Héraðsdómur Reykjaness
Dómur 28. september 2017.
Mál nr. S-265/2017:
Ákæruvaldið
(Halldór Rósmundur Guðjónsson saksóknarfulltrúi)
gegn
Jaroslaw Roczkowski
Mál
þetta, sem dómtekið var
14
. þessa mánaðar,
var
höfðað með
ákæru útgefinni af lögreglustjóranum á
Suðurnesjum
7
.
síðasta
mánaðar
á hendur Jaroslaw Roczkowski, kt. 000000-0000,
Eyjabakka
5
í
Reykjavík, „
fyrir umferðarlagabrot, með því að hafa, laugardaginn 10.
júní 2017, ekið bifreiðinni [...], sviptur ökurétti, með 138 km/klst, þar sem
“ og að hafa þannig brotið gegn 2. mgr. 37. gr., 1. mgr., sbr. 3. mgr. 45.
gr. og 1. mgr. 48. gr., sbr. 3. gr. laga nr. 24/2007, sbr. 1. mgr. 100. gr.
umferðarlaga nr. 50/1987
Í ákæru er þess krafist að ákærði
verði dæmdur til refsingar, til greiðslu alls sakarkostnaðar og til að sæta
sviptingu ökuréttar, samkvæmt 101. og 102. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, sbr.
25. og 26. gr. laga nr. 44/1993, sbr. 18. gr. laga nr. 66/2006.
Um málsatvik er skírskotað til
ákæru.
Ákærði hefur fyrir dómi skýlaust
játað að hafa framið þau brot sem honum eru gefin að sök og var því farið með
mál þetta samkvæmt 164. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008 og það tekið
til dóms án frekari sönnunarfærslu eftir að aðilum hafði verið gefinn kostur á
að tjá sig í stuttu máli um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.
Sannað er með skýlausri játningu
ákærða, sem er í samræmi við framlögð sakargögn, að hann hafi gerst sekur um
Lykilorð
Fangelsi. Hraðakstur. Játningarmál. Ökuréttarsvipting. Ökuréttur. Svipting ökuréttar. Umferðarlagabrot.
Útdráttur
Ákærði, sem skýlaust játaði sök, var dæmdur í tveggja mánaða fangelsi og sviptur ökurétti ævilangt, fyrir að aka bifreið of hratt, sviptur ökurétti og undir áhrifum ávana- og fíkniefna.
Mál þetta, sem dómtekið var 14. þessa mánaðar, var höfðað með ákæru útgefinni af lögreglustjóranum á Suðurnesjum 7. síðasta mánaðar á hendur Jaroslaw Roczkowski, kt. 000000-0000, Eyjabakka 5 í Reykjavík, „fyrir umferðarlagabrot, með því að hafa, laugardaginn 10. júní 2017, ekið bifreiðinni [...], sviptur ökurétti, með 138 km/klst, þar sem hámarkshraði var 90 km/klst og undir áhrifum áfengis (í blóði mældist vínandi 1,98 ‰) um Reykjanesbraut við Innri-Njarðvík“ og að hafa þannig brotið gegn 2. mgr. 37. gr., 1. mgr., sbr. 3. mgr. 45. gr. og 1. mgr. 48. gr., sbr. 3. gr. laga nr. 24/2007, sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987 Í ákæru er þess krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar, til greiðslu alls sakarkostnaðar og til að sæta sviptingu ökuréttar, samkvæmt 101. og 102. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, sbr. 25. og 26. gr. laga nr. 44/1993, sbr. 18. gr. laga nr. 66/2006. Um málsatvik er skírskotað til ákæru.
Ákærði hefur fyrir dómi skýlaust játað að hafa framið þau brot sem honum eru gefin að sök og var því farið með mál þetta samkvæmt 164. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008 og það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu eftir að aðilum hafði verið gefinn kostur á að tjá sig í stuttu máli um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.
Sannað er með skýlausri játningu ákærða, sem er í samræmi við framlögð sakargögn, að hann hafi gerst sekur um þá háttsemi sem saksókn á hendur honum tekur til samkvæmt framansögðu og er háttsemin réttilega heimfærð til refsiákvæða í ákæru. Ákærði hefur því unnið sér til refsingar.
Samkvæmt sakavottorði hefur ákærði þrívegis gerst brotlegur við refsilöggjöf. Með sátt hjá lögreglustjóra 11. febrúar 2009, samþykkti hann greiðslu sektar og tímabundna sviptingu ökuréttar, fyrir ölvunarakstur. Með annarri slíkri sátt 23. september 2011, samþykkti hann einnig greiðslu sektar og tímabundna sviptingu ökuréttar, fyrir sams konar brot. Þá var hann síðast með dómi 21. maí 2015 dæmdur í þrjátíu daga fangelsi og sviptur ökurétti ævilanga sviptingu ökuréttar, fyrir sams konar brot og hraðakstur.
Að þessum sakaferli virtum, sbr. 5. tl. 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, eftir 77. gr. þeirra laga og með hliðsjón af dóma framkvæmd, þykir refsing ákærða samkvæmt 1. mgr. 100. gr. laga nr. 50/1987, hæfi lega ákveðin fangelsi í tvo mánuði. Ekki eru efni til að skilorðsbinda þá refsingu.
Með vísan til 3. mgr. 101. gr. umferðarlaga, er ævilöng ökuréttarsvipting ákærða áréttuð.
Á grundvelli 1. mgr. 218. gr. laga nr. 88/2008, er ákærði dæmdur til að greiða sakarkostnað málsins, sem samkvæmt yfirliti um slíkan kostnað og með stoð í öðrum gögnum, nemur 36.620 krónum og er sá kostnaður kominn til vegna rannsóknar málsins. Hákon Þorsteinsson, aðstoðarmaður dómara, dæmir mál þetta.
D ó m s o r ð:
Ákærði, Jaroslaw Roczkowski, sæti fangelsi í tvo mánuði. Ákærði er sviptur ökurétti ævilangt. Ákærði greiði 36.620 krónur í sakarkostnað.
Hákon Þorsteinsson