Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Norðurlands eystra

Mál nr. S-734/2025:

Ákæruvaldið

(Alla Rún Rúnarsdóttir saksóknarfulltrúi)

gegn

Sigurjóni Sigurðssyni

Akstur sviptur ökurétti. Akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Hraðakstur.

Ákærði sakfelldur fyrir akstur sviptur ökurétti, undir áhrifum ávana- og fíkniefni og hraðakstur.

Dómur

Mál þetta, sem var dómtekið í gær, var höfðað með ákæru lögreglustjórans á Norðurlandi eystra, dagsettri 22. desember 2025, á hendur Sigurjóni Sigurðssyni, kt. […], […], […], „I. fyrir umferðarlagabrot með því að hafa, föstudaginn 4. apríl 2025, ekið bifreiðinni […], sviptur ökurétti, og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (í blóðsýni mældist amfetamín 34 ng/ml og kókaín 41 ng/ml) suður Bugðusíðu, á Akureyri, en lögregla stöðvaði aksturinn og hafði afskipti af honum Barmahlíð.

Telst háttsemi þessi varða við 1., sbr. 2. mgr. 50. gr. og 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.

II.

fyrir umferðarlagabrot með því að hafa, laugardaginn 1. mars 2025, ekið bifreiðinni […], sviptur ökurétti, eftir Hörgárbraut til norðurs við Stórholt á Akureyri, með allt að 56 kílómetra hraða á klukkustund, að teknu tilliti til vikmarka, en þar er leyfilegur hámarkshraði 50 kílómetrar á klukkustund.

Telst háttsemi þessi varða við 1. mgr., sbr. 2. mgr. 37. gr. og 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar, til greiðslu alls sakarkostnaðar og til að sæta sviptingu ökuréttar skv. 99. gr. og 101. gr. laga nr. 77/2019.“

Ákærði sótti ekki þing, þrátt fyrir að hafa verið birt fyrirkall. Þar var þess getið að málið kynni að verða dæmt að honum fjarstöddum, sbr. 1. mgr. 155. gr. laga nr. 88/2008. Er því heimilt samkvæmt 1. mgr. 161. gr. sömu laga með áorðnum breytingum að leggja dóm á málið að ákærða fjarverandi, enda varðar brot ekki þyngri viðurlögum en þar er áskilið í a-lið og framlögð gögn verða talin nægjanleg til sakfellingar. Verður ákærði sakfelldur fyrir þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákæru og þar er rétt heimfærð til refsiákvæða.

Þann 29. október 2024 gekkst ákærði undir lögreglustjórasekt fyrir að aka undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Ákærða var gert að greiða 200.000 krónur í sekt og hann sviptur ökurétti í 18 mánuði. Þann 30. júní 2025 hlaut ákærði dóm fyrir vörslur fíkniefna og fyrir að aka undir áhrifum ávana- og fíkniefna og lyfja. Var það hegningarauki og refsing ákveðin 1.200.000 króna sekt og svipting ökuréttar í 2 ár og 3 mánuði frá 29. apríl 2026.

Brot þau sem ákærði hefur nú verið sakfelldur fyrir voru framin fyrir uppkvaðningu dóms þessa. Verður honum því ákveðinn hegningarauki er samsvari þeirri þyngingu refsingarinnar sem kynni að hafa orðið ef dæmt hefði verið um öll brotin í fyrra málinu, sbr. 78. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Ákærði er nú sakfelldur fyrir að aka undir áhrifum ávana- og fíkniefna og hefur hann ítrekað brot sitt. Þá er hann jafnframt sakfelldur fyrir hraðakstur og akstur sviptur ökurétti í tvígang. Refsing hans er ákveðin 550.000 króna sekt til ríkissjóðs. Skal 30 daga fangelsi koma í stað sektarinnar verði hún eigi greidd innan fjögurra vikna frá birtingu dóms að telja.

Með vísan til 99. gr. og 101. gr. umferðarlaga nr. 77/2019 ber að svipta ákærða ökurétti í 18 mánuði frá 29. júlí 2028 að telja.

Að kröfu ákæruvalds og með vísan til dómsniðurstöðu verður ákærði dæmdur til greiðslu sakarkostnaðar, 204.044 krónur.

Berglind Harðardóttir aðstoðarmaður dómara kveður upp dóminn.

Dómsorð:

Ákærði, Sigurjón Sigurðsson, greiði 550.000 krónur í sekt til ríkissjóðs innan fjögurra vikna frá birtingu dóms þessa en sæti ella fangelsi í 30 daga.

Ákærði er sviptur ökurétti í 18 mánuði frá 29. júlí 2028 að telja.

Ákærði greiði 204.044 krónur í sakarkostnað.

Heimildaskrá

Lagaskrá

Lög nr. 19/1940 Almenn hegningarlög 78. gr.
Lög nr. 88/2008 Lög um meðferð sakamála 1. mgr. 155. gr.1. mgr. 161. gr.
Lög nr. 77/2019 Umferðarlög 2. mgr. 37. gr.2. mgr. 50. gr.1. mgr. 58. gr.1. mgr. 95. gr.99. gr.101. gr.