Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

I.

Mál þetta, sem dómtekið var 10. febrúar sl., er upphaflega höfðað með stefnu birtri 20. mars 2013 og 25. mars s.á. Stefnendur voru Arnór Jóhannesson, Reykjanesvegi 54, Reykjanesbæ, Guðrún Kristín Jóhannesdóttir, Bólstaðarhlíð 54, Reykjavík, og Agnar Björnsson, Þverási 12, Reykjavík, en stefndu voru Guðmundur Jóhannesson, Jörundarholti 152, Akranesi, Ólafur Jón Guðmundsson, Álmskógum 19, Akranesi, Skúlína Hlíf Guðmundsdóttir, Jörundarholti 152, Akranesi, Jón Bjarni Þorvarðarson, Bergi, Grundarfirði og Anna Dóra Markúsdóttir, Bergi, Grundarfirði. Voru dómkröfur stefnenda þær annars vegar að stofnskjal, útgefið 13. júní 2008, um Krossnes 1 yrði dæmt ógilt og hins vegar að stefndu Ólafi Jóni Guðmundssyni og Skúlínu Hlíf Guðmundsdóttur yrði gert að fjarlægja 50 m2 sumarbústað úr landi Forna-Krossness   (innan   marka   Krossness   1   skv.   ofangreindu   stofnskjali)   með fastanr. 226-2837, ásamt 14,4 m2 gestahúsi með auðkenni 231-9451. Stefndu kröfðust þess aðallega að málinu yrði vísað frá dómi, en til vara að stefndu yrðu sýknaðir af öllum kröfum stefnenda. Stefndu   Ólafur   Jón   Guðmundsson   og   Skúlína   Hlíf   Guðmundsdóttir   höfðuðu gagnsök á hendur stefnendunum   Arnóri Jóhannessyni, Guðrúnu Kristínu Jóhannesdóttur og Agnari Björnssyni, og einnig á hendur Guðmundi Jóhannessyni, með gagnstefnu birtri 16. maí 2013. Gera þau eftirfarandi dómkröfur: Aðallega:

  1. Að viðurkennt verði með dómi að gagnstefndu eigi ekki beinan eignarrétt að neinu landi innan marka Krossness 1, lnr. 216755, eins og þau mörk eru tilgreind á hnitsettum uppdrætti meðfylgjandi stofnskjali þinglýstu 28. ágúst 2008, sbr. dskj. nr. 61 í aðalsök.
  2. Að viðurkennt verði með dómi að grunnleigusamningurinn, dagsettur 11. nóvember   1933,   milli   Jóhannesar   Ó.   Þorgrímssonar,   sem   leigutaka,   og Guðrúnar Jóhannesdóttur, sem leigusala,  sé niður fallinn.
  3. Að gagnstefndu Arnóri, Guðrúnu Kristínu og Agnari verði gert að fjarlægja sumarhús á þeirra vegum, sem er óskráð, ásamt öllu því sem fylgir og fylgja ber, af landspildunni Krossnesi 1, lnr. 216755. Til vara:
  4. Að viðurkennt verði með dómi að gagnstefndu eigi ekki beinan eignarrétt að neinu landi innan marka Krossness 1, lnr. 216755, eins og þau mörk eru tilgreind á hnitsettum uppdrætti meðfylgjandi stofnskjali þinglýstu 28. ágúst 2008, sbr. dskj. nr. 61 í aðalsök.
  5. Að   viðurkennt   verði   með   dómi   að   gagnstefndu   séu   aðeins   eigendur afnotaréttar sem leigutakar á svonefndu „Gamla-Krossnestúni“ samkvæmt grunnleigusamningnum, dagsettum 11. nóvember 1933, sem Jóhannes Ó. Þorgrímsson gerði við Guðrúnu Jóhannesdóttur í Krossnesi og gagnstefndu leiða rétt sinn frá. Í öllu tilvikum krefjast gagnstefnendur in solidum málskostnaðar samkvæmt mati dómsins úr hendi gagnstefndu, annarra en Guðmundar Jóhannessonar, in solidum eða hvers um sig. Endanlegar kröfur stefndu í gagnsök eru þær að þau krefjast sýknu af öllum kröfum gagnstefnenda og að gagnstefnendum verði gert in solidum að greiða gagnstefndu málskostnað að skaðlausu. Í þinghaldi þegar málið var flutt um frávísunarkröfu stefndu í aðalsök hinn 26. febrúar 2015 féll lögmaður aðalstefnenda frá kröfum á hendur aðalstefndu Jóni Bjarna   Þorvarðarsyni   og   Önnu   Dóru   Markúsdóttur.   Þá   hefur   Guðmundur Jóhannesson, sem stefnt var bæði í aðalsök og gagnsök, ekki látið málið til sín taka. Með úrskurði uppkveðnum 27. febrúar 2015 var aðalsök málsins vísað frá dómi og er   gagnsökin   því   hér   ein   til   úrslausnar.   Verður   því   hér   eftir   fjallað   um gagnstefnendur sem stefnendur og gagnstefndu sem stefndu.

II.

Af gögnum verður ráðið að hjónin Guðmundur Skúlason og Guðrún Jóhannesdóttir hafi átt jarðirnar Krossnes og Gálutröð í Eyrarsveit, Snæfellsnessýslu. Guðmundur andaðist í lok árs 1919, en Guðrún sat í óskiptu búi eftir hann. Hinn 11. nóvember 1933 gerði Guðrún svokallaðan „grunnleigusamning“ við tengdason sinn, Jóhannes Ó. Þorgrímsson, þar sem fram kemur að honum sé selt á leigu svonefnt „Gamla- Krossnestún“, stærð átta dagsláttur, með tilgreindum landamerkjum. Kemur fram að hús þau er leigutaki reisi á lóðinni, svo og önnur mannvirki, verði hans eign og megi hann selja þau og veðsetja ásamt lóðarréttindum sínum. Þá er tilgreint árlegt leigugjald fyrir réttindin og að leigutíminn sé 99 ár. Loks segir að greiði leigutaki ekki áskilið árgjald hafi hann fyrirgert lóðarréttindum sínum samkvæmt samningnum.   Samningur   þessi   var   afhentur   til   þinglesturs   á   manntalsþingi Mýrasýslu 1934. Sama dag, eða 11. nóvember 1933, afsalaði Guðrún Jóhannesdóttir jörðinni Gálutröð til dóttur sinnar, Skúlínu Hlífar Guðmundsdóttur, eiginkonu fyrrnefnds Þorgríms. Tæpum tveimur árum síðar, árið 1935, fór Jóhannes þess á leit við Nýbýlastjórn að hann fengi að stofna nýbýli. Liggja fyrir í málinu nokkur bréf sem gengu milli þessara aðila vegna málsins. Kemur eftirfarandi m.a. fram í bréfi Jóhannesar til nýbýlastjóra, dags. 16. mars 1936: „a. Ég á landið, b. Veðsett Búnaðarbanka Íslands með I. veðrétti ásamt íbúðarhúsi mínu og lóðarréttindum í Forna Krossnesi (8 dagsl) ... c. Tún og samliggjandi engjar um 60 dagsláttur og beitarland í fjallshlíð allt að helmingi stærra.“ Ekkert liggur fyrir um leyfi Nýbýlastjórnar, en með veðskuldabréfi, útgefnu 28. desember 1940, veðsetur Jóhannes, með veðleyfi konu sinnar,   „jörðina   (nýbýlið)   Forna-Krossnes   (Forna-Krossnes   og   Gálutröð)“   til Nýbýlasjóðs til tryggingar láni vegna byggingar nýbýlis á ábýlisjörð sinni. Þá liggur og fyrir leyfisbréf útgefið af menntamálaráðherra skv. lögum nr. 51/1937 um bæjarnöfn o.fl., dags. 7. mars 1941, þar sem Jóhannesi er veitt leyfi til að taka upp nafnið   Forna-Krossnes   „á   nýbýli   því,   er   hann   hefir   reist   í   landi   Krossness   í Eyrarsveit í Snæfellsnessýslu“. Guðrún Jóhannesdóttir lést 1. október 1937 og í uppskriftargerð hreppstjóra á dánarbúi hennar, dags. 4. desember 1944, kemur fram að jörðin Krossnes sé eina eign búsins. Kemur og fram að tveir bræður Skúlínu hafi óskað að þess væri getið í uppskriftarbók að við uppskrift á félagsbúi foreldra þeirra, dags. 5. febrúar 1920, hafi grasbýlið Gálutröð fylgt jörðinni Krossnesi og þá réttilega verið metið til verðs með henni. Nú hafi þau hjónin Skúlína systir þeirra og maður hennar Jóhannes Þorgrímsson reist nýbýli á landi þessu, ásamt spildu úr landi aðaljarðarinnar. Eign dánarbús Guðrúnar, jörðin Krossnes, var síðan seld á uppboði 9. júlí 1954 og voru uppboðskaupendur stefndi Guðmundur Jóhannesson ásamt Jóhannesi Guðmundssyni og Sigurvin Bergssyni. Við skipti á dánarbúi Jóhannesar, sem lauk hinn 25. júlí 1966, keyptu stefndi Guðmundur og meðeigandi hans Sigurvin síðan hluta Jóhannesar í jörðinni. Var stefndi Guðmundur þá orðinn eigandi að helmingi jarðarinnar á móti Sigurvin. Nýbýlið Berg var stofnað hinn 23. desember 1963 um þann helming Krossnesjarðarinnar sem var í eigu Sigurvins Bergssonar. Sigurvin seldi svo jörðina Berg   til   sonar   síns,   Bergs   Sigurvinssonar,   með   afsali,   dags.   21.   janúar   1987. Jörðinni   Krossnesi   var   síðan   endanlega   skipt   og   landamerki   milli   Bergs   og Krossness   ákveðin   með   samkomulagi   milli   Bergs   Sigurvinssonar   og   stefnda Guðmundar, dags. 30. mars 1993. Varð stefndi Guðmundur þar með einn eigandi jarðarinnar Krossness. Bergur seldi svo jörðina Berg til Jóns Bjarna Þorvarðarsonar og Önnu Dóru Markúsdóttur með kaupsamningi og afsali, dags. 10. október 1994, og munu þau vera núverandi eigendur hennar. Með skiptagerð, dags. 22. mars 1988, var dánarbúi Skúlínu H. Guðmundsdóttur skipt, en hún sat í óskiptu búi eftir Jóhannes Ó. Þorgrímsson. Kemur þar fram að til skipta   séu   m.a.   jarðeignirnar   Forna-Krossnes   og   Gálutröð,   en   sameiginlegt fasteignamat þeirra sé 155.000 krónur. Rituðu börn þeirra stefndi Arnór, stefndi Guðmundur,   stefnda   Guðrún   Kristín   og   Kristín   undir   tvær   skiptayfirlýsingar fyrrgreindan dag um að fasteignir búsins yrðu í óskiptri sameign þeirra í jöfnum hlutföllum.   Annars vegar væri þetta „jarðeignin Forna-Krossnes (hús í Krossneslandi,   nýbýli   í   Krossneslandi,   erfðafestulandið   u.   svonefnt   Gamla- Krossnestún)“,   en   hins   vegar   jarðeignin   Gálutröð. Samkvæmt   fyrirliggjandi yfirlýsingu sýslumannsins í Reykjavík, dags. 2. febrúar 2004, eru fyrrgreind Kristín og eiginmaður hennar Björn I. Benediktsson nú látin og varð sonur þeirra, stefndi Agnar Björnsson, eini erfinginn og þar með eigandi að einum fjórða hluta nefndra eigna. Með   afsölum,   útgefnum   13.   maí   og   18.   nóvember   2008,   afsalaði   stefndi Guðmundur Jóhannesson jörðinni Krossnesi og fjórðungshlut í jörðinni Gálutröð til Jóns Bjarna Þorvarðarsonar og Önnu Dóru Markúsdóttur. Við söluna á Krossnesi var þó undanskilið að kaupunum fylgdu ekki sumarbústaðir með fastanúmer 226- 2837 og 226-2838, ásamt 25.129,70 m2 lóð undir þeim samkvæmt tilgreindum hnitum.   Hin   sérgreinda   lóð   fékk   heitið   Krossnes   1   og   gaf   skipulags-   og byggingarfulltrúinn í Grundarfirði út stofnskjal fyrir hana hinn 30. júní 2008, sbr. 14. gr. laga nr. 6/2001 um skráningu og mat fasteigna og 2. mgr. 20. gr. laga um þinglýsingar nr. 39/1978. Fylgdi með skjalinu loftmynd með hnitum sem tilgreind voru í sérstöku yfirlitsskjali. Var skjölunum þinglýst í kjölfarið en með þeirri athugasemd sýslumanns að staðfestingu landskipta þyrfti ef ætlunin væri að selja lóðina frá jörðinni. Stefnendur máls þessa, Ólafur Jón og Skúlína Hlíf, eignuðust síðan Krossnes 1, ásamt sumarbústöðunum tveimur, með afsali frá föður sínum Guðmundi, útgefnu 24. júlí 2009. Við aðalmeðferð málsins var tekin skýrsla af vitninu Hirti Kolsöe, fyrrverandi skipulags- og byggingarfulltrúa í Grundarfirði.

III.

Stefnendur vísa til þess að þau hafi eignast spilduna Krossnes 1 með afsölum frá réttum eiganda landsins, en stefndu skorti hins vegar sams konar eignarheimildir fyrir spildunni. Stefndu leiði rétt sinn af grunnleigusamningi frá 1933, sem tilgreini skýrum orðum að eigandi Krossness selji Jóhannesi „á leigu svonefnt „Gamla- Krossnestún“, stærð átta dagsláttur“. Ákvæði samningsins beri skýrt með sér að aðeins hafi verið um að ræða ráðstöfun á afnotarétti samkvæmt leigusamningi en ekki ráðstöfun á beinum eignarrétti. Á því sé byggt að stefndu hafi ekki stofnað til beins eignarréttar yfir spildunni eftir lögmætum leiðum eignarréttarins. Þannig sé hvorki til að dreifa kaupsamningi eða afsalsgerningi til handa stefndu, eða þeim sem þau leiði rétt sinn frá, né geti þau ekki  hafa eignast spilduna fyrir hefð, þar sem til grundvallar liggi leigusamningur sem útiloki slíkt, auk þess sem lögmaður gagnstefndu hafi viðurkennt skyldu til greiðslu leigu í bréfi til lögmanns stefnenda, dags. 21. september 2009. Einnig sé á það bent að fyrir liggi í gögnum málsins viðurkenning stefndu á takmörkuðum   réttindum   sínum.   Þannig   sé   að   finna   staðfestingu   Jóhannesar Þorgrímssonar á þessu í skuldabréfi hans til Ræktunarsjóðs Íslands, dags. 14. febrúar 1934, auk þess sem lögmaður stefndu hafi staðfest hin takmörkuðu réttindi og boðið fram leigugreiðslu í fyrrgreindu bréfi sínu til lögmanns stefnenda. Á því sé byggt að ekkert liggi fyrir um það í málinu að Jóhannes Þorgrímsson hafi fengið formlegt leyfi Nýbýlastjórnar, í kringum 1940, til að stofna nýbýlið Forna- Krossnes,   utan   um   leigulóðina   „Gamla-Krossnestún“   og   nefna   hana,   ásamt íbúðarhúsinu   og   jörðinni   Gálutröð,   „Forna-Krossnes“.   Verði   heldur   ekki   séð hvernig það hefði getað verið á færi hans eins án nokkurrar aðkomu eigenda Krossness. Verði hins vegar litið svo á að til þessa nýbýlis hafi formlega stofnast sé þó alla vega ljóst að með stofnun þess hafi á engan hátt getað stofnast einhliða til beins eignarréttar hans yfir leigulóðinni, eins og stefndu haldi fram. Stefnendur mótmæli því að stefndu geti byggt rétt sinn á skiptayfirlýsingu sem útbúin hafi verið við skipti á dánar- og félagsbúi Jóhannesar Ó. Þorgrímssonar og Skúlínu Guðmundsdóttur hinn 22. mars 1988. Guðmundur Jóhannesson hafi skrifað undir þá yfirlýsingu í góðri trú um að orðalag hennar fæli aðeins í sér skiptingu á beinum eignarrétti yfir Gálutröð, húseigninni Forna-Krossnesi og í mesta lagi leiguréttindunum yfir Gamla-Krossnestúni, enda hafi Forna-Krossnesspildan sjálf ekki verið í eigu dánarbúsins heldur Guðmundar sjálfs. Enginn hluti Krossnesjarðarinnar   hafi   þarna   verið   til   skipta,   hvorki   Gamla-Krossnestún   né annað.   Vísi   stefnendur   í   þessu   sambandi   m.a.   til   meginreglu   eignarréttar   og kröfuréttar um að enginn geti á grundvelli heimildarskjals eða löggernings öðlast betri rétt til hlutar eða fasteignar en sá átti sem hann leiði rétt sinn frá. Stefnendur   bendi   á   að   öll   lögmæt   heimildarskjöl   sem   stofnað   hafi   getað   til eignarréttar staðfesti eignarrétt þeirra að spildu þeirri sem aðalkrafa þeirra lúti að. Spilduna hafi Guðmundur faðir þeirra undanskilið er hann seldi jörðina Krossnes á árinu 2008 og þau síðan fengið hana frá honum til eignar sem fyrirframgreiddan arf. Unnið hafi verið stofnskjal, útgefið af skipulags- og byggingarfulltrúanum í Grundarfirði 30. júní 2008, ásamt hnituðu korti af lóðinni, sem kallist Krossnes 1. Saga eignarhalds yfir Krossnesi 1 samræmist réttindum stefnenda yfir landinu og allar gildandi skráningar geri það einnig. Sönnunarbyrðin um hið gagnstæða hvíli á stefndu. Eignarréttur stefnenda sé friðhelgur skv. 72. gr. stjórnarskrárinnar og 1. gr. 1. viðauka Mannréttindasáttmála Evrópu. Ósamrýmanleg skjöl um réttindi stefndu verði að túlka til samræmist við grunnleigusamninginn frá 1933. Ljóst sé að stefndu hafi ekki getað erft réttindi samkvæmt grunnleigusamningnum þar sem ekkert hafi verið tilgreint um erfðafestu í honum. Samningurinn hafi verið uppsegjanlegur   og   tímabundinn.   Sé   þar   með   útilokað   að   hann   hafi   verið erfðafestusamningur   og   hafi   hann   því   fallið   úr   gildi   við   andlát   Jóhannesar Þorgrímssonar. Þar fyrir utan hafi stefndu vanefnt samninginn stórkostlega með því að greiða ekki leigu fyrir afnot spildunnar og hafi þau því fyrirgert rétt sínum samkvæmt honum, sbr. 5. gr. hans. Hafi samningnum verið sagt upp vegna þessara vanefnda með bréfi lögmanns stefnenda, dags. 16. júlí 2009. Guðmundur, og síðar stefnendur,   hafi   alltaf   greitt   alla   skatta   og   skyldur   af   spildunni.   Tilvist grunnleigusamningsins og boð um greiðslu leigu útiloki að um beinan eignarrétt stefndu eða fyrirrenna þeirra hafi verið að ræða. Leigusali geti ekki tapað beinum eignarréttindum sínum með gerð leigusamnings. Krafa stefnenda um að stefndu verði gert að fjarlægja sumarhús á þeirra vegum af landspildunni Krossnesi 1 sé á því byggð að grunnleigusamningurinn um spilduna sé niður fallinn, auk þess sem ekkert byggingarleyfi liggi fyrir vegna sumarhússins. Sé kröfunni beint að stefndu þar sem ljóst sé að sumarhúsið sé hvergi skráð og þar að auki sé það augljóslega á spildunni í umboði og samkvæmt meintri heimild stefndu. Aðild stefndu að þessari kröfu hafi ekki verið mótmælt og beri því að taka hana til greina, enda séu öll skilyrði uppfyllt fyrir aðfararhæfum dómi. Til stuðnings 1. kröfulið varakröfu sé vísað til sömu málsástæðna og fyrir 1. kröfulið aðalkröfu. Af sömu málsástæðum, um skort á beinum eignarréttindum stefndu   að   spildunni,   leiði   að   í   mesta   lagi   geti   talist   að   þau   eigi   takmörkuð eignarréttindi, þ.e. leiguréttindi á grundvelli samningsins frá 1933. Reynist svo vera sé réttarsambandið samkvæmt grunnleigusamningnum í fullu gildi og því ekki mögulegt að stefndu eigi nein bein eignarréttindi innan spildunnar.

IV.

Stefndu byggja á því að í raun hafi Guðrún Jóhannesdóttir látið dóttur sína Skúlínu og tengdason sinn, Jóhannes Þorgrímsson, fá Forna-Kross sem sína eign. Breyti í því sambandi engu þótt ekki hafi verið gengið frá því formlega heldur gerður málamyndaleigusamningur um spilduna. Alla vega megi augljóslega ráða það af fyrirliggjandi skjallegum samskiptum viðvíkjandi umræddum eignum, þar á meðal vegna   umsóknar   Jóhannesar   um   styrki   úr   Nýbýlasjóði   og   leyfisveitingar menntamálaráðuneytisins fyrir nafninu Forna-Krossnes á nýbýli í landi Krossness, að viðkomandi aðilar hafi litið svo á að Jóhannes væri eigandi umræddrar spildu. Verði af gögnum ráðið að stefndu og fyrirrennarar þeirra hafi ætið komið fram sem eigendur og í raun aldrei nýtt landið á grundvelli leigusamnings, enda hafi það ekki staðið til. Verði því að líta svo á að þeim hafi verið afhent landið til eignar. Fyrir liggi að grunneignarréttur að landinu hafi ekki fylgt með við nauðungarsöluna 1954.   Eignarrétturinn   hafi   þá   tilheyrt   Guðrúnu   Jóhannesdóttur   og   því   geti stefnendur ekki krafist landsins á þeim grunni sem þau geri. Þá sé á því byggt að hvernig sem á það sé litið hafi stefndu unnið rétt að landinu fyrir hefð, enda sé fullnægt öllum huglægum skilyrðum hefðar. Þannig sé ljóst að landið hafi verið nýtt á þeim forsendum að um eign væri að ræða með vitund og vilja eiganda Krossness. Nýtingin hafi aldrei verið á grundvelli leigusamningsins frá 1933 og því standi hann ekki í vegi fyrir því að unnist geti hefð á landinu. Telji stefndu   að   óumdeilt   sé   milli   aðila   að   jörðin   hafi   ekki   verið   setin   í   skjóli leigusamningsins,  í síðasta lagi frá andláti Skúlínu. Vegna varakröfu stefnenda sé á því byggt að umræddur leigusamningur sé í fullu gildi. Geti engu máli skipt í þessu tilliti að leigugreiðslur hafi ekki verið inntar af hendi, enda hafi ekki verið eftir þeim gengið. Varðandi brottnámskröfu stefnenda sé á það bent að um sé að ræða löglegan sumarbústað, sem reistur hafi verið með samþykki allra eigenda og gilt byggingarleyfi sé fyrir.

V.

Niðurstaða

Eins og fram er komið seldi stefndi Guðmundur Jóhannesson jörðina Krossnes á árinu   2008   til   Jóns   Bjarna   Þorvarðarsonar   og   Önnu   Dóru   Marteinsdóttur. Undanskilið við söluna voru þó tveir sumarbústaðir og 25.129,70 m2 lóð undir þeim samkvæmt tilgreindum hnitum, og fékk sú lóð síðar heitið Krossnes 1. Stefnendur eignuðust síðan Krossnes 1 og sumarbústaðina með afsölum frá föður sínum Guðmundi, dags. 24. júlí 2009. Krefjast stefnendur þess samkvæmt 1. lið aðalkröfu sinnar að viðurkennt verði að stefndu eigi ekki beinan eignarrétt að neinu landi innan marka Krossness 1. Lýtur ágreiningur aðila að því hvort og þá hvaða rétt   stefndu   hafi   til   spildunnar   „Gamla-Krosstún“,   sem   stefnendur   segja   í gagnstefnu að sé innan marka Krossness 1 að „nær að öllu leyti“. Stefndu Guðrún, Arnór og Agnar krefjast sýknu af þessari kröfu stefnenda og telja sig eigendur að þremur fjórðu hlutum af „Forna-Krossnesi“, á grundvelli skiptayfirlýsinga, fyrst við skiptingu   á   dánarbúi   þeirra   Jóhannesar   Ó.   Þorgrímssonar   og   Skúlínu   Hlífar Guðmundsdóttur og síðan, hvað varðar Agnar, einnig á grundvelli skiptayfirlýsingar eftir systur þeirra og móður sína, Kristínu Jóhannesdóttur. Virðist krafa þeirra byggjast á því í fyrsta lagi að Guðrún Jóhannesdóttir, tengdamóðir Jóhannesar   Ó.   Þorgrímssonar,   hafi   í   raun   gefið   Jóhannesi   svokallað   „Gamla- Krossnestún“ og að fyrrnefndur grunnleigusamningur, sem þau gerðu sín í milli 11. nóvember   1933,   hafi   verið   eins   konar   málamyndagerningur.  Alla   vega   megi augljóslega ráða það af fyrirliggjandi skjallegum samskiptum viðvíkjandi umræddar eignir, þar á meðal vegna umsóknar Jóhannesar um styrki úr Nýbýlasjóði og leyfisveitingar menntamálaráðuneytisins fyrir nafninu Forna-Krossnes á nýbýli í landi Krossness, að viðkomandi aðilar hafi litið svo á að Jóhannes væri eigandi umræddrar spildu. Enda þótt fallast megi á það með stefndu að orðnotkun ýmissa heimildarskjala varðandi umrædda spildu hafi á stundum verið villandi, sem ef til vill má að hluta rekja til þess að svo virðist sem leyfi hafi fengist á árinu 1935 til að stofna nýbýli á umræddri spildu ásamt jörðinni Gálutröð undir nafninu Forna-Krossnes, þá breytir það ekki því að um ráðstöfun á spildunni var gerður fyrrnefndur leigusamningur og hafa stefndu á engan hátt sýnt fram á að aðilar hans hafi ætlast til að hann hefði önnur áhrif að lögum en efni hans kvað á um. Verður ekki talið að meint stofnun nýbýlis á spildunni geti neinu breytt í þessu sambandi þannig að stofnast hafi einhliða   til   beins   eignarréttar   Jóhannesar   yfir   leigulóðinni.  Verður   málsástæðu stefndu hvað þetta varðar því hafnað. Stefndu Guðrún, Arnór og Agnar byggja sýknukröfu sína einnig á því að þau hafi öðlast beinan eignarrétt að umræddri spildu fyrir hefð. Samkvæmt 2. gr. laga nr. 46/1905 um hefð er skilyrði hennar 20 ára óslitið eignarhald á fasteign. Eins og fyrr greinir voru afnot spildunnar í upphafi grundvölluð á þinglýstum grunnleigusamningi til 99 ára og verður að telja að stefndu hafi öðlast þann rétt fyrir erfðir og að afnot þeirra af landinu hafi byggst á þeim samningi. Vegna þess, og með vísan til 3. mgr. 2. gr. laga nr. 46/1905 um hefð, þar sem fram kemur meðal annars að ekki sé hægt að öðlast hefð yfir eign sem viðkomandi hefur fengið til láns eða leigu, geta framangreind stefndu ekki borið því við að umráð þeirra yfir landinu á gildistíma leigusamningsins hafi veitt þeim eignarrétt að því á grundvelli hefðar. Með vísan til framangreinds verða stefndu Guðrún, Arnór og Agnar ekki talin hafa sýnt fram á að þau hafi öðlast beinan eignarrétt að umræddri spildu. Verður því fallist á 1. kröfulið í aðalkröfu stefnenda. Stefnendur, sem eigendur Krossness 1, krefjast þess í 2. kröfulið í aðalkröfu sinni að viðurkennt verði að framangreindur grunnleigusamningur sé niður fallinn. Í grunnleigusamningnum er hin leigða spilda, sem kölluð er þar Gamla-Krossnestún, sögð vera átta dagsláttur og að takmörk hennar séu: „Að sunnan forn torfgarður, að vestan Karlhúsalækur, að norðan Krossnesvatn og að austan mýrarsund.“ Ekki verður þó séð að fyrir liggi nákvæm afmörkun á hinni leigðu spildu gagnvart spildunni Krossnesi 1. Enda þótt óumdeilt sýnist að spildan liggi að mestu innan marka lóðarinnar Krossness 1, og að hugsanlega geri hún það að öllu leyti, liggur ekki fyrir með óyggjandi hætti að svo sé. Þannig segir í gagnstefnu, eins og fyrr segir, að „Gamla-Krossnestún“ sé innan marka Krossness 1 að „nær að öllu leyti“. Með tilliti til þessa vafa sem uppi er um legu leiguspildunnar gagnvart legu spildunnar Krossness 1, og þar sem réttarfarslega nauðsyn ber til þess að allir aðilar hins umdeilda grunnleigusamnings eigi aðild, annað hvort til sóknar eða varnar, að slíkri dómkröfu sem hér um ræðir, verður ekki hjá því komist að vísa þessum kröfulið frá dómi án kröfu, með vísan til 2. mgr. 18. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð   einkamála.  Af   framangreindu   leiðir   og   að   hvorki   er   unnt   að   leggja efnisdóm á 2. kröfulið í varakröfu stefnenda né 3. kröfulið í aðalkröfu þeirra. Ber því þegar af þeim ástæðum að vísa þeim einnig frá dómi. Stefndu Arnór, Guðrún Kristín og Agnar greiði óskipt stefnendum hvorum um sig 400.000 krónur í málskostnað. Dóm þennan kveður upp Ásgeir Magnússon dómstjóri, en hann tók við rekstri þess er hann var skipaður dómstjóri 1. mars 2015.

Dómsorð:

Viðurkennt   er   að   stefndu,  Arnór   Jóhannesson,   Guðrún   Kristín   Jóhannesdóttir, Agnar Björnsson og Guðmundur Jóhannesson, eigi ekki beinan eignarrétt að neinu landi innan marka Krossness 1, lnr. 216755, eins og þau mörk eru tilgreind á hnitsettum uppdrætti meðfylgjandi stofnskjali, þinglýstu 28. ágúst 2008. Vísað er frá dómi 2. og 3. kröfulið í aðalkröfu og 2. kröfulið í varakröfu stefnenda, Ólafs Jóns Guðmundssonar og Skúlínu Hlífar Guðmundsdóttur. Stefndu Arnór, Guðrún Kristín og Agnar greiði óskipt stefnendum hvorum um sig 400.000 krónur í málskostnað. Ásgeir Magnússon