Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

33 dómar fundust

Lykilorð: Brenna

Landsréttur birt 4. desember 2025

28/2025

Ákæruvaldið (Anna Barbara Andradóttir saksóknari) gegn Jóni Valgeiri Stefánssyni (Leó Daðason lögmaður) (Unnur Lilja Hermannsdóttir lögmaður einkaréttarkröfuhafa)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

J var sakfelldur fyrir brot gegn 1. og 2. mgr. 257. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 með því að hafa farið heimildarlaust inn um glugga á sumarhúsi og þar inni kveikt eld með þeim afleiðingum að sumarhúsið brann til grunna. Varðandi þá háttsemi J að brjóta útiljós við annað sumarhús í nágrenni við hitt taldist brotið fyrnt, sbr. 1. tölulið 1. mgr. 81. gr. og 5. mgr. 82. gr. almennra hegningarlaga og var hann því sýknaður af þeim sakargiftum. Við ákvörðun refsingar var meðal annars litið til þess að um var að ræða hegningarauka, sbr. 78. gr. almennra hegningarlaga. Var refsing J ákveðin fangelsi í sex mánuði. Þá var niðurstaða hins áfrýjaða dóms um bótaábyrgð J gagnvart einkaréttarkröfuhafa staðfest og honum gert að greiða TM tryggingum hf. 14.298.040 krónur.

Héraðsdómur Vesturlands birt 17. desember 2024

S-253/2024

Héraðssaksóknari (Karl Ingi Vilbergsson saksóknari) gegn Björgvini Ó. Melsteð Ásgeirssyni (Ómar R. Valdimarsson lögmaður) (Elín Árnadóttir lögmaður bótakrefjanda) (Heiður Heimisdóttir lögmaður bótakrefjanda)

Ákærði játaði að hafa valdið af ásetningi bruna á veitingastað. Ákærði dæmdur í tveggja ára fangelsi en refsing bundin almennu skilorði í tvö ár.

Héraðsdómur Reykjaness birt 3. desember 2024

S-3156/2023

Ákæruvaldið (Sonja Símonardóttir saksóknarfulltrúi) gegn Jóni Valgeiri Stefánssyni (Leó Daðason lögmaður)
Lykilorð: Brenna. Eignaspjöll. Húsbrot.
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Sakfellt fyrir húsbrot og stórfelld eignaspjöll.

Landsréttur birt 15. september 2023

245/2022

Ákæruvaldið (Óli Ingi Ólason saksóknari) gegn Mhd Badr Eddin Kreiker (Þorbjörg Inga Jónsdóttir lögmaður, Helga Vala Helgadóttir Bachmann lögmaður, 2. prófmál)
Lykilorð: Brenna. Fjársvik. Tilraun.
Málaflokkur: Auðgunarbrot

M var sakfelldur fyrir brot gegn 1. mgr., sbr. 2. mgr. 164. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, með því að hafa borið eldhvetjandi efni á tvö aðskild svæði á nánar tilgreindum veitingastað og lagt eld að þannig að eldur breiddist út. Með athæfi sínu olli M eldsvoða sem hafði í för með sér almannahættu og yfirgripsmikið eignatjón á húsnæði veitingastaðarins. Þá var M sakfelldur fyrir tilraun til fjársvika með því að hafa krafið vátryggingarfélag um greiðslu bóta vegna þess tjóns sem varð vegna eldsvoðans og bóta vegna rekstrarstöðvunar, en félagið hafnaði greiðslu bóta með vísan til þess að um íkveikju hefði verið að ræða. Var M gert að sæta fangelsi í tvö ár og þrjá mánuði.

Landsréttur birt 16. desember 2022

741/2021

Ákæruvaldið (Hulda María Stefánsdóttir saksóknari) gegn Kristófer Erni Sigurðarsyni (Ólafur Rúnar Ólafsson lögmaður)
Málaflokkur: Önnur sakamál

K var sakfelldur fyrir brot gegn 1., sbr. 2. mgr. 164. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, með því að hafa á jarðhæð íbúðarhúss þar sem hann bjó kveikt á brauðrist sem staðsett var frammi á gangi við eldhúsið og lagt viskastykki yfir hana áður en hann gekk út úr húsnæðinu, en með athæfi sínu olli K eldsvoða sem hafði í för með sér að íbúar á efri hæð húsnæðisins voru í bersýnilegum lífsháska, auk þess sem augljós hætta var á yfirgripsmiklu eignatjóni annarra. Fyrir Landsrétti var fallist á beiðni um dómkvaðningu tveggja yfirmatsmanna. Var niðurstaða þeirra sú að K hefði verið sakhæfur í skilningi 15. gr. almennra hegningarlaga á verknaðarstundu og að refsing gæti borið árangur í skilningi 16. gr. sömu laga. Við ákvörðun refsingar var litið til þess að K hefði 23. október 2019 verið dæmdur til að sæta fangelsi í þrjá mánuði, þar af 30 daga skilorðsbundið í tvö ár. Tekinn var upp skilorðshluti þess dóms og refsing ákveðin í einu lagi með vísan til 60., sbr. 77. gr. almennra hegningarlaga. Var K gert að sæta fangelsi í tvö ár og þrjá mánuði.

Landsréttur birt 10. júní 2022

590/2021

Ákæruvaldið (Anna Barbara Andradóttir settur saksóknari) gegn X (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður) (Guðbrandur Jóhannesson réttargæslumaður einkaréttarkröfuhafa)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

X var ákærður fyrir brennu, manndráp og tilraun til manndráps með því að hafa kveikt eld á gólfi í herbergi sínu á annarri hæð að Bræðraborgarstíg 1 og á tveimur stöðum á gólfi í sameiginlegu rými á sömu hæð og valdið þannig eldsvoða sem hafði í för með sér almannahættu en 13 manns voru í húsinu þegar X kveikti eldinn. X var jafnframt ákærður fyrir brot gegn valdstjórninni með því að hafa skömmu eftir framangreint atvik, utandyra við rússneska sendiráðið slegið tvo lögreglumenn sem þar voru við skyldustörf með gúmmímottu með þeim afleiðingum að annar hlaut roða og mar á hægri framhandlegg en hinn fékk roða á vinstra kinnbein. Með dómi héraðsdóms var talið sannað að X hefði gerst sekur um þá háttsemi sem honum var gefin að sök. Var X sýknaður af refsikröfu ákæruvaldsins þar sem dómurinn taldi engum vafa undirorpið að ástand hans hefði á þeim tíma sem um ræddi verið þannig að hann hefði verið alls ófær um að stjórna gerðum sínum, sbr. 15. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Taldi héraðsdómur að nauðsynlegt væri vegna réttaröryggis að X sætti öryggisgæslu á viðeigandi stofnun og gengist á þeim tíma undir viðeigandi meðferð vegna veikinda sinna. Þá var X dæmdur til greiðslu skaða- og miskabóta. Landsréttur staðfesti niðurstöðu héraðsdóms um að sannað væri að X hefði framið þau brot sem ákært var fyrir. Ákæruvaldið undi niðurstöðu hins áfrýjaða dóms um að ekki skyldi refsa X. Í dómi Landsréttar kom fram að vegna geðræns ástands síns hefði ákærði verið alls ófær um að stjórna gerðum sínum 25. júní 2020 þegar hann framdi umrædd brot. Með vísan til niðurstöðu þriggja matsgerða í málinu, skýrslu matsmanna fyrir dómi og framburðar geðlæknis fyrir Landsrétti yrði að leggja til grundvallar að X væri með geðhvörf og gæti enn valdið sér og öðrum hættu væri hann í örlyndisástandi. Þá virtist hann ekki vera til viðræðu um nauðsynlega læknismeðferð. Í þessu ljósi og með hliðsjón af alvarleika þeirrar háttsemi sem X gerðist sekur um voru ekki efni til þess að sú öryggisgæsla sem honum hafði verið ákveðin í hinum áfrýjaða dómi yrði að svo komnu máli felld niður. Var því staðfest niðurstaða hins áfrýjaða dóms um að X skyldi sæta öryggisgæslu á viðeigandi stofnun á grundvelli heimildar í 62. gr. almennra hegningarlaga. Þá voru brotaþolum og einkaréttarkröfuhöfum dæmdar miskabætur.

Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 9. nóvember 2021

S-639/2020

Héraðssaksóknari (Friðrik Smári Björgvinsson aðstoðarsaksóknari) gegn Kristófer Erni Sigurðarsyni (Sunna Axelsdóttir lögmaður)
Lykilorð: Brenna.
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Ákærði sakfelldur fyrir brennu og dæmdur til að sæta fangelsi í tvö og hálft ár.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 3. júní 2021

S-5825/2020

Héraðssaksóknari (Kolbrún Benediktsdóttir varahéraðssaksóknari) gegn X (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Ákærði var sýknaður af refsikröfu ákæruvaldsins vegna brennu, manndráps, tilraunar til manndráps og valdstjórnarbrots, en gert að sæta öryggisgæslu á viðeigandi stofnun.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 11. júní 2020

S-3034/2020

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Dagmar Ösp Vésteinsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Hlyni Geir Sigurðarsyni (Áslaug Lára Lárusdóttir lögmaður)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Ákærði sakfelldur fyrir ýmis brot m.a. auðgunarbrot, fíkniefnalagabrot, umferðarlagabrot, brot gegn valdstjórninni, brennu og hættubrot. Ákærði játaði brot sín skýlaust og var með hliðsjón af alvarleika brota og sakarferli dæmdur í fangelsi í þrjú ár.

Hæstiréttur birt 13. maí 2020

11/2020

Ákæruvaldið (Sigríður J. Friðjónsdóttir ríkissaksóknari) gegn Vigfúsi Ólafssyni (Óskar Sigurðsson lögmaður, Sigmundur Hannesson lögmaður, Sigurður Sigurjónsson lögmaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

V var sakfelldur fyrir brennu og manndráp samkvæmt 1., sbr. 2. mgr. 164. gr. og 211. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 með því að hafa valdið eldsvoða í íbúðarhúsnæði með nánar tilgreindum hætti með þeim afleiðingum að tvær manneskjur létust. Í dómi Hæstaréttar kom fram að V hafi ekki getað dulist hverjar afleiðingar þess að kveikja eld í stofu íbúðarhúsnæðisins gætu orðið. V hafi haft raunverulega vitund um refsinæmar afleiðingar háttsemi sinnar en engu að síður látið það sér í léttu rúmi liggja hvort eldurinn breiddist út með þeim afleiðingum að mönnum yrði lífsháski búinn, stórfellt eignatjón yrði og líklegt væri að þeir sem væru á efri hæð hússins kæmust ekki undan og biðu bana. Við ákvörðun refsingar var litið til skelfilegra afleiðinga brota V. Á hinn bóginn var litið til þess að á verknaðarstundu hafi V haft lægsta stig ásetnings til beggja brotanna. Var V gert að sæta fangelsi í 14 ár. Þá var honum gert að greiða börnum og foreldrum hinna látnu bætur.

Landsréttur birt 13. desember 2019

580/2019

Ákæruvaldið (Sigríður J. Friðjónsdóttir ríkissaksóknari) gegn Vigfúsi Ólafssyni (Óskar Sigurðsson lögmaður) (Sigmundur Hannesson lögmaður einkaréttarkröfuhafa) (Sigurður Sigurjónsson lögmaður einkaréttarkröfuhafa)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

V var ákærður fyrir brennu og manndráp samkvæmt 1., sbr. 2. mgr. 164. gr. og 211. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, en til vara brennu og manndráp af gáleysi samkvæmt 215. gr. sömu laga. Tóku sakargiftir til þess að hann hefði valdið eldsvoða í íbúðarhúsnæði með nánar tilgreindum hætti með þeim afleiðingum að tvær manneskjur létust. Með dómi héraðsdóms var hann sakfelldur fyrir brennu og manndráp af gáleysi. Í dómi Landsréttar kom fram að V hefði valdið eldsvoða sem hefði haft í för með sér almannahættu. Honum hefði ekki getað dulist að með því að kveikja eld við þessar aðstæður væri mönnum búinn bersýnilegur lífsháski auk þess sem augljós hætta hefði verið á yfirgripsmikilli eyðingu eigna annarra manna. Var því staðfest niðurstaða héraðsdóms um sakfellingu fyrir brennu. Í dómi Landsréttar var jafnframt vísað til þess að V hefði kveikt eldinn vitandi að á efri hæð hússins væru þau tvö sem létust í eldsvoðanum. Þá hefði hann vitað að mikill eldsmatur væri í húsinu og ekki getað dulist að svo gæti farið að þau, sem uppi voru, kæmust ekki undan ef kviknaði í húsinu og líklegt væri að þau gætu beðið bana, eins og reyndin hefði orðið. Þrátt fyrir þessa vitneskju hefði hann kveikt eld sem hefði leitt til þess að tvær manneskjur létust. Var V því einnig sakfelldur fyrir manndráp samkvæmt 211. gr. almennra hegningarlaga. Við ákvörðun refsingar var litið til þess að ásetningur hans hefði ekki verið mjög einbeittur. Hins vegar hefði hann enga tilraun gert til að vara við þau sem voru á efri hæð hússins og létust í eldsvoðanum eða koma þeim til bjargar. Var V gert að sæta fangelsi í 14 ár. Þá var honum gert að greiða börnum og foreldrum hinna látnu bætur.

Héraðsdómur Suðurlands birt 9. júlí 2019

S-31/2019

Héraðssaksóknari (Kolbrún Benediktsdóttir varahéraðssaksóknari) gegn Vigfúsi Ólafssyni (Óskar Sigurðsson lögmaður) og X (Guðni Jósep Einarsson lögmaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Karlmaður dæmdur í 5 ára fangelsi fyrir brennu og manndráp af gáleysi með því að valda eldsvoða í íbúðarhúsi með þeim afleiðingum að tveir einstaklingar létust af völdum kolmónoxíðeitrunar. Kona sýknuð af ákæru fyrir almannahættubrot með því að hafa látið hjá líða að gera það sem í hennar valdi stóð til að aðvara framangreinda einstaklinga eða koma þeim til bjargar.

Hæstiréttur birt 16. febrúar 2017

577/2016

Ákæruvaldið (Daði Kristjánsson saksóknari) gegn Þorsteini Sindra Elíassyni (Ragnar Aðalsteinsson hrl, Valgeir Pálsson lögmaður)
Lykilorð: Brenna. Einkaréttarkrafa.

Þ var sakfelldur fyrir brot gegn 169. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 með því að hafa látið hjá líða að gera það sem í hans valdi hafi staðið til að vara við eða afstýra eldsvoða sem bróðir hans hafði valdið og var sakfelldur fyrir. Var refsing hans ákveðin fangelsi í fjóra mánuði. Á hinn bóginn var Þ sýknaður af bótakröfu T hf. með vísan til meginreglu skaðabótaréttar um að maður verði ekki skaðabótaskyldur vegna athafnaleysis þegar hann hafi ekki haft tengsl við þá atburðarrás sem síðar leiði til tjóns.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 6. júlí 2016

S-428/2016

Ákæruvaldið (Matthea Oddsdóttir saksóknarfulltrúi) gegn Eyjólfi Konráð Elíassyni (Brynjólfur Eyvindsson hdl) og Þorsteini Sindra Elíassyni (Sigurður Örn Hilmarsson hdl)
Lykilorð: Brenna. Sakhæfi.

Ákærðu EKE og ÞSE voru sakfelldir fyrir almannhættubrot. Var ákærði EKE sakfelldur fyrir brennu og brot hans talið varða við 1., sbr. 2. mgr. 164. gr. almennra hegningarlaga. Ákærði var talinn ósakhæfur og því sýknaður af kröfu ákæruvalds um refsingu, sbr. 15. gr. almennra hegningarlaga. Honum var hins vegar gert að sæta öryggisgæslu skv. 62. gr. sömu laga. Ákærði ÞSE var sakfelldur fyrir að láta hjá líða að gera það sem í hans valdi stóð til þess að vara við eða afstýra eldsvoða og var brot hans talið varða við 169. gr. almennra hegningarlaga. Refsing ákærða þótti hæfilega ákveðin fangelsi í 6 mánuði.

Héraðsdómur Reykjaness birt 14. júní 2016

S-130/2016

Ákæruvaldið (Margrét Unnur Rögnvaldsdóttir saksóknari) gegn Ingvari Júlíusi Óskarssyni (Oddgeir Einarsson hrl)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

I var ákærður fyrir þjófnað á bensíni og fyrir að hafa í tenglum við það brot sitt orðið valdur að eldsvoða sem haft hafi í för með sér almannahættu. Ákærði játaði þjófnaðarbrotið en neitaði sök að öðru leyti. Hann var sakfelldur fyrir bæði brotin en þó þannig að almannahættubrotið var metið sem gáleysisbrot og því heimfært til 167. gr. sbr. 164. gr. almennra hegningarlaga.

Héraðsdómur Reykjaness birt 6. maí 2013

S-201/2013

Ákæruvaldið (Hulda María Stefánsdóttir saksóknari) gegn Alijan Ibrahim (Bjarni Hauksson hrl)
Lykilorð: Brenna. Eignaspjöll.
Málaflokkur: Önnur sakamál

Maður dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir brennu og eignaspjöll.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 15. október 2012

S-562/2012

Ákæruvaldið (Einar Laxness aðstoðarsaksóknari) gegn Aroni Aminoff Benediktssyni (Stefán Karl Kristjánsson hdl), Brynjari Loga Barkarsyni (Guðmundur St. Ragnarsson hdl) og Frank Norman Eyþórssyni (Sveinn Guðmundsson hrl)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Karlmaður dæmdur til 18 mánaða fangelsisvistar fyrir líkamsárás, frelsissviptingu og brennu. Tveir aðrir meðákærðir voru dæmdir til 4 og 6 mánaða skilorðsbundinnar fangelsisvistar fyrir frelsissviptingu og umferðarlagabrot, en þeir voru sýknaðir af ákæru um líkamsárás.

Hæstiréttur birt 21. júní 2011

589/2010

Ákæruvaldið (Hulda María Stefánsdóttir settur saksóknari) gegn Auðuni Þorgrími Þorgrímssyni (Brynjar Níelsson hrl)
Lykilorð: Brenna.

A var gefið að sök brot gegn 1. mgr., sbr. 2. mgr. 164. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 með því að hafa hellt bensíni inn í stigagang og á gólf á jarðhæð í húsi að T, kveikt í bensíninu og valdið þannig eldsvoða, sem hefði haft í för með sér almannahættu. A játaði að hafa kveikt í húsinu en andmælti því að sá verknaður varðaði við 2. mgr. 164. gr. almennra hegningarlaga. Talið var að líta yrði svo á að eldsvoði í húsinu að T hefði einn og sér haft í för með sér augljósa hættu á yfirgripsmikilli eyðingu á eignum annarra í skilningi 2. mgr. 164. gr. almennra hegningarlaga. Útilokað væri annað en að A hlyti að hafa séð fram á þetta og var verknaður hans því talinn varða við það lagaákvæði. Var refsing hans ákveðin fangelsi í tvö ár.

Héraðsdómur Vesturlands birt 26. janúar 2011

S-369/2010

Ákæruvaldið (Halla Bergþóra Björnsdóttir sýslumaður) gegn Ágústi Erni Long og Eyþóri Orra Þórðarsyni

Tveir ungir menn sakfelldir fyrir tilraun til brennu og fyrir brot gegn valdstjórninni.

Hæstiréttur birt 16. desember 2010

250/2010

Ákæruvaldið (Hulda María Stefánsdóttir settur saksóknari) gegn Jóni Óskari Auðunssyni (Sigmundur Hannesson hrl)
Lykilorð: Brenna.
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

J var sakfelldur fyrir brennu með því að hafa hellt bensíni úr brúsa inn í og á bifreiðina A sem stóð á bifreiðarstæðinu við L, kveikt í bensíninu og valdið með því eldsvoða sem hafði í för með sér almannahættu. Eldurinn breiddist út með þeim afleiðingum að bifreiðin A, ásamt bifreiðinni B, brann og bifreiðin C stórskemmdist ásamt því að sprungur komu í rúður á 1. og 2. hæð hússins við L. Var brotið talið varða við 1. mgr., sbr. 2. mgr. 164. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. J játaði sök. Í dómi Hæstaréttar segir að J hlaut að vera ljóst að íkveikjan myndi hafa í för með sér augljósa hættu á yfirgripsmikilli eyðingu á eignum annarra manna. Refsing J var ákveðin með hliðsjón af 78. gr. laga nr. 19/1940 og var hún ákveðin fangelsi í 2 ár. Með hliðsjón af alvarleika brotsins þótti ekki tilefni til að skilorðsbinda refsinguna.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 9. febrúar 2010

S-1334/2009

Ákæruvaldið (Hulda María Stefánsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Jóni Óskari Auðunssyni (Sigmundur Hannesson hrl)
Lykilorð: Brenna.
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur fyrir að kveikja í bifreið á bílastæði við íbúðarhús og dæmdur í 2 ára fangelsi.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 31. ágúst 2009

S-767/2009

Ákæruvaldið (Einar Laxness fulltrúi) gegn Jóni Kristni Ásgeirssyni (Sveinn Andri Sveinsson hrl), Karli Halldóri Hafsteinssyni (Brynjólfur Eyvindsson hdl) og Ríkharði Júlíus Ríkharðssyni (Brynjar Níelsson hrl)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Tveir menn dæmdir til fangelsisvistar fyrir brennu o.fl. Þriðji maðurinn var sýknaður af ákæru.

Héraðsdómur Reykjaness birt 16. apríl 2007

S-1649/2006

Ákæruvaldið (Sigríður J. Friðjónsdóttir saksóknari) gegn Bergi Má Ágústssyni (Hilmar Ingimundarson hrl), Geir Þorsteinssyni (Bjarni Hauksson hdl) og Guðna Guillermo Gorozpe (Sveinn Andri Sveinsson hrl)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

B var sakfelldur fyrir brot gegn 4. mgr. 220. gr. almennra hegningarlaga með því að hafa í júní á síðasta ári skotið með haglabyssu á íbúðarhús við Burknavelli í Hafnarfirði. G og GG voru sakfelldir fyrir hlutdeild í því broti. Þá var GG að auki sakfelldur fyrir líkamsárás, tilraun til brennu, fjársvik og umferðarlagabrot og ákærði G fyrir nytjastuld. B var dæmdur í 15 mánaða fangelsi, GG í tveggja ára fangelsi og G í 9 mánaða fangelsi.

Hæstiréttur birt 9. desember 2004

326/2004

Ákæruvaldið (Ragnheiður Harðardóttir saksóknari) gegn Guðjóni Þór Jónssyni (Sveinn Andri Sveinsson hrl), Ívari Birni Ívarssyni (Kjartan Reynir Ólafsson hrl) og Sigurði Ragnari Kristinssyni (Brynjar Níelsson hrl)

Ákærðu voru sakfelldir fyrir brennu með því að hafa, eftir að ákærði S hafði sparkað gat á útidyrahurð, hellt um 10 lítrum af bensíni í anddyri húss í Reykjavík og á tröppur og veggi utan dyra og kveikt síðan í svo að eldur hafi blossað upp. Var talið, að ákærðu hafi hlotið að sjá fram á að mönnum væri búinn bersýnilegur lífsháski af verknaðinum, svo og að almannahættu hafi leitt af íkveikjunni. Var þeim gert að sæta fangelsi í tvö ár. Kostnaður vegna þóknunar skipaðs réttargæslumanns í héraði var felldur á ríkissjóð, en ekki hafði verið lagaheimild til skipunar hans.