Héraðsdómur Reykjavíkur
Dómur 26. maí 2017.
Mál nr. S-427/2016:
Lykilorð
Útdráttur
Sakfellt fyrir skattalagabrot.
Á hendur ákærða Viðari Má Friðfinnssyni, sem framkvæmdastjóri og stjórnarmaður einkahlutafélagsins Veitingahússins Lækjar, kt. 000000-0000, fyrir meiri háttar brot gegn skatta- og bókhaldslögum með því að hafa:
- Staðið skil á efnislega röngum virðisaukaskattsskýrslum einkahlutafélagsins vegna allra uppgjörstímabila rekstraráranna 2010 til og með 2013, og hafa með því vantalið virðisaukaskattskylda veltu samtals að fjárhæð kr. 230.554.762 og virðisaukaskatt sem innheimtur var í starfseminni framangreind uppgjörstímabil, sem bar að standa ríkissjóði skil á, í samræmi við fyrirmæli IX. kafla laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, samtals að fjárhæð kr. 52.655.427, sem sundurliðast sem hér greinir:
Árið 2010 janúar – febrúar kr. (588.984) mars – apríl kr. 147.794 maí - júní kr. 1.680.907 júlí – ágúst kr. 762.078 september – október kr. 5.175.654 nóvember – desember kr. 5.336.666 kr. 12.514.115 Árið 2011 janúar – febrúar kr. 1.101.071 mars – apríl kr. 1.284.917 maí - júní kr. 3.414.182 júlí – ágúst kr. 2.104.831 september – október kr. 4.037.083 nóvember – desember kr. 2.762.176 kr. 14.704.260 Árið 2012 janúar – febrúar kr. 94.849 mars – apríl kr. 2.081.338 maí - júní kr. 3.194.318 júlí – ágúst kr. 4.404.443 september – október kr. 2.851.602 nóvember – desember kr. 2.734.527 kr. 15.361.077 Árið 2013 janúar – febrúar kr. 832.705 mars – apríl kr. 2.503.021 maí - júní kr. 2.428.230 júlí – ágúst kr. 651.653 september – október kr. 3.244.035 nóvember – desember kr. 416.331 kr. 10.075.975 Samtals: kr. 52.655.427
- Rangfært bókhald einkahlutafélagsins Veitingahússins Lækjar, með því að vantelja tekjur þess, þannig að bókhaldið gaf ranga mynd af viðskiptum og notkun fjármuna einkahlutafélagsins.
B.
Á hendur ákærða Viðari Má fyrir meiriháttar skattalagabrot með því að hafa staðið skil á efnislega röngum skattframtölum gjaldárin 2011 til og með 2014, vegna tekjuáranna 2010 til og með 2013, með því láta undir höfuð leggjast að telja fram á skattframtölum sínum vegna fyrrgreindra ára, tekjur samtals að fjárhæð kr. 64.259.767, í formi innlagna viðskiptavina Veitahússins Lækjar ehf. inn á persónulegan bankareikning ákærða, sem skattskyldar eru sem tekjur samkvæmt 1. mgr. 1. tl. A-liðar 7. gr. laga um tekjuskatt nr. 90/2003, sbr. einnig 19. og 21. gr. laga nr. 4/1995 um tekjustofna sveitarfélaga, en með því komst ákærði hjá að greiða tekjuskatt og útsvar að fjárhæð kr. 28.054.423, sem sundurliðast sem hér greinir:
Tekjuárið 2010:
Tekju- og útskattur:
Framtaldar tekjur kr. 1.152.000 Vantaldar tekjur kr. 22.085.960 Tekjuskattur, skattprósenta 24,10% kr. 300.768 Útsvar, útsvarsprósenta 13,03% kr. 162.614 (Tekjur af stofni 0 – 2.400.000 kr.) Tekjuskattur, skattprósenta 27,0% kr. 1.458.000 Útsvar, útsvarsprósenta 13,03% kr. 703.618 (Tekjur af stofni 2.400.001-7.800.000 kr.) Tekjuskattur, skattprósenta 33,0% kr. 5.094.527 Útsvar, útsvarsprósenta 13,03% kr. 2.011.568 (Tekjur af stofni yfir 7.800.000 kr.) Ónýttur persónuafsláttur kr. 102.728 Vangreiddur tekjuskattur og útsvar samtals: kr. 9.628.367 Tekjuárið 2011:
Tekju- og útskattur:
Framtaldar tekjur kr. 3.302.400 Vantaldar tekjur kr. 18.718.807 Tekjuskattur, skattprósenta 22,9% kr. - Útsvar, útsvarsprósenta 14,40% kr. - (Tekjur af stofni 0-2.512.800 kr.) Tekjuskattur, skattprósenta 25,8% kr. 1.254.964 Útsvar, útsvarsprósenta 14,40% kr. 700.443 (Tekjur af stofni 2.512.801-8.166.600 kr.) Tekjuskattur, skattprósenta 31,8% kr. 4.405.765 Útsvar, útsvarsprósenta 14,40% kr. 1.995.065 (Tekjur af stofni yfir 8.166.600 kr.) Ónýttur persónuafsláttur kr. 0 Vangreiddur tekjuskattur og útsvar samtals: kr. 8.356.237 Tekjuárið 2012:
Tekju- og útskattur:
Framtaldar tekjur kr. 1.424.640 Vantaldar tekjur kr. 16.705.000 Tekjuskattur, skattprósenta 22,9% kr. 305.797 Útsvar, útsvarsprósenta 14,48% kr. 193.360 (Tekjur af stofni 0-2.760.000 kr.) Tekjuskattur, skattprósenta 25,8% kr. 1.468.639 Útsvar, útsvarsprósenta 14,48% kr. 824.258 (Tekjur af stofni 2.760.001-8.452.400 kr.) Tekjuskattur, skattprósenta 31,8% kr. 3.077.362 Útsvar, útsvarsprósenta 14,48% kr. 1.401.266 (Tekjur af stofni yfir 8.452.400 kr.) Ónýttur persónuafsláttur kr. 25.855 Vangreiddur tekjuskattur og útsvar samtals: kr. 7.244.827 Tekjuárið 2013
Tekju- og útskattur:
Framtaldar tekjur kr. 3.892.320 Vantaldar tekjur kr. 6.750.000 Tekjuskattur, skattprósenta 22,9% kr. - Útsvar, útsvarsprósenta 14,48% kr. - (Tekjur af stofni 0-2.897.702 kr.) Tekjuskattur, skattprósenta 25,8% kr. 1.285.301 Útsvar, útsvarsprósenta 14,48% kr. 721.361 (Tekjur af stofni 2.897.703-8.874.108 kr.) Tekjuskattur, skattprósenta 31,8% kr. 562.291 Útsvar, útsvarsprósenta 14,48% kr. 256.039 (Tekjur af stofni yfir 8.874.108 kr.) Ónýttur persónuafsláttur kr. 0 Vangreiddur tekjuskattur og útsvar samtals: kr. 2.824.992 Samtals vantaldar tekjur: kr. 64.259.767 Samtals vangreiddur tekjuskattur og útsvar: kr. 28.054.423 Framangreind brot ákærða Viðars Más samkvæmt 1. tölulið A hluta og B hluta ákæru teljast varða við 1. mgr. 262. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 1. gr. laga nr. 39/1995, sbr. einnig:
a) 1. mgr. 40. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, sbr. 3. gr. laga nr. 42/1995 og 3. gr. laga nr. 134/2005 að því er varðar 1. tl. A hluta ákæru.
b) 1. mgr. 109. gr. laga nr. 90/2003 um tekjuskatt, og 2. mgr. 22. gr. laga nr. 4/1995 um tekjustofna sveitarfélaganna að því er varðar B hluta ákæru.
Framangreind brot ákærða Viðars Más samkvæmt 2. tölulið A hluta ákæru teljast varða við 2. mgr. 262. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 1. gr. laga nr. 39/1995, sbr. einnig:
c) 3. tölul. 1. mgr. 37. gr., sbr. 36. gr. laga nr. 145/1994 um bókhald, sbr. 1. gr. laga nr. 37/1995.
Framangreind brot ákærða Veitingahússins Lækjar ehf. samkvæmt ákæru teljast varða við:
a) 8. mgr. 40. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, sbr. 1. mgr. 40. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, sbr. 3. gr. laga nr. 42/1995 og 3. gr. laga nr. 134/2005, að því er varðar 1. tölulið A hluta ákæru.
b) 40. gr. laga nr. 145/1994, um bókhald, sbr. 3. tölulið 1. mgr. 37. gr., sbr. 36. gr. laga nr. 145/1994, um bókhald, sbr. 1. gr. laga nr. 37/1995, að því er varðar 2. tölulið A hluta ákæru.
Þess er krafist að ákærðu verði dæmd til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.
C.
Þess er krafist, með vísan til 69. gr. og 69. gr. b. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, með síðari breytingum, að eftirfarandi félög í eigu ákærða Viðars Más verði dæmd til að sæta upptöku á eftirfarandi innistæðum á reikningum í Íslandsbanka hf. sem lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu lagði hald á þann 28. október 2013. Á haldlagningardegi var virði innistæðnanna kr. 6.279.400. Þann 2. júní 2016 var virði eignanna samtals að fjárhæð kr. 7.817.928. Upptökukrafan tekur einnig til áfallinna vaxta og verðmætaaukningar hinna haldlögðu verðmæta frá haldlagningardegi, til upptökudags. Aðili: Reikningur: Staða28.10.2013 Staða 02.06.2016 Veitingahúsið Lækur ehf., kt. 000000-0000 0513-26-0439 kr. 5.237.677 kr. 6.533.220 Trucks ehf., kt. 000000-0000 0513-26-7656 kr. 633.926 kr. 855.336 Artist ehf., kt. 000000-0000 0513-26-3691 kr. 70.331 kr. 73.275 Eignarhaldsfélagið Lækur ehf.. kt. 000000-0000 0513-26-5001 kr. 313.933 kr. 312.135 X-men ehf., kt. 000000-0000 0513-26-5202 kr. 23.533 kr. 43.962 Samtals: kr. 6.279.400 kr. 7.817.928 Þess er krafist, með vísan til 69. gr. og 69. gr. b. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, með síðari breytingum, að ákærði Veitingahúsið Lækur ehf. verði dæmt til að sæta upptöku á eftirfarandi eignum, sem lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu lagði hald á, á starfsstöð félagsins, Lækjargötu 6A, Reykjavík, þann 26. október 2013: Muna nr. Tegund: Fjárhæð: Frekari lýsing:
385953 Fjármunir/peningaseðlar 150 dollarar uppgjör merkt 24.10.2013 385954 Fjármunir/peningaseðlar 13.500 kr.
340 dollarar Þess er krafist, með vísan til 69. gr. og 69. gr. b. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, með síðari breytingum, að ákærði Viðar Már verði dæmdur til að sæta upptöku á eftirfarandi eignum, sem lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu lagði hald á, á heimili hans, Maríubaug 69, Reykjavík, þann 26. október 2013: Muna nr. Tegund: Fjárhæð: Frekari lýsing: 385971 Fjármunir/peningaseðlar 2.000.000 kr. 385972 Fjármunir/peningaseðlar 1.970 dollarar erlend mynt 3.210 evrur 1.000 danskar kr. 5 pund 385973 Ýmsir skartgripir hringir, Rolex úr, hálskeðjur og bindisnælur.
Þess er krafist, með vísan til 69. gr. og 69. gr. b. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, með síðari breytingum, að ákærði Viðar Már verði dæmdur til að sæta upptöku á eftirfarandi eignum sem kyrrsettar voru þann 8. nóvember 2013, sbr. kyrrsetningargerð Sýslumannsins í Reykjavík nr. K-33/2013:
Nr. ökutækis tegund DA555 Mercedes Benz A TF413 Suzuki RM KL0159 Merlo skotbómulyftari Fasteignin Maríubaugur 69, 113 Reykjavík, fnr. 225-8332. Hlutir í Artist ehf., kt. 000000-0000 og hlutir í Eignarhaldsfélaginu Læk ehf., kt. 000000-0000.
Þess er krafist, með vísan til 69. gr. og 69. gr. b. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, með síðari breytingum, að ákærði einkahlutafélagið Artista, sem er í eigu ákærða Viðars Más, verði dæmt til að sæta upptöku á eftirfarandi eignum sem kyrrsettar voru þann 8. nóvember 2013, sbr. kyrrsetningargerð Sýslumannsins í Reykjavík nr. K-34/2013:
Nr. ökutækis tegund MZ510 BMW 3 PM111 Cadillac Fleetwood NA411 Renault Master OEN29 Cevrolet Silverado 2500 KOX78 Lincoln Town Car TN242 Bombardier Can-Am TS457 Chevrolet Corvette YG916 (T59) Ford Thunderbird EK533(428) Cevrolet Blazer Báturinn Haförn 1. ER-6758 Þess er krafist, með vísan til 69. gr. og 69. gr. b. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, með síðari breytingum, að Eignarhaldsfélagið Lækur ehf., kt. 000000- 0000, sem er í eigu ákærða Viðars Más, verði dæmt til að sæta upptöku á eftirfarandi eignum sem kyrrsettar voru þann 8. nóvember 2013, sbr. kyrrsetningargerð Sýslumannsins í Reykjavík nr. K-35/2013: Nr. ökutækis tegund VX719 Scania R164 NH599 Scania R143M 6X4 YR069 Íslandsvagn RU946 Iveco AD340T44H YB610 Scania P124 GA6X4NA 400 YU119 Langendorf SKS HS 20/28 OU527 Festivagn PNO Þess er krafist, með vísan til 69. gr. og 69. gr. b. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, með síðari breytingum, að Eignarhaldsfélagið Lækur ehf., kt. 000000- 0000, sem er í eigu ákærða Viðars Más verði dæmt til að sæta upptöku á fasteigninni Lónsbraut 6. fnr. 224-3638, 225-9956 og 225-9957, Hafnarfirði, sem kyrrsett var þann 28. maí 2014, sbr. kyrrsetningargerð Sýslumannsins í Reykjavík nr. K-9/2014:
D.
Fjármálaráðherra fyrir hönd ríkissjóðs krefst þess, með vísan til 2. mgr. 172. gr. sakamálalaga nr. 88/2008, að ákærði Veitingahúsið Lækur ehf. verði dæmt til að greiða bætur að fjárhæð kr. 52.655.427. Fjármálaráðherra fyrir hönd ríkissjóðs krefst þess, með vísan til 2. mgr. 172. gr. sakamálalaga nr. 88/2008, að ákærði Viðar Már Friðfinnsson verði dæmdur til að greiða bætur að fjárhæð kr. 28.054.423.“
Héraðssaksóknari gaf hinn 6. september 2016 út svofellda framhaldsákæru á hendur: „Viðari Má Friðfinnssyni, kt. 000000-0000, Maríubaugi 69, Reykjavík og Veitingahúsinu Læk ehf., kt. 000000-0000, Lækjargötu 6a, Reykjavík, fyrirsvarsmaður Viðar Már Friðfinnsson, kt. 000000-0000 og jafnframt á hendur eftirtöldum félögum til upptöku: Eignarhaldsfélaginu Læk ehf., kt. 000000-0000, Maríubaugi 69, Reykjavík, fyrirsvarsmaður Viðar Már Friðfinnsson, Artist ehf., kt. 000000-0000, Lækjargötu 6a, Reykjavík, fyrirsvarsmaður Viðar Már Friðfinnsson, Trucks ehf., kt. 000000-0000, Lónsbraut 6, Hafnarfirði, fyrirsvarsmaður Viðar Már Friðfinnsson skiptastjóri Pétur Örn Sverrisson, hrl. og X-men ehf., kt. 000000-0000, nú gjaldþrota, Skemmuvegi 26, Kópavogi, skiptastjóri Einar Sigurjónsson, hdl. Bifreiðarnar OEN29 Cevrolet Silverado 2500 og KOX78 Lincoln Town Car í eigu Artista ehf. voru seldar eftir útgáfu ákæru, að beiðni ákærða Viðars Má Friðfinnssonar eiganda félagsins. Á c lið ákæru verða því gerðar svofelldar breytingar vegna kyrrsetningargerðar nr. K-34/2013:
Þess er krafist, með vísan til 69. gr. og 69. gr. b. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, með síðari breytingum, að ákærði einkahlutafélagið Artista, sem er í eigu ákærða Viðars Más, verði dæmt til að sæta upptöku á eftirfarandi eignum sem kyrrsettar voru þann 8. nóvember 2013, sbr. kyrrsetningargerð Sýslumannsins í Reykjavík nr. K-34/2013: Nr. ökutækis tegund MZ510 BMW 3 PM111 Cadillac Fleetwood NA411 Renault Master OEN29 Cevrolet Silverado 2500 KOX78 Lincoln Town Car TN242 Bombardier Can-Am TS457 Chevrolet Corvette YG916 (T59) Ford Thunderbird EK533(428) Cevrolet Blazer Báturinn Haförn 1. RE-6758 Þess er krafist, með vísan til 69. gr. og 69. gr. b. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, með síðari breytingum, að ákærði einkahlutafélagið Artista, sem er í eigu ákærða Viðars Más, verði dæmt til að sæta upptöku á innistæðum á bankareikningum sem embætti héraðssaksóknara hefur stofnað í Arion banka hf. nr. 0301-13-112718 og nr. 0301-13-303998. Innistæðurnar eru andvirði sölu á bifreiðunum OEN29 Cevrolet Silverado 2500 og KOX78 Lincoln Town Car. Á haldlagningardegi var virði innistæðnanna kr. 1.076.018 á bankareikningi nr. 0301- 13-112718, söluhagnaður OEN29 og kr. 209.615 á bankareikningi nr. 0301-13- 303998, söluhagnaður KOX78. Upptökukrafan tekur einnig til áfallinna vaxta og verðmætaaukningar hinna haldlögðu verðmæta frá haldlagningardegi, til upptökudags.“
Hinn 11. apríl 2017 gaf héraðssaksóknari út svofellda framhaldsákæru á hendur: „Viðari Má Friðfinnssyni, kt. 000000-0000, Maríubaugi 69, Reykjavík og Veitingahúsinu Læk ehf., kt. 000000-0000, Lækjargötu 6a, Reykjavík, fyrirsvarsmaður Viðar Már Friðfinnsson, kt. 000000-0000 og jafnframt á hendur eftirtöldum félögum til upptöku: Eignarhaldsfélaginu Læk ehf., kt. 000000-0000, Maríubaugi 69, Reykjavík, fyrirsvarsmaður Viðar Már Friðfinnsson, Artist ehf., kt. 000000-0000, Lækjargötu 6a, Reykjavík, fyrirsvarsmaður Viðar Már Friðfinnsson, Trucks ehf., kt. 000000-0000, Lónsbraut 6, Hafnarfirði, skiptastjóri Pétur Örn Sverrisson, hrl. og X-men ehf., kt. 000000-0000, nú gjaldþrota, Skemmuvegi 26, Kópavogi, skiptastjóri Einar Sigurjónsson, hdl. Fasteignin Lónsbraut 6 var seld á nauðungarsölu þann 6. apríl 2016. Endanleg úthlutun söluverðs eignarinnar var greitt 7. október 2016, þ.e. eftir útgáfu ákæru. Bifreiðin RU946 Iveco AD340T44H í eigu Eignarhaldfélagsins Læk ehf., var seld eftir útgáfu ákæru, að beiðni ákærða Viðars Má Friðfinnssonar eiganda félagsins. Á c lið ákæru verða því gerðar svofelldar breytingar vegna kyrrsetningargerða nr. K-9/2014 og K-35/2013: Þess er krafist, með vísan til 69. gr. og 69. gr. b. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, með síðari breytingum, að Eignarhaldsfélagið Lækur ehf., kt. 000000- 0000, sem er í eigu ákærða Viðars Más verði dæmt til að sæta upptöku á fasteigninni Lónsbraut 6. fnr. 224-3638, 225-9956 og 225-9957, Hafnarfirði, sem kyrrsett var þann 28. maí 2014, sbr. kyrrsetningargerð Sýslumannsins í Reykjavík nr. K-9/2014 á innistæðum á bankareikningum sem embætti héraðssaksóknara hefur stofnað í Arion banka hf. nr. 0301-13-304155 og 0301-13-304197. Innistæðurnar eru söluhagnaður vegna Lónsbraut 6, 0127, fnr. 225-9956 og vegna Lónsbraut 6, 0128, fnr. 225-9957. Á haldlagningardegi var virði innistæðanna kr. 7.712.513 á bankareikningi nr. 0301-13-304155, söluhagnaður vegna fnr. 225-9956 og kr. 20.980.431 á bankareikningi nr. 0301-13-304197, söluhagnaður vegna fnr. 225-9957. Upptökukrafan tekur einnig til áfallinna vaxta og verðmætaaukningar hinna haldlögðu verðmæta frá haldlagningardegi, til upptökudags.
Þess er krafist, með vísan til 69. gr. og 69. gr. b. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, með síðari breytingum, að Eignarhaldsfélagið Lækur ehf., kt. 000000- 0000, sem er í eigu ákærða Viðars Más, verði dæmt til að sæta upptöku á eftirfarandi eignum sem kyrrsettar voru þann 8. nóvember 2013, sbr. kyrrsetningargerð Sýslumannsins í Reykjavík nr. K-35/2013: Nr. ökutækis tegund VX719 Scania R164 NH599 Scania R143M 6X4 YR069 Íslandsvagn RU946 Iveco AD340T44H YB610 Scania P124 GA6X4NA 400 YU119 Langendorf SKS HS 20/28 OU527 Festivagn PNO Þess er krafist, með vísan til 69. gr. og 69. gr. b. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, með síðari breytingum, að ákærði Eignarhaldsfélagið Lækur ehf., sem er í eigu ákærða Viðars Más, verði dæmt til að sæta upptöku á innistæðu á bankareikningi sem embætti héraðssaksóknara hefur stofnað í Arion banka hf. nr. 0301-13-111619. Innistæðan er andvirði sölu á bifreiðinni RU946. Á haldlagningardegi var virði innistæðunnar kr. 339.519. Upptökukrafan tekur einnig til áfallinna vaxta og verðmætaaukningar hinna haldlögðu verðmæta frá haldlagningardegi, til upptökudags.“
Verjandi ákærða krefst aðallega frávísunar málsins, til vara sýknu og að bótakröfum verði vísað frá dómi.Til þrautavara er krafsist vægustu refsingar sem lög leyfa og að sýknað verði af bótakröfum en til vara að þær sæti lækkun. Þess er krafist að upptökukröfum verði hafnað. Málsvarnarlauna er krafist úr ríkissjóði samkvæmt tímaskýrslu. Skiptastjóri Trucks ehf. krefst þess að upptökukröfu sem beinist að þrotabúi félagsins verði hafnað og málskostnaður dæmdur að mati dómsins. Fyrir liggur krafa Sveins Andra Sveinssonar hæstaréttarlögmanns um greiðslu málsvarnarlauna vegna vinnu fyrir ákærða undir rannsókn málsins.
Tekin var skýrsla af ákærða hjá lögreglunni 27. maí 2016 þar sem hann lýsti afstöðu sinni til sakarefnisins.
Nú verður rakinn framburður ákærða og vitnisburður fyrir dómi Ákærði neitar sök og hafnar bótakröfum og upptökukröfum. Verjandi ákærða krefst frávísunar málsins og reisti þá kröfu á því að rannsókn málsins væri ófullnægjandi auk þess að telja aðra galla sem hann taldi á málatilbúnaði ákæruvaldsins. Ákæruvaldið andmælti frávísunarkröfunni. Það er mat dómsins að engin haldbær rök hafi verið færð fram sem leiði til frávísunar málsins í heild eins og verjandinn krefst. Frávísunarkröfu hans er því hafnað.
A 1 Ákærði kveðst hafa grunnskólamenntun og hafa starfað við bílaviðgerðir. Á árunum 2010 til 2013 rak hann, auk bílaviðgerða, veitingastaðinn Strawberry´s í gegnum einkahlutafélagið Læk en ákærði kvaðst hafa verið framkvæmdastjóri, prókúruhafi og stjórnarformaður félagsins þann tíma sem ákæran tekur til. Hann kvað félagið hafa verið kampavínsklúbb og lýsti hann rekstri þess og klúbbsins. Hann kvaðst ekki hafa haft mikla aðkomu að daglegum rekstri félagsins. Hann hefði reynt að sjá um félagið en hann hefði haft starfsmenn sem önnuðust innkaup o.fl. Þá hafði hann haft starfsmann til að annast bókhald og allt skjallegt er tengdist félaginu. Spurður um ábyrgð á skattskilum félagsins kvaðst ákærði hafa heyrt að lögum samkvæmt hvíldi ábyrgðin á honum en hann kvað A hafa verið bókara hjá félaginu og hann hefði annast allt sem laut að þessu en ákærði hefði komið gögnum til hans. Borin var undir ákærða leiðréttingarskýrsla virðisaukaskatts og rafrænar skilagreinar allra greiðslutímabila rekstrarársins 2010. Ákærði kvað A hafa útbúið öll þessi gögn en ákærði sjálfur ekki útbúið nein skjöl. Borin voru undir ákærða leiðréttingarskýrsla virðisaukaskatts og rafrænar skilagreinar allra greiðslutímabila rekstrarársins 2011. Ákærði kvað hið sama eiga við um þessa skýrslur. Ákærði kvað A hafa annast þessa skýrslugerð en ákærði komið öllum gögnum fyrirtækisins. Ákærði kveðst ekki vita hvaða gögn þetta voru þar sem hann hafi ekki fengið að sjá gögn sem lagt var hald á undir rannsókninni. Ákærði kvað sömu sjónarmið og svör eiga við rafrænar virðisaukaskattsskýrslur vegna allra greiðslutímabila rekstrarársins 2012. A hafi annast allt er að þessu laut. Bornar voru undir ákærða rafrænar virðisaukaskýrslur vegna fjögurra fyrstu greiðslutímabila rekstrarársins 2013 og virðisaukaskattsskýrslur vegna tveggja síðustu greiðslutímabila þess árs. Ákærði kvað hið sama eiga við og vísaði í því sambandi til A. Skilað var inn núllskýrslu vegna tveggja síðustu greiðslutímabila ársins 2013. Ákærði kvaðst hafa undirritað skýrslurnar en A hefði skilað þeim inn fyrir hönd ákærða. Meðal gagna málsins eru yfirlit yfir innheimtan skattskyldan virðisaukaskatt veitingahússins Lækjar ehf. vegna rekstraráranna 2010 til og með 2013. Þar kemur fram að vangoldinn virðisaukaskattur nemur þeim fjárhæðum sem í ákæru greinir. Spurður um afstöðu til yfirlitanna kveðst ákærði ekki hafa þekkingu til að fara yfir þetta. Þess vegna hefði hann haft endurskoðanda til að vinna þessi verk. Þá liggja fyrir yfirlit um gögn sem skattskyld velta og virðisaukaskattur er byggður á vegna greiðslutímabilanna sem um ræðir. Ákærði kvað hið sama eiga við um þetta, hann hafi ekki annast gerð virðisaukaskattsskýrslna og kvaðst enn vísa á A.
Niðurstaða ákæruliðar A 1 Ákærði neitar sök á þeirri forsendu að hann hafi falið öðrum að sjá um uppgjör virðisaukaskatts og gerð virðisaukaskattsskýrslna. Ákærði var framkvæmdastjóri og stjórnarmaður einkahlutafélagsins Veitingahússins Lækjar á þeim tíma sem ákæran tekur til. Samkvæmt 44. gr. laga nr. 138/1994 um einkahlutafélög bar ákærða að sjá til þess að starfsemi félagsins væri í réttu horfi og að tryggja að félagið innti af hendi lögboðinn virðisaukaskatt og skilaði réttum virðisaukaskattsskýrslum eins og lög áskilja. Ákærði getur ekki varpað þessari ábyrgð á aðra. Sannað er með gögnum sem rakin voru að framan og með öðrum gögnum málsins að ákærði hafi gerst sekur um háttsemina sem í þessum ákærulið greinir og eru brot ákærðu rétt færð til refsákvæða í ákærunni A 2 Ákærði kvaðst hafa safnað saman bókhaldsgögnum félagsins og komið þeim til A. Þetta hafi ákærði gert jafnóðum og afhent A gögnin. Spurður um það hvort bókhald félagsins hafi verið fært, kvaðst ákærði ekki muna nákvæmlega hvernig þetta var og hann viti ekki hvaða gögn voru á bak við það sem hann kom til A en ákærði telji að hann hafi fengið fullnægjandi gögn til færslu bókhaldsins. Hann kvaðst vísa á A varðandi færslu þess.
Niðurstaða ákæruliðar A 2 Ákærða er gefið að sök að hafa rangfært bókhald einkahlutafélagsins Veitingahússins Lækjar. Ekki kemur fram í ákærunni hvaða tímabil eða ár átt er við. Þessi efnislýsing í ákæru er ekki í samræmi við c-lið 1. mgr. 152. gr. laga nr. 88/2008 og er óhjákvæmilegt að vísa þessum ákærulið frá dómi.
B Skattframtöl ákærða vegna gjaldaáranna 2011 til og með 2014 vegna tekjuáranna 2010 til og með 2013 liggja fyrir meðal gagna málsins og voru þau borin undir ákærða. Hann kannaðist ekki við þau og vísaði á A sem hefði annast gerð þeirra fyrir sig. Ákærði kveðst ekki muna nú hvaða gögn hann afhenti A vegna þessa en ákærði hefði skilað öllum gögnum til A vegna þessa. Ákærði kvaðst ekki geta svarað því hvort framtölin gæfu rétta mynd af tekjum hans tekjuárin sem um ræðir. Meðal gagna málsins eru yfirlit sem sýna ætlaðar vanframtaldar launatekjur ákærða fyrir tekjuárin 2010 til og með 2013, samtals að fjárhæð 64.259.767 krónur sem sundurliðast á árin eins og lýst er í ákærunni. Þá liggja fyrir gögn og yfirlit um það hvaðan þessar ætluðu vanframtöldu tekjur koma. Spurður um athugasemdir við þetta kvaðst ákærði ekki muna þetta. Fyrir liggja yfirlit um innlagnir viðskiptavina Strawberry´s inn á bankareikning ákærða sem samtals nema fjárhæðinni sem rakin var að framan. Ákærði kvað þetta geta staðist. Hann kvað þessar fjárhæðir ekki allar hafa runnið til sín. Greiðslurnar hefðu að meira eða minna leyti farið aftur í gegnum rekstur klúbbsins og þar með í verktakagreiðslur til „stelpnanna“ eins og ákærði bar. Ákærði var spurður um fasteignina Maríubaug 69, Reykjavík og hvernig hann eignaðist hana. Ákærði kvaðst, ásamt [...], hafa keypt fasteign í Glósölum sem þau seldu á árinu 2009, að hann taldi, með ágætis hagnaði og hafði hann fengið peninga út úr þeirri sölu sem hann notaði til að kaupa fasteignina að Maríubaug 69, auk þess sem kaupin voru fjármögnuð með láni sem enn hvíli á eigninni. Engir fjármunir hefðu komið úr veitingarekstrinum til að fjármagna íbúðarkaupin eða önnur fasteignakaup eða bílakaup ákærða. Fasteign að Lónsbraut í Hafnarfirði hafi verið keypt með lánum að sögn ákærða. Ákærði kvaðst hafa á sínum tíma hafa keypt bíl frá Bandaríkjunum, gert bílinn upp og komið í umferð en hann sé skráður á félagið Artist. Hann kvað bílar sem hafa verið kyrrsettir og krafist er upptöku á m.a. í eigu Artist. Bílarnir hafi verið í slæmu ástandi er ákærði keypti þá en gerði síðan upp. Þeir hafi nú staðið ónotaðir í 3 ½ ár og séu að verða ónýtir. Ákærði kvað eignarhaldsfélagið Læk hafa átt vörubíla sem voru druslur að sögn ákærða. Hann gerði bílana upp en verðmætið minnki með hverjum deginum og enginn vilji kaupa þá. Ákærði kvað Trucks ehf. hafa verið rekstrarfélag fyrir vörubíla. Tekjur félagsins komu aldrei frá veitingahúsinu Læk eða frá rekstri tengdum því félagi. Það hafi verið óskyld mál. Fjögur vitni báru fyrir dómi og hjá lögreglu um að hafa greitt inn á persónulegan reikning ákærða vegna viðskipta við Veitingahúsið Læk ehf. Nema þessar greiðslur alls 64.259.767 krónum eins og greinir í ákærunni. Eins og rakið var liggja frammi yfirlit og gögn um innlagnir viðskiptavina Strawberry´s inn á bankareikning ákærða sem samtals nemur fjárhæðinni sem rakin var að framan og fyrir dómi kvað ákærði þetta geta staðist.
Vitnið Akvaðst hafa séð um bókhald fyrir félög ákærða Viðars Más á árunum 2010 til 2013, m.a. veitingahúsið Læk. Aðspurður hvort bókhaldið hefði verið fært fyrir veitingahúsið Læk vegna rekstrarársins 2010 til og með 2013 kvað vitnið það hafa verið gert að hluta. Gjaldhliðin hafi verið færð en tekjuhliðin hafi ekki verið færð að fullu. Skýringin sé sú að gögnin sem vitnið fékk frá ákærða Viðari Má og veitingahúsinu hafi verið óskýr og ekki fullnægjandi og því ekki unnt að færa tekjuhliðina en hann hefði fengið þær skýringar að einhver vandamál væru með hana. Hann fékk gögn í slumpum en ekki jafnóðum. Hann hafi geymt gögnin á skrifstofu sinni en á tekjuhliðinni fékk hann aldrei fullnægjandi skýringar og viti ekki hvernig varðveislu þeirra gagna var háttað. A kvaðst hafa gengið á eftir frekari gögnum en framtölum hafi ekki verið skilað eftir rekstrarárið 2010 eða 2011, að hann taldi, en það var síðasta framtalið sem hann skilaði. Framtölin fyrir önnur ár fóru ekki inn vegna ófullnægjandi gagna. Vitnið kvaðst hafa fengið fjárstreymisuppgjör sem hafi verið gögn sem hann fékk afhent en hann hafi alltaf fengið þær skýringar hjá ákærða Viðari Má og starfsmönnum hans að eitthvað væri að þessum gögnum og að ekki væri byggjandi á þeim. Hann hefði því ekki getað notað þau sem bókhaldsgögn þar sem þau væru ekki í lagi. Meðal gagna málsins eru innsend skattframtöl veitingahússins Lækjar rekstrarárin 2010 og 2011 og leiðréttingarskýrslur. Vitnið kvaðst hafa unnið þessi skattframtöl og hann hafi talið sig hafa fengið fullnægjandi gögn og skriflega yfirlýsingu frá ákærða Viðari Má til að vinna þau. Hið sama eigi við um leiðréttingarskýrslu vegna rekstrarársins 2010 og sams konar skýrslu vegna rekstrarársins 2011. Vitnið taldi þannig að framtölin gæfu rétta mynd af tekjum og gjöldum félagsins miðað við þau gögn og skýringar sem hann fékk og hafði undir höndum. Hann hafi borið skattframtölin og leiðréttingarskýrslurnar undir ákærða Viðar Má áður en þeim var skilað og ákærði því vitað niðurstöðuna. Fyrir liggja rafrænar virðisaukaskattsskýrslur vegna allra greiðslutímabila ársins 2012 og fyrstu fjögur greiðslutímabil ársins 2013. A kvaðst hafa útbúið skýrslurnar og skilað inn. Þessar skýrslur hafi verið unnar á grundvelli gagnanna sem fjallað var um að ofan, þ.e. gjöld félagsins hafi verið færð en um tekjur hafi verið munnlegar upplýsingar. Þá liggja fyrir núllskýrslur vegna tveggja síðustu greiðslutímabila ársins 2013. A kvaðst hafa útbúið skýrslurnar en ekki skilað þeim heldur afhent ákærða Viðari Má þær. Skýrslurnar voru útbúnar eftir lokun starfseminnar.
Vitnið A kvaðst hafa unnið persónuleg skattframtöl ákærða Viðars Más fyrir tekjuárin 2010 til og með 2013. Árið 2010 voru tekjur frá Reisn 1.200.000 krónur. Þetta hafi verið unnið út frá bókfærðum tekjum hjá félaginu en hann hafi ekki fengið upplýsingar um frekari tekjur ákærða. Hið sama eigi við um hin tekjuárin sem eftir standa. Hann hafi ekki haft neinar upplýsingar um aðrar tekjur ákærða þau ár. Hann hafi farið yfir skattframtölin með ákærða Viðari Má áður en þeim var skilað. Niðurstaða ákæruliðar B Ákærði neitar sök. Sannað er með framburði ákærða og vitnisburði þeirra sem lögðu inn á persónulegan bankareikning ákærða og með gögnum þar að lútandi að lagðar voru inn á persónulegan bankareikning ákærða samtals 64.259.767 krónur sem sundurliðast eins og lýst er í ákærunni. Ákærði taldi þessar tekjur ekki fram á skattframtölum sínum vegna tekjuáranna 2010 til og með 2013 eins og lög áskilja en tekjurnar voru skattskyldar samkvæmt þeim lagaákvæðum sem vísað er til í ákærunni. Með þessu komst ákærði hjá því að greiða tekjuskatt og útsvar að fjárhæð 28.054.423 krónur. Brot ákærða samkvæmt þessum ákærulið eru rétt færð til refsiákvæða í ákærunni.
Ákærði hefur ekki áður gerst brotlegur við lög. Refsing hans er ákvörðuð með hliðsjón af 77. gr. almennra hegningarlaga. Mjög langur tími er liðinn frá því ákærði framdi broti sín. Að öllu þessu virtu þykir refsing ákærða hæfilega ákvörðuð fangelsi í 12 mánuði. Langur tími er liðinn frá framningu brotanna og verður ákærði ekki sakaður um dráttinn á málinu. Þykir því rétt að skilorðsbinda refsivistina eins og í dómsorði greinir. Auk refsivistar ber að dæma ákærða og Veitingahúsið Læk ehf. til greiðslu sektar. Eins og sakarefninu er háttað þykir sekt ákærða Viðars Más hæfilega ákvörðuð 242.000.000 króna þar af greiði hann 158.000.000 króna óskipt með ákærða Veitingahúsinu Læk ehf. Undir dómsmeðferð málsins var fallið frá upptökukröfunni að því er varðar ýmsa skartgripi, hringi, Rolex úr, hálskeðjur og bindinælur. Með vísan til 69. gr. og 69. gr. b almennra hegningarlaga eru uppfyllt skilyrði laganna til að dæma upptækar til ríkissjóðs eftirtaldar eignir Veitingahússins Lækjar ehf.: Innstæðu á bakareikningi 0513-26-0439, 490 dollara og 13.500 krónur. Aðrar eignir sem krafist er að dæmdar verði upptækar varða ekki Veitingahúsið Læk ehf. Eins og rakið var var lagt hald á þessi verðmæti undir rannsókn málsins hjá lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu þar sem til rannsóknar voru önnur brot en þau sem ákært er fyrir. Í framangreindu bréfi lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu, dags. 12. janúar 2016, segir að meðal sakarefna sem rannsökuð voru hafi verið brot gegn 206. gr. almennra hegningarlaga og peningaþvættisákvæði 264. gr. almennra hegningarlaga. Í rannsóknargögnum þessa máls er ekkert um þetta enda ekki ákært fyrir brot gegn þessum lagaákvæðum. Gögn um hina haldlögðu og kyrrsettu muni, sem nú er krafist upptöku á, fylgdu með málinu er það var sent frá lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu til héraðssaksóknara. Þar fór því engin rannsókn fram á því hvort hinir haldlögðu munir tengdust eitthvað brotum ákærða sem hér er ákært vegna. Þá liggur ekkert fyrir um það hvenær ákærði Viðar eða félögin sem um ræðir eignuðust þessi verðmæti svo sem hvort það var áður en ákærði framdi brotin sem hann er nú sakfelldur fyrir. Ákærði hefur andmælt upptökukröfunum og hefur hann m.a. sýnt fram á það hvernig hann eignaðist fasteignina að Maríubaug 69 og verður ekki betur séð en að það hafi ekkert með sakarefni málsins að gera. Ákærði hefur skýrt frá því að þessar eignir tengist ekkert rekstri Veitingahússins Lækjar ehf. eins og rakið var hvorki varðaandi fasteignina Maríubaugur 69 né og bifreiðar og annað lausafé sem hér um ræðir. Í greinargerð með lagafrumvarpinu sem varð að lögum 149/2009 segir að tilgangur ákvæðisins sem varð að 69 gr. b sé einkum að ná til einstaklinga sem hafi lifibrauð sitt eða verulegar tekjur af brotastarfsemi og megi gera ráð fyrir því að ákvæðinu verði aðallega beitt vegna innflutnings ávana- og fíkniefna, auðgunarbrota og annarrar skipulegrar brotastarfsemi. Í samræmi við þetta er óþekkt að lagt sé hald á verðmæti eins og þau sem hér um ræðir við rannsókn brota eins og þeirra sem um getur í málinu. Skýringa á hinum haldlögðu munum er að leita í því að við rannsókn málsins hjá lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu var til rannsóknar allt annað sakarefni eins og rakið var og kann við þær aðstæður að hafa verið eðlilegt að leggja hald á þessa muni. Að þessu virtu og að virtum tilganginum með setningu laga nr. 149/2009 sem breyttu almenum hengingarlögum og varða upptöku, hryðjuverk, skipulagða brotastarfsemi, mansal og peningaþvætti, er það mat dómsins, að ekki séu uppfyllt lagaskilyrði til að dæma önnur verðmæti upptæk en þau sem nefnd voru og sem voru eign Veitingahússins Lækjar ehf. Ber samkvæmt þessu að sýkna ákærða og félögin af öðrum upptökukröfum. Í 173. gr. laga nr. 88/208, um meðferð sakamála, er því lýst hvað skuli koma fram í einkaréttarkröfu. Skaðabótakrafa fjármálaráðherra, fyrir hönd ríkissjóðs, uppfyllir ekki skilyrði lagagreinarinnar og ber að vísa henni frá dómi. Ríkissjóður greiði þrotabúi Trucks ehf. 250.000 krónur í mákostnað. Eins og rakið var hófst rannsókn á hendur ákærða og Veitingahúsinu Læk ehf. í október 2013. Ráða má af gögnum málsins að mestur hluti vinnu verjenda hefur verið vegna við það er tengdist rannsókn lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu en fyrir liggur að mikill tími hefur farið í mál þetta. Með hliðsjón af þessu greiði ákærðu óskipt 1/3 hluta af 13.828.480 króna málsvarnarlaunum Páls Kristjánssonar héraðsdómslögmanns á móti 2/3 hlutum sem greiðast úr ríkissjóði. Ákærðu og ríkissjóður greiði í sömu hlutföllum 1.115.070 króna málsvarnarlaun Sveins Andra Sveinssonar hæstaréttarlögmanns vegna vinnu hans undir rannsókn málsins Tekið hefur verið tillit til virðisaukaskatts við ákvörðun lögmannsþóknunar. Ásmunda Björg Baldursdóttir saksóknarfulltrúi flutti málið fyrir ákæruvaldið. Dóminn kveða upp héraðsdómararnir Guðjón St. Marteinsson, sem dómsformaður, og Arngrímur Ísberg og Lárus Finnbogason, löggiltur endurskoðandi.
Dómsorð:
Ákærulið A 2 er vísað frá dómi. Ákærði, Viðar Már Friðfinnsson, sæti fangelsi í 12 mánuði en fresta skal fullnustu refsingarinnar skilorðsbundið í 2 ár frá birtingu dómsins að telja og falli refsingin niður að þeim tíma liðnum haldi ákærði almennt skilorð 57.gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955. Ákærði Viðar Már greiði 242.000.000 króna sekt í ríkissjóð þar af greiði hann 158.000.000 krónur af sektinni óskipt með ákærða Veitingahúsinu Læk ehf. Ákærði Viðar Már sæti fangelsi í 12 mánuði í stað sektarinnar verði hún ekki greidd inna fjögurra vikna frá uppsögu dómsins að telja. Veitingahúsið Lækur ehf. sæti upptöku á: Innstæðu á bakareikningi 0513- 26-0439, 490 dollurum og 13.500 krónum. Sýknað er af öðrum upptökukröfum. Skaðabótakröfum fjármálaráðherra fyrir hönd ríkissjóðs er vísað frá dómi. Ríkissjóður greiði þrotabúi Trucks ehf. 250.000 krónur í mákostnað. Ákærðu greiði óskipt 1/3 hluta af 13.828.480 króna málsvarnarlaunum Páls Kristjánssonar héraðsdómslögmanns á móti 2/3 hlutum sem greiðast úr ríkissjóði. Ákærðu og ríkissjóður greiði í sömu hlutföllum 1.115.070 króna málsvarnarlaun Sveins Andra Sveinssonar hæstaréttarlögmanns.
Guðjón St. Marteinsson Arngrímur Ísberg Lárus Finnbogason