að ræða hegningarauka, sbr. 78. gr. almennra hegningarlaga. Var refsing J ákveðin fangelsi í sex mánuði. Þá var niðurstaða hins áfrýjaða dóms um bótaábyrgð J gagnvart einkaréttarkröfuhafa staðfest og honum gert að greiða TM tryggingum hf. 14.298.040 krónur.