Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

151 dómar fundust

Lykilorð: Skattar

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 18. apríl 2026 kl. 23:53

E-2380/2025

Stofulind ehf (Kristján Gunnar Valdimarsson lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Bragi Dór Hafþórsson lögmaður)

Stefndi var sýknaður af kröfu stefnanda um að felldir yrðu úr gildi úrskurðir yfirskattanefndar og skattrannsóknarstjóra um að útgefnir sölureikningar á hendur stefnanda sem um var deilt í málinu uppfylltu ekki skilyrði frádráttar rekstrargjalda samkvæmt 31. gr. laga nr. 90/2003 um tekjuskatt og væru ekki tækir sem grundvöllur innskattsfrádráttar samkvæmt 3. mgr. 15. gr. laga nr. 50/1988 um virðisaukaskatt.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 12. maí 2025

E-4493/2024

Inga Dóra Sigurðardóttir og Börkur Arnviðarson (Guðbjörg Þorsteinsdóttir lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Jóhanna Katrín Magnúsdóttir lögmaður)
Málaflokkur: Skattaréttur

Stefnendur fengu arðgreiðslur frá félagi sem skráð var með skattalega heimilisfesti í Danmörku og greiddu fjármagnstekjuskatt af þeim að hluta til danska ríkisins. Í kjölfar þess að ríkisskattstjóri úrskurðaði félagið heimilisfast á Íslandi aftur í tímann fékkst skatturinn endurgreiddur frá dönskum skattyfirvöldum. Í málinu var deilt um það hvort stefnda, íslenska ríkinu, hefði verið rétt að bæta 2,5% álagi skv. 122. gr. tekjuskattslaga við greiðslurnar og m.a. gerð krafa um ógildingu úrskurðar yfirskattanefndar þar að lútandi. Dómurinn leit til þess að orðið hefði mismunur á álögðum tekjuskatti stefnenda og staðgreiðslu þeirra og taldi ekki efni til að fallast á málsástæður þeirra um viðtökudrátt, ómöguleika eða réttmætar væntingar. Þá voru mistök við lagasetningu í tíð eldri laga ekki talin hafa þýðingu í málinu auk þess sem málsmeðferðarreglur stjórnsýsluréttarins hefðu ýmist ekki verið brotnar eða leiddu ekki til ógildingar úrskurðarins. Var stefndi sýknaður af kröfum stefnenda.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 2. desember 2024

E-2666/2020

A (Jón Elvar Guðmundsson lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Jóhanna Katrín Magnúsdóttir lögmaður)

Ágreiningur var um hvort stefnandi hefði fellt niður heimilisfesti á Íslandi í kjölfar tilkynningar til þjóðskrár um breytingu á lögheimili. Voru aðstæður stefnanda metnar heildstætt og því hafnað að stefnandi hefði flutt heimilisfesti með tilkynningu sinni til þjóðskrár.

Héraðsdómur Vesturlands birt 29. nóvember 2024

S-276/2023

Héraðssaksóknari (Sigríður Árnadóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Óskari Óskarssyni (Leó Daðason lögmaður)
Málaflokkur: Skattaréttur

Ákærði sakfelldur fyrir meiriháttar skattalagabrot. Fimm mánaða fangelsi skilorðsbundið. Fésekt og vararefsing, en sýknað af kröfu um atvinnurekstrarbann.

Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 15. júlí 2024

E-475/2023

Gentle Giants-Hvalaferðir ehf (Daníel Isebarn Ágústsson lögmaður) gegn Hafnasjóði Norðurþings og Norðurþingi til vara (Hilmar Gunnlaugsson lögmaður)

Stefnandi taldi álagningu farþegagjalda af hvalaskoðunarbátum ólögmæta af hálfu hafnarsjóðs og krafðist endurgreiðslu. Taldi dómurinn skýra lagaheimild standa til álagningar gjaldanna og ennfremur að álagningin uppfyllti þær kröfur sem gerðar hefðu verið í réttarframkvæmd til þjónustugjalda. Voru gögn málsins ekki talin bera annað með sér en að gjöldin væru ákvörðuð á rökréttum og sanngjörnum grunni. Var hafnarsjóður því sýknaður og stefnanda gert að greiða málskostnað.

Héraðsdómur Suðurlands birt 17. maí 2024

S-280/2023

Héraðssaksóknari (Teitur Már Sveinsson saksóknarfulltrúi) gegn Ómari Jóhannssyni (Eiríkur Gunnsteinsson lögmaður)
Málaflokkur: Skattaréttur

Ákærði var fundinn sekur um meiri háttar brot gegn skattalögum,í rekstri einkahlutafélags, meðal annars með því að hafa staðið skil á efnislegra rangri virðisaukaskattskýrslu og vanframtalið virðisaukaskatt sem og eigið staðið skil á staðgreiðslu opinberra gjalda. Var ákærða gert að sæta fangelsi í átta mánuði, skilorðsbundið í tvö ár, jafnframt 85.000.000 króna sekt í ríkissjóð. Þá var ákærði og dæmdur til greiðslu sakarkostnaðar.

Héraðsdómur Suðurlands birt 15. mars 2024

S-364/2023

Héraðssaksóknari (Sigríður Árnadóttir Aðstoðarsaksóknari) gegn Inga Rafni Bragasyni (Ómar R. Valdimarsson lögmaður)
Málaflokkur: Skattaréttur

Ákærði var fundinn sekur um meiri háttar brot gegn skattalögum, sem framkvæmdastjóri einkahlutafélags, og var honum gert að sæta fangelsi í 16 mánuði, skilorðsbundið til tveggja ára janframt fésekt er nam rúmum 42 milljónum króna. Þá var ákærði sýknaður af kröfu ákæruvaldsins um atvinnurekstrarbann.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 12. mars 2024

E-3701/2023

A (Halldór Jónsson lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Jóhanna Katrín Magnúsdóttir lögmaður)
Málaflokkur: Skattaréttur

Hafnað var kröfu um að úrskurður ríkisskattstjóra um endurákvörðun opinberra gjalda yrði felldur niður af þeirri ástæðu að stefnandi hefði verið sýknaður í sakamáli vegna umræddra krafna. Þá var ekki fallist á að þeir ágallar væru á stjórnsýslulegri meðferð málsins sem ættu að leiða til þess að ógilda endurákvörðun skattyfirvalda og talið að stefnandi gæti ekki komist hjá skattgreiðslum með því að semja á þann hátt að launagreiðslur fyrir persónulegt vinnuframlag í þágu erlendrar samstæðu, sem ella hefðu runnið til stefnanda, sbr. 1. mgr. 1. tölul. A-liðar 7. gr. laga nr. 90/2003, greiddust sem þóknanatekjur til einkahlutafélags í eigu stefnanda og eiginkonu hans og kæmu til lækkunar á skuldum þess félags gagnvart stefnanda. Þá voru ekki talin liggja fyrir gögn um að stefnandi hefði persónulega greitt kostnað vegna útgjalda erlendu félaganna að öðru leyti en því að fallist var á að endurákvörðun vegna gjaldaársins 2011 yrði felld niður.

Héraðsdómur Suðurlands birt 16. október 2023

S-18/2023

Héraðssaksóknari (Teitur Már Sveinsson saksóknarfulltrúi) gegn Stefáni Ólasyni (Sævar Þór Jónsson lögmaður) og og Svanbjörgu Vilbergsdóttur (Karl Georg Sigurbjörnsson lögmaður)
Málaflokkur: Skattaréttur

Ákærðu voru bæði fundinn sek um meiri háttar skattalagabrot í rekstri einkahlutafélags. Var hvoru um sig gert að sæta fangelsi í tíu mánuði, en fullnustu refsingu beggja frestað skilorðsbundið til tveggja ára. Þá var hvoru um sig gert að greiða sekt að fjárhæð 53.000.000 kr.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 9. mars 2023

E-5413/2021

115 Security ehf (Bjarnfreður Ólafsson lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Ingvi Snær Einarsson lögmaður)
Málaflokkur: Skattaréttur

Ágreiningur í málinu laut m.a. að því hvort virða bæri greiðslur stefnanda, sem rekur öryggisþjónustu, til nokkurra félaga á árunum 2011-2014 sem launagreiðslur en ekki sem greiðslur fyrir aðkeypta þjónustu. Með dóminum var hafnað kröfu stefnanda um að úrskurður yfirskattanefndar sem staðfesti úrskurð ríkisskattstjóra um endurákvörðun virðisaukaskatts og tryggingagjalds stefnanda yrðu felldir úr gildi.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 30. nóvember 2022

E-73/2022

XTX Markets Limited (Bjarnfreður Ólafsson lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Eiríkur Áki Eggertsson lögmaður)

Ágreiningur málsins varðaði það álitaefni hvort heimilt hafi verið að fella útibú stefnanda, XTX Markets Limited, útibú á Íslandi, af grunnskrá virðisaukaskatts. Var það niðurstaða dómsins samkvæmt skýru orðalagi ákvæðis 7. mgr. 5. gr. laga nr. 50/1988 að ríkisskattstjóra hafi verið heimilt að úrskurða útibú stefnanda af virðisaukaskattsskrá um leið og ljóst var að skilyrði sem lögin mæla fyrir um voru ekki uppfyllt.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 28. apríl 2021

S-2217/2021

Kristín Ingileifsdóttir aðstoðarsaksóknari gegn Unnsteinn Örn Elvarsson lögmaður
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Ákærði sakfelldur fyrir meiriháttar brot gegn skattalögum og lögum um bókhald í rekstri einkahlutafélags sem nú er afskráð. Einnig var hann sakfelldur fyrir peningaþvætti. Ákærði játaði brot sín skýlaust og var dæmdur í þriggja mánaða fangelsi en fullnustu refsingarinnar var frestað skilorðsbundið í tvö ár. Þá var ákærði dæmdur til að greiða sekt í ríkissjóð.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 8. apríl 2021

E-1889/2020

Eimskipafélag Íslands hf (Garðar Guðmundur Gíslason lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Einar Karl Hallvarðsson lögmaður)
Málaflokkur: Skattaréttur

Í málinu var deilt um endurákvörðun ríkisskattstjóra á opinberum gjöldum stefnanda gjaldárin 2014 og 2015 vegna óbeins eignarhalds stefnanda á lögaðilum á eyjunum Antígva og Barbúda í Karíbahafi, sbr. 57. gr. a í lögum nr. 90/2003 um tekjuskatt með síðari breytingum. Var það niðurstaða dómsins að sýkna bæri stefnda, íslenska ríkið af öllum kröfum stefnanda, Eimskipafélags Íslands hf.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 26. júní 2020

E-5634/2019

Sérverk ehf (Einar Hugi Bjarnason lögmaður) gegn Reykjavíkurborg (Ebba Schram lögmaður)

p br/ppStefndi gerði samninga við lóðarhafa í Vogabyggð um þátttöku þeirra í kostnaði af uppbyggingu hverfisins með útgáfu skuldabréfs. Miðaðist greiðslan við stærð þeirra fasteigna sem heimilt var að reisa á hverri lóð samkvæmt nýju deiliskipulagi. Stefnandi keypti lóðaréttindi af einum viðsemjanda stefnda, m.a. með yfirtöku greiðsluskyldu samkvæmt skuldabréfinu. Hafnað var kröfu hans um endurgreiðslu þeirrar fjárhæðar á grundvelli reglna um endurgreiðslu oftekinna skatta. Ekki var fallist á málsástæður stefnanda sem byggðu á því að umdeild greiðsla væri skattur eða ígildi skatts, sem ekki ætti sér stoð í lögum. Niðurstaða dómsins var sú að greiðsluskyldan hvíldi á gagnkvæmum samningi og væri ekki skattur. Því var jafnframt hafnað að stefnda væri óheimilt að ráðstafa greiðslunni til lögbundinna verkefna sinna eða verkefna sem í lögum væri markaður sérstakur tekjustofn. Ennfremur var því hafnað að forsendur samningsákvæðisins byggði á ómálefnalegum eða ólögmætum sjónarmiðum sem og þeim málsástæðum að samningurinn bryti í bága við reglu stjórnsýsluréttar um jafnræði og meðalhóf./ppbr/ppnbsp;/ppbr/p

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 24. janúar 2020

E-3435/2018

Stjörnugrís hf (Sigurður Kári Kristjánsson) gegn Íslenska ríkinu (Einar Karl Hallvarðsson)

Stefndi var sýknaður af dómkröfum stefnanda sem byggðu á ólögmætri töku þjónustugjalda vegna svokallaðs yfirmats sem sannarlega fór ekki fram hjá stefnanda. Komst dómurinn hins vegar að þeirri niðurstöðu að fallast bæri á með stefnda að umrætt gjald í 2. mgr. 16. gr. laga nr. 96/1997 væri í reynd gild skattlagningarheimild og að skattheimtan hjá stefnanda hefði verið til samræmis við hana.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 28. mars 2019

E-4055/2017

Sjávarsýn ehf (Garðar Víðir Gunnarsson lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Fanney Rós Þorsteinsdóttir lögmaður)
Málaflokkur: Skattaréttur

Stefnandi krafðist þess að úrskurður yfirskattanefndar frá 2017 og úrskurður ríkisskattstjóra frá febrúar 2016, um endurákvörðun opinberra gjalda stefnanda gjaldárin 2013 og 2014, yrði felldir úr gildi og stefnda gert að endurgreiða stefnanda oftekna skatta og gjöld ásamt vöxtum. Fallist var á kröfu stefnanda.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 4. desember 2018

S-400/2017

Ákæruvaldið (Ólafur Hallgrímsson saksóknarfulltrúi) gegn Ágústi Alfreð Snæbjörnssyni (Gunnar Egill Egilsson lögmaður) og og Q (Ólafur Eiríksson lögmaður)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Ákærðu sakfelldir fyrir meiriháttar brot gegn skattalögum og almennum hegningarlögum. Annar ákærða var jafnframt sakfelldur fyrir skilasvik.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 19. október 2018

E-4056/2017

International Seafood Holdings S.A.R.L (Guðmundur Ingvi Sigurðsson lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Soffía Jónsdóttir lögmaður)
Málaflokkur: Skattaréttur

Ekki var fallist á kröfu stefnanda um að fella úr gildi úrskurð Ríkisskattstjóra og endurgreiða honum umkrafða fjárhæð. Byggði niðurstaðan einkum á því að ekki væru skilyrði til slíkrar endurkröfu samkvæmt 9. tl. 1. mgr. 31. gr. laga nr. 90/2003 þar sem að arðgreiðsla sú sem um var deilt í málinu gæti ekki talist samrýmast áskilnaði 73., sbr. og 74. gr. laga nr. 138/1994 um einkahlutafélög.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 9. apríl 2018

E-136/2017

Grímsnes-og Grafningshreppur (Óskar Sigurðsson lögmaður) gegn Jöfnunarsjóði sveitarfélaga íslenska ríkinu (Fanney Rós Þorsteinsdóttir lögmaður)

Eitt fimm samkynja mála sveitarfélaga gegn ríkinu. Deilt um heimild stefnda til skerðinga á framlögum úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga til sveitarfélaga sem hafa heildarskatttekjur af útsvari og fasteignaskatti sem teljast verulega umfram landsmeðaltal.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 8. september 2017

E-2996/2017

Jón Halldórsson (Margrét Guðjónsdóttir lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Guðrún Sesselja Arnardóttir lögmaður)
Málaflokkur: Skattaréttur

Fallst var á að stefnanda væri heimilt að draga sölutap frá söluhagnaði hlutabréfa á árinu 2007 vegna sölu bréfanna til félags sem alfarið var í eigu stefnanda. Aðalkröfu stefnanda var hafnað þar sem verðlagning hlutanna var ekki í samræmi við verðmæti þeirra, en fallist á varakröfu sem tók mið af raunverulegu virði þeirra samkvæmt mati.

Héraðsdómur Vestfjarða birt 4. júlí 2017

S-56/2016

Ákæruvaldið (Matthea Oddsdóttir saksóknarfulltrúi) gegn Hauki Vagnssyni (Bragi Dór Hafþórsson hdl)
Málaflokkur: Skattaréttur

Skattalagabrot. Ákærði sakfelldur fyrir að standa ekki skil á virðisaukaskattsskýrslum og skattframtölum og fyrir að standa ríkissjóði ekki skil á virðisaukaskatti, auk bókhaldsbrots.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 22. júní 2017

E-2110/2016

Stefán Hilmar Hilmarsson (Kristín Ólafsdóttir hdl) gegn íslenska ríkinu (Einar Karl Hallvarðsson hrl)
Lykilorð: Skattar.
Málaflokkur: Skattaréttur

Stefndi var sýknaður af kröfum stefnanda. Með dóminum var staðfest sú niðurstaða ríkisskattstjóra og yfirskattanefndar að færa stefnanda til tekna sem skattskyld hlunnindi hagnað hans af sölu hlutabréfa í Baugi Group hf.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 13. júní 2016

S-427/2016

Lykilorð: Skattar.
Málaflokkur: Skattaréttur

Sakfellt fyrir skattalagabrot.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 28. apríl 2017

E-1427/2016

Sólveig Guðrún Pétursdóttir (Ragnar Halldór Hall hrl) gegn íslenska ríkinu (Soffía Jónsdóttir hrl)
Lykilorð: Skattar.
Málaflokkur: Skattaréttur

Skattamál. Deilt var um tekjufærslu í tengslum við ólögmætar úthlutanir úr einkahlutafélagi. Var stefndi sýknaður af kröfum stefnanda.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 4. apríl 2017

E-1124/2017

Lykilorð: Önnur mál. Skattar.
Málaflokkur: Skattaréttur

Kröfu Ó og H um að felldir úr úr gildi úrskurðir skattyfirvalda, þar sem skattstofn þeirra var endurákvarðaður, var hafnað.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 31. mars 2017

S-153/2017

Ákæruvaldið (Sigríður Svava Sigurgeirsdóttir saksóknarfulltrúi) gegn Jóni Val Einarssyni (Elva Ósk Wiium hdl)
Lykilorð: Sektir. Skattar. Skilorð.
Málaflokkur: Skattaréttur

Ákærði dæmdur í 3 mánaða skilorðsbundið fangelsi og til greiðslu sektar fyrir brot gegn skattalögum.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 12. september 2016

E-928/2014

Hagar verslanir ehf (Páll Rúnar M. Kristjánsson hrl) gegn íslenska ríkinu (Guðrún Sesselja Arnardóttir hrl)

Talið að álagning 76% tolls á franskar kartöflur, væru málefnaleg skattheimta og kröfu um endurgreiðslu því hafnað. Ekki talið á færi dómstóla að ákveða hvenær skattprósenta væri úr hófi, ef önnur skilyrði hennar væru fyrir hendi.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 12. september 2016

E-1130/2014

Innnes ehf (Páll Rúnar M. Kristjánsson hrl) gegn íslenska ríkinu (Guðrún Sesselja Arnardóttir hrl)
Lykilorð: Gjaldtaka. Skattar.
Málaflokkur: Skattaréttur

Talið að álagning 76% tolls á franskar kartöflur, væru málefnaleg skattheimta og kröfu um endurgreiðslu því hafnað. Ekki talið á færi dómstóla að ákveða hvenær skattprósenta væri úr hófi, ef önnur skilyrði hennar væru fyrir hendi.

Hleð fleiri dómum…