Héraðsdómur Reykjavíkur
Dómur 21. september 2016.
Mál nr. S-558/2016:
Ákæruvaldið
(Sigrún Inga Guðnadóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Ilja Volkovs
(Björgvin Jónsson hrl)
Lykilorð
Áfengislagabrot. Skilorðsrof. Þjófnaður.
Útdráttur
Ákærði, sem rauf skilorð, dæmdur til 10 mánaða fangelsisrefsingar fyrir þjófnaðar- og áfengislagabrot.
Mál þetta, sem dómtekið var þriðjudaginn 20. september 2016, er höfðað með ákæru, útgefinni 23. ágúst 2016, á hendur Ilja Volkovs, kt. 000000-0000, Bergþórugötu 45, Reykjavík, fyrir eftirtalin brot:
I
Þjófnað með því að hafa, sunnudaginn 8. nóvember 2015, í verslun Bónuss, Laugavegi 59 í Reykjavík, stolið matvöru samtals að verðmæti 8.153 krónur. Telst þetta varða við 1. mgr. 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
II
Þjófnað og áfengislagabrot með því að hafa, laugardaginn 21. nóvember 2015, í verslun 10-11, Barónsstíg 4 í Reykjavík, stolið matvöru samtals að verðmæti 1.977 krónur og verið með óspektir sökum ölvunar, en ákærði henti mat í fót lögreglumanns á vettvangi.
Telst þetta varða við 1. mgr. 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og 21. gr., sbr. 1. mgr. 27. gr. áfengislaga nr. 75/1998.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar Verjandi ákærða krefst vægustu refsingar er lög leyfa og hæfilegrar þóknunar sér til handa. Farið var með mál þetta samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu er sækjanda og verjanda ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga. Ákærði hefur skýlaust játað brot sín. Sannað er með játningu ákærða og öðrum gögnum málsins að ákærði er sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök og eru brot hans rétt heimfærð til refsiákvæða í ákæru.
Ákærði er fæddur í október 1985. Samkvæmt sakavottorði var honum 22. nóvember 2013 gerð sektarrefsing vegna þjófnaðarbrots. Þann 28. sama mánaðar gekkst hann undir viðurlagaákvörðun fyrir húsbrot og eignaspjöll. Þá var ákærði dæmdur í Hæstarétti Íslands 30. október 2014 til 9 mánaða fangelsisrefsingar, skilorðsbundið í 3 ár, fyrir brot gegn valdstjórninni og tilraun til sérstaklega hættulegrar líkamsárásar. Með brotum þeim sem ákærði er sakfelldur fyrir í máli þessu hefur hann rofið skilorð framangreinds refsidóms. Verður dómurinn tekinn upp og ákærða dæmd refsing í einu lagi, sbr. 60. gr. og 77. gr. almennra hegningarlaga. Þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í 10 mánuði.
Ákærði greiði þóknun skipaðs verjanda síns, Björgvins Jónssonar hrl., 81.840 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti.
Af hálfu ákæruvaldsins sótti málið Sigrún Inga Guðnadóttir aðstoðarsaksóknari. Ragnheiður Harðardóttir héraðsdómari kveður upp dóminn.
Dómsorð:
Ákærði, Ilja Volkovs, sæti fangelsi í 10 mánuði.
Ákærði greiði þóknun skipaðs verjanda síns, Björgvins Jónssonar hrl., 81.840 krónur. Ragnheiður Harðardóttir