Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

57 dómar fundust

Lykilorð: Skattamál

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 9. desember 2025

E-1470/2025

Papco hf (Kristján Gunnar Valdimarsson lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Ingvi Snær Einarsson lögmaður)
Málaflokkur: Skattaréttur

Við endurákvörðun opinberra gjalda stefnanda var honum færður til skattskyldra tekna í skattframtali 2018 söluhagnaður vegna lóðarréttinda, að viðbættu 25% álagi. Stefnandi krafðist þess í málinu að felldir yrðu úr gildi úrskurður ríkisskattstjóra þar að lútandi og úrskurður yfirskattanefndar, sem staðfest hafði þann úrskurð. Vísað var frá dómi þeirri kröfu stefnanda sem sneri að úrskurði ríkisskattstjóra en stefndi var sýknaður af kröfum stefnanda að öðru leyti.

Héraðsdómur Suðurlands birt 30. maí 2025

S-16/2025

Héraðssaksóknari (Þorvarður Arnar Ágústsson saksóknarfulltrúi) gegn Gísla Inga Gunnarssyni (Jóhann Pétursson lögmaður)
Málaflokkur: Skattaréttur

Ákærði var fundinn sekur um meiri háttar brot gegn skattalögum og lögum um bókhald og honum gert að sæta fangelsi í sextán mánuði, en fullnustu refsingarinnar var frestað skilorðsbundið. Þá var ákærða gert sekt og honum jafnframt gert að sæta atvinnurekstrarbanni í tvö ár.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 12. maí 2025

E-4493/2024

Inga Dóra Sigurðardóttir og Börkur Arnviðarson (Guðbjörg Þorsteinsdóttir lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Jóhanna Katrín Magnúsdóttir lögmaður)
Málaflokkur: Skattaréttur

Stefnendur fengu arðgreiðslur frá félagi sem skráð var með skattalega heimilisfesti í Danmörku og greiddu fjármagnstekjuskatt af þeim að hluta til danska ríkisins. Í kjölfar þess að ríkisskattstjóri úrskurðaði félagið heimilisfast á Íslandi aftur í tímann fékkst skatturinn endurgreiddur frá dönskum skattyfirvöldum. Í málinu var deilt um það hvort stefnda, íslenska ríkinu, hefði verið rétt að bæta 2,5% álagi skv. 122. gr. tekjuskattslaga við greiðslurnar og m.a. gerð krafa um ógildingu úrskurðar yfirskattanefndar þar að lútandi. Dómurinn leit til þess að orðið hefði mismunur á álögðum tekjuskatti stefnenda og staðgreiðslu þeirra og taldi ekki efni til að fallast á málsástæður þeirra um viðtökudrátt, ómöguleika eða réttmætar væntingar. Þá voru mistök við lagasetningu í tíð eldri laga ekki talin hafa þýðingu í málinu auk þess sem málsmeðferðarreglur stjórnsýsluréttarins hefðu ýmist ekki verið brotnar eða leiddu ekki til ógildingar úrskurðarins. Var stefndi sýknaður af kröfum stefnenda.

Héraðsdómur Suðurlands birt 19. nóvember 2024

S-523/2023

Ákæruvaldið (Halldór Rósmundur Guðjónsson aðstoðarsaksóknari) gegn X (Kristján Gunnar Valdimarsson lögmaður), Írisi Heru Norðfjörð Jónsdóttur (Ólafur Kristinsson lögmaður) og og Brynju Norðfjörð Guðmundsdóttur (Björgvin Jónsson lögmaður)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Tvær ákærðu voru sakfelldar fyrir meiri háttar brot gegn skattalögum. Var annarri gert að sæta fangelsi í tíu mánuði, skilorðsbundið til tveggja ára, jafnframt greiðslu 42.000.000 kr. sektar, en hinni fangelsi í sex mánuði, skilorðsbundið til tveggja ára, jafnframt greiðslu 22.000.000 kr. sektar. Þriðja ákærða var sýknuð af kröfum ákæruvaldsins, þar sem ekki þótti hafið yfir skynsamlegan vafa að fjármunir þeir sem málið varðaði hafi verið gjöf, líkt og málatilbúnaður ákæruvaldisns byggði á, en ekki lán líkt og ákærða hélt fram allt frá upphafi og lagði fram gögn um.

Héraðsdómur Suðurlands birt 17. maí 2024

S-280/2023

Héraðssaksóknari (Teitur Már Sveinsson saksóknarfulltrúi) gegn Ómari Jóhannssyni (Eiríkur Gunnsteinsson lögmaður)
Málaflokkur: Skattaréttur

Ákærði var fundinn sekur um meiri háttar brot gegn skattalögum,í rekstri einkahlutafélags, meðal annars með því að hafa staðið skil á efnislegra rangri virðisaukaskattskýrslu og vanframtalið virðisaukaskatt sem og eigið staðið skil á staðgreiðslu opinberra gjalda. Var ákærða gert að sæta fangelsi í átta mánuði, skilorðsbundið í tvö ár, jafnframt 85.000.000 króna sekt í ríkissjóð. Þá var ákærði og dæmdur til greiðslu sakarkostnaðar.

Héraðsdómur Suðurlands birt 15. mars 2024

S-364/2023

Héraðssaksóknari (Sigríður Árnadóttir Aðstoðarsaksóknari) gegn Inga Rafni Bragasyni (Ómar R. Valdimarsson lögmaður)
Málaflokkur: Skattaréttur

Ákærði var fundinn sekur um meiri háttar brot gegn skattalögum, sem framkvæmdastjóri einkahlutafélags, og var honum gert að sæta fangelsi í 16 mánuði, skilorðsbundið til tveggja ára janframt fésekt er nam rúmum 42 milljónum króna. Þá var ákærði sýknaður af kröfu ákæruvaldsins um atvinnurekstrarbann.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 12. mars 2024

E-3701/2023

A (Halldór Jónsson lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Jóhanna Katrín Magnúsdóttir lögmaður)
Málaflokkur: Skattaréttur

Hafnað var kröfu um að úrskurður ríkisskattstjóra um endurákvörðun opinberra gjalda yrði felldur niður af þeirri ástæðu að stefnandi hefði verið sýknaður í sakamáli vegna umræddra krafna. Þá var ekki fallist á að þeir ágallar væru á stjórnsýslulegri meðferð málsins sem ættu að leiða til þess að ógilda endurákvörðun skattyfirvalda og talið að stefnandi gæti ekki komist hjá skattgreiðslum með því að semja á þann hátt að launagreiðslur fyrir persónulegt vinnuframlag í þágu erlendrar samstæðu, sem ella hefðu runnið til stefnanda, sbr. 1. mgr. 1. tölul. A-liðar 7. gr. laga nr. 90/2003, greiddust sem þóknanatekjur til einkahlutafélags í eigu stefnanda og eiginkonu hans og kæmu til lækkunar á skuldum þess félags gagnvart stefnanda. Þá voru ekki talin liggja fyrir gögn um að stefnandi hefði persónulega greitt kostnað vegna útgjalda erlendu félaganna að öðru leyti en því að fallist var á að endurákvörðun vegna gjaldaársins 2011 yrði felld niður.

Héraðsdómur Suðurlands birt 16. október 2023

S-18/2023

Héraðssaksóknari (Teitur Már Sveinsson saksóknarfulltrúi) gegn Stefáni Ólasyni (Sævar Þór Jónsson lögmaður) og og Svanbjörgu Vilbergsdóttur (Karl Georg Sigurbjörnsson lögmaður)
Málaflokkur: Skattaréttur

Ákærðu voru bæði fundinn sek um meiri háttar skattalagabrot í rekstri einkahlutafélags. Var hvoru um sig gert að sæta fangelsi í tíu mánuði, en fullnustu refsingu beggja frestað skilorðsbundið til tveggja ára. Þá var hvoru um sig gert að greiða sekt að fjárhæð 53.000.000 kr.

Héraðsdómur Reykjaness birt 6. september 2023

S-306/2023

Málið nr. S-306/2023 Ákæruvaldið (Halldór Rósmundur Guðjónsson aðstoðarsaksóknari) gegn Ásgeiri Halldórssyni (Valgeir Kristinsson lögmaður)
Málaflokkur: Skattaréttur

Ákærði var sakfelldur fyrir meiri háttar skattalagabrot í rekstri einkahlutafélags árin 2017-2019 og dæmdur í sex mánaða fangelsi, skilorðsbundið tvö ár, auk ríflega 38.000.000 króna fésektar. Ákærði játaði háttsemi samkvæmt verknaðarlýsingu ákæru en tekist var á um hvort vanskil á ríflega 19.000.000 króna sköttum og opinberum gjöldum teldust meiri háttar í skilningi 1. mgr. 262. gr. almennra hegningarlaga eftir lagabreytingar á árinu 2021 og útgáfu fyrirmæla ríkissaksóknara um hvaða skattalagabrot skuli sæta ákærumeðferð. Með hliðsjón af nýlegum dómi Hæstaréttar og seinni dómum Landsréttar var fallist á sjónarmið ákæruvaldsins.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 12. júlí 2023

E-5787/2022

Vulkanreiser AS (Börkur Ingi Jónsson lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Óskar Thorarensen lögmaður)
Málaflokkur: Skattaréttur

Stefnandi sem er erlend ferðaskrifstofa krafðist ógildingar á úrskurði ríkisskattstjóra vegna synjunar á endurgreiðslu virðisaukaskatts fyrir tímabilið frá 2016 til 2018. Stefnandi hafi keypt ýmsa þjónustuþætti hér á landi og sett saman í ,,ferðapakka" sem seldir voru til erlendra viðskiptavina búsettir utan Íslands. Ekkert starfsfólk stefnanda fylgdi viðskiptavinum til Íslands. Í lögskýringargögnum og leiðbeiningum skattyfirvalda höfðu ítrekað verið dregnar upp sviðsmyndir þar sem erlendar ferðaskrifstofur sem endurselja ferðapakka væru ekki skráningar- eða skattskyldar hérlendis nema um sé að ræða einhver tengsl (t.d útibú, starfsmann, umboðsmann osfrv.) við Ísland. Enginn greinarmunur var gerður á milligöngu og endursölu að þessu leyti í þessum gögnum. Var fallist á ógildingu ákvörðunar ríkisskattstjóra með vísan til þess að ekki yrði séð að ákvörðun ríkisskattstjóra tæki mið af því að ákvæði 4. mgr. 11. gr. laga nr 124/2014 hafi bæði náð til milligöngu og endursölu, auk þess sem talið var eðlilegt að skattyfirvöld rökstyddu hvers vegna þau teldu sig ekki bundin af fyrr túlkun sem kom fram í lögskýringagögnum, skýrslu starfshóps og á heimasíðu skattyfirvalda og þá um leið hvernig slík ákvörðun samræmist meginreglum stjórnsýsluréttar um lögmæti, meðalhóf, fyrirsjáanleika, jafnræði og vandaða stjórnsýsluhætti. Þá var talið að ákvörðunin hefði ekki byggst á skýrum lagaákvæðum a.m.k. eins og þau höfðu verið túlkuð af skattyfirvöldum og útskýrð í lögskýringargögnum og leiðbeiningum til framteljanda. Var lagt til grundvallar að eðlilegast hefði verið að gera þessar breytingar með lögum eins og raunar var gert með gildistöku laga nr. 143/2018 þann 1. janúar 2019. Var jafnframt talið að í ljósi fyrri framkvæmdar hafi stefnandi mátt út frá lögmætis- og jafnræðisreglu ganga út frá að umsókn hans um endurgreiðslu á virðisaukaskatti yrði afgreidd með sambærilegum hætti og gert hafði verið í fjölda umsókna sem áður höfðu verið afgreiddar. Var ákvörðun ríkisskatstjóra ógild og stefnda gert að greiðal stefnanda málskostnað.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 6. júlí 2022

E-4922/2021

Elkem Ísland ehf (Jón Elvar Guðmundsson lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Rakel Jensdóttir lögmaður)
Málaflokkur: Skattaréttur

Stefnandi gaf út skuldabréf sem selt var til móðurfélags stefnanda í Noregi í tengslum við svokallaða fjárfestingarleið Seðlabanka Íslands. Ágreiningur reis um hvort stefnandi gæti dregið vaxtakostnaðinn af láninu frá tekjuskattsstofni, en með úrskurði 9. júlí 2020 ákvað ríkisskattstjóri að hafna frádrætti vaxtanna. Ekki var fallist á að brotið hefði verið gegn rannsóknarreglu og meðalhófsreglu við rannsókn málsins, enda laut ágreiningurinn fyrst og fremst að túlkun á ákvæðum tekjuskattslaga, einkum 31. gr., 1. mgr. 57. gr. og ákvæði 57. gr. b. Með vísan til þess að félög í atvinnurekstri hefðu almennt forræði á því hvernig þau kjósa að haga fjármagnsskipan sinni, þar með talið hvort fjármagna beri reksturinn með eigin fé eða lánsfé, var hvorki fallist á að sýnt hefði verið fram á að beita ætti 1. mgr. 57. gr. laganna vegna útgáfu skuldabréfsins né að frádráttur vaxtanna hefði ekki átt að falla undir 31. gr. laganna, enda lagt til grundvallar að lánsfjárhæðin hefði skilað sér í rekstrartengd verkefni stefnanda. Var því fallist á kröfu stefnanda um að fella úr gildi úrskurð ríkisskattstjóra frá 9. júlí 2020.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 22. febrúar 2022

E-2855/2021

A (Bernhard Bogason lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Rakel Jensdóttir lögmaður)
Málaflokkur: Skattaréttur

Stefnandi krafðist þess að felld yrði úr gildi endurákvörðun ríkisskattstjóra um skattstofna stefnanda til tekjuskatts og útsvars á tilteknu árabili vegna greiðslna frá aflandsfélagi sem stefnandi átti hlut í og ekki höfðu verið taldar fram til skatts hér á landi. Stefndi íslenska ríkið var sýknað af þeirri kröfu og varakröfu stefnanda um að greiðslurnar yrðu skattlagðar sem fjármagnstekjur var vísað frá dómi.

Héraðsdómur Suðurlands birt 25. janúar 2022

S-452/2021

Héraðssaksóknari (Ólafur Hallgrímsson fulltrúi) gegn X (sjálfur)
Lykilorð: Peningaþvætti. Skattamál.
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Ákærði var fundinn sekur um meiriháttar brot gegn skattalögum sem og fyrir peningaþvætti í rekstri einkahlutafélags. Var honum gert að sæta fangeli í sex mánuði, en fullnustu refsingarinnar frestað skilorðsbundið. Ákærði var jafnframt dæmdur til greiðslu sektar.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 28. mars 2019

E-4055/2017

Sjávarsýn ehf (Garðar Víðir Gunnarsson lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Fanney Rós Þorsteinsdóttir lögmaður)
Málaflokkur: Skattaréttur

Stefnandi krafðist þess að úrskurður yfirskattanefndar frá 2017 og úrskurður ríkisskattstjóra frá febrúar 2016, um endurákvörðun opinberra gjalda stefnanda gjaldárin 2013 og 2014, yrði felldir úr gildi og stefnda gert að endurgreiða stefnanda oftekna skatta og gjöld ásamt vöxtum. Fallist var á kröfu stefnanda.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 19. október 2018

E-4056/2017

International Seafood Holdings S.A.R.L (Guðmundur Ingvi Sigurðsson lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Soffía Jónsdóttir lögmaður)
Málaflokkur: Skattaréttur

Ekki var fallist á kröfu stefnanda um að fella úr gildi úrskurð Ríkisskattstjóra og endurgreiða honum umkrafða fjárhæð. Byggði niðurstaðan einkum á því að ekki væru skilyrði til slíkrar endurkröfu samkvæmt 9. tl. 1. mgr. 31. gr. laga nr. 90/2003 þar sem að arðgreiðsla sú sem um var deilt í málinu gæti ekki talist samrýmast áskilnaði 73., sbr. og 74. gr. laga nr. 138/1994 um einkahlutafélög.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 8. september 2017

E-2996/2017

Jón Halldórsson (Margrét Guðjónsdóttir lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Guðrún Sesselja Arnardóttir lögmaður)
Málaflokkur: Skattaréttur

Fallst var á að stefnanda væri heimilt að draga sölutap frá söluhagnaði hlutabréfa á árinu 2007 vegna sölu bréfanna til félags sem alfarið var í eigu stefnanda. Aðalkröfu stefnanda var hafnað þar sem verðlagning hlutanna var ekki í samræmi við verðmæti þeirra, en fallist á varakröfu sem tók mið af raunverulegu virði þeirra samkvæmt mati.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 31. mars 2017

E-2231/2016

Arnar Berg Grétarsson (Bernhard Bogason hdl) gegn íslenska ríkinu (Soffía Jónsdóttir hrl)
Lykilorð: Ógilding. Skattamál.
Málaflokkur: Skattaréttur

Stefndi ísl. ríkið sýknað af kröfu stefnanda um að að ógiltur verði með dómi úrskurður ríkisskattstjóra, dags. 3. maí 2016, um skattalega heimilisfesti stefnanda og ótakmarkaða skattskyldu á Íslandi frá 2006 til og með 2010.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 29. september 2016

E-3623/2015

Friðjón Rúnar Sigurðsson (Kristján Gunnar Valdimarsson hdl) gegn íslenska ríkinu (Soffía Jónsdóttir hrl)
Málaflokkur: Skattaréttur

Dómurinn taldi að lánveiting til hluthafa hafi verið andstæð 79. gr. laga nr. 138/1994, um einkahlutafélög og fæli því í sér skattskylda gjöf, sbr. 2. mgr. 4. tölul. 7. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 24. júní 2016

E-2074/2016

Lykilorð: Skattamál.
Málaflokkur: Skattaréttur

Hafnað var kröfu P um að felldur yrði úr gildi úrskurður R um að teldist hafa haft skattalega heimilisfesti hér á landi þrátt fyrir tilkynningu um flutning lögheimilis til erlends ríkis.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 6. desember 2013

E-606/2013

Fjarðabyggð (Hilmar Gunnlaugsson hrl) gegn íslenska ríkinu og Þjóðskrá Íslands (Guðrún Margrét Árnadóttir hrl)
Lykilorð: Gjaldtaka. Skattamál.
Málaflokkur: Skattaréttur

Skattamál. Stefndu dæmd til að endurgreiða stefnanda gjald skv. 1. og 2. mgr. 24. gr. laga nr. 6/2001 um skráningu og mat fasteigna. Gjaldskrá ekki í samræmi við reglur sem gilda um töku þjónustugjalda.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 24. júní 2013

E-3371/2012

Haukur Guðjónsson (Páll Jóhannesson hdl) gegn íslenska ríkinu (Einar Karl Hallvarðsson hrl)

Stefnandi krafðist þess að úrskurður ríkisskattstjóra, um að skattleggja bæri greiðslur til stefnanda frá einkahlutafélagi hans sem tekjur, yrði felldur úr gildi. Á það var ekki fallist og ekki heldur kröfur stefnanda um að úrskurðurinn yrði felldur úr gildi að hluta og honum breytt í samræmi við kröfugerð stefnanda þar um. Þá var heldur ekki fallist á kröfu stefnanda um að álag, sem ríkisskattstjóri beitt, yrði fellt niður.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 24. júní 2013

E-3327/2012

Kristinn Þór Geirsson (Páll Jóhannesson hdl) gegn íslenska ríkinu (Einar Karl Hallvarðsson hrl)
Málaflokkur: Skattaréttur

Stefnandi krafðist þess að úrskurður ríkisskattstjóra, um að skattleggja bæri greiðslur til stefnanda frá einkahlutafélagi hans sem tekjur, yrði felldur úr gildi. Á það var ekki fallist og ekki heldur kröfur stefnanda um að úrskurðurinn yrði felldur úr gildi að hluta og honum breytt í samræmi við kröfugerð stefnanda þar um. Þá var heldur ekki fallist á kröfu stefnanda um að álag, sem ríkisskattstjóri beitt, yrði fellt niður.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 3. júní 2013

E-2478/2012

Samherji hf (Garðar Guðmundur Gíslason hdl) gegn íslenska ríkinu (Gizur Bergsteinsson hrl)
Málaflokkur: Skattaréttur

Stefndi var sýknaður af kröfum stefnanda þess efnis að úrskurður ríkisskattstjóra um endurákvörðun opinberra gjalda stefnanda gjaldárin 2006 - 2010 yrði felldur úr gildi. Einnig var stefndi sýknaður af kröfu stefnanda um endugreiðslu á þeim hluta af álögðum gjöldum sem stefnandi hafði greitt.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 13. nóvember 2012

E-6728/2010

Atli Gunnarsson (Jóhannes Stefán Ólafsson hdl) gegn íslenska ríkinu (Óskar Thorarensen hrl)
Málaflokkur: Skattaréttur

Stefnandi bjó í Danmörku í nokkur ár en fékk bætur frá Íslandi sem voru skattlagðar hér á landi án þess að stefnandi gæti nýtt skattkort eiginkonu sinnar. Ákvörðun ríkisskattstjóra um það var felld úr gildi og íslenska ríkinu gert að endurgreiða stefnanda skatt sem ofgreiddur var.

Hleð fleiri dómum…