Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

46 dómar fundust

Lykilorð: Hættubrot

Héraðsdómur Reykjaness birt 12. desember 2025

S-2906/2025

Ákæruvaldið (Sonja Símonardóttir saksóknarfulltrúi) gegn Bjarka Fjeldsted (Súsanna Björg Fróðadóttir lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Karlmaður var sakfelldur fyrir stórháskalegan akstur bifreiðar í byrjun janúar 2024 og hann dæmdur í fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi, jafnframt því sem hann var dæmdur til greiðslu 540.000 króna sektar og sviptur ökurétti í fjögur ár.

Landsréttur birt 26. júní 2025

637/2024

Ákæruvaldið (Anna Barbara Andradóttir saksóknari) gegn Ásgeiri Þór Önnusyni (Ómar Örn Bjarnþórsson lögmaður), Breka Þór Frímannssyni (Þorgils Þorgilsson) og Hilmi Gauta Bjarnasyni (Arnar Kormákur Friðriksson lögmaður) (Hilmar Garðars Þorsteinsson réttargæslumaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Á, B og H voru ákærðir í tengslum við skotárás á heimili brotaþolanna C, A og B þar sem þeir voru staddir ásamt brotaþolanum D. Á var gefin að sök tilraun til manndráps, húsbrot, hættubrot og vopnalagabrot með því að hafa umrætt sinn ásamt B, ruðst grímuklæddur og í heimildarleysi inn á heimilið, þar sem fjórir brotaþolar voru staddir og skotið án viðvörunar samtals sex skotum úr skammbyssu í átt að D og C. B var gefin að sök hlutdeild í brotum Á með því að hafa liðsinnt honum við undirbúning og framkvæmd brotsins með nánar tilgreindum hætti. Ákærða H var gefin að sök hlutdeild í broti Á með því að hafa ekið Á og B umrætt sinn gegn greiðslu. Í dómi Landsréttar kom meðal annars fram að fallist væri á með héraðsdómi að það hefði verið hending ein að skotin lentu ekki í C og D, sem þá voru inni í barnaherbergi, og einnig að Á hafi hlotið að vera ljóst að það sé lífshættulegt að skjóta sex skotum úr skammbyssu í átt að fólki af stuttu færi, án neinnar vissu um hvar skotin lendi, og því hafi Á hlotið að gera sér grein fyrir því að bani gæti hlotist af háttsemi hans. Staðfest var niðurstaða héraðsdóms um sakfellingu Á fyrir tilraun til manndráps gagnvart brotaþolunum D og C og hættubrot gagnvart brotaþolunum A og B sem og vopnalagabrot. Var refsing hans ákveðin fangelsi í sex ár. Þá var staðfest niðurstaða héraðsdóms um að ekki yrði fullyrt að ásetningur B og H hefði staðið til að bana brotaþolunum D og C og yrðu þeir því ekki sakfelldir fyrir hlutdeild í tilraun til manndráps. Þeir voru aftur á móti sakfelldir fyrir hlutdeild í hættubroti Á og B jafnframt sakfelldir fyrir hlutdeild í vopnalagabroti Á. Niðurstaða héraðsdóms um refsingu B og H var staðfest og B gert að sæta fangelsi í 30 mánuði og H gert að sæta skilorðsbundnu fangelsi í eitt ár. Þeim ákæruliðum er vörðuðu húsbrot var vísað frá héraðsdómi. Staðfest voru ákvæði héraðsdóms um upptöku á skammbyssu. Loks var Á og B gert að greiða brotaþolum miskabætur.

Héraðsdómur Reykjaness birt 20. febrúar 2025

S-1683/2024

Ákæruvaldið (Sigurður Ólafsson aðstoðarsaksóknari) gegn Aroni Bjarma Gerðarsyni (Gunnar Gíslason lögmaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Maður sakfelldur fyrir brot gegn 217. gr. og 4. mgr. 220. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 með því að hafa ekið bifreið sinni aftan á bifreið brotaþola með þeim afleiðingum að brotaþoli slasaðist og lífi og heilsu hans og farþega í bifreið brotaþola var stofan í augljósan háska.Refsing ákveðin fangelsi í 45 daga en fullnustu hennar frestað skilorðsbundið í tvö ár.Ákærða gert að greiða brotaþola miskabætur og allan sakarkostnað máls.

Landsréttur birt 6. febrúar 2025

462/2024

Ákæruvaldið (Einar Tryggvason saksóknari) gegn Shokri Keryo (Leó Daðason lögmaður) (Kristján Gunnar Valdimarsson réttargæslumaður) (Erlendur Þór Gunnarsson réttargæslumaður) (Guðmundur Njáll Guðmundsson réttargæslumaður) (Guðmundur Ágústsson lögmaður einkaréttarkröfuhafa)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

S var sakfelldur fyrir tilraun til manndráps með því að hafa skotið fjórum skotum í átt að A,B,C og D, úr bifreið sem hann sat í. Í hinum áfrýjaða dómi var S sýknaður af tilraun til manndráps en sakfelldur fyrir hættubrot, sbr. 4. mgr. 220. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Í dómi Landsréttar var talið sannað að S hefði verið sá sem skaut úr skotvopninu. Vísað var til þess að mikið magn púðurleifa greindust á fatnaði S og hönskum sem haldlagðir voru við rannsóknina en í stroffi þeirra greindust lífsýni úr ákærða. Lítið eða ekkert af púðurleifum greindust á fatnaði annarra sem voru í bifreiðinni með S. Skýringar S á því hvers vegna púðurleifar greindust á fatnaði hans voru misvísandi og taldar ótrúverðugar. Að mati Landsréttar þótti hending ein hafa ráðið því að ekki hlaust mannsbani af verknaði S en gögn málsins sýndu að S beindi öflugu skotvopni að brotaþolum og hleypti af í fjórgang með þeim afleiðingum að einn þeirra særðist. Talið var að S hefði hlotið að vera ljóst að þegar hann lét skotin ríða af að þau gætu leitt til banvænna áverka. Þrátt fyrir þetta lét S sér í léttu rúmi liggja hverjar afleiðingarnar yrðu og því ljóst að það hefði ekki aftrað honum að skjóta þótt honum hefði verið ljóst að líftjón hlytist af verknaðinum. Var brot hans því talið varða við 211. gr., sbr. 20. gr. almennra hegningarlaga og refsing hans ákveðin fangelsi í sjö ár. Við ákvörðun refsingar S var litið til 1., 2., 3., 6., og 7. tl. 1. mgr. 70. gr. og 4. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga. Loks var ökuréttarsvipting S staðfest og S gert að greiða B, C, D, E og F skaðabætur.

Landsréttur birt 21. nóvember 2024

38/2024

Ákæruvaldið (Jón H. B. Snorrason saksóknari) gegn Höskuldi Pétri Jónssyni (Guðmundur Njáll Guðmundsson lögmaður) (Þórður Bogason lögmaður einkaréttarkröfuhafa)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

H var ákærður fyrir hættubrot og umferðarlagabrot með því að hafa ekið bifreið sinni án gildra ökuréttinda og á vítaverðan og ógnandi hátt að bifreið sem A og B voru í, veitt þeim eftirför og gert tilraun til að þvinga þau út af veginum og að hafa með þeirri háttsemi stofnað lífi og heilsu A og B í augljósan háska á ófyrirleitinn hátt. Þá var H ákærður fyrir brot gegn lögreglulögum og vopnalagabrot. Með hinum áfrýjaða dómi var H sakfelldur samkvæmt öllum liðum ákærunnar. Að virtum gögnum málsins, framburði A og B fyrir héraðsdómi og eindreginni neitun H, var ekki talið sannað að H hefði gerst sekur um hættubrot og var hann sýknaður af því broti. Með vísan til forsendna hins áfrýjaða dóms var niðurstaða hans um sakfellingu ákærða vegna brota gegn umferðarlögum, lögreglulögum og vopnalögum á hinn bóginn staðfest. Var refsing H ákveðin 100.000 króna sekt.

Landsréttur birt 10. október 2024

130/2024

Ákæruvaldið (Guðrún Sveinsdóttir saksóknari) gegn X (Guðbjarni Eggertsson lögmaður) (Helga Vala Helgadóttir Bachmann réttargæslumaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

X var ákærður fyrir stórfellt brot í nánu sambandi, nauðgun og hættubrot með því að hafa endurtekið og á alvarlegan hátt ógnað heilsu og velferð þáverandi sambýliskonu sinnar, í sex nánar tilgreind skipti. Í dómi héraðsdóms sem staðfestur var í Landsrétti með vísan til forsendna var X sýknaður af hluta sakargifta en sakfelldur að hluta og sú háttsemi heimfærð til 1. mgr. 218. gr. b almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og 4. mgr. 220. gr. sömu laga. Þá var X sakfelldur fyrir eignaspjöll með því að hafa skemmt hluti í eigu sambýliskonunnar þáverandi. Við ákvörðun refsingar var litið til 1., 3. og 6. töluliðar 1. mgr. 70. gr., 60. gr. og 78. gr. almennra hegningarlaga. Með vísan til 77. gr. laganna var refsing X ákveðin fangelsi í tíu mánuði en fullnustu sjö mánaða frestað skilorðsbundið í tvö ár, vegna dráttar sem orðið hafði á rekstri málsins.

Héraðsdómur Reykjaness birt 12. júlí 2024

S-1660/2024

Málið nr. S-1660/2024 Ákæruvaldið (Karl Ingi Vilbergsson saksóknari) gegn Eduard Dektyarev (Ragnar Þórður Jónasson lögmaður) og Alexander Vasilyev (Halldóra Aðalsteinsdóttir lögmaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Skipstjóri og 2. stýrimaður á flutningaskipi voru sakfelldir fyrir að stofna lífi skipstjóra strandveiðibáts í hættu og láta fyrir farast að koma honum til hjálpar í kjölfar áreksturs milli skipanna úti fyrir Garðskaga aðfaranótt 16. maí 2024. Skipstjórinn var jafnframt sakfelldur fyrir að vera undir áhrifum áfengis og ávana- og fíkniefna er árekstur varð. Ákærðu játuðu greiðlega sök og var m.a. litið til þess þegar þeim var gerð refsing. Hlaut skipstjórinn 12 mánaða skilorðsbundinn fangelsisdóm og stýrimaðurinn 8 mánaða skilorðsbundinn dóm. Jafnframt var skipstjórinn sviptur skipstjórnarréttindum og rétti til að gegna stýrimannsstöðu í 3 mánuði.

Héraðsdómur Reykjaness birt 27. júní 2024

S-798/2024

Ákæruvaldið (Sigurður Ólafsson aðstoðarsaksóknari) gegn Ásgeiri Þór Önnusyni (Ómar Örn Bjarnþórsson lögmaður), Breka Þór Frímannssyni, (Þorgils Þorgilsson lögmaður) og Hilmi Gauta Bjarnasyni (Arnar Kormákur Friðriksson lögmaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Einn ákærða sakfelldur fyrir tilraun til manndráps, hættubrot, húsbrot og vopnalagabrot. Annar dæmdur fyrir hlutdeild í hættubroti, húsbroti og vopnalagabroti hans. Þriðji dæmdur fyrir hlutdeild í hættubroti og húsbroti.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 18. apríl 2024

S-523/2024

Héraðssaksóknari (Dagmar Ösp Vésteinsdóttir settur saksóknari) gegn Shokri Keryo (Leó Daðason lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Skotárás. Ákærði sakfelldur fyrir hættubrot, eignaspjöll, umferðarlagabrot og brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni og dæmdur í fangelsi í 3 ár og 6 mánuði, sviptur ökurétti og dæmdur til greiðslu skaðabóta.

Héraðsdómur Reykjaness birt 15. apríl 2024

S-1996/2023

Ákæruvaldið (Matthea Oddsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Jóhanni Jónasi Ingólfssyni (Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður)
Lykilorð: Hættubrot. Játningarmál.
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Ákærði sakfelldur fyrir hættubrot og brot gegn lögum um brunavarnir og dæmdur í fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi. Játningarmál

Héraðsdómur Suðurlands birt 20. nóvember 2023

S-17/2023

Héraðssaksóknari (Arnfríður Gígja Arngrímsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Bergi Jónssyni (Þórdís Ólöf Viðarsdóttir lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var fundinn sekur um umferðar- og hegningarlagabrot með því að hafa ekið undir áhrifum áfengis og á ófyrirleitinn hátt stofnað lífi og heilsu brotaþola í augljósa hættu, með því að aka bifreið sinni vísvitandi aftan á bifreið þeirra. Var ákærða gert að sæta fangelsi í 90 daga, en fullnustu refsingarinnar var frestað skilorðsbundið. Var ákærða jafnframt gerð sekt og hann sviptur ökurétti. Þá var ákærði dæmdur til að greiðslu miskabóta.

Héraðsdómur Reykjaness birt 3. nóvember 2023

S-1864/2023

Málið nr. S-1864/2023 Ákæruvaldið (Karl Ingi Vilbergsson saksóknari) gegn X (Þorgils Þorgilsson lögmaður), Y (Áslaug Lára Lárusdóttir lögmaður), Z (Reynir Þór Garðarsson lögmaður) og og Þ (Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson lögmaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Þrír karlmenn á táningsaldri, X, Y og Z, voru sakfelldir fyrir að hafa ráðist í félagi með ofbeldi á A á bílasvæðinu við Fjarðarkaup í Hafnarfirði að kvöldi 20. apríl sl. X gekk harðast fram og stakk A að auki sex sinnum með hnífi í líkama þannig að bani hlaust af. Var X sakelldur fyrir manndráp samkvæmt 211. gr. almennra hegningarlaga og dæmdur í 10 ára fangelsi. Ósannað var að ásetningur Y og Z hafi staðið til þess að A hlyti bana af atlögu þremenninganna. Voru þeir sakfelldir fyrir meiri háttar líkamsárás sem leiddi til dauða samkvæmt 2. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga og dæmdir í tveggja ára fangelsi. Fjórði táningurinn, Z, var sakfelld fyrir brot gegn 1. mgr. 221. gr. almennra hegningarlaga, með því að hafa ekki komið A til bjargar í lífsháska og hlaut hún 12 mánaða fangelsi, skilorðsbundið fimm ár. Ákærði X var einnig dæmdur til að greiða ættingjum A skaða- og miskabætur.

Landsréttur birt 16. desember 2022

345/2022

Ákæruvaldið (Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari) gegn Árnmari Jóhannesi Guðmundssyni (Þórður Már Jónsson lögmaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Á var ákærður fyrir brot í nánu sambandi og vopnalagabrot með því að hafa, undir áhrifum áfengis, hótað þáverandi sambýliskonu sinni, B, á heimili þeirra, með því að beina að henni skammbyssu. Þá var Á ákærður fyrir tilraun til manndráps, húsbrot, eignaspjöll og vopnalagabrot með því að hafa ruðst í heimildarleysi inn í íbúðarhús, undir áhrifum áfengis og vopnaður hlöðnum skotvopnum með þeim ásetningi að bana húsráðanda. Einnig var Á ákærður fyrir hótun, brot gegn vopnalögum og barnaverndarlögum, með því að hafa, undir áhrifum áfengis, hótað D og E, í verki með því að beina hlaðinni haglabyssu að þeim. Jafnframt var hann ákærður fyrir tilraun til manndráps, brot gegn valdstjórninni, eignaspjöll, hættubrot og vopnalagabrot, með því að hafa skotið þremur skotum úr haglabyssu að tilgreindum lögreglumönnum. Loks var Á ákærður fyrir brot gegn valdstjórninni og vopnalögum með því að hafa, undir áhrifum áfengis, gengið út úr húsinu og að lögreglubifreið og ógnað lögreglumanni í verki með því að beina að honum hlaðinni haglabyssu. Með dómi Landsréttar var staðfest niðurstaða hins áfrýjaða dóms um sakfellingu ákærða fyrir þá háttsemi sem honum var gefin að sök í ákæru, sem og um ákvörðun refsingar.

Landsréttur birt 9. desember 2022

129/2022

Ákæruvaldið (Hulda María Stefánsdóttir saksóknari) gegn Gesti Hjaltasyni (Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson lögmaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

G var sakfelldur fyrir brot gegn 219. gr. og 4. mgr. 220. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 auk umferðarlagabrots, með því að hafa ekið bifreið án nægilegrar aðgæslu og langt yfir leyfilegum ökuhraða, norður Glerárgötu á Akureyri, þar sem hann missti stjórn á bifreiðinni, ók upp á umferðareyju og aftur út á götuna í veg fyrir aðra bifreið, sem ekið var í sömu átt, og á gangandi vegfaranda, hjólreiðamann og hund, með nánar tilgreindum afleiðingum. Þótti G hafa með háttsemi sinni stofnað í augljósan háska lífi og heilsu nánar tilgreindra einstaklinga. G var aftur á móti sýknaður af ákæru um brot gegn 1. mgr. 168. gr. almennra hegningarlaga þar sem því þótti ekki verða slegið föstu að G hefði með akstrinum stofnað óákveðnum hagsmunum ótiltekins fjölda vegfarenda í augljósa hættu svo að talið yrði að almannahætta hefði stafað af. Var refsing G ákveðin fangelsi í fjóra mánuði en fullnustu hennar var frestað skilorðsbundið í tvö ár. Þá var G sviptur ökurétti í sex mánuði.

Landsréttur birt 25. nóvember 2022

164/2022

Ákæruvaldið (Einar Tryggvason saksóknari) gegn Dumitru Calin (Unnsteinn Örn Elvarsson lögmaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

D var sakfelldur í héraði fyrir þjófnað og fjársvik auk umferðarlagabrota. Hann var jafnframt sakfelldur fyrir manndráp af gáleysi með því að hafa ekið bifreið með 15 til 20 kílómetra hraða á klukkustund sem leið lá út af bifreiðaplani þrátt fyrir að A héldi báðum höndum um hliðarrúðu ökumanns og hann dróst þannig eða hljóp með bifreiðinni uns hann féll í jörðina og í kjölfarið fór D af vettvangi án þess að huga að A. D var aftur á móti sýknaður af hættubroti, sbr. 1. mgr. 220. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 þar sem 215. gr. sömu laga var talin tæma sök gagnvart því ákvæði eins og atvikum máls væri háttað. Fyrir Landsrétti krafðist ákæruvaldið endurskoðunar á þeirri niðurstöðu en D krafðist sýknu af ákærunni þar sem háttsemin hefði verið refsilaus þar sem skilyrði 1. mgr. 12. gr. almennra hegningarlaga um neyðarvörn væru uppfyllt. Féllst Landsréttur ekki á að gálausu viðbrögð D hefðu getað helgast af neyðarvörn. Varð því slegið föstu að með hinni gálausu háttsemi sem leiddi til andláts A hefði D brotið gegn 215. gr. almennra hegningarlaga. Leysti það D ekki undan refsiábyrgð samkvæmt ákvæðinu að A hefði jafnframt sýnt af sér gáleysi. Kom þá til skoðunar hvort D hefði í kjölfar gáleysisbrotsins gerst sekur um brot gegn 1. mgr. 220. gr. almennra hegningarlaga. Landsréttur vísaði til þess að ástand A hefði verið mjög alvarlegt strax eftir að hann féll af bifreið D og í jörðina. Með því að yfirgefa A eftir fallið án þess að kanna ástand hans og eftir atvikum kalla eftir aðstoð hefði D sýnt af sér algert skeytingarleysi um ástand hans. Þegar allt þetta væri virt þótti ákæruvaldinu hafa tekist að sanna svo ekki yrði vefengt með skynsamlegum rökum að D hefði í kjölfar þess að A féll í jörðina ekið af vettvangi án þess að huga að honum og þannig yfirgefið mann án bjargar sem hann átti að sjá um. Með háttsemi sinni taldist D því hafa brotið gegn 1. mgr. 220. gr. almennra hegningarlaga. D var því með dómi Landsréttar jafnframt sakfelldur fyrir brot gegn 1. mgr. 220. gr. almennra hegningarlaga. Að því gættu en að öðru leyti með vísan til forsendna hins áfrýjaða dóms var refsing D ákveðin fangelsi í tvö ár. Þá var D sviptur ökurétti og gert að greiða foreldrum A miskabætur.

Héraðsdómur Reykjaness birt 8. nóvember 2022

S-1470/2022

Héraðssaksóknari (Halldór Rósmundur Guðjónsson saksóknarfulltrúi) gegn Bjartmari Þorsteinssyni (Halldóra Aðalsteinsdóttir lögmaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Ákærði sakfelldur fyrir hegningar-, umferðar- og lögreglulagabrot vegna ofsaaksturs. Ákærða gert að sæta fangelsi í fjóra mánuði. Skilorð. Svipting ökuréttinda.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 30. júní 2022

S-6022/2021

Ákæruvaldið (Lína Ágústsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Björgvin Sigmari M. Ómarssyni (Jónas Örn Jónasson lögmaður)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Sakfellt fyrir ofbeldi í nánu sambandi, tilraun til sérstaklega hættulegrar líkamsárásar, tilraun til hylmingar, fíkniefnabrot, þjófnað, húsbrot, eignaspjöll, nytjastuld, brot gegn lögreglulögum, brot gegn sóttvarnarlögum o.fl. Sýknað af hluta af ákæru eða háttsemi felld undir vægari refsiákvæði eða tilraun. Refsing var ákveðin 18 mánaða fangelsi og var um að ræða hegningarauka við eldri dóm.

Landsréttur birt 8. apríl 2022

288/2021

Ákæruvaldið (Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari) gegn Erni Steinari Arnarsyni (Þormóður Skorri Steingrímsson lögmaður) (Guðmundur Sæmundsson lögmaður einkaréttarkröfuhafa)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Ö var sakfelldur fyrir líkamsárás, sbr. 1. mgr. 217. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, og hættubrot, sbr. 4. mgr. 220. gr. sömu laga, með því að hafa veist að A þar sem hann sat í bifreið sinni, slegið hann tvisvar sinnum í andlitið, tekið hann kverkataki og fyrir að hafa stuttu síðar, eftir að A hafði tekið sér stöðu framan við bifreið Ö, ekið bifreiðinni greitt að honum með þeim afleiðingum að hann féll í götuna. Með akstrinum hefði Ö stofnað lífi og heilsu A á ófyrirleitinn hátt í augljósan háska og hefði A jafnframt hlotið nánar tilgreinda áverka. Við ákvörðun refsingar var til þess vísað að Ö hefði ekki áður gerst brotlegur við refsilög auk þess sem tafir hefðu orðið á meðferð málsins. Refsing Ö var ákveðin fangelsi í þrjá mánuði en fullnustu refsingarinnar frestað skilorðsbundið í tvö ár. Þá var Ö gert að greiða A miskabætur.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 13. desember 2021

S-2781/2021

Ákæruvaldið (Sigurður Ólafsson aðstoðarsaksóknari) gegn X (Davor Purusic lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Sakfellt fyrir almannahættubrot, hættubrot og umferðarlagabrot o.fl. í tengslum við ofsaakstur í umferðinni.

Landsréttur birt 17. september 2021

730/2020

Ákæruvaldið (Jón H. B. Snorrason saksóknari) gegn Sigríði Guðnadóttur (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

S var sakfelld fyrir fjögur þjófnaðarbrot og eina tilraun til þjófnaðar, nytjastuld í fjórum tilvikum, hylmingu og fjársvik í tvígang, skjalabrot, húsbrot, tollalagabrot, tvö brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni og umferðarlagabrot með því að hafa alls 18 sinnum ekið bifreið undir áhrifum ávana- og fíkniefna, þar af 11 sinnum að auki undir áhrifum slævandi lyfja. Auk þess var hún sakfelld fyrir önnur umferðarlagabrot og brot gegn 1. mgr. 168. gr. og 4. mgr. 220. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 en með þeirri háttsemi raskaði hún umferðaröryggi á alfaraleið og stofnaði lífi og heilsu fólks í hættu á ófyrirleitinn hátt. Með hliðsjón af framansögðu og þrátt fyrir að S hafi játað brot sín skýlaust og ekki áður sætt refsingu þóttu ekki vera efni til að skilorðsbinda refsingu hennar að hluta eða í heild. Var S gert að sæta fangelsi í átta mánuði.

Héraðsdómur Reykjaness birt 30. apríl 2021

S-3201/2020

Ákæruvaldið (Dagmar Ösp Vésteinsdóttir settur saksóknari) gegn X og Y (Unnsteinn Örn Elvarsson réttargæslumaður) (Bjarni Hauksson réttargæslumaður) (Inga Lillý Brynjólfsdóttir réttargæslumaður brotaþola)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Ákærði X var sýknaður af líkamsárás samkvæmt 2. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga á grundvelli neyðarvarnarsjónarmiða 1. mgr. 12. gr. laganna þótt í ljós væri leitt að hann hefði valdið brotaþola stórfelldu líkamstjóni. Þá voru X og meðákærði Y sýknaðir af því að hafa ekki komið brotaþola til bjargar eftir að hann hlaut lífshættulegan áverka og lá bjargarlaus á gólfi iðnaðarhúsnæðis.

Landsréttur birt 30. apríl 2021

547/2019

Ákæruvaldið (Marín Ólafsdóttir saksóknari) gegn X (Árni Helgason lögmaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

X var sakfelldur fyrir brot gegn 1. mgr. 218. gr. b og 4. mgr. 220. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og 98. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002 með því að hafa haldið tæplega fjögurra ára syni sínum yfir svalahandriði íbúðar og út fyrir handriðið, sveiflað honum og hótað að sleppa drengnum. X var einnig sakfelldur fyrir brot gegn 1. mgr. 106. gr. almennra hegningarlaga með því að hafa stangað lögreglumann við skyldustörf í búkinn svo að hann hlaut áverka af. Með vísan til 16. gr. sömu laga krafðist X þess að honum yrði ekki gerð refsing. Í dómi Landsréttar kom fram að við mat á því hvort refsing gæti borið árangur skipti geðheilsa X við dómsuppkvaðningu mestu. X væri sjálfbjarga þrátt fyrir örorku og tæki þátt í uppeldi sonar síns. Auk þess skorti fyrirliggjandi geðheilbrigðisrannsókn rökstuðning um hvers vegna refsing X gæti ekki borið árangur. Var 16. gr. almennra hegningarlaga því ekki talin standa gegn því að ákærða yrði refsað. Þá kom fram að með hliðsjón af alvarleika brotanna sem X var sakfelldur fyrir væri ekki unnt að fresta ákvörðun refsingar hans skilorðsbundið þótt verulegar og óréttlætanlegar tafir hefðu orðið á meðferð málsins sem honum yrði á engan hátt kennt um. Var X gert að sæta fangelsi í fjóra mánuði skilorðsbundið til eins árs.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 12. apríl 2021

S-5314/2020

Ákæruvaldið (Matthea Oddsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Ingvari Árna Ingvarssyni (Auður Björg Jónsdóttir lögmaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Sakfellt fyrir hættu- og vopnalagabrot, auk fíkniefnalagabrots o.fl.

Landsréttur birt 23. október 2020

635/2019

Ákæruvaldið (Hrafnhildur M. Gunnarsdóttir saksóknari) gegn Hafsteini Oddssyni (Lúðvík Bergvinsson lögmaður) (Þórdís Bjarnadóttir réttargæslumaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

H var sakfelldur fyrir stórfellda líkamsárás með því að hafa veist að A með ítrekuðum höggum og spörkum í andlit og búk, klætt hana úr öllum fötunum og því næst yfirgefið hana þar sem hún lá nakin, mikið slösuð og án bjargar í götunni. Voru brotin talin varða við 209. gr., 217. gr., 2. mgr. 218. gr. og 1. mgr. 220. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Refsing hans var ákveðin með hliðsjón af 60. og 78. gr. almennra hegningarlaga auk þess sem litið var til 1., 2., 3. og 6. töluliðar 1. mgr. 70. gr. laganna. Var refsing hans ákveðin fangelsi í fjögur ár auk þess sem honum var gert að greiða A 2.000.000 króna í miskabætur.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 18. júní 2020

S-3627/2020

Héraðssaksóknari (Þorbjörg Sveinsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Emil Frey Júlíussyni (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Ákærði sakfelldur m.a. fyrir brot gegn almennum hegningarlögum og dæmdur í tveggja ára fangelsi auk þess sem ævilöng ökuréttarsvipting hans var áréttur og honum gert að sæta upptöku á fíkniefnum og vopnum.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 11. júní 2020

S-3034/2020

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Dagmar Ösp Vésteinsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Hlyni Geir Sigurðarsyni (Áslaug Lára Lárusdóttir lögmaður)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Ákærði sakfelldur fyrir ýmis brot m.a. auðgunarbrot, fíkniefnalagabrot, umferðarlagabrot, brot gegn valdstjórninni, brennu og hættubrot. Ákærði játaði brot sín skýlaust og var með hliðsjón af alvarleika brota og sakarferli dæmdur í fangelsi í þrjú ár.

Héraðsdómur Reykjaness birt 24. mars 2020

S-408/2018

Héraðssaksóknari (Margrét Unnur Rögnvaldsdóttir saksóknari) gegn Andrzej Pawel Lukasiewicz (Einar Oddur Sigurðsson lögmaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Ákærði sakfelldur fyrir brot gegn almennum hegningarlögum og umferðarlögum. Refsing ákærða ákveðin fangelsi í fimm mánuði en fullnustu þriggja mánaða af refsingunni frestað skilorðsbundið í tvö ár. Þá var ákærði dæmdur til að greiða brotaþola miskabætur.

Landsréttur birt 5. apríl 2019

230/2018

Ákæruvaldið (Óli Ingi Ólason saksóknari) gegn Magnúsi Ólafi Garðarssyni (Haukur Örn Birgisson lögmaður) (Helgi Birgisson réttargæslumaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

M var sakfelldur fyrir brot gegn umferðarlögum nr. 50/1987 með því að hafa tiltekinn dag ekið bifreið sinni austur Reykjanesbraut yfir leyfðum hámarkshraða. Þá var hann sakfelldur fyrir brot gegn 1. mgr. 168. gr., 219. gr. og 4. mgr. 220. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og tilteknum ákvæðum umferðarlaga með því að hafa ekið sömu bifreið of hratt í myrkri, við erfið veður- og akstursskilyrði, langt yfir leyfilegum hámarkshraða vestur Reykjanesbraut, og tekið fram úr bifreiðum án þess að sinna aðgæsluskyldu við framúrakstur, með þeim afleiðingum að hann ók bifreið sinni aftan á aðra bifreið. Hafnaði síðarnefnda bifreiðin utan vegar og varð fyrir skemmdum auk þess sem ökumaður hennar, A, varð fyrir líkamstjóni. Í dómi Landsréttar kom fram hvað varðaði síðara brot M að þegar sönnunargögn málsins og framburður vitna væru virt heildstætt og í ljósi þess að M hefði viðurkennt að hraði bifreiðarinnar hefði ekki verið í samræmi við aðstæður þætti komin fram lögfull sönnun um að M hefði viðhaft þá háttsemi sem í ákæru greindi við afar slæm veður- og akstursskilyrði. Þótti sannað að um stórhættulegan glæfraakstur hefði verið að ræða. Þegar litið væri heildstætt á vítaverðan akstur M og fjölda annarra alvarlegra hraðakstursbrota hans þótti ótvírætt að háttsemi hans fullnægði skilyrðum 1. mgr. 107. gr. a umferðarlaga til þess að heimilt væri að gera bifreið hans upptæka til ríkissjóðs. Refsing M var ákveðin fangelsi í fjóra mánuði en fullnustu hennar frestað skilorðsbundið í tvö ár. M var sviptur ökurétti í 12 mánuði frá uppsögu héraðsdóms og gert að greiða A miskabætur.

Landsréttur birt 18. maí 2018

9/2018

Ákæruvaldið (Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari) gegn Y (Björgvin Jónsson lögmaður, Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður, 1. prófmál) og X (Jón Magnússon lögmaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

X og Y voru sakfelldir fyrir brot gegn 4. mgr. 220. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og ýmsum ákvæðum vopnalaga nr. 16/1998. X var sakfelldur fyrir að hafa skotið af afsagaðri haglabyssu, skáhallt upp í loftið, í átt að hópi manna og stofna með því á ófyrirleitinn hátt lífi eða heilsu þeirra í augljósan háska og Y fyrir að hafa skömmu síðar skotið af sömu haglabyssu á bifreið í um það bil 10 metra fjarlægð, sem A og B voru farþegar í og með því stofnað lífi og heilsu þeirra í stórfelldan háska. X og Y voru einnig sakfelldir fyrir brot gegn 217. gr. almennra hegningarlaga fyrir að hafa í félagi veist að C með því að skvetta vatnsblönduðu ammoníaki í andlit hans og í kjölfarið draga hann út úr bifreið sem hann var farþegi í og veitast að honum með ofbeldi. Þá voru þeir einnig sakfelldir fyrir brot gegn 225. gr. almennra hegningarlaga fyrir að hafa í félagi þvingað D með hótunum um ofbeldi til þess að aka með þá á nánar tilgreindan stað. Við ákvörðun refsingar var meðal annars litið til þess að sú háttsemi ákærðu sem varðaði brot gegn 4. mgr. 220. gr. almennra hegningarlaga var sérstaklega ófyrirleitin og alvarleg og mikil mildi að ekki hlaust stórfellt líkamstjón eða dauði af. Var refsing Y ákveðin fangelsi í þrjú ár og refsing X tvö ár og sex mánuðir. X og Y játuðu báðir nánar tilgreind umferðarlagabrot sem þeim voru gefin að sök og var Y sviptur ökurétti ævilangt og ævilöng ökuréttarsvipting X áréttuð.

Landsréttur birt 18. maí 2018

15/2018

Ákæruvaldið (Óli Ingi Ólason saksóknari) gegn X (Björgvin Jónsson lögmaður) (Halldór Þorsteinn Birgisson lögmaður brotaþola)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

X var sakfelldur fyrir að hafa, þar sem hann sat í ökumannssæti kyrrstæðrar bifreiðar, tekið A, sem stóð við bifreiðina og hélt í stýri hennar, hálstaki, sparkað í líkama hennar og ýtt henni upp að þaki bifreiðarinnar, ekið bifreiðinni af stað á meðan A var til hálfs út úr henni og meðan á akstrinum stóð slegið A í andlit og reynt að losa tak hennar af stýrinu. Var háttsemin heimfærð undir 1. mgr. 217. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og 4. mgr. 220. gr. sömu laga. Þá var X jafnframt sakfelldur fyrir brot gegn 1. mgr. 257. gr. sömu laga með því að hafa eyðilagt farsíma A. Refsing X var ákveðin fangelsi í fjóra mánuði en fullnustu hennar frestað skilorðsbundið í tvö ár. Þá var X gert að greiða A 629.280 krónur í skaða- og miskabætur.

Landsréttur birt 11. maí 2018

20/2018

Ákæruvaldið (Jón H. B. Snorrason saksóknari) gegn X (Guðmundur Ómar Hafsteinsson lögmaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

X var sakfelldur fyrir brot gegn 217. gr. og 4. mgr. 220. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 með því að hafa ekið bifreið á aðra kyrrstæða á allt að 40 kílómetra hraða á klukkustund með þeim afleiðingum að ökumaður þeirrar bifreiðar slasaðist og lífi og heilsu hennar og farþega bifreiðarinnar var stofnað í augljósan háska. Við ákvörðun refsingar var litið til þess að X hefði verið í mikilli geðshræringu umrætt sinn og ekki yrði talið að hann hafi haft sterk áform um að valda brotaþolum ótta um líf sitt eða þann ásetning að valda þeim skaða. Var refsing X ákveðin fangelsi í 45 daga en fullnustu hennar frestað skilorðsbundið í tvö ár.

Hæstiréttur birt 22. mars 2016

203/2015

Ákæruvaldið (Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari) gegn Draupni Gestssyni (Arnar Þór Stefánsson hrl)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

D var sakfelldur fyrir brot gegn 219. gr., 4. mgr. 220. gr. og 168. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og ýmsum ákvæðum umferðarlaga nr. 50/1987 með því að hafa ekið bifreið, sem ekki var í ökuhæfu ástandi, undir áhrifum áfengis og á ofsahraða. Missti D stjórn á bifreiðinni og fór hún út af veginum með þeim afleiðingum að fjórir farþegar slösuðust og tveir þeirra mjög alvarlega. Við ákvörðun refsingar var litið til þess hversu alvarleg og margþætt brot ákærða voru og þeirra alvarlegu afleiðinga sem af þeim hlaust. Þá var honum gerður hegningarauki samkvæmt 78. gr. almennra hegningarlaga. Á hinn bóginn var litið til þess að engar haldbærar skýringar hefðu verið gefnar á þeim langa tíma sem leið frá slysinu þar til ákæra var gefin út. Þá hefði málið tafist enn eftir útgáfu áfrýjunarstefnu af ástæðum sem D yrði ekki kennt um. Var refsing D ákveðin fangelsi í 18 mánuði en fullnustu 15 mánaða refsingarinnar var frestað skilorðsbundið í þrjú ár. Var hann auk þess sviptur ökurétti í þrjú ár.

Hæstiréttur birt 19. júní 2013

139/2013

Ákæruvaldið (Kolbrún Benediktsdóttir saksóknari) gegn X (Björgvin Jónsson hrl)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

X var ákærður fyrir brot á 4. mgr. 220. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, með því að hafa ekið undir áhrifum áfengis og með akstrinum stofnað lífi og heilsu þriggja ára sonar síns, sem var farþegi í bifreið hans, í hættu á ófyrirleitinn hátt. Í dómi Hæstaréttar kom fram að ekki nægði að verknaður X samrýmdist verknaðarlýsingu ákvæðisins, heldur yrði ákæruvaldið jafnframt að færa sönnur á að hann hefði haft ásetning til að stofna lífi eða heilsu annarra manna í augljósan háska, sbr. 18. gr. sömu laga. Ekkert var upplýst í málinu um ökuhraða bifreiðarinnar sem X ók í umrætt sinn, aksturslag hans eða stjórntök á henni að öðru leyti. Meðal annars vegna þessa var ekki talið sannað, svo hafið væri yfir skynsamlegan vafa, að X hefði með framferði sínu haft ásetning til að stofna lífi og heilsu sonar síns í augljósan háska. Var X því sýknaður.

Hæstiréttur birt 19. júní 2013

104/2013

Ákæruvaldið (Hulda María Stefánsdóttir saksóknari) gegn Pétri Jóhanni Sævarssyni (Kristján Stefánsson hrl)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

P var í ákæru gefið að sök að hafa ekið bifhjóli á ofsahraða undir áhrifum fíkniefna án þess að sinna stöðvunarmerkjum lögreglu. Var háttsemin talin varða við ákvæði umferðarlaga nr. 50/1987, auk 168. gr. og 4. mgr. 220 gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Með vísan til forsenda hins áfrýjaða dóms taldi Hæstiréttur sannað að atvik hafi verið með þeim hætti er í ákæru greindi. Þá var staðfest sú niðurstaða að P hafi með aksturslagi sínu raskað öryggi bifreiða og umferðaröryggi á alfaraleið og með því brotið gegn 168. gr. laga nr. 19/1940. Á hinn bóginn hefði ákæruvaldið ekki sýnt fram á að hættan af akstri ákærða hafi verið slík að hann hafi stofnað lífi eða heilsu annarra í augljósan háska svo sem áskilið væri í 4. mgr. 220. gr. áðurnefndra laga. Þá taldi Hæstiréttur að P yrði ekki refsað fyrir brot á 1. mgr. 4. gr. laga nr. 50/1987 þar sem það ákvæði væri svo almennt orðað að það gæti ekki, að teknu tilliti til fyrirmæla 1. mgr. 69. gr. stjórnarskrárinnar, talist viðhlítandi refsiheimild. Var staðfest niðurstaða hins áfrýjaða dóms um refsingu P og lengd ökuréttarsviptingar.

Hæstiréttur birt 21. mars 2013

311/2012

Ákæruvaldið (Hulda María Stefánsdóttir saksóknari) gegn Tómasi Pálssyni Eyþórssyni (Bjarni Hauksson hrl) (Björn Jóhannesson réttargæslumaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

T var sakfelldur fyrir hlutdeild í hættubroti einkum með vísan til þess að hann hefði vitað að X var vopnaður byssu sem hann hafði skotið af að bifreið A og B og að T hefði allt að einu veitt bifreiðinni eftirför og reynt að nálgast hana til að komast í skotfæri við hana. Var brot T talið varða við 4. mgr. 220. gr., sbr. 1. mgr. 22. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Þá var T sakfelldur fyrir vopnalagabrot með því að hafa haft kylfu í vörslum sínum í bifreið sem hann hafði umráð yfir. Var refsing T ákveðin fangelsi í tvö ár. Þá var T gert að greiða B skaðabætur að fjárhæð 600.000 krónur og sæta upptöku kylfunnar.

Hæstiréttur birt 31. janúar 2013

521/2012

Ákæruvaldið (Hulda Elsa Björgvinsdóttir saksóknari) gegn Andreu Kristínu Unnarsdóttur og X (Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson hrl, Tómas Hrafn Sveinsson hdl, Oddgeir Einarsson hrl, Jón Egilsson hrl, Auður Björg Jónsdóttir hdl, Erlendur Þór Gunnarsson hrl, Eva Hrönn Jónsdóttir hdl, Björgvin Jónsson hrl, Arnar Þór Stefánsson hrl) (Valgeir Kristinsson réttargæslumaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

A, EV og J voru sakfelld fyrir brot gegn 2. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 með því að hafa ruðst í heimildarleysi inn á heimili A, veist að B og þvingað hann með ofbeldi úr úr íbúðinni og því næst veist að A með margvíslegu ofbeldi. Ó var sakfelldur fyrir sama brot, enda var talið sýnt að hann hefði komið að skipulagningu líkamsárásarinnar auk þess sem hann greiddi fyrir inngöngu þeirra A, EV og J á heimili A. Ó var einnig sakfelldur fyrir brot gegn 1. mgr. 220. gr. almennra hegningarlaga með því að hafa skilið A eftir meðvitundarlitla og liggjandi í blóði sínu án bjargar og læst útidyrum að heimili hennar er hann hafði sig á brott. Á hinn bóginn voru þau A, EV, J og Ó sýknuð af ákæru um kynferðisbrot þar sem háttsemi þeirra hefði haft þann tilgang einan að meiða A. Sömu ákærðu voru einnig sýknuð af ákæru um rán. Ákæruvaldinu var ekki talin hafa tekist sönnun um sekt X í líkamsárásinni. Þeir X og Y voru auk fyrrgreindra ákærðu ákærð fyrir brot gegn 175. gr. a. almennra hegningarlaga, með vísan til þess að þau væru öll meðlimir í eða hefðu tengsl við samtök, sem lögregla hér á landi og erlendis hefði skilgreint sem alþjóðleg glæpasamtök, og að háttsemi þeirra hefði verið liður í skipulagðri brotastarfsemi. Þetta var ekki talið sannað. Loks var A sakfelld fyrir umferðarlagabrot og rangar sakargiftir. Var refsing A ákveðin fangelsi í fimm ár og sex mánuði, EV og J fangelsi í fjögur ár og sex mánuði og Ó í fjögur ár. Þeim A, EV, J og Ó var gert að greiða A óskipt 2.000.000 krónur í skaðabætur.

Hæstiréttur birt 24. maí 2012

33/2012

Ákæruvaldið (Sigríður J. Friðjónsdóttir ríkissaksóknari) gegn Herði Þráinssyni (Kristján Stefánsson hrl)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

A varð fyrir líkamstjóni er hann stökk yfir steinvegg við Fylkisheimilið og niður á steinsteypta stétt. Í viðurkenndi bótaskyldu og hafði greitt A skaðabætur sem námu ¾ hlutum af tjóni hans en taldi að A ætti sjálfur að bera ¼ hluta tjónsins vegna eigin sakar. Ljóst þótti að A hefði umrætt sinn verið undir áhrifum áfengis. Taldi Hæstiréttur að A hefði sýnt af sér verulegt gáleysi er hann tók þá hvatvísu ákvörðun að hlaupa í áttina að húsinu og stökkva yfir vegginn án þess að aðgæta hvernig aðstæður væru handan veggjarins. Þótti rétt að hann yrði látinn bera fjórðung tjóns síns sjálfur. Ekki voru talin efni til að beita lækkunarheimild í 24. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993. Var Í því sýknað af kröfu A.

Hæstiréttur birt 9. desember 2010

88/2010

Ákæruvaldið (Sigríður Elsa Kjartansdóttir vararíkissaksóknari) gegn X (Hróbjartur Jónatansson hrl)

X var ákærður fyrir brot gegn 1. mgr. 106. gr. og 4. mgr. 220. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, með því að hafa ekki sinnt fyrirmælum lögreglu um að ræða við sig, hafa sest upp í bifreið sína og ekið ógætilega í átt að lögreglumanni. Í dómi Hæstaréttar segir meðal annars að ákvörðun lögreglumannanna fjögurra, um að fara til heimilis ákærða umrætt sinn, hefði ekki staðið í tengslum við rannsókn tiltekins brots eða það að grunur hefði beinst að ákærða um refsiverða háttsemi. Yrði hvorki talið sannað að lögreglumennirnir hefðu gert grein fyrir sér í samræmi við ákvæði reglugerðar um lögregluskilríki áður en ákærði lokaði bifreið sinni og ók af stað, né heldur að ákærði hefði mátt sjá lögregluskilríki þeirra vegna myrkurs og fjarlægðar. Var ákærði því sýknaður af ákæru um brot á 1. mgr. 106. gr. almennra hegningarlaga. Þá segir einnig í dómi Hæstaréttar að þótt lagt yrði til grundvallar að ákærði hefði ekið hratt af stað og að atvik málsins hefðu orðið á litlu svæði yrði, eins og ákært var í málinu, ekki talið sannað að hann hefði haft ásetning til brots í ljósi þess að lögreglumaðurinn hefði líklegast hlaupið fyrir bifreiðina er hún var komin af stað. Yrði ákærði því einnig sýknaður af ákæru um brot á 4. mgr. 220. gr. almennra hegningarlaga. Hins vegar taldi Hæstiréttur að X hefði brotið gegn 1. mgr. 5. gr. a umferðarlaga nr. 50/1987, með því að hafa ekið yfir autt svæði á milli bílastæða við heimili ákærða og nærliggjandi akbrautar. Var ákærða gert að greiða 5.000 krónur í sekt til ríkissjóðs.

Hæstiréttur birt 17. desember 2009

78/2009

Ákæruvaldið (Sigríður Elsa Kjartansdóttir saksóknari) gegn X (Kristján Stefánsson hrl) (Árni Pálsson réttargæslumaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

X var sakfelldur fyrir hættubrot með því að hafa á ófyrirleitinn hátt stofnað lífi eða heilsu A í augljósan háska er hann í kynmökum við A setti gúmmíbolta, sem hún taldi vera kynlífsleikfang upp í leggöng hennar og skildi þar eftir án vitneskju hennar. Afleiðingar háttseminnar urðu þær að þremur vikum síðar þegar í ljós kom að boltinn var enn í leggöngum A var hún komin með bólgur og alvarlega sýkingu í leggöng og þurfti að fjarlægja boltann með aðgerð. Var talið að X hefði ekki átt að geta dulist að stúlkan væri í augljósum háska ef hann skildi boltann eftir í leggöngum hennar án þess að hún vissi að hann hefði gert svo. Var háttsemi hans talin varða við 4. mgr. 220. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Kröfu X um ómerkingu héraðsdóms var hafnað, enda þóttu engir þeir annmarkar á rannsókn málsins sem leitt gætu til þess að dómurinn yrði ómerktur. X lagði fyrir Hæstarétt matsgerð tveggja sérfræðinga í smit- og kvensjúkdómalækningum, þar sem fram kom að framhald tilgreindrar kynlífsathafnar hefði ef ekkert hefði verið að gert getað leitt til alvarlegra hliðarverkana og jafnvel sýkinga sem hefðu getað ógnað lífi og heilsu A. Í þessu tilviki hefði ástandið ekki gengið það langt að líffæri sködduðust né höfðu skapast þær aðstæður að líf væri í hættu. Með vísan til forsendna hins áfrýjaða dóms, sem taldar voru fá aukinn stuðning af framangreindri matsgerð sérfræðinga, var hann staðfestur. Þá var X einnig sakfelldur fyrir brot gegn valdstjórninni með því að hafa hótað lögreglumönnum við störf lífláti. Var háttsemi hans talin varða við 1. mgr. 106. gr. almennra hegningarlaga. Hins vegar var talið að líta bæri til þess að hótanirnar hefðu verið settar fram í ölæði og ekki væri ástæða til að ætla að sterkur ásetningur hefði búið þar að baki til að valda lögreglumönnunum ótta um líf sitt og heilbrigði. Þótti refsing X hæfilega ákveðin skilorðsbundið fangelsi í sex mánuði. Þá var honum gert að greiða A 807.290 krónur í skaðabætur.

Hæstiréttur birt 13. september 2007

11/2007

Ákæruvaldið gegn X (Björn Lárus Bergsson hrl)
Lykilorð: Bifreið. Hættubrot. Skilorð.
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

X var gefið að sök að hafa stofnað á ófyrirleitin hátt lífi eða heilsu fyrrum eiginkonu sinnar í augljósan háska þegar hann ók bifreið að henni. Með vætti konunnar og annars vitnis, er báru saman um að X hefði ekið bifreiðinni þannig að hún stefndi á konuna en henni tekist með naumindum að forða sér undan henni, þótti sannað að X hefði gerst sekur um háttsemi sem varðaði við 4. mgr. 220. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og var refsing hans hæfilega ákveðin skilorðsbundið fangelsi í tvo mánuði.