Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

1 dómar fundust

Lykilorð: Samstæða

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 6. júlí 2022

E-4922/2021

Elkem Ísland ehf (Jón Elvar Guðmundsson lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Rakel Jensdóttir lögmaður)
Málaflokkur: Skattaréttur

Stefnandi gaf út skuldabréf sem selt var til móðurfélags stefnanda í Noregi í tengslum við svokallaða fjárfestingarleið Seðlabanka Íslands. Ágreiningur reis um hvort stefnandi gæti dregið vaxtakostnaðinn af láninu frá tekjuskattsstofni, en með úrskurði 9. júlí 2020 ákvað ríkisskattstjóri að hafna frádrætti vaxtanna. Ekki var fallist á að brotið hefði verið gegn rannsóknarreglu og meðalhófsreglu við rannsókn málsins, enda laut ágreiningurinn fyrst og fremst að túlkun á ákvæðum tekjuskattslaga, einkum 31. gr., 1. mgr. 57. gr. og ákvæði 57. gr. b. Með vísan til þess að félög í atvinnurekstri hefðu almennt forræði á því hvernig þau kjósa að haga fjármagnsskipan sinni, þar með talið hvort fjármagna beri reksturinn með eigin fé eða lánsfé, var hvorki fallist á að sýnt hefði verið fram á að beita ætti 1. mgr. 57. gr. laganna vegna útgáfu skuldabréfsins né að frádráttur vaxtanna hefði ekki átt að falla undir 31. gr. laganna, enda lagt til grundvallar að lánsfjárhæðin hefði skilað sér í rekstrartengd verkefni stefnanda. Var því fallist á kröfu stefnanda um að fella úr gildi úrskurð ríkisskattstjóra frá 9. júlí 2020.