Héraðsdómur Reykjavíkur
Dómur 6. júní 2025.
Mál nr. S-4228/2024:
Ákæruvaldið
(Gunnhildur Anna Alfonsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Jóni Gunnþórssyni
(Gísli M. Auðbergsson lögmaður)
Lykilorð
Ávana- og fíkniefni. Gripdeild. Nytjastuldur. Þjófnaður. Umferðarlagabrot. Vopnalagabrot.
Útdráttur
Ákærði sakfelldur fyrir ýmis brot gegn hegningarlögum og sérrefsilögum samkvæmt þremur ákærum. Hann játaði brot sín skýlaust.
Dómur
- Mál þetta, sem dómtekið var 27. maí 2025, var höfðað með ákæru, útgefinni af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu 13. ágúst 2024, á hendur „Jóni Gunnþórssyni, kt. […], […], […], I. Fyrir eftirtalin auðgunarbrot:
- Þjófnað með því að hafa, fimmtudaginn 15. desember 2022, brotist inn í bifreiðina […], í eigu A., kt. […], með því að brjóta rúðu í bílstjórahurð bifreiðarinnar, og stolið þaðan hvítum hitablásara að óþekktu verðmæti, þar sem bifreiðin stóð í bifreiðakjallara við Grensásveg […] í Reykjavík.
Mál nr. 007-2022-[…]
2. […]
- Þjófnað með því að hafa, fimmtudaginn 22. desember 2022, brotist inn í bílageymslu við […] í Reykjavík með því að brjóta sér leið inn um glugga og stolið þaðan fjarstýringu fyrir bílskúrshurðaopnara og skiptitösku að óþekktu verðmæti.
Mál nr. 007-2022-[…]
- Þjófnað með því að hafa, laugardaginn 6. maí 2023, brotist inn í bílskúr við […] í Reykjavík með því að fara inn um hurð bílskúrsins, og stolið þaðan Xiaomi rafhlaupahjóli að verðmæti 58.646 kr. og [Carhartt] úlpu að óþekktu verðmæti.
Mál nr. 007-2023-[…]
- Þjófnað með því að hafa, föstudaginn 19. maí 2023, brotist inn í byggingu B, […] í Hafnarfirði, með því að fara inn um glugga og stolið þaðan Klein fjallahjóli, BH Rebel Gravel rafmagnshjóli, íþróttatösku og tvennum pörum af sjósundssokkum að óþekktu verðmæti.
Mál nr. 007-2023-[…]
- Þjófnað með því að hafa, miðvikudaginn 7. júní 2023, brotist inn í bílskúr við […] í Reykjavík með því að fara inn um bílskúrshurð og stolið þaðan rafmagnshjóli að óþekktu verðmæti.
Mál nr. 007-2023-[…]
- Þjófnað með því að hafa, föstudaginn 14. júlí 2023, brotist inn í bifreiðina […], í eigu C, kt. […], með því að opna ólæsta hurð og stolið þaðan greiðslukorti og sólgleraugum að óþekktu verðmæti, þar sem bifreiðin stóð á bifreiðastæði við […], […] í […].
Mál nr. 007-2023-[…]
- Þjófnað með því að hafa, föstudaginn 4. ágúst 2023, brotist inn í bifreiðina […], í eigu D., kt. […], með því að opna ólæsta hurð og stolið þaðan Oakley sólgleraugum og lyklum að óþekktu verðmæti, þar sem bifreiðin stóð við […] í Reykjavík og jafnframt fyrir að hafa, á sama tíma, brotist inn í bifreiðina […], í eigu E., kt. […], með því að opna ólæsta hurð og stolið þaðan Milwaukee laser og Bose heyrnartólum, að óþekktu verðmæti, þar sem bifreiðin stóð við […] í Reykjavík.
Mál nr. 007-2023-[…]
9. […] Telst háttsemin í ákæruliðum nr. 1–11 varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, háttsemin í ákærulið nr. 12 varða við 245. gr. sömu laga og telst háttsemin í ákærulið nr. 2 einnig varða við 1. mgr. 259. gr. sömu laga.
II. Fyrir eftirtalin sérrefsilagabrot:
- Fíkniefnalagabrot með því að hafa, mánudaginn 12. desember 2022, utandyra við […] í Reykjavík, haft í vörslum sínum 7 stykki af Suboxone töflum, sem lögregla fann við öryggisleit á ákærða.
Mál nr. 007-2022-[…]
Telst háttsemi þessi varða við 3. gr., sbr. 5. og 6. gr., laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974 og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr., reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, með síðari breytingum.
- Fíkniefnalagabrot með því að hafa, fimmtudaginn 22. desember 2022, í […] í Reykjavík, haft í vörslum sínum 14,08 g af amfetamíni og 1,37 g af maríhúana, sem lögregla fann við öryggisleit á ákærða.
Sama málsnr. og í ákærulið nr. 3.
Telst brot þetta varða við 2. gr., sbr. 5. og 6. gr., laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974 og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr., reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, með síðari breytingum.
- Fíkniefnalagabrot með því að hafa, föstudaginn 21. apríl 2023, við […] í Reykjavík, haft í vörslum sínum 0,88 g af amfetamíni og 1,08 g af maríhúana sem lögregla fann við öryggisleita á ákærða.
Mál nr. 007-2023-[…]
Telst brot þetta varða við 2. gr., sbr. 5. og 6. gr., laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974 og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr., reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, með síðari breytingum.
- Fíkniefna- og vopnalagabrot með því að hafa, föstudaginn 14. júlí 2023, á lögreglustöðinni við Hverfisgötu 113–115 í Reykjavík, haft í vörslum sínum 68,05 g af amfetamíni, 8,25 g af alprazólam og tvo fjaðurhnífa, sem lögregla fann við öryggisleit á ákærða.
Mál nr. 007-2023-[…]
Telst brot þetta varða við 2. og 3. gr., sbr. 5. og 6. gr., laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974 og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr., reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, með síðari breytingum, og a-lið 2. mgr. 30. gr., sbr. 1. mgr. 36. gr., vopnalaga nr. 16/1998.
- Fíkniefnalagabrot með því að hafa, föstudaginn 12. janúar 2024, á lögreglustöðinni við Hverfisgötu 113–115 í Reykjavík, haft í vörslum sínum 0,96 g af amfetamíni, sem lögregla fann við öryggisleit á ákærða.
Mál nr. 007-2024-[…]
Telst brot þetta varða við 2. gr., sbr. 5. og 6. gr., laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974 og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr., reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, með síðari breytingum.
- Fíkniefnalagabrot með því að hafa, laugardaginn 12. janúar 2024, á lögreglustöðinni við Hverfisgötu 113–115 í Reykjavík, haft í vörslum sínum 1,21 g af amfetamíni og 15 stykki af alprazólam töflum, sem lögregla fann við öryggisleit á ákærða.
Sama málsnr. og í ákærulið nr. 10 Telst brot þetta varða við 2. og 3. gr., sbr. 5. og 6. gr., laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974 og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr., reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, með síðari breytingum.
- Umferðar-, lögreglu- og fíkniefnalagabrot með því að hafa, sunnudaginn 16. apríl 2023, ekið bifreiðinni […] sviptur ökurétti um […] í Reykjavík og í kjölfarið hlaupið á brott og neitað að hlýða fyrirmælum lögreglum um að nema staðar og einnig haft í vörslum sínum 0,51 g af amfetamíni og 0,45 g af metamfetamíni sem lögregla fann við leit í bifreiðinni.
Mál nr. 007-2023-[…]
Telst háttsemi þessi varða við 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 95. gr., umferðarlaga nr. 77/2019, 19. gr., sbr. 44. gr., lögreglulaga nr. 90/1996 og 2. gr., sbr. 5. og 6. gr., laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974 og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr., reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, með síðari breytingum 20. […] og fíkniefnalagabrot með því að hafa, [laugar]daginn 29. júlí 2023 […] þar sem lögregla hafði afskipti af ákærða og hafa haft í vörslum sínum 2,57 g af amfetamíni, 3,63 af maríhúana, 10 stykki af gabapentín og 45 stykki af quetiapin, sem lögregla fann við […].
Telst háttsemi þessi varða við […]1 og 2. og 3. gr., sbr. 5. og 6. gr., laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974 og 2. gr. sbr. 1. mgr. 14. gr., reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, með síðari breytingum.
Mál nr. 007-2023-[…]
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar, til greiðslu alls sakarkostnaðar og til að sæta sviptingu ökuréttar, skv. 99. gr. og 101. gr. umferðarlaga nr. 77/2019. Krafist er upptöku á 88,22 g af amfetamíni, 6,08 g af kannabis, 0,45 g af metamfetamíni, 23 [stykkjum] af alprazólam, 10 [stykkjum] af gabapentín töflum, 7 [stykkjum] af suboxone [töflum] og 45 [stykkjum] af quetiapin, sem hald var lagt á, samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001, með síðari breytingum.
Jafnframt er krafist upptöku á tveimur fjaðurhnífum sem [haldlagðir voru] í kjölfar afskipta lögreglu af ákærða sem greint er frá í ákærulið nr. 16 (munir nr. 612662 í munaskrá lögreglu nr. 178133), sbr. heimild í 1. mgr. 69. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og 1. mgr. 37. gr. vopnalaga nr. 16/1998.“
- Í þinghaldi 7. nóvember 2024 var mál nr. S-[…]/2024 sameinað máli þessu en það er höfðað með ákæru, útgefinni af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu 22. október 2024 á hendur ákærða „I. Fyrir eftirtalin auðgunarbrot:
- Þjófnað með því að hafa, föstudaginn 17. nóvember 2023, farið inn um opna hurð á starfsmannarými F, […] í Reykjavík, og stolið þaðan tveimur dökkbláum jökkum, greiðslukortum, kortaveski og húslyklum að óþekktu verðmæti.
Mál nr. 007-2023-[…]
2. […]
- Þjófnað með því að hafa, þriðjudaginn 19. desember 2023, brotist inn í geymslu nr. […] í […] í Reykjavík með því að valda skemmdum á læsingu geymsluhurðarinnar og stolið Head Adapt Edge reiðhjóli að óþekktu verðmæti.
Mál nr. 007-2023-[…]
- Þjófnað með því að hafa, föstudaginn 22. desember 2023, farið inn um opna hurð á veitingastaðnum G, […] í Reykjavík, og stolið þaðan Samsung spjaldtölvu að óþekktu verðmæti og hvítri sjóðsvél sem í voru 20.000 kr. í reiðufé.
Mál nr. 007-2023-[…]
- Gripdeild með því að hafa, föstudaginn 22. desember 2023, í anddyri Kringlunnar í Reykjavík, tekið svarta rafskútu að verðmæti 40.000 kr. og gengið með hana út úr versluninni.
Mál nr. 007-2023-[…]
- Þjófnað með því að hafa, fimmtudaginn 25. janúar 2024, brotist inn á skrifstofu H, […] í Reykjavík, með því að brjóta upp læsingu hurðar og stolið þaðan kveikjuláslyklum af bifreiðunum […] og […] og svartri fartölvu að óþekktu verðmæti.
Mál nr. 007-2024-[…]
- Nytjastuld með því að hafa, á sömu stund og stað og greint er frá í ákærulið nr. 6, í heimildarleysi tekið bifreiðina […] og ekið henni að […] í Reykjavík þar sem lögregla hafði afskipti af honum.
Mál nr. 007-2024-[…]
Telst háttsemin í ákæruliðum nr. 1–4 og 6 varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, háttsemin í ákærulið nr. 5 varða við 245. gr. sömu laga og telst háttsemin í ákærulið nr. 7 varða við 1. mgr. 259. gr. sömu laga.
II. Fyrir eftirtalin sérrefsilagabrot:
- Fíkniefnalagabrot með því að hafa, miðvikudaginn 13. desember 2023, við […] í Reykjavík, haft í vörslum sínum 2 stykki af Alprazolam Krka töflum sem lögregla fann við öryggisleit á ákærða.
Mál nr. 007-2023-[…]
Telst brot þetta varða við 2. og 3. gr., sbr. 5. og 6. gr., laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974 og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr., reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, með síðari breytingum.
- Fíkniefna- og vopnalagabrot með því að hafa, mánudaginn 18. desember 2023, á lögreglustöðinni við Hverfisgötu 113–115 í Reykjavík, haft í vörslum sínum 1,46 g af maríhúana, Ikea hníf og Fiskars hníf, sem lögregla fann við öryggisleit á ákærða.
Mál nr. 007-2023-[…]
Telst brot þetta varða við 2. og 3. gr., sbr. 5. og 6. gr., laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974 og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr., reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, með síðari breytingum og a-lið 2. mgr. 30. gr., sbr. 1. mgr. 36. gr., vopnalaga nr. 16/1998.
10. […] Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar, til greiðslu alls sakarkostnaðar og til að sæta sviptingu ökuréttar, skv. 99. gr. og 101. gr. umferðarlaga nr. 77/2019. Krafist er upptöku á 1,46 g af maríhúana og 8,5 stykkjum af Alprazolam Krka sem hald var lagt á, samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001, með síðari breytingum.
Jafnframt er krafist upptöku á Ikea hníf (munur nr. […] í munaskrá lögreglu nr. […]) og Fiskars hníf (munur nr. […] í munaskrá lögreglu nr. […]), sbr. heimild í 1. mgr. 69. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og 1. mgr. 37. gr. vopnalaga nr. 16/1998.“
- Í þinghaldi 14. febrúar 2025 var mál nr. S-[…]/2024 sameinað máli þessu en það er höfðað með ákæru, útgefinni af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu 17. desember 2024, á hendur ákærða „Fyrir eftirtalin brot:
1. […]
- Fíkniefnalagabrot með því að hafa, mánudaginn 18. desember 2023, við verslunina I, […] í Hafnarfirði, haft í vörslum sínum 12,92 g af amfetamíni sem lögregla fann við öryggisleit á ákærða við handtöku.
Mál nr. 007-2023-[…]
Telst brot þetta varða við 2. gr., sbr. 5. og 6. gr., laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974 og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr., reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, með síðari breytingum.
5. […]
- Þjófnað með því að hafa, fimmtudaginn 25. janúar 2024, brotist inn geymslu J við […] í Reykjavík með því að brjóta upp hengilás sem var á hurð geymslunnar og stolið þaðan Milwaukee borvél og Fluke rafmagnsmæli að óþekktu verðmæti.
Mál nr. 007-2024-[…]
Telst háttsemi þessi varða við 1. mgr. 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar. Krafist er upptöku á 12,92 g af amfetamíni sem hald var lagt á, samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001, með síðari breytingum.“
- Verjandi ákærða krefst vægustu refsingar sem lög leyfa og hæfilegrar málsvarnarþóknunar sér til handa sem greiðist að hluta úr ríkissjóði.
- Við upphaf aðalmeðferðar vegna ákæru frá 13. ágúst 2024 játaði ákærði skýlaust sök í ákæruliðum nr. 1, 3–8 og 13–20 nema hvað varðar umferðarlagabrot í 20. lið og hnífaburð samkvæmt ákærulið nr. 16. Ákæruvaldið féll frá ákæruliðum nr. 2, 9–12, vopnalagabroti í ákærulið nr. 16 og umferðarlagabrotum í ákærulið nr. 20. Vegna ákæru frá 22. október 2024 játaði ákærði skýlaust sök í ákæruliðum nr. 1 og 3–9. Ákæruvaldið féll frá ákæruliðum nr. 2 og 10. Varðandi ákæru frá 17. desember 2024 játaði ákærði skýlaust sök samkvæmt ákæruliðum nr. 4 og 6. Ákæruvaldið fellur frá ákæruliðum nr. 1–3 og 5. Ákærði samþykkti upptökukröfur í ákæru sem eftir standa til samræmis við fráfall ákæruvaldsins á fyrrgreindum ákæruliðum.
- Farið var með mál þetta samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu þegar sækjanda og verjanda ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga. Ákærði hefur skýlaust játað brot sín. Sannað er með játningu ákærða og öðrum gögnum málsins að ákærði er sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök og eru brot hans rétt heimfærð til refsiákvæða í ákæru.
- Ákærði er fæddur í […]. Samkvæmt framlögðu sakavottorði, dagsettu 12. ágúst 2024, á ákærði langan sakaferil að baki fyrir ýmis brot. Nú síðast var hann dæmdur í Héraðsdómi Suðurlands […] 2025 í níu mánaða óskilorðsbundið fangelsi fyrir m.a. brot gegn nálgunarbanni, húsbrot, nytjastuld, auðgunarbrot, vörslu fíkniefna og umferðarlagabrot.
Þá var ákærði dæmdur í Héraðsdómi Norðurlands eystra […] 2023 í átta mánaða óskilorðsbundna fangelsisvist fyrir auðgunarbrot. Var honum þá gerður hegningarauki vegna tveggja fyrri dóma.
- Brot ákærða samkvæmt ákæruliðum 1, 3–7, 13–15 og 19 í ákæru 13. ágúst 2024 voru framin fyrir uppkvaðningu framangreinds dóms frá […] 2023. Verður ákærða því dæmdur hegningarauki vegna þeirra brota nú. Önnur brot ákærða sem eftir standa samkvæmt ákærunni sem og ákærum frá 22. október 2024 og 17. desember 2024 voru framin fyrir uppkvaðningu dóms Héraðsdóms Suðurlands […] 2025 og ákærða því dæmdur hegningarauki, sbr. 78. gr. almennra hegningarlaga.
- Við ákvörðun refsingar er litið til játningar ákærða. Brot hans eru öll neyslutengd og voru brot hans sleitulaus á tímabili. Í flestum tilvikum var farið inn í opin rými eða bifreiðar eða brotist inn í mannlausar geymslur eða fyrirtæki. Samanlagt verðmæti þýfis er nokkurt og komst það til skila að hluta til. Ákærði lýsti þrautagöngu sinni og glímu við fíkniefni en jafnframt löngun til þess að segja skilið við fíknivanda sinn. Við ákvörðun refsingar verður litið til sakaferils ákærða, sjónarmiða um hegningarauka- og ítrekunaráhrifa varðandi umferðarlaga- og auðgunarbrot hans. Við ákvörðun refsingar ber því að líta til 72. gr. og 255. gr., sbr. 71. gr., almennra hegningarlaga. Þá vísast til 1., 5., 6. og 8 tl. 70. gr. og 77. gr. laganna. Jafnframt er litið til þess að langt er liðið frá mörgum brotum ákærða. Mál hans hafa dregist óhóflega á langinn án þess að gripið hafi verið til ráðstafana til að stemma stigu við brotum hans. Á móti kemur að ákæruvaldið hefur komið til móts við ákærða vegna þessa í allnokkrum gömlum málum og fallið frá einstökum ákæruliðum. Hefur ákærði fengið þar að njóta vafans í ríkulegum mæli. Með vísan til alls framangreinds þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í 24 mánuði en önnur úrræði, svo sem 65. gr. almennra hegningarlaga, eru svo vitað sé ekki tæk.
- Með vísan til lagaákvæða í ákæru er ævilöng svipting ökuréttar ákærða áréttuð.
- Þá eru með vísan til lagaákvæða og kröfugerðar í ákæru gerð upptæk 6,08 g af maríhúana, 101,14 g af amfetamíni, 0,45 g af metamfetamíni, 25 stykki af alprazólam, 10 stykki af gabapentín-töflum, sjö stykki af suboxone-töflum og 45 stykki af quetiapin sem hald var lagt á undir rannsókn málsins.
- Við ákvörðun málsvarnarþóknunar verjanda ákærða, Gísla M. Auðbergssonar lögmanns, er litið til umfangs og málsmeðferðar sem og reglna dómstólasýslunnar nr. 1/2025. Þykir málsvarnarþóknun hæfilega ákvörðuð 1.506.000 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti. Ákærða skal gert að greiða helming málsvarnarlauna skipaðs verjanda síns, 753.000, en helmingur skal greiddur úr ríkissjóði. Þá skal ákærði greiða 100.530 krónur vegna útlagðs kostnaðar verjanda, 13.980 krónur í aksturskostnað og 80.000 krónur í annan ferðakostnað hans. Þá skal ákærði greiða 134.638 krónur í annan sakarkostnað.
- Sigríður Hjaltested héraðsdómari kveður upp dóm þennan.
Dómsorð:
Ákærði, Jón Gunnþórsson, sæti fangelsi í 24 mánuði.
Áréttuð er ævilöng svipting ökuréttar ákærða.
Ákærði sæti upptöku á 6,08 g af maríhúana, 101,14 g af amfetamíni, 0,45 g af metamfetamíni, 25 stykkjum af alprazólam, 10 stykkjum af gabapentín-töflum, sjö stykkjum af suboxone-töflum og 45 stykkjum af quetiapin.
Ákærði greiði helming málsvarnarþóknunar skipaðs verjanda síns, Gísla M. Auðbergssonar lögmanns, 753.000 krónur, en helmingur skal greiddur úr ríkissjóði. Ákærði greiði 93.980 krónur vegna ferðakostnaðar verjanda og 134.638 krónur í annan sakarkostnað.
Sigríður Hjaltested