Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

2 dómar fundust

Lykilorð: Eldsvoði

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 8. febrúar 2021

E-1426/2020

Sverrir Geir Guðlaugsson (Gunnar Egill Egilsson lögmaður) gegn Verði tryggingum hf (Magnús Hrafn Magnússon lögmaður)
Málaflokkur: Vátryggingaréttur

Fallist á að tryggingafélagi yrði gert að bæta brunatjón á fasteign og innbúi að fullu. Ekki þannig talið heimilt að skerða bætur um helming vegna vanrækslu eiganda við að sinna ábendingum eftirlitsaðila um úrbætur á raflögnum hússins og orsakatengsl á milli vanbúnaðar eða vanrækslu og eldsvoðans talin ósönnuð.

Hæstiréttur birt 31. janúar 2002

303/2001

Ísafjarðarbær (Hákon Árnason hrl) gegn Hildi Jóhannesdóttur (Björn Jóhannesson hdl)

Deilt var um skaðabótaskyldu Í vegna líkamstjóns er H varð fyrir þegar æfing Slökkviliðs Í fór úr böndunum í desember 1993. Hafði slökkviliðið um tíma ekki ráðið við eldinn og eldtungur staðið að húsi H sem var í einungis 4 metra fjarlægð frá því húsi sem kveikt var í á æfingunni. H þjáðist í kjölfarið af þunglyndi og kvíðaröskun. Talið var að slökkviliðið hefði sýnt af sér gáleysi við undirbúning og framkvæmd æfingarinnar, m.a. með því að kveikja eld í íbúðahverfi án sérstakra verklegra ráðstafana, auk þess sem misbrestur hafði orðið á því að tilkynna H um æfinguna. Af læknisfræðilegum gögnum og framburði í málinu þótti ráðið með öruggri vissu að H hefði orðið fyrir áfallastreituröskun við eldsvoðann og hlotið varanlegt heilsutjón af. Var því sannað að orsakatengsl væru milli atburðarins og heilsutjóns H. Þá þótti umrætt heilsutjón einnig sennileg afleiðing eldsvoðans, þar sem H hefði haft réttmæta ástæðu til að telja sjálfa sig, heimili sitt og eigur í bráðri hættu er hún vaknaði við umræddar aðstæður. Engu máli var talið skipta í því sambandi, þótt svo kynni að verða metið eftir á að henni hafi ekki í raun verið búin raunveruleg hætta. Var Í dæmdur skaðabótaskyldur vegna þess heilsutjóns sem H varð fyrir við eldsvoðann.