Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

100 dómar fundust

Lykilorð: Áfengislagabrot

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 22. apríl 2026 kl. 13:17

S-7499/2025

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Lína Ágústsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Toader Cantaragiu (Unnsteinn Örn Elvarsson lögmaður)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Ákærði var sakfelldur fyrir þjófnað, fjársvik, fíkniefna- og útlendingalagabrot en sýknaður af ákæru fyrir brot á áfengislögum og lögreglusamþykkt.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 17. febrúar 2025

S-4226/2024

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Agnes Ýr Stefánsdóttir saksóknarfulltrúi) gegn Sigurgeiri Ágústi Helgasyni (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður) og Sæmundi Heiðari Emilssyni (Ingi Freyr Ágústsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærðu voru sakfelldir fyrir þjófnað með því að hafa í félagi brotist inn í verslun með því að bakka bifreið á rúðu, og annar var einnig sakfelldur fyrir umferðar-, áfengis- og fíkniefnalagabrot.

Landsréttur birt 31. október 2024

198/2024

Ákæruvaldið (Dröfn Kærnested saksóknari) gegn Theodóri Páli Theodórssyni (Jónas Örn Jónasson lögmaður) (Guðmundur Ágústsson réttargæslumaður)
Málaflokkur: Kynferðisbrot

T var sakfelldur fyrir þrjú kynferðisbrot gagnvart barni, A, auk áfengis- og barnaverndarlagabrota. Þá var hann sakfelldur fyrir að hafa nauðgað brotaþola, B, og þá einnig fyrir kynferðisbrot gegn barni og brot á barnaverndar- og áfengislögum. T var einnig sakfelldur í héraðsdómi fyrir ítrekuð vændiskaup og brot gegn 1. mgr. 210. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Við ákvörðun refsingar var litið til 1., 2., 6. og 7. töluliðar 1. mgr. 70. gr., a-liðar 195. gr. og 77. gr. almennra hegningarlaga og T gert að sæta fangelsi í sjö ár. Var T gert að greiða A og B hvorri um sig miskabætur að fjárhæð 3.000.000 króna og gert að sæta upptöku nánar tilgreindra muna.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 12. janúar 2024

S-6448/2023

Héraðssaksóknari (Karl Ingi Vilbergsson saksóknari) gegn Theodóri Páli Theodórssyni (Jónas Örn Jónasson lögmaður)
Málaflokkur: Kynferðisbrot

Maður sakfelldur fyrir nauðganir og kynferðisbrot gegn barni yngra en 15 ára (samræði og önnur kynferðismök), fyrir kynferðislega áreitni gegn barni, fyrir kaup á vændi og fyrir að hafa í vörslum sínum myndefni sem sýndi börn nakin og á kynferðislegan máta. Sýknað af broti gegn 209. gr. almennra hegningarlaga og 3. mgr. 99. gr. barnaverndarlaga.

Landsréttur birt 16. júní 2023

458/2022

Ákæruvaldið (Hulda María Stefánsdóttir saksóknari) gegn Ý (Andrés Már Magnússon lögmaður) og Þórði Má Sigurjónssyni (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður) (Gísli M. Auðbergsson réttargæslumaður) (Ingvar Þóroddsson réttargæslumaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Staðfestur var dómur héraðsdóms þar sem Þ var sakfelldur fyrir frelsissviptingu, líkamsárás og hótanir samkvæmt 1., sbr. 2. mgr. 226. gr., 2. mgr. 218. gr. og 233. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, með því að hafa í félagi við aðra svipt A frelsi sínu í um fjórar klukkustundir við ógnvekjandi aðstæður, hótað honum og beitt hann alvarlegu ofbeldi. Ý var sakfelld fyrir hlutdeild í frelsissviptingu A, sbr. 1. mgr. 22. gr. almennra hegningarlaga. Jafnframt var Þ sakfelldur fyrir nánar tilgreind brot gegn lögum nr. 65/1974 um ávana- og fíkniefni, áfengislagabrot og vopnalagabrot. Þá var Þ sakfelldur fyrir ólögmæta nauðung, frelsissviptingu, tilraun til fjárkúgunar og rán gagnvart B, sbr. 1. mgr. 255. gr., 1. sbr. 2. mgr. 226. gr., 251. gr. sbr. 20. gr. og 252. gr. almennra hegningarlaga, með því að hafa í félagi við annan mann svipt B frelsi sínu í um tvær klukkustundir, hótað honum og beitt hann ofbeldi. Var Þ gert að sæta fangelsi í fjögur ár og greiða A 3.500.000 króna í miskabætur óskipt með Ý ásamt nánar tilgreindum vöxtum og B 1.500.000 króna í miskabætur ásamt nánar tilgreindum vöxtum. Var Ý gert að sæta fangelsi í 12 mánuði en fullnustu refsingarinnar frestað skilorðsbundið í tvö ár.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 15. mars 2023

S-5033/2022

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Lína Ágústsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Njáli Skarphéðinssyni (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Ákærði sakfelldur fyrir brot á hegningarlögum, áfengislögum, fíkniefnalögum og á lögreglusamþykkt fyrir Reykjavíkurborg. Dæmdur í 45 daga fangelsi. Hegningarauki við fyrri dóm.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 15. febrúar 2023

S-6105/2022

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Lína Ágústsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Þorbergi Bergmann Halldórssyni (Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur fyrir brot gegn almennum hegningarlögum, umferðarlögum, áfengislögum, lögum um bann við tilteknum frammistöðubætandi efnum og lyfjum, lögum um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni og lögreglusamþykkt fyrir Reykjavíkurborg. Dæmdur í 19 mánaða fangelsi og ævilöng svipting ökuréttar áréttuð.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 20. desember 2022

S-3427/2022

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Benedikt Smári Skúlason saksóknarfulltrúi) gegn Gesti Hrafnkeli Kristmundssyni (Skarphéðinn Pétursson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur fyrir brot gegn umferðar-, vopna- og áfengislögum og lögum um meðferð ávana- og fíkniefna og dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi og sviptur ökurétti ævilangt. Þá var ákærða gert að sæta upptöku á m.a. landa, gambra og fíkniefnum.

Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 6. apríl 2022

S-448/2020

Ákæruvaldið (Fanney Björk Frostadóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Elmari Þór Sveinarssyni (Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður), Ara Rúnarssyni, X (Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson lögmaður), Hákoni Geirfinnssyni (Sigmundur Guðmundsson lögmaður), Z (Friðrik Smárason lögmaður), Þórði Má Sigurjónssyni (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður) og og Aroni Vigni Erlendssyni (Þorgils Þorgilsson lögmaður) (Gísli M. Auðbergsson réttargæslumaður brotaþola)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Ákærðu sakfelld fyrir ýmis brot samkvæmt fimm ákærum, þ. á m. tvær frelsissviptingar, stórfellda líkamsárás, rán, hótanir, ólögmæta nauðung, fjársvik, brot á vopnalögum, fíkniefnalögum og áfengislögum. Tvö hinna ákærðu voru sýknuð. Hin sakfelldu voru dæmd til fangelsisvistar frá einu og upp í fjögur ár. Þá var ákærðu gert að greiða brotaþola miskabætur að fjárhæð 3.500.000 krónur og öðrum brotaþola 1.750.000 krónur. Loks var ákærðu gert að greiða þriðja brotaþola 3.716.454 krónur í skaðabætur.

Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 3. september 2021

S-67/2021

Ákæruvaldið (Alla Rún Rúnarsdóttir fulltrúi) gegn X
Lykilorð: Áfengislagabrot.
Málaflokkur: Önnur sakamál

Ákærða gefið að sök áfengislagabrot. Sýkna.

Landsréttur birt 7. apríl 2020

428/2019

Ákæruvaldið (Einar Tryggvason saksóknari) gegn X (Bjarni Hauksson lögmaður) og Y (Unnsteinn Örn Elvarsson lögmaður) (Inga Lillý Brynjólfsdóttir réttargæslumaður)
Málaflokkur: Kynferðisbrot

X og Y voru sakfelld fyrir brot gegn A, dóttur Y og stjúpdóttur X. Var háttsemi þeirra talin varða við 1. mgr. 194. gr., 1. og 2. mgr. 202. gr., 1. mgr. 210. gr. a og 1., sbr. 2. mgr. 218. gr. b almennra hegningarlaga nr. 19/1940, auk þess sem Y var sakfelld fyrir áfengislagabrot. Þá var Y jafnframt sakfelld fyrir blygðunarsemisbrot gagnvart B, sbr. 209. gr. laga nr. 19/1940. X var einnig sakfelldur fyrir brot gegn 1. mgr. 210. gr. a laga nr. 19/1940 með því að hafa haft í vörslum sínum myndskeið og teikni- og ljósmyndir sem sýndu börn á kynferðislegan hátt, auk þess sem hann var sakfelldur fyrir brot gegn vopnalögum. Í málinu var X einnig ákærður fyrir brot gegn 1. mgr. 218. gr. b með því að hafa beitt börnin B og C ofbeldi. Með dómi héraðsdóms hafði X verið sakfelldur fyrir þá háttsemi en háttsemin heimfærð undir 98. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002. Í dómi Landsréttar kom fram að gegn neitun ákærða og að teknu tilliti til vitnisburða hefðu ekki verið færðar sönnur fyrir því að háttsemi hans hefði verið af þeim toga sem í fyrrgreindu ákvæði fælist og var X því sýknaður af þeim sakargiftum. Við ákvörðun refsingar var meðal annars litið til 1., 2., 3. og 7. töluliðar 1. mgr., 2. og 3. mgr. 70. gr. og a-liðar 195. gr. laga nr. 19/1940. Var refsing X ákveðin fangelsi í sex ár og refsing Y ákveðin fangelsi í fimm ár. Þá var ákærðu gert að greiða A óskipt 2.500.000 krónur í miskabætur, auk þess sem Y var gert að greiða B 400.000 krónur í miskabætur.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 9. janúar 2020

S-7062/2019

Héraðssaksóknari (Katrín Hilmarsdóttir saksóknarfulltrúi) gegn X (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur fyrir ýmis brot, m.a. stórfellt brot í nánu sambandi, brot á nálgunarbanni, eignaspjöll, líkamsárás og ólögmæta nauðung. Ákærði játaði brot sín skýlaust. Hann var dæmdur í 18 mánaða fangelsi. Til frádráttar refsingu kom gæsluvarðhald ákærða sem hann hafði sætt óslitið fram að uppkvaðningu dóms.

Héraðsdómur Reykjaness birt 18. nóvember 2019

S-1044/2019

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum (Súsanna Björg Fróðadóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Mariusz Wiszowaty (Magnús Davíð Norðdahl lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Ákærði sakfelldur fyrir vörslur og ræktun fíkninefna og áfengislagabrot og dæmdur í átta mánaða fangelsi, skilorðsbundið til tveggja ára. Ákærða gert að sæta upptöku á kannabisplöntum, kannabislaufum, maríhúana og búnaði til ræktunar.

Héraðsdómur Reykjaness birt 7. janúar 2019

S-413/2018

Ákæruvaldið (Sigurður Pétur Ólafsson aðstoðarsaksóknari) gegn Elmari Eggertssyni (Snorri Sturluson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur fyrir umferðarlagabrot, hegningarlagabrot og áfengislagabrot og dæmdur í tíu mánaða fangelsi. Ákærða gert að sæta upptöku á haldlögðu áfengi og fíkniefnum auk þess sem ævilöng ökuréttarsvipting ákærða var áréttuð.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 11. september 2018

S-511/2018

Ákæruvaldið (Katrín Hilmarsdóttir saksóknarfulltrúi) gegn X (Einar Oddur Sigurðsson lögmaður)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Ákærða var gert að sæta öryggisgæslu á viðeigandi stofnun.

Héraðsdómur Reykjaness birt 11. maí 2017

S-107/2017

Ákæruvaldið (Sigurður Pétur Ólafsson aðstoðarsaksóknari) gegn Boguslaw Jozef Warzocha
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Ákærði var sakfelldur fyrir að þjófnað, tilraun til þjófnaðar og brot gegn áfengislögum. Hann játaði háttsemi sína og var dæmdur í þrjátíu daga fangelsi, en fullnustu refsingarinnar skyldi frestað skilorðsbundið í tvö ár.

Héraðsdómur Reykjaness birt 4. maí 2017

S-121/2017

Ákæruvaldið (Halldór Rósmundur Guðjónsson saksóknarfulltrúi) gegn Guðmundur Helgi Rögnvaldsson (Halldóra Aðalsteinsdóttir hdl)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var sakfelldur fyrir brot gegn umferðarlögum, áfengislögum, lögreglulögum og lögum um ávana- og fíkniefni. Hann játaði skýlaust að hafa framið þá háttsemi sem hann var svo sakfelldur fyrir og var refsing hans ákveðin fangelsi í átta mánuði, en fullnustu fimm mánaða þeirrar refsingar skyldi frestað skilorðsbundið í þrú ár frá dómsuppsögu. Með þeim umferðarlagabrotum sem hann var sakfelldur fyrir, rauf hann skilyrði fyrir frestun á fullnustu skilorðsbundins hluta refsingar dóms frá 23. janúar 2014 og var sá hluti refsing þess dóms tekinn upp og ákærða dæmd refsing í einu lagi. Þá skyldi hann sviptur ökurétti ævilang og sæta upptöku fíkniefna.

Héraðsdómur Austurlands birt 5. janúar 2017

S-8/2016

Ákæruvaldið (Helgi Jensson fulltrúi) gegn X (Stefán Þór Eyjólfsson hdl)

Ákærði var sakfelldur fyrir ólöglega framleiðslu áfengis. Dæmdur til greiðslu sektar, auk þess sem haldlagt áfengi o.fl. var gert upptækt. Hafnað var m.a. málsástæðum ákærða um ólögmæta húsleit, skort á ásetningi og að ósannað teldist að vökvinn uppfyllti skilyrði áfengislaga til að geta talist áfengi. Þá var því hafnað að refsing hans yrði felld niður vegna lögvillu.

Héraðsdómur Reykjaness birt 26. maí 2016

S-161/2016

Ákæruvaldið (Sigurður Pétur Ólafsson aðstoðarsaksóknari) gegn Leroy Ciprianne Jantjies
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

L var sakfelldur fyrir fíkniefnalagabrot. Tók sakfelling meðal annars til þess að hann hafði í vörslum sínum 18 kannabisplöntur sem hann hafði ræktað um nokkurt skeið. Þá var hann að auki sakfelldur fyrir áfengislagabrot og fyrir að hafa ekið bifreið undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Var refsing L ákveðin fangelsi í 30 daga en fullnustu þeirrar refsingar frestað skilorðsbundið í tvö ár. Þá var honum að auki gerð sektarrefsing og hann sviptur ökurétti í tvö ár.

Héraðsdómur Suðurlands birt 6. nóvember 2013

S-507/2013

Ákæruvaldið (Gunnar Örn Jónsson ftr) gegn A (Sveinn Andri Sveinsson hrl)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Ákærði sakfelldur fyrir brot á almennum hegningarlögum og áfengislögum. Gert að sæta fangelsi í níu mánuði, þar af sex skilorðsbundið til tveggja ára. Dæmdur var upp eldri skilorðsdómur.

Héraðsdómur Reykjaness birt 14. október 2013

S-757/2013

Ákæruvaldið (Kjartan Ólafsson ftr) gegn Arturs Barkans (sjálfur)
Málaflokkur: Önnur sakamál

Ákærði sakfelldur fyrir brugg og dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi. 866 lítrar af gambra og 55,6 lítrar af vínanda var gert upptækt.

Hæstiréttur birt 2. maí 2013

531/2012

Ákæruvaldið (Kolbrún Benediktsdóttir saksóknari) gegn Snorra Einarssyni (Gísli M. Auðbergsson hdl) (Bjarni Guðmundur Björgvinsson réttargæslumaður)
Málaflokkur: Kynferðisbrot

S var sakfelldur fyrir brot gegn áfengis- og barnaverndarlögum með því að hafa veitt þremur ungmennum, 16 og 17 ára að aldri, áfengi. Þá var S sakfelldur fyrir nauðgun, með því að hafa haft önnur kynferðismök en samræði við A með því að beita hana ofbeldi, og kynferðislega áreitni og barnaverndarlagabrot, með því að hafa skömmu síðar kysst A tungukossi. Var refsing S ákveðin fangelsi 18 mánuði og honum gert að greiða A 800.000 krónur í skaðabætur.

Hæstiréttur birt 19. júní 2012

627/2011

Ákæruvaldið (Kolbrún Benediktsdóttir saksóknari) gegn Erik Jensen (Páll Arnór Pálsson hrl)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

E var ákærður fyrir áfengis- og fíkniefnalagabrot með því að hafa tekið við samtals 1 kg af amfetamíni og 400 g af hassi og haft í vörslum sínum og selt hluta fíkniefnanna, fyrir að hafa ræktað 24-26 kannabisplöntur sem gáfu af sér 200-300 g af kannabis sem ákærði seldi, fyrir að hafa framleitt 15 lítra af landa sem ákærði seldi og fyrir að hafa haft í vörslum sínum u.þ.b. 114 g af hassi, 1 g af marijúana, 23 g af kannabislaufum, 309 kannabisfræ, 60 g af amfetamíni og 6, 18 g af kókaíni. Með játningu E var hann fundinn sekur um brot gegn 173. gr. a. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, 2. gr. sbr. 4., 5., og 6. gr. laga nr. 65/1974 um ávana og fíkniefni og a- og b- liði 2. mgr. 4. gr., sbr. 2. mgr. 6. gr. og 1. mgr. 27. gr. áfengislaga nr. 75/1998. Við ákvörðun refsingar var litið til þess að ákærði, sem ekki hafði áður sætt refsingum, hafði játað brot sín greiðlega og sótt fíkniefnameðferð. Vegna alvarleika hinnar refsiverðu háttsemi þótti aftur á móti ekki fært að skilorðsbinda refsingu hans sem var ákveðin fangelsi í 18 mánuði.

Hæstiréttur birt 7. júní 2012

666/2011

Ákæruvaldið gegn X (Guðrún Sesselja Arnardóttir hrl) (Björn Jóhannesson hrl brotaþola)
Málaflokkur: Barnaréttur

Ákærði krefst aðallega sýknu af 1. lið í ákæru, til vara að ákvörðun refsingar verði frestað skilorðsbundið, en að því frágengnu „vægustu refsingar sem lög leyfa“ og að hún verði skilorðsbundin að fullu. Að því er varðar 2. ákærulið krefst ákærði þess aðallega að ákvörðun refsingar verði frestað skilorðsbundið, en til vara „vægustu refsingar sem lög leyfa“ og að hún verði skilorðsbundin að fullu. Þá krefst ákærði þess aðallega að einkaréttarkröfu verði vísað frá dómi, til vara að hann verði sýknaður af kröfunni, en að því frágengnu að hún verði lækkuð. A krefst þess að ákærða verði gert að greiða sér miskabætur að fjárhæð 800.000 krónur auk vaxta samkvæmt 8. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu frá 1. mars 2010 til 17. október 2010, en með dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr. sömu laga frá þeim degi til greiðsludags. Þá krefst hún málskostnaðar í héraði og fyrir Hæstarétti. Ákærði er í 1. lið ákæru borinn þeim sökum að hafa að kvöldi þriðjudagsins 2. febrúar 2010 í íþróttamiðstöðinni að [...], [...], sýnt af sér ósiðlegt athæfi gagnvart stúlkunni A, fæddri [...], sem þá var 15 ára ,,með því að láta hana sjúga á sér kynfærin gegn loforði um að hafa milligöngu um að útvega henni áfengi.“ Niðurstaða héraðsdóms um sakfellingu ákærða samkvæmt þessum lið ákæru er einkum reist á framburði brotaþola hjá lögreglu og fyrir dómi, en um frumkvæði ákærða að fundi þeirra er einnig vísað til framburðar vitnis og til samskipta hans og brotaþola eftir atvikið. Ákærði hefur játað þau kynferðislegu samskipti við brotaþola á tilgreindum stað og tíma, sem í ákæru greinir, en kveður þau hafi farið fram með samþykki hennar. Hann mótmælir því eindregið að samþykki brotaþola til þeirra samskipta hafi verið veitt með því skilyrði að hann lofaði að hafa milligöngu um að útvega henni áfengi. Hann kveður brotaþola hafa fyrst óskað eftir því í bifreiðinni er hann ók henni heim eftir veru þeirra í íþróttahúsinu. Í kæru [...] 21. apríl 2010 segir um þetta: ,,[Brotaþoli] greindi frá því að áður en hún fór úr íþróttahúsinu hafi hún farið fram á það við [ákærða] að hann útvegaði henni áfengi sem hann og gerði.“ Í framburði starfsmanns sveitarfélagsins, sem vann að málinu, fyrir dómi kemur einnig fram að það hafi verið hennar skilningur eftir samtöl við brotaþola að hún hafi fengið þetta loforð fram hjá ákærða eftir hin kynferðislegu samskipti þeirra. Gegn eindregnum andmælum ákærða um þetta atriði telst ekki sannað svo hafið sé yfir skynsamlegan vafa, sbr. 1. mgr. 109. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, að ákærði hafi haft framangreind kynferðisleg samskipti við brotaþola gegn loforði af hans hálfu um að hafa milligöngu um að útvega henni áfengi. Í 1. mgr. 180. gr. laga nr. 88/2008 segir að hvorki megi dæma ákærða fyrir aðra hegðun en þá sem í ákæru greinir né heldur dæma aðrar kröfur á hendur honum. Þó megi sakfella hann þótt aukaatriði brots, svo sem staður og stund þess séu ekki skýrt eða rétt greind, enda telji dómari að vörn hafi ekki verið áfátt þess vegna. Sá þáttur sakargifta í 1. lið ákærunnar, sem lýtur að því að ákærði hafi komið fram vilja sínum gegn loforði um að hafa milligöngu um að útvega brotaþola áfengi, er ekki aukaatriði brotsins, heldur veigamikill þáttur í lýsingu ætlaðs brots hans. Þessi þáttur er í órofa sambandi við fyrri hluta brotalýsingar um að hann hafi ,,látið“ brotaþola viðhafa þær athafnir, sem lýst er í ákærunni. Þar sem þessi þáttur telst ekki sannaður er ekki fullnægt því skilyrði 1. mgr. 109. gr. laga nr. 88/2008 um að sanna þurfi ,,hvert það atriði sem varðar sekt og ákvörðun viðurlaga við broti“. Verður því, eins og ætluðu broti er lýst í 1. lið ákæru, að sýkna ákærða af þeim sökum sem hann er borinn í þessum lið. Í samræmi við þá niðurstöðu verður einkaréttarkröfu brotaþola vísað frá héraðsdómi, sbr. 2. mgr. 176. gr. laga nr. 88/2008. Ákærði unir sakfellingu samkvæmt 2. lið ákæru og er fallist á með héraðsdómi að sakfella beri hann samkvæmt þeim lið. Ákærði hefur ekki áður sætt refsingu. Eins og hér háttar til verður honum ekki gerð refsing vegna brots hans á 18. gr., sbr. 27. gr., áfengislaga nr. 75/1998. Allur sakarkostnaður í héraði og fyrir Hæstarétti greiðist úr ríkissjóði, sbr. 218. gr. laga nr. 88/2008. Staðfest er niðurstaða héraðsdóms um fjárhæð sakarkostnaðar þar með talin málsvararlaun skipaðs verjanda ákærða ásamt virðisaukaskatti. Þóknun skipaðs verjanda ákærða fyrir Hæstarétti ákveðst að meðtöldum virðisaukaskatti eins og greinir í dómsorði.

Hleð fleiri dómum…