Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

151 dómar fundust

Lykilorð: Viðurkenningardómur

Héraðsdómur Reykjaness birt 31. janúar 2025

E-2014/2024

Málið nr. E-2014/2024 A (Hildur Guðrún Þorleifsdóttir lögmaður) gegn B (Ólafur Valur Guðjónsson lögmaður)

A, iðnverkamaður, slaðist alvarlega við vinnu í atvinnuhúsnæði B þann 8. desember 2021 þegar gafflar duttu af skotbómulyftara og höfnuðu á vinstri fótlegg A. Vinnueftirlitinu var ekki tilkynnt um slysið og fór því ekki fram rannsókn á tildrögum og orsök slyssins. Bar B látinn bera hallann af því og þeim sönnunarskorti sem af leiddi. Fallist var á að B bæri ábyrgð á því líkamstjóni A sem hlaust af slysinu, í samræmi við viðurkenningarkröfu A þar að lútandi.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 30. janúar 2025

E-3837/2023

A (Sævar Þór Jónsson lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Jónas Birgir Jónasson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Því var hafnað að meðferð opinberra starfsmanna á máli stefnanda hefði verið saknæm og ólögmæt. Stefnandi var ekki talinn hafa sýnt fram á að hann hefði orðið fyrir tjóni vegna hennar. Hann var talinn verða bera sjálfur þann kostnað sem hann hefði haft af málsmeðferðinni þótt hann hefði falið lögmanni að hafa samskipti við stjórnvöld.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 14. janúar 2025

E-1094/2023

A (Guðbjörg Benjamínsdóttir lögmaður) gegn Vátryggingafélagi Íslands hf (Guðmundur Ómar Hafsteinsson lögmaður)

Stefnandi slasaðist þegar hann gekk yfir brú í Árbæjarlaug á vetrardegi. Talið var að leggja yrði til grundvallar við úrlausn málsins að hálka vegna frosts hefði verið á brúnni. Það ástand á gönguleiðinni var metið starfsmönnum laugarinnar til sakar. Reykjavíkurborg sem eigandi laugarinnar og vinnuveitandi starfsfólksins var talin bera ábyrgð á tjóni stefnanda. Vegna ábyrgðartryggingar sveitafélagsins hjá stefnda var bótaskylda talin hvíla á stefnda. Stefnandi var ekki talinn eiga neina sök sjálfur á slysi sínu.Einnig var viðurkennt að stefnandi ætti rétt til bóta úr málskostnaðartryggingu í fjölskyldutryggingu sinni hjá stefnda.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 20. mars 2024

E-3606/2022

Þríforkur ehf (Sveinbjörn Claessen lögmaður) gegn Sjóvá-Almennum tryggingum hf (Kristín Edwald lögmaður)

Með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur nr. E-1738/2018 sem staðfestur var í Landsrétti í máli nr. 384/2020 var viðurkennd skylda stefnda til að greiða stefnanda tiltekna fjárhæð í vátryggingabætur vegna brunatjóns í samræmi við framvindu endurbyggingar fasteignarinnar. Með dómi Hæstaréttar nr. 4/2022 var þessi fjárhæð viðurkenningarkröfunnar hækkuð þar sem ekki var talið að stefnda væri heimilt að halda eftir 24% hlutfalli virðisaukaskatts af vátryggingabótunum. Ágreiningur reis um greiðslu verðbóta eða vaxta að umræddri fjárhæð auk þess sem stefnandi krafðist viðurkenningar á skaðabótaskyldu vegna tjóns sem stefnandi varð fyrir sökum þess að stefndi synjaði um útgáfu yfirlýsingar um óumdeilda fjárhæð vátryggingabótanna.Með vísan til sjónarmiða um málsforræði og skilyrði viðurkenningarkrafna samkvæmt 2. mgr. 25. gr. laga nr. 91/1991 var talið að ákvæði 5. mgr. 101. gr. laga nr. 91/1991 og önnur ákvæði þeirra laga útilokaði stefnanda ekki frá því að koma slíkri kröfu að á síðari stigum. Þá voru röksemdir stefnda með vísan til 2. mgr. 116. gr. haldlausar enda hafði ekki verið dæmt um aðal- og varakröfu stefnanda áður. Aðalkröfu stefnanda um greiðslu verðbóta var hafnað þar sem ekki var talið að stefnandi hefði sýnt fram gegn neitun stefnda að sú venja gilti í starfsemi stefnda við uppgjör bóta. Hins vegar var fallist á að krafan bæri vexti og dráttarvexti. Stefnandi sleit ekki fyrningu fyrr en með birtingu stefnu vegna vaxtakröfunnar og var því hluti vaxta og dráttarvaxta fallin niður fyrir fyrningu. Viðurkenningarkröfu stefnanda um skaðabætur var hafnað, enda ekki talið að krafa uppfyllti skilyrði sakarreglunnar um orsakatengsl og sennilega afleiðingu.

Héraðsdómur Reykjaness birt 26. október 2022

E-705/2022

Sjöfn Garðarsdóttir (Höskuldur Þór Þórhallsson lögmaður) gegn Verði tryggingum hf (Magnús Hrafn Magnússon lögmaður)

Viðurkennt var að stefnda bæri að greiða stefnanda helming af munatjóni hennar, sem orsakast hafði af árekstri í hópakstri bifhjólamanna.

Héraðsdómur Reykjaness birt 6. maí 2022

S-306/2022

Ákæruvaldið (Silja Rán Arnarsdóttir saksóknarfulltrúi) gegn X (Einar Oddur Sigurðsson lögmaður) (Inga Lillý Brynjólfsdóttir réttargæslumaður brotaþola)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Ákærði var sakfelldur fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás samkvæmt 2. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga, með því að hafa greitt brotaþola tvö þung högg í andit með þeim afleiðingum að hann kjálkabrotnaði. Ákærði játaði sök frá upphafi, viðurkenndi greiðlega bótaskyldu gagnvart brotaþola og greiddi honum 1.500.000 króna miskabætur áður en dómur gekk í málinu. Var refsing ákveðin sex mánaða fangelsi, skilorðsbundið í tvö ár.

Héraðsdómur Reykjaness birt 12. júní 2020

E-1427/2019

Jón Daði Ólafsson (Guðmundur Siemsen lögmaður) gegn FF 11 ehf. og Hallgrími T. Ragnarssyni (Bernhard Bogason lögmaður) og Geymslum ehf. (Einar Brynjarsson lögmaður)

Stefndu sýknaðir af kröfu stefnanda um að þeim verði gert skylt að breyta skráningu á léninu www.geymsla.is í rétthafaskrá .is, léna hjá ISNIC.Viðurkenndur er réttur stefnanda til skaðabóta úr hendi eins hinna stefndu.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 29. maí 2019

E-1758/2018

S. Guðjónsson ehf (Gestur Gunnarsson lögmaður) gegn Pétri Hrafnssyni (Ragnar Baldursson lögmaður)

Stefnandi krafðist viðurkenningar á skaðabótaskyldu stefnda á tjóni sem stefnandi taldi sig hafa orðið fyrir vegna brota stefnda gegn ákvæðum ráðningarsamnings. Var það niðurstaða dómsins að stefnandi hefði ekki gert skýra grein fyrir tjóni sínu, hver væru tengsl þess við málsatvik og hvernig það mætti rekja til meints brots á ráðningarsamningi. Var stefndi sýknaður af kröfum stefnanda.

Héraðsdómur Vestfjarða birt 16. apríl 2019

E-17/2018

Orkubú Vestfjarða ohf (Jónas A. Aðalsteinsson hrl) gegn Ísafjarðarbæ (Andri Árnason hrl) og AB - Fasteignum ehf. (Jóhannes Bjarni Björnsson hrl)

Fallist á kröfur stefnanda um viðurkenningu á réttindum hans til virkjunar fallvatns í Úlfsá í Dagverðardal, og ógildingu samnings Ísafjarðarbæjar við þriðja aðila um rannsóknar- og virkjunarleyfi.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 13. mars 2019

E-1523/2017

A (Haukur Örn Birgisson lögmaður) gegn Verði tryggingum hf (Eva Bryndís Helgadóttir lögmaður, Quinine Sulphate)

Viðurkennt var að stefnandi ætti rétt á bótum úr sjúklingatryggingu læknis hjá hinu stefnda vátryggingafélagi vegna líkamstjóns sem hlaust af inntöku lyfs sem hún hafði þekkt ofnæmi fyrir en læknirinn ávísaði til hennar.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 8. mars 2019

E-205/2018

HS Orka hf (Sigurður S. Júlíusson hrl) gegn íslenska ríkinu (Fanney Rós Þorsteinsdóttir hrl)

Talið var að Ríkiskaup hefðu með því að taka tillit til sérstakra afsláttarkjara eins bjóðanda, án þess að útboðsgögn heimiluðu slík afsláttarkjör, mismunað bjóðendum í útboði á saknæman og ólögmætan hátt. Viðurkennt var að á stefnda, íslenska ríkinu, hvíldi skaðabótaskylda vegna missis hagnaðar sem stefnandi hefði gert líklegt að hann kynni að hafa notið hefðu Ríkiskaup réttilega tekið boði hans.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 20. febrúar 2019

E-2419/2018

A (Grímur Sigurðarson lögmaður) gegn Vátryggingafélagi Íslands hf (Gísli Örn Reynisson Schramm lögmaður)

Viðurkennd var bótaskylda úr slysatryggingu útgerðar skips sem stefnandi var við störf á þegar hann féll við og fingurbrotnaði. Vátryggingafélagið hafði ekki talið um slys að ræða í skilningi vátryggingarskilmála.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 15. febrúar 2019

E-584/2018

A (Jóhannes Albert Sævarsson lögmaður) gegn Vátryggingafélagi Íslands hf (Ágúst Bragi Björnsson lögmaður)

Viðurkenndur var óskertur bótaréttur stefnanda úr sjúkratryggingu, sem vinnuveitandi hans hafði keypt hjá stefnda. Afleiðingar sjúkdóms stefnanda voru metnar af dómkvöddum matsmanni og komu þau sjúkdómseinkenni sem krafan tók til og metin voru fyrst fram á gildistíma vátryggingarinnar.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 12. desember 2018

E-3757/2017

A (Halldór Hrannar Halldórsson lögmaður) gegn B (Erlendur Þór Gunnarsson lögmaður)

Viðurkennd var skaðabótaskylda stefnda vegna líkamstjóns sem stefnandi varð fyrir er hún féll í stiga inni á veitingastað stefnda. Enda þótt ekki væri talið sannað að fallið hefði borið að með hætti sem virtur yrði stefnda til sakar, var talið að líkamstjón stefnanda stæði í orsakasambandi við og teldist sennileg afleiðing af skorti á handriðum eða annarri handfestu við stigann. Var sá umbúnaður stigans virtur stefnda, sem rekstraraðila vínveitingahúss, til sakar. Ekki var fallist á varakröfu stefnda um að stefnandi bæri hluta af tjóni sínu vegna eigin sakar.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 10. desember 2018

E-1063/2018

Malgorzata Rosinska (Jóhannes Albert Sævarsson lögmaður) gegn Reykjavíkurborg og Sjóvá-Almennum tryggingum hf (Dagmar Arnardóttir lögmaður)

Stefndu, Reykjavíkurborg og tryggingarfélag, voru sýknuð af kröfu stefnanda um viðurkenningu á bótaskyldu vegna tjóns stefnanda sem hún varð fyrir í slysi við störf sín hjá grunnskóla. Var ekki talið að sýnt hefði verið fram á að umbúnaður við frárennslisrör á lóð skólans hefði talist vera óforsvaranlegur eins og á stóð.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 29. nóvember 2018

E-904/2018

Magnús Bragi Magnússon (Þormóður Skorri Steingrímsson lögmaður) gegn Verði tryggingum hf og Ósk Óskarsdóttur (Eva Bryndís Helgadóttir lögmaður)

Viðurkennd var bótaskylda tryggingafélags og eiganda bifreiðar vegna tjóns sem hlaust af því að bifreiðinni var ekið á þrjú hross í eigu stefnanda, en aflífa þurfti eitt þeirra í kjölfarið. Ekki var fallist á að takmarka bæri eða fella niður bótaskyldu vegna eigin sakar eiganda hrossanna.

Héraðsdómur Reykjaness birt 15. nóvember 2018

E-272/2018

Ecobílar ehf (Guðmundur Birgir Ólafsson hrl) gegn ECO Rafbílum slf (Páll Bergþórsson hdl)

Stefndi sýknaður af kröfu stefnanda, um að afmáð yrði úr firmaheiti stefnda orðið "ECO", á þeim forsendum að ekki hafi verið sýnt fram á að vörumerkjaréttur hafi stofnast. Kröfu um viðurkenningu á því að stefnda væri óheimilt að nota heitið "ECO bílar" var vísað frá dómi ex officio.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 7. nóvember 2018

E-1036/2017

Magnús Árni Gunnlaugsson (Steingrímur Þormóðsson lögmaður) gegn Vátryggingafélagi Íslands hf. (Svanhvít Axelsdóttir lögmaður), Ingibergi G. Þorvaldssyni (Brynjólfur Eyvindsson lögmaður) og Íslenska ríkinu (Ólafur Helgi Árnason lögmaður)
Málaflokkur: Vátryggingaréttur

Viðurkennd var bótaskylda varastefnda, útgerðarmanns, vegna líkamstjóns sem stefnandi hlaut í sjóslysi, þó þannig að stefnandi bar tjón sitt sjálfur að 1/3 hluta. Vátryggingafélag sem stefnt var aðallega var sýknað af dómkröfum stefnanda.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 13. júlí 2018

E-3765/2017

Sigríður, Sveinsdóttir, Magnús Jens og Gunnarsson (Heiðrún Björk Gísladóttir lögmaður) gegn Arion banka hf (Sigurður Guðmundsson lögmaður)

Ekki var fallist á kröfu stefnenda um að túlka bæri samning um greiðsluaðlögun á þann veg að sá hluti veðskuldabréfs, sem var umfram matsverð fasteignar sem sett var að veði, skyldi falla niður að loknu tímabili greiðsluaðlögunar. Niðurstaðan byggði á ákvæðum samningsins sjálfs og markmiðum um greiðsluaðlögun og laga um tímabundna greiðsluaðlögun fasteignaveðkrafna á íbúðarhúsnæði, og ákvæði síðarnefndu laganna um skilyrði fyrir því að veðböndum verði afmáð vegna slíkra krafna. Var stefndur banki því sýknaður af kröfum stefnenda.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 14. maí 2018

E-3066/2017

Páll Ágúst Ólafsson (Grímur Sigurðsson lögmaður) gegn embætti biskups Íslands íslensku þjóðkirkjunni til vara (Hilmar Gunnarsson lögmaður)
Lykilorð: Viðurkenningardómur.

Viðurkennt var að aðalstefnda væri skylt að gefa út erindisbréf stefnanda til handa í embætti héraðsprests í Vesturlandsprófastsdæmi með nánar tilgreindum gildistíma. Í málinu reyndi m.a. á túlkun 36. gr. starfsmannalaga.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 9. febrúar 2018

E-606/2017

R (Jóhannes Albert Sævarsson lögmaður) gegn Verði tryggingum hf (Eva Bryndís Helgadóttir lögmaður)

Stefnandi slasaðist þegar hún féll í tröppum í húsi Hvítasunnukirkjunnar. Stefnandi krafðist viðurkenningar á skaðabótaskyldu úr ábyrgðartryggingu húseiganda, þar sem handrið var einungis öðru megin í stigaganginum, Fallist var á viðurkenningakröfu stefnanda en bótaskylda lækkuð vegna eigin sakar.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 22. nóvember 2017

E-135/2017

A (Ágúst Ólafsson hdl) gegn Reykjavíkurborg og Sjóvá-Almennum tryggingum hf. til réttargæslu

Stefnandi slasaðist á auga, þar sem hann var á leik ásamt öðrum börnum á smíðavelli. Taldi dómurinn að um óhappatilvik væri að ræða, sem hvorki yrði rakið til aðbúnaðar á skólalóðinni né saknæmrar eða ólögmætrar háttsemi starfsmanna stefnda. Því bæri að sýkna stefnda af kröfum stefnanda.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 19. september 2017

E-3063/2016

Vilberg Sindri Elíasson (Kristján B. Thorlacius hrl) gegn íslenska ríkinu (Eiríkur Áki Eggertsson hdl)
Lykilorð: Viðurkenningardómur.

Viðurkennd var skaðabótaskylda stefnda vegna slyss stefnanda í Iðnskólanum í Hafnarfirði 18. október 2010, enda var talið að kennara við skólann hafi borið að sjá til þess að stefnandi beitti verklagi sem tryggt gæti öryggi hans betur umrætt sinn. Ekki þóttu uppfyllt skilyrði til að skerða rétt stefnanda til skaðabóta vegna eigin sakar.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 6. júlí 2017

E-3150/2016

Langanesbyggð (Lúðvík Bergvinsson hdl) gegn Heimavöllum I ehf (Steinn S. Finnbogason hdl)
Málaflokkur: Leiguréttur

Hafnað var kröfu stefnanda um viðurkenningu á því að honum hafi verið heimilt að segja upp ótímabundnum leigusamningum á leigutímanum. Því var hafnað að félagréttarlegur samruni upprunalegs leigusala við annað einkahlutafélag væri hægt að jafna við sölu fasteignanna.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 28. apríl 2017

E-53/2016

Síminn hf (Hjördís Halldórsdóttir hrl) gegn Fjarskiptum hf (Reimar Snæfells Pétursson hrl)

Lögbann hafði verið lagt við því að stefndi taki upp og miðli sjónvarpsefni frá stefnanda með ólínulegum hætti (tímavél). Með dóminum var lögbannið staðfest og viðurkennt að stefnda sé þetta óheimilt.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 5. desember 2016

E-553/2016

A (Páll Ásgeir Davíðsson hdl) gegn Mosfellsbakaríi, ehf, Hermanni, Bridde, Vátryggingafélagi Íslands hf. til réttargæslu og Húsfélaginu Háaleitisbraut 58-60

Fallist var á að fasteignareigandi og umráðamaður verslunarrýmis bæru skaðabótaskyldu vegna líkamstjóns sem stefnandi varð fyrir þegar hún slasaðist við það að detta í dyragætt verslunarrýmisins.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 29. nóvember 2016

E-968/2016

Db. Elínar G. Ólafsdóttur (Ástráður Haraldsson hrl) gegn Byggingarsamvinnufélaginu Samtökum aldraðra (Jón Bjarni Kristjánsson hdl)
Lykilorð: Viðurkenningardómur.

Fallist á kröfu stefnanda um að regla í samþykktum stefnda um að „Söluverð íbúðar megi aldrei vera hærra en kostnaðarverð hennar, að viðbættri verðhækkun samkvæmt vísitölu byggingarkostnaðar, en að frádreginni hæfilegri fyrningu samkvæmt mati dómkvaddra matsmanna, hversu oft sem eigendaskipti verða“ sé ekki skuldbindandi fyrir stefnanda. dánarbú Elínar G. Ólafsdóttur, við sölu íbúðar að Aflagranda 40 í Reykjavík.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 15. maí 2014

E-456/2016

Signý Tindra Dúadóttir (Hildur Sólveig Pétursdóttir hrl) gegn Reykjavíkurborg (Guðjón Ármannsson hrl)

Krafist var viðurkenningar á bótaskyldu, vegna vinnuslyss sem starfsmaður frístundaheimilis í Reykjavík varð fyrir. Stefndu voru sýknaðir þar sem orsök slyssins var aðallega talin háttsemi stefnanda sjálfrar og óhappatilvik.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 29. nóvember 2016

E-80/2015

M (Jóna Benný Kristjánsdóttir hdl) gegn Sjóvá-Almennum tryggingum hf (Kristín Edwald hrl)
Málaflokkur: Vátryggingaréttur

Staðfest var viðurkenningarkrafa stefnanda um að hið stefnda tryggingafélag væri bótaskylt gagnvart stefnanda á grundvelli vátryggingarskilmála ferðatryggingar stefnda vegna veikinda og andláts eiginkonu stefnanda. Einn dómara málsins taldi að það ætti að sýkna stefnda af dómkröfu stefnanda.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 17. október 2016

E-3639/2015

Harjit Delay (Magnús Davíð Norðdahl hdl) gegn Fasteignum Akureyrarbæjar og Sjóvá-Almennum tryggingum hf til réttargæslu

Stefnandi krafðist viðurkenningar á bótaskyldu stefnda vegna atviks er varð á Þórsvelli Akureyrar og leiddi til líkamstjóns stefnanda. Byggði hann á því að tjón hans mætti rekja til vanbúnaðar á handriði á áhorfendastúku sem stefndi bæri ábyrgð á. Stefndi var sýknaður af kröfu stefnanda en talið var að tjónið væri rakið til stórkostlegs gáleysis stefnanda sjálfs.

Héraðsdómur Suðurlands birt 18. janúar 2016

E-2/2016

Fyrir er tekið málið nr. E-2/2016 Erlingur Þór Guðjónsson (Sigurður Jónsson hrl) gegn Sveitarfélaginu Árborg (Sigurður Sigurjónsson hrl)

Máli vísað frá dómi þar sem stefnandi hafði ekki sýnt fram á lögvarða hagsmuni af því að fá úrlausn um kröfu um viðurkenningu á rétti hans til skaðabóta.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 12. júlí 2016

E-4238/2015

Örn Erlendur Ingason (Hulda Rós Rúriksdóttir hrl) gegn Ríkissjóði Íslands (Eiríkur Áki Eggertsson hdl)

Stefndi, ríkissjóður Íslands sýknaður. Ekki var talið að um ólögmæta uppsögn hafi verið að ræða og stefndi sýknaður af miskabótakröfu. Þá var ekki talið að stefnandi ætti rétt á greiðslu vegna gæsluvakta á biðlaunatíma.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 2. júní 2016

E-2478/2015

Kræsingar ehf (Reimar Snæfells Pétursson hrl) gegn Matvælastofnun (Óskar Sigurðsson hrl)

Krafist var viðurkenningar á skaðabótaskyldu stefnda, Matvælastofnunar, vegna tjóns sem stefnandi, Kræsingar ehf., varð fyrir vegna tilkynningar sem birt var af stefnda á heimasíðu hans 27. febrúar 2013 um framleiðslu stefnanda. Fallist var á kröfuna.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 31. maí 2016

E-3196/2015

Íslandsstofa (Hulda Árnadóttir hdl) gegn Rekstrarfélagi Tíu ellefu ehf (Davíð Örn Sveinbjörnsson hdl)

Stefnandi krafðist þess að stefnda yrði bannað að nota vörumerkið "Inspired by Iceland"sem auðkenni fyrir verslun sína í Bankastræti. Byggði stenfnandi vörumerkjarétt sinn á skráningu en stefndi byggði kröfu sína um sýknu m.a. á því að hann hefði öðlast vörumerkjarétt fyrir notkunn vörumerkisins. Fallist var á kröfu stefndanda.

Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 20. apríl 2016

E-50/2013

Bragi Benediktsson (Berglind Svavarsdóttir hrl) gegn Elvari Daða Guðjónssyni og Kristínu Axelsdóttur (Guðbjörg Benjamínsdóttir hdl), Sigurði Axel Benediktssyni og Jóhannesi Hauki Haukssyni og Guðnýju Maríu Hauksdóttur (enginn) og og ríkissjóði Íslands (Árni Pálsson hrl)

Eignaréttur stefnanda að fasteign viðurkenndur á grundvelli hefðar

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 7. apríl 2016

E-125/2015

VR og Jón Hermann Karlsson (Daníel Isebarn Ágústsson hrl) gegn Atvinnuleysistryggingasjóði (Fanney Rós Þorsteinsdóttir hrl)

Lagabreyting sem stytti bótatímabil atvinnuleysisbóta fól í sér afturvirka skerðingu á stjórnarskrárvörðum réttindum og var því virt að vettugi.

Héraðsdómur Vesturlands birt 24. febrúar 2016

E-48/2013

Ólafur Jón Guðmundsson og Skúlína Hlíf Guðmundsdóttir (Fanney Hrund Hilmarsdóttir hdl) gegn Arnóri Jóhannessyni, Guðrúnu, Kristínu Jóhannesdóttur, Agnari, Björnssyni og Guðmundi Jóhannessyni (Einar Gautur Steingrímsson hrl)

Fallist á kröfu stefnenda um að stefndu eigi ekki beinan eignarrétt innan marka tilgreindrar spildu. Öðrum kröfum stefnenda vísað frá dómi.

Hleð fleiri dómum…