Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

197 dómar fundust

Lykilorð: Hraðakstur

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 11. mars 2026

S-610/2026

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Eva Lind Ingadóttir saksóknarfulltrúi) gegn Janonis Jovydas
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot og gert að sæta fangelsi í 45 daga ásamt því að vera sviptur ökurétti ævilangt.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 11. febrúar 2026

S-4413/2025

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Böðvar Einarsson saksóknarfulltrúi) gegn Óskari Mána Atlasyni (Áslaug Lára Lárusdóttir lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var sakfelldur fyrir þjófnaðar, umferðar-, fíkniefnalaga-, og vopnalagabrot. Rauf ákærði skilorð og var honum dæmdur hegningarauki. Var honum gert að sæta fangelsi í 2 ár ásamt því að vera sviptur ökuréttindum ævilangt ásamt upptöku fíkniefna og vopna.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 28. janúar 2026

S-6674/2025

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Elín Hrafnsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Helga Val Mássyni
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot, hylmingu og fíkniefnilagabrot. Var honum gert að sæta fangelsi í 75 daga, skilorðsbundið til tveggja ára, upptöku fíkniefna og sviptingu ökuréttinda í 5 ár.

Héraðsdómur Norðurlands vestra birt 16. desember 2025

S-91/2025

Lögreglustjórinn á Norðurlandi vestra (Sigurður Hólmar Kristjánsson lögreglustjóri) gegn Gunnari Þór Óðinssyni (enginn)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var sakfelldur fyrir hraðakstur og akstur bifreiðar sviptur ökuréttindum.

Héraðsdómur Reykjaness birt 15. júlí 2025

S-656/2025

Héraðssaksóknari (Sigurður Ólafsson aðstoðarsaksóknari) gegn Hilmari Skúlasyni D Ó M U R Mál þetta, sem dómtekið var 26. júní 2025, höfðaði héraðssaksóknari með (Snorri Sturluson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Karlmaður sakfelldur fyrir brot gegn 4. mgr. 220. gr. almennra hegningarlaga, umferðarlögum og lögreglulögum með því að hafa í tvö skipti ekið ógætilega, undir áhrifum áfengis- og fíkniefna. Dæmd fangelsisrefsing og ökuréttindasvipting.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 5. mars 2025

S-722/2025

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kamilla Kjerúlf aðstoðarsaksóknari) gegn Damian Niedzwiedz
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur fyrir umferðar-, vopnalaga- og fíkniefnalagabrot. Dæmdur til greiðslu sektar og sviptur ökurétti tímabundið. Upptaka á fíkniefnum.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 18. nóvember 2024

S-6467/2024

Ákæruvaldið (Júlí Karlsson aðstoðarsaksóknari) gegn Marius Raducan (Karólína Finnbjörnsdóttir lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Endurtekinn þjófnaður og umferðarlagabrot.

Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 4. nóvember 2024

S-249/2023

Ákæruvaldið (Eyþór Þorbergsson aðstoðarsaksóknari) gegn Einari Þór Gunnarssyni (Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður) og Hólmfríði Lilju Gylfadóttur (Jón Stefán Hjaltalín Einarsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

E var sakfelldur fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás, umferðarlagabrot og fíkniefnalagabrot, auk nytjastuldar ökutækis og þjófnað í félagi við H. H var sakfelld fyrir tvær líkamsárásir, nytjastuld ökutækis, mörg þjófnaðarbrot og umferðarlagabrot, auk þess að hafa í félagi við E gerst sek um þjófnað og nytjastuld. E var dæmdur í fangelsi í 10 mánuði en H dæmd í fangelsi í 14 mánuði auk greiðslu miskabóta.

Landsréttur birt 31. október 2024

107/2024

Ákæruvaldið (Óli Ingi Ólason saksóknari) gegn X (Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson lögmaður) (Sigmundur Guðmundsson réttargæslumaður) (Sigmundur Guðmundsson lögmaður einkaréttarkröfuhafa)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

X var ákærður fyrir manndráp samkvæmt 211. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 með því að hafa svipt A lífi með því að stinga hann tvisvar sinnum í vinstri síðu, með þeim afleiðingum að hann hlaut bana af. X neitaði sök og bar fyrir sig að ósannað væri að hann hefði stungið A eða að minnsta kosti hefði hann ekki haft ásetning til þess að stinga hann. Hefði X stungið A hefði það þá gerst óvart í átökum þeirra um hnífinn. Þá bar X fyrir sig neyðarvörn, sbr. 12. og 13. gr. almennra hegningarlaga. Með dómi héraðsdóms var X sakfelldur samkvæmt ákæru og ekki fallist á að verk ákærða væri refsilaust með vísan til 1. og 2. mgr. 12. gr. almennra hegningarlaga. Með dómi héraðsdóms var X einnig sakfelldur fyrir umferðarlagabrot með því að hafa ekið bifreið sviptur ökurétti og yfir leyfðum hámarkshraða. Í dómi Landsréttar kom fram að ekki yrði annað ráðið en að A hefði átt upptökin að átökum hans og X. Yrði ekki önnur ályktun dregin en að um ofsafengna og lífshættulega árás hefði verið að ræða af hálfu A og hefði X því orðið fyrir ólögmætri árás sem honum hefði verið rétt að verjast eða afstýra, sbr. 1. mgr. 12. gr. almennra hegningarlaga. Að teknu tilliti til skýrslu D, sem framkvæmdi krufningu A, í héraði og annarra gagna málsins um stefnu og lögun stungusáranna, þótti á hinn bóginn hafið yfir skynsamlegan vafa að X hefði náð taki á hnífnum meðan á átökunum stóð og beint honum í síðu A í tvígang. Hefði hann með því beitt vörnum sem voru augsýnilega hættulegri en árásin og tjón það, sem af henni mátti vænta, gaf ástæðu til. Var því ekki fallist á að 1. mgr. 12. gr. almennra hegningarlaga gæti átt við um atvik málsins. Þrátt fyrir það var lagt til grundvallar að hin ólögmæta árás A hefði enn staðið yfir er hnífurinn stakkst tvívegis í síðu hans fyrir atbeina X. Þótt leggja yrði til grundvallar að X hefði gengið lengra í að verjast hinni ólögmætu árás en efni stóðu til taldi Landsréttur óhjákvæmilegt að líta til þess að X hefði verið að verjast óvæntri og lífshættulegri árás með eggvopni en A lagði ítrekað til X með hnífnum og náði að stinga X í tvígang, annars vegar í andlitið og hins vegar í lærið. Taldi Landsréttur uppfyllt skilyrði 2. mgr. 12. gr. almennra hegningarlaga þar sem miða yrði við að X hefði verið svo skelfdur eða forviða er hnífurinn stakkst í síðu A í tvígang að X hefði ekki getað fullkomlega gætt sín. Var X því sýknaður af ákæru um manndráp. Af þeim sökum var kröfum einkaréttarkröfuhafa vísað frá héraðsdómi. Þá var X einnig sýknaður af ákæru um umferðarlagabrot sem honum var gefið að sök þar sem ekki var talið fullyrt að mynd úr hraðamyndavél sýndi að um X væri að ræða auk þess sem framburður vitnis um að hann hefði fengið mynd senda af X undir stýri ætti ekki við um það atvik sem ákært var fyrir.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 23. október 2024

S-3439/2024

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kamilla Kjerúlf saksóknarfulltrúi) gegn Alf Clausen (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur fyrir umferðar- og lögreglulagabrot. Var honum gert að sæta fangelsi í 4 mánuði og áréttuð var ævilöng svipting ökuréttinda.

Landsréttur birt 14. júní 2024

497/2023

Ákæruvaldið (Marín Ólafsdóttir saksóknari) gegn Aroni Gunnarssyni (Guðmundur Njáll Guðmundsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

A var sakfelldur fyrir þrjú umferðarlagabrot með því að hafa á tilgreindu tímabili tvívegis ekið bifreið sviptur ökurétti og undir áhrifum áfengis, ásamt því að hafa í annað skiptið ekið yfir leyfðum hámarkshraða, og í eitt skipti ekið bifreið sviptur ökurétti. Við ákvörðun refsingar var litið til þess að A var sakfelldur fyrir að aka undir áfengisáhrifum í sjöunda skipti og í áttunda skipti fyrir akstur sviptur ökrétti. Var refsing A ákveðin fangelsi í átján mánuði og þá var A jafnframt sviptur ökurétti ævilangt.

Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 10. maí 2024

S-612/2023

Ákæruvaldið (Eyþór Þorbergsson aðstoðarsaksóknari) gegn Erni Leó Hlynssyni (Bjarni Hauksson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Talið var sannað með framlagningu matsgerðar og öðrum gögnum að ákærði hafi ekið bifreið sinni á að minnsta kosti 142 km/klst í aðdraganda umferðarslyss. Var því hafnað að sök væri fyrnd, en talið rétt að skilorðstími yrði styttri vegna dráttar á rannsókn málsins. Var ákærði dæmdur til 30 daga skilorðsbundinnar fangelsisvistar, auk þess sem hann var sviptur ökuréttindum.

Héraðsdómur Suðurlands birt 2. maí 2024

S-66/2024

Lögreglustjórinn á Suðurlandi (Rósamunda Jóna Baldursdóttir fulltrúi) gegn X (Húnbogi J. Andersen lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var fundinn sekur um manndráp af gáleysi sem og líkamsmeiðingar af gáleysi, en með ölvunar- og ofsaakstri varð hann valdur að dauða eins farþega bifreiðar sinnar og líkamstjóns annars farþega. Var ákærða gert að sæta fangelsi í níu mánuði, þar af sex skilorðsbundið til tveggja ára, auk greiðslu hluta sakarkostnaðar. Þá var ákærði sviptur ökurétti í tvö og hálft ár. Við ákvörðun refsingar var litið til skýlausrar játningar ákærða, hreins sakaferill hans og þess að hann sýndi mikla iðrun. Þá var ákærði dæmdur til að greiða foreldrum hins látna farþega miskabætur og útfarakostnað og hinum slasaða farþega miskabætur, auk málskostnaðar.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 18. apríl 2024

S-523/2024

Héraðssaksóknari (Dagmar Ösp Vésteinsdóttir settur saksóknari) gegn Shokri Keryo (Leó Daðason lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Skotárás. Ákærði sakfelldur fyrir hættubrot, eignaspjöll, umferðarlagabrot og brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni og dæmdur í fangelsi í 3 ár og 6 mánuði, sviptur ökurétti og dæmdur til greiðslu skaðabóta.

Héraðsdómur Reykjaness birt 28. febrúar 2024

S-2818/2023

Ákæruvaldið (Kamilla Kjerúlf saksóknarfulltrúi) gegn Sævari Tuan Anh Tómassyni (Snorri Sturluson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur fyrir brot gegn ákvæðum laga um ávana- og fíkniefna og umferðarlaga. Refsing ákveðin fangelsi í 60 daga, skilorðsbundin til tveggja ára. Ákærða gert að greiða sekt í ríkissjóð. Ökuréttarsvipting.Fallist að hluta til á upptökukröfur ákæruvalds.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 5. júlí 2023

S-3421/2023

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Árni Bergur Sigurðsson aðstoðarsaksóknari) gegn Stefáni Erni Oddssyni
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var sakfelldur fyrir umferðar og fíkniefnalagabrot. Þá var hann sakfelldur fyrir rangar sakargiftir fyrir að framvísa ökuskírteini í eigu annars manns. Ákærða var gert að sæta fangelsi í 6 mánuði og sviptur ökurétti í 5 ár.

Héraðsdómur Suðurlands birt 7. júní 2023

S-461/2022

Lögreglustjórinn á Suðurlandi (Ólafur Hallgrímsson fulltrúi) gegn Rafal Wiktor Zolich (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var fundinn sekur um hraðakstur og ítrekaðan akstur sviptur ökurétti og honum gert að sæta fangelsi í fimm mánuði jafnframt sekt. Ekki var fallist á þær varnir ákærða að hann gæti ekki komið sér undan ökuréttindasviptingu hér á landi með því að öðlast ökuréttindi erlendis.

Héraðsdómur Reykjaness birt 26. apríl 2023

S-587/2023

Ákæruvaldið (Kamilla Kjerúlf saksóknarfulltrúi) gegn Marcin Wasilewski
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærða var gert að greiða 310.000 króna sekt og sæta fangelsi í 6 mánuði vegna umferðarlagabrots. Þá var hann sviptur ökurétti ævilangt.

Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 30. janúar 2023

S-22/2022

Ákæruvaldið (Halldór Rósmundur Guðjónsson saksóknarfulltrúi) gegn Kolbeini Vopna Sigurðssyni (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi og til sviptingar ökuréttar fyrir brot gegn almennum hegningarlögum, umferðarlögum og lögreglulögum.

Landsréttur birt 9. desember 2022

737/2021

Ákæruvaldið (Óli Ingi Ólason saksóknari) gegn Sindra Frey Jenssyni (Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

S var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot með því að hafa í þrjú skipti ekið sviptur ökurétti, þar af tvívegis einnig undir áhrifum ávana- og fíkniefna og í annað skiptið að auki fyrir hraðakstur. Þá var S sakfelldur fyrir vopnalagabrot með því að hafa við afskipti lögreglu í eitt þessara skipta haft hníf í vörslum sínum. Við ákvörðun refsingar var litið til þess að í málinu væri S sakfelldur fyrir að hafa tvívegis ekið bifreið undir áhrifum ávana- og fíkniefna og þrívegis sviptur ökuréttindum. Í fyrra tilvikinu væri um fjórða brot að ræða en í því síðarnefnda þriðja brot. Samkvæmt dómvenju og með hliðsjón af 77. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 þótti refsing S fyrir brotin hæfilega ákveðin fangelsi í 150 daga en þau hraðaksturs- og vopnalagabrot sem S var einnig sakfelldur fyrir þóttu ekki gefa tilefni til frekari refsingar.

Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 23. nóvember 2022

S-167/2022

Ákæruvaldið (Eyþór Þorbergsson aðstoðarsaksóknari) gegn Sturlu Snæ Kjærnested (Snorri Sturluson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur fyrir að aka sviptur ökurétti og undir áhrifum ávana- og fíkniefna, vörslur fíkniefna og hraðakstur.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 12. október 2022

S-3540/2022

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Íris Þóra Júlíusdóttir saksóknarfulltrúi) gegn Þráni Þórgný Eðvaldssyni
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur fyrir umferðarlagabrot og dæmdur til greiðslu sektar og sviptur ökurétti tímabundið.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 4. maí 2022

S-1573/2022

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kristín Einarsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Guðmundi Helga Birgissyni
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur fyrir gripdeild og umferðarlagabrot.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 13. apríl 2022

S-424/2022

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Árni Bergur Sigurðsson aðstoðarsaksóknari) gegn Tomasz Matusiewicz (Ingi Freyr Ágústsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur fyrir ítrekuð brot gegn umferðarlögum. Rof á reynslulausn. Dæmdur til að sæta fangelsi í 3 ár. Ævilöng svipting ökuréttar áréttuð.

Landsréttur birt 8. apríl 2022

504/2021

Ákæruvaldið (Hrafnhildur M. Gunnarsdóttir saksóknari) gegn Þorvaldi Árna Þorvaldssyni (Kristján Stefánsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Þ var sakfelldur með dómi héraðsdóms 11. desember 2017 fyrir umferðarlagabrot með því að hafa annars vegar ekið bifreið sviptur ökurétti ævilangt og yfir löglegum hámarkshraða og hins vegar ekið bifreið sviptur ökurétti ævilangt og undir áhrifum áfengis. Með úrskurði Endurupptökunefndar 28. janúar 2019 var málið endurupptekið að beiðni Þ. Með hinum áfrýjaða dómi 15. júlí 2021 var Þ á ný sakfelldur fyrir framangreind umferðarlagabrot og staðfesti Landsréttur þá niðurstöðu. Við ákvörðun refsingar Þ var litið til sakaferils hans og tekið tillit til 1. mgr. 77. gr. almennra hegningarlaga, auk þess sem honum var gerður hegningarauki samkvæmt 78. gr. laganna. Var refsing Þ ákveðin fangelsi í tvo mánuði auk þess sem hann var sviptur ökurétti ævilangt frá 11. desember 2017. Með vísan til 6. mgr. 231. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála var ákveðið að sakarkostnaður í héraði vegna endurupptöku málsins yrði greiddur úr ríkissjóði en Þ var gert að greiða allan áfrýjunarkostnað málsins.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 30. mars 2022

S-604/2022

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Árni Bergur Sigurðsson aðstoðarsaksóknari) gegn Jóni Hilmari Ómarssyni
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur fyrir umferðar-, fíkniefna- og hegningarlagabrot.

Hleð fleiri dómum…