Héraðsdómur Reykjavíkur
Dómur 22. mars 2016.
Mál nr. E-325/2015:
Lárus Óskarsson
gegn
Mjölni og
(Fróði Steingrímsson hdl)
og Árna Ísakssyni
(Styrmir Gunnarsson hdl)
Lykilorð
Skaðabætur. Viðurkenningardómur.
Útdráttur
Viðurkenningarmál. Skaðabætur.
Stefnandi krefst þess að viðurkennd verði með dómi óskipt (in solidum) skaðabótaskylda vegna líkamstjóns sem stefnandi varð fyrir þann 23. ágúst 2014 í húsakynnum stefnda, félagsins Mjölnis, af völdum stefnda, Árna Ísakssonar. Þá krefst stefnandi að stefndu verði sameiginlega dæmdir til greiðslu málskostnaðar.
Af hálfu stefnda Mjölnis er aðallega krafist sýknu en til vara að bótaskylda verði einungis viðurkennd að hluta. Í báðum tilfellum krefst stefndi málskostnaðar úr hendi stefnanda.
Af hálfu stefnda Árna er aðallega krafist sýknu en til vara að bótaskylda verði einungis viðurkennd að hluta. Í báðum tilfellum krefst stefndi málskostnaðar úr hendi stefnanda eins og gjafsóknar til varnar nyti ekki í málinu.
I.
Málavextir
Laugardaginn 23. ágúst 2014 kom stefnandi í fylgd félaga sinna í íþróttasal stefnda Mjölnis að Seljavegi 2 í Reykjavík. Þennan dag var gleðskapur stefnanda og félaga hans í tilefni væntanlegs brúðkaups hans nokkru síðar, svokölluð steggjun, sem félagarnir höfðu skipulagt fyrir stefnanda. Verður sú nafngift notuð eftirleiðis um athöfn þessa.
Liður í dagskrá dagsins var viðkoma í íþróttasalnum en á móti þeim tók stefndi Árni Ísaksson, sem starfar sem þjálfari hjá Mjölni. Aðdragandi þessa var sá að félagi stefnanda, Darri Örn Hilmarsson, hafði samband við fyrirsvarsmann stefnda Mjölnis, Jón Viðar Arnþórsson, og lýsti fyrir honum þeirri fyrirætlun félaga að steggja stefnanda og „setja hann í hringinn“. Tilgangurinn var sá að fá einhvern „frá ykkur“ til þess að „taka aðeins á“ stefnanda og greiða fyrir þá þjónustu. Í svari fyrirsvarsmannsins segir: „Gerum þetta hverja helgi. BJJ yfirþjálfarinn okkar Þráinn Kolbeinsson sér alveg um þetta. Sendu honum bara línu á facebook og hann svarar þér strax“. Fram kom að steggjun væri framkvæmd hjá þeim allt að 6 sinnum á dag. Tekið var fram að yfirþjálfari þeirra, Þráinn Kolbeinsson, sæi alveg um þetta. Var Darra bent á að hafa samband við hann en hann tæki á móti hópnum „eða einhver úr keppnisliðinu“. Spurði Darri svo: „ok...og er þetta þá bara 3 lotur eða er upphitun eða hvernig virkar þetta?“ Upplýsti Jón Viðar að þetta kostaði 15.000 krónur og lýsti tilhöguninni svo: „steggurinn er bara krumpaður saman og gólfið skúrað með honum, svo sýnir hann ykkur eitthvað smá“.
Í kjölfarið sendi Darri Þráni skilaboð á fésbók þar sem hann kvaðst vonast til þess að unnt væri að setja stefnanda í hringinn og „láta þjarma aðeins að honum“ og „það væri ekki verra ef það væri stelpa“. Gaf Þráinn honum upp tölvunetfang og héldu samskipti þeirra áfram þar. Í svari Þráins segir hann m.a. að stelpur taki ekki að sér steggi. Þá gaf hann upp að óhentugur tími hjá þeim væri milli 12 og 14 og verðið væri 18.000 krónur fyrir 30 mínútur. Vísaði Darri þá til þess að Jón Viðar hefði talað um 15.000 kr. við hann og sendi honum skjáskot af fésbók af þeim hluta samtals þeirra. Féllst Þráinn þá á það verð en kvað þá hafa hækkað gjaldið upp í 18.000 kr. en bætti við „en við förum nú ekki að taka fyrir hendurnar á formanninum“.
Umræddan laugardag mættu þeir félagar í æfingasalinn um kl. 17:00 eins og ákveðið hafði verið. Á meðal gagna málsins eru myndupptökur á síma, sem sýna atburðarrásina, sem nánar verður lýst í niðurstöðukafla, frá mismunandi sjónarhorni. Þar sést þegar stefnandi fellur í gólfið og hrópar upp yfir sig af sársauka. Hefur hann á orði að hann telji sig vera brotinn. Stefnandi fékk frystan gelpoka og teygjusokk á staðnum sem hann klæddi fót sinn í og var dagskránni haldið áfram með viðkomu á nokkrum stöðum.
Stefnandi leitaði á slysadeild um hádegi næsta dag og var greindur með tvíbrotinn hægri ökkla sem var í lið og voru brotaendar lítið tilfærðir. Gekkst hann undir aðgerð sama dag og var brotið fest með plötu og skrúfum. Að því búnu var hann settur í gifs og mátti ekki stíga í fótinn næstu 6 vikurnar.
Stefnandi krafði stefndu um viðurkenningu á bótaskyldu með bréfi, dagsettu 21. október 2014. Í bréfinu er rakið að stefnandi telji stefnda Árna hafa sýnt af sér gáleysi sem hafi leitt til þess slyss sem varð umrætt sinn. Þá er afleiðingum þess lýst sem hafi haft í för með sér bæði beint og óbeint tjón stefnanda.
Með bréf lögmanns stefnda Mjölnis var kröfu stefnanda hafnað. Jafnframt var upplýst að félagið hefði ekki tryggingu hjá tryggingafélagi vegna líkamstjóns á borð við það sem stefnandi varð fyrir.
II.
Málsástæður og lagarök stefnanda
Stefnandi byggir dómkröfu sína á því að tjónið sem hann varð fyrir stafi af því að þjálfarinn, stefndi Árni, sem sé starfsmaður stefnda Mjölnis hafi sýnt af sér gáleysi við kennslu, leiðbeiningar og eftirlit með stefnanda í umrætt sinn. Telur stefnandi að það hafi verið gáleysi af hálfu Árna að fella stefnanda með þeim hætti sem gert var án þess að leiðbeina honum á nokkurn hátt, undirbúa hann og vara við því sem biði hans. Hafi legið fyrir að stefnandi hafði aldrei tekið þátt í slíkum leik áður og því ríkara tilefni en ella til leiðbeininga. Þá hafi stefnanda ekki verið ráðlagt að hita upp fyrir viðburðinn og líkaminn því kaldur, sem aftur auki líkur á meiðslum. Telur stefnandi því að stefndi Árni hafi brugðist leiðbeiningar- og eftirlitsskyldu sinni og því sýnt af sér saknæmt athæfi í umrætt sinn; í þessu tilviki stórkostlegt gáleysi. Stefnandi hafi tekið þátt í umræddum viðburði í góðri trú og ekki átt von á öðru en góðlátlegri skemmtun enda talið sig vera undir öruggri handleiðslu þjálfara með sérþekkingu.
Stefnandi bendir á að stefndi Árni sé starfsmaður stefnda Mjölnis og titlaður þjálfari hjá félaginu. Hann hafi verið í vinnunni þegar umrætt tjón átti sér stað og hafi ekkert í samskiptum stefnanda og félaga hans við starfsmenn stefnda Mjölnis bent til annars. Telur stefnandi að stefndi Mjölnir beri skaðabótaábyrgð á skaðaverkum Árna á grundvelli reglna skaðabótaréttar um ábyrgð vinnuveitanda á tjóni sem starfsmaður hans hefur valdið með saknæmum hætti. Þá bendir stefnandi á að samkvæmt dómaframkvæmd hér á landi sé ábyrgð felld á vinnuveitanda þótt starfsmenn hagi sér með óvenjulegum eða afbrigðilegum hætti. Þá gangi ábyrgðin lengra þegar starf feli í sér hættu á beitingu ofbeldis. Takist lögmanni stefnda Mjölnis hins vegar að sýna fram á að Mjölnir beri ekki vinnuveitendaábyrgð á stefnda Árna vegna athafna hans í umrætt sinn, beri Árni engu að síður persónulega skaðabótaábyrgð á skaðverki sínu gagnvart stefnanda á grundvelli ólögfestrar sakarreglu skaðabótaréttar og 1. gr. laga nr. 50/1993. Sú regla taki til tjóns sem sé tjónvaldi um að kenna. Telur stefnandi að unnt hefði verið að komast hjá tjóninu ef stefndi Árni hefði hegðað sér til samræmis við þær kröfur sem gera má til hans. Stefndi sé enginn nýgræðingur í sjálfsvarnaríþróttum en hafi farið offari umrætt sinn.
Til frekari stuðnings bótaskyldu stefnda Mjölnis er bent á það að félagið reki íþróttafélag og bjóði upp á fjölda námskeiða. Sé sérstaklega auglýst að gætt sé fyllsta öryggis í aðbúnaði og kennslu og að starfsfólk búi yfir víðtækri þekkingu. Verði þeir aðilar sem til félagsins leita að geta treyst því að þeim sé ekki hætta búin undir leiðsögn kennara félagsins enda hafa þeir réttmætar væntingar í þá veru í ljósi þess hvernig félagið kynni starfsemi sína og starfsmenn. Beri þjálfurum að upplýsa um þær hættur sem kunna að fylgja æfingum og leiðbeina viðkomandi.
Stefnandi hafi ákveðið að fara í bardagahringinn þó að honum væri það ekki skylt enda hluti af dagskrá dagsins sem skipulögð hafi verið af öðrum. Ekki séu efni til að líta svo á að að stefnandi hafi með því að stíga inn í hnefaleikahringinn samþykkt að taka sérstaka áhættu þannig að það eigi að hafa áhrif á bótarétt hans enda hafi hann engan þátt átt í að tjón hlaust af.
III.
Málsástæður og lagarök stefnda Mjölnis
Stefndi byggir í fyrsta lagi á því að stefndi Árni hafi ekki starfað á vegum stefnda er slysið varð. Beri stefndi því ekki ábyrgð á grundvelli vinnuveitandaábyrgðar. Stefndi Árni sinni aðeins kennslu og þjálfun í sparkboxi og MMA-bardagaíþrótt á vegum stefnda. Sú kennsla fari fram með skipulögðum hætti, á sama hátt og önnur kennsla á vegum stefnda Mjölnis og alls ekki á þann hátt sem stefnandi og vinir hans fengu að prófa hjá Árna. Öðrum verkum sinni Árni ekki á vegum stefnda, heldur á sjálfstæðan hátt, á eigin forsendum og að eigin frumkvæði. Þá hafi Árni sjálfur tekið við greiðslu vegna viðburðarins, en ekki stefndi Mjölnir, og hún runnið til hans sjálfs. Hafi hann aðeins greitt stefnda Mjölni leigu fyrir afnot af húsnæðinu.
Stefndi bendir á að fyrirsvarsmaður stefnda, sem félagi stefnanda hafi verið í samskiptum við í aðdraganda viðburðarins, hafi vísað honum áfram á starfsmann stefnda sem aftur hafi vísað á stefnda Árna. Einnig bendir stefndi á að sú þjónusta sem um ræðir, sem félagar stefnanda keyptu af meðstefnda Árna, sé hvergi auglýst eða kynnt á vegum stefnda Mjölnis, enda sé hún á ábyrgð þess starfsmanns sem taki hana að sér í hvert eitt sinn. Stefndi bendir á að væntingar og ætlanir stefnanda skipti engu í þessu samhengi.
Í öðru lagi byggir stefndi á því að orsakir líkamstjóns stefnda séu alfarið ósannaðar. Stefnandi hafi sjálfur ákveðið að glíma við Árna eftir að hann hafði hvílt sig eftir hina umdeildu fellu í upphafi. Þá hafi hann gert sér glaðan dag með vinum sínum þrátt fyrir afleiðingarnar sem hann kveður vera tvíbrotinn fót. Ekki hafi stefnandi leitað til læknis fyrr en daginn eftir. Augljóst sé að fótleggur stefnanda hafi getað brotnað hvenær sem er á ofangreindu tímabili. Þá sé líklegra að fólk slasi sig þegar áfengi sé haft um hönd eins og raun varð á. Einnig sé bent á að hafi stefnandi misstigið sig og tognað í átökum sínum við Árna auki það líkur á frekari meiðslum hefði stefnandi misstigið sig síðar um daginn eða um kvöldið. Hafnar stefndi því með öllu að hann verði látinn sæta skaðabótaábyrgð á tjóni stefnanda, enda með öllu óljóst og ósannað hvernig það hafi komið til. Í öllu falli sé augljóst, að hafi stefnandi sannarlega fótbrotnað í hringnum hjá stefnda, hafi sú háttsemi hans, að halda út að skemmta sér í kjölfar þess, augljóslega gert illt vera og aukið tjón stefnanda til muna. Stefndi hafnar því með öllu að honum verði gert að bera ábyrgð á slíku tjóni.
Telji dómurinn sannað að tjón stefnanda megi rekja til athafna starfsmanns stefnda, er á því byggt að háttsemi stefnda og meðstefnda Árna hafi ekki verið ólögmæt, á grundvelli sjónarmiða skaðabótaréttarins um áhættutöku stefnanda sjálfs og samþykkis hans. Beri stefndi því ekki skaðabótaábyrgð á neinu tjóni sem stefnandi telur sig hafa orðið fyrir af völdum hans eða Árna. Stefnandi hafi farið ásamt meðstefnda Árna inn í bardagahring, sem staðsettur er í sal stefnda, í þeim tilgangi að etja kappi við hann en með því hafi hann látið samþykki sitt í ljós. Hafði stefndi Árni áður upplýst stefnanda og aðra viðstadda um að hann ætlaði að fella stefnanda. Hvað þetta varðar byggir stefndi á almennum sjónarmiðum skaðabótaréttarins um áhættutöku tjónþola og samþykki, en þar að auki er byggt á 13. kafla Mannhelgisbálks Jónsbókar frá 1281 og skyldum sjónarmiðum.
Þá byggir stefndi á að ekkert liggi fyrir um það að meðstefndi Árni hafi í raun sýnt af sér saknæma háttsemi í samskiptum sínum við stefnanda. Því er hafnað sem ósönnu og ósönnuðu, að sú aðferð sem Árni beitti við að sýna stefnanda það, hafi verið á nokkurn hátt ámælisverð. Ekkert liggi fyrir sem sýni að Árni hafi farið offari við það, enda þótt sannað væri að stefnandi hafi slasast við aðfarirnar. Engin leið sé að koma með öllu í veg fyrir að óhöpp eigi sér stað, sama hvaða íþrótt um sé að ræða. Af hálfu stefnanda er því byggt á því, teljist það sannað að líkamstjón stefnanda megi rekja til athafna Árna, að um óhappatilvik hafi verið að ræða en ekki saknæma háttsemi af hans hálfu. Meta verði meint saknæmi háttsemi Árna í því samhengi sem aðfarirnar áttu sér stað í, þ.e. í bardagahring, gagnvart fullorðnum einstaklingi sem hafi gengið sjálfviljugur til leiks í því markmiði að fá sýningu á því hvernig taka eigi menn glímutökum og yfirbuga þá.
IV.
Málsástæður og lagarök stefnda Árna
Stefndi Árni hafnar alfarið allri bótaábyrgð og telur að meiðsli stefnanda megi rekja beint til þess að hann hafi ekki farið að fyrirmælum. Kveðst stefndi hafa tekið að sér steggjun stefnanda að beiðni félaga hans en slík þjónusta sé alfarið á ábyrgð þess er taki hana að sér. Tilgangurinn hafi ekki verið sá að taka að sér kennslu líkt og þá sem meðstefndi bjóði upp á.
Stefndi kveðst hafa verið beðinn um, áður en steggjun hófst, að sýna þeim „eitthvað smá“ og hafi hann ætlað að sýna þeim fellu án mótspyrnu. Hafi þeir óskað eftir því að hann sýndi fellu. Hafi frá upphafi verið ljóst að þeir félagar væru komnir til að glíma; í steggjun en ekki í kennslu. Stefnandi hafi ekki farið eftir fyrirmælum hans um að slaka á heldur hafi streist á móti í miðri fellu og lent illa á fætinum. Stefnandi hafi viljað taka aðra glímu eftir að félagar hans höfðu tekist á við sig. Hafi hann virst treysta sér til þess þrátt fyrir að hafa verið ítrekað spurður. Á þessum tíma hafi því ekkert verið sem benti til að um alvarleg meiðsl hafi verið að ræða. Þá sé óvíst hvort meiðslin hafi orðið alvarleg við felluna umrætt sinn eða komið til seinna.
Að öðru leyti vísar stefndi til greinargerðar Mjölnis um frekari röksemdir og málsástæður. Við flutning málsins fyrir dómi vísaði lögmaður stefnda til þeirra málsástæðna og rökstuddi frekar.
V
Niðurstaða
Eins og rakið hefur verið höfðu félagar stefnanda skipulagt fyrir hann skemmtidagskrá í tilefni væntanlegs brúðkaup hans. Stefnandi telur sig hafa orðið fyrir tjóni vegna atviks sem átti sér stað í bardagahring stefnda Mjölnis og krefst viðurkenningar á bótaskyldu félagsins og stefnda Árna sem felldi stefnda í hringnum.
Stefnandi byggir á því að stefndi Árni hafi sýnt af sér gáleysi við kennslu, skort hafi á leiðbeiningar og eftirlit með stefnanda umrætt sinn og hann því slasast eins og raun bar vitni. Vísar hann í þessu sambandi til almennu skaðabótareglunnar og almennrar reglu um vinnuveitendaábyrgð. Stefndu byggja á því að skilyrði bótaábyrgðar séu ekki uppfyllt.
Gögn málsins og framburðir vitna bera með sér að tilgangur þess að stefnandi var sendur í bardagahringinn með stefnda Árna hafi fyrst og fremst verið skemmtanalegs eðlis. Að mati dómsins er bersýnilegt að framundan var ekki kennsla grunnatriða í bardagaíþróttum, heldur sýning til skemmtunar viðstöddum, þar sem stefnandi sjálfur var viðfangið og stefndi Árni stýrði ferðinni. Fram kom í skýrslu Jóns Viðars Arnþórssonar, fyrirsvarsmanns stefnda Mjölnis, að við hefðbundna kennslu nýnema í bardagaíþrótt, myndi þjálfari byrja á því að sýna glímutök á öðrum þjálfara eða vönum manni. Að síðustu yrði nemandinn látinn spreyta sig á þjálfaranum. Var því um alls ólíka nálgun að ræða umrætt sinn.
Á myndupptökum, sem liggja fyrir í málinu, má sjá stefnda Árna sýna stefnanda það sem hann nefndi „basic“ og gefa stuttlega ráð um hvernig eigi að bera sig að. Þá sýndi hann svokallaða fellu sem fólst í því að taka þéttingsfast utan um stefnanda frá hlið, bregða fæti undir hnésbót hans og fella hann á bakið. Tókst fellan áfallalaust og lenti stefnandi á bakinu með báða fætur frjálsa. Í beinu framhaldi felldi hann stefnanda aftur sem lenti þá illa. Á upptökum sést að hægri fótur hans virðist renna til og verða undir þannig, að þegar hann fellur til jarðar kemur hann niður á fótinn af fullum þunga. Eins og áður segir kenndi stefnandi sér sýnilega strax meins á fæti og taldi sig brotinn. Er það hið ætlaða tjónsatvik sem um er deilt í málinu. Líður samtals 1 mínúta og 27 sekúndur frá því að stefnandi og stefndi Árni stíga í hringinn og þangað til stefnandi meiðist.
Því er ekki haldið fram af hálfu stefnanda að aðferð stefnda við felluna eða verklag hafi verið rangt heldur einkum að hann hafi sýnt af sér gáleysi er hann gætti þess ekki að leiðbeina, undirbúa og vara stefnanda við því sem beið hans. Dómurinn telur að þrátt fyrir að ekki hafi verið um hefðbundna kennslu að ræða, heldur skemmtanagildið verið ríkjandi, frýi það stefnda ekki ábyrgð enda ljóst að stefnandi var óundirbúinn og alls óvanur fangbrögðum sem þessum. Þá mátti stefndi vita að hugsanlega hafi áfengi verið haft um hönd. Bar stefnda við þessar aðstæður að gæta sérstakrar varkárni og haga allri sinni nálgun við stefnanda í bardagahringnum svo að ekki færi milli mála hvers hann mætti vænta. Er ekki annað að sjá af upptökum en að hann hafi gert það í aðdraganda fyrri fellunnar en í síðara skiptið gekk hann það hratt til verks að stefnanda gafst ekki ráðrúm til þess að átta sig. Jók það því líkur á meiðslum.
Ekki er á það fallist með stefnda Árna að stefnandi hafi ekki fylgt leiðbeiningum og því hafi hann slasast enda var rakleiðis haldið í bardagahringinn. Fram kemur á upptökum að í aðdraganda fyrri fellunnar segir stefndi að hann hyggist sýna stefnanda „take down“ eða fellu. Þá ítrekaði stefndi að hann væri „ekki að fara að gera neitt“ þegar stefnandi virtist óöruggur. Þetta gerði hann hins vegar ekki í seinna skiptið. Verður í ljósi þessa ekki fallist á það með stefnda Árna að stefnanda sjálfum sé um að kenna hvernig fór þar sem hann hafi streist á móti í miðri fellu í stað þess að vera slakur. Ber að líta til þess að við þessar aðstæður eru einhver ósjálfráð viðbrögð óumflýjanleg, svo sem að stífna upp, en dómurinn telur að slík viðbrögð megi merkja á upptökunni.
Dómurinn fellst ekki á sjónarmið stefnda um áhættutöku en þau eiga ekki við eins og hér var ástatt. Vísar dómurinn til þess sem áður segir um tilgang þess sem fram fór umrætt sinn. Þá er ljóst að stefnandi steig ekki inn í bardagahringinn til þess að etja kappi við stefnda Árna. Einnig hafa stefndu vísað til þess að stefnandi hafi í síðasta lagi eftir fyrri felluna mátt gera sér grein fyrir því sem í vændum var. Að mati dómsins þykir engu skipta um sakarmat stefnda Árna þó að stefnandi hafi borið hér fyrir dómi að hann hafi talið fyrri felluna í lagi og eins og hann hafi mátt búast við.
Að framansögðu virtu verður að telja að stefndi Árni hafi ekki sýnt þá varkárni sem ætlast mátti til af honum við þessar aðstæður. Mátti hann gera sér grein fyrir því að það að fella stefnanda nær fyrirvaralaust eins og hann gerði í síðara skiptið fæli í sér hættu á tjóni. Verður því fallist á kröfu stefnanda um viðurkenningu á bótaskyldu stefnda Árna.
Stefndi heldur því fram að orsakir líkamstjóns stefnda séu alfarið ósannaðar og sé líklegra að þær megi rekja til atvika sem áttu sér stað síðar um kvöldið. Á þetta fellst dómurinn ekki. Þegar litið er til fyrirliggjandi gagna, einkum myndupptaka af atvikinu, læknisvottorðs Hrólfs Vilhjálmssonar og skýrslu Hrafnkels Stefánssonar, læknis á bráðadeild LSH, og Darra Arnars Hilmarssonar, þykir nægilega sannað að líkamstjón stefnanda megi rekja til hinnar bótaskyldu háttsemi stefnda Árna sem áður er lýst. Fram kemur í læknisvottorði að hægri ökkli stefnanda hafi verið í lið og brotaendar lítt tilfærðir. Bendir ekkert í málinu til þess að tjón stefnanda hafi orðið meira við að stíga í hinn slasaða fót eða leita ekki meðferðar strax. Eins og fram kom í skýrslu læknisins getur einstaklingur með brotinn ökkla stigið í fótinn en það sé hins vegar sársaukafullt. Sé ökkli ekki í lið sé það hins vegar svo til útilokað. Stefnandi bar fyrir dóminum að hann hafi umborið sársaukann og jafnvel talið sig hafa tognað illa. Kælingin hafi einnig hjálpað til. Tvær grímur hafi hins vegar runnið á hann næsta dag og því hafi hann leitað á slysadeild.
Með vísan til framangreinds telur dómurinn stefnanda hafa sýnt nægilega fram á orsakatengsl á milli fyrrgreindrar saknæmrar háttsemi stefnda Árna og tjóns stefnanda.
Við úrlausn á því hvort bótaskylda verði felld á stefnda Mjölni á grundvelli ábyrgðar vinnuveitanda verður að leggja á það mat hvort bótaskyld háttsemi stefnda Árna hafi verið unnin í nægilegum tengslum við framkvæmd starfs hans hjá félaginu.
Óumdeilt er að stefndi Árni er launaður starfsmaður stefnda Mjölnis og var það áréttað fyrir dómi af lögmanni hans. Tók hann að sér steggjunina eftir áður lýstri boðleið. Staðfest var í skýrslu Jóns Viðars að steggjanir færu fram með vitund og vilja félagsins, og þær væru eftirsóttar og því algengar. Misjafnt væri hvort leitað væri til félagsins, starfsmanna eða annarra sem tengdust Mjölni á einn eða annan hátt. Þá færu athafnirnar fram í höfuðstöðvum félagsins, nánar tiltekið í íþróttasal þeirra þar sem bardagahringurinn er staðsettur. Engar reglur um steggjun lægju fyrir heldur væri þeim sem tæki verkefnið að sér í sjálfsvald sett hvernig hann hagaði því. Hins vegar hefði félagið milligöngu þegar til þeirra væri leitað og fullyrti Jón Viðar að þá væri eingöngu færum einstaklingum boðið að taka verkefnin að sér. Fram kom í skýrslutökum að haldið væri úti ýmsum lokuðum fésbókarsíðum sem tengdust stefnda Mjölni, m.a. ein þar sem gefinn væri kostur á steggjunum og ber heitið „steggjanir“.
Í áðurgreindum samskiptum Darra og Jóns Viðars annars vegar og Darra og Þráins hins verður ekki annað ráðið en að steggjanir séu á vegum stefnda Mjölnis. Hvað sem líður fyrirkomulagi greiðslna fyrir þessar athafnir má ráða af tölvubréfasamskiptum Darra við Þráin að hann taldi sig ekki einráðan um gjaldið umrætt sinn.
Eins og fram kom er stefndi Árni þjálfari hjá stefnda Mjölni og er ágreiningslaust að hann er vel þekktur bardagamaður og á farsælan feril að baki sem slíkur. Þegar stefnandi kom með félögum sínum í húsakynni stefnda Mjölnis þar sem stefndi Árni tók á móti honum mátti hann ætla að hann væri þangað kominn með vitund og vilja þeirra og að stefndi Árni væri starfsmaður þeirra.
Að öllu ofangreindu virtu telur dómurinn nægileg tengsl á milli hinnar bótaskyldu háttsemi stefnda Árna og starfs hans hjá stefnda Mjölni til þess að bótaskylda verði felld á félagið á grundvelli reglunnar um vinnuveitendaábyrgð.
Með hliðsjón af niðurstöðu í málinu og með vísan til 1. mgr. 130. gr. laga nr. 91/1991 ber stefndu að greiða stefnanda óskipt málskostnað. Lögmaður stefnanda lagði fram tímaskýrslu og reikning sinn sem að mati dómsins er of hár sé litið til eðlis málsins og umfangs. Koma m.a. fram liðir í tímaskýrslu sem eru óviðkomandi þessum málarekstri. Þykir hæfilegur málskostnaður vera 800.000 krónur sem stefndu ber að greiða stefnanda óskipt.
Stefndi Árni fékk gjafsókn til að taka til varna í máli þessu. Allur gjafsóknarkostnaður, þar með talinn málflutningsþóknun lögmanna hans, þykir hæfilega ákveðinn 756.000 krónur. Lögmaður hans á fyrri stigum málsins var Hlynur Halldórsson hrl. en síðar tók Styrmir Gunnarsson hdl. við málinu.
Sigríður Hjaltested héraðsdómari kveður upp þennan dóm.
D Ó M S O R Ð:
Viðurkennd er óskipt skaðabótaskylda stefndu Mjölnis og Árna Ísakssonar vegna líkamstjóns sem stefnandi varð fyrir þann 23. ágúst 2014 í húsakynnum stefnda, félagsins Mjölnis, af völdum starfsmanns stefnda, Árna Ísakssonar.
Stefndu greiði stefnanda óskipt 800.000 krónur í málskostnað.
Allur gjafsóknarkostnaður stefnda Árna, þar með talin þóknun lögmanna hans, þykir hæfilega ákveðinn 756.000 krónur og greiðist úr ríkissjóði.
Sigríður Hjaltested