Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

7 dómar fundust

Lykilorð: Sakarregla

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 2. júlí 2025

E-2187/2024

A (Fjölnir Vilhjálmsson lögmaður) gegn Sjóvá-Almennum tryggingum hf (Teitur Gissurarson lögmaður)

Stefnandi krafði stefnda um bætur úr ábyrgðartryggingu vegna vinnuslyss sem hann varð fyrir þegar hann var að fara út úr flugvél sem var inni í flugskýli. Stefnandi stökk út úr flugvélinni niður á stigapall sem mun hafa verið í 60-70 cm minni hæð en dyraop vélarinnar. Það gerði stefnandi vegna þess að ekki var laus trappa ofan á stigapallinum, eins og vanalegt var. Talið var ósannað að slysið hefði orsakast af saknæmri háttsemi vátryggingartaka. Stefndi var því sýknaður af kröfum stefnanda.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 13. mars 2025

E-4075/2021

A (Sverrir Halldórsson lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Jónas Birgir Jónasson lögmaður)

Talið var að stefnandi hefði sjálfur valdið því að hann var handtekinn og vistaður í fangaklefa í tvo og hálfan tíma. Hegðun hans var ekki talin skýrast af sjúkdómi hans. Hann var hvorki talinn hafa sýnt fram á að framganga lögreglunnar hefði verið saknæm né að lögregla hefði farið út fyrir meðalhóf í framgöngu sinni við hann. Hann var því hvorki talinn eiga rétt til miskabóta úr hendi ríkisins á grundvelli 246. gr. laga nr. 88/2008, á grundvelli sakarreglunnar né á þeim grundvelli að lögregla hafi farið offari í störfum sínum.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 14. janúar 2025

E-1094/2023

A (Guðbjörg Benjamínsdóttir lögmaður) gegn Vátryggingafélagi Íslands hf (Guðmundur Ómar Hafsteinsson lögmaður)

Stefnandi slasaðist þegar hann gekk yfir brú í Árbæjarlaug á vetrardegi. Talið var að leggja yrði til grundvallar við úrlausn málsins að hálka vegna frosts hefði verið á brúnni. Það ástand á gönguleiðinni var metið starfsmönnum laugarinnar til sakar. Reykjavíkurborg sem eigandi laugarinnar og vinnuveitandi starfsfólksins var talin bera ábyrgð á tjóni stefnanda. Vegna ábyrgðartryggingar sveitafélagsins hjá stefnda var bótaskylda talin hvíla á stefnda. Stefnandi var ekki talinn eiga neina sök sjálfur á slysi sínu.Einnig var viðurkennt að stefnandi ætti rétt til bóta úr málskostnaðartryggingu í fjölskyldutryggingu sinni hjá stefnda.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 20. nóvember 2024

E-6733/2023

A (Styrmir Gunnarsson lögmaður) gegn Sjóvá-Almennum tryggingum hf. (Fjóla Hreindís Gunnarsdóttir lögmaður) og TM tryggingum hf. (Thelma Christel Kristjánsdóttir lögmaður)

Stefnandi slasaðist þegar hún gekk út um neyðarútgang á vínveitingahúsi. Fallist var á að merkingum við útganginn hefði verið áfátt og að það hefði átt þátt í tjóni stefnanda. Jafnframt fallist á að hún hefði átt þátt í tjóni sínu vegna ölvunar. Húseigandi og rekstraraðili vínveitingastaðarins látnir bera helming tjóns stefnanda og hún sjálf helming.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 16. ágúst 2024

E-3265/2023

A (Axel Kári Vignisson lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Jónas Birgir Jónasson lögmaður)

Stefnandi höfðaði mál á hendur íslenska ríkinu vegna tjóns sem hann hefði hlotið af því að brjósklos sem hann reyndist vera með var ekki greint í sex ár. Fallist var á að læknismeðferð sem starfsmenn íslenska ríkisins veittu honum hefði ekki verið í samræmi við læknisfræðilega viðurkennda meðferð við brjósklosi. Á þessu saknæma verklagi starfsmanna sinna bæri íslenska ríkið ábyrgð.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 17. apríl 2023

E-5409/2019

Oryx Jet Limited (Skarphéðinn Pétursson lögmaður) gegn Icelandair ehf (Svanhvít Axelsdóttir lögmaður)

Erlent flugfélag höfðaði mál á hendur íslensku fyrirtæki til þess að fá greiddar bætur vegna óbeins tjóns sem hlotist hefði af því að vinnuvél stefnda rakst utan í flugvél stefnanda á Keflavíkurflugvelli. Stefndi var sýknaður af öllum kröfum stefnanda.