Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Lína Ágústsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Toader Cantaragiu (
Unnsteinn Örn Elvarsson lögmaður)
Ákærði var sakfelldur fyrir þjófnað, fjársvik, fíkniefna- og útlendingalagabrot en sýknaður af ákæru fyrir brot á áfengislögum og lögreglusamþykkt.
Ákærðu voru sakfelldir fyrir þjófnað með því að hafa í félagi brotist inn í verslun með því að bakka bifreið á rúðu, og annar var einnig sakfelldur fyrir umferðar-, áfengis- og fíkniefnalagabrot.
T var sakfelldur fyrir þrjú kynferðisbrot gagnvart barni, A, auk áfengis- og barnaverndarlagabrota. Þá var hann sakfelldur fyrir að hafa nauðgað brotaþola, B, og þá einnig fyrir kynferðisbrot gegn barni og brot á barnaverndar- og áfengislögum. T var einnig sakfelldur í héraðsdómi fyrir ítrekuð vændiskaup og brot gegn 1. mgr. 210. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Við ákvörðun refsingar var litið til 1., 2., 6. og 7. töluliðar 1. mgr. 70. gr., a-liðar 195. gr. og 77. gr. almennra hegningarlaga og T gert að sæta fangelsi í sjö ár. Var T gert að greiða A og B hvorri um sig miskabætur að fjárhæð 3.000.000 króna og gert að sæta upptöku nánar tilgreindra muna.
Ákæruvaldið (
Haukur Gunnarsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Ástu Kolbrúnu Jóhannesdóttur Wellings (
Leifur Runólfsson lögmaður)
Ákærða sakfelld fyrir fíkniefna- og áfengislagabrot.
Ákæruvaldið (
Elín Hrafnsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Kamillu Thao Duong (
Einar Hugi Bjarnason lögmaður)
Vörslur og framleiðsla fíkniefna.
Héraðssaksóknari (
Karl Ingi Vilbergsson saksóknari)
gegn
Theodóri Páli Theodórssyni (
Jónas Örn Jónasson lögmaður)
Maður sakfelldur fyrir nauðganir og kynferðisbrot gegn barni yngra en 15 ára (samræði og önnur kynferðismök), fyrir kynferðislega áreitni gegn barni, fyrir kaup á vændi og fyrir að hafa í vörslum sínum myndefni sem sýndi börn nakin og á kynferðislegan máta. Sýknað af broti gegn 209. gr. almennra hegningarlaga og 3. mgr. 99. gr. barnaverndarlaga.
Ákæruvaldið (Alla Rún Rúnarsdóttir saksóknarfulltrúi) gegn
Kristjáni Má Þorsteinssyni
Ákærði sakfelldur fyrir áfengislagabrot og akstur undir áhrifum áfengis.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Kamilla Kjerúlf saksóknarfulltrúi)
gegn
Gesti Hrafnkeli Kristmundssyni (
Skarphéðinn Pétursson lögmaður)
Ákærði var sakfelldur fyrir áfengislaga-, fíkniefnalaga- og umferðarlagabrot og gert að sæta fangelsi í 6 mánuði.
Staðfestur var dómur héraðsdóms þar sem Þ var sakfelldur fyrir frelsissviptingu, líkamsárás og hótanir samkvæmt 1., sbr. 2. mgr. 226. gr., 2. mgr. 218. gr. og 233. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, með því að hafa í félagi við aðra svipt A frelsi sínu í um fjórar klukkustundir við ógnvekjandi aðstæður, hótað honum og beitt hann alvarlegu ofbeldi. Ý var sakfelld fyrir hlutdeild í frelsissviptingu A, sbr. 1. mgr. 22. gr. almennra hegningarlaga. Jafnframt var Þ sakfelldur fyrir nánar tilgreind brot gegn lögum nr. 65/1974 um ávana- og fíkniefni, áfengislagabrot og vopnalagabrot. Þá var Þ sakfelldur fyrir ólögmæta nauðung, frelsissviptingu, tilraun til fjárkúgunar og rán gagnvart B, sbr. 1. mgr. 255. gr., 1. sbr. 2. mgr. 226. gr., 251. gr. sbr. 20. gr. og 252. gr. almennra hegningarlaga, með því að hafa í félagi við annan mann svipt B frelsi sínu í um tvær klukkustundir, hótað honum og beitt hann ofbeldi. Var Þ gert að sæta fangelsi í fjögur ár og greiða A 3.500.000 króna í miskabætur óskipt með Ý ásamt nánar tilgreindum vöxtum og B 1.500.000 króna í miskabætur ásamt nánar tilgreindum vöxtum. Var Ý gert að sæta fangelsi í 12 mánuði en fullnustu refsingarinnar frestað skilorðsbundið í tvö ár.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Lína Ágústsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Njáli Skarphéðinssyni (
Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir brot á hegningarlögum, áfengislögum, fíkniefnalögum og á lögreglusamþykkt fyrir Reykjavíkurborg. Dæmdur í 45 daga fangelsi. Hegningarauki við fyrri dóm.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Lína Ágústsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Þorbergi Bergmann Halldórssyni (
Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir brot gegn almennum hegningarlögum, umferðarlögum, áfengislögum, lögum um bann við tilteknum frammistöðubætandi efnum og lyfjum, lögum um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni og lögreglusamþykkt fyrir Reykjavíkurborg. Dæmdur í 19 mánaða fangelsi og ævilöng svipting ökuréttar áréttuð.
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum (
Daníel Reynisson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Andrzej Nurzynski (
Axel Kári Vignisson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir fíkniefnalagabrot og fyrir brot á lyfja-, áfengis- og tóbaksvarnarlögum. Upptaka. Sýkna að hluta.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Benedikt Smári Skúlason saksóknarfulltrúi)
gegn
Gesti Hrafnkeli Kristmundssyni (
Skarphéðinn Pétursson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir brot gegn umferðar-, vopna- og áfengislögum og lögum um meðferð ávana- og fíkniefna og dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi og sviptur ökurétti ævilangt. Þá var ákærða gert að sæta upptöku á m.a. landa, gambra og fíkniefnum.
Ákærðu sakfelld fyrir ýmis brot samkvæmt fimm ákærum, þ. á m. tvær frelsissviptingar, stórfellda líkamsárás, rán, hótanir, ólögmæta nauðung, fjársvik, brot á vopnalögum, fíkniefnalögum og áfengislögum. Tvö hinna ákærðu voru sýknuð. Hin sakfelldu voru dæmd til fangelsisvistar frá einu og upp í fjögur ár. Þá var ákærðu gert að greiða brotaþola miskabætur að fjárhæð 3.500.000 krónur og öðrum brotaþola 1.750.000 krónur. Loks var ákærðu gert að greiða þriðja brotaþola 3.716.454 krónur í skaðabætur.
Ákæruvaldið (Alla Rún Rúnarsdóttir fulltrúi) gegn
X
Ákærða gefið að sök áfengislagabrot. Sýkna.
X og Y voru sakfelld fyrir brot gegn A, dóttur Y og stjúpdóttur X. Var háttsemi þeirra talin varða við 1. mgr. 194. gr., 1. og 2. mgr. 202. gr., 1. mgr. 210. gr. a og 1., sbr. 2. mgr. 218. gr. b almennra hegningarlaga nr. 19/1940, auk þess sem Y var sakfelld fyrir áfengislagabrot. Þá var Y jafnframt sakfelld fyrir blygðunarsemisbrot gagnvart B, sbr. 209. gr. laga nr. 19/1940. X var einnig sakfelldur fyrir brot gegn 1. mgr. 210. gr. a laga nr. 19/1940 með því að hafa haft í vörslum sínum myndskeið og teikni- og ljósmyndir sem sýndu börn á kynferðislegan hátt, auk þess sem hann var sakfelldur fyrir brot gegn vopnalögum. Í málinu var X einnig ákærður fyrir brot gegn 1. mgr. 218. gr. b með því að hafa beitt börnin B og C ofbeldi. Með dómi héraðsdóms hafði X verið sakfelldur fyrir þá háttsemi en háttsemin heimfærð undir 98. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002. Í dómi Landsréttar kom fram að gegn neitun ákærða og að teknu tilliti til vitnisburða hefðu ekki verið færðar sönnur fyrir því að háttsemi hans hefði verið af þeim toga sem í fyrrgreindu ákvæði fælist og var X því sýknaður af þeim sakargiftum. Við ákvörðun refsingar var meðal annars litið til 1., 2., 3. og 7. töluliðar 1. mgr., 2. og 3. mgr. 70. gr. og a-liðar 195. gr. laga nr. 19/1940. Var refsing X ákveðin fangelsi í sex ár og refsing Y ákveðin fangelsi í fimm ár. Þá var ákærðu gert að greiða A óskipt 2.500.000 krónur í miskabætur, auk þess sem Y var gert að greiða B 400.000 krónur í miskabætur.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Auðbjörg Lísa Gústafsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn
Þór Þorsteinssyni
Ákærði sakfelldur fyrir vörslu-, áfengis- og umferðarlagabrot. Dæmdur í 3 mánaða fangelsi skilorðsbundið til tveggja ára.
Ákærði sakfelldur fyrir ýmis brot, m.a. stórfellt brot í nánu sambandi, brot á nálgunarbanni, eignaspjöll, líkamsárás og ólögmæta nauðung. Ákærði játaði brot sín skýlaust. Hann var dæmdur í 18 mánaða fangelsi. Til frádráttar refsingu kom gæsluvarðhald ákærða sem hann hafði sætt óslitið fram að uppkvaðningu dóms.
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum (
Súsanna Björg Fróðadóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Mariusz Wiszowaty (
Magnús Davíð Norðdahl lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir vörslur og ræktun fíkninefna og áfengislagabrot og dæmdur í átta mánaða fangelsi, skilorðsbundið til tveggja ára. Ákærða gert að sæta upptöku á kannabisplöntum, kannabislaufum, maríhúana og búnaði til ræktunar.
Héraðssaksóknari (
Dagmar Ösp Vésteinsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
X (
Björgvin Jónsson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir brot gegn 199. gr. almennra hegningarlaga, barnaverndarlögum og áfengislögum.
Ákærði sakfelldur fyrir kynferðisbrot gegn barni og fleira. Gert að sæta fangelsi í 3 ár, auk greiðslu miskabóta.
Sýknað af ákæru um líkamsárás en sakfellt fyrir brot gegn áfengislögum
Ákæruvaldið (
Sigurður Pétur Ólafsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Elmari Eggertssyni (
Snorri Sturluson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir umferðarlagabrot, hegningarlagabrot og áfengislagabrot og dæmdur í tíu mánaða fangelsi. Ákærða gert að sæta upptöku á haldlögðu áfengi og fíkniefnum auk þess sem ævilöng ökuréttarsvipting ákærða var áréttuð.
Ákærða var gert að sæta öryggisgæslu á viðeigandi stofnun.
Ákærði sakfelldur fyrir líkamsárás.
Ákæruvaldið (Kristín Jónsdóttir saksóknarfulltrúi) gegn
Jaroslaw Fliszek
Ákærði sakfelldur fyrir áfengislagabrot og þjófnaði.
Þ var dæmdur til greiðslu sektar fyrir áfengislagabrot.
X var dæmdur fyrir ölvun og óspektir við heimili fyrrverandi sambýliskonu
Ákæruvaldið (Sigurður Pétur Ólafsson aðstoðarsaksóknari) gegn
Boguslaw Jozef Warzocha
Ákærði var sakfelldur fyrir að þjófnað, tilraun til þjófnaðar og brot gegn áfengislögum. Hann játaði háttsemi sína og var dæmdur í þrjátíu daga fangelsi, en fullnustu refsingarinnar skyldi frestað skilorðsbundið í tvö ár.
Ákæruvaldið (
Halldór Rósmundur Guðjónsson saksóknarfulltrúi)
gegn
Guðmundur Helgi Rögnvaldsson (
Halldóra Aðalsteinsdóttir hdl)
Ákærði var sakfelldur fyrir brot gegn umferðarlögum, áfengislögum, lögreglulögum og lögum um ávana- og fíkniefni. Hann játaði skýlaust að hafa framið þá háttsemi sem hann var svo sakfelldur fyrir og var refsing hans ákveðin fangelsi í átta mánuði, en fullnustu fimm mánaða þeirrar refsingar skyldi frestað skilorðsbundið í þrú ár frá dómsuppsögu. Með þeim umferðarlagabrotum sem hann var sakfelldur fyrir, rauf hann skilyrði fyrir frestun á fullnustu skilorðsbundins hluta refsingar dóms frá 23. janúar 2014 og var sá hluti refsing þess dóms tekinn upp og ákærða dæmd refsing í einu lagi. Þá skyldi hann sviptur ökurétti ævilang og sæta upptöku fíkniefna.
Ákærði sýknaður af ákæru fyrir húsbrot og hótanir og brot gegn barnaverndarlöggjöf en sakfelldur fyrir að hafa haft í vörslum sínum heimatilbúið áfengi.
Ákærði var sakfelldur fyrir ólöglega framleiðslu áfengis. Dæmdur til greiðslu sektar, auk þess sem haldlagt áfengi o.fl. var gert upptækt. Hafnað var m.a. málsástæðum ákærða um ólögmæta húsleit, skort á ásetningi og að ósannað teldist að vökvinn uppfyllti skilyrði áfengislaga til að geta talist áfengi. Þá var því hafnað að refsing hans yrði felld niður vegna lögvillu.
Ákæruvaldið (
Sigrún Inga Guðnadóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Ilja Volkovs (
Björgvin Jónsson hrl)
Ákærði, sem rauf skilorð, dæmdur til 10 mánaða fangelsisrefsingar fyrir þjófnaðar- og áfengislagabrot.
Ákæruvaldið (
Arnþrúður Þórarinsdóttir saksóknari)
gegn
Þóri Sigurgeirssyni (
Theodór Kjartansson hdl)
Ákærði sakfelldur fyrir óspektir vegna ölvunar á almannafæri og fyrir valdstjórnarbrot með því að sparka í andlit lögreglumanns.
Ákæruvaldið (Sigurður Pétur Ólafsson aðstoðarsaksóknari) gegn
Leroy Ciprianne Jantjies
L var sakfelldur fyrir fíkniefnalagabrot. Tók sakfelling meðal annars til þess að hann hafði í vörslum sínum 18 kannabisplöntur sem hann hafði ræktað um nokkurt skeið. Þá var hann að auki sakfelldur fyrir áfengislagabrot og fyrir að hafa ekið bifreið undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Var refsing L ákveðin fangelsi í 30 daga en fullnustu þeirrar refsingar frestað skilorðsbundið í tvö ár. Þá var honum að auki gerð sektarrefsing og hann sviptur ökurétti í tvö ár.
Lögreglustjórinn á Vestfjörðum (Bryndís Ósk Jónsdóttir fulltrúi) gegn
Sigurði Erling Péturssyni, Elíasi Andra Karlssyni, Ingva Ólafi Ingvasyni og X I
Eignaspjöll, húsbrot, þjófnaður o.fl.
Ákæruvaldið (Halldór Rósmundur Guðjónsson fulltrúi) gegn
Eiríki Hannesi Kjerúlf
Ákærði sakfelldur fyrir umferðar-, áfengis- og fíkniefnalagabrot.
Ákæruvaldið (
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Gunnari B Baldvinssyni (
Bjarni Hauksson hrl)
Ákærði sakfelldur fyrir brot gegn valdstjórninni og brot á áfengislögum.
Ákæruvaldið (Sigurður Pétur Ólafsson fulltrúi) gegn
Einari Eðvarði Steinþórssyni
Ákærði sakfelldur fyrir þjófnaði og brot á lögreglu- og áfengislögum.
Ákærði sakfelldur fyrir brot á almennum hegningarlögum og áfengislögum. Gert að sæta fangelsi í níu mánuði, þar af sex skilorðsbundið til tveggja ára. Dæmdur var upp eldri skilorðsdómur.
Ákærði dæmdur í fangelsi.
Ákæruvaldið (Kjartan Ólafsson ftr) gegn
Arturs Barkans (sjálfur)
Ákærði sakfelldur fyrir brugg og dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi. 866 lítrar af gambra og 55,6 lítrar af vínanda var gert upptækt.
Ákæruvaldið (Margrét Harpa Garðarsdóttir fulltrúi) gegn
Martin Heiner S. F. Haschke (sjálfur)
Ákærði fundinn sekur um áfengislagabrot og honum gerð sekt.
Ákæruvaldið (Gunnar Örn Jónsson ftr) gegn
A (sjálfur)
Ákærði fundinn sekur um ölvun á almannafæri, líkamsárás og eignaspjöll, en ákvörðun um refsingu hans var frestað skilorðsbundið, m.a. með vísan til ungs aldurs ákærða og hreins sakaferils hans.
S var sakfelldur fyrir brot gegn áfengis- og barnaverndarlögum með því að hafa veitt þremur ungmennum, 16 og 17 ára að aldri, áfengi. Þá var S sakfelldur fyrir nauðgun, með því að hafa haft önnur kynferðismök en samræði við A með því að beita hana ofbeldi, og kynferðislega áreitni og barnaverndarlagabrot, með því að hafa skömmu síðar kysst A tungukossi. Var refsing S ákveðin fangelsi 18 mánuði og honum gert að greiða A 800.000 krónur í skaðabætur.
Ákæruvaldið (Gunnar Örn Jónsson ftr) gegn
Martin Heiner S. F. Haschke (sjálfur)
Ákærði fundinn sekur um áfengislagabrot og honum gerð sekt.
Ákærði var dæmdur í 45 daga fangelsi fyrir umferðarlagabrot, áfengislagabrot og tollalagabrot.
Ákæruvaldið (
Kolbrún Benediktsdóttir saksóknari)
gegn
Erik Jensen (
Páll Arnór Pálsson hrl)
E var ákærður fyrir áfengis- og fíkniefnalagabrot með því að hafa tekið við samtals 1 kg af amfetamíni og 400 g af hassi og haft í vörslum sínum og selt hluta fíkniefnanna, fyrir að hafa ræktað 24-26 kannabisplöntur sem gáfu af sér 200-300 g af kannabis sem ákærði seldi, fyrir að hafa framleitt 15 lítra af landa sem ákærði seldi og fyrir að hafa haft í vörslum sínum u.þ.b. 114 g af hassi, 1 g af marijúana, 23 g af kannabislaufum, 309 kannabisfræ, 60 g af amfetamíni og 6, 18 g af kókaíni. Með játningu E var hann fundinn sekur um brot gegn 173. gr. a. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, 2. gr. sbr. 4., 5., og 6. gr. laga nr. 65/1974 um ávana og fíkniefni og a- og b- liði 2. mgr. 4. gr., sbr. 2. mgr. 6. gr. og 1. mgr. 27. gr. áfengislaga nr. 75/1998. Við ákvörðun refsingar var litið til þess að ákærði, sem ekki hafði áður sætt refsingum, hafði játað brot sín greiðlega og sótt fíkniefnameðferð. Vegna alvarleika hinnar refsiverðu háttsemi þótti aftur á móti ekki fært að skilorðsbinda refsingu hans sem var ákveðin fangelsi í 18 mánuði.
Ákærði krefst aðallega sýknu af 1. lið í ákæru, til vara að ákvörðun refsingar verði frestað skilorðsbundið, en að því frágengnu „vægustu refsingar sem lög leyfa“ og að hún verði skilorðsbundin að fullu. Að því er varðar 2. ákærulið krefst ákærði þess aðallega að ákvörðun refsingar verði frestað skilorðsbundið, en til vara „vægustu refsingar sem lög leyfa“ og að hún verði skilorðsbundin að fullu. Þá krefst ákærði þess aðallega að einkaréttarkröfu verði vísað frá dómi, til vara að hann verði sýknaður af kröfunni, en að því frágengnu að hún verði lækkuð. A krefst þess að ákærða verði gert að greiða sér miskabætur að fjárhæð 800.000 krónur auk vaxta samkvæmt 8. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu frá 1. mars 2010 til 17. október 2010, en með dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr. sömu laga frá þeim degi til greiðsludags. Þá krefst hún málskostnaðar í héraði og fyrir Hæstarétti. Ákærði er í 1. lið ákæru borinn þeim sökum að hafa að kvöldi þriðjudagsins 2. febrúar 2010 í íþróttamiðstöðinni að [...], [...], sýnt af sér ósiðlegt athæfi gagnvart stúlkunni A, fæddri [...], sem þá var 15 ára ,,með því að láta hana sjúga á sér kynfærin gegn loforði um að hafa milligöngu um að útvega henni áfengi.“ Niðurstaða héraðsdóms um sakfellingu ákærða samkvæmt þessum lið ákæru er einkum reist á framburði brotaþola hjá lögreglu og fyrir dómi, en um frumkvæði ákærða að fundi þeirra er einnig vísað til framburðar vitnis og til samskipta hans og brotaþola eftir atvikið. Ákærði hefur játað þau kynferðislegu samskipti við brotaþola á tilgreindum stað og tíma, sem í ákæru greinir, en kveður þau hafi farið fram með samþykki hennar. Hann mótmælir því eindregið að samþykki brotaþola til þeirra samskipta hafi verið veitt með því skilyrði að hann lofaði að hafa milligöngu um að útvega henni áfengi. Hann kveður brotaþola hafa fyrst óskað eftir því í bifreiðinni er hann ók henni heim eftir veru þeirra í íþróttahúsinu. Í kæru [...] 21. apríl 2010 segir um þetta: ,,[Brotaþoli] greindi frá því að áður en hún fór úr íþróttahúsinu hafi hún farið fram á það við [ákærða] að hann útvegaði henni áfengi sem hann og gerði.“ Í framburði starfsmanns sveitarfélagsins, sem vann að málinu, fyrir dómi kemur einnig fram að það hafi verið hennar skilningur eftir samtöl við brotaþola að hún hafi fengið þetta loforð fram hjá ákærða eftir hin kynferðislegu samskipti þeirra. Gegn eindregnum andmælum ákærða um þetta atriði telst ekki sannað svo hafið sé yfir skynsamlegan vafa, sbr. 1. mgr. 109. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, að ákærði hafi haft framangreind kynferðisleg samskipti við brotaþola gegn loforði af hans hálfu um að hafa milligöngu um að útvega henni áfengi. Í 1. mgr. 180. gr. laga nr. 88/2008 segir að hvorki megi dæma ákærða fyrir aðra hegðun en þá sem í ákæru greinir né heldur dæma aðrar kröfur á hendur honum. Þó megi sakfella hann þótt aukaatriði brots, svo sem staður og stund þess séu ekki skýrt eða rétt greind, enda telji dómari að vörn hafi ekki verið áfátt þess vegna. Sá þáttur sakargifta í 1. lið ákærunnar, sem lýtur að því að ákærði hafi komið fram vilja sínum gegn loforði um að hafa milligöngu um að útvega brotaþola áfengi, er ekki aukaatriði brotsins, heldur veigamikill þáttur í lýsingu ætlaðs brots hans. Þessi þáttur er í órofa sambandi við fyrri hluta brotalýsingar um að hann hafi ,,látið“ brotaþola viðhafa þær athafnir, sem lýst er í ákærunni. Þar sem þessi þáttur telst ekki sannaður er ekki fullnægt því skilyrði 1. mgr. 109. gr. laga nr. 88/2008 um að sanna þurfi ,,hvert það atriði sem varðar sekt og ákvörðun viðurlaga við broti“. Verður því, eins og ætluðu broti er lýst í 1. lið ákæru, að sýkna ákærða af þeim sökum sem hann er borinn í þessum lið. Í samræmi við þá niðurstöðu verður einkaréttarkröfu brotaþola vísað frá héraðsdómi, sbr. 2. mgr. 176. gr. laga nr. 88/2008. Ákærði unir sakfellingu samkvæmt 2. lið ákæru og er fallist á með héraðsdómi að sakfella beri hann samkvæmt þeim lið. Ákærði hefur ekki áður sætt refsingu. Eins og hér háttar til verður honum ekki gerð refsing vegna brots hans á 18. gr., sbr. 27. gr., áfengislaga nr. 75/1998. Allur sakarkostnaður í héraði og fyrir Hæstarétti greiðist úr ríkissjóði, sbr. 218. gr. laga nr. 88/2008. Staðfest er niðurstaða héraðsdóms um fjárhæð sakarkostnaðar þar með talin málsvararlaun skipaðs verjanda ákærða ásamt virðisaukaskatti. Þóknun skipaðs verjanda ákærða fyrir Hæstarétti ákveðst að meðtöldum virðisaukaskatti eins og greinir í dómsorði.
Ákærði var dæmdur í þriggja mánaða fangelsi fyrir áfengislagabrot, hylmingu og þjófnað.