Því var hafnað að meðferð opinberra starfsmanna á máli stefnanda hefði verið saknæm og ólögmæt. Stefnandi var ekki talinn hafa sýnt fram á að hann hefði orðið fyrir tjóni vegna hennar. Hann var talinn verða bera sjálfur þann kostnað sem hann hefði haft af málsmeðferðinni þótt hann hefði falið lögmanni að hafa samskipti við stjórnvöld.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Gunnhildur Anna Alfonsdóttir saksóknarfulltrúi) gegn
Arunas Ruzgys
Ákærði var sakfelldur fyrir ítrekuð umferðarlagabrot. Honum var gert að greiða 160.000 króna sekt til ríkissjóðs en ella sæta fangelsi í 12 daga. Ákærði er einnig sviptur réttinum til þess að öðlast ökuskírteini í 16 mánuði.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kamilla Kjerúlf saksóknarfulltrúi) gegn
Grazvydas Petrosius
Ákærði sakfelldur fyrir umferðarlagabrot og skjalafals. Dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi og sviptur ökurétti í 60 daga.
Stefnandi gerði kröfu á hendur stefnda íslenska ríkinu um miskabætur eftir að fellt var niður mál á hendur stefnanda fyrir akstur án ökuréttinda þar sem stefnandi þótti geta sýnt fram á það eftir á að hann hefði haft í gildi ökuréttindi frá Bandaríkjunum þegar afskipti lögreglu af honum áttu sér stað. Var fallist á með stefnda að afskipti lögreglu féllu ekki undir aðgerðir samkvæmt IX.–XIV. kafla laga nr. 88/2008 sem stefnandi byggði á, né heldur að sýnt væri fram á miska, sbr. b-lið 1. mgr. 26. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993. Var stefndi því sýknaður af dómkröfum stefnanda í málinu.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Elín Hrafnsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Pétri Stanislav Karlssyni (
Áslaug Lára Lárusdóttir lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir umferðar- og fíkniefnalagabrot. Dæmdur í 2 mánaða fangelsi og sviptur ökurétti tímabundið.
Ákæruvaldið (
Agnes Björk Blöndal saksóknarfulltrúi)
gegn
Gunnar Þór Óðinsson (
Ingvar Þóroddsson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir akstur undir áhrifum fíkniefna.
Ákæruvaldið (Kristín Una Pétursdóttir saksóknarfulltrúi) gegn
Sigurjóni Grétari Einarssyni
Ákærði var dæmdur í 30 daga fangelsi og sviptur ökurétti ævilangt fyrir að aka bifreið undir áhrifum ávana- og fíkniefna.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Elín Hrafnsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Ragnari Davíð Bjarnasyni (
Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Sakfellt fyrir umferðar- og fíkniefnalagabrot.
Sýknað af ákæru um akstur sviptur ökurétti.
Ekki var talið að ákvörðun um akstursbann hefði í raun verið tekin þrátt fyrir birtingu óundirritaðs skjals þess efnis, enda voru skilyrði akstursbanns ekki fyrir hendi.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Haukur Gunnarsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Herði Hákoni Jónssyni (
Þröstur Þór Guðmundsson lögmaður)
Maður sakfelldur fyrir fjársvik og umferðar-, lyfja- og tollalagabrot. Sviptur ökurétti ævilangt.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Haukur Gunnarsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Jóni Aroni Jónssyni (
Magnús Davíð Norðdahl lögmaður)
Maður sakfelldur auðgunar-, fíkniefna- og umferðarlagabrot. Rof á skilyrðum reynslulausnar. Sviptur ökurétti ævilangt.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kristmundur Stefán Einarsson aðstoðarsaksóknari) gegn
Alexander Feyki Heiðarssyni
Ákærði var sakfelldur fyrir nytjastuld, þjófnað, umferðarlagabrot og vörslur fíkniefna. Dæmdur í 4 mánaða skilorðsbundið fangelsi og til að sæta sviptingu ökuréttar í 1 ár.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Haukur Gunnarsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Gyðu Dröfn Grétarsdóttur (
Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Sakfellt fyrir þjófnað, líkamsárásir, fíkniefnlagabrot, umferðarlagabrot o.fl. Ævilöng ökuréttarsvipting áréttuð. Skaðabætur dæmdar. Gæsluvarðhaldstími dreginn frá refsingu.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Haukur Gunnarsson saksóknarfulltrúi)
gegn
Fannari Daða Hreinssyni (
Daníel Reynisson lögmaður)
Maður sakfelldur fyrir umferðarlagabrot. Eldi dómur dæmdur upp. Hegningarauki. Ævilöng ökuréttarsvipting áréttuð.
Ákæruvaldið (
Sigurður Pétur Ólafsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Arnari Freyr Karlssyni (
Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Ákærði dæmdur í 14 mánaða fangelsi og ævilöng svipting ökuréttar hans ítrekuð vegna umferðarlagabrota og brota gegn lögum um ávana- og fíkniefni.
Ákæruvaldið (Halldór Rósmundur Guðjónsson saksóknarfulltrúi) gegn
Kristni Viðari Oddssyni
Ákærði, sem skýlaust játaði sök fyrir dómi, var dæmdur í þrjátíu daga fangelsi fyrir að aka sviptur ökurétti.
Ákæruvaldið (Halldór Rósmundur Guðjónsson saksóknarfulltrúi) gegn
Unnari Erni Rósenkarssyni
Ákærði, sem skýlaust játaði sök fyrir dómi, var dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi fyrir að aka sviptur ökurétti.
Ákæruvaldið (Jóhann Svanur Hauksson aðstoðarsaksóknari) gegn
Sigurást Þórönnu Guðmundsdóttur
Ákærða var dæmd í sextíu daga fangelsi og svipt ökurétti ævilangt, fyrir akstur bifreiðar án gildra ökuréttinda og undir áhrifum ávana- og fíkniefna.
Ákæruvaldið (Halldór Rósmundur Guðjónsson saksóknarfulltrúi) gegn
Friðjóni Veigari Gunnarssyni
Ákærði, sem skýlaust játaði sök fyrir dómi, var dæmdur í fimmtán daga fangelsi og sviptur ökurétti ævilangt, fyrir akstur bifreiðar sviptur ökurétti og undir áhrifum ávana- og fíkniefna, en með dómnum var honum gerður hegningarauki eldri dóm.
Ákæruvaldið (
Vilhjálmur Reyr Þórhallsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Bjarka Fannari Smárasyni (
Jón Bjarni Kristjánsson hdl)
Ákærði var sakfelldur fyrir að aka bifreið í tvígang sviptur ökurétti og undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Hann játaði brot sín, en með þeim rauf hann skilyrði fyrir tveggja ára frestun á fullnustu tveggja mánaða skilorðsbundins hluta fangelsisrefsingar eldri dóms og var sú refsing dæmd með þeirri refsingu sem ákærða var gerð í málinu. Refsing ákærða þótti hún hæfilega ákveðin fangelsi í sjö mánuði, en fresta skyldi hluta refsingarinnar skilorðsbundið til tveggja ára. Þá var ákærði sviptur ökurétti ævilangt.
Ákæruvaldið (
Auðbjörg Lísa Gústafsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Hrefnu Rán Hannesdóttur (
Stefán Karl Kristjánsson hrl)
Ákærða, sem skýlaust játaði sök fyrir dómi, var dæmd í fjögurra mánaða fangelsi og svipt ökurétti ævilangt, fyrir fjögur þjófnaðarbrot og akstur bifreiðar svipt ökurétti og undir áhrifum ávana- og fíkniefna.
Ákæruvaldið (Sigurður Pétur Ólafsson aðstoðarsaksóknari) gegn
Inga Lárussyni
Ákærði var dæmdur í þrjátíu daga fangelsi og sviptur ökurétti ævilangt, fyrir akstur bifreiðar undir áhrifum ávana- og fíkniefna og vörslur slíkra efna, sem hann var einnig dæmdur til upptöku á.
Ákærði, sem skýlaust játaði sök fyrir dómi, var dæmdur í tíu mánaða fangelsi, fyrir að aka í tvígang sviptur ökurétti.
Ákæruvaldið (
Sigurður Pétur Ólafsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Patreki Páli Auðunssyni (
Jón Egilsson hrl)
Ákærði, sem skýlaust játaði sök fyrir dómi, var dæmur í þrjátíu daga fangelsi, skilorðsbundið til tveggja ára, til greiðslu sektar að viðlagðri vararefsingu, til tímabundinnar sviptingar ökuréttar, og til að sæta upptöku ávana- og fíkniefna og vopna. Með dómnum var hann sakfelldur fyrir brot gegn lögum um meðferð ávana- og fíkniefna, umferðarlögum, vopnalögum og lögreglulögum, og var honum gerður hegningarauki við dóm frá 8. júní á þessu ári.
Ákærði var sakfelldur fyrir brot gegn umferðarlögum og lögum um ávana- og fíkniefni. Hann játaði brot sín skýlaust fyrir dómi. Vegna brota í tveimur fyrstu ákæruliðum af fimm var honum gerður hegningarauki við dóm frá því 20. janúar á þessu ári, þar sem hann var dæmdur í 75 daga fangelsi, þar af þrjátíu daga skilorðsbundið til þriggja ára. Vegna brots í þriðja ákæruliðnum af fimm var honum gerður hegningarauki við lögreglustjórasátt frá 25. febrúar á þessu ári, en með brotum í síðustu tveimur ákæruliðum af fimm rauf hann skilyrði fyrir frestun á skilorðsbundna hluta refsingar dómsins frá 20. janúar síðastliðnum. Sá hluti refsingar þess dóms var tekinn upp og ákærða nú dæmd refsing í einu lagi og þótti sú refsing hæfilega ákveðin fangelsi í sjö mánaði. Þá var ákærði sviptur ökurétti ævilangt og dæmdur til að sæta upptöku fíkniefna.
Ákæruvaldið (
Kjartan Ólafsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Friðjóni Veigari Gunnarssyni (
Guðni Jósep Einarsson hdl)
Ákærði, sem skýlaust játaði sök fyrir dómi, var dæmdur í tveggja mánaða fangelsi, fyrir brot gegn umferðarlögum og lögum um ávana- og fíkniefni. Þá var hann jafnframt sviptur ökurétti ævilangt og dæmdur til að sæta upptöku fíkniefna.
Ákæruvaldið (Halldór Rósmundur Guðjónsson saksóknarfulltrúi) gegn
Wojciech Jósef Szablowski
Ákærði, sem skýlaust játaði sök fyrir dómi, var dæmdur í þrjátíu daga fangelsi og sviptur ökurétti ævilangt, fyrir akstur bifreiðar án gildra ökuréttinda og undir áhrifum áfengis og ávana- og fíkniefna.
Ákæruvaldið (Súsanna Björg Fróðadóttir saksóknarfulltrúi) gegn
Ingólfi Arnarssyni
Ákærði, sem skýlaust játaði sök fyrir dómi, var dæmdur í þrjátíu daga fangelsi og sviptur ökurétti ævilangt, fyrir akstur bifreiðar sviptur ökurétti og undir áhrifum ávana- og fíkniefna.
Ákærði, sem skýlaust játaði sök fyrir dómi, var dæmdur í þriggja mánaða fangelsi, en 45 dögum þeirrar refsingar skyldi frestað skilorðsbundið til tveggja ára. Sakfellingin tók til aksturs bifreiðar sviptur ökurétti og undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Með dómnum var honum gerður hegningarauki við dóm frá 8. júní á þessu ári, þar sem hann var dæmdur í 75 daga fangelsi, þar af 45 daga skilorðsbundið til tveggja ára og var skilorðsbundni hluti þeirrar refsingar tekinn upp og dæmdur með þeirri refsingu sem ákærða var dæmd í málinu. Þá var ákærði sviptur ökurétti ævilangt.
Ákærði, sem skýlaust játaði sök fyrir dómi, var dæmdur í sex mánaða fangelsi og sviptur ökurétti ævilangt, fyrir að aka bifreið í tvígang sviptur ökurétti og undir áhrifum ávana- og fíkniefna, í síðara tilvikinu einnig án lögboðinna vátryggingar.
Ákæruvaldið (Halldór Rósmundur Guðjónsson saksóknarfulltrúi) gegn
Andrzej Dabrowski
Ákærði, sem skýlaust játaði sök fyrir dómi, var dæmdur í átta mánaða fangelsi fyrir að aka bifreið sviptur ökurétti.
Ákærði, sem skýlaust játaði sök, var sakfelldur fyrir brot gegn umferðarlögum og lögum um ávana- og fíkniefni. Hann var nú dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi, skilorðsbundið til tveggja ára, til greiðslu 100.000 króna sektar að viðlagðri vararefsingu og þá skyldi hann sæta upptöku kannabisplantna, kannabislaufa, kannabisstöngla og niðurskorinna kannabisplöntuhluta.
Ákærði, sem skýlaust játaði sök, var dæmdur í tveggja mánaða fangelsi og sviptur ökurétti ævilangt, fyrir að aka bifreiðum í þrígang undir áhrifum ávana- og fíkniefna, þar af í einu tilvikinu einnig of hratt.
Ákæruvaldið (Halldór Rósmundur Guðjónsson saksóknarfulltrúi) gegn
Jaroslaw Roczkowski
Ákærði, sem skýlaust játaði sök, var dæmdur í tveggja mánaða fangelsi og sviptur ökurétti ævilangt, fyrir að aka bifreið of hratt, sviptur ökurétti og undir áhrifum ávana- og fíkniefna.
Ákæruvaldið (Kjartan Ólafsson aðstoðarsaksóknari) gegn
Steinari Andra Hjálmarssyni
Ákærði var dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi og sviptur ökurétti ævilangt, fyrir brot gegn umferðarlögum og lögum um ávana- og fíkniefni. Þá var hann dæmdur til að sæta upptöku ávana- og fíkniefna.
Ákærði var dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi og sviptur ökurétti ævilangt, fyrir akstur bifreiðar sviptur ökurétti og undir áhrifum áfengis.
Ákæruvaldið (
Súsanna Björg Fróðadóttir saksóknarfulltrúi)
gegn
Svavari Inga Lárussyni (
Daníel Reynisson hdl)
Ákærði var var sakfelldur fyrir brot gegn umferðarlögum og lögum um ávana- og fíkniefni. Hann játaði brot sín. Með dómnum var honum annars vegar gerður hegningarauki við sátt hjá lögreglustjóra frá því á síðasta ári og hins vegar dóm frá því fyrr á þessu ári. Skilorðsbundni hluti refsingar þess dóms, þar sem ákærði var sakfelldur fyrir líkamsárás og umferðarlagabrot, var dæmdur með þeirri refsingu sem ákærða var gerð í máli þessu. Hann var nú dæmdur í sex mánaða fangelsi, skilorðsbundið til tveggja ára, til greiðslu 140.000 króna sektar að viðlagðri vararefsingu, sviptur ökurétti í einn mánuð og þá skyldi hann sæta upptöku kannabisplantna.
Ákæruvaldið (Jóhann Svanur Hauksson aðstoðarsaksóknari) gegn
Ásgeiri Þór Ingasyni
Ákærði var dæmdur í þrjátíu daga fangelsi og sviptur ökurétti ævilangt fyrir ölvunarakstur.
Ákæruvaldið (Guðmundur Þórir Steinþórsson saksóknarfulltrúi) gegn
Eduards Naglis
Ákærði var sakfelldur fyrir skjalabrot, umferðarlagabrot og brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni. Honum var gerður hegningarauki við dóm frá árslokum 2015 og var refsing þess dóms tekin upp og ákærða nú dæmd refsing í einu lagi. Refsing hans þótti hæfilega ákveðin fangelsi í fjóra mánuði, skilorðsbundið til eins árs. Þá var ákærði jafnframt sviptur ökurétti í þrjú ár frá dómsbirtingu að telja og var dæmdur til að sæta upptöku fíkniefna.
Ákæruvaldið (Baldvin Einarsson saksóknarfulltrúi) gegn
Hafdísi Hödd Sigurðardóttur
Ákærða var dæmd til greiðslu 900.000 króna sektar, að viðlagðri 38 daga vararefsingu, fyrir að brot gegn umferðarlögum og lögum um ávana- og fíkniefni. Þá var hún svipt ökurétti í þrjú ár og fjóra mánuði og skyldi einnig sæta upptöku fíkniefna.
Ákæruvaldið (Baldvin Einarsson saksóknarfulltrúi) gegn
Lukas Keserauskas
Ákærði var dæmdur í sex mánaða fangelsi fyrir að aka bifreið í tvígang sviptur ökurétti.
Ákæruvaldið (Halldór Rósmundur Guðjónsson saksóknarfulltrúi) gegn
Hróa Ingólfssyni
Ákærði var dæmdur í þrjátíu daga fangelsi fyrir að aka bifreið of hratt og sviptur ökurétti.
Ákæruvaldið (
Halldór Rósmundur Guðjónsson saksóknarfulltrúi)
gegn
Kristjóni Grétarssyni (
Ingi Freyr Ágústsson hdl)
Ákærði var sakfelldur fyrir að aka bifreið ölvaður og sviptur ökurétti. Hann játaði brot sín, en með þeim rauf hann skilyrði fyrir tveggja ára frestun á fullnustu sex mánaða refsingar eldri dóms og var sú refsing dæmd með þeirri refsingu sem ákærða var gerð í málinu. Refsing ákærða þótti hæfilega ákveðin fangelsi í sjö mánuði, en fresta skyldi hluta refsingarinnar skilorðsbundið til þriggja ára. Þá var ákærði sviptur ökurétti ævilangt.
Ákærði var dæmdur í tveggja mánaða fangelsi fyrir akstur bifreiðar sviptur ökurétti.
Ákærða var sakfelld fyrir hegningar-, umferðar- og fíkniefnalagabrot og var gerður hegningarauki við eldri dóm þar sem hún var dæmd í þriggja mánaða fangelsi, skilorðsbundið til tveggja ára, til greiðslu sektar og að sæta tveggja ára sviptingu ökuréttar. Var hin skilorðsbundna fangelsisrefsing þess dóms tekin upp og ákærðu nú dæmd refsing í einu lagi. Hún játaði brot sín nú og samþykkti einkaréttarkröfu og var refsing hennar ákveðin fangelsi í fimm mánuði, skilorðsbundið til tveggja ára, auk greiðslu 200.000 króna sektar. Þá var hún svipt ökurétti í eitt ár frá 13. september 2018 að telja og skyldi einnig sæta upptöku á fíkniefnum. Einkaréttarkrafa, sem höfð var uppi í málinu, var tekin til greina að fjárhæð 2.224 króna, ásamt vöxtum.
Ákærði var dæmdur í 75 daga fangelsi fyrir að aka bifreiðum í tvígang sviptur ökurétti, en 45 dögum þeirrar refsingar skyldi frestað skilorðsbundið til tveggja ára. Með dómnum var honum gerður hegningarauki við dóm frá 2. mars á þessu ári, þar sem hann var dæmdur í 75 daga fangelsi, þar af 45 daga skilorðsbundið til tveggja ára og var skilorðsbundni hluti þeirrar refsingar tekinn upp og dæmdur með þeirri refsingu sem ákærða var dæmd í málinu.
Ákæruvaldið (Jóhann Svanur Hauksson aðstoðarsaksóknari) gegn
Marvin Rolando Cruz Cruz
Ákærði var dæmdur í 45 daga fangelsi fyrir að aka bifreið í tvígang sviptur ökurétti, þar af í öðru tilvikinu einnig án þess að hafa öryggisbelti spennt.
Ákæruvaldið (Baldvin Einarsson saksóknarfulltrúi) gegn
Arnis Simanovs
Ákærði var dæmdur í þriggja mánaða fangelsi og sviptur ökurétti ævilangt fyrir akstur bifreiðar sviptur ökurétti og undir áhrifum áfengis.
Ákæruvaldið (Baldvin Einarsson saksóknarfulltrúi) gegn
Miroslaw Franciszek Molenda
Ákærði var dæmdur í þrjátíu daga fangelsi fyrir að aka bifreið sviptur ökurétti.