Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

91 dómar fundust

Lykilorð: Bifreiðir

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 1. maí 2026 kl. 12:55

E-2357/2025

Marcin Piotr Chorzempa (Eiríkur Gunnsteinsson lögmaður) gegn Sjóvá-Almennum tryggingum hf (Heiður Heimisdóttir lögmaður)

Bifreið stefnanda, einstaklings, skemmdist í árekstri þar sem stefndi, tryggingafélag, bar greiðsluábyrgð á tjóninu. Stefnandi krafðist þess að stefndi greiddi honum bætur skv. mati réttingaverkstæðis sem stefndi hafði leitað til til þess að fá fjártjón stefnanda metið. Stefndi hafði lækkað fjárhæð bóta sem stefnandi hafði, þó með fyrirvara um hærri fjárkröfu, tekið við sem samkomulagsgreiðslu. Talið var að stefndi hefði ekki fært sönnur á það með hlutlausum gögnum að lækkun á bótagreiðslu væri sanngjörn og eðlileg. Því var talið að stefndi hefði ekki sýnt fram á að með þeirri fjárhæð sem hann hafði greitt stefnanda í samkomulagsbætur hefði stefndi bætt tjón á bifreið stefnanda að fullu. Því var fallist á kröfu stefnanda.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 27. apríl 2022

E-106/2020

A (Steingrímur Þormóðsson lögmaður) gegn Sjóvá-Almennum tryggingum hf. og Nathani & Olsen hf (Sigurður Ágústsson lögmaður)

Stefnandi lenti í árekstri 12. febrúar 2013 þegar ekið var aftan á bifreið hennar þar sem hún var kyrrstæð að bíða eftir grænu ljósi við gatnamót. Ágreiningur reis um það hvort sýnt hefði verið fram á orsakatengsl á milli líkamstjóns stefnanda og aftanákeyrslunnar eða hvort það ætti rætur að rekja til eldra slyss eða fyrra heilsufars stefnanda. Þá var deilt um sönnunargildi matsgerða. Þegar litið var til þess langa tíma sem leið frá slysinu og þar til stefnandi sannanlega lagði fram kvartanir um meiðsli sín, matsgerðar yfirmatsmanna, fyrri heilsufarssögu stefnanda og þess að ekki var um harðan árekstur að ræða var ekki talið að stefnanda hefði tekist sönnun um að hún hafi hlotið það varanlega líkamstjón sem hún krafðist viðurkenningar á við slysið 12. febrúar 2013. Að mati dómsins, sem skipaður var sérfróðum meðdómendum, var ekki fallist á að slíkir gallar væru á yfirmatsgerð að valdið gætu því að horft yrði fram hjá niðurstöðu hennar og byggt þess í stað á undirmatsgerð.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 4. júní 2021

S-1069/2021

Ákæruvaldið (Haukur Gunnarsson aðstoðarsaksóknari) gegn X (Ómar Örn Bjarnþórsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Manndráp og líkamsmeiðing af gáleysi í tengslum við umferðarslys.

Héraðsdómur Reykjaness birt 20. nóvember 2020

E-1678/2020

Þrb. Jarðbundins ehf (Ragnar Björgvinsson lögmaður) gegn Jósep Geir Guðvarðssyni (Hilmar Magnússon lögmaður)

Stefnda, fyrrverandi stjórnarmanni í einkahlutafélagi var gert að endurgreiða þrotabúi stefnanda, úttektir stefnda að fjárhæð 989.805 krónur, sem töldust lán til stefnda í skilningi einkahlutafélagalaga.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 18. mars 2020

E-3882/2016

A (Óðinn Elísson lögmaður) gegn Verði tryggingum hf (Magnús Hrafn Magnússon lögmaður)

Stefnandi krafðist fullra bóta úr slysatryggingu ökumanns, en hið stefnda tryggingafélag hafði skert bætur hans um helming. Stefndi hélt því fram að stefnandi hefði sýnt af sér stórkostlegt gáleysi er hann ók bifhjóli sínu beint aftan á pallbifreið sem ekið var í sömu akstursstefnu. Með hliðsjón af matsgerð dómkvadds matsmanns var lagt til grundvallar að bifhjólinu hefði verið ekið með um 96-102 km hraða á klst. er slysið varð, á vegi þar sem leyfður hámarkshraði er 70 km/klst. Var fallist á að stefnandi hefði með hátterni sínu sýnt af sér stórfellt gáleysi og að stefnda væri því heimilt að skerða bætur til hans, þó ekki meira en um þriðjung.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 18. desember 2018

E-650/2018

Vegagerðin (Reynir Karlsson lögmaður) gegn Tryggingamiðstöðinni hf (Hjörleifur Kvaran lögmaður)

Vörubifreið sem ekið var af réttindalausum ökumanni á miklum hraða valt í Ártúnsbrekku og dreifðist möl yfir götuna. Kröfur stefnanda um bætur vegna hreinsun vegarins var hafnað þar sem hlutaverk stefnanda samkvæmt lögum væri að halda vegum greiðfærum og lagaheimild skorti til að innheimta kostnað við hreinsun vega.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 29. nóvember 2018

E-904/2018

Magnús Bragi Magnússon (Þormóður Skorri Steingrímsson lögmaður) gegn Verði tryggingum hf og Ósk Óskarsdóttur (Eva Bryndís Helgadóttir lögmaður)

Viðurkennd var bótaskylda tryggingafélags og eiganda bifreiðar vegna tjóns sem hlaust af því að bifreiðinni var ekið á þrjú hross í eigu stefnanda, en aflífa þurfti eitt þeirra í kjölfarið. Ekki var fallist á að takmarka bæri eða fella niður bótaskyldu vegna eigin sakar eiganda hrossanna.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 14. júní 2018

E-3897/2017

Elín Björk Magnúsdóttir (Halldór Hrannar Halldórsson lögmaður) gegn Sjóvá-Almennum tryggingum hf (Ásdís Kjerúlf lögmaður)

Talið var ósannað að brunatjón á bifreið yrði rakið til notkunar annarrar bifreiðar þannig að bótaskylt væri úr ábyrgðartryggingu hennar.

Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 7. júní 2018

S-155/2017

Ákæruvaldið (Eyþór Þorbergsson fulltrúi) gegn Björgvini Má Árnasyni (Júlí Ósk Antonsdóttir lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Sakfellt fyrir líkamsmeiðingar af gáleysi og umferðarlagabrot.

Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 25. janúar 2018

S-41/2017

Ákæruvaldið (Agnes Björk Blöndal fulltrúi) gegn Gunnlaugi Sigvaldasyni (Berglind Jónasardóttir lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

G var dæmdur til greiðslu sektar fyrir að draga eftirvagn með of þungan farm miðað við skráningarskírteini, auk þess sem merkingu farms var áfátt.

Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 29. desember 2017

S-104/2017

Ákæruvaldið (Eyþór Þorbergsson ftr) gegn Bryndísi Pálínu Arnarsdóttur (Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson hrl), Ísak Loga Bjarnasyni (Guðmundur St. Ragnarsson hdl) og Þórði Má Sigurjónssyni (Páll Kristjánsson hrl)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

B var sakfelld fyrir tvær líkamsárásir með hættulegri aðferð, en sýknuð af hinni þriðju. Þá var hún ásamt Þ og Í sakfelld fyrir tilraun til þjófnaðar. Þ var einnig sakfelldur fyrir umferðarlagabrot Í var einn sakfelldur fyrir nokkur brot gegn umferðarlögum, lögum um ávana- og fíkniefni og vopnalögum B var einnig sakfelld fyrir brot gegn valdstjórninni

Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 12. desember 2017

S-135/2017

Ákæruvaldið (Agnes Björk Blöndal fulltrúi) gegn Viljari Má Hafþórssyni I
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Sakfellt fyrir akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna, sem mældust í þvagi.

Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 1. ágúst 2017

S-46/2017

Ákæruvaldið (Agnes Björk Blöndal fulltrúi) gegn Haraldi Kjartanssyni
Lykilorð: Bifreiðir.
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

H var dæmdur til greiðslu sektar fyrir að aka hópbifreið með bilaðan ökurita, án þess að skrá sjálfur jafnharðan upplýsingar um ökufeðina

Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 12. maí 2017

S-47/2017

Ákæruvaldið (Eyþór Þorbergsson fulltrúi) gegn Daníel Birgi Ívarssyni (Ingvar Þóroddsson hrl)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Maður var dæmdur í fangelsi, skilorðsbundið að hluta, fyrir að aka ítrekað undir áhrifum ávana- og fíkniefna og tilraun til þjófnaðar. Sviptur ökurétti ævilangt.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 24. mars 2017

E-1750/2016

Ingibjörg Magnúsdóttir (Ágúst Ólafsson hdl) gegn Lárusi Valberg Valbergssyni (Páll Arnór Pálsson hrl)

Stefnandi krafðist skaðabóta fyrir tjón á húsbifreið sem skemmdist í geymslu hjá stefnda. Fallist á að bifreiðin hafi gereyðilagst í geymslunni. Bætur miðuðu við markaðsverð á kaupdegi niðurfærðu samkvæmt reglum um afskriftir bifreiða í skattframtali.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 6. desember 2016

E-270/2015

A (Steingrímur Þormóðsson hrl) gegn Sjóvá-Almennum tryggingum hf (Kristín Edwald hrl)

Deilt um rétt stefnanda til dánarbóta úr frítímaslysatryggingu vegna andláts sonar hans, sem lést í umferðarslysis. Umdeilt ákvæði í skilmálum slysatryggingar í frítíma talið fela í sér heimila afmörkun á umfangi tryggingingarinnar en í ákvæðinu sagði að tryggingin næði ekki til tjóns af völdum ökutækja Ekki fallist á það með stefnanda að í ákvæðinu fælist undanþága frá ábyrgð tryggingafélags sem færi í bága við ákvæði laga nr. 30/2004. Því var einnig hafnað að ógildingarsjónarmið samningaréttar gætu leitt til þes að ákvæðinu yrði vikið til hliðar

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 18. nóvember 2016

E-2142/2015

A (Styrmir Gunnarsson hdl) gegn B og Sjóvá-Almennum tryggingum hf (Kristín Edwald hrl)

Krafa stefnanda um frekari bætur vegna líkamstjóns í umferðarslysi talin fyrnd. Talið var að meira en 4 ár hafi liðið frá því stefnanda hafi mátt vera kunnugt um þau atvik sem krafa hans byggði á þar til fyringu var slitið með málshöfðun. Hins vegar var hafnað málsástæðum stefnda um að fyrirvari sem stefnandi gerði við upphaflegt uppgjör bóta væri ógildur.

Héraðsdómur Suðurlands birt 1. nóvember 2016

S-117/2016

Ákæruvaldið (Elimar Hauksson fulltrúi) gegn Svavari Valdimarssyni (Ólafur Björnsson hrl)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var fundinn sekur um umferðaralagabrot, með því að hafa ekið með óskráðan og óhemlaðan eftirvagn, með 11.650 kg yfirþunga. Refsing ákærða var hæfilega ákveðin 800.000 kr. sekt í ríkissjóð.

Héraðsdómur Suðurlands birt 18. október 2016

S-115/2016

Ákæruvaldið (Elimar Hauksson fulltrúi) gegn Þórði Guðnasyni
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði fundinn sekur um akstur sviptur ökurétti og brot gegn ákvæðum umferðarlaga um ásþunga og þyngd. Ákærða var dæmdur hegningarauki og honum gert að sæta fangelsi í 15 daga, auk þess sem hann var dæmdur til greiðslu sektar að fjárhæð 500.000 kr.

Héraðsdómur Suðurlands birt 3. október 2016

S-65/2016

Ákæruvaldið (Grímur Hergeirsson fulltrúi) gegn Ásgeiri Svan Herbertssyni (Guðmundur Ágústsson hrl)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var fundinn sekur um umferðaralagabrot, með því að hafa ekið með óskráðan, óhemlaðan og ljóslausan eftirvagn, án undirakstursvarnar með 10.400 kg yfirþunga. Refsing ákærða var hæfilega ákveðin 800.000 kr sekt í ríkissjóð.

Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 8. september 2016

S-31/2016

Ákæruvaldið (Agnes Björk Blöndal fulltrúi) gegn X
Málaflokkur: Auðgunarbrot

A sæti 30 daga fangelsi fyrir þjófnað og umferðarlagabrot

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 22. ágúst 2016

E-420/2015

M (Agnar Þór Guðmundsson hdl) gegn Draupni Gestssyni (Snorri Sturluson hdl) og Vátryggingafélagi og Íslands hf. (Heiðar Örn Stefánsson hrl)

Stefndu dæmdir til að greiða stefnanda miskabætur skv. 26. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993 vegna líkamstjóns sem stefnandi varð fyrir í umferðarslysi þar sem sannað var að ökumaðurinn hafði sýnt af sér stórkostlegt gáleysi.

Héraðsdómur Austurlands birt 30. október 2013

E-27/2013

Plútó ehf (Þórður Heimir Sveinsson hdl) gegn Bílasölu Austurlands ehf. og Bóasi Hallbirni Eðvaldssyni (Jón Jónsson hrl) og og Vátryggingafélagi Íslands og hf. (Einar Baldvin Axelsson hrl)

Stefnandi krafðist endurgreiðslu skuldar og skaðabóta úr hendi stefndu í tilefni af kaupum á innfluttri notaðri bifreið. Stefndu voru sýknaðir af öllum kröfum stefnanda.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 18. október 2013

E-2100/2012

Björg Ólavía Ólafsdóttir (Þórdís Bjarnadóttir hrl) gegn Ragnheiði Margréti Júlíusdóttir og Vátryggingafélagi Íslands hf (Hákon Árnason hrl)

Deilt var um hvort stefnandi ætti rétt á skaðabótum vegna líkamstjóns af völdum umferðarslyss. Niðurstaðan varð sú að viðurkenna skaðabótaábyrgð og greiðsluskyldu úr viðkomandi ábyrgðartryggingu.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 16. október 2013

E-3889/2012

Ingi Freyr Hansen Ágústsson (Ólafur Örn Svansson hrl) gegn Verði tryggingum hf (Björn Lárus Bergsson hrl)

Aðilar deildu um hvaða árslaun bæri að leggja til grundvallar við útreikning bóta fyrir varanlega örorku stefnanda af völdum umferðarslyss. Fallist var á varakröfu stefnanda.

Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 11. október 2013

S-176/2012

Ákæruvaldið (Eyþór Þorbergsson fulltrúi) gegn X (Hreinn Pálsson hrl)
Lykilorð: Ásþungi. Bifreiðir. Sönnun.
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sektaður fyrir vanrækslu á skráningu á aksturstíma, en sýknaður af ákæru fyrir að aka vagnlest of þungri.

Hleð fleiri dómum…