Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

12 dómar fundust

Lykilorð: Bótakrafa

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 8. október 2025

S-4290/2025

Héraðssaksóknari (Sonja Símonardóttir saksóknarfulltrúi) gegn Atla Kristjánssyni (Steinbergur Finnbogason lögmaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Ákærði, sem játaði sök, dæmdur til að sæta fangelsi í 15 mánuði, skilorsðbundið til þriggja ára, fyrir líkamsárás og sérstaklega hættulega líkamsárás. Þá var hann dæmdur til að greiða brotaþolum miskabætur.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 13. janúar 2025

E-7457/2023

A (Halldór Ingi Blöndal lögmaður) gegn Reykjavíkurborg (Björn Atli Davíðsson lögmaður)
Lykilorð: Bótakrafa.

Stefnandi krafðist miskabóta úr hendi stefnda vegna tilgreindra aðgerða stefnda. Ekki var fallist á kröfu stefnanda þar sem ekki var talið að umræddar aðgerðir stefnda hefðu hafa falið í sér ólögmæta meingerð í skilningi b-liðar 1. mgr. 26. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 9. desember 2024

E-778/2024

A (Axel Kári Vignisson lögmaður) gegn Reykjavíkurborg (Elín Hrefna Ólafsdóttir lögmaður)
Lykilorð: Bótakrafa.

Stefnandi krafðist miskabóta úr hendi stefnda vegna málsmeðferðar og ákvarðatöku stefnda varðandi beiðni hennar um að taka barnabarn sitt í fóstur, sem og varðandi umgengni við barnið. Ekki var fallist á kröfu stefnanda um miskabætur þar sem málsmeðferð og ákvarðanataka stefnda var ekki talin hafa falið í sér ólögmæta meingerð í skilningi b-liðar 1. mgr. 26. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 20. febrúar 2024

E-1641/2023

Erna Guðmundsdóttir (Gísli Guðni Hall lögmaður) gegn Bandalagi háskólamanna og Friðriki Jónssyni (Áslaug Árnadóttir lögmaður)

Deilt um trúnaðarákvæði í starfslokasamningi stefnanda. Stefndu sýknaðir af kröfu um bætur fyrir fjártjón og miska stefnanda sem byggði á því að stefndu hefðu brotið gegn ákvæðinu með því að stefndi F hefði fjallað um stefnanda og starfslok hennar í pistli til formanna aðildarfélaga meðstefnda. Ekki var fallist á það með stefnanda að umdeild ummæli fælu í sér, beint eða óbeint, umfjöllun um stefnanda eða störf hennar. Af þeim sökum var ekki fallist á að um brot á trúnaði væri að ræða eða að í umdeildum ummælum hefði verið vegið að starfsheiðri eða orðspori stefnanda.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 4. júní 2021

S-1069/2021

Ákæruvaldið (Haukur Gunnarsson aðstoðarsaksóknari) gegn X (Ómar Örn Bjarnþórsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Manndráp og líkamsmeiðing af gáleysi í tengslum við umferðarslys.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 9. október 2019

E-824/2019

A (Hrefna Björk Rafnsdóttir lögmaður) gegn íslenska ríkinu (María Thejll lögmaður)
Lykilorð: Bótakrafa.

Stefndi sýknaður af bótakröfu stefnanda að fjárhæð 1.500.000 kr. Krafa var vegna þvingunarúrræða sem stefnandi hafði verið beittur vegna rannsóknar máls en mál var síðan fellt niður án þess að ákært væri. Talið var að stefnandi hefði valdið eða stuðlað að þeim aðgerðum sem hann sætti með háttsemi sinni.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 9. október 2019

E-823/2019

A (Hrefna Björk Ragnarsdóttir lögmaður) gegn íslenska ríkinu (María Thejll lögmaður)
Lykilorð: Bótakrafa.

Stefndi er sýknaður af bótakröfu stefnanda að fjárhæð 1.200.000 krónur. Krafa var vegna þvingunarúrræða sem stefnandi hafði verið beittur vegna rannsóknar máls en mál var síðan fellt niður án þess að ákært væri. Talið var að stefanndi hefði valdið eða stuðlað að þeim aðgerðum sem hann sætti með háttsemi sinni.

Hæstiréttur birt 22. mars 2001

368/2000

Ragnar Ingi Margeirsson (Gylfi Thorlacius hrl) gegn íslenska ríkinu (Skarphéðinn Þórisson hrl)

X var ákærður fyrir tilraun til þjófnaðar. Var honum gefið að sök að hafa í fjögur skipti reynt að brjótast inn í fyrirtæki í auðgunarskyni. Var hann sakfelldur fyrir að hafa reynt það í þrígang en í einu tilviki þótti það ekki fyllilega sannað. Með hliðsjón af löngum brotaferli X var honum gert að sæta fangelsi í 12 mánuði.