Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kamilla Kjerúlf aðstoðarsaksóknari) gegn
Steindóri Halldórssyni
Ákærði sakfelldur fyrir fíkniefnalagabrot og dæmdur til greiðslu sektar í ríkissjóð.
Framkvæmdastjóri og fjármálastjóri félags ákærðir fyrir stórfellt skattalagabrot. Var framkvæmdastjórinn sakfelldur og dæmdur í 12 mánaða skilorðsbundið fangelsi og gert að greiða sekt í ríkissjóð, en fjármálastjórinn var sýknaður.
Karlmaður var sakfelldur fyrir framleiðslu, öflun og vörslur á þremur ljósmyndum sem sýndu annars vegar tölvugert "barn" og hins vegar raunverulegt barn á kynferðislegan hátt og gerð 100.000 króna fésektarrefsing. Ákærði var á hinn bóginn sýknaður af stærstum hluta sakarefnis, sem laut að myndatöku af kynlífsdúkkum.
Dæmd skilorðsbundin fangelsisrefsing og óskilorðsbundin fésekt vegna meiriháttar skattalagabrota.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Agnes Ýr Stefánsdóttir saksóknarfulltrúi)
gegn
Steindóri Halldórssyni (
Snorri Sturluson lögmaður)
Ákærði var sakfelldur fyrir ítrekuð brot gegn umferðarlögum og var gert að greiða 2.300.000 króna sekt til ríkissjóðs inn en sæta ella fangelsi í 64 daga. Einnig var ákærði sviptur ökurétti í 5 ár frá 2. ágúst 2024 að telja.
Lögreglustjórinn á Suðurlandi (
Ólafur Hallgrímsson fulltrúi)
gegn
Kristni Skagfjörð Sæmundssyni (
Gísli Tryggvason lögmaður)
Ákærði var dæmdur í 30 daga fangelsi, skilorðsbundið í 3 ár og til greiðslu 820.000 króna sektar fyrir að aka bifreið þrívegis undir áhrifum tetrahýdrókannabínóls og fyrir ræktun og vörslur á kannabisplöntum og kannabisefnum. Talið var ósannað að ræktun fíkniefnanna hafi verið í sölu- og dreifingarskyni. Þá var ákærði sviptur ökurétti í 5 ár.
Ákæruvaldið (
Ásmunda B. Baldursdóttir saksóknari)
gegn
Benedikt Sveinssyni (
Sævar Þór Jónsson lögmaður)
Ákærða var gert að sæta skilorðsbundnu fangelsi vegna meiri háttar skattalagabrots. Þá var ákærða gert að greiða sekt en sæta ella vararefsingu í fangelsi.
Tveir menn dæmdir fyrir líkamsárás hvor gegn hinum.
Ákærðu sakfelldir fyrir brot gegn 1. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga og annar ákærðu jafnframt sakfelldur fyrir að hafa tvívegis ekið bifreið undir áhrifum áfengis og fíkniefna, en um ítrekun var að ræða. Sá var dæmdur í 3 mánaða fangelsi skilorðsbundið í 2 ár auk greiðslu 410.000 króna sektar og til að sæta sviptingu ökuréttar í 5 ár. Ákvörðun um refsingu hins var frestað skilorðsbundið í 2 ár. Báðir voru dæmdir til að greiða brotaþola miskabætur.
Ákæruvaldið (
Finnur Þór Vilhjálmsson saksóknari)
gegn
Sigurði Kristinssyni (
Hilmar Magnússon lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir stórfelld brot á skattalögum og dæmdur til 20 mánaða skilorðsbundinnar fangelsisvistar, auk fésektar að fjárhæð 137.000.000 króna.
Ákærðu voru fundinr sekir um skattalagabrot.
Ákæruvaldið (
Kristmundur Stefán Einarsson saksóknarfulltrúi)
gegn
Einari Ágústi Gunnsteinssyni (
Ómar R. Valdimarsson lögmaður) og
Huldu Líf Freysdóttur (
Magnús Norðdahl lögmaður)
Ákærði var sakfelldur fyrir brot gegn fíkniefna- og umferðarlögum. Var hann dæmdur til að sæta fangelsi í 60 daga, skilorðsbundið til tveggja ára. Ákærða var sakfelld fyrir brot gegn fíkniefnalögum og dæmd sektarrefsing.
Ákæruvaldið (
Kristín Ingileifsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Gunnari Rúnari Gunnarssyni (
Kristján Stefánsson lögmaður)
Ákærði var dæmdur í 6 mánaða fangelsi og til greiðslu 13.600.000 króna sektar fyrir meiri háttar brot gegn skattalögum, en um hegningarauka var að ræða.
Ákæruvaldið (
Ásmunda Björg Baldursdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Ævari Inga Pálssyni (
Sigurður Sigurjónsson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir meiriháttar brot gegn skattalögum. Ákærði játaði brot sín greiðlega. Var hann dæmdur í 10 mánaða skilorðsbundið fangelsi og til greiðslu fésektar.
Ákærði dæmdur til greiðslu sektar fyrir eignaspjöll.
Ákæruvaldið (Elimar Hauksson fulltrúi) gegn
Hreggviði Hermannssyni (sjálfur)
Ákærði sakfelldur fyrir þjófnað, líkamsárás og brot gegn vegalögum. Skilorðsbundið fangelsi auk fésektar. Sýknað af einu ákæruatriði.
Ákæruvaldið (Auðbjörg Lísa Gústafsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn
Olga Sadenko
Ákærða dæmd til sektargreiðslu fyrir brot gegn umferðar- og fíkniefnalögum.
Piltur dæmdur í 45 daga skilorðsbundið fangelsi, til greiðslu skaðabóta og til greiðslu 70.000 króna sektar fyrir þjófnað og akstur undir áhrifum fíkniefna. Sviptur ökurétti í 4 mánuði. Ekki var fallist á þá vörn ákærða að óheimilt hafi verið að byggja á sýnum sem tekin höfðu verið undir rannsókn málsins.
Ákærði dæmdur til að greiða sekt og til sviptingar ökuréttar fyrir að aka alls fimm sinnum sviptur ökurétti og fjórum sinnum óhæfur til að stjórna bifreið örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna.
Ákæruvaldið (
Elimar Hauksson fulltrúi)
gegn
Svavari Valdimarssyni (
Ólafur Björnsson hrl)
Ákærði var fundinn sekur um umferðaralagabrot, með því að hafa ekið með óskráðan og óhemlaðan eftirvagn, með 11.650 kg yfirþunga. Refsing ákærða var hæfilega ákveðin 800.000 kr. sekt í ríkissjóð.
Ákæruvaldið (
Grímur Hergeirsson fulltrúi)
gegn
Ásgeiri Svan Herbertssyni (
Guðmundur Ágústsson hrl)
Ákærði var fundinn sekur um umferðaralagabrot, með því að hafa ekið með óskráðan, óhemlaðan og ljóslausan eftirvagn, án undirakstursvarnar með 10.400 kg yfirþunga. Refsing ákærða var hæfilega ákveðin 800.000 kr sekt í ríkissjóð.
Ákæruvaldið (Jóhann Svanur Hauksson aðstoðarsaksóknari) gegn
Guðleifi Jóni Tryggvasyni
Ákærði Dæmdur til greiðslu sektar fyrir fíkniefna-, umferðarlagabrot, vörslu fíkniefna og þjófnað.
Skattalagabrot.
Ákærði dæmdur í 6 mánaða skilorðsbundið fangelsi og til greiðslu sektr fyrir brot gegn skattalögum.
Tveir menn ákærðir fyrir líkamsárás á hvorn annan og annar þeirra auk þess fyrir eignaspjöll á bifreið hins. Var sá síðarnefndi sakfelldur í samræmi við játningu fyrir líkamsárás og eignaspjöll, en hinn sýknaður af líkamsárás á grundvelli neyðarvarnar. Einkaréttarkröfu vísað frá dómi. Kröfu um frávísun ákæru fyrir eignaspjöll hafnað.
Umferðarlagabrot. Skjalabrot.
Ákæruvaldið (
Ólafur Helgi Kjartansson lögreglustjóri)
gegn
Andreu Hilmarsdóttur (
Kristján Stefánsson hrl)
Ákærða var fundin sek um þjófnað og umferðarlagabrot. Var henni gert að sæta fangelsi í 30 daga, skilorðsbundið til tveggja ára, auk þess sem henni var gerð sekt og hún svipt ökurétti tímabundið.
Ákæruvaldið (
Kristín Ingileifsdóttir saksóknarftr)
gegn
X og Y (
Valtýr Sigurðsson hrl)
Ákærðu voru sakfelldir fyrir meiriháttar brot gegn skattalögum.
Ákæruvaldið (Margrét Harpa Garðarsdóttir fulltrúi) gegn
Martin Heiner S. F. Haschke (sjálfur)
Ákærði fundinn sekur um áfengislagabrot og honum gerð sekt.
Ákæruvaldið (Ólafur Helgi Kjartansson lögreglustjóri) gegn
Artur Marek Szczodrowski (sjálfur)
Ákærði sakfelldur fyrir eignaspjöll, tilraun til kálþjófnaðar og akstur sviptur ökurétti. Þá var ákærði dæmdur til greiðslu skaðabóta. Fallið var frá kröfum á hendur meðákærðu undir meðferð málsins.
Ákæruvaldið (Gunnar Örn Jónsson ftr) gegn
Martin Heiner S. F. Haschke (sjálfur)
Ákærði fundinn sekur um áfengislagabrot og honum gerð sekt.
17 ára gamall karlmaður sakfelldur fyrir þjófnað, nytjastuld, ölvunarakstur, akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna og önnur umferðarlagabrot. Skilorðsdómur dæmdur upp.
Ákærði sakfelldur fyrir eignaspjöll og gert að greiða sekt til ríkissjóðs og skaðabætur.
Ákæruvaldið (
Karl Gauti Hjaltason sýslumaður)
gegn
Ársæli Þór Kristjánssyni (
Ingi Freyr Ágústsson hdl)
Sakfellt fyrir vörslur fíkniefna.
Tveir bændur ákærðir fyrir brot á lögum og reglugerðum á sviði dýraverndar og búfjárhalds, annar þeirra B, fyrir hlutdeild í tilteknum brotum hins, A. Ákærðu bæði sakfelld af hluta sakargifta en sýknuð af öðrum. A dæmt 30 daga skilorðsbundið fangelsi en B til greiðslu 50.000 króna sektar.
X og A ehf. var gefið að sök að hafa í tvö skipti skráð rangar upplýsingar um nettóvigt afla skipanna SJ og SÆ á endurvigtunarnótur sem X gaf út fyrir hönd einkahlutafélagsins og að hafa ekki vegið allan afla fyrrgreindra skipa í eitt skipti. Voru brot ákærðu talin varða við nánar tilgreind ákvæði laga um umgengni um nytjastofna sjávar og reglugerð um vigtun og skráningu sjávarafla, svo og 1. mgr. 158. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Í málinu lá fyrir að Neytendastofa hafði, í framhaldi af ábendingu Fiskistofu, áminnt X vegna háttseminnar á grundvelli laga nr. 91/2006. Í dómi Hæstaréttar kom fram að af orðalagi 42. gr. þeirra laga bæri Neytendastofu að meta með hliðsjón af grófleika brots og réttarvörslusjónarmiðum, hvort máli skyldi lokið með stjórnvaldsákvörðun eða það kært til lögreglu. Við það mat bæri Neytendastofu að hafa til hliðsjónar að ákvæði laga nr. 91/2006 væru reist á því megin viðhorfi að ekki yrði bæði lögð á stjórnvaldssekt og dæmd refsing fyrir sama lögbrotið heldur yrði önnur hvor leiðin valin. Neytendastofa gæti ekki framselt öðrum stjórnvöldum áðurgreint mat né gætu önnur stjórnvöld tekið sér einhliða slíkt mat þannig að þýðingu hefði að lögum. Kæra Fiskistofu til ríkislögreglustjóra vegna ætlaðra brota X hefði því ekki verið í samræmi við áðurgreint og ætti sér ekki lagastoð. Var máli ákæruvaldsins gegn X því vísað frá héraðsdómi. Hvað ákærða A ehf. varðaði var fallist á með héraðsdómi að endurvigtanirnar hefðu verið rangar og að umrædd brot hefðu verið félaginu til hagsbóta í skilningi 24. gr. laga nr. 57/1996. Var sektarrefsing A ehf. því staðfest.
Ákæruvaldið (
Vilhjálmur Reyr Þórhallsson ftr)
gegn
Hlyni Ólafssyni (
Ásbjörn Jónsson hrl)
Sakfellt fyrir líkamsárás.
Stefndi B dæmdur til að greiða stefnanda skaðabætur vegna tjóns sem stefnandi varð fyrir vegna líkamsárásar B á hendur honum. Stefndi A, sem jafnframt tók þátt í líkamsárásinni, var hins vegar sýknaður af kröfum stefnanda þar sem tjón stefnanda gat ekki talist sennileg afleiðing af háttsemi A. Lögmanni gerð réttarfarssekt vegna háttsemi við aðalmeðferð.
Ákæruvaldið (Björn Hrafnkelsson fulltrúi) gegn
Sverri Snæ Ingimarssyni (sjálfur)
karlmaður sakfelldur fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni
Ákæruvaldið (Einar Tryggvason aðstoðarsaksóknari) gegn
Eysteini, Sigurðssyni, Magnúsi, Þormari Hilmarssyni, Skeifunni og fasteignamiðlun ehf
Ákærðu voru sakfelldir fyrir meiri háttar brot gegn skattalögum framin í rekstri einkahlutafélags. Voru þeir dæmdir í skilorðbundna fangelsisrefsingu og gert, í félagi við lögðilann, að greiða fésekt í ríkissjóð.
Ákæruvaldið (
Katrín Ólöf Einarsdóttir fulltrúi)
gegn
Ólafi Erni Halldórssyni (
Jón Egilsson hdl)
Ákærði dæmdur til greiðslu sektar fyrir umferðarlagabrot. Þá var hann sviptur ökurétti í 3 ár.
Ákærði dæmdur til greiðslu sektar og sviptur ökurétti fyrir umferðalagabrot.
Ákærði dæmdur til greiðslu sektar fyrir umferðarlagabrot.
Ákæruvaldið (Björn Hrafnkelsson fulltrúi) gegn
Þey Guðmundssyni (sjálfur)
Karlmaður sakfelldur fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni og fyrir brot gegn umferðarlögum.
Ákæruvaldið (
Björn Hrafnkelsson fulltrúi)
gegn
Haraldi Árnasyni, Árna Max Haraldssyni og Ríkarði Leó Guðmundssyni (
Ásgeir Helgi Jóhannsson hdl)
Fjórir karlmenn sakfelldir fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni
Ákæruvaldið gegn
Gunnari Benediktssyni (sjálfur)
Karlmaður dæmdur í fjársekt fyrir líkamsárás.
Ákærði dæmdur í sekt og ökuleyfissviptingu fyrir akstur undir áhrifum fíkniefna.
Ákæruvaldið (Karl Gauti Hjaltason sýslumaður) gegn
Hjálmari Sveinbjörnssyni
Ákærði ekki sakfelldur fyrir brot gegn 1. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga þar sem talið var ósannað að áverka kæranda mætti rekja til háttsemi ákærða. Ákærði sakfelldur fyrir brot gegn 1. mgr. 217. gr. sömu laga og gert að greiða fjársekt. Bótakröfu vísað frá dómi.
Ákæruvaldið (Eyþór Þorbergsson fulltrúi) gegn
X
Dæmd sekt vegna brots á ávana- og fíkniefnalögum.
F var sakfelldur fyrir þjófnað með því að hafa stolið tveimur leikjatölvum og fyrir að hafa ekið undir áhrifum ávana- og fíkniefna í tvígang og í síðara skiptið einnig undir áhrifum áfengis. F var dæmdur til að sæta fangelsi í sex mánuði en fullnustu fimm mánaða refsingarinnar var frestað. Þá var F dæmdur til greiðslu 250.000 króna sektar og sviptur ökurétti í þrjú ár.