Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

7 dómar fundust

Lykilorð: Sök

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 15. október 2025

E-6330/2024

Sjóvá-Almennar tryggingar hf (Heiður Heimisdóttir lögmaður) gegn A (Þorsteinn Hjaltason lögmaður)

Fallist á kröfu tryggingarfélags um að ökumanni bifreiðar beri að endurgreiða skaðabætur, sem honum voru greiddar vegna umferðarslyss, þar sem hann hafi ekki átt rétt til þeirra sökum þess að hann hafi verið undir áhrifum ávana- og fíkniefna við akstur bifreiðarinnar í greint sinn og með því valdið því að vátryggingaratburður varð, sem og þar sem hann hafi gefið rangar eða ófullnægjandi upplýsingar í kjölfar slyssins, varðandi ástand sitt á þeim tíma er slysið varð. Í málinu var einnig staðfest kyrrsetningargerð sem gerð var af þessu tilefni.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 10. júní 2025

E-3349/2024

Costco Wholesale Iceland ehf (Teitur Gissurarson lögmaður) gegn Olíudreifingu ehf (Bergur Hauksson lögmaður)

Stefndi var sýknaður af skaðabótakröfu stefnanda þar sem að ósannað þótti að meta bæri það starfsmanni stefnda til gáleysis, eins og á stóð, að hann hafði aftengt rakanema til þess að unnt væri að dæla díselolíu á eldsneytisstöð stefnanda. En auk þess þá taldi dómurinn jafnframt að helstu orsakir þess tjóns sem stefnandi varð síðan fyrir eftir að barki rofnaði og olía lak út væri einkum að rekja til þess að engin stöðug þjónusta var tryggð við stöðina af hálfu stefnanda.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 29. apríl 2022

S-2857/2020

Ákæruvaldið (Finnur Þór Vilhjálmsson saksóknari) gegn Rosio Bertu Calvi Lozano (Sigurður G. Guðjónsson lögmaður)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Sakfellt fyrir umboðssvik en sýknað af ákæru varðandi meintan fjárdrátt/umboðssvik, misneytingu og gripdeild. Sakartæming gagnvart peningaþvætti. Skilorðsbundin refsing, fjármunir gerðir upptækir og fallist á skaðabótakröfur. Sakarkostnaður að hluta felldur á ríkissjóð.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 4. júní 2021

S-1069/2021

Ákæruvaldið (Haukur Gunnarsson aðstoðarsaksóknari) gegn X (Ómar Örn Bjarnþórsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Manndráp og líkamsmeiðing af gáleysi í tengslum við umferðarslys.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 12. maí 2021

E-538/2019

AHAB ehf (Geir Gestsson lögmaður) gegn Isavia ohf (Stefán Geir Þórisson lögmaður)

Deilt var um hvort staðið hafi verið með réttum hætti að samkeppni um leigu á verslunar- og veitingarými í Flugstöð Leifs Eiríkssonar á árinu 2014. Taldi dómurinn m.a. að ekki yrði talið að stefndi hafi brotið rétt á stefnanda með því að hafa ekki farið eftir skilmálum í útboðinu. Var stefndi sem er opinbert hlutafélag sýknaður af kröfum stefnanda.

Hæstiréttur birt 31. janúar 2002

303/2001

Ísafjarðarbær (Hákon Árnason hrl) gegn Hildi Jóhannesdóttur (Björn Jóhannesson hdl)

Deilt var um skaðabótaskyldu Í vegna líkamstjóns er H varð fyrir þegar æfing Slökkviliðs Í fór úr böndunum í desember 1993. Hafði slökkviliðið um tíma ekki ráðið við eldinn og eldtungur staðið að húsi H sem var í einungis 4 metra fjarlægð frá því húsi sem kveikt var í á æfingunni. H þjáðist í kjölfarið af þunglyndi og kvíðaröskun. Talið var að slökkviliðið hefði sýnt af sér gáleysi við undirbúning og framkvæmd æfingarinnar, m.a. með því að kveikja eld í íbúðahverfi án sérstakra verklegra ráðstafana, auk þess sem misbrestur hafði orðið á því að tilkynna H um æfinguna. Af læknisfræðilegum gögnum og framburði í málinu þótti ráðið með öruggri vissu að H hefði orðið fyrir áfallastreituröskun við eldsvoðann og hlotið varanlegt heilsutjón af. Var því sannað að orsakatengsl væru milli atburðarins og heilsutjóns H. Þá þótti umrætt heilsutjón einnig sennileg afleiðing eldsvoðans, þar sem H hefði haft réttmæta ástæðu til að telja sjálfa sig, heimili sitt og eigur í bráðri hættu er hún vaknaði við umræddar aðstæður. Engu máli var talið skipta í því sambandi, þótt svo kynni að verða metið eftir á að henni hafi ekki í raun verið búin raunveruleg hætta. Var Í dæmdur skaðabótaskyldur vegna þess heilsutjóns sem H varð fyrir við eldsvoðann.