Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Anna Guðbjörg Hólm Bjarnadóttir saksóknarfulltrúi)
gegn
Söndru Rún Raybould (
Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Ákærða var sakfelld fyrir m.a. þjófnað, nytjastuld, akstur undir áhrifum vímuefna án ökuréttinda og fyrir vörslur fíkniefna. Var henni gert að sæta fangelsi í 9 mánuði og hún svipt ökurétti ævilangt.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Eva Lind Ingadóttir saksóknarfulltrúi)
gegn
Danival Guðjóni Stefánssyni (
Snorri Sturluson lögmaður)
Maður sakfelldur fyrir ýmiss brot gegn almennum hegningarlögum og umferðarlögum og dæmdur til 18 mánaða fangelsisvistar. Ævilöng svipting ökuréttar var áréttuð. Einum ákærulið og einkaréttarkröfum var vísað frá dómi.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Anna Guðbjörg Hólm Bjarnadóttir saksóknarfulltrúi)
gegn
Mörtu Rybakiewicz (
Ólafur Valur Guðjónsson lögmaður)
Ákærða var sakfelld fyrir brot gegn umferðarlögum, almennum hegningarlögum og lögum um ávana- og fíkniefni og dæmd í sjö mánaða fangelsi, en þar af voru fjórir mánuðir skilorðsbundnir, og svipt ökurétti ævilangt.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Jakob Steinn Stefánsson saksóknarfulltrúi)
gegn
Ásu Elínardóttur (
Sveinn Andri Sveinsson)
Ákærða var sakfelld fyrir umferðarlagabrot, nytjastuld og þjófnað. Var henni gert að sæta fangelsi í 45 daga skilorðsbundið til tveggja ára.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Kamilla Kjerúlf aðstoðarsaksóknari)
gegn
Guðmundi Árnasyni (
Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Ákærði var sakfelldur fyrir brot gegn almennum hegningarlögum, umferðarlögum og vopnalögum og dæmdur til að sæta fangelsi í 22 mánuði.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Kamilla Kjerúlf aðstoðarsaksóknari)
gegn
Rafal Ryszard Kottlewski (
Leifur Runólfsson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir ýmis hegningarlagabrot, brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni og umferðarlagabrot og dæmdur í 16 mánaða fangelsi og sviptur ökurétti ævilangt.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Auðbjörg Lísa Gústafsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Kolbrúnu Karen Sigurðardóttur (
Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Ákærða dæmd í 30 daga skilorðsbundið fangelsi og til greiðslu sektar vegna hegningar- og umferðarlagabrota.
Lögreglustjórinn í Vestmannaeyjum (Tinna Sif Guðmundsdóttir fulltrúi) gegn
Valentin Pintilie (sjálfur)
Ákærði var fundinn sekur um líkamsárás, nytjastuld og umferðarlagabrot og honum gert að sæta fangelsi í 60 daga, en fullnustu refsingarinnar var frestað skilorðsbundið til tveggja ára. Þá var ákærða jafnframt gert að greiða sekt og hann sviptur ökurétti.
H var sakfelld fyrir ýmis þjófnaðarbrot, nytjastuld í tvígang og önnur brot er varða sýnileg sönnunargögn, tvö umferðarlagabrot, tvær líkamsárásir og tilraun til þjófnaðar. Við ákvörðun refsingar H var litið til þess að umferðarlagabrotin töldust hegningarauki við nánar tilgreindan dóm. Með vísan til þess og að teknu tilliti til 77. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 en að öðru leyti með vísan til sjónarmiða héraðsdóms að baki refsiákvörðun var refsing H ákveðin fangelsi í 15 mánuði. Þá var hún svipt ökurétti í 18 mánuði en um tímalengd ökuréttarsviptingarinnar var tekið mið af meginreglu 78. gr. almennra hegningarlaga. Þá var staðfest niðurstaða héraðsdóms um einkaréttarkröfur P og V og H því gert að greiða P 250.000 krónur og V 350.000 krónur.
Ákærði A sakfelldur fyrir hlutdeild í stórfelldum þjófnaði, peningaþvætti, umferðar-, fíkniefna- og vopnalagabrot, þjófnaði, þ.m.t. stórfelldan þjófnað, nytjastuld og fjársvik, en hluti brotanna var framinn í félagi við aðra, þ.m.t. ákærða B. Ákærði B sakfelldur fyrir hlutdeild í nytjastuldi og stórfelldum þjófnaði ákærða A. Ákærði A dæmdur til að greiða skaðabætur en ákærði B sýknaður af þeirri kröfu. Báðir ákærðu dæmdir til refsingar og ákærði A að auki til sviptingar ökuréttar.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Kamilla Kjerúlf aðstoðarsaksóknari)
gegn
Hafsteini Ara Ágústssyni (
Páll Ágúst Ólafsson lögmaður)
Ákærði var sakfelldur fyrir ýmis hegningarlagabrot, fíkniefna- og umferðarlagabrot.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Eva Lind Ingadóttir saksóknarfulltrúi)
gegn
Jóni Gunnþórssyni (
Gísli M. Auðbergsson lögmaður)
Ákærði, sem játaði brot sín, dæmdur í 8 mánaða óskilorðsbundið fangelsi fyrir ítrekuð þjófnaðarbrot, brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni, nytjastuld og umferðarlagabrot.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Kamilla Kjerúlf aðstoðarsaksóknari)
gegn
Elvari Elí Halldórssyni (
Jón Egilsson lögmaður)
Ákærði var sakfelldur fyrir ýmis brot gegn umferðarlögum, almennum hegningarlögum og lögum um ávana- og fíkniefni.
Ákæruvaldið (
Gunnhildur Anna Alfonsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Jóni Gunnþórssyni (
Gísli M. Auðbergsson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir ýmis brot gegn hegningarlögum og sérrefsilögum samkvæmt þremur ákærum. Hann játaði brot sín skýlaust.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Sonja Wiium saksóknarfulltrúi)
gegn
Aleksas Kartanas (
Leó Daðason lögmaður)
Ákærði, sem játaði sök, var dæmdur til að sæta fangelsi í tólf mánuði, fyrir ýmis brot gegn almennum hegningarlögum, umferðarlögum og lögum um ávana- og fíkniefni, auk greiðslu bóta.
Ákæruvaldið (Alla Rún Rúnarsdóttir saksóknarfulltrúi) gegn
Mateusz Luksa og Patryk Kamil Potaczek
Ákærðu sakfelldir fyrir nytjastuld og umferðarlagabrot.
Ákæruvaldið (
Júlí Karlsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Erlingi Einarssyni (
Snorri Sturluson lögmaður)
Ákærði sakfelldur m.a. sakfelldur fyrir ítrekuð auðgunarbrot og brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni. Hann játaði brot sín skýlaust.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Íris Þóra Júlíusdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Ívari Smára Guðmundssyni (
Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Ákærði var sakfelldur fyrir ýmis brot gegn almennum hegningarlögum, umferðar-, vopna-, fíkniefna- og lögreglulögum.
Ákærði sakfelldur fyrir umferðarlagabrot, auðgunarbrot, nytjastuld og brot á lögum um ávana- og fíkniefni. Ákærði játaði brot sín skýlaust.
Lögreglustjórinn á Suðurlandi (
Ólafur Hallgrímsson fulltrúi)
gegn
Jóni Gunnþórssyni (
Gísli M. Auðbergsson lögmaður)
Ákærði var fundinn sekur um ýmis hegningarlagabrot, fíkniefnalagabrot og umferðarlagabrot, þ.m.t. ítrekaðan akstur undir áhrifum fíkniefna og akstur sviptur ökurétti. Var honum dæmdur hegningarauki við eldri dóm og gert að sæta að fangelsi í níu mánuði, jafnframt sekt. Þá var áréttuð ævilöng svipting ökuréttar ákærða og honum gert að greiða brotaþolum skaðabætur.
Ákærðu sakfelldir fyrir þjófnað en annar þeirra einnig fyrir fíkniefnalagabrot, ítrekaðan akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna og án ökuréttar, nytjastuld og eignaspjöll. Játningarmál.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Agnes Ýr Stefánsdóttir saksóknarfulltrúi) gegn
Patryk Brodowski
Ákærði var sakfelldur fyrir hegningar-, fíkniefna- og umferðarlagabrot.
Ákærða sakfelld fyrir fíkniefnilagabrot, nytjastuld, þjófnað og umferðarlagabrot.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Kristín Einarsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Sunnu Lind Ómarsdóttur (
Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson lögmaður)
Ákærða var sakfelld fyrir ýmis brot gegn almennum hegningarlögum, umferðar- og fíkniefnalögum, en sýknuð af ákæru fyrir rangar sakargiftir.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Baldvin Einarsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Guðjóni Bergi Jakobssyni (
Bjarni Hólmar Einarsson lögmaður)
Ákærði var sakfelldur fyrir fjölmörg brot gegn almennum hegningarlögum, umferðarlögum og fíkniefnalögum.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Kamilla Kjerúlf saksóknarfulltrúi)
gegn
Aron Elí Österby Ævarsson (
Ingi Freyr Ágústsson lögmaður)
Ákærði var sakfelldur fyrir þjófnað, nytjastuld, umferðar-, fíkniefna- og vopnalagabrot.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Auðbjörg Lísa Gústafsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Hrannari Páli Róbertssyni (
Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Ákærði var sakfelldur fyrir þjófnað, eignaspjöll, nytjastuld, umferðar- og fíkniefnalagabrot.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Kristmundur Stefán Einarsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Sigríði Guðnadóttur (
Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Ákærða sem játaði brot sín dæmd til fimm mánaða óskilorðsbundinnar fangelsisrefsingar fyrir þjófnaðarbrot, nytjastuld, fjársvik og fíkniefnalagabrot.
Ákærði sakfelldur fyrir ýmis brot, m.a. ofbeldisbrot, rán, nytjastuld og brot á vopnalögum. Hann játaði brot sín skýlaust.
Ákæruvaldið (
Gunnhildur Anna Alfonsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Aleksas Kartanas (
Leó Daðason lögmaður)
Karlmaður var dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi fyrir hegningarlaga- og sérrefsilagabrot. Var fullnustu 45 daga af þeirri refsingu frestað skilorðsbundið þannig að sá hluti refsingar falli niður að liðnum tveimur árum frá dómsuppsögu haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga. Til drádráttar dæmdri refsingu kom gæsluvarðhald ákærða frá 17. júní til og með 3. september 2024.
Ákærða sakfelld fyrir ýmis brot, m.a. brot gegn valdstjórninni, líkamsárás, auðgunarbrot og umferðarlagabrot. Hún játaði brot sín skýlaust og viðurkenndi bótaskyldu.
Ákærða sakfelld fyrir nytjastuld, vörslur fíkniefna og akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna og slævandi lyfja og dæmd í 60 daga skilorðsbundið fangelsi.
F var sakfelldur fyrir tilraun til manndráps með því að hafa farið grímuklæddur og vopnaður hlaðinni og afsagaðri haglabyssu inn á tilgreindan veitingastað og beint henni í átt að þremur viðskiptavinum og barþjóni, sem voru við barborð staðarins, og án viðvörunar og fyrirvaralaust hleypt af einu skoti þannig að höglin höfnuðu í innréttingu staðarins og áfengisflöskum, rétt ofan og til hliðar við fólkið, með þeim afleiðingum að flöskurnar splundruðust og glerbrotum rigndi yfir þau. Þá voru F og A sakfelldir fyrir að hafa í félagi svipt E frelsi sínu, í um fimm klukkustundir, á heimili E, og beitt hann ofbeldi og hótunum í því skyni að ná frá honum verðmætum, en þeir bundu E á höndum og fótum við rúm hans, þar sem F hótaði honum lífláti og annars konar ofbeldi og neyddi hann þannig til að gefa upp lykilorð að farsíma og heimabanka, meðan A safnaði saman tilgreindu lausafé í eigu E sem þeir báru í sameiningu út í bifreið og hurfu á braut og skildu E eftir bundinn, allt með þeim afleiðingum að E varð fyrir líkamstjóni. F var jafnframt sakfelldur fyrir nauðgun og annars konar kynferðisbrot með því að hafa í framangreint sinn þar sem E lá bundinn í rúminu haft við hann önnur kynferðismök með nánar tilgreindum hætti og á sama tíma tekið athæfið upp á farsíma og hótað dreifingu þess ef hann leitaði til lögreglu. Loks var A sakfelldur fyrir margvísleg umferðarlagabrot, brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni og tilgreint þjófnaðarbrot. Við ákvörðun refsingar F og A var höfð hliðsjón af 1., 2. og 3. tölulið 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og samverknaðar þeirra við hluta brotanna, sbr. 2. mgr. sömu lagagreinar. Var þeim jafnframt gerður hegningarauki, sbr. 1. mgr. 78. gr. sömu laga. Loks voru eldri skilorðsdómar teknir upp og þeim gerð refsing í einu lagi sbr. 60. gr. og 1. mgr. 77. gr. sömu laga. Jafnframt var vísað til þess að kynferðisbrot F gegn E hefði verið framið á sérstaklega sársaukafullan og meiðandi hátt, sbr. c-lið 195. gr. sömu laga. Refsing F var ákveðin fangelsi í 10 ár og A fangelsi í þrjú ár. Var þeim jafnframt gert að greiða brotaþolum skaða- og miskabætur.
U var ákærður fyrir þjófnaðarbrot, húsbrot, umferðar- og fíkniefnalagabrot, nytjastuld og skjalafals. Við meðferð málsins í héraði játaði U skýlaust brot sín og var farið með málið sem játningarmál samkvæmt heimild í 1. mgr. 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Fyrir Landsrétti var eingöngu til endurskoðunar ákvæði héraðsdóms um refsingu U. Með vísan til hins forsendna hins áfrýjaða dóms en að teknu tilliti til upplýsinga um breytta hagi U var refsing hans ákveðin fangelsi í tvö ár.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Pétur Fannar Gíslason saksóknarfulltrúi)
gegn
X (
Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Ákærði var sakfelldur fyrir ýmis hegningar- og sérrefsilagabrot, en refsing var ekki talin bera árangur sbr. 16. gr. almennra hegningarlaga og ákærða var gert að sæta vistun á viðeigandi stofnun.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Gunnhildur Anna Alfonsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Hauki Birni Guðnasyni (
Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir fíkniefnalagabrot, akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna, fjársvik, þjófnaðar- og vopnalagabrot og nytjastuld og dæmdur í átta mánaða fangelsi auk sviptingar ökuréttar. Hegningarauki að hluta. Ítrekun. Upptaka.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Íris Þóra Júlíusdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Söndru Rún Raybould (
Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Ákærða sakfelld fyrir m.a. umferðarlagabrot, nytjastuld og þjófnað og dæmd í fangelsi í 12 mánuði og svipt ökurétti.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Einar Laxness aðstoðarsaksóknari)
gegn
Brynjari Leó Hjartarsyni (
Ómar Örn Bjarnþórsson lögmaður)
Ákærði var sakfelldur fyrir nytjastuld, rán, umferðar- og fíkniefnalagabrot.
Sakfellt og dæmd skilorðsbundin refsing vegna brots gegn valdstjórninni, nytjastuldar bifreiðar og umferðarlagabrota. Einnig dæmdar skaðabætur vegna tjóns á bifreið.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Agnes Ýr Stefánsdóttir saksóknarfulltrúi)
gegn
Arnari Inga Jónssyni (
Þorgils Þorgilsson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir umferðarlagabrot, nytjastuld og brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni.
I var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot og nytjastuld með því að hafa tvívegis tekið bifreið í heimildarleysi, sviptur ökurétti og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna. Við ákvörðun refsingar var vísað til þess að með dómi þessum væri I nú sakfelldur í sjötta sinn fyrir akstur undir áhrifum fíkniefna og í fjórða skipti sviptur ökurétti. Var jafnframt litið til þess að hann væri nú jafnframt sakfelldur fyrir nytjastuld. Með brotunum rauf I skilyrði reynslulausnar og var honum gerð refsing í einu lagi, sbr. 1. mgr. 82. gr. laga nr. 15/2016 um fullnustu refsinga, sbr. 60. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Horft var til þess að I hefði játað brot sín greiðlega og hefði jafnframt lagt fram gögn á báðum dómstigum sem bæru vott um viðleitni hans til að bæta ráð sitt og ná tökum á fíkn sinni. Að þessu virtu og að teknu tilliti til dómaframkvæmdar var refsing I ákveðin fangelsi í 12 mánuði. Loks var áréttuð ævilöng ökuréttarsvipting hans.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Gunnhildur Anna Alfonsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Kristófer Axel Smith Axelssyni (
Steinbergur Finnbogason lögmaður)
Ákærði dæmdur í 8 mánaða fangelsi og sviptur ökurétti ævilangt, m.a. fyrir rán, húsbrot og umferðarlagabrot.
Ákærði var sakfelldur fyrir þjófnað, nytjastuld, fíkniefna- og vopnalagabrot.
Ákæruvaldið (
Agnes Ýr Stefánsdóttir saksóknarfulltrúi)
gegn
Geir Þorsteinssyni (
Jóhann Pétursson lögmaður)
Endurtekin auðgunarbrot og umferðarlagabrot, nytjastuldur, skjalamisnotkun og vörslur fíkniefna.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Agnes Ýr Stefánsdóttir saksóknarfulltrúi)
gegn
Sigurjóni Þórissyni (
Snorri Sturluson lögmaður)
Ákærði var sakfelldur fyrir hegningarlaga- og umferðarlagabrot og honum gert að sæta fangelsi í 90 daga og hann sviptur ökurétti ævilangt.
Ákærði var fundinn sekur um líkamsárás og akstur sviptur ökurétti, en ekki þótti sannað gegn neitun ákærða að hann hefði gerst sekur um nytjastuld eða að hann sparkað í brotaþola líkt og lýst var í ákæru. Var ákærði dæmdur til að sæta fangelsi í 30 daga auk þess sem hann var dæmdur til að greiða brotaþola miskabætur.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Auðbjörg Lísa Gústafsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Hafsteini Ara Ágústssyni (
Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður)
Ákærði var sakfelldur fyrir nytjastuld, þjófnað, umferðar- og fíkniefnalagabrot. Var honum gert að sæta fangelsi í 5 mánuði, skilorðsbundið til tveggja ára, ásamt því að vera sviptur ökuréttindum í 2 aár og 3 mánuði.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Pétur Fannar Gíslason saksóknarfulltrúi)
gegn
Benedikt Má Ingibjargarsyni (
Þorgils Þorgilsson lögmaður)
Ákærði, sem játaði brot sín, dæmdur í fangelsi í 7 mánuði fyrir fjársvik og rán, nytjastuld og umferðarlagabrot, húsbrot og þjófnað.
Ákærði sakfelldur fyrir mörg hegningarlaga- og sérrefsilagabrot, þar með talið líkamsárás og þjófnaði.
Ákærðu sakfelldir fyrir nokkur brot, ýmist framin saman eða í sitthvoru lagi, þar með talið rán.